Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Vesturlands

Mál nr. S-90/2007:

S-90/2007:

Ákæruvaldið

(Hjördís Stefánsdóttir fulltrúi)

gegn

Jóni Inga Ellertssyni

Sverri Snæ Ingimarssyni

Mál

þetta höfðaði sýslumaðurinn í Borgarnesi með ákæru 3. apríl 2007 á hendur

ákærðu, Jóni Inga Ellertssyni, kt. ..., Hlíðarbraut 8 á Blönduósi, og Sverri

Snæ Ingimarssyni, kt. ..., Holtabraut 6 á Blönduósi. Málið var dómtekið 11.

september 2007.

Í

ákæruskjali er ákærðu gefin að sök „eftirgreind umferðarlaga og fíkniefnabrot:

I.

Gegn ákærða Jóni Inga, fyrir umferðarlagabrot, með því

að hafa að kvöldi 4. júní 2005, ekið bifreiðinni TU-721, undir áhrifum áfengis

(vínandamagn í blóði 0,55 prómill) frá Reykjavík um Vesturlandsveg áleiðis til

Blönduóss, og á vegarkafla við Hafnarfjall ekið bifreiðinni með 112 km hraða á

klukkustund, þar sem leyfður hámarkshraði er 90 km á klukkustund, en þar

stöðvaði lögreglan aksturinn.

II.

Gegn ákærða Jóni Inga, fyrir fíkniefnalagabrot með því

að hafa aðfaranótt 21. október 2005, haft í vörslum sínum 0,13 g af

tóbaksblönduðu hassi, 1,50 g af amfetamíni, 1,93 g af hassi og u.þ.b. 2 cm

hylki með amfetamíni, en lögreglan fann efnin á ákærða og í bifreið sem hann

var farþegi í, er hún stöðvaði akstur hennar á Hafnarfjarðarvegi á móts við

Bitabæ í Garðabæ.

III.

Gegn ákærða Jóni Inga, fyrir umferðarlagabrot með því

að hafa aðfaranótt 15. september 2006, ekið bifreiðinni ZG-472, Vesturlandsveg

til norðurs án þess að hafa ökuskírteini meðferðis og án þess að bifreiðin

hefði skráningarnúmer að framan, en lögreglan stöðvaði aksturinn við Gufuá í

Borgarfirði.

IV.

Gegn ákærðu báðum saman, fyrir fíkniefnalagabrot, með

því að hafa sammælst um og í sameiningu keypt 23,80 g af hassi, en ákærði Jón

Ingi hafði efnið í vörslum sínum og skyldi það eftir í lögreglubifreið þeirri

sem hann fór í eftir að hann hafði verið handtekinn aðfaranótt 15. september

2006, og gegn ákærða Jóni Inga fyrir að hafa einnig haft í vörslu sinni í

umrætt sinn, 0,38 g af tóbaksblönduðu hassi, sem lögreglan fann við leit á

ákærða.

Telst brotið í I. tölulið varða við 2. mgr. 37. gr. og

1., sbr. 2. mgr. 45. gr., sbr. 100. gr. umferðarlaga, nr. 50/1987, með áorðnum

breytingum og brotin í II. og IV. lið varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr. laga

nr. 65/1974, með áorðnum breytingum og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr. reglugerðar

nr. 233/2001 og reglugerð nr. 848/2002 og brotin í III. lið varða við 1. mgr.

48. gr. fyrrgreindra umferðarlaga og 19. gr. reglugerðar nr. 751/2003, sbr. 64.

gr., sbr. 100. gr. umferðarlaga.

Þess er krafist að ákærðu verði dæmdir til refsingar

og ákærði Jón Ingi til sviptingar ökuréttar samkvæmt 101. gr. og 102. gr.

fyrrgreindra umferðarlaga.“

Ákærðu

gera þá kröfu að þeim verði gerð svo væg refsing sem lög frekast leyfa og að

sakarkostnaður verði felldur á ríkissjóð.

