Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

3 dómar fundust

Lykilorð: Verðbréfamiðlun

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 23. mars 2007

E-5353/2006

MP Fjárfestingarbanki hf (Ólafur Eiríksson hrl) gegn Guðjóni Sverri Rafnssyni (Björgvin Þorsteinsson hrl)

G var dæmdur til að greiða MP skuld sem hann hafði stofnað til með gerð svo kallaðra skiptasamninga með verðbréf. Ekki var fallist á málsástæður G um að MP hefði vanrækt skyldur sínar eða að samningar hans við MP hefðu verið ógildir.

Hæstiréttur birt 7. júní 2001

16/2001

Hallgrímur Jónsson (Einar Gautur Steingrímsson hrl) gegn Frjálsa fjárfestingarbankanum hf (Bjarki H. Diego hrl)
Lykilorð: Verðbréfamiðlun.

Fjárfestingarfélagið S hafði milligöngu um verðbréfaviðskipti H. Tap varð á viðskiptunum og stofnaðist við það skuld H við S. F, sem tók yfir réttindi og skyldur S, krafði H um skuldina. H hafnaði greiðsluskyldu og bar því einkum við að til viðskiptanna hefði að nokkru verið stofnað án síns samþykkis, auk þess sem ráðgjöf S hefði verið ábótavant. Að svo miklu leyti sem H hafði ekki samþykkt viðskiptin var talið að hann hefði með athafnaleysi sínu orðið skuldbundinn af þeim. Sýnt þótti að H hefði verið kynnt eðli viðskiptanna og sú áhætta sem þeim fylgdi. Var því ekki fallist á að ráðgjöfinni hefði verið svo ábótavant að skuldbindingar H við S væru niður fallnar eða að stofnast hefði til bótaréttar hans á hendur S. Þótti ekki hagga því að S hafði vanrækt skyldu sína til að gera skriflegan samning við H. Þá var ekki fallist á að viðskiptunum yrði jafnað til veðmála eða fjárhættuspila, enda hafði verið gert ráð fyrir viðskiptum sem þessum í lögum frá því fyrir þann tíma er til viðskiptanna var stofnað.