Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Landsréttur

Mál nr. 191/2021:

Live events ehf.,

L Events ehf.,

Lifandi Viðburðir ehf. og

Guðmundur Hreiðarsson Viborg

(Gestur Gunnarsson lögmaður)

gegn

K2 Agency Limited

(Jón Gunnar Ásbjörnsson lögmaður)

Ábyrgðaryfirlýsing. Loforð. Skaðabætur. Sýkna. Sýkna að svo stöddu.

K, umboðsfyrirtæki hljómsveitarinnar S, höfðaði mál vegna kröfu um greiðslu skuldar vegna tónlistarflutnings hljómsveitarinnar á tónlistarhátíðinni SS sumarið 2018. K hafði áður höfðað mál til heimtu kröfunnar á hendur SP ehf., félaginu sem hélt tónlistarhátíðina, og fyrirsvarsmanni þess félags, FÓ. Félagið var síðar úrskurðað gjaldþrota og lauk skiptum á búinu án þess að krafan fengist greidd. Máli K gegn FÓ lyktaði á hinn bóginn með því að FÓ var gert að greiða K fjárkröfuna sem um ræðir á grundvelli ábyrgðaryfirlýsingar. K taldi LE ehf. greiðsluskylt gagnvart sér á grundvelli ábyrgðaryfirlýsingar framkvæmdastjóra félagsins í fjölmiðlum. Krafa K gagnvart L ehf., LV ehf. og G byggði á því að verðmætum hafi með saknæmum og ólögmætum hætti verið ráðstafað frá SP ehf. áður en það félag var tekið til gjaldþrotaskipta. Hafi þær ráðstafanir verið til hagsbóta fyrir framangreinda aðila svo að það varðaði þá skaðabótaábyrgð en vegna náinna eigna- og stjórnunartengsla félaganna yrði að samsama þá með SP ehf. á grundvelli reglna félagaréttar þar um. Til vara byggði K á því að L ehf., LV ehf. og G væru bundnir af framangreindri ábyrgðaryfirlýsingu framkvæmdastjóra LE ehf. Í dómi Landsréttar er vísað til þess að við mat á því hvort framkvæmdastjórinn hafi gefið skuldbindandi loforð um að LE ehf. myndi greiða kröfu K um greiðslu skuldar SP ehf. yrði m.a. litið til þess að um var að ræða ummæli sem höfð voru eftir honum í fjölmiðlum, í þeim fólst almenn yfirlýsing og báru þau ekki með sér ótvíræðan vilja til loforðsgjafar, auk þess sem þau voru í andstöðu við fyrri ummæli G stjórnarmanns félagsins. Var því ekki fallist á að framkvæmdastjóri LE ehf. hefði gefið skuldbindandi ábyrgðaryfirlýsingu um að félagið myndi greiða fjárkröfu K og var því LE ehf. sýknaður af kröfum K í málinu. Að því er varðaði kröfu K um greiðslu skaðabóta úr hendi L ehf., LV ehf. og G rakti Landsréttur að fyrir liggi endanlegur dómur þar sem FÓ var gert að greiða K fjárkröfuna sem um ræðir. K hafi fengið löggeymslu í íbúð í eigu FÓ til tryggingar kröfunni og krafist nauðungarsölu íbúðarinnar til fullnustu hennar. Væri því ekki fullreynt hvort fjárkrafa K fengist greidd úr hendi FÓ og því ókominn sá tími sem L ehf., LV ehf. og G yrðu krafðir um efndir hennar. Voru þeir því sýknaðir af kröfum K að svo stöddu.

Dómur Landsréttar

Mál þetta dæma landsréttardómararnir Jón Höskuldsson, Ragnheiður Harðardóttir og Þorgeir Ingi Njálsson.

Málsmeðferð og dómkröfur aðila

  1. Áfrýjendur skutu málinu til Landsréttar 23. mars 2021. Áfrýjað er dómi Héraðsdóms Reykjavíkur 23. febrúar 2021 í málinu nr. E-1133/2019.
  2. Áfrýjendur krefjast þess aðallega að málinu verði vísað frá héraðsdómi en til vara að þeir verði sýknaðir af kröfum stefnda. Þá krefjast áfrýjendur málskostnaðar í héraði og fyrir Landsrétti.
  3. Stefndi krefst þess að frávísunarkröfu áfrýjenda verði hafnað og að hinn áfrýjaði dómur verði staðfestur. Þá krefst hann málskostnaðar fyrir Landsrétti.
  4. Fyrir Landsrétt voru lögð nokkur ný gögn sem meðal annars vörðuðu skipti þrotabús Solstice Productions ehf., auk upplýsinga um fullnustuaðgerðir stefnda í málinu.