Ákæruliður I.

1.

kvöldi laugardagsins 4. júní 2005, um kl. 22.30, voru tveir lögreglumenn við

umferðareftirlit á lögreglubifreið á Vesturlandsvegi, nærri Þjófaklettum undir

Hafnarfjalli. Var lögreglubifreiðinni ekið til norðurs og mætti hún bifreiðinni

TU-721 sem ekið var til suðurs. Ökumaður þeirrar bifreiðar var ákærði Jón Ingi

og var hann einn á ferð. Lögreglumenn mældu hraða bifreiðarinnar og reyndist

(Hilmar Ingimundarson hrl)

Umferðarlagabrot. Ávana- og fíkniefni.

Menn sakfelldir fyrir vörslu fíkniefna og umferðarlagabrot.

Mál þetta höfðaði sýslumaðurinn í Borgarnesi með ákæru 3. apríl 2007 á hendur ákærðu, Jóni Inga Ellertssyni, kt. ..., Hlíðarbraut 8 á Blönduósi, og Sverri Snæ Ingimarssyni, kt. ..., Holtabraut 6 á Blönduósi. Málið var dómtekið 11. september 2007.

Í ákæruskjali er ákærðu gefin að sök „eftirgreind umferðarlaga og fíkniefnabrot:

I.

Gegn ákærða Jóni Inga, fyrir umferðarlagabrot, með því að hafa að kvöldi 4. júní 2005, ekið bifreiðinni TU-721, undir áhrifum áfengis (vínandamagn í blóði 0,55 prómill) frá Reykjavík um Vesturlandsveg áleiðis til Blönduóss, og á vegarkafla við Hafnarfjall ekið bifreiðinni með 112 km hraða á klukkustund, þar sem leyfður hámarkshraði er 90 km á klukkustund, en þar stöðvaði lögreglan aksturinn.

II.

Gegn ákærða Jóni Inga, fyrir fíkniefnalagabrot með því að hafa aðfaranótt 21. október 2005, haft í vörslum sínum 0,13 g af tóbaksblönduðu hassi, 1,50 g af amfetamíni, 1,93 g af hassi og u.þ.b. 2 cm hylki með amfetamíni, en lögreglan fann efnin á ákærða og í bifreið sem hann var farþegi í, er hún stöðvaði akstur hennar á Hafnarfjarðarvegi á móts við Bitabæ í Garðabæ.

III.

Gegn ákærða Jóni Inga, fyrir umferðarlagabrot með því að hafa aðfaranótt 15. september 2006, ekið bifreiðinni ZG-472, Vesturlandsveg til norðurs án þess að hafa ökuskírteini meðferðis og án þess að bifreiðin hefði skráningarnúmer að framan, en lögreglan stöðvaði aksturinn við Gufuá í Borgarfirði.

IV.

Gegn ákærðu báðum saman, fyrir fíkniefnalagabrot, með því að hafa sammælst um og í sameiningu keypt 23,80 g af hassi, en ákærði Jón Ingi hafði efnið í vörslum sínum og skyldi það eftir í lögreglubifreið þeirri sem hann fór í eftir að hann hafði verið handtekinn aðfaranótt 15. september 2006, og gegn ákærða Jóni Inga fyrir að hafa einnig haft í vörslu sinni í umrætt sinn, 0,38 g af tóbaksblönduðu hassi, sem lögreglan fann við leit á ákærða.

Telst brotið í I. tölulið varða við 2. mgr. 37. gr. og 1., sbr. 2. mgr. 45. gr., sbr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, með áorðnum breytingum og brotin í II. og IV. lið varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr. laga nr. 65/1974, með áorðnum breytingum og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001 og reglugerð nr. 848/2002 og brotin í III. lið varða við 1. mgr. 48. gr. fyrrgreindra umferðarlaga og 19. gr. reglugerðar nr. 751/2003, sbr. 64. gr., sbr. 100. gr. umferðarlaga.

