Héraðsdómur Suðurlands
Dómur 22. maí 2007.
Mál nr. S-191/2007:
Ákæruvaldið
(Gunnar Örn Jónsson lögmaður)
gegn
Friðbirni Ómarssyni
svofelldur
d ó m u r :
(enginn)
Útdráttur
Sakfellt fyrir hraðakstur og vörslur á fíkniefnum auk þess að hafa ekið undir áhrifum fíkniefna.
Mál þetta, sem þingfest var 10. maí sl. og dómtekið samdægurs, er höfðað með ákæru lögreglustjórans á Selfossi, dagsettri 21. apríl 2007, á hendur Friðbirni Ómarssyni, kt. 000000-0000, Kambahrauni 40, Hveragerði, „fyrir umferðar- og fíkniefnalagabrot
I.
með því að hafa síðdegis laugardaginn 28. október 2006 ekið bifreiðinni BM-815 með 112 km hraða á klukkustund suður Vesturlandsveg á vegarkafla við Úlfarsfellsveg í Reykjavík. Leyfður hámarkshraði á vettvangi var 80 km á klukkustund. Hraði bifreiðarinnar var mældur með laser-handratsjá.
Telst brot ákærða varða við 1. mgr., sbr. 3. mgr. 37. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, sbr. 1. mgr. 100. gr. sömu laga.
II.
með því að hafa aðfaranótt þriðjudagsins 5. desember 2006 ekið bifreiðinni OR- 315 austur Suðurlandsveg á vegarkafla við Litlu Kaffistofuna í Svínahrauni án þess að hafa ökuskírteini meðferðis og fyrir að hafa umrætt sinn haft í vörslu sinni í fyrrnefndri bifreið 1,72 g af tóbaksblönduðu kannabisefni sem lögregla fann við leit í bifreiðinni umrætt sinn.
Telst brot ákærða varða við 1. mgr. 48. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, sbr. 1. mgr. 100. gr. sömu laga og við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 60/1980, 75/1982, 13/1985, 68/2001 og 2. gr. sbr. 1. mgr. 14. gr. reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001 með síðari breytingum.
III.
með því að hafa síðdegis föstudaginn 12. janúar 2007 ekið bifreiðinni OR-315 vestur Suðurlandsveg við Hveragerði, óhæfur til að stjórna bifreiðinni örugglega vegna áhrifa tetrahýdrókannabínóls og tetrahýdrókannabínólsýru.
Telst brot ákærða varða við 1., sbr. 2. mgr. 45. a. og 1. mgr. 48. gr. umferðarlaga nr. 50/1987 sbr. 5. gr. laga nr. 66/2006, sbr. 1. mgr. 100. gr. nefndra umferðarlaga.
IV.
með því að hafa skömmu eftir hádegi miðvikudaginn 24. janúar 2007 ekið bifreiðinni OR-315 með 108 km hraða á klukkustund austur Suðurlandsveg við Kögunarhól í Ölfusi. Leyfður hámarkshraði á vegarkaflanum var 90 km á klukkustund. Hraði bifreiðarinnar var mældur með ratsjá nr. GE-016 sem staðsett var í lögreglubifreið nr. 33-258.
Telst brot ákærða varða við 2. mgr. 37. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, sbr. 1. mgr. 100. gr. sömu laga.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og gert að sæta sviptingu ökuréttar, samkvæmt 101. og 102. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, sbr. lög nr. 44/1993, lög nr. 57/1997, lög nr. 23/1998, lög nr. 132/2003, lög nr. 84/2004 og lög nr. 66/2006 og til að sæta upptöku á haldlögðum fíkniefnum sbr. ákærulið II (efnaskrá nr. 10860), samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001.“
Ákærði mætti ekki við þingfestingu málsins þrátt fyrir löglega birtingu ákæru þann 7. maí sl. ásamt fyrirkalli þar sem þess var getið að málið kynni að verða dæmt að ákærða fjarstöddum. Málið var því tekið til dóms samkvæmt 1. mgr. 126. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála.
Um málavexti vísast til ákæruskjals. Sannað er að ákærði framdi brot þau sem greinir í ákæru og eru þau réttilega færð til refsiákvæða, að öðru leyti en því að brot ákærða samkvæmt ákærulið III varðar ekki við 1. mgr. 48. gr. umferðarlaga. Ákærði hefur með háttsemi sinni unnið sér til refsingar.
Samkvæmt sakavottorði sem liggur frammi í málinu hefur ákærða tvisvar sinnum verið gerð refsing. Árið 2000 gerði ákærði sátt fyrir brot gegn 1. sbr. 3. mgr. 45. gr. og 1. mgr. 48. gr. umferðarlaga og árið 2004 var ákærði dæmdur fyrir brot gegn lögum nr. 65/1974 um ávana- og fíkniefni og reglugerð nr. 16/1986. Þessi brot hafa þó ekki áhrif á ákvörðun refsingar í máli þessu.
Refsing ákærða er ákveðin 141.000 krónur í sekt til ríkissjóðs, sem ákærða ber að greiða innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dóms þessa en sæta ella fangelsi í tíu daga. Þá er ákærði sviptur ökurétti í fjóra mánuði og gert að sæta upptöku á 1,72 g af tóbaksblönduðu kannabisefni. Í samræmi við þessa niðurstöðu verður ákærði dæmdur til greiðslu sakarkostnaðar sem er samkvæmt yfirliti 110.453 krónur.
Ástríður Grímsdóttir héraðsdómari kveður upp dóm þennan.
D ó m s o r ð :
Ákærði, Friðbjörn Ómarsson, greiði 141.000 krónur í sekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dóms þessa en sæti ella fangelsi í tíu daga.
Ákærði er sviptur ökurétti í fjóra mánuði frá uppkvaðningu dóms þessa að telja.
Upptæk eru gerð til ríkissjóðs 1,72 g af tóbaksblönduðu kannabisefni.
Ákærði greiði allan sakarkostnað, 110.453 krónur.
Ástríður Grímsdóttir.