Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

36 dómar fundust

Lagagrein: 7. gr. laga nr. 33/2003 — Lög um verðbréfaviðskipti

Landsréttur birt 29. nóvember 2019

118/2019

Jónas Rúnar Sigfússon (Eiríkur Gunnsteinsson lögmaður) gegn Landsbankanum hf (Bjarni Þór Óskarsson lögmaður)

L hf. krafði J um greiðslu tveggja lána sem hann hafði tekið á árunum 2007 og 2008. Framangreind lán voru gengistryggð en höfðu bæði verið endurútreiknuð tvisvar, á grundvelli dóma Hæstaréttar og eftirstöðvarnar tekið breytingum í kjölfarið. J hafði selt fasteign árið 2008 og var söluandvirðinu varið til kaupa á peningabréfum sem handveðsett voru L hf. Skyldi andvirði seldra fjármálagerninga ganga til lækkunar á skuld þeirri sem handveðið ætti að tryggja. Þegar peningamarkaðssjóðum L hf. var slitið var andvirði hlutar J, 52.535.103 krónur, greitt inn á óbundinn innlánsreikning í hans nafni. Um hálfu ári eftir þingfestingu málsins í héraði, árið 2017, gekk L hf. að fyrrnefndri innstæðu og ráðstafaði sem innborgun inn á fyrra lánið miðað við 1. mars 2017. Fyrir Landsrétti byggði J meðal annars á því að lánasamningarnir væru hluti af vaxtaskiptasamningi hans og L hf. sem líti yrði á sem eina heild og L hf. gæti ekki slitið einhliða í sundur. Í dómi Landsréttar kom fram að meðal annars með hliðsjón af þeim mikla mun sem væri á dráttarvöxtum og innlánsvöxtum sem J naut hjá L hf. hefði hvílt sú tillitsskylda á L hf. gagnvart J að ganga fyrr að innstæðunni og ráðstafa henni til lækkunar á skuld hans. Var hinn áfrýjaði dómur staðfestur að öðru leyti en því að til skuldajafnaðar kröfum L hf. kom, miðað við 9. desember 2013 þegar leiðréttur endurútreikningur á fyrra láninu lá fyrir, innstæða áfrýjanda að fjárhæð 52.535.103 krónur, með vöxtum frá því að reikningurinn var stofnaður á árinu 2008 og fram til 9. desember 2013.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 30. maí 2018

E-3046/2016

Landsbankinn hf (Ólafur Örn Svansson lögmaður) gegn Þorsteini Hjaltested (Sigurbjörn Ársæll Þorbergsson lögmaður)

Stefnda gert að greiða skuld samkvæmt lánssamningi sem hann hafði gert við forvera stefnanda. Fallist á að lánið væri framreiknað að teknu tilliti til vaxta fram til lokagjalddaga lánsins í samræmi við varakröfu stefnanda.

Hæstiréttur birt 17. maí 2018

752/2017

Jónas Rúnar Sigfússon (Eiríkur Gunnsteinsson lögmaður) gegn Landsbankanum hf (Bjarni Þór Óskarsson lögmaður)

L hf. höfðaði mál á hendur J til heimtu skuldar samkvæmt tveimur lánssamningum sem J hafði gert við Landsbanka Íslands hf., en kröfum samkvæmt samningunum hafði verið ráðstafað til L hf. Fyrir Hæstarétti krafðist J ómerkingar héraðsdóms á þeim grundvelli að dómarinn sem fór með málið í héraði hefði verið vanhæfur til meðferðar þess vegna setu sinnar í skilanefnd Landsbanka Íslands hf. og bankaráði L hf. Féllst Hæstiréttur á að vegna tilurðar og meðferðar þeirra krafna sem aðilar hefðu uppi, og með hliðsjón af störfum héraðsdómarans á þeim tíma er um ræddi, mætti með réttu draga í efa óhlutdrægni hans við úrlausn málsins, sbr. g. lið 5. gr. laga nr. 91/1991. Var hinn áfrýjaði dómur því ómerktur og málinu vísað heim í hérað til löglegrar dómsálagningar á ný.

