Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

23 dómar fundust

Lagagrein: 1. mgr. 6. gr. laga nr. 28/2001 — Lög um rafrænar undirskriftir

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 22. desember 2021

E-1621/2021

Birgir Freyr Ólafsson og Guðrún Jónsdóttir (Gunnar Ingi Jóhannsson lögmaður) gegn Pétri Hall Guðmundssyni og Karen Jósefs Tómasdóttur (Þormóður Skorri Steingrímsson lögmaður)

Fallist var á kröfu stefnenda um að stefndu bæru ábyrgð á viðgerð á fasteign á grundvelli ábyrgðaryfirlýsingar þar að lútandi.

Hæstiréttur birt 13. nóvember 2014

148/2014

Reykjavíkurborg (Kristbjörg Stephensen hrl) gegn MP banka hf (Ásgeir Þór Árnason hrl) og MP banki hf (Anton Björn Markússon hrl)

A setti M hf. að handveði innstæðu sína á nánar tilgreindum reikningi hjá bankanum. Með yfirlýsingu nokkru síðar veitti A bankanum jafnframt veð í almennum kröfum sem A átti á hendur R vegna tveggja verksamninga í tengslum við fasteignir R. Var R og tilkynnt um veðsetninguna sama dag og tekið fram að greiðslur samkvæmt verksamningunum skyldu lagðar inn á fyrrgreindan bankareikning. Ágreiningur reis um efndir verksamninganna og rituðu A og R undir samkomulag um lokauppgjör þar sem fram kom að R greiddi 50.150.000 krónur inn á reikning A hjá Í hf. M hf. höfðaði í kjölfarið mál gegn R og krafðist, á grundvelli fyrrgreindrar veðsetningar, greiðslu á 28.281.218 krónum, sem nam yfirdrætti á reikningi A hjá M hf. Í dómi Hæstaréttar kom fram að R hafi borið að standa skil á greiðslum vegna uppgjörsins við A í samræmi við fyrrnefnda tilkynningu um veðsetningu og hafi ekki getað losnað undan efndaskyldu með því að greiða beint til A. Var krafa M hf. því tekin til greina.

Hæstiréttur birt 6. desember 2012

153/2012

Íslenska ríkið (Soffía Jónsdóttir hrl) gegn Stefáni Ingvari Guðjónssyni (Bjarni Guðmundur Björgvinsson hrl)
Málaflokkur: Skattaréttur

Með úrskurði skattstjóra, sem staðfestur var af yfirskattanefnd, voru opinber gjöld S í skattframtölum áranna 2006 og 2007 endurákvörðuð, með vísan til þess að fjárhæðir sem S hefði fengið að láni frá S ehf. bæri að skattleggja sem laun S samkvæmt 1. tölul. 1. mgr. A. liðar 7. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt og 2. mgr. 11. gr. sömu laga, en óumdeilt var að lánveitingarnar voru í andstöðu við 73. og 79. gr. laga nr. 138/1994 um einkahlutafélög. S bar úrlausn skattyfirvalda undir dómstóla með höfðun máls gegn Í. Hæstiréttur vísaði meðal annars til þess að markmið fyrrgreindra lagaákvæða hefði verið að stemma stigu við ólögmætri úthlutun fjár í formi láns úr félögum og að endurgreiðsla láns, á borð við þau er málið varðaði, hefði engin áhrif á skattskyldu. Ekki var fallist á það með S að skattlagningin bryti í bága við 65. og 72. gr. stjórnarskrárinnar, enda yrði að játa löggjafanum víðtækt vald til að ákveða hvaða atriði valdi skattskyldu. Var niðurstaða skattyfirvalda því staðfest og Í sýknað af kröfum S.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 23. janúar 2012

E-7596/2010

Stefán Ingvar Guðjónsson (Bjarni Guðmundur Björgvinsson hrl) gegn íslenska ríkinu (Soffía Jónsdóttir hrl)
Málaflokkur: Skattaréttur

Stefnandi krafðist ómerkingar á úrskurðum skattstjóra og yfirskattanefndar, en samkvæmt þeim var honum gert að greiða tekjuskatt af lánum, sem hann hafði þegið hjá einkahlutafélagi sínu og endurgreitt. Var talið að lagaákvæði, sem skyldaði stefnanda til greiðslu tekjuskatts af láni, sem hann hafði þegar endurgreitt, bryti gegn stjórnarskrárvörðum eignarrétti hans. Voru úrskurðirnir því felldir úr gildi og stefnda gert að endurgreiða stefnanda það, sem hann hafði þegar greitt á grundvelli úrskurðanna.

