Héraðsdómur Reykjaness
Dómur 22. október 2024.
Mál nr. S-1786/2024:
Ákæruvaldið
(Ásmundur Jónsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Merrel Roy Wijnaldum
Dómur:
I
(Ólafur Valur Guðjónsson lögmaður)
Lykilorð
Fangelsi. Peningaþvætti. Skilorð að hluta. Upptaka.
Útdráttur
Ákærði sakfelldur fyrir peningaþvætti og til að sæta upptöku á evrum.
Mál þetta, sem dómtekið var 11. október 2024, að lokinni aðalmeðferð, er höfðað með ákæru lögreglustjórans á Suðurnesjum útgefinni 23. júlí 2024 á hendur ákærða Merrel Roy Wijnaldum, fæddum […], ríkisborgara Hollands.
Málið er höfðað á hendur ákærða fyrir peningaþvætti með því að hafa á tímabilinu 16. maí 2024 til 19. maí 2024 tekið við samtals 4.920 evrum í reiðufé frá óþekktum aðila eða aðilum en ákærða gat ekki dulist að um væri að ræða ávinning af refsiverðum brotum. Ákærði var með reiðuféð í fórum sínum þegar hann var handtekinn í Flugstöð Leifs Eiríkssonar þann 19. maí 2024 á leið til Amsterdam, Hollandi, með flugi nr. […].
Með háttsemi sinni móttók ákærði ávinning af refsiverðum brotum, geymdi ávinninginn, flutti og leyndi ávinningnum og upplýsingum um uppruna, eðli, staðsetningu og ráðstöfun hans.
Telst háttsemi ákærða varða við 1. mgr. 264. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/19401940 en til vara við 4. mgr. 264. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.
Þá er þess krafist að gerðar verði upptækar með dómi samtals 4.920 evrur sem lögregla fann og haldlagði og varðveittar eru sem innistæða á bankareikningi lögreglustjórans á Suðurnesjum auk vaxta og verðbóta af framangreindri fjárhæð frá 19. maí 2024 til greiðsludags samkvæmt heimild í 69. gr. og 69. gr. b. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Verjandi ákærða krefst þess aðallega að hann verði sýknaður af kröfum ákæruvaldsins en til vara, komi til sakfellingar, er krafist vægustu refsingar sem lög frekast heimila. Þá er þess krafist að allur sakarkostnaður verði greiddur úr ríkissjóði þ.m.t. málsvarnarlaun verjanda ákærða samkvæmt tímaskýrslu.
II
Málavextir.
Samkvæmt skýrslu tollgæslu stöðvuðu tollverðir för ákærða á Keflavíkurflugvelli sunnudaginn 19. maí 2024 þegar hann var á leið frá landinu og ætlaði með flugi til Amsterdam í Hollandi. Þegar hann var inntur eftir því hvort hann væri með fjármuni á sér játaði hann því. Ákærði var því tekinn til frekari skoðunar og við leit í farangri hans fundust 4.920 evrur í reiðufé. Hann kvaðst hafa komið með fjármunina með sér hingað til lands en hann gat ekki sýnt fram á að svo væri. Ákærði kvaðst hafa komið hingað til lands sem ferðamaður og hann hafi ætlað að hitta konu hér á landi en hún hafi ekki mætt á fyrirhugaðan fund þeirra. Ákærði kvaðst hafa verið hér á landi í þrjá daga og ekki hitt neinn heldur verið lengst af inni á hótelherbergi.
Samkvæmt frumskýrslu lögreglu sagði ákærði einnig við lögreglumenn að hann hafi komið með fjármunina með sér hingað til lands en hann gat ekki sýnt fram á uppruna þeirra. Ákærði var með tvo farsíma og þegar hann var að leita að bókunum sínum í öðrum símanum fletti hann á milli tengiliða í samskiptaforritinu ,,Whatsapp“. Þá mátti sjá að hann hafði átt símtöl við farsímanúmerið […] og þá voru rituð þessi samskipti: ,,Meet me at Vitabar, Bergþórugötu 21, 101 Reykjavík in 15 minutes.“ Skráður rétthafi símanúmersins var […], albanskur karlmaður búsettur á Íslandi. Hann hefur verið í ólöglegri dvöl hér á landi og hann er undir grun um að vera viðriðin skipulagða brotastarfsemi á landinu. Í farsíma ákærða mátti einnig sjá samskipti við einstakling að nafni Jerry Jr. Sá hafði gefið ákærða fyrirmæli um hvar hann ætti að dvelja og um tímasetningar. Samkvæmt upplýsingum tollgæslu hefur Jerry Jr. verið tengdur innflutningi fíkniefna til Evrópu á undanförnum árum. Tölvupóstfang í ferðabókun ákærða hefur verið mikið notað við innflutning tengdum Jerry Jr.