Þess er krafist að ákærðu verði dæmdir til refsingar og ákærði Jón Ingi til sviptingar ökuréttar samkvæmt 101. gr. og 102. gr. fyrrgreindra umferðarlaga.“

Ákærðu gera þá kröfu að þeim verði gerð svo væg refsing sem lög frekast leyfa og að sakarkostnaður verði felldur á ríkissjóð.

Ákæruliður I.

Að kvöldi laugardagsins 4. júní 2005, um kl. 22.30, voru tveir lögreglumenn við umferðareftirlit á lögreglubifreið á Vesturlandsvegi, nærri Þjófaklettum undir Hafnarfjalli. Var lögreglubifreiðinni ekið til norðurs og mætti hún bifreiðinni TU- 721 sem ekið var til suðurs. Ökumaður þeirrar bifreiðar var ákærði Jón Ingi og var hann einn á ferð. Lögreglumenn mældu hraða bifreiðarinnar og reyndist hann vera 112 kílómetrar á klukkustund að teknu tilliti til vikmarka, en hámarkshraði á veginum er 90 kílómetrar á klukkustund. Af þessu tilefni voru höfð afskipti af ákærða en á vettvangi töldu lögreglumenn áfengislykt stafa af honum. Var ákærða því gert að gangast undir öndunarpróf og segir í frumskýrslu að mælirinn hafi sýnt 0,55‰. Ákærði var því færður á lögreglustöðina í Borgarnesi til frekari rannsóknar.

Í þágu rannsóknar málsins var dregið blóðsýni úr ákærða og var það tekið kl. 23.00 samkvæmt blóðtökuvottorði. Við rannsókn reyndist magn alkóhóls í blóðinu vera 0,58‰ að teknu tilliti til vikmarka (0,65–0,07).

Þegar þessi ákæruliður var borinn undir ákærða fyrir dómi vefengdi hann niðurstöður rannsóknar á magni áfengis í blóði hans. Fór sýslumaðurinn í Borgarnesi þess því á leit við Rannsóknarstofu í lyfja- og eiturefnafræði að rannsóknin yrði endurtekin. Með bréfi rannsóknarstofunnar 4. júlí 2007 var sýslumanni tilkynnt að ekki væri unnt að verða við þessari beiðni þar sem lífsýni væru ekki geymd lengur en í eitt ár.

Fyrir dómi hefur ákærði Jón Ingi játað hraðakstur, eins og honum er gefið að sök í ákæru. Ákærði hefur hins vegar neitað að hafa ekið bifreiðinni undir áhrifum áfengis. Við aðalmeðferð málsins var fyrirhugað að ákærði yrði nánar yfirheyrður um málsatvik en þá sótti hann ekki þing.

Ákærði gaf skýrslu hjá lögreglu í kjölfar þess að afskipti voru höfð af honum og þá kvaðst hann hafa verið að neyta áfengis nóttina áður en hætt drykkju um kl. 8.00 þá um morguninn. Frekar aðspurður kvaðst ákærði hafa drukkið talsvert af áfengi án þess að geta lýst því nánar. Um morguninn kvaðst ákærði síðan hafa sofnað og sofið fram á kvöld fyrir aksturinn eða í um 12 tíma. Aðspurður sagðist hann ekki hafa borðað áður en hann lagði af stað akandi norður í land. Þá sagðist ákærði ekki hafa fundið til áfengisáhrifa við aksturinn.

Ákærði Jón Ingi hefur afdráttarlaust játað að hafa ekið í umrætt sinn á 112 kílómetra hraða á klukkustund á vegi þar sem hámarkshraði er 90 kílómetrar á klukkustund. Er játning ákærða studd sakargögnum. Þessi háttsemi ákærða varðaði við 2. mgr. 37. gr. umferðarlaga nr. 50/1987.