Niðurstaða

  1. Mál þetta varðar kröfu stefnda, K2 Agency Limited, umboðsfyrirtækis bandarísku hljómsveitarinnar Slayer, um greiðslu skuldar vegna tónlistarflutnings hljómsveitarinnar á tónlistarhátíðinni Secret Solstice sumarið 2018. Málsatvik eru ítarlega rakin í hinum áfrýjaða dómi en eins og þar kemur fram hafði stefndi áður höfðað mál til heimtu kröfunnar á hendur Solstice Productions ehf., sem hélt hátíðina, og fyrirsvarsmanni þess félags, Friðriki Ólafssyni. Útivist varð af hálfu beggja aðila og var stefna árituð um aðfararhæfi 11. júní 2019. Málið var endurupptekið að beiðni Friðriks að því er hann varðaði en Solstice Productions ehf. óskaði ekki eftir endurupptöku. Félagið var síðar úrskurðað gjaldþrota og mun skiptum á þrotabúinu hafa lokið án þess að krafan fengist greidd. Með dómi héraðsdóms 29. apríl 2020 var krafa stefnda á hendur Friðriki tekin til greina og með dómi Landsréttar 12. nóvember 2021 í máli nr. 396/2020 var honum gert að greiða stefnda fjárkröfuna sem um ræðir á grundvelli ábyrgðaryfirlýsingar.
  2. Krafa stefnda á hendur áfrýjandanum Live events ehf. í málinu er á því reist að framkvæmdastjóri þess félags hafi með ábyrgðaryfirlýsingu skuldbundið það til að greiða framangreinda skuld. Gagnvart áfrýjendunum L Events ehf., Lifandi Viðburðum ehf. og Guðmundi Hreiðarssyni Viborg er á því byggt að verðmætum hafi með saknæmum og ólögmætum hætti verið ráðstafað frá Solstice Productions ehf. áður en það félag var tekið til gjaldþrotaskipta. Hafi þær ráðstafanir verið til hagsbóta fyrir þessa áfrýjendur svo að varði þá skaðabótaábyrgð en vegna náinna eigna- og stjórnunartengsla félaganna verði að samsama þá með Solstice Productions ehf. á grundvelli reglna félagaréttar þar um. Til vara er á því byggt að þessir áfrýjendur beri greiðsluskyldu á grundvelli framangreinds ábyrgðarloforðs framkvæmdastjóra Live events ehf. sem einnig beri að samsama þá við.
  3. Í greinargerðum sínum í héraði kröfðust áfrýjendur aðallega frávísunar málsins en þeim kröfum var hafnað með úrskurðum héraðsdóms 21. maí 2019 og 16. apríl 2020. Í áfrýjunarstefnu var þess ekki getið sérstaklega að þessum úrskurðum væri skotið til Landsréttar samhliða hinum áfrýjaða dómi en hins vegar var þar á ný gerð aðalkrafan, svo sem að framan greinir, um frávísun málsins frá héraðsdómi. Til þess að geta fyrir Landsrétti krafist endurskoðunar á úrskurði héraðsdóms um synjun á frávísun máls verður málskot að beinast sérstaklega að slíkum úrskurði. Sú er ekki raunin hér og kemur aðalkrafa áfrýjenda því ekki til skoðunar hér fyrir dómi að öðru leyti en því að sem endranær gætir rétturinn að því hvort á máli séu annmarkar sem eigi að valda frávísun þess frá héraðsdómi án kröfu, sbr. til hliðsjónar dóm Hæstaréttar 27. september 2007 í máli nr. 93/2007.
  4. Eins og gerð hefur verið grein fyrir eru kröfur stefnda á hendur áfrýjendum reistar á ólíkum grunni. Þannig telur stefndi Live events ehf. bera greiðsluskyldu gagnvart sér á grundvelli ábyrgðaryfirlýsingar framkvæmdastjóra félagsins. Gagnvart öðrum áfrýjendum verður að líta svo á að aðallega sé á því byggt að þeir beri skaðabótaábyrgð á því tjóni sem stefndi telur sig hafa orðið fyrir en til vara að þeir séu bundnir af framangreindri ábyrgðaryfirlýsingu. Fyrir liggur að krafan sem um ræðir hefur ekki enn fengist greidd og verður því talið að stefndi hafi lögvarða hagsmuni af úrlausn málsins, enda eru málsgrundvöllur og málatilbúnaður stefnda nægilega skýr til að dómur verði á það lagður.
  5. Af hálfu áfrýjenda er borið við aðildarskorti í málinu. Er vísað til þess að málið varði samningssamband stefnda og Soltice Productions ehf. sem áfrýjendur hafi ekki átt hlut að. Eins og rakið hefur verið byggir stefndi á hinn bóginn ekki á því að hann hafi átt í samningssambandi við áfrýjendur. Er vörn þeirra að þessu leyti því hafnað.
  6. Stefndi telur framkvæmdastjóra áfrýjandans Live events ehf., Víking Heiðar Arnórsson, hafa gefið skuldbindandi ábyrgðaryfirlýsingu þess efnis að félagið myndi greiða fjárkröfuna sem um ræðir. Vísar stefndi til ummæla sem höfð voru eftir framkvæmdastjóranum í fréttum sem birtust 6. febrúar 2019 á visir.is og mbl.is um að gert yrði upp við alla listamenn sem ekki hefðu fengið greitt fyrir að koma fram á síðustu Secret Solstice tónlistarhátíð. Í fréttinni á visir.is kemur einnig fram að framkvæmdastjórinn „segist ætla að borga öllum listamönnum sem Solstice Production náði ekki að gera upp við frá síðustu hátíð“. Live events ehf., sem upphaflega bar heitið Show Life ehf., var stofnað 20. ágúst 2018 en Víkingur Heiðar Arnórsson tók við sem framkvæmdastjóri félagsins síðar á því ári. Af gögnum málsins verður ráðið að hann hafi í umrætt sinn svarað fyrirspurnum fjölmiðla vegna umfjöllunar um að listamenn sem komu fram á tónlistarhátíðinni sumarið 2018 hefðu ekki fengið greitt fyrir tónlistarflutning sinn.
  7. Við mat á því hvort framkvæmdastjórinn hafi með því sem að framan er lýst gefið skuldbindandi loforð um að Live events ehf. myndi greiða kröfu stefnda um greiðslu skuldar Solstice Productions ehf. er fyrst til þess að líta að um er að ræða ummæli sem höfð voru eftir honum í fjölmiðlum og verður engu slegið föstu um nákvæmt orðalag sem hann viðhafði í viðtalinu. Var í þessu sambandi til þess vísað í greinargerð félagsins í héraði að um væri að ræða ummæli sem sögð væru höfð eftir framkvæmdastjóra þess. Þá fólst í ummælunum almenn yfirlýsing sem beindist ekki beinlínis að stefnda eða hljómsveitinni Slayer sem viðtakanda. Það sem haft var eftir framkvæmdastjóranum í viðtalinu bar ekki heldur með sér ótvíræðan vilja til loforðsgjafar, enda kom þar einnig fram að hann segðist „stefna að því að gera upp við listamennina fyrir næstu Secret Solstice hátíð. Hann hafi þó ekki viljað lofa upp í ermina á sér með því að gefa upp óraunhæfa tímasetningu.“ Ummælin voru einnig í andstöðu við fyrri ummæli stjórnarmanns félagsins, áfrýjandans Guðmundar Hreiðarssonar Viborg, frá í nóvember 2018, sem vitnað var til í fréttinni á visir.is, um að „uppgjör hátíðarinnar í fyrra heyrði ekki undir [hann]. Það væri í höndum þeirra sem ráku þá hátíð að gera hana upp, [félagið] Solstice Productions.“ Loks verður ekki ráðið af gögnum málsins að Reykjavíkurborg hafi gert að skilyrði fyrir leyfisveitingu til tónleikahalds sumarið 2019 að Live events ehf. eða aðrir áfrýjendur greiddu allar útistandandi kröfur vegna tónleika Solstice Productions ehf. sumarið 2018. Verður því ekki séð að framkvæmdastjóranum hafi borið nauðsyn til að gefa slíka yfirlýsingu.
  8. Samkvæmt öllu framangreindu verður ekki fallist á það með stefnda að framkvæmdastjóri Live events ehf. hafi með ummælum sem höfð voru eftir honum í fjölmiðlum gefið skuldbindandi ábyrgðaryfirlýsingu um að félagið myndi greiða fjárkröfu stefnda. Verður áfrýjandinn Live events ehf. því sýknaður af kröfum stefnda í málinu. Af framangreindu leiðir jafnframt að kröfur stefnda á hendur öðrum áfrýjendum á þessum grunni koma ekki til álita.
  9. Að því er varðar kröfu stefnda um greiðslu skaðabóta úr hendi áfrýjendanna L Events ehf., Lifandi Viðburða ehf. og Guðmundar Hreiðarssonar Viborg er til þess að líta að fyrir liggur endanlegur dómur þar sem Friðriki Ólafssyni var gert að greiða stefnda fjárkröfuna sem um ræðir á grundvelli ábyrgðaryfirlýsingar, svo sem að framan er rakið. Samkvæmt gögnum sem lögð hafa verið fyrir Landsrétt hefur stefndi fengið löggeymslu í íbúð í eigu Friðriks til tryggingar kröfunni og krafist nauðungarsölu íbúðarinnar til fullnustu hennar. Af fyrirliggjandi gögnum verður ekki ráðið með vissu að hvaða marki stefndi myndi fá fullnustu kröfu sinnar af andvirði nauðungarsölunnar en ekki er hægt að útiloka að hún fengist greidd að verulegu eða öllu leyti. Eru atvik að þessu leyti ólík því sem var í dómi Hæstaréttar 14. júní 2010 í máli nr. 266/2010. Samkvæmt framangreindu er ekki fullreynt hvort fjárkrafa stefnda fæst greidd úr hendi Friðriks Ólafssonar og því ókominn sá tími sem áfrýjendurnir L Events ehf., Lifandi Viðburðir ehf. og Guðmundur Hreiðarsson Viborg verða krafðir um efndir hennar. Ber því að sýkna þessa áfrýjendur af kröfum stefnda að svo stöddu, sbr. 2. mgr. 26. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála.
  10. Stefnda verður gert að greiða áfrýjendum málskostnað í héraði og fyrir Landsrétti, sem ákveðinn verður í einu lagi eins og í dómsorði greinir.