Ákærði tjáði lögreglu að hann hefði komið hingað til lands 17. maí 2024 frá Hollandi og hann hafi sjálfur bókað flugfarið til landsins í gegnum ferðaskrifstofu í Amsterdam. Hér hafi hann gist í Guesthouse 101, bókað gistinguna sjálfur og greitt fyrir hana. Hann kvaðst ekki hafa þekkt til einstaklinga hér á landi og hann kvaðst ekki vera viss af hverju hann hafi spurt Jerry Jr. hvar hann ætti að gista. Ákærði kannaðist ekki við íslenska farsímanúmerið […] en Jerry Jr. hafi látið ákærða hafa það í þeim tilgangi að hann gæti skoðað atvinnumarkaðinn hér á landi. Ákærði kvaðst ekki hafa mælt sér mót við aðila á Vitabar en þar hafi hann hitt írskan mann fyrir tilviljun sem hafi kynnt fyrir ákærða atvinnu í iðnaði á Íslandi. Ákærði kvaðst hafa komið hingað til lands til að hitta konu en svo hafi komið í ljós að hún hafi ekki verið hér á landi. Hann kvaðst hafa fengið upplýsingar um konuna í gegnum aðra konu í Hollandi en hann gat ekki sýnt fram á samskipti þar um. Samkvæmt upplýsingum starfsmanns á Guesthouse 101 bókaði ákærði ekki gistingu þar fyrir fram heldur hafi hann komið þangað á föstudegi, bókað herbergi í tvær nætur og greitt fyrir með reiðufé. Hann hafi verið einn á ferð á gistiheimilinu og Jerry Jr. reyndist hafa sent ákærða upplýsingar um gistiheimilið.
Ákærði gaf skýrslu hjá lögreglu 20. maí 2024. Hann kvaðst spila mikið póker og hann hefði ekki komið hingað til lands ef hann hefði vitað að það væri ekki hægt að spila póker hér á landi. Hann kvaðst eiga peningana sem hann hafi verið með þegar höfð voru afskipti af honum. Hann hafi komið með 6.000 evrur hingað til lands, skipt 300 evrum þegar hann kom til landsins og greitt 260 evrur fyrir gistinguna. Hann kvaðst geta sýnt lögreglu í gegnum heimabanka að hann ætti þessa peninga en hann gæti ekki sýnt fram á að hann hafi tekið út 6.000 evrur í Hollandi. Ákærði gæti hins vegar sýnt fram á að þessir fjármunir hefðu farið í gegnum Holland Casino sem sé lögleg starfsemi.
Ákærði kvaðst hafa greitt sjálfur fyrir flug og gistingu hér á landi. Auk þess að spila póker hafi staðið til að hann myndi hitta konu hér á landi en það hafi farið úrskeiðis. Hann kvaðst ekki vita nafnið á henni en hann hafi fengið að vita um hana í gegnum aðra konu. Ákærði kannaðist við að hafa talað við Jerry Jr. í þeim tilgangi að hitta menn frá Albaníu og hann hafi sent ákærða mynd af gistiheimilinu. Ákærði kvaðst þekkja Jerry Jr. frá Hollandi en þeir hafi búið í sama hverfi. Ákærði hafi síðan komist að því að orðspor Jerry Jr. væri ekki gott. Þegar ákærði var spurður út í samskipti hans við A kannaðist ákærði við að hafa átt samskipti við karlmann sem hann vissi ekki nafnið á. Ákærði hafi m.a. rætt við A um hvað væri dýrt á Íslandi og spurt hann um vinnu í fiskvinnslu eða henni tengt. Ákærði kvaðst hafa fengið sendar upplýsingar í gegnum farsímanúmerið […] um Vitabar. Hann hafi rætt við þann sem hafði símanúmerið fyrir utan Vitabar en hann væri verktaki og ákærði hafi spurt manninn um vinnu.