Hæstiréttur birt 30. mars 2017

489/2016

Þorsteinn Hjaltested (Sigurbjörn Ársæll Þorbergsson hrl) gegn Landsbankanum hf (Ólafur Örn Svansson hrl)

L hf. krafði Þ um greiðslu vegna yfirdrátta á þremur myntveltureikningum sem stofnaðir höfðu verið árið 2007. Þ hafði uppi gagnkröfu til skuldajafnaðar sem byggðist á því hann hefði orðið fyrir fjártjóni af völdum starfsmanna LÍ hf. vegna saknæmrar og ólögmætrar háttsemi þeirra og ætti því rétt á skaðabótum eftir almennum reglum. Þá hafði Þ einnig uppi fjárkröfu vegna meintra ólögmætra þóknana og ráðstöfunar L hf. á innlausn úr peningamarkaðssjóði og sölu af andvirði bréfa í S hf. sem var í eigu hans upp í skuldir G ehf. en Þ hafði sett þau verðmæti sín til tryggingar skuldum félagsins. Var ekki fallist á með Þ að LÍ hf. hefði einhliða yfirdregið myntveltureikninga Þ með ólögmætum hætti og án heimildar m.a. með vísan til þess að Þ hefði sýnt af sér stórfellt tómlæti með því að hafa ekki gert athugasemdir við L hf. fyrr en tæpum sjö árum eftir stofnun reikningana. Var því krafa L hf. tekin til greina. Þá var talið að LÍ hf., sem L hf. leiddi rétt sinn frá, hefði ekki bakað sér bótaskyldu gagnvart Þ í lögskiptum þeirra og af því leiddi að ekki stofnaðist til kröfu af hálfu Þ sem skuldajafnað yrði við kröfu L hf. Hins vegar var gagnkrafa Þ er varðaði endurgreiðslu ólögmætra þóknana tekin til greina.

Hæstiréttur birt 30. september 2015

553/2015

Glitnir hf (Steinunn Hólm Guðbjartsdóttir hrl) gegn Þorsteini Hjaltested (Sigurbjörn Ársæll Þorbergsson hrl)

Þ lýsti skaðabótakröfum við slit G hf. sem voru reistar á því að starfsmenn G hf. hefðu veitt Þ ófullnægjandi fjárfestingarráðgjöf og með því valdið honum tjóni. Auk þess hafði Þ uppi kröfu um viðurkenningu á því að honum væri heimilt að skuldajafna kröfum sínum við kröfu G hf. samkvæmt lánssamningi þeirra. Slitastjórn G hf. hafnaði kröfum Þ og vísaði ágreiningnum til úrlausnar héraðsdóms eftir fyrirmælum laga nr. 21/1991 um gjaldþrotaskipti o.fl. Í málinu var deilt um meint tjón Þ vegna fjögurra fjárfestinga, sem Þ réðist í eftir tillögu starfsmanna G hf. Í fyrsta lagi var um að ræða fasteignaverkefni í Berlín, í öðru lagi kaup á afleiðutengdu skuldabréfi, í þriðja lagi gjaldeyrisstýringu G hf. og í fjórða lagi lán sem Þ tók hjá G hf. til jarðakaupa. Hæstiréttur taldi að Þ hefði glatað fyrir tómlæti sérhverjum rétti sem hann gæti hafa átt á hendur G hf. vegna fasteignaverkefnisins í Berlín. Vísað var til þess að Þ hefði varið umtalsverðu fé í umrætt verkefni og mætti af þeim sökum gera þá kröfu að hann sýndi eðlilega aðgæslu þegar kæmi að því að gæta þeirra hagsmuna sinna. Samkvæmt gögnum málsins hefði Þ ekki síðar en í október 2008 átt að gera sér grein fyrir því að fjárfesting hans í verkefninu myndi ekki ganga eftir í samræmi við það sem lagt hafði verið upp með. Þ hefði hins vegar ekki gert athugasemdir við ráðgjöf G hf. fyrr en með kröfulýsingu í nóvember 2009. Hæstiréttur taldi að Þ hefði einnig glatað sérhverjum rétti sínum fyrir tómlæti í tengslum við afleiðutengda skuldabréfið, en það hafi komið í ljós í síðasta lagi í október 2008 að ekki myndi takast að vinna upp tapið sem varð af þeirri fjárfestingu. Þ gerði þó ekki athugasemdir þar að lútandi fyrr en með áðurnefndri kröfulýsingu. Hæstiréttur féllst á hinn bóginn á að viðurkenna kröfu Þ um skaðabætur vegna tjóns sem hann varð fyrir á grundvelli samnings aðila um gjaldeyrisstýringu. Í málinu lá fyrir að G hf. hefði í fjögur skipti keypt eða selt gjaldmiðla fyrir hönd Þ á gengi sem engin stoð hefði verið fyrir. Samkvæmt matsgerð dómkvaddra manna hefði hagnaður Þ af gjaldeyrisstýringunni að réttu lagi átt að verða 72.363.316 krónur í stað taps upp á 80.101.684 krónur. Hæstiréttur taldi að G hf. hefði ekki hnekkt niðurstöðu matsmanna og var matsgerðin því lögð til grundvallar um tjón Þ. Þá var ekki talið standa í vegi kröfu Þ um bætur fyrir missi hagnaðar að hann hefði í raun ekki lagt af mörkum framlag til viðskiptanna í öndverðu. Taldi Hæstiréttur að við framkvæmd gjaldeyrisstýringarsamnings aðilanna hefði G hf. brotið gegn góðri viðskiptavenju og ekki leitað allra leiða til að tryggja bestu mögulegu niðurstöðu fyrir Þ, sbr. 5. gr. og 18. gr. laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti. Var krafa Þ í tengslum við framkvæmd gjaldeyrisstýringarsamningsins viðurkennd í réttindaröð við slit G hf. samkvæmt 113. gr. laga nr. 21/1991. Hæstiréttur hafnaði því að G hf. bæri skaðabótaábyrgð á tjóni sem Þ taldi sig hafa orðið fyrir þegar hann tók lán hjá G hf. í stað þess að leysa út eignir til þess að fjármagna jarðakaup. Vísaði Hæstiréttur til þess að Þ hefði ekki sýnt fram á að starfsmenn G hf. hefðu mátt sjá það fyrir í október 2007 að lántakan yrði óhagkvæmari fyrir hann en ef hann hefði leyst út fé sitt hjá G hf. Þá væri til þess að líta að samkvæmt gögnum málsins hefði Þ sjálfur veitt lán í erlendum gjaldmiðli á svipuðum tíma og hefði honum því mátt vera fullkunnugt um áhættuna af því að veita og taka lán í erlendum gjaldmiðlum eða sem fylgdi gengi þeirra. Loks hafnaði Hæstiréttur skuldajafnaðarkröfu Þ. Aðeins hefði verið fallist á kröfu hans í tengslum við gjaldeyrisstýringarsamning aðilanna, en með hinum kærða úrskurði var því að hafnað að Þ gæti nýtt þá kröfu til skuldajafnaðar. Þar sem varnaraðili hefði ekki kært úrskurð héraðsdóms fyrir sitt leyti gæti sú niðurstaða ekki komið til endurskoðunar.

