Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 1240/2019"

12 dómar fundust

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 14. maí 2025

E-3895/2024

A (Guðmundur Sæmundsson lögmaður) gegn VÍS tryggingum hf (Guðmundur Ómar Hafsteinsson lögmaður)

Viðurkenndur var réttur stefnanda til bóta að tveimur þriðju hlutum úr hendi hins stefnda tryggingafélags á grundvelli 1. mgr. 4. gr. laga nr. 30/2019 en vegna meðábyrgðar var talið að stefnandi þyrfti að bera einn þriðja hluta af tjóni sínu sjálfur á grundvelli 4. mgr. ákvæðisins.

...Samkvæmt reglugerð nr. 1240/2019, um sektir og önnur viðurlög vegna brota á umferðarlögum, teljist allt magn undir 3,4 ng/ml lítið magn. Ökumaðurinn hafi verið undir þeim viðmiðum...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 28. mars 2025

E-599/2024

A, f.h. ólögráða dóttur og B (Eiríkur Gunnsteinsson lögmaður) gegn VÍS tryggingum hf. (Guðmundur Ómar Hafsteinsson lögmaður) og og Alþjóðlegum bifreiðatryggingum á Íslandi sf. (Magnús Hrafn Magnússon lögmaður)

Viðurkennd var full og óskert skaðabótaskylda hins stefnda tryggingarfélags úr lögboðinni ábyrgðartryggingu bifreiðar vegna tjóns sem farþegi á léttu bifhjóli varð fyrir við árekstur bifhjólsins og bifreiðarinnar. Talið var að tjónið skyldi bætt úr ökutækjatryggingu bifreiðarinnar með vísan til 1.mgr.4.gr. laga nr. 30/2019 þar sem tjónið hefði hlotist af notkun bifreiðarinnar. Ekki var fallist á að fella niður eða lækka bætur vegna tjóns farþegans enda þótt farþegi hjólsins sem fyrir tjóninu varð hefði verið hjálmlaus og þótt farþeginn hefði verið á bifhjólinu ásamt öðrum farþega og ökumanni en við mat á því að súháttsemi fæli ekki í sér stórkostlegt gáleysi kom m.a. ungur aldur farþegans sem var 14 ára þegar slysið varð.

...Samkvæmt reglugerð nr. 1240/2019, um sektir og önnur viðurlög vegna brota á umferðarlögum og reglum settum samkvæmt þeim, teljist allt magn undir 3,4 ng/ml lítið magn. Ökumaðurinn...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 28. mars 2025

E-488/2024

A (Fjölnir Vilhjálmsson lögmaður) gegn VÍS tryggingum hf. (Guðmundur Ómar Hafsteinsson lögmaður) og og Alþjóðlegum bifreiðatryggingum á Íslandi sf. (Magnús Hrafn Magnússon lögmaður)

Viðurkennd var full og óskert skaðabótaskylda hins stefnda tryggingarfélags úr lögboðinni ábyrgðartryggingu bifreiðar vegna tjóns sem farþegi á léttu bifhjóli varð fyrir við árekstur bifhjólsins og bifreiðarinnar. Talið var að tjónið skyldi bætt úr ökutækjatryggingu bifreiðarinnar með vísan til 1.mgr.4.gr. laga nr. 30/2019 þar sem tjónið hefði hlotist af notkun bifreiðarinnar. Ekki var fallist á að fella niður eða lækka bætur vegna tjóns farþegans enda þótt farþegi hjólsins sem fyrir tjóninu varð hefði verið hjálmlaus og þótt farþeginn hefði verið á bifhjólinu ásamt öðrum farþega og ökumanni en við mat á því að súháttsemi fæli ekki í sér stórkostlegt gáleysi kom m.a. ungur aldur farþegans sem var 14 ára þegar slysið varð.

...Samkvæmt reglugerð nr. 1240/2019, um sektir og önnur viðurlög vegna brota á umferðarlögum og reglum settum samkvæmt þeim, teljist allt magn undir 3,4 ng/ml lítið magn. Ökumaðurinn...