Í blóðsýni sem dregið var úr ákærða í kjölfar þess að lögregla hafði afskipti af honum mældist alkóhól 0,58‰ að teknu tilliti til vikmarka. Ekkert hefur komið fram sem rýrir sönnunargildi þeirrar rannsóknar og verður ekki talið varhugavert að leggja hana til grundvallar. Um það breytir engu þótt ekki sé unnt að endurtaka rannsóknina þar sem blóðsýninu hefur verið fargað. Samkvæmt þessu er sannað að ákærði hafi í umrætt sinn ekið undir áhrifum áfengis og varðaði sú háttsemi við 1., sbr. 2. mgr. 45. gr. laga nr. 50/1987.

Að virtum sakaferli ákærða, sem nánar verður rakinn hér á eftir, gat ekki legið þyngri refsing við brotinu en fésekt. Í því tilliti breytir engu þótt ákærði hafi með brotinu rofið skilorð dóms sem hann hlaut 6. apríl 2005, enda er venjulega refsing ákveðin sér í lagi og skilorðsdómur látinn standa þegar þannig hagar til, sbr. 60. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Samkvæmt 1. tl. 1 mgr. 81. gr. sömu laga fyrnist sök á 2 árum ef refsing sú sem til er unnið fer ekki fram úr sektum. Rannsókn málsins hjá lögreglu rauf ekki fyrningu þar sem henni var hætt, sbr. 5. mgr. 82. gr. laganna. Þá var sök fyrnd þegar meðferð málsins hófst fyrir dómi liðlega tveimur árum eftir að brotið var framið, en þingfesting málsins 8. júní 2007 markar upphaf dómsrannsóknar í skilningi tilvitnaðs ákvæðis. Samkvæmt þessu verður ákærði Jón Ingi sýknaður af ákærulið I vegna fyrningar sakar.

Ákæruliður II.

Ákærði Jón Ingi hefur fyrir dómi kannast við að hafa haft í vörslum sínum þau fíkniefni sem greinir í þessum ákærulið. Er játning hans studd sakargögnum og verður hún ekki dregin í efa. Þessi ákæruliður verður því dæmdur á grundvelli afdráttarlausrar játningar ákærða og hann sakfelldur fyrir brotið sem réttilega er fært til refsilaga í ákæruskjali. Það athugast þó að ekki liggur fyrir í grömmum talið það magn amfetamíns sem var í þremur um það bil tveggja cm hylkjum. Verður vafi að þessu leyti virtur ákærða í hag.

Ákæruliður III.

Ákærði Jón Ingi hefur afdráttarlaust játað fyrir dómi að hafa framið þau brot sem honum eru gefin að sök í þessum ákærulið og er játning hans studd sakargögnum. Verður þessi liður ákæru því dæmdur á grundvelli játningar ákærða og hann sakfelldur fyrir brotin sem varða við þau refsiákvæði sem í ákæru greinir.

Ákæruliður IV.

Ákærði Jón Ingi hefur játað að hafa framið þau brot sem honum eru gefin að sök í þessum ákærulið. Einnig hefur ákærði Sverrir játað að hafa framið það brot sem honum er gefið að sök. Þeir hafa þó báðir skýrt svo frá að hvor þeirra hafi átt helming af þeim 23,8 g af hassi sem þeir keyptu sameiginlega. Af hálfu ákæruvaldsins hefur þetta ekki verið vefengt. Að því gættu og samkvæmt afdráttarlausum játningum beggja ákærðu, sem studdar eru sakargögnum, verða þeir sakfelldir fyrir þennan ákærulið. Eru brot þeirra réttilega færð til refsilaga í ákæru.

Ákvörðun viðurlaga o.fl.