Hæstiréttur birt 6. nóvember 2014

127/2014

Kaupþing hf (Eiríkur Elís Þorláksson hrl) gegn Reykjavíkurborg (Kristbjörg Stephensen hrl)

K hf. og R deildu um hvort R hefði í nóvember 2008 verið heimilt að rifta þremur gjaldmiðla- og vaxtaskiptasamningum sem aðilarnir höfðu gert með sér, en þá hafði K hf. vanefnt skyldu til greiðslu vaxtagjalddaga samkvæmt einum samninganna. Talið var að R hefði að virtu þessu og öðrum atvikum málsins, þ. á m. ákvörðun FME í október 2008 um að taka yfir vald hluthafafundar í K hf., víkja stjórn hans frá og setja yfir hann skilanefnd, haft réttmæta ástæðu til að ganga út frá því að K hf. myndi ekki verða fær um að standa við samninga aðilanna fyrir sitt leyti. Að auki var talið að viðbrögð K hf. við riftunaryfirlýsingu R yrðu í reynd skilin á þann veg að K hf. hefði lýst því yfir að hann myndi ekki réttilega efna skuldbindingar sínar eftir samningunum þótt hann ætlaðist til fullra efnda úr hendi R. Var R að öllu þessu virtu talið heimilt að rifta samningunum. Aðilana greindi einnig á um hvernig haga bæri uppgjöri sín á milli vegna riftunarinnar, en talið var að virtu orðalagi samninganna að fara bæri eftir almennri reglu fjármunaréttar um að gera aðilana eins setta og ef þeir hefðu aldrei verið gerðir. Var R því sýknuð af fjárkröfu K hf. sem sett hafði verið fram á grundvelli uppgjörs miðað við almenna markaðsskilmála K hf. um verðbréfaviðskipti.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 9. apríl 2014

X-648/2012

Jónas Rúnar Sigfússon (Guðmundur Þórðarson hdl) gegn LBI hf (Halldór Helgi Backman hrl)

Ágreiningsmáli við slitameðferð fjármálafyrirtækis vísað frá dómi þar sem kröfur sem endanlega voru hafðar uppi í málinu höfðu ekki komið fram í kröfulýsingu.