Hæstiréttur birt 24. nóvember 2011

117/2011

Íslandsbanki hf (Andri Árnason hrl, Haraldur Örn Ólafsson hdl) gegn Ólöfu Þórönnu Hannesdóttur (Hróbjartur Jónatansson hrl)

Í hf. höfðaði mál gegn Ó til innheimtu á kröfu samkvæmt lánssamningi. G hf. hafði lánað Ó vegna kaupa Ó á stofnfjárhlutum í B en G hf. fékk stofnfjárhlutina að handveði til tryggingar á greiðslu lánsins. Skilanefnd var sett yfir G hf. 14. október 2008 og í kjölfarið var skuld Ó við bankann ráðstafað til Í hf. Síðar var bráðabirgðastjórn sett yfir B. Ekki var fallist á með Ó að með lánssamningi aðila hefði Í hf. takmarkað rétt sinn til að leita fullnustu skyldu Ó við hin veðsettu stofnfjárbréf og arð af þeim. Aftur á móti var talið að Ó hefði vegna villandi ráðgjafar, sem mátti rekja til ónákvæmrar upplýsingagjafar af hálfu G hf., samþykkt lántökuna á þeirri röngu forsendu að áhætta hennar takmarkaðist við hin veðsettu stofnfjárbréf. Í ljósi aðstæðna Ó og þeirrar villu sem hún var í um eðli skuldbindingarinnar þótti líklegt að hún hefði ekki tekið lánið ef henni hefði verið veitt rétt ráðgjöf sem hefði skýrt hvaða afleiðingar það hefði ef forsendur um rekstur sparisjóðsins og væntar arðgreiðslur gengju ekki eftir. Var einnig litið til þess að G hf. hefði átt frumkvæði að stofnfjáraukningu B og lagt sérstaka áherslu á að allir stofnfjáreigendur tækju þátt í henni. Í ljósi atvika við samningsgerðina og stöðu aðila, efni lánssamningsins og atvika sem síðar komu til var talið að ósanngjarnt væri af Í hf. að bera lánssamninginn fyrir sig að því leyti sem hann fæli í sér rétt til að leita fullnustu á greiðsluskyldu Ó í öðrum eignum en hinum veðsettu stofnfjárbréfum og arði af þeim. Með vísan til 36. gr. laga nr. 7/1936 um samningsgerð, umboð og ógilda löggerninga var Ó sýknuð af kröfum Í hf.

Hæstiréttur birt 16. júní 2011

352/2011

Landsbanki Íslands hf (Herdís Hallmarsdóttir hrl) gegn Halldóri Jóni Kristjánssyni (Friðjón Örn Friðjónsson hrl)

L kærði úrskurð héraðsdóms þar sem máli hans á hendur H var vísað frá dómi. L höfðaði málið til staðfestingar á riftun á greiðslu tiltekinnar fjárhæðar í séreignarlífeyrissparnaðarsjóð H og til endurgreiðslu fjárhæðarinnar með dráttarvöxtum. Í þinghaldi 7. mars 2011 lagði L fram ýmis ný gögn þ.á.m. beiðni um dómkvaðningu matsmanna. Í úrskurði héraðsdóms var matsbeiðnin talin fela í sér viðleitni L til að bæta úr óljósum málatilbúnaði í stefnu með síðbúinni matsbeiðni og framlagningu gagna. Var þetta talið stangast á við meginreglu 95. gr. og 5. mgr. 101. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála og raska grundvelli málsins. Í Hæstarétti var fallist á með héraðsdómi að H hefði ekki getað gert sér grein fyrir því af lestri stefnunnar að á þeim atriðum sem matsbeiðnin tók til yrði byggt í málinu. Að þessu athuguðu og með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar var hann staðfestur.