III
Framburður ákærða og vitna fyrir dómi.
Ákærði, Merrel Roy Wijnaldum, kvaðst hafa dvalið hér á landi eina helgi í þeim tilgangi að hitta kvenmann. Hann hafi greitt fyrir ferðina í gegnum ferðaskrifstofu í Hollandi. Fjármunina, sem hafi verið haldlagðir hjá honum, hafi hann komið með sér frá Amsterdam og hann hafi ekki tekið við peningum hér á landi. Hann kvaðst fá bætur í heimalandinu vegna atvinnuleysis og heilsubrests og tekjur hans á mánuði væru 2.000 til 2.200 evrur. Bæturnar væru að stærstum hluta lagðar inn á bankareikning. Hann spilaði einnig póker. Ákærði kvaðst búa einn í eigin húsnæði en hann tæki þátt í uppeldi á þremur börnum með fyrrverandi maka. Hann kvaðst hafa ætlað að hitta konu hér á landi sem hann hafi komist í samband við í gegnum aðra konu í Hollandi. Hann kvaðst ekki vilja upplýsa um nafnið á konunni sem hann hafi ætlað að hitta. Ákærði kvaðst ekki þekkja neinn hér á landi en kunningi hans Jerry Junior hafi verið hér og hann þekki fólk hér á landi. Jerry hafi upplýst ákærða um hvar væri hægt að fá ódýra gistingu hér á landi, hvað væri hægt að gera hér og þá hafi hann gefið ákærða upp símanúmer hjá albana sem þekkti til hér á landi. Ákærði kvaðst ekki vita nafn albanans en ákærði hafi ætlað að athuga með vinnu í gegnum hann. Ákærði hafi hitt albanann einu sinni í um 10 mínútur. Þeir hafi rætt um möguleika á vinnu hér á landi í ferðaþjónustu eða við sjómennsku. Ákærði kvaðst aðeins hafa verið að afla sér upplýsinga um þessi mál. Ákærði sagði að fjármunirnir sem hafi verið haldlagðir hjá honum hafi komið úr pókerspili og frá fyrrverandi maka hafi komið um 10.000 evrur vegna eingreiðslu frá yfirvöldum í Hollandi. Ákærði sagði að bankayfirlit og gögn frá skattayfirvöldum gætu staðfest þetta. Ákærði kvaðst spila póker í spilavítum og á netinu. Hann hafi komið með um 7.000 evrur til Íslands og hann hafi skipt 300 evrum í flugstöðinni í Keflavík og þar hafi hann framvísað skilríkjum. Ákærði kvaðst síðan hafa greitt fyrir hótel og eytt peningum í spilakössum hér á landi. Hann hafi skipt evrum í íslenskar krónur og notað í spilakassa. Ákærði kvaðst hafa notað greiðslukort hér á landi og hann ætti gögn um það.
Vitnið, tollvörður nr. […], sagði að för ákærða hafi verið stöðvuð og farangur hans skoðaður. Eftir að tollverðir hafi rætt við ákærða hafi lögregla verið kölluð til. Vitnið sagði að skýringar ákærða á því hvaðan fjármunirnir, sem hann hafi verið með, væru komnir hafi verið óljósar. Hann hafi þó nefnt póker. Vitnið staðfesti skýrslu sína.
Vitnið, tollvörður nr. […] sagði að ákærði hafi viðurkennt að vera með fjármuni á sér en hann hafi ekki gefið skýr svör um uppruna þeirra. Hann hafi sagst hafa ætlað að hitta konu hér á landi en hún hafi svikið hann.
Vitnið, lögreglumaður nr. […], sagði að það hafi verið skoðað hvað ákærði hafi verið að gera hér á landi og flugbókun hans. Hann hafi ekki getað gert grein fyrir peningunum sem hann hafi verið með á sér. Vitnið staðfesti skýrslu sína.
Vitnið, lögreglumaður nr. […], kvaðst hafa afritað farsíma ákærða samkvæmt beiðni rannsakara. Vitnið staðfesti skýrslur sínar þar um.