Hæstiréttur birt 18. desember 2024

29/2024

Ákæruvaldið (Marín Ólafsdóttir saksóknari) gegn Steinunni Ósk Eyþórsdóttur (Þorbjörg Inga Jónsdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

S var ákærð fyrir brot gegn 2. mgr. 48. gr. og 1. mgr. 58. gr. umferðarlaga nr. 77/2019 með því að hafa ekið bifreið svipt ökurétti og óhæf til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa slævandi lyfja. S játaði brot sín. Með dómi Landsréttar var staðfest niðurstaða héraðsdóms þar sem S var gert að greiða 180.000 krónur í sekt en kröfu um sviptingu ökuréttar hafnað. Ákæruvaldið byggði á því að refsing S hefði verið ákveðin of væg á lægri dómstigum og kröfu um sviptingu ökuréttar ranglega hafnað. Með dómi Hæstaréttar var staðfest niðurstaða Landsréttar um sakfellingu ákæru. Varðandi ákvörðun sektar leit Hæstiréttur til sjónarmiða að baki 97. gr. umferðarlaga, reglugerðar nr. 1240/2019 um sektir og önnur viðurlög vegna brota gegn umferðarlögum og reglum settum samkvæmt þeim og viðauka I við hana um að staðla sektir við umferðarlagabrotum svo og sjónarmiða að baki fyrirmælum 98. gr. umferðarlaga um fullkomna samlagningu sekta. Var sekt hennar fyrir bæði brotin ákveðin 220.000 krónur. Varðandi niðurstöðu um hvort svipta skyldi S ökurétti leit Hæstiréttur til þess að með játningu hennar og afdráttarlausri matsgerð Rannsóknarstofu í lyfja- og eiturefnafræði hefði verið sannað að hún hefði verið óhæf til að stjórna ökutæki örugglega vegna áhrifa slævandi lyfja. Brot hennar hafi því verið þess eðlis, óháð öðru framferði hennar við aksturinn, að varhugavert hafi verið að hún stjórnaði vélknúnu ökutæki. Samkvæmt 1. mgr. 99. gr. umferðarlaga og með hliðsjón af dómafordæmum og sjónarmiðum um jafnræði og samræmi í viðurlögum við umferðarlagabrotum var S svipt ökurétti í sex mánuði.

...Samkvæmt reglugerð nr. 1240/2019 um sektir og önnur viðurlög vegna brota gegn umferðarlögum og reglum settum samkvæmt þeim og viðauka I við hana varði slíkt brot 120.000 króna...

Landsréttur birt 15. desember 2023

622/2022

Ákæruvaldið gegn Ingvari Ragnari Snæbjörnssyni (Sveinn Andri Sveinsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

I var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot með því að hafa ekið bifreið undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Með brotinu gerðist I í þriðja sinn sekur um akstur undir áhrifum áfengis eða ávana- og fíkniefna. Í dómi Landsréttar kom fram að dómur um sekt og sviptingu ökuréttar fyrir ölvunarakstur sem kveðinn hefði verið upp 20. janúar 2017 hefði ítrekunaráhrif við ákvörðun refsingar fyrir það brot sem hann væri nú sakfelldur fyrir. Var hinn áfrýjaði dómur staðfestur og I gert að sæta 30 daga fangelsi og sviptur ökurétti ævilangt.

...Ákærði byggir kröfu um lækkun refsingar og ökuréttarsviptingar á því að reglugerð nr. 1240/2019 um sektir og önnur viðurlög vegna brota á umferðarlögum og reglum settum samkvæmt þeim hafi...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 3. nóvember 2023

S-5162/2023

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kamilla Kjerúlf saksóknarfulltrúi) gegn Daníel Þór Stefánssyni
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir umferðar- og fíkniefnalagabrot. Skilorðsdómur var dæmdur upp og ákærða gert að sæta 3 mánaða fangelsi, skilorðsbundið í tvö ár og að greiða 1.460.000 króna sekt.

...viðauka I, í reglugerð nr. 1240/2019, verður ákærða gert að greiða 1.460.000 krónur í sekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá birtingu dóms þessa að telja, en...

Landsréttur birt 27. júní 2023

473/2023

Ríkissaksóknari (Dröfn Kjærnested aðstoðarsaksóknari) gegn X (Svavar Daðason lögmaður)

Staðfest var ákvörðun ríkissaksóknara um að verða við beiðni um afhendingu X til Rúmeníu á grundvelli evrópskrar handtökuskipunar.

...á sér deili sé refsivert að íslenskum lögum varði þau brot fésektum, sbr. reglugerð nr. 1240/2019 um sektir og önnur viðurlög vegna brota á umferðarlögum og reglum settum samkvæmt...

