Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Suðurlands

Mál nr. S-311/2006:

S- 311/2006:

Ákæruvaldið

(Helgi Már Ólafsson lögmaður)

gegn

Guðmundi Helga Sigurðssyni,

Daníel Weidermann og

Kjartani Benjamínssyni

svohljóðandi

d ó m u r:

(Guðjón Ægir Sigurjónsson hdl)

Þrír karlmenn dæmdir í 30 daga fangelsi, skilorðsbundið í 2 ár fyrir nytjastuld, hraðakstur og flótta undan lögreglu auk þess að greiða sektir í ríkissjóð og málsvarnarlaun.

Mál þetta var höfðað með ákæru lögreglustjórans á Selfossi, dagsettri 10. mars 2006 og dómtekið þann 25. september s.á. á hendur Guðmundi Helga Sigurðssyni, kt. 000000-0000, Laugavegi 137, Reykjavík, Daníel Weidermann, kt. 000000-0000, Fjarðarseli 31, Reykjavík og Kjartani Benjamínssyni, kt. 000000-0000, Goðheimum 11, Reykjavík,

I

Gegn ákærðu öllum fyrir nytjastuld og umferðarlagabrot

með því að hafa í sameiningu, aðfaranótt þriðjudagsins 26. júlí 2005, heimildarlaust tekið bifreiðina NG-873, þar sem hún stóð á bifreiðastæði við Bílhúsið í Kópavogi og síðan allir skipst á um að aka bifreiðinni, án þess að hafa öðlast ökuréttindi, um höfuðborgarsvæðið. Ákærði Kjartan ók bifreiðinni utan í vegrið í Breiðholti með þeim afleiðingum að hægri hlið bifreiðarinnar rispaðist, ók ákærði Kjartan bifreiðinni þar til ákærði Guðmundur tók við akstri hannar í Árbæ og ók hann bifreiðinni austur Suðurlandsveg til Þorlákshafnar, þar tók ákærði Daníel við akstrinum og ók hann bifreiðinni austur Selvogsbraut og á umferðarmerki og vatnshana við gatnamót Selvogsbrautar og Óseyrarbrautar, með þeim afleiðingum að vinstri framfelga beyglaðist og loft tók að leka úr vinstra framdekki, stuttu síðar tók ákærði Guðmundur Helgi við stjórn bifreiðarinnar og ók henni norður Þorlákshafnarveg.

Telst brot ákærða varða við 259. gr. almennra hegningarlaga nr. 90/1940 og 1. mgr. 48. gr. umferðarlaga nr. 50/1987 sbr. 100. gr. sömu laga.

II

gegn ákærða Guðmundi Helga fyrir umferðarlagabrot og brot gegn lögreglulögum með því að hafa að morgni þriðjudagsins 26. júlí 2005, eftir að hann tók við stjórn bifreiðarinnar NG-873, svo sem greinir í ákærulið I, skammt sunnan við vegamót Þorlákshafnarvegar og Eyrarbakkavegar, ekki sinnt stöðvunarmerkjum lögreglu og ekið á miklum hraða á undan lögreglu austur Eyrarbakkaveg með allt að 166 km. hraða á klukkustund, uns allt loft hafði lekið úr vinstra framhjóli bifreiðarinnar og ákærði stöðvaði bifreiðina skammt sunnan við bæinn Stekka. Leyfður hámarkshraði á vettvangi var 90. km. hraði á klukkustund. Hraði bifreiðarinnar er miðaður við hraða samkvæmt ferilvöktunartæki lögreglubifreiðarinnar nr. 33-258.

Teljast brot ákærða varða við 19. gr. sbr. 41. gr. lögreglulaga nr. 90/1996, 3. mgr. 5. gr. og 2. mgr. 37. gr. umferðarlaga nr. 50/1987 sbr. 100. gr. sömu laga.

Þess er krafist að ákærðu verði dæmdur til refsingar og að ákærða Guðmundi Helga verði gert að sæta sviptingu ökuréttar samkvæmt 1. mgr. 101. gr. umferðarlaga nr. 50/1987.

Mál þetta var þingfest þann 29. maí s.l. Komu þá fyrir dóminn ákærði Kjartan ásamt föður hans, ákærði Daníel ásamt móður hans og ákærði Kjartan ásamt trúnaðarmanni hans. Ákærðu Guðmundur Helgi og Daníel játuðu brot sín fyrir dóminum. Er játning þeirra í samræmi við önnur gögn málsins og verða þeir sakfelldir fyrir brot sín, en þau eru í ákæru réttilega færð til refsiákvæða.

