A varð fyrir líkamstjóni er hann ók bifhjóli sínu aftan á bifreið. A krafðist fullra bóta úr slysatryggingu ökumanns en V hafði skert bótarétt hans um helming á þeim grundvelli að A hefði sýnt af sér stórkostlegt gáleysi við akstur bifhjólsins, sbr. 1. mgr. 90. gr. laga nr. 30/2004 um vátryggingarsamninga. Aðilar deildu einkum um hvort og þá eftir atvikum að hvaða marki skerðing bótaréttar hefði verið heimil. Lagt var til grundvallar að A hefði ekið bifhjólinu langt yfir löglegum hámarkshraða og valdið slysinu með því að horfa ekki fram fyrir sig skömmu áður en áreksturinn varð. A hefði ekki gætt að varúðarreglu 1. mgr. 36. gr. eldri umferðarlaga nr. 50/1987. Var talið að háttsemi A hefði skapað augljósa hættu á veginum og falið í sér stórkostlegt gáleysi af hans hálfu. Var A gert að bera þriðjung tjóns síns sjálfur en V dæmt til að greiða honum tvo þriðju hluta þess.
Ákæruvaldið (
Jón Haukur Hauksson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Jóni Gísla Sigurðssyni (
Þorgils Þorgilsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir nytjastuld og umferðarlagabrot. Gert að sæta fangelsi og sviptingu ökuréttar. Viðurkennd var bótaskylda vegna tjóns á bifreið.
HO og X voru ákærðir fyrir brot gegn 252. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 20. gr. sömu laga, með því að hafa hótað G líkamsmeiðingum og reynt að neyða hann til að taka út fjármuni úr hraðbanka. Þá var X jafnframt ákærður fyrir brot gegn 217. gr. almennra hegningarlaga með því að hafa slegið G. HO var einnig ákærður fyrir umferðarlagabrot. Talið var sannað með upptöku úr öryggismyndavél og framburði G að HO hefði gerst sekur um þá háttsemi sem honum var gefin að sök. Ekki var hins vegar talið í ljósi meginreglu 111. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála að komin væri fram lögfull sönnun um sekt X. Var X því sýknaður af öllum kröfum ákæruvaldsins í málinu. HO var sakfelldur fyrir brot gegn 252. gr. almennra hegningarlaga, sbr. 20. gr. sömu laga, og fyrir brot gegn 37. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, sbr. 100. gr. sömu laga. Var refsing HO ákveðin fangelsi í sex mánuði en fullnustu refsingarinnar frestað skilorðsbundið í tvö ár.
M var sakfelldur fyrir brot gegn umferðarlögum nr. 50/1987 með því að hafa tiltekinn dag ekið bifreið sinni austur Reykjanesbraut yfir leyfðum hámarkshraða. Þá var hann sakfelldur fyrir brot gegn 1. mgr. 168. gr., 219. gr. og 4. mgr. 220. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og tilteknum ákvæðum umferðarlaga með því að hafa ekið sömu bifreið of hratt í myrkri, við erfið veður- og akstursskilyrði, langt yfir leyfilegum hámarkshraða vestur Reykjanesbraut, og tekið fram úr bifreiðum án þess að sinna aðgæsluskyldu við framúrakstur, með þeim afleiðingum að hann ók bifreið sinni aftan á aðra bifreið. Hafnaði síðarnefnda bifreiðin utan vegar og varð fyrir skemmdum auk þess sem ökumaður hennar, A, varð fyrir líkamstjóni. Í dómi Landsréttar kom fram hvað varðaði síðara brot M að þegar sönnunargögn málsins og framburður vitna væru virt heildstætt og í ljósi þess að M hefði viðurkennt að hraði bifreiðarinnar hefði ekki verið í samræmi við aðstæður þætti komin fram lögfull sönnun um að M hefði viðhaft þá háttsemi sem í ákæru greindi við afar slæm veður- og akstursskilyrði. Þótti sannað að um stórhættulegan glæfraakstur hefði verið að ræða. Þegar litið væri heildstætt á vítaverðan akstur M og fjölda annarra alvarlegra hraðakstursbrota hans þótti ótvírætt að háttsemi hans fullnægði skilyrðum 1. mgr. 107. gr. a umferðarlaga til þess að heimilt væri að gera bifreið hans upptæka til ríkissjóðs. Refsing M var ákveðin fangelsi í fjóra mánuði en fullnustu hennar frestað skilorðsbundið í tvö ár. M var sviptur ökurétti í 12 mánuði frá uppsögu héraðsdóms og gert að greiða A miskabætur.