Hæstiréttur birt 1. apríl 2014

180/2014

Sigurjón Sighvatsson og Ofanleiti ehf (Karl Georg Sigurbjörnsson hrl) gegn Glitni hf (Steinunn Hólm Guðbjartsdóttir hrl)

S, Þ og B stóðu árið 2005 sameiginlega að viðskiptum fyrir milligöngu G hf. um kaup á óskráðu dönsku félagi, V A/S, sem átti fjölda fasteigna til útleigu í Kaupmannahöfn, með því að danskt félag, N A/S, í eigu íslensku félaganna O ehf., H ehf. og B ehf., sem S, Þ og B voru í forsvari fyrir, festi kaup á öllum hlutum í V A/S. Voru kaupin að mestu leyti fjármögnuð með láni frá dótturfélagi G hf. í Lúxemborg. Í framhaldi af kaupunum lenti V A/S í erfiðleikum með afborganir af lánum, en tengdir einstaklingar og lögaðilar höfðu tekist á hendur ábyrgðir á skuldbindingum þess. V A/S var tekið til gjaldþrotaskipta á árinu 2010. S og O ehf. lýstu sameiginlega kröfum við slit G hf. sem reistar voru á því að starfsmenn G hf. hafi ekki veitt fullnægjandi upplýsingar í aðdraganda viðskiptanna og hefðu S og O ehf. beðið tjón af þeim sökum vegna tapaðra fjárframlaga til kaupanna og skuldbindinga sem enn hvíldu á þeim vegna ábyrgða á lánum í tengslum við kaupin eða rekstur V A/S og dótturfélaga þess. S og O ehf. reistu jafnframt kröfur sínar á því að samkvæmt samningi þeirra við G hf. um einkabankaþjónustu og á grundvelli 8. gr. þágildandi laga nr. 33/2003 um verðbréfaviðskipti hefði starfsmönnum G hf. verið óheimilt að bjóða S að taka þátt í viðskiptunum. Slitastjórn G hf. hafnaði því að viðurkenna kröfurnar og var úrlausn um ágreining þar að lútandi vísað til héraðsdóms, þar sem komist að sömu niðurstöðu í hinum kærða úrskurði. Í dómi Hæstaréttar voru raktir nánar tilgreindir annmarkar sem verið höfðu á kröfugerð S og O ehf. á mismunandi stigum málsins. Að endingu taldi Hæstiréttur, án þess að nokkuð þyrfti frekar að gæta að því hvort S og O ehf. kynnu, annað eða bæði, að hafa eignast kröfu í tilefni af áðurgreindum viðskiptum, sem að auki yrði réttilega beint að G hf., að þau hefðu sýnt af sér stórfellt tómlæti um að gera athugasemdir við G hf. vegna þessara verðbréfaviðskipta á meðan enn gæti hafa talist raunhæft að hlutabréf í V A/S hefðu eitthvert verðgildi í viðskiptum, sbr. dóm Hæstaréttar 28. janúar 2014 í máli nr. 719/2013. Með því hefðu S og O ehf. brugðist tillitsskyldu sinni gagnvart G hf., sbr. til hliðsjónar dóm réttarins 27. febrúar 2003 í máli nr. 305/2002, og þar með glatað fyrir tómlæti sérhverjum rétti sem þau gætu hafa átt á hendur G hf. af þessu tilefni. Var því þegar af þeirri ástæðu hafnað að viðurkenna kröfur þeirra við slit G hf.

Hæstiréttur birt 1. apríl 2014

179/2014

Heimiliskaup ehf (Karl Georg Sigurbjörnsson hrl) gegn Glitni hf (Steinunn Hólm Guðbjartsdóttir hrl)