Samkvæmt sakavottorði hefur ákærði Jón Ingi hlotið sjö dóma og gengist undir eina lögreglustjórasátt frá árinu 1998 fyrir brot gegn almennum hegningarlögum, umferðarlögum og lögum um ávana- og fíkniefni. Þar af hlaut ákærði dóm 25. nóvember 2004 fyrir brot gegn 2. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga og var refsing ákveðin fangelsi í 4 mánuði skilorðsbundið í 3 ár. Ákærða var síðan með dómi 6. apríl 2005 gerður hegningarauki við þann dóm fyrir brot gegn 1. mgr. sömu greinar og var refsing samkvæmt þeim dómi fangelsi í 3 mánuði skilorðsbundin í 3 ár. Með þeim dómi var refsing samkvæmt fyrri skilorðsdómi ekki dæmd upp í samræmi við 60. gr. almennra hegningarlaga heldur var hún ákveðin sér í lagi. Ákærði hlaut loks dóm 22. september 2006 fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni en með þeim dómi var ekki haggað við skilorði fyrrgreindra dóma og var refsing ákveðin 30.000 króna sekt. Með þeim brotum sem ákærði Jón Ingi hefur verið sakfelldur fyrir samkvæmt ákæruliðum II-IV hefur ákærði rofið skilorð dómanna frá 25. nóvember 2004 og 6. apríl 2005. Að brotum þessum virtum og með vísan til 60. gr. almennra hegningarlaga, með síðari breytingum, þykir rétt að dómar þessir verði látnir standa og að ákærða verði gerð refsing sér í lagi í málinu. Þykir refsing ákærða, sem tiltekin verður samkvæmt 77. gr. almennra hegningarlaga, hæfilega ákveðinn 100.000 króna sekt í ríkissjóð og komi 8 daga fangelsi í stað sektarinnar verði hún ekki greidd innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dómsins.

Ákærði Jón Ingi hefur verið sýknaður af ákærulið I og eru því ekki efni til að taka til greina kröfu ákæruvalds um að hann verði sviptur ökurétti.

Samkvæmt sakavottorði ákærða Sverris hefur hann frá árinu 2003 gengist undir sjö lögreglustjórasáttir fyrir brot gegn almennum hegningarlögum, umferðarlögum og lögum um ávana- og fíkniefni. Þá hlaut ákærði dóm 6. apríl 2005 fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni og var refsing ákveðin fésekt. Að þessu gættu þykir refsing ákærða Sverris fyrir það brot sem hann hefur verið sakfelldur fyrir í ákærulið IV hæfilega ákveðin 80.000 króna sekt og komi 6 daga fangelsi í stað sektarinnar verði hún ekki greidd innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dómsins.

Með vísan til 1. mgr. 166. gr. laga um meðferð opinberra mála nr. 19/1991, verður felldur á ríkissjóð sakarkostnaður vegna ákæruliðar I. Samkvæmt 1. mgr. 165. gr. sömu laga verður ákærða Jóni Inga gert að greiða 33.248 krónur í sakarkostnað vegna rannsóknar á efnum auk þess sem ákærðu greiði að hluta málsvarnarlaun skipaðs verjanda þeirra sem ákveðin verða að meðtöldum virðisaukaskatti, svo og ferðakostnað verjandans, eins og nánar greinir í dómsorði.

Benedikt Bogason, héraðsdómari, kveður upp dóm þennan.

D Ó M S O R Ð:

Ákærði, Jón Ingi Ellertsson, greiði 100.000 króna sekt í ríkissjóð og komi 8 daga fangelsi í stað sektarinnar verði hún ekki greidd innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dómsins.

Hafnað er kröfu ákæruvaldsins um að ákærði Jón Ingi verði sviptur ökurétti.

Ákærði, Sverrir Snær Ingimarsson, greiði 80.000 króna sekt í ríkissjóð og komi 6 daga fangelsi í stað sektarinnar verði hún ekki greidd innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dómsins.

Ákærði, Jón Ingi, greiði 33.248 krónur í sakarkostnað auk þess sem ákærðu hvor um sig greiði 1/5 hluta af málsvarnarlaunum sameiginlegs verjanda síns, Hilmars Ingimundarsonar, hæstaréttarlögmanns, 149.400 krónur, og sama hlutfall ferðakostnaðar verjanda að fjárhæð 29.212 krónur.

Benedikt Bogason