Hæstiréttur birt 12. maí 2011

241/2011

Meistarafélag húsasmiða (Erlendur Þór Gunnarsson hrl) gegn Einari Skúla Hjartarsyni (Margrét Gunnlaugsdóttir hrl)

M kærði úrskurð héraðsdóms þar sem máli hans á hendur E var vísað frá dómi vegna vanreifunar. Í málinu var deilt um heimild M sem eiganda að landi K í G-hreppi til að innheimta gjald vegna rekstrar og viðhalds fyrir árin 2006-2009 af E á grundvelli lóðarleigusamnings aðila. Í úrskurði héraðsdóms sagði m.a. að M hefði ekki reifað með fullnægjandi hætti hvaða útgjöld lægju til grundvallar gjaldinu og væru því ekki fyrir hendi forsendur sem gerðu dóminum kleift að leggja mat á hvort umrætt gjald væri raunhæft. Fyrir Hæstarétti lagði M fram yfirlit yfir rekstrargjöld áranna 2006-2009 ásamt ljósritum af reikningum. Þar sem þessi gögn höfðu ekki legið fyrir héraðsdómi komu þau ekki til skoðunar fyrir Hæstarétti. Í dómi Hæstaréttar sagði m.a. að aðila greindi á um hvort krafa M byggðist á raunverulegum rekstrarkostnaði á grundvelli 3. gr. lóðarleigusamnings aðila. Yrði að fallast á að M, sem væri bókhaldsskyldur, ætti að vera í lófa lagið að leggja fram fullnægjandi gögn til stuðnings kröfu sinni á hendur E. Að þessu athuguðu en að öðru leyti með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar var hann staðfestur.

Hæstiréttur birt 12. maí 2011

240/2011

Meistarafélag húsasmiða (Erlendur Þór Gunnarsson hrl) gegn Erni I S. Isebarn (Margrét Gunnlaugsdóttir hrl)

239/2011

Meistarafélag húsasmiða (Erlendur Þór Gunnarsson hrl) gegn Guðna Jóhanni Ottóssyni (Margrét Gunnlaugsdóttir hrl)

M kærði úrskurð héraðsdóms þar sem máli hans á hendur G var vísað frá dómi vegna vanreifunar. Í málinu var deilt um heimild M sem eiganda að landi K í G-hreppi til að innheimta gjald vegna rekstrar og viðhalds fyrir árin 2006-2009 af G á grundvelli lóðarleigusamnings aðila. Í úrskurði héraðsdóms sagði m.a. að M hefði ekki reifað með fullnægjandi hætti hvaða útgjöld lægju til grundvallar gjaldinu og væru því ekki fyrir hendi forsendur sem gerðu dóminum kleift að leggja mat á hvort umrætt gjald væri raunhæft. Fyrir Hæstarétti lagði M fram yfirlit yfir rekstrargjöld áranna 2006-2009 ásamt ljósritum af reikningum. Þar sem þessi gögn höfðu ekki legið fyrir héraðsdómi komu þau ekki til skoðunar fyrir Hæstarétti. Í dómi Hæstaréttar sagði m.a. að aðila greindi á um hvort krafa M byggðist á raunverulegum rekstrarkostnaði á grundvelli 3. gr. lóðarleigusamnings aðila. Yrði að fallast á að M, sem væri bókhaldsskyldur, ætti að vera í lófa lagið að leggja fram fullnægjandi gögn til stuðnings kröfu sinni á hendur G. Að þessu athuguðu en að öðru leyti með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar var hann staðfestur.