S, Þ og B stóðu árið 2005 sameiginlega að viðskiptum fyrir milligöngu G hf. um kaup á óskráðu dönsku félagi, V A/S, sem átti fjölda fasteigna til útleigu í Kaupmannahöfn, með því að danskt félag, N A/S, í eigu íslensku félaganna O ehf., H ehf. og B ehf., sem S, Þ og B voru í forsvari fyrir, festi kaup á öllum hlutum í V A/S. Voru kaupin að mestu leyti fjármögnuð með láni frá dótturfélagi G hf. í Lúxemborg. Í framhaldi af kaupunum lenti V A/S í erfiðleikum með afborganir af lánum, en tengdir einstaklingar og lögaðilar höfðu tekist á hendur ábyrgðir á skuldbindingum þess auk þess sem HK ehf., sem S, Þ og B fóru fyrir, kváðust hafa lagt V A/S og dótturfélögum þess til verulegar fjárhæðir. V A/S var tekið til gjaldþrotaskipta á árinu 2010. HK ehf. lýsti kröfu við slit G hf. sem reist var á því að starfsmenn G hf. hafi ekki veitt fullnægjandi upplýsingar í aðdraganda viðskiptanna og bæri G hf. skaðabótaskyldu af þeim sökum, ekki aðeins gagnvart kaupendum, heldur einnig sér sem látið hefði af hendi fé af ástæðum sem rekja mætti til kaupanna. HK ehf. reisti jafnframt kröfu sína á því að samkvæmt 8. gr. þágildandi laga nr. 33/2003 um verðbréfaviðskipti hefði starfsmönnum G hf. verið óheimilt að bjóða S, Þ og B að taka þátt í viðskiptunum. Slitastjórn G hf. hafnaði því að viðurkenna kröfuna og var úrlausn um ágreining þar að lútandi vísað til héraðsdóms, þar sem komist að sömu niðurstöðu í hinum kærða úrskurði. Í dómi Hæstaréttar voru raktir nánar tilgreindir annmarkar sem verið höfðu á kröfugerð HK ehf. á mismunandi stigum málsins. Að endingu taldi Hæstiréttur, án þess að nokkuð þyrfti frekar að gæta að því hvort HK ehf. kynni að hafa eignast kröfu í tilefni af áðurgreindum viðskiptum, sem að auki yrði réttilega beint að G hf., að kaupendur V A/S hefðu sýnt af sér stórfellt tómlæti um að gera athugasemdir við G hf. vegna þessara verðbréfaviðskipta á meðan enn gæti hafa talist raunhæft að hlutabréf í V A/S hefðu eitthvert verðgildi í viðskiptum, sbr. dóm Hæstaréttar 28. janúar 2014 í máli nr. 719/2013. Með því hefðu kaupendurnir brugðist tillitsskyldu sinni gagnvart G hf., sbr. til hliðsjónar dóm réttarins 27. febrúar 2003 í máli nr. 305/2002, og þar með glatað fyrir tómlæti sérhverjum rétti sem þeir gætu hafa átt á hendur G hf. af þessu tilefni. Með því að HK ehf. teldi sig geta leitt kröfu sína á hendur G hf. af réttarsambandi hans við kaupendurna, gæti HK ehf. í þeim efnum ekki notið ríkari réttar en þeir. Var því þegar af þeirri ástæðu hafnað að viðurkenna kröfu HK ehf. við slit G hf.

Hæstiréttur birt 1. apríl 2014

178/2014

Birgir Hannes Þórisson og Blikanes ehf (Karl Georg Sigurbjörnsson hrl) gegn Glitni hf (Steinunn Hólm Guðbjartsdóttir hrl)

