Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
5 dómar fundust
Lykilorð: Ábyrgðaryfirlýsing
Stefnda keypti íbúð af stefnendum en hélt eftir afsalsgreiðslu þar sem hún taldi að rakavandamál væri til staðar í íbúðinni. Í söluumboði íbúðarinnar hafði komið fram að fyrirhugaðar væru viðgerðir á frárennslislögn á vegum húsfélags fasteignarinnar og fóru þær fram fyrir afhendingu íbúðarinnar. Eftir afhendinguna taldi stefnda að umrædd viðgerð hefði ekki tekist og hélt eftir afsalsgreiðslu. Tæpum níu mánuðum eftir afhendingu íbúðarinnar lét stefnda stefnendur vita með sólarhringsfyrirvara að fagaðilar á hennar vegum myndu skoða íbúðina næsta dag til að kanna orsakir rakans. Eftir þá skoðun fóru fram viðgerðir á frárennslinu á vegum stefndu og verður af gögnum málsins ekki annað ráðið en að stefnendum hafi ekki verið gert fyrirfram viðvart um að þær viðgerðir stæðu til. Stefnendur höfðuðu mál til greiðslu afsalsgreiðslunnar en stefnda krafðist sýknu þar sem íbúðin hafi við afhendingu verið haldin leyndum göllum og að stefnendur hefðu ábyrgst að búið væri að laga frárennslislagnir. Stefnda aflaði ekki dómkvadds mats til staðfestingar á að raki hafi verið í íbúðinni við afhendingu, til staðfestingar á orsök slíks raka, til sönnunar þess að lekið hafi frá frárennslislögn né að fyrri viðgerð á vegum húsfélagsins hafi verið ófullnægjandi. Ekki var því talið sýnt fram á það með óyggjandi hætti gegn mótmælum stefnenda að rakavandamál hafi verið til staðar í íbúðinni við afhendingu, né hver orsök þess hafi verið. Var stefnda dæmd til greiðslu afsalsgreiðslunnar ásamt dráttarvöxtum.
K, umboðsfyrirtæki hljómsveitarinnar S, höfðaði mál á hendur LE ehf., L ehf. LV ehf. og G vegna kröfu um greiðslu skuldar vegna tónlistarflutnings hljómsveitarinnar á tónlistarhátíðinni SS sumarið 2018. K byggði kröfu sína á hendur LE ehf. á því að framkvæmdastjóri félagsins hefði í viðtali við fjölmiðla gefið ábyrgðaryfirlýsingu fyrir hönd félagsins vegna skulda SP ehf. við flytjendur sem fram komu á umræddri tónlistarhátíð. K byggði kröfu sína á hendur L ehf. LV ehf. og G á því að þeir hefðu verið nátengdir SP ehf. og nýtt þá stöðu sína til þess að koma eignum þess félags undan kröfuhöfum og með því valdið K skaðabótaskyldu tjóni, meðal annars á grundvelli reglna um samsömun. Héraðsdómur féllst á kröfu K en með dómi Landsréttar voru L ehf., LV ehf. og G sýknuð að svo stöddu af kröfu K um greiðslu skaðabóta á þeim grundvelli að fyrir lægi dómur þess efnis að F, fyrrverandi fyrirsvarsmaður SP ehf., skyldi greiða K fjárkröfuna sem um ræðir og ekki væri fullreynt hvort krafan fengist greidd úr hendi F. Voru stefndu að öðru leyti sýknaðir af kröfu K. Hæstiréttur taldi að ekki hefði verið sýnt fram á að framkvæmdastjóri LE ehf. hefði haft heimild til þess að gefa yfirlýsingu þess efnis sem K byggði á í málinu. Var LE ehf. því sýknað af kröfu K. Af þeim sökum kom ekki til frekari skoðunar ábyrgð annarra stefndu á ætlaðri skuldbindingu LE ehf. þar sem til hennar hafði aldrei stofnast. Í dómi Hæstaréttar kom fram að Landsréttur hefði ekki tekið afstöðu til þess hvort gögn sem stefndu lögðu fram undir rekstri málsins í Landsrétti kæmust að við mat á hugsanlegri skaðabótaábyrgð L ehf., LV ehf. og G. Þá hafi Landsrétti borið að taka efnislega afstöðu til ætlaðrar skaðabótaskyldu þeirra og ekki staðið lagaskilyrði til þess að sýkna þá að svo stöddu. Vísaði Hæstiréttur til þess að óskipt ábyrgð fleiri en eins skuldara á kröfu kæmi ekki í veg fyrir að aflað yrði aðfararhæfs dóms gagnvart þeim öllum í einu dómsmáli eða fleirum meðan einhver hluti kröfunnar væri enn ógreiddur. Þar sem ætluð skaðabótakrafa K hefði verið orðin gjaldfær fyrir dómtöku málsins í héraði hafi engin efni verið til að sýkna L ehf., LV ehf. og G að svo stöddu með vísan til 2. mgr. 26. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Var dómur Landsréttar því ómerktur og málinu vísað til Landsréttar til löglegrar meðferðar og dómsálagningar á ný um kröfu K á hendur L ehf., LV ehf. og G á grundvelli ætlaðrar skaðabótaskyldu.