Hæstiréttur birt 12. maí 2011

238/2011

Meistarafélag húsasmiða (Erlendur Þór Gunnarsson hrl) gegn Eiríki Kúld Davíðssyni (Margrét Gunnlaugsdóttir hrl)

M kærði úrskurð héraðsdóms þar sem máli hans á hendur E var vísað frá dómi vegna vanreifunar. Í málinu var deilt um heimild M sem eiganda að landi K í G-hreppi til að innheimta gjald vegna rekstrar og viðhalds fyrir árin 2006-2009 af E á grundvelli lóðarleigusamnings aðila. Í úrskurði héraðsdóms sagði m.a. að M hefði ekki reifað með fullnægjandi hætti hvaða útgjöld lægju til grundvallar gjaldinu og væru því ekki fyrir hendi forsendur sem gerðu dóminum kleift að leggja mat á hvort umrætt gjald væri raunhæft. Fyrir Hæstarétti lagði M fram yfirlit yfir rekstrargjöld áranna 2006-2009 ásamt ljósritum af reikningum. Þar sem þessi gögn höfðu ekki legið fyrir héraðsdómi komu þau ekki til skoðunar fyrir Hæstarétti. Í dómi Hæstaréttar sagði m.a. að aðila greindi á um hvort krafa M byggðist á raunverulegum rekstrarkostnaði á grundvelli 3. gr. lóðarleigusamnings aðila. Yrði að fallast á að M, sem væri bókhaldsskyldur, ætti að vera í lófa lagið að leggja fram fullnægjandi gögn til stuðnings kröfu sinni á hendur E. Að þessu athuguðu en að öðru leyti með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar var hann staðfestur.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 11. maí 2011

E-4899/2010

Landsbanki Íslands hf. í slitameðferð (Herdís Hallmarsdóttir hrl) gegn Halldóri Jóni Kristjánssyni (Friðjón Örn Friðjónsson hrl)

Fallist var á kröfu stefnda um að vísa máli frá dómi, sem stefnandinn, Landsbanki Íslands hf. í slitameðferð, hafði höfðað til riftunar tiltekinnar greiðslu. Talið var að annmarkar hefðu verið á reifun málsástæðu stefnanda er laut að fjárhagsstöðu bankans er greiðslan var innt af hendi, en að með viðleitni stefnanda til að bæta úr óljósum málatilbúnaði sínum að þessu leyti með síðbúinni matsbeiðni hefði málsgrundvellinum verið raskað, auk þess sem það stangaðist á við meginreglu 95. gr. og 5. mgr. 101. gr. laga nr. 91/1991.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 21. janúar 2011

E-2972/2010

Íslandsbanki hf (Andri Árnason hrl) gegn Ólöfu Þórönnu Hannesdóttur (Hróbjartur Jónatansson hrl)

Ósanngjarnt þótti af stefnanda Í hf. að bera lánssamning fyrir sig að því leyti sem hann fól í sér rétt til að leita fullnustu á greiðsluskyldu stefndu í öðru en handsveðsettum stofnfjárbréfum í Byr sparisjóði og arði af þeim. Því var stefnda sýknuð af kröfu stefnanda.

Hæstiréttur birt 12. október 2010

490/2010

Landsbanki Íslands hf (Eggert Páll Ólafsson hdl) gegn Hafliða Þórssyni (Halldór Þorsteinn Birgisson hrl)

L og H gerðu með sér framvirka samninga þar sem L skuldbatt sig til að selja H hlutabréf í nánar tilgreindum félögum á gjalddaga samninganna gegn því að H greiddi samningsfjárhæðirnar inn á reikning L. L höfðaði síðar mál og krafði H um efndir á samningunum. Samningar báru með sér að arður af hlutabréfunum, sem kynni að vera greiddur út á samningstímabilinu, hefði átt að koma í hlut L en leiða til lækkunar á framvirku gengi bréfanna og þar með á fjárhæðinni sem H bar að greiða L. Kröfugerð L í málinu byggðist á samtölu samningsfjárhæða eins og þær voru í öllum samningunum. Í stefnu var í engu vikið að því hvort og þá af hvaða bréfum hefði verið greiddur arður á samningstímabilinu eða eftir gjalddaga samninganna og hvort þær greiðslur hefðu áhrif á kröfugerð L í málinu. Talið var að L hefði borið að taka tillit til arðgreiðslna við framsetningu kröfugerðar sinnar í málinu, sbr. d. lið 1. mgr. 80. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Ef L teldi að samkomulag hafi verið milli aðila um að arði af bréfunum skyldi ráðstafað með öðrum hætti en kveðið væri á um í samningnum hefði þurft að geta þess í stefnu samkvæmt e. lið sömu greinar. Engu breytti í því efni þótt aðilar hefðu ekki lýst gagnaöflun lokið. Í ljósi þessara annmarka á málatilbúnaði L var fallist á kröfu H um að málinu yrði vísað frá dómi.