Ákæruvaldið (
Guðmundur Þórir Steinþórsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Herði Kristgeirssyni (
Kolbrún Garðarsdóttir lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir að aka í fjögur skipti undir áhrifum ávana- og fíkniefna og fyrir fíkniefnalagabrot. Var honum gert að sæta fangelsi í 30 daga, skilorðsbundið í tvö ár, auk þess sem hann var sviptur ökurétti í 5 ár.
Ákæruvaldið (
Halldór Rósmundur Guðjónsson saksóknarfulltrúi)
gegn
Karli Bjarna Guðmundssyni (
Jóhann Fannar Guðjónsson hdl)
Ákærði, sem skýlaust játaði sök, var dæmdur í þriggja mánaða fangelsi og sviptur ökurétti ævilangt, fyrir að aka bifreiðum í fimm tilvikum undir áhrifum ávana- og fíkniefna og í einu tilviki of hratt.
X var ákærður fyrir umferðarlagabrot með því að hafa ekið bifreið yfir leyfðum hámarkshraða. Í dómi Hæstaréttar kom fram að þar sem að X hefði ekki mætt við þingfestingu málsins, þrátt fyrir lögmælt fyrirkall, og ekki hefði verið útivist af hans hálfu, þar sem lögmaður hefði verið mættur fyrir hans hönd og skipaður verjandi, hefði héraðsdómari að réttu lagi átt að neyta heimildar 162. gr., sbr. c. lið 90. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og leggja fyrir ákæranda að láta lögreglu handtaka X og færa hann fyrir dóm. Var hinn áfrýjaði dómur ómerktur og málinu vísað heim í hérað til löglegrar meðferðar.
G krafði T hf. um vátryggingabætur úr húftryggingu bifreiðar hans sem varð fyrir algeru tjóni í umferðaróhappi. Laut ágreiningur aðila að því hvort G hefði brotið gegn skilmálum tryggingarinnar og þannig fyrirgert sér rétti til bóta. Með vísan til fyrirliggjandi skýrslu í sakamáli um ætlaðan ökuhraða G er óhappið varð og því mikla tjóni sem hlaust af árekstrinum var því slegið föstu að bifreið G hefði verið ekið allt of hratt miðað við aðstæður og andsætt 1. mgr. og a., b., c., d. og h. lið 2. mgr. 37. gr. umferðarlaga nr. 50/1987. Hefði G því sýnt af sér stórkostlegt gáleysi með akstrinum og brotið gegn skilmálum vátryggingarinnar. Var T hf. því sýknað af kröfu G.
F var sakfelldur fyrir of hraðan akstur samkvæmt 2. mgr. 37. gr. umferðarlaga nr. 50/1987 en þar sem ekki var talin fram komin sönnun um brot hans gegn 2. mgr. 45. gr. laganna um ölvunarakstur, sem ekki yrði vefengd með skynsamlegum rökum, var hann sýknaður af því broti.
Ákæruvaldið (
Ólafur Helgi Kjartansson lögreglustjóri)
gegn
Atla Ívari Guðmundssyni (
Bjarni Hauksson hrl)
Ákærði sakfelldur fyrir of hraðan akstur á bifhjóli auk annarra umferðarlagabrota. Ákærði sviptur ökurétti. Kröfu um upptöku bifhjóls hafnað.
Ákæruvaldið (
Gunnar Örn Jónsson ftr)
gegn
Inga Þór Thorarensen og Tómasi Davíð Lúðvíkssyni (
Guðbjarni Eggertsson hdl)
Ákærði sýknaður af tilraun til þjófnaðar en sakfelldur fyrir umferðarlagabrot.