Dómsorð:

Áfrýjendur, L Events ehf., Lifandi Viðburðir ehf. og Guðmundur Hreiðarsson Viborg, eru að svo stöddu sýknaðir af kröfu stefnda, K2 Agency Limited, um greiðslu skaðabóta.

Að öðru leyti eru áfrýjendur, Live events ehf., L Events ehf., Lifandi Viðburðir ehf. og Guðmundur Hreiðarsson Viborg, sýknaðir af kröfum stefnda.

Stefndi greiði áfrýjendum hverjum um sig 700.000 krónur í málskostnað í héraði og fyrir Landsrétti.

Dómur Héraðsdóms Reykjavíkur, þriðjudaginn 23. febrúar 2021

Þetta mál, sem var tekið til dóms 26. janúar 2021, höfðar K2 Agency Limited, 209 Harbour Yard, Chelsea Harbour, Lundúnum, Bretlandi, með stefnu birtri 14. mars 2019 á hendur Live events ehf., kt. […], […], Kópavogi, og með sakaukastefnu birtri 12. desember 2019 á hendur L Events ehf., kt. […], Lifandi viðburðum ehf., kt. […], báðum með skráð lögheimili að Hofslundi 19, Garðabæ, og Guðmundi Hreiðarssyni Viborg, kt. […], til heimilis að Calle Isaac Peral 52, 35100 Sonneland Maspalomas, Kanaríeyjum, Spáni, en með dvalarstað að Hofslundi 19, Garðabæ.

Stefnandi krefst þess að allir stefndu verði dæmdir til þess að greiða honum óskipt 133.273,45 bandaríkjadali með dráttarvöxtum, samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu, frá 4. júlí 2018 til greiðsludags. Hann krefst jafnframt málskostnaðar úr hendi stefndu.

Stefndi, Live events ehf., krefst sýknu af kröfum stefnanda svo og málskostnaðar að skaðlausu úr hendi hans.

Sakaukastefndu, L Events ehf., Lifandi viðburðir ehf. og Guðmundur Hreiðarsson Viborg, krefjast aðallega hver um sig sýknu af öllum kröfum stefnanda. Til vara krefst hver þeirra um sig sýknu að svo stöddu af kröfum stefnanda.

Í báðum tilfellum krefjast sakaukastefndu hver um sig málskostnaðar að skaðlausu úr hendi stefnanda.

Málsatvik

Stefnandi höfðar þetta mál til þess að fá greitt fé sem hann telur félagið Solstice Productions ehf. skulda sér.

Í þessu máli reynir annars vegar á það hvort framkvæmdastjóri félagsins Live events ehf. hafi, með yfirlýsingu sem er höfð eftir honum í frétt í fjölmiðlum, gefið loforð þess efnis að krafa stefnanda á hendur Solstice Productions ehf. yrði greidd, þannig að væri skuldbindandi fyrir Live events og felldi greiðsluskyldu á það félag. Hins vegar reynir á það hvort aðrir stefndu, Lifandi viðburðir ehf., L Events ehf. og Guðmundur Hreiðarsson Viborg, teljist bera skaðabótaábyrgð á greiðslu skuldar Solstice Productions við stefnanda á grundvelli reglna félagaréttar um bótaábyrgð og samsömun.

Málsatvik eru þau að félagið Solstice Productions ehf., stofnað 1999, hefur skipulagt tónlistarhátíð í Laugardal í Reykjavík nokkur síðastliðin ár, fyrst árið 2014. Árið 2013 fékk félagið einkaleyfi á heitinu Secret Solstice. Í fyrirsvari fyrir félagið voru systkinin Friðrik og Katrín Ólafsson og sátu þau bæði í stjórn en Friðrik var jafnframt framkvæmdastjóri. Samstarfsmaður þeirra var Jón Bjarni Steinsson, eiginmaður Katrínar. Í fyrstu samdi félagið við stjórnendur Laugardalshallar og Knattspyrnufélagið Þrótt um afnot af svæði þeirra fyrir tónlistarhátíðina. Eftir tónleikana árið 2015 óskaði Reykjavíkurborg eftir því að hafa milligöngu við undirbúning næstu tónlistarhátíða og gaf borgarráð leyfi fyrir því að halda hátíðina í Laugardal næstu fimm ár, þ.e. 2016–2020. Með því að staður og stund voru tryggð var hægt að markaðssetja hátíðina með meiri fyrirvara.