Landsréttur birt 2. júní 2023

482/2022

Ákæruvaldið (Hulda María Stefánsdóttir saksóknari) gegn X (Andrés Már Magnússon lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

X var ákærður fyrir líkamsárás samkvæmt 1. mgr. 217. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með því að hafa slegið A í andlitið þannig að hún féll í gólfið og síðan sparkað í líkama hennar þar sem hún lá á gólfinu og hafi A hlotið af áverka sem tilgreindir voru í ákæru. X viðurkenndi að hafa tekið um úlnliði A og snúið hana niður í gólfið og í kjölfarið sett hné sitt á fót hennar til að halda henni niðri en neitaði að hafa slegið hana eða sparkað í hana. Framburður tveggja vitna var metinn í því ljósi að annað þeirra var bróðir X og eiginmaður A en hitt vitnið unnusta X. Eftir stóðu frásagnir X og A sem voru á mismunandi veg. Framburður X var metinn trúverðugur. Þegar horft var til misræmis í frásögn A og að ekki hefðu verið merki um þann kinnhest sem hún teldi að hefði leitt til þess að hún féll í gólfið var talið að framburður hennar væri ekki mjög trúverðugur. Var talið ósannað að X hefði slegið A þannig að hún féll í gólfið og í framhaldi af því sparkað í hana. Var X því sýknaður af ákæru um líkamsárás. X var hins vegar sakfelldur fyrir umferðarlagabrot með því að hafa ekið á tilgreindum stað og tíma með tengivagn sem var ljóslaus, auk þess sem heildarþyngd bifreiðar og tengivagns var yfir leyfilegri þyngd. Var X gert að greiða 200.000 króna sekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá uppsögu dómsins en sæta ella fangelsi í 14 daga.

...Með hliðsjón af reglugerð nr. 1240/2019 um sektir og önnur viðurlög vegna brota á umferðarlögum og reglum settum samkvæmt þeim verður ákærða gert að greiða 200.000 króna sekt...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 31. maí 2023

S-5341/2021

Ákæruvaldið (Arnfríður Gígja Arngrímsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Rannveigu H. Guðbrandsdóttur (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Sakfellt fyrir fíkniefna- og lyfjaakstur og vörslur fíkniefna og svipaðra lyfja en ákærða sýknuð af ákæru um brot gegn valdstjórninni.

...umferðarlaga, fyrrgreinds viðauka með reglugerð nr. 1240/2019, sbr. og dómvenju, verður ákærða svipt ökurétti í 45 mánuði frá birtingu dóms þessa að telja. 16 Með vísan til 6. mgr...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 3. apríl 2023

S-4443/2022

Ákæruvaldið (Lína Ágústsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Róberti Birgi Gíslasyni (Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Eignaspjöll, rán og umferðarlagabrot. Refsing ákveðin sem hegningarauki við eldri skilorðsdóm sem var dæmdur upp og fésekt dæmd vegna umferðarlagabrota, auk þess sem áréttuð var ævilöng svipting ökuréttar. Einnig voru dæmdar miska- og skaðabætur.

...viðauka I, í reglugerð nr. 1240/2019, verður ákærða gert að greiða 830.000 krónur í sekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dóms þessa að telja, en hann...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 30. júní 2022

S-2789/2021

Ákæruvaldið (Silja Rán Arnarsdóttir saksóknarfulltrúi) gegn Róberti Birgi Gíslasyni (Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður) (Reynir Þór Garðarsson lögmaður einkaréttarkröfu)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Sakfellt og sýkna að hluta fyrir brot gegn valdstjórninni. Einnig sakfellt fyrir þjófnaði og endurtekinn akstur undir áhrifum áfengis og fíkniefna o.fl.

...viðauka I, í reglugerð nr. 1240/2019, verður ákærða gert að greiða 1.070.000 krónur í sekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá birtingu dóms þessa að telja, en...

Héraðsdómur Suðurlands birt 10. júní 2021

S-207/2021

Lögreglustjórinn á Suðurlandi (Ólafur Hallgrímsson fulltrúi) gegn Davíð Erni Adamssyni (enginn)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var fundinn sekur um umferðar- og fíkniefnalagabrot, þar með talið ítrekaðan akstur undir áhrifum fíkniefna. Var honum gert að sæta fangelsi í 30 daga og honum jafnframt gerð sekt. Þá var hann sviptur ökurétti ævilangt og gerð upptæk fíkniefni.

...77/2019 og reglugerð nr. 1240/2019, skal ákærði jafnframt greiða 440.000 krónur í sekt til ríkissjóðs, innan fjögurra vikna frá birtingu dóms þessa, en sæta ella fangelsi í...