S, Þ og B stóðu árið 2005 sameiginlega að viðskiptum fyrir milligöngu G hf. um kaup á óskráðu dönsku félagi, V A/S, sem átti fjölda fasteigna til útleigu í Kaupmannahöfn, með því að danskt félag, N A/S, í eigu íslensku félaganna O ehf., H ehf. og B ehf., sem S, Þ og B voru í forsvari fyrir, festi kaup á öllum hlutum í V A/S. Voru kaupin að mestu leyti fjármögnuð með láni frá dótturfélagi G hf. í Lúxemborg. Í framhaldi af kaupunum lenti V A/S í erfiðleikum með afborganir af lánum, en tengdir einstaklingar og lögaðilar höfðu tekist á hendur ábyrgðir á skuldbindingum þess. V A/S var tekið til gjaldþrotaskipta á árinu 2010. B og B ehf. lýstu sameiginlega kröfum við slit G hf. sem reistar voru á því að starfsmenn G hf. hafi ekki veitt fullnægjandi upplýsingar í aðdraganda viðskiptanna og hefðu B og B ehf. beðið tjón af þeim sökum vegna tapaðra fjárframlaga til kaupanna og skuldbindinga sem enn hvíldu á þeim vegna ábyrgða á lánum í tengslum við kaupin eða rekstur V A/S og dótturfélaga þess. B og B ehf. reistu jafnframt kröfur sínar á því að samkvæmt samningi B við G hf. um einkabankaþjónustu og á grundvelli 8. gr. þágildandi laga nr. 33/2003 um verðbréfaviðskipti hefði starfsmönnum G hf. verið óheimilt að bjóða B að taka þátt í viðskiptunum. Slitastjórn G hf. hafnaði því að viðurkenna kröfurnar og var úrlausn um ágreining þar að lútandi vísað til héraðsdóms, þar sem komist að sömu niðurstöðu í hinum kærða úrskurði. Í dómi Hæstaréttar voru raktir nánar tilgreindir annmarkar sem verið höfðu á kröfugerð B og B ehf. á mismunandi stigum málsins. Að endingu taldi Hæstiréttur, án þess að nokkuð þyrfti frekar að gæta að því hvort B og B ehf. kynnu, annað eða bæði, að hafa eignast kröfu í tilefni af áðurgreindum viðskiptum, sem að auki yrði réttilega beint að G hf., að þau hefðu sýnt af sér stórfellt tómlæti um að gera athugasemdir við G hf. vegna þessara verðbréfaviðskipta á meðan enn gæti hafa talist raunhæft að hlutabréf í V A/S hefðu eitthvert verðgildi í viðskiptum, sbr. dóm Hæstaréttar 28. janúar 2014 í máli nr. 719/2013. Með því hefðu B og B ehf. brugðist tillitsskyldu sinni gagnvart G hf., sbr. til hliðsjónar dóm réttarins 27. febrúar 2003 í máli nr. 305/2002, og þar með glatað fyrir tómlæti sérhverjum rétti sem þau gætu hafa átt á hendur G hf. af þessu tilefni. Var því þegar af þeirri ástæðu hafnað að viðurkenna kröfur þeirra við slit G hf.

Hæstiréttur birt 2. maí 2013

634/2012

Byggingahúsið ehf (Arnar Þór Stefánsson hrl) gegn LBI hf (Kristinn Bjarnason hrl)

B ehf. hóf verðbréfaviðskipti hjá forvera L hf. vorið 2007 og fólust þau m.a. í kaupum á hlutabréfum í erlendum félögum með framvirkum samningum. L hf. höfðaði mál gegn B ehf. til heimtu skuldar vegna viðskiptanna. B ehf. taldi L hf. hafa vanefnt samningana með því að bjóða ekki fram efndir af sinni hálfu en á það féllst Hæstiréttur ekki. B ehf. hafi borið að eiga frumkvæði að efndum með því að bjóða fram greiðslu samningsverðsins og leita eftir því að fá afhent þau hlutabréf sem samningarnir tóku til. Fyrst þá hafi L hf. borið að hafa bréfin tiltæk og var bankanum því heimilt að höfða mál til heimtu greiðslu úr hendi B ehf. og gera kröfu sína úr garði eins og greindi í 4. mgr. 114. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Sýknukröfu sína byggði B ehf. jafnframt á því að L hf. hafi í ráðgjöf sinni gagnvart félaginu ekki farið að lögum nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti og eldri lögum um sama efni nr. 33/2003. Þannig hafi L hf. ekki lagt neitt mat á hæfi B ehf. til að eiga í viðskiptum með afleiðusamninga eða aflað upplýsinga um þekkingu og reynslu fyrirsvarsmanns B ehf. af slíkum viðskiptum. Ekki var talið að L hf. hefði í fyllsta tilliti gætt að þeim fyrirmælum sem giltu um öflun upplýsinga vegna eignastýringar og fjárfestingarráðgjafar. B ehf. hafi á hinn bóginn mátt vera ljós sú áhætta er félagið tók með viðskiptunum. Fyrirsvarsmaður félagsins hafi undirritað alla þá samninga sem málið tók til en í þeim var tekið fram að hann hafi kynnt sé eðli framvirkra samninga og notið sérfræðiráðgjafar utan bankans. Þá hafi fyrirsvarsmaðurinn staðfest að honum væri ljós sú áhætta sem fælist í viðskiptum með fjármálagerninga bæði í samningi 22. júní 2007 við L hf. um ráðgjöf vegna viðskipta með slíka gerninga og með því að samþykkja 16. janúar 2008 almenna skilmála fyrir markaðsviðskiptum hjá L hf. B ehf. var því hvorki talið hafa leitt í ljóst hvernig sú ráðgjöf sem því hafi verið látin í té hafi verið ófullnægjandi né hvernig frekari ráðleggingar hefðu getað komið í veg fyrir viðskiptin. Væru ekki efni að víkja samningunum til hliðar á grundvelli 36. gr. laga nr. 7/1936. Var staðfest niðurstaða hins áfrýjaða dóms um greiðsluskyldu B ehf.

