Talið var að ráðstöfun Byggðastofnunar á aflaheimildum til að styðja byggðarlög í alvarlegum og bráðum vanda vegna samdráttar í sjávarútvegi hefði hvorki verið bersýnilega röng né byggð á ómálefnalegum sjónarmiðum. Farið hefði fram heildstæður samanburður á umsækjendum og gætt að rannsóknar-, jafnræðis- og meðalhófsreglu stjórnsýslulaga. Talið var að Byggðastofnun hefði ákveðið svigrúm við mat á umsækjendum á grundvelli þeirra sjónarmiða sem búa að baki úthlutun. Var viðurkenningarkröfu stefnanda um skaðabótaábyrgð því hafnað.
Stefnandi gerði í málinu aðallega kröfu um viðurkenningardóm í þá veru að óheimilt hafi verið að takmarka heimildir félagsmanna hans til veiða úr makrílstofninum með því að grundvalla úthlutun aflahlutdeildar á grundvelli tíu bestu aflareynsluára veiðiskipa á árunum 2008–2018 samkvæmt bráðabirgðaákvæði í lögum nr. 151/1996 um fiskveiðar utan lögsögu Íslands, sbr. lög nr. 46/2019 . En til vara krafðist stefnandi viðurkenningardóms um að óheimilt hafi verið að takmarka sérstaklega heimildir félagsmanna hans til ráðstöfunar á slíkum aflaheimildum í B flokki samkvæmt tilgreindum ákvæðum í sömu breytingalögum nr. 46/2019. Í báðum tilvikum taldi stefnandi að umrædd löggjöf færi í bága við jafnræði, atvinnufrelsi og tengd eignaréttindi félagsmanna hans, sbr. 1. mgr. 65. gr., og 75. gr., sbr. 72. gr. stjórnarskrár. Að mati dómsins var ekki fallist á að sýnt væri fram á það að umrædd löggjöf færi eins og á stóð í bága við framangreind stjórnarskrárákvæði og var stefndi því sýknaður.
Stjórn fiskveiða. Úthlutun aflahlutdeilda. Stjórnarskrá
Forkaupsréttur
Stefndi sýknaður af kröfu um ógildingu ákvörðunar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins um staðfestingu á ákvörðun Fiskistofu um sviptingu veiðileyfis.
Hafnað var kröfu stefnanda um að ákvörðun Fiskistofu um að svipta bát almennu veiðileyfi yrði felld úr gildi.
Helga ÞH ehf gegn
íslenzka, ríkinu, kveðinn og upp svohljóðandi
Viðurkenningu bótaskylda stefnda á tjóni stefnanda vegna úthlutunar byggðakvóta Öxarfjarðarhrepps fiskveiðitímabilin 2004/2005 og 2005/2006
Úrskurður skattstjóra þess efnis að ekki væri unnt að draga kaupverð aflamarks frá tekjum stefnanda, sbr. 1. mgr. og 2. málsl. 3. mgr. 48. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt, var felldur úr gildi.
Helga ÞH ehf gegn
íslenzka, ríkinu, kveðinn, upp svohljóðandi, ú r s k u r ð u r og I
Kröfum stefnanda um viðurkenningu á bótaskyldu stefnda á tjóni stefnanda vegna úthlutunar byggðakvóta Öxarfjarðarhrepps tvö tilgreind fiskveiðitímabil vísað frá dómi ex officio.
Í málinu reyndi á ákvæði 3. mgr. 133. gr. hlutafélagalaga, en þar segir að fái kröfuhafi í félagi, sem tekið hefur þátt í skiptingu, ekki fullnustu, beri hvert hinna þátttökufélaga óskipta ábyrgð á skuldbindingum sem stofnast höfðu þegar upplýsingar um skiptaáætlunina voru birtar. Talið var að krafa stefnanda sem laut að úthlutun aflahlutdeildar til báts hafi notið verndar ákvæðisins en stefndi var sýknaður sökum tómlætis stefnanda.
Stefndi dæmdur til greiðslu andvirðis aflaheimilda vegna rækju.
Eigandi smábátaútgerðar höfðaði skaðabótamál á hendur íslenska ríkinu til viðurkenningar á bótaskyldu íslenska ríkisins þar sem hann taldi sig hafa orðið af úthlutun aflahlutdeildar í þorski á árunum 1999 til 2004 vegna lagasetningar um úthlutun aflahlutdeildar í þorski til krókabáta. Taldi hann úthlutun samkvæmt umdeildum lögum hafa gengið gegn jafnræðisreglu stjórnarskrár sem og ákvæðum hennar um vernd atvinnuréttinda og eignarréttinda. Íslenska ríkið var sýknað af bótakröfu útgerðaraðilans.
Ákærðu dæmdir í sekt fyrir að halda fiskiskipi til veiða án þess að hafa til þess nægan kvóta.
Stefnandi krafðist skaðabóta vegna tjóns sem hann taldi sig hafa orðið fyrir vegna þess að ekki hafði verið notað rétt viðmiðunartímabil við úthlutun aflaheimilda í skötusel fiskveiðiárin 2001/2002 og 2002/2003. Fallist var á kröfuna og dæmt að íslenska ríkið skyldi greiða stefnanda skaðabætur.
Útgerðarmaður dæmdur til greiðslu eftirstöðva kaupverðs á aflaheimildum. Ekki var fallist á að hluta samnings yrði vikið til hliðar á grundvelli 36. gr. samningalaga. Þá var ekki fallist á að sýkna bæri vegna aðildarskorts stefnanda.