Karlmaður sakfelldur fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni og brot gegn umferðarlögum.
Ákæruvaldið (
Júlí Ósk Antonsdóttir fulltrúi)
gegn
Arnari Kristinssyni og svofelldur (
Sigurður Sigurjónsson hrl)
Ákærði m.a. sakfelldur fyrir líkamsmeiðingar af gáleysi.
Á var ákærður fyrir hegningar- og umferðarlagabrot með því að hafa ekið bifhjóli of hratt, ekki sinnt stöðvunarmerkjum lögreglu, ekið gegnum vegartálma og yfir á öfugan vegarhelming og að hafa ekið án nægilegrar aðgæslu og varúðar á flótta undan lögreglu, of hratt miðað við aðstæður og án þess að hafa nægilegt bil yfir í annað bifhjól, þannig að hann gat ekki brugðist við er hitt hjólið féll eftir að aka aftan á bifreið, heldur ekið yfir ökumann bifhjólsins, F. Voru brot Á talin varða við 219. gr. almennra hegningarlaga, auk nánar tilgreindra ákvæða umferðarlaga. Var Á talinn hafa gerst sekur um þá háttsemi sem honum var gefin að sök að öðru leyti en því að ekki þótti sannað að hann hafi ekið yfir F. Að gögnum málsins virtum og því að F hafði fallið í götuna eftir að hafa ekið aftan á bifreið var ekki talin komin fram sönnun þess að afleiðingar slyssins mætti rekja til þess að ákærði ók á F. Var Á því sýknaður af sakargiftum fyrir brot gegn 219. gr. almennra hegningarlaga, en sakfelldur fyrir brot gegn umferðarlögum. Við mat á refsingu hans var m.a. tekið mið af því að háttsemi hans var stórkostlega hættuleg öðrum vegfarendum og þess að hann hafði tvisvar áður hlotið sektarrefsingu fyrir of hraðan akstur á bifhjóli. Var refsing Á ákveðin fangelsi í 4 mánuði, en þar sem hann hafði tvívegis áður verið dæmdur fyrir háskalegan akstur þótti ekki fært að skilorðsbinda refsinguna. Þá var Á sviptur ökurétti í 3 ár og bifhjól hans gert upptækt.
Tveir ökumenn ákærðir fyrir ofsaakstur á bifhjólum auk þess að óhlýðnast fyrirmælum lögreglu um að stöðva ökutækin við vegatálma. Þá var ákæri Á sakaður um að valda líkamstjóni vegna gáleysis. Gerð var krafa um refsingu, ökuleyfissviptingu og að bifhjólin yrðu gerð upptæk.Báðir ákærðu voru sakfelldir. Ákærði Á var dæmdur í átta mánaða fangelsi, skilorðsbundið til þriggja ára, sviptur ökurétti í þrjú ár og bifhjólið gert upptækt til ríkissjóð. Ákærða F var ekki gerð sérstök refsing en sviptur ökurétti í sex mánuði. Kröfu um upptöku á bifhjóli hans var hafnað. Þá var báðum gert að greiða allan sakarkostnað.
Ökumaður bifreiðar, sem valt og lenti utan vegar, ákærður fyrir að aka bifreið á allt að 130 km hraða á klst. Þótti varhugavert að telja sannað að hraðinn hefði verið meiri en 110 km á klst.
Ákæruvaldið (
Hjördís Stefánsdóttir fulltrúi)
gegn
Jóni Inga Ellertssyni Sverri Snæ Ingimarssyni (
Hilmar Ingimundarson hrl)
Menn sakfelldir fyrir vörslu fíkniefna og umferðarlagabrot.
Ákæruvaldið (
Ólafur Helgi Kjartansson sýslumaður)
gegn
Héðni Smára Ingvaldssyni (
Jón Egilsson hdl)
Ákært fyrir ýmis umferðarlagabrot og að virða ekki stöðvunarmerki lögreglu. Sakfellt og ákærði dæmdur til að greiða 70.000 króna sekt til ríkissjóðs, sviptingar ökuréttar í þrjá mánuði og greiðslu sakarkostnaðar.