Félagið Solstice Productions ehf. samdi við bandarísku hljómsveitina Slayer um að hún kæmi fram á tónlistarhátíðinni sumarið 2018, og hélt hún þá tónleika 23. júní. Þóknun hljómsveitarinnar og kostnað vegna komu hennar hingað skyldi félagið hafa greitt að fullu 4. júlí. Að sögn stefnanda fékk hljómsveitin kröfu sína ekki greidda að fullu heldur voru 133.273 bandaríkjadalir ógreiddir frá og með 10. ágúst 2018.

Í skriflegri aðilaskýrslu Jóns Bjarna kom fram að sumarið 2018 hefði verið Solstice Productions erfitt fjárhagslega, hvorki tónlistarhátíðin Secret Solstice né tónleikar Guns N‘ Roses hefðu borið sig. Ónefndur aðili hefði lánað félaginu 130.000.000 kr. og hefði til tryggingar greiðslu lánsins tekið veð í öllum eignum félagsins. Af þessum sökum hefði mikið þurft til að koma til þess að unnt hefði verið að halda tónlistarhátíðina Secret Solstice sumarið 2019. Í skömmu sumarfríi í útlöndum hjá stjúpföður hans, Guðmundi Hreiðarssyni Viborg, hafi staða þessara mála borist í tal og hafi stjúpfaðir hans átt frumkvæði að því að reyna að ná samningum við kröfuhafann sem hefði innkallað veðin, þar á meðal vörumerkið Secret Solstice.

Fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra var tilkynnt 20. ágúst 2018 að félagið Show ehf. hefði verið stofnað. Guðmundur Hreiðarsson Viborg væri stjórnarmaður en Jón Bjarni Steinsson varamaður í stjórn. Framkvæmdastjóri væri Katrín Ólafsson og hefði hún heimild til að skuldbinda félagið (hefði prókúru) ásamt Jóni Bjarna Steinssyni. Í lok ágúst gerði sýslumaður árangurslaust fjárnám hjá Solstice Productions.

Fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra var tilkynnt 12. september 2018 að félagið Show ehf. hefði stofnað félagið Show Live ehf. og að í stjórn nýstofnaða félagsins sætu Katrín Ólafsson, formaður, og Jón Bjarni Steinsson, meðstjórnandi. Nafni þessa félags var síðar breytt í Live events ehf. Stefnandi, umboðsmaður hljómsveitarinnar Slayer, hafði margítrekað samband við Friðrik Ólafsson vegna þeirrar fjárhæðar sem var ógreidd af skuld Solstice Productions vegna þátttöku Slayer í hátíðinni. Með tölvupósti 13. september 2018 kvaðst Friðrik ætla að greiða stefnanda persónulega þá fjárhæð sem ógreidd væri þegar hann hefði selt tvær íbúðir sem hann hefði sett í sölumeðferð.

Stefnandi greiddi Slayer 10. og 11. október 2018 fjárhæðina sem Solstice Productions skuldaði hljómsveitinni og fékk þar með framselda kröfu sveitarinnar á hendur Solstice Productions.

Í byrjun nóvember 2018 lagði Solstice Productions drög að því að framselja Show ehf. einkaleyfi á vörumerkinu Secret Solstice.

Þegar tónlistarhátíðinni 2018 var lokið undirbjuggu Friðrik og Katrín, í samvinnu við Reykjavíkurborg, næstu Secret Solstice-tónlistarhátíð sem skyldi halda sumarið 2019. Samkvæmt framlögðum gögnum var í samningsdrögum í nóvember 2018 gert ráð fyrir því að Solstice Productions ehf. héldi hátíðina sumarið 2019.

Eftir leiðréttingu frá Katrínu var tilgreint að tónleikahaldarinn væri Show ehf. Í svari hennar við fyrirspurn starfsmanns borgarinnar 7. nóvember 2018 sagði að félagið „Show ehf kt. […] [væri] rekstraraðili Secret Solstice-hátíðarinnar“. Skömmu eftir þetta var nafni Show ehf. breytt í Lifandi viðburðir ehf. Viku síðar, 14. nóvember 2018, skrifaði Friðrik Ólafsson starfsmanni borgarinnar og lét þess meðal annars getið að skráning á hátíðina 2019 væri fram úr væntingum. Starfsmaður borgarinnar ritaði Katrínu enn viku síðar, 21. nóvember 2018, og spurði af hverju komið væri nýtt nafn og ný kennitala á Secret Solstice-tónleika svo og hvort ætti eftir að gera upp við marga aðila vegna Secret Solstice-tónleikanna sumarið 2018. Hún svaraði því til að nýr aðili hefði tekið við rekstrinum svo og að samið hefði verið við flesta kröfuhafa og það væri partur af „yfirtöku nýrra aðila að gera upp skuldir Solstice Productions“ en það væri „forsenda þess að hefja greiðslur að fá leyfi fyrir hátíðinni næsta sumar [2019]“.

Starfsmaður Reykjavíkurborgar og Katrín undirbjuggu 23. nóvember 2018 tilkynningu til fjölmiðla þess efnis að nýr rekstraraðili tæki við hátíðinni. Í drögum að henni stóð að fyrirtækið Live events hefði tekið við vörumerkinu Secret Solstice og réttinum að hátíðinni. Á sama tíma var Katrín í samskiptum við starfsmann borgarinnar um „uppgjör vegna eftirstöðva á samningnum við borgina vegna 2018“.

Í frétt sem birtist á fréttavef ruv.is 27. nóvember 2018 kom fram að fjöldi fólks og fyrirtækja ætti inni laun eftir vinnu við Secret Solstice-hátíðina og tónleika Guns N‘ Roses sem fóru fram í ágúst 2018. Jafnframt sagði að sýslumaður hefði tvisvar gert árangurslaust fjárnám hjá Solstice Productions.