Hæstiréttur birt 2. maí 2013

633/2012

632/2012

631/2012

630/2012

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 22. nóvember 2012

E-1318/2011

Gissur Rafn Jóhannsson (Steinn S. Finnbogason hdl) gegn EA fjárfestingafélagi ehf (Ólafur Eiríksson hrl)
Lykilorð: Skiptasamningur. Skuldamál.

Stefnandi hafði undirritað samninga við stefnda um fjárfestingar í formi skuldsettra markaðsviðskipta. Talið var að skiptasamningar um fjármálagerninga hafi verið skuldbindandi fyrir stefnanda og að stefndi hefði sýnt af sér eðlilega og hreilbrigða viðskiptahætti í samskiptum við stefnanda.

Hæstiréttur birt 22. mars 2012

513/2011

Landsbanki Íslands hf (Jóhannes Sigurðsson hrl) gegn Dynjanda ehf (Ragnar Halldór Hall hrl)

L hf. höfðaði mál á hendur D ehf. og krafðist greiðslu samkvæmt gjaldmiðlaskiptasamningi sem L hf. taldi að komist hefði á milli aðila, en óumdeilt var að D ehf. staðfesti samninginn ekki skriflega. Talið var, í samræmi við skilmála sem giltu í markaðsviðskiptum aðila, að gildi einstakra samninga hefði ekki oltið á skriflegri staðfestingu þeirra og þótti L hf. hafa sýnt fram á að aðilar hefðu gert með sér samning þess efnis sem hann hélt fram. Þá var ekki fallist á sjónarmið D ehf. um að stefnubirtingu hefði verið áfátt í málinu og var öðrum málsástæðum hans einnig hafnað. Var D ehf. því gert að greiða L hf. hina umsömdu fjárhæð en með hliðsjón af atvikum öllum þótti rétt að upphafstími dráttarvaxta skyldi miðast við höfðun málsins í héraði, sbr. 4. mgr. 5. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 20. mars 2012

X-30/2010

Rekstrarlausnir ehf (Kristján B. Thorlacius hrl) gegn Landsbanka Íslands hf (Sölvi Davíðsson hdl)

Aðalkrafa sóknaraðila var um afhendingu inneignar á bankareikningi hjá Nýja Landsbanka Íslands. Kröfu þeirri hafnað vegna aðildarskorts. Ágreiningur snerist m.a.um hvort framvirkur samningur um hlutabréfakaup í Glitni banka hf., hafi verið framlengdur af hálfu sóknaraðila. Varnaraðili gerði gagnkröfu til sjálfstæðrar dómsúrlaunsar. Krafa varnaraðila tekin til greina að hluta.

Hæstiréttur birt 24. nóvember 2011

93/2011

SPB hf (Ólafur Eiríksson hrl) gegn Þorgilsi Einari Ámundasyni (Björn Jóhannesson hrl)

S hf. höfðaði mál gegn Þ til innheimtu kröfu sem S hf. taldi sig eiga á grundvelli svokallaðs gjaldmiðla- og verðbréfaskiptasamnings. Upphaflega höfðu aðilar gert slíkan samning sín á milli 18. október 2006 til eins árs en ágreiningur þeirra laut einkum að því hvort nýr samningur sama efnis hefði verið gerður að liðnum gildistíma þess samnings. Talið var að í almennum skilmálum S hf. um markaðsviðskipti, sem Þ hafði skrifað undir, hefði ekki verið kveðið skýrt á um skyldu til að einstakir viðskiptasamningar milli aðila yrðu gerðir skriflega svo að afleiðingar gæti haft fyrir gildi þeirra. Samkvæmt því gat úrlausn málsins ekki ráðist af því einu að Þ hefði ekki undirritað samning um þau viðskipti, sem aðilar deildu um hvort komist hefðu á. Með vísan til upptaka af símtölum og tölvubréfa milli Þ og starfsmanna S hf. þótti sannað að ekki síðar en 31. október 2007 hefði komist á samningur milli aðila um að framlengja í eitt ár frá 18. sama mánaðar þann samning sem þeir gerðu 18. október 2006. Ekki var fallist á að víkja ætti samningnum til hliðar á grundvelli 36. gr. laga nr. 7/1936 um samningsgerð, umboð og ógilda löggerninga. Aftur á móti þótti ósannað að aðilar hefðu samið um annað en að óbreytt kjör ættu að gilda við framlengingu samningsins og var því ekki fallist á að Þ skyldi greiða 2% vaxtaálag, eins og kom fram í texta skriflegs samnings sem Þ undirritaði ekki, heldur 1% vaxtaálag eins og í upphaflegum samningi aðila.