Ákæruvaldið (Gunnar Örn Jónsson) gegn
Friðbirni Ómarssyni (enginn)
Sakfellt fyrir hraðakstur og vörslur á fíkniefnum auk þess að hafa ekið undir áhrifum fíkniefna.
Karlmaður sakfelldur fyrir of hraðan akstur. Sýknaður af því að hafa ekki sinnt stöðvunarskyldu lögreglu. Dæmdur til að greiða einn þriðja hluta sakarkostnaðar.
Stefnandi krafði stefndu um skaðbætur vegna tjóns sem varð á bifreið hans er hann ók á hross sem annar stefndu sat. Var stefnandi sjálfur talinn bera alla ábyrgð á slysinu og voru stefndu sýknaðir.
S- 311/2006 Ákæruvaldið (
Helgi Már Ólafsson)
gegn
Guðmundi Helga Sigurðssyni Daníel Weidermann og Kjartani Benjamínssyni (
Guðjón Ægir Sigurjónsson hdl)
Þrír karlmenn dæmdir í 30 daga fangelsi, skilorðsbundið í 2 ár fyrir nytjastuld, hraðakstur og flótta undan lögreglu auk þess að greiða sektir í ríkissjóð og málsvarnarlaun.
Ákæruvaldið (Ólafur Helgi Kjartansson) gegn
Halldóri Heimissyni (enginn)
Karlmaður ákærður og dæmur til greiðslu sektar fyrir umferðarlaga- og fíkniefnabrot.
Karlmaður dæmdur fyrir fjársvik og umferðarlagabrot.
Ákæruvaldið (
Ragnheiður Harðardóttir saksóknari)
gegn
Emilíu Rós Hallsteinsdóttur (
Örn Clausen hrl)
X var ákærður fyrir tilraun til þjófnaðar. Var honum gefið að sök að hafa í fjögur skipti reynt að brjótast inn í fyrirtæki í auðgunarskyni. Var hann sakfelldur fyrir að hafa reynt það í þrígang en í einu tilviki þótti það ekki fyllilega sannað. Með hliðsjón af löngum brotaferli X var honum gert að sæta fangelsi í 12 mánuði.
Ákæruvaldið (
Bogi Nilsson ríkissaksóknari)
gegn
Einari Eiríki Hjálmarssyni (
Helgi Birgisson hrl)
E var stöðvaður af lögreglumanni, sem mælt hafði með ratsjá hraða bifreiðar, sem E ók á móti lögreglubifreiðinni. Mældist hraðinn 109 km á klukkustund, en leyfður hámarkshraði er 90 km á klukkustund á umræddum stað. E taldi sig hins vegar hafa ekið á 70-80 km hraða á klukkustund og neitaði að ljúka málinu með greiðslu sektar. Talið var sannað með framburði E og lögreglumannsins, svo og skýrslu sem undirrituð var af E á vettvangi, að honum hefði verið gerð grein fyrir niðurstöðu ratsjármælingar á hraða hans. Var talið að ekkert hefði komið fram í málinu, sem gæfi tilefni til að ætla að ranglega hefði verið staðið að mælingunni eða að vefengja bæri niðurstöðu hennar. Var talið sannað að E hefði ekið á þeim hraða, sem tilgreindur var í málatilbúnaði ákæruvalds og þar með brotið gegn 2. mgr. 37. gr. umferðarlaga nr. 50/1987. Var E dæmdur til greiðslu sektar.
Með dómi héraðsdóms var B sviptur ökurétti. B sótti um leyfi til áfrýjunar dómsins og krafðist þess í kjölfarið að sviptingu ökuréttar yrði frestað samkvæmt 2. málsl. 104. gr. umferðarlaga nr. 50/1987. Þeirri kröfu var hafnað með úrskurði héraðsdóms. Talið var að heimild til kæru væri ekki að finna í umferðarlögum. Þá yrði kæra ekki heldur reist á 142. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála, enda tæki það ákvæði ekki til annarra úrskurða eða ákvarðana en þeirra er um ræddi í þeim lögum. Var málinu því sjálfkrafa vísað frá Hæstarétti.