Ýmsir tjáðu sig um fréttina á samskiptamiðlum. Vitnið Jón Bjarni svaraði einum þeirra 27. nóvember 2018 með þessum orðum: „Það er fólk búið að tapa öllu sínu á þessu ævintýri. Eina ástæða þess að við erum að reyna að halda þessu lifandi er til að hægt sé að gera upp þessar skuldir við fólk sem á það ekki skilið að fá ekki greitt. Þessi nýi eigandi er stjúppabbi minn sem kom þarna inn og tók ábyrgð á skuldum svo hægt sé að halda áfram. Hver einasta króna sem kemur inn verður nýtt í að gera upp skuldir félagsins.“

Með tölvupósti 4. desember 2018 spurði starfsmaður borgarinnar hvort nafn og kennitala í samningsdrögunum væri rétt og hver munurinn væri á „Events ehf og Live events ehf?“. Katrín svaraði því samdægurs til að Live events ehf. sæi um að halda hátíðina og væri í eigu „Lifandi viðburðir ehf. (events ehf)“ og væru bæði í eigu sakaukastefnda Guðmundar.

Eins og áður greinir var Katrín í stjórn frumstefnda Live events ehf. og framkvæmdastjóri sakaukastefnda Lifandi viðburða ehf. en hvarf úr stjórn fyrrnefnda félagsins 14. nóvember 2018. Samkvæmt gögnum málsins hættu Katrín og Friðrik Ólafsson nánast alveg beinum samskiptum við starfsmann Reykjavíkurborgar í nóvember og desember 2019.

Nafn nýs framkvæmdastjóra Live events, Víkings Heiðars Arnórssonar, kemur fyrst fyrir í gögnum málsins frá 5. desember 2018. Daginn eftir ritaði hann starfsmanni Reykjavíkurborgar tölvuskeyti þar sem meðal annars kom fram að Live events myndi ekki greiða þeim sem Solstice Productions skuldaði vegna Guns N‘ Roses-tónleikanna. Einu reikningarnir sem Live events muni greiða séu þeir sem þurfi að greiða til þess að fá að halda aðra hátíð.

Framkvæmdastjórinn sagði í tölvupósti til starfsmanns borgarinnar að sakaukastefndi Lifandi viðburðir ehf. væri „móðurfyrirtæki“ sem héldi utan um og ætti „100% í öllum þeim félögum sem tengjast framkvæmd Secret Solstice hátíðarinnar“. Lifandi viðburðir ehf. mundi halda fleiri viðburði en Secret Solstice. Hver viðburður yrði rekinn í sér félagi með sameiginlega yfirstjórn þar sem hann væri framkvæmdastjóri Í frétt sem birtist á fréttavefnum Stundinni 11. desember 2018 kom fram að nýr aðili, Live events, hefði tekið við rekstri Secret Solstice-tónlistarhátíðarinnar. Í fréttinni sagði að aðstandendur „nýju kennitölunnar eru mikið til þeir sömu og hjá þeirri fyrri, fjölskyldumeðlimir Jóns Ólafssonar vatnsútflytjanda“. Í frétt Stundarinnar kom einnig fram að samkvæmt drögum að samningi Reykjavíkurborgar við nýjan rekstraraðila væri nýr rekstraraðili hátíðarinnar sagður vera Lifandi viðburðir ehf., sem bæri aðra kennitölu en Live events.

Stefnandi krafði Solstice Productions ehf., svo og Lifandi viðburði ehf. og Live events ehf. um greiðslu skuldar Solstice Productions við stefnanda með bréfi 18. desember 2018 og Friðrik Ólafsson hins sama með bréfi 21. desember 2018.

Með tilkynningu til fyrirtækjaskrár 18. desember 2018 sagði Katrín Ólafsson sig úr stjórn Lifandi viðburða ehf. Samkvæmt gögnum málsins átti Guðmundur Hreiðarsson Viborg 100% hlutafjár bæði í Live events ehf. og Lifandi viðburðum ehf. í lok árs 2018.

Á fréttavefnum visir.is 6. febrúar 2019 var haft eftir framkvæmdastjóra frumstefnda Live events að gert yrði upp við alla listamenn sem hefðu ekki fengið greitt fyrir að koma fram á síðustu Secret Solsticetónlistarhátíð, þ.e. sumarið 2018. Einnig kom fram í fréttinni að framkvæmdastjóri stefnda „segist ætla að borga öllum listamönnum sem Solstice Production náði ekki að gera upp við frá síðustu hátíð“.

Í frétt á mbl.is sama dag stóð að framkvæmdastjórinn fullyrti að gert yrði upp við alla listamenn sem hefðu ekki fengið greitt fyrir að koma fram á síðustu hátíð.

Með bréfi 18. febrúar 2019 krafði stefnandi stefnda Live events um greiðslu á kröfu stefnanda á grundvelli yfirlýsingar framkvæmdastjóra stefnda frá 6. febrúar. Stefnandi leit svo á að stefndi hefði með framangreindum yfirlýsingum framkvæmdastjóra síns gengist í ábyrgð fyrir skuld Solstice Productions ehf. við stefnanda.

Í febrúar 2019 bárust Einkaleyfastofu fullnægjandi gögn til þess að skrá mætti Lifandi viðburði ehf. eiganda heitisins Secret Solstice og var það gert 11. mars 2019. Undirbúningur framsalsins hafði hafist í byrjun nóvember 2018, eins og áður greinir.

Stefnandi höfðaði mál á hendur Live events (frumstefnda) með stefnu birtri 14. mars 2019. Héraðsdómur hafnaði kröfu stefnda um frávísun með úrskurði 21. maí 2019.

Tæpri viku eftir að stefnandi höfðaði málið á hendur Live events, 20. mars 2019, stofnaði sakaukastefndi Guðmundur félagið L Events. Hann á félagið einn og er eini stjórnarmaðurinn en varamaður í stjórn er stjúpsonur hans, Jón Bjarni Steinsson.

Eins og áður greinir bentu fréttaflutningur og yfirlýsingar aðstandenda tónlistarhátíðarinnar í upphafi árs 2019 til þess að frumstefndi Live events ehf. væri tekinn við rekstri hátíðarinnar. Hins vegar voru á fundi borgarráðs 16. maí 2019 lögð fram og samþykkt drög að samningi Reykjavíkurborgar við sakaukastefnda Lifandi viðburði ehf. vegna Secret Solstice-tónlistarhátíðarinnar. Lögmaður stefnanda vakti athygli starfsmanns borgarinnar á því að Lifandi viðburðir ehf. væri ekki það félag sem stefnandi hefði upplýsingar um að væri að fara að halda hátíðina í júní 2019, heldur væri það frumstefndi Live events ehf. Samningur sakaukastefnda Lifandi viðburða ehf. og Reykjavíkurborgar var undirritaður 31. maí 2019.