Ákærðu, Guðmundur Helgi og Daníel hafa með háttsemi sinni unnið sér til refsingar.

Farið var með málið samkvæmt ákvæðum 125. gr. laga nr. 19/1991 og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu er sækjanda og ákærða, sem óskaði ekki eftir verjanda, hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.

Ákærði Kjartan neitaði sök hvað varðaði nytjastuldinn en játaði að hafa ekið bifreiðinni án þess að hafa öðlast ökuréttindi. Málinu var frestað til aðalmeðferðar þann 25. september s.l. Ákærði Kjartan mætti fyrir dóminn þann dag og játaði brot sitt varðandi nytjastuldinn. Er játning hans í samræmi við önnur gögn málsins og verður hann sakfelldur fyrir brot sín en þau eru í ákæru réttilega færð til refsiákvæða. Ákærði hefur með háttsemi sinni unnið sér til refsingar.

Farið var með málið samkvæmt ákvæðum 125. gr. laga nr. 19/1991 og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu er sækjanda og verjanda, hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.

Um málavexti vísast til ákæruskjals.

Við ákvörðun refsingar ber að taka tillit til þess að ákærðu hafa ekki áður sætt refsingu, ungs aldurs þeirra og að þeir hafa skýlaust játað brot sín.

Refsing ákærða Guðmundar Helga Sigurðssonar þykir hæfilega ákveðin fangelsi í 30 daga en skilyrði eru til að skilorðsbinda refsinguna og skal hún niður falla að liðnum tveimur árum enda haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955. Þá ber að svipta ákærða ökurétti í þrjá mánuði. Ákærði Guðmundur Helgi greiði krónur 100.000.- í sekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dóms að telja, ella sæta fangelsi í 8 daga.

Refsing ákærða Daníels Weidermann, þykir hæfilega ákveðin fangelsi í 30 daga en skilyrði eru til að skilorðsbinda refsinguna og skal hún niður falla að liðnum tveimur árum enda haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955. Ákærði Daníel greiði krónur 10.000.- í sekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dóms að telja, ella sæta fangelsi í 2 daga.

Refsing ákærða Kjartans Benjamínssonar þykir hæfilega ákveðin fangelsi í 30 daga en skilyrði eru til að skilorðsbinda refsinguna og skal hún niður falla að liðnum tveimur árum enda haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955. Ákærði Kjartan greiði krónur 10.000.- í sekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dóms að telja, ella sæta fangelsi í 2 daga. Þá ber að dæma ákærða Kjartan til að greiða verjanda sínum, Guðjóni Ægi Sigurjónssyni héraðsdómslögmanni í þóknun kr. 43.575.- Hefur þá verið tekið tillit til virðisaukaskatts.

Málið sótti Helgi Már Ólafsson fulltrúi sýslumannsins á Selfossi.

Ástríður Grímsdóttir héraðsdómari kveður upp dóm þennan. Dómsuppsaga varðandi ákærðu, Guðmund Helga og Daníel hefur dregist vegna dómaraskipta hjá dómstólnum en vegna ákærða Kjartans lítillega vegna starfsanna dómarans.

Dómsorð:

Ákærði, Guðmundur Helgi Sigurðsson sæti fangelsi í 30 daga en fresta skal fullnustu refsingar og hún falla niður að liðnum 2 árum haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 sbr. 4. gr. laga nr. 22/1995.

Ákærði Guðmundur Helgi skal sviptur ökurétti í þrjá mánuði.

Ákærði Guðmundur Helgi greiði krónur 100.000.- í sekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dóms að telja, ella sæta fangelsi í 8 daga.

Ákærði Daníel Weidermann, sæti fangelsi í 30 daga en fresta skal fullnustu refsingar og hún niður falla að liðnum 2 árum enda haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.

Ákærði Daníel greiði krónur 10.000.- í sekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dóms að telja, ella sæta fangelsi í 2 daga.

Ákærði, Kjartan Benjamínsson sæti fangelsi í 30 daga en fresta skal fullnustu refsingar og skal hún niður falla að liðnum 2 árum enda haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.

Ákærði Kjartan greiði krónur 10.000.- í sekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dóms að telja, ella sæta fangelsi í 2 daga.

Ákærði, Kjartan greiði þóknun verjanda síns Guðjóns Ægs Sigurjónssonar, héraðsdómslögmanni kr. 43.575.- Ástríður Grímsdóttir.

Heimildaskrá