Vitnið, lögreglumaður nr. […], kvaðst m.a. hafa tekið framburðarskýrslu af ákærða. Netfang sem hafi verið notað við flugbókun ákærða hafi tengst Jerry Junior og hann hafi einnig verið í sambandi við ákærða vegna gistingar hér á landi. Vitnið sagði að Jerry væri sakborningur í máli lögreglu varðandi fíkniefnainnflutning. Vitnið staðfesti skýrslur sínar.
Vitnið, B sérfræðingur hjá lögreglunni, kvaðst hafa unnið að rannsókn á fjármálum ákærða og hafi verið kallað eftir upplýsingum þar um frá bankastofnunum hér á landi. Ekkert hafi bent til þess að ákærði hafi átt í viðskiptum hér á landi en það hefði m.a. komið fram ef hann hefði skipt peningum. Ekkert hafi komið fram um uppruna þeirra fjármuna sem hafi verið haldlagðir hjá ákærða.
IV
Niðurstaða.
Ákærða, Merrel Roy Wijnaldum, er gefið að sök peningaþvætti með því að hafa tekið við á tímabilinu 16. til 19. maí 2024 samtals 4.920 evrum í reiðufé frá óþekktum aðila eða aðilum en honum hafi ekki getað dulist að um væri að ræða ávinning af refsiverðum brotum. Ákærði neitar sök og kveðst hafa átt þá fjármuni sem hafi verið haldlagðir hjá honum og hann hafi komið með þá með sér hingað til lands. Hann hafi ekki veitt viðtöku peningum hér á landi.
Fyrir dómi kvaðst ákærði hafa komið hingað til lands til að hitta konu sem hann vildi ekki segja hver væri en hann hafi komist í samband við hana í gegnum aðra konu í Hollandi. Hann hafi greitt fyrir ferðina hingað til lands í gegnum ferðaskrifstofu. Ákærði kannaðist við að hafa verið í sambandi við mann að nafni Jerry m.a. varðandi gistingu hér á landi. Ákærði sagði að tekjur hans væru 2.000 til 2.200 evrur á mánuði og þær kæmu að stærstum hluta frá yfirvöldum vegna atvinnuleysis og heilsubrests. Ákærði nefndi einnig að hann spilaði póker. Ákærði kvaðst hafa skipt peningum í flugstöðinni á Keflavíkurflugvelli og notað greiðslukort hér á landi.
Þegar tollverðir höfðu afskipti af ákærða sagði hann þeim að hann hafi komið hingað til lands til að hitta konu en hún hafi ekki mætt á þeirra fund. Hann hafi fengið upplýsingar um þessa konu í gegnum aðra konu í Hollandi. Ákærði hafi ekki hitt neinn hér á landi og aðallega verið inn á hótelherbergi. Hann kvaðst hafa komið með fjármunina, sem hafi fundist hjá honum, með sér hingað til lands en hann gæti ekki sýnt fram á það. Hann sagði sömu sögu við lögreglumenn hvað fjármunina varðar og hann gæti ekki sýnt fram á uppruna þeirra. Hann kvaðst hafa bókað ferðina hingað til lands í gegnum ferðaskrifstofu í Amsterdam og greitt sjálfur fyrir flugið og gistingu hér á landi. Hann svaraði því ekki af hverju Jerry Jr., sem byggi í Hollandi, hafi sent ákærða upplýsingar um hvar hann ætti að gista. Ákærði kannaðist ekki við íslenska símanúmerið sem var notað þegar hann mælti sér mót við annan aðila á Vitabar en Jerry Jr. hafi látið ákærða hafa númerið. Í skýrslutöku hjá lögreglu kvaðst ákærði hafi komið hingað til lands til að spila póker en hann hafi haldið að það væri löglegt hér á landi. Hann hafi einnig ætlað að hitta konu hér á landi en ekki hafi orðið af því. Hann gat ekki gefið upplýsingar um hver þessi kona væri. Hann kannaðist við samskipti við farsímanúmerið […] en hann vissi ekki nafnið á manninum sem hann hafi verið í samskiptum við í gegnum númerið en þeir hafi síðan hist fyrir utan Vitabar og rætt um atvinnu. Ákærði sagði að Jerry Jr. hafi sent honum upplýsingar um gistiheimili en þeir þekkist frá Hollandi. Ákærði gaf ekki skýringu á því hvers vegna hann hafi verið í samskiptum við Jerry Jr. í tengslum við ferð ákærða hingað til lands.