Secret Solstice-tónlistarhátíðin 2019 var haldin 21.–23. júní. Einungis mánuði áður, 21. maí, var félagið L Events skráð hjá fyrirtækjaskrá. Þann dag sendi lögmaður stefnanda starfsmanni Reykjavíkurborgar fyrirspurn um hið nýja félag og óskaði eftir afriti af öllum samskiptum Reykjavíkurborgar við þá aðila sem kæmu að rekstri Secret Solstice-tónlistarhátíðarinnar 2019. Gögnin bárust honum ekki fyrr en sex mánuðum síðar, 18. nóvember 2019.

Í samskiptum við starfsmann borgarinnar í apríl 2019 nefndi framkvæmdastjóri frumstefnda Live events ehf. að allur rekstur Secret Solstice væri rekinn frá kennitölu frumstefnda. Hann talaði einnig um „[n]ýja félagið sem verið er að stofna og mun einnig vera fyrir rekstur Secret Solstice“.

Hinn 6. apríl 2019 birtust fréttir um ógreidda kröfu Slayer vegna framkomu á Secret Solsticehátíðinni 2018. Í frétt vefmiðilsins visir.is 8. apríl var haft eftir sakaukastefnda Guðmundi að „fyrirtækið sem haldið hafi hátíðina í fyrrasumar hafi gert upp við Slayer strax í fyrra“. Greiðslukvittanir væru því til sönnunar. Í frétt sama vefmiðils, auk frétta fleiri vefmiðla, 9. apríl 2019 var haft eftir framkvæmdastjóra frumstefnda að umboðsmaður hljómsveitarinnar, stefnandi, hefði borið fram reikninga sem „fyrri rekstraraðilar hafi hafnað“. Secret Solstice hafi átt í góðum samskiptum við Slayer og hafi gert upp „framkomulaun (artist fee) hljómsveitarinnar“.

Í apríl 2019 var starfsmaður Reykjavíkurborgar enn að reyna að finna út hver væri „raunverulegur samningsaðili og kt vegna 2019?“ vegna þess að í samningsdrögunum stæði „Events eht [sic] kt 550818- 1240“ sem væri Lifandi viðburðir ehf. Hann gat þess að Live events ehf. væri með kennitöluna 460918- 0650. Félagið Live events sótti 15. maí 2019 um leyfi til þess að halda tónlistarhátíðina í Laugardal. Í samningi sakaukastefnda Lifandi viðburða við Reykjavíkurborg frá 31. maí 2019 var ákvæði þess efnis í grein 4.2 að félagið skyldi gera upp eftirstöðvar skulda fyrri rekstraraðila, Solstice Productions ehf., við borgina vegna hátíðarinnar árið áður. Í samningsdrögunum sem voru kynnt á fundi borgarráðs 22. nóvember 2018 hljóðaði ákvæðið þannig að endanlegu uppgjöri vegna þeirrar tónleikahátíðar „er leigutaki hélt árið 2018“ skyldi vera lokið fyrir tiltekinn tíma.

Framkvæmdastjóri frumstefnda bað starfsmann borgarinnar í tölvuskeyti 3. maí 2019 að breyta orðalagi ákvæðisins til þess að það liti ekki út fyrir að Lifandi viðburðir og Live events væru að viðurkenna tengingu milli sín og Solstice Productions. Slíka tengingu myndi skiptastjóri Solstice Productions notfæra sér og myndi sækja „á okkur fyrir alla hina kröfuhafana. K2 Agency sem segist vera að rukka skuld fyrir Slayer og hefur gert allt vitlaust myndi líka klárlega notfæra sér þetta.“

Frekari fyrirspurn starfsmanns borgarinnar 18. maí um það hvort „halda eigi hátíðina á tveimur kennitölum“ svaraði framkvæmdastjóri frumstefnda með því að Lifandi viðburðir ehf. væri „móðurfélagið og leyfishafi á leigusamning fyrir Laugardalnum“. Lifandi viðburðir ehf. væri „móðurfélagið yfir Live Events og L Events“. Live Events ehf. væri „dótturfélag og rekstrarfélagið“. Allir reikningar „með vsk [færu] á þetta félag, eins og uppbygging svæðisins og verktakar.“ L Events ehf. væri „hitt dótturfélagið sem [myndi] taka á móti greiðslum fyrir miðum og greiða út tónlistarmanna laun“. Þetta félag sé „með allt sem er enginn vsk af“.

Stefnandi höfðaði mál á hendur Solstice Productions og Friðriki Ólafssyni, til heimtu skuldarinnar sem hann hafði fengið framselda frá Slayer. Málið var þingfest 19. mars 2019. Þrátt fyrir löglega birtingu gekk útivistardómur á hendur Solstice Productions ehf. og Friðriki með áritun Héraðsdóms Reykjavíkur á stefnu um aðfararhæfi dómkrafna 11. júní 2019. Árangurslaust fjárnám vegna kröfunnar var gert hjá Friðriki 11. júlí 2019 en hafði verið gert hjá Solstice Productions ehf. tæpu ári fyrr, 31. ágúst 2018.

Með beiðni til héraðsdóms 10. júlí 2019 óskaði Friðrik eftir því að málið á hendur honum yrði endurupptekið. Það var gert með ákvörðun Héraðsdóms Reykjavíkur 21. ágúst 2019. Friðrik lagði fram greinargerð í málinu 17. september 2019. Þá fyrst var hreyft því sjónarmiði að honum bæri ekki að greiða þá fjárhæð sem stefnandi krafðist, í það minnsta ekki alla fjárhæðina.

Borgarráð samþykkti 5. september 2019 að halda Secret Solstice-tónlistarhátíðina 26.–28. júní 2020 með sambærilegu sniði og hátíðina sem var haldin 21.–23. júní 2019 næðust samningar um tónleikahaldið. Í tillögu íþrótta- og tómstundasviðs borgarinnar frá 2. september, sem var lögð fyrir borgarráð, var gert ráð fyrir að sakaukastefndi Lifandi viðburðir ehf. héldi hátíðina.