K, umboðsfyrirtæki hljómsveitarinnar S, höfðaði mál vegna kröfu um greiðslu skuldar vegna tónlistarflutnings hljómsveitarinnar á tónlistarhátíðinni SS sumarið 2018. K hafði áður höfðað mál til heimtu kröfunnar á hendur SP ehf., félaginu sem hélt tónlistarhátíðina, og fyrirsvarsmanni þess félags, FÓ. Félagið var síðar úrskurðað gjaldþrota og lauk skiptum á búinu án þess að krafan fengist greidd. Máli K gegn FÓ lyktaði á hinn bóginn með því að FÓ var gert að greiða K fjárkröfuna sem um ræðir á grundvelli ábyrgðaryfirlýsingar. K taldi LE ehf. greiðsluskylt gagnvart sér á grundvelli ábyrgðaryfirlýsingar framkvæmdastjóra félagsins í fjölmiðlum. Krafa K gagnvart L ehf., LV ehf. og G byggði á því að verðmætum hafi með saknæmum og ólögmætum hætti verið ráðstafað frá SP ehf. áður en það félag var tekið til gjaldþrotaskipta. Hafi þær ráðstafanir verið til hagsbóta fyrir framangreinda aðila svo að það varðaði þá skaðabótaábyrgð en vegna náinna eigna- og stjórnunartengsla félaganna yrði að samsama þá með SP ehf. á grundvelli reglna félagaréttar þar um. Til vara byggði K á því að L ehf., LV ehf. og G væru bundnir af framangreindri ábyrgðaryfirlýsingu framkvæmdastjóra LE ehf. Í dómi Landsréttar er vísað til þess að við mat á því hvort framkvæmdastjórinn hafi gefið skuldbindandi loforð um að LE ehf. myndi greiða kröfu K um greiðslu skuldar SP ehf. yrði m.a. litið til þess að um var að ræða ummæli sem höfð voru eftir honum í fjölmiðlum, í þeim fólst almenn yfirlýsing og báru þau ekki með sér ótvíræðan vilja til loforðsgjafar, auk þess sem þau voru í andstöðu við fyrri ummæli G stjórnarmanns félagsins. Var því ekki fallist á að framkvæmdastjóri LE ehf. hefði gefið skuldbindandi ábyrgðaryfirlýsingu um að félagið myndi greiða fjárkröfu K og var því LE ehf. sýknaður af kröfum K í málinu. Að því er varðaði kröfu K um greiðslu skaðabóta úr hendi L ehf., LV ehf. og G rakti Landsréttur að fyrir liggi endanlegur dómur þar sem FÓ var gert að greiða K fjárkröfuna sem um ræðir. K hafi fengið löggeymslu í íbúð í eigu FÓ til tryggingar kröfunni og krafist nauðungarsölu íbúðarinnar til fullnustu hennar. Væri því ekki fullreynt hvort fjárkrafa K fengist greidd úr hendi FÓ og því ókominn sá tími sem L ehf., LV ehf. og G yrðu krafðir um efndir hennar. Voru þeir því sýknaðir af kröfum K að svo stöddu.
Fallist var á kröfu stefnenda um að stefndu bæru ábyrgð á viðgerð á fasteign á grundvelli ábyrgðaryfirlýsingar þar að lútandi.
Hafnað var kröfu stefnanda um greiðslu skaðabóta úr hendi stefnda í tengslum við kaup stefnanda á öllum hlutabréfum í Lagnalagernum ehf. Var talið ósannað að stefndi hefði með saknæmum og ólögmætum hætti valdið stefnanda rangar upplýsingar um Lagnalagerinn ehf.