Framburður ákærða hefur því ekki verið á einn veg frá upphafi. Hann skýrði ekki frá því við tollverði að hann stundaði pókerspil heldur hafi hann aðeins komið hingað til lands til þess að hitta kvenmann. Hann hefur ekki upplýst um það hver þessi kvenmaður er heldur aðeins að hann hafi fengið upplýsingar um hana í gegnum aðra konu í Hollandi. Ákærði sagði í fyrstu að hann hefði sjálfur bókað flugfarið hingað til lands en samkvæmt rannsóknargögnum málsins er það ekki rétt. Þá kvaðst hann ekki hafa vitað að það væri bannað að spila póker hér á landi. Í fyrstu kvaðst ákærði ekki hafa hitt neinn hér á landi og að mestu haldið sig inn á hótelherbergi en síðan kom í ljós að hann hitti a.m.k. mann á Vitabar, líklega notanda símanúmersins […], en hann kvaðst ekki vita hver það er. Það var fyrst fyrir dómi sem ákærði kvaðst hafa notað greiðslukort hér á landi. Rannsókn á fjármálaumsvifum ákærða hér á landi sýndi að hann hafi engin viðskipti átt hér á landi sem tengist bankastofnunum, hvorki skipt peningum, eins og hann hefur haldið fram né notað greiðslukort.
Það þykir ótrúverðugt að ákærði hafi aðeins komið hingað til lands til að hitta kvenmann sem hann vilji ekki upplýsa um hver sé og til þess að spila póker án þess að vita að það væri ekki leyfilegt hér á landi. Ekkert bendir til þess að ákærði hafi verið að athuga með atvinnu hér á landi eins og hann hefur haldið fram. Þá þykir ósennilegt að maður sem ekki stundar fasta atvinnu og hefur tekjur sínar, alla vega að stærstum hluta, frá yfirvöldum hafi komið hingað til lands með reiðufé sem svarar til tekna hans í um tvo og hálfan mánuð og án þess að hafa ætlað að nota þessa fjármuni hér á landi. Þá þykir framburður ákærða um samskipti hans við notanda símanúmersins […] og Jerry Jr. ekki trúverðugur, sbr. síðar. Framburður ákærða í heild sinni er með ólíkindablæ og þykir ótrúverðugur. Framburðurinn verður því ekki lagður til grundvallar við úrlausn málsins.
Rannsókn á farsíma ákærða sýndi að hann tók á móti tveimur símtölum 17. maí 2024 frá símanúmerinu […] en notandi þess er A. Þá voru einnig samskipti þeirra á milli á samskiptaforritinu WhatsApp en þar sendi A ákærða ,,Vitabar“ og í framhaldinu ,,Bergþórugata 21, 101 Reykjavík“ og einnig ,,I be there in about 6-7 min“. Ákærði svarar þá ,,Ok i come“. Samkvæmt upplýsingum lögreglu er A sakborningur í nokkrum málum lögreglu m.a. tengdum fíkniefnum, akstri undir áfengis- og fíkniefnaáhrifum, hótunum, vopnalagabrotum og líkamsárás. Einnig séu mál tengd dvöl hans hér á landi án leyfis. Þá hefur A einnig verið tilkynntur til lögreglu vegna þess að hann sé virkur í sölu og dreifingu fíkniefna.
Í flugbókun ákærða frá 16. maí 2024 vegna flugs Amsterdam-Keflavík-Amsterdam var notað sama netfang og í flugbókun farþega í öðru flugi sem tengist máli varðandi fíkniefnainnflutning. Einn sakborninga í því máli er C, sem er Jerry Jr., sem ákærði var í samskiptum við fyrir ferðina til Íslands. Jerry Jr. sendi ákærða m.a. upplýsingar um 101 Guesthouse Hotel og þá svaraði ákærði: ,,I‘ll be there around 1000 tomorrow morning.“
Ákærði hefur ekki gefið trúverðugar skýringar á uppruna þeirra fjármuna sem voru haldlagðir hjá honum vegna málsins. Hann hefur fullyrt að hann geti lagt fram gögn um það án þess að gera það þó hann hafi haft tækifæri til þess. Það þykir afar ósennilegt miðað við stöðu ákærða að hann hafi komið með umrædda fjármuni með sér hingað til lands enda hefur hann í engu skýrt í hvaða tilgangi hann kom með fjármunina en miðað við stöðu hans þ.e. tekjur er um verulega fjárhæð að ræða.