Þegar stefnanda höfðu borist gögnin frá Reykjavíkurborg 18. nóvember 2019 höfðaði hann mál á hendur sakaukastefndu með stefnu birtri 12. desember 2019.

Stefnandi telur það sem rakið hafi verið sýna að aðstandendur Secret Solstice-hátíðarinnar hafi leitað ýmissa leiða til að koma í veg fyrir að kröfuhafar upphaflegs rekstraraðila, Solstice Productions ehf., gætu notið fullnustu í þeim verðmætum sem felist í tónlistarhátíðinni. Stefnandi sætti sig ekki við að eiga kröfu á tómt félag þrátt fyrir að hátíðin sé enn í eigu sömu aðila og sé rekin í augljósum tengslum við fyrri rekstraraðila, og hafi meðal annars lofað að greiða ýmsar skuldbindingar hans. Stefnandi verði því að höfða mál á hendur sakaukastefndu til þess að fá kröfu sína greidda.

Sakaukastefndu kröfðust þess að kröfu stefnanda á hendur þeim yrði vísað frá dómi. Með úrskurði héraðsdóms Reykjavíkur 16. apríl 2020 var þeirri kröfu hafnað.

Með dómi 29. apríl 2020 var Friðrik Ólafsson dæmdur til þess að greiða stefnanda, K2 Agency Limited, 133.273,45 bandaríkjadali ásamt vöxtum. Því máli hefur verið áfrýjað til Landsréttar og bíður það aðalmeðferðar þar. Málið á hendur Solstice Productions ehf. hefur ekki verið endurupptekið innan fresta. Því er útivistardómur á hendur félaginu endanlegur.

Þótt sýslumaður hefði gert árangurslaust fjárnám hjá félaginu Solstice Productions síðsumars eða haustið 2018 var félagið ekki tekið til gjaldþrotaskipta fyrr en 27. maí 2020.

Málsástæður og lagarök stefnanda fyrir kröfum á hendur stefnda Live events ehf. Stefnandi byggir mál sitt annars vegar á meginreglum samninga- og kröfuréttar um skuldbindingargildi loforða og efndir samningsskuldbindinga. Hann byggi á því að með þeirri yfirlýsingu framkvæmdastjóra frumstefnda Live events ehf. í fjölmiðlum að gert yrði upp við alla listamenn, sem ekki hefðu fengið greitt fyrir að koma fram á síðustu Secret Solstice-tónlistarhátíðinni, hafi frumstefndi tekist á hendur ábyrgðarskuldbindingu vegna skuldar Solstice Productions ehf. við stefnanda. Öll skilyrði skuldbindandi loforðs séu uppfyllt.

Eins og rakið hafi verið hafi fyrirsvarsmaður frumstefnda lýst yfir því í fjölmiðlum að gert yrði upp við alla listamenn, sem ekki hefðu fengið greitt fyrir að koma fram á síðustu Secret Solsticetónlistarhátíð, og að stefndi myndi greiða „öllum listamönnum sem Solstice Production [ehf.] náði ekki að gera upp við frá síðustu hátíð“. Stefnandi byggi á því að með þessu loforði, sem stefndi sé bundinn við, hafi hann ábyrgst greiðslu skulda Solstice, meðal annars skuldar við stefnanda.

Stefndi hafi ekki gert athugsemdir við að rétt hefði verið haft eftir fyrirsvarsmanni stefnda í fjölmiðlum. Fullt tilefni hefði þó verið til. Frumstefndi hafi ekki heldur reynt að halda öðru fram í kjölfar þess að stefnandi sendi honum bréf og staðfesti að hann myndi byggja á yfirlýsingunni gagnvart stefnda.

Stefndi hafi vitað af skuld Solstice við stefnanda þegar hann gaf áðurnefnda yfirlýsingu, enda hefði stefnandi sent stefnda bréf þess efnis 18. desember 2018. Stefnda hafi því mátt vera fullljóst að yfirlýsing fyrirsvarsmanns hans í fjölmiðlum myndi vekja þær væntingar hjá stefnanda að stefndi ábyrgðist greiðslu skuldarinnar. Enn fremur verði að hafa í huga að sömu aðilar, þar á meðal Friðrik Ólafsson, fyrrum framkvæmdastjóri Solstice, komi enn að rekstri tónlistarhátíðarinnar þótt hún sé nú sögð rekin af frumstefnda. Þetta renni enn frekari stoðum undir skuldbindingargildi ábyrgðaryfirlýsingarinnar.

Ábyrgðarloforð stefnda, sem hafi verið skýrt og ótvírætt, hafi verið gefið í tengslum við vanefnd Solstice Productions, sem sé nátengt stefnda. Yfirlýsingin hafi verið gefin í fjölmiðli og hafi ótvírætt verið ætlað að skuldbinda stefnda við efni hennar, enda hafi stefndi mátt vita að hún yrði birt á einum stærsta fjölmiðli landsins. Yfirlýsingin hafi vakið þær væntingar hjá stefnanda og Slayer að stefndi myndi greiða Slayer hina ógreiddu skuld. Þar eð ekki liggi annað fyrir verði, í samræmi við almennar reglur, að gera ráð fyrir því að ábyrgð stefnda á kröfu stefnanda sé einföld ábyrgð. Solstice hafi ekki greitt hina umkröfðu skuld þrátt fyrir að stefnandi hafi skorað á hann. Þá hafi verið gerð a.m.k. tvö árangurslaus fjárnám hjá stefnda Solstice og því ljóst að ábyrgðarskuldbinding stefnda sé orðin virk.

Stefnandi telur hér skipta máli að framkvæmdastjóri Solstice Productions ehf., Friðrik Ólafsson, hafi verið í fyrirsvari fyrir stefnda í viðræðum við tónlistarflytjendur sem til stóð að kæmu fram á tónlistarhátíðinni Secret Solstice sumarið 2019. Að mati stefnanda sé þetta augljóst kennitöluflakk og ljóst að sömu aðilar komi að rekstri hátíðarinnar og áður þótt hátíðin sé nú sögð rekin af stefnda Live events ehf. Það sé jafnframt augljóst að eini tilgangurinn með því að framselja stefnda Live events ehf. rekstur tónlistarhátíðarinnar hafi verið að koma í veg fyrir að kröfuhafar Solstice gætu notið fullnustu í þeim verðmætum sem felist í tónlistarhátíðinni. Í ljósi þessa – og vegna þess nána sambands sem sé á milli félaganna – hafi stefnandi mátt ætla að stefndi væri að gangast í ábyrgð fyrir greiðslu kröfu stefnanda á hendur Solstice. Því beri að fallast á kröfu stefnanda.