Hæstiréttur birt 12. október 2010

489/2010

488/2010

Hæstiréttur birt 26. nóvember 2009

145/2009

Curron hf (Jóhannes Bjarni Björnsson hrl) gegn Þorsteini Geirssyni (Anton Björn Markússon hrl)

Í málinu stefndi C hf. fyrrverandi framkvæmdastjóra félagsins Þ og krafði hann um greiðslu skuldar samkvæmt viðskiptamannareikningi. Með heimild í 28. gr. laga um meðferð einkamála nr. 91/1991 hafði Þ uppi gagnkröfu til skuldajafnaðar gegn kröfum C hf. og krafðist aðallega sýknu en til vara lækkunar á kröfum félagsins. Í dómi Hæstaréttar kom fram að af málsgögnum og forsendum héraðsdóms yrði ráðið að C hf. hefði mótmælt öllum gagnkröfum Þ. Lög nr. 91/1991 gerðu ekki ráð fyrir að stefnandi máls gæti skilað sérstakri greinargerð um gagnkröfur stefnda nema þegar gagnstefnt væri og þess krafist að sjálfstæður dómur gengi um gagnkröfurnar. Mótmæli við gagnkröfum, sem einungis væri teflt fram til stuðnings sýknukröfu, gætu eftir atvikum komið fram í bókunum, gagnaöflun sem sýnilega væri beint gegn kröfunum og í munnlegum málflutningi. Samkvæmt d. og e. lið 1. mgr. 114. gr. sömu laga bæri síðan að gera grein fyrir slíkum mótmælum og ástæðum þeirra í dómi. Þar sem ekki var að þessu gætt í héraðsdómi var hinn áfrýjaði dómur ómerktur og lagt fyrir héraðsdómara að taka málið til löglegrar meðferðar og dómsálagningar á ný.

Hæstiréttur birt 1. júní 2006

44/2006

Ákæruvaldið (Kolbrún Sævarsdóttir saksóknari) gegn Guðbirni Árna Konráðssyni (Sveinn Andri Sveinsson hrl, Guðrún Helga Brynleifsdóttir hdl)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

G var ákærður fyrir kynferðisbrot með því að hafa haft samræði við X í samkvæmi á meðan hún gat ekki spornað við verknaðinum sökum ölvunar og svefndrunga. Í héraðsdómi, sem staðfestur var um sakfellingu ákærða, var talið sannað að G hefði notfært sér svefndrunga X til að koma fram vilja sínum og þar með brotið gegn 196. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Var hann dæmdur í 15 mánaða fangelsi og til að greiða X 700.000 krónur í miskabætur.

Hæstiréttur birt 21. mars 2005

372/2004

Ákæruvaldið (Sigríður Jósefsdóttir saksóknari) gegn Jóhanni Jóhannssyni (Karl Georg Sigurbjörnsson hrl) og Sigríði Jóhannsdóttur (Einar Gautur Steingrímsson hrl)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

J og S var gefið að sök skjalafals, fjársvik og fjárdráttur í viðskiptum með bifreiðar á bílasölu í eigu þeirra. J játaði sakargiftir að mestu leyti en S neitaði sök. Voru þau sakfelld fyrir þau brot sem þeim var gefið að sök fyrir utan að S var sýknuð af fjársvikum í einum ákærulið. Var þeim gert að greiða skaðabætur og sæta hvoru um sig fangelsi í 10 mánuði skilorðsbundið.