Hæstiréttur birt 14. desember 2010

641/2010

MP banki hf (Ólafur Eiríksson hrl) gegn Tomas Tolpezninkas (Eiríkur Elís Þorláksson hrl)

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem máli M hf. á hendur T var vísað frá dómi af sjálfsdáðum þar sem málatilbúnaður hans þótti svo vanreifaður og óljós að dómur yrði ekki lagður á kröfu hans. Í dómi Hæstaréttar segir m.a. að engin grein sé gerð fyrir því hvers konar viðskipti M hafi átt fyrir T eða hvers vegna krafa M sé gerð í evrum og hvar sé að finna heimild til þess. Séu ágallar á stefnu slíkir að í bága fari við d. og e. lið 1. mgr. 80. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Var niðurstaða héraðsdóms um frávísun málsins staðfest.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 9. desember 2010

E-268/2010

A (Kristín Edwald hrl) gegn B (Helgi Sigurðsson hrl)
Málaflokkur: Erfðaréttur

Stefndi sýknaður af kröfu stefnanda um bætur vegna tapaðrar arfsvonar úr búi föður málsaðila. Sýnt þótti að stefndi hefði haft umboð til að rita undir fjarvörslusamning við verðbréfafyrirtæki fyrir hönd föður síns, ef ekki samhliða þá eftir á með athafnaleysi hans.

Hæstiréttur birt 12. febrúar 2009

202/2008

Rektor ehf (Gestur Jónsson hrl) gegn MP Banka hf (Jóhannes Karl Sveinsson hrl)

Framkvæmdastjóri R ehf. gerði fyrir hönd félagsins 14 afleiðusamninga, svokallaða skiptasamninga, við M hf. og afhenti að handveði innstæðu bankareiknings. R ehf. hagnaðist við uppgjör sumra samninganna en tapaði á öðrum og varð tapið mun meira en hagnaðurinn. R ehf. stefndi M hf. og krafðist endurgreiðslu á þeirri fjárhæð sem M hf. hafði skuldfært af viðskiptareikningi félagsins þar sem það taldi skiptasamningana vera ógilda og óskuldbindandi fyrir sig, en undirskrift bæði framkvæmdarstjóra og stjórnarmanns félagsins hafi þurft til að skuldbinda félagið. Talið var að viðskiptamönnum R ehf. hafi verið rétt að líta svo á að afleiðuviðskipti með hlutabréf féllu undir þá almennu skilgreiningu á tilgangi félagsins sem lýst var í tilkynningu til hlutafélagaskrár. Ekki komi fram í samþykktum félagsins að stjórnarmaður og framkvæmdastjóri skuldbindi félagið í sameiningu. Prókúruumboð framkvæmdastjóra R ehf. hafi ekki verið takmörkunum háð og hann hafi því getað skuldbundið félagið. Þá var litið svo á að viðskipti R ehf. og M hf. hafi verið viðvarandi og því hafi borið að gera skriflegan samning um þau, sbr. 1. mgr. 7. gr. þágildandi laga um verðbréfaviðskipti nr. 33/2003. Ekki hafi þó komið að sök að það hafi ekki verið gert enda hafi R ehf. ekki bent á neitt sem leitt hafi til tjóns fyrir það og rekja hafi mátt til þess að samningurinn hafi ekki verið gerður. Var M hf. því sýknað af kröfum R ehf.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 23. mars 2007

E-5353/2006

MP Fjárfestingarbanki hf (Ólafur Eiríksson hrl) gegn Guðjóni Sverri Rafnssyni (Björgvin Þorsteinsson hrl)

G var dæmdur til að greiða MP skuld sem hann hafði stofnað til með gerð svo kallaðra skiptasamninga með verðbréf. Ekki var fallist á málsástæður G um að MP hefði vanrækt skyldur sínar eða að samningar hans við MP hefðu verið ógildir.