Ákærði hefur viðurkennt að hafa verið með 4.920 evrur í fórum sínum þegar afskipti voru höfð af honum í umrætt sinn. Verður það því lagt til grundvallar í málinu. Samkvæmt 2. mgr. 70. gr. stjórnarskrárinnar skal hver sá, sem er borinn sökum um refsiverða háttsemi, talinn saklaus þar til sekt hans hefur verið sönnuð. Til að sakfellt verði fyrir peningaþvætti þarf ákæruvaldið að færa fram sönnun þess að ávinningurinn, sem málið snýst um, stafi af refsiverðu broti. Í dómaframkvæmd hefur verið lagt til grundvallar að þar nægi að sýna fram á, með óyggjandi hætti, að útilokað sé að ávinningurinn sé kominn til með lögmætum hætti, sbr. dóma Hæstaréttar Íslands í málum nr. 200/2001 og 28/2021. Peningaþvætti eins og í máli þessu er sjálfstætt brot sem refsað verður fyrir þótt ekki sé samhliða ákært fyrir tiltekið frumbrot. Eins og fram er komið þykir framburður ákærða í heild sinni ótrúverðugur og það hefur ekkert komið fram um lögmætan uppruna þeirra evra sem voru haldlagðar hjá ákærða enda engin gögn sem styðja framburð ákærða hvað það varðar. Verður því fallist á með ákæruvaldinu að umræddar evrur hljóti að teljast ávinningur af ólögmætri starfsemi og það hljóti ákærða að hafa verið ljóst þegar hann veitti þeim viðtöku í þeim tilgangi að flytja fjármunina úr landi.
Með vísan til alls ofanritaðs og rannsóknargagna málsins þykir hafið yfir skynsamlegan vafa og þar með sannað að ákærði hafi gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru. Ákærði hefur því gerst sekur um peningaþvætti og varðar brot hans við 1. mgr. 264. gr. almennra hegningarlaga og hefur hann unnið sér til refsingar í samræmi við það.
Ákærði hefur ekki áður sætt refsingu svo kunnugt sé. Hann tók við ávinningi af ólögmætri starfsemi og var með hann á leið úr landi þegar hann var handtekinn. Með vísan til þessa og atvika málsins að öðru leyti þykir refsing hans hæfilega ákveðin fangelsi í þrjá mánuði en fresta skal fullnustu tveggja mánaða af refsingunni og falli sá hluti hennar niður að liðnum tveimur árum frá birtingu dóms þessa að telja haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Ákærði skal sæta upptöku til ríkissjóðs á 4.920 evrum ásamt vöxtum og verðbótum af þeirri fjárhæð frá 19. maí 2024, sbr. 69. og 69. gr. b almennra hegningarlaga.
Ákærði greiði allan sakarkostnað málsins þ.m.t. málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Ólafs Vals Guðjónssonar lögmanns, sem þykja hæfilega ákveðin með hliðsjón af tímaskýrslu verjandans og umfangi málsins 902.720 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti.
Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Ásmundur Jónsson aðstoðarsaksóknari. Ingi Tryggvason héraðsdómari kveður upp dóm þennan.
D ó m s o r ð:
Ákærði, Merrel Roy Wijnaldum, sæti fangelsi í þrjá mánuði en fresta skal fullnustu tveggja mánaða af refsingunni og falli sá hluti hennar niður að liðnum tveimur árum frá birtingu dóms þessa að telja haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Upptækar eru til ríkissjóðs 4.920 evrur auk vaxta og verðbóta af fjárhæðinni frá 19. maí 2024.
Ákærði greiði allan sakarkostnað málsins þ.m.t. málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Ólafs Vals Guðjónssonar lögmanns, 902.720 krónur.
Ingi Tryggvason