Samkvæmt samningi stefnda Solstice og Slayer frá 9. febrúar 2018 skyldi hinn fyrrnefndi hafa lokið við að greiða kröfu Slayer 4. júlí 2018 á gjalddaga skuldarinnar. Stefnandi krefjist dráttarvaxta samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu af eftirstöðvum skuldarinnar frá 4. júlí 2018, sbr. 1. mgr. 5. gr. laga nr. 38/2001, til greiðsludags.

Stefnandi byggir mál sitt á meginreglum samninga- og kröfuréttar um skuldbindingargildi loforða og efndir samningsskuldbindinga. Dráttarvaxtakrafa hans styðst við 1. mgr. 6. gr., sbr. 1. mgr. 5. gr., laga nr. 38/2001. Krafa um málskostnað styðst við 1. mgr. 130. gr. laga nr. 91/1991 en val á varnarþingi við 1. mgr. 33. gr. laganna.

Málsástæður og lagarök á hendur sakaukastefndu

Að mati stefnanda snýst þetta mál í grundvallaratriðum um það hvort hægt sé með kennitöluflakki og misnotkun á einkahlutafélagaforminu að komast hjá því að greiða lögmætar skuldbindingar sem hafi stofnast við rekstur árlegrar tónlistarhátíðar en halda rekstri og raunverulegu eignarhaldi hátíðarinnar þrátt fyrir það áfram í óbreyttu horfi.

Í löggjöf um hlutafélög séu reglur um bótaábyrgð stjórnenda hlutafélaga og hluthafa í þeim á tjóni sem þeir valda öðrum, þar á meðal kröfuhöfum, vegna brota á hlutafélagalöggjöf, sbr. 1. og 2. mgr. 108. gr. laga nr. 138/1994. Hér komi einna helst til álita það tilvik þegar verðmæti séu tekin út úr félagi án þess að uppfyllt séu skilyrði laga um hlutafélög fyrir slíku eða án þess að formlegar ákvarðanir séu teknar í þá veru. Í íslenskum rétti sé einnig viðurkennt að hlutafélagaformið verði ekki nýtt þannig að hlutafélögum sé komið upp án þess að raunverulegur tilgangur liggi þar að baki annar en sá að komast hjá ábyrgð. Enn fremur gildi í íslenskum rétti sú regla að aðilar, sem hafi yfirráð yfir félagi og stuðli að því að eignir þess gangi að verulegu leyti til annars félags undir sömu yfirráðum, þannig að hagsmunir kröfuhafa fyrrnefnda félagsins séu bornir fyrir borð, beri skaðabótaábyrgð á tjóni sem kröfuhafi verður fyrir af þeim sökum. Í slíku tilviki hafi einnig verið litið svo á að félagið, sem fær eignirnar framseldar, hafi sömu yfirráð og beri sömu bótaábyrgð óháð raunverulegu eignarhaldi, sbr. dóm Hæstaréttar í máli nr. 292/2003.

Stefnandi telur ljóst að frumstefndi Live events ehf. hafi, í það minnsta frá því í nóvember 2018, komið fram gagnvart fjölmiðlum, almenningi, stefnanda og tónlistarflytjendum sem rekstraraðili og eigandi Secret Solstice-tónlistarhátíðarinnar. Stefnandi hafi höfðað frumsökina á hendur frumstefnda á þeim grundvelli að hann væri eigandi og rekstraraðili hátíðarinnar. Frumstefndi hafi tekið til varna og lagt fram greinargerð án þess að bera við aðildarskorti til varnar eða mótmæla framangreindu á annan hátt.

Eftir að stefnandi þingfesti frumsökina hafi farið að birtast upplýsingar um aðkomu annarra félaga en frumstefnda; nánar tiltekið sakaukastefndu Lifandi viðburða ehf. og L Events ehf., að eignarhaldi og rekstri tónlistarhátíðarinnar. Af því tilefni hafi stefnandi óskað eftir og fengið fyrrnefnd gögn frá Reykjavíkurborg sem liggi til grundvallar málatilbúnaði hans gagnvart sakaukastefndu.

Frumstefndi og sakaukastefndu Lifandi viðburðir og L Events séu systurfélög. Sami aðili, sakaukastefndi Guðmundur, eigi öll félögin og hann sitji einn í aðalstjórn þeirra allra. Þá sé sami aðili, stjúpsonur sakaukastefnda Guðmundar, í varastjórn þeirra allra og sami framkvæmdastjóri í tveimur af þremur félaganna, frumstefnda Live events ehf. og sakaukastefnda Lifandi viðburðum, en enginn framkvæmdastjóri sé í sakaukastefnda L Events.

Málatilbúnaður stefnanda á hendur sakaukastefndu sé byggður þannig upp að stefnandi byggi fyrst og fremst á því að þeir beri ásamt frumstefnda óskipta ábyrgð á kröfu stefnanda á hendur Solstice Productions ehf. á grundvelli bóta- og samsömunarreglna félagaréttar og almennra skaðabótareglna. Eins og eigi við um frumstefnda byggi stefnandi á því að eini tilgangurinn með aðkomu sakaukastefndu Lifandi viðburða og sakaukastefndu L Events að tónlistarhátíðinni hafi verið að koma í veg fyrir að kröfuhafar Solstice Productions ehf. gætu notið fullnustu í þeim verðmætum sem felist í tónlistarhátíðinni. Eftir að stefnandi höfðaði frumsökina hafi orðið atvik sem styðji þessa málsástæðu enn frekar. Það sé mikilvægast í þessu sambandi að aðstandendur hátíðarinnar, í nafni sakaukastefnda Lifandi viðburða, hafi skuldbundið sig við Reykjavíkurborg til þess að greiða skuldir Solstice Productions ehf. við borgina og ýmsa aðra kröfuhafa vegna hátíðarinnar 2018 til þess að fá að halda hátíðina árið 2019.

Auk framangreinds hafi aðstandendur hátíðarinnar búið þannig um hnútana að fleiri félög en frumstefndi standi að hátíðinni. Gögnin sem Reykjavíkurborg afhenti stefnanda 18. nóvember 2019 sýni að algjör hending ráði því hvaða félag, frumstefndi, sakaukastefndi Lifandi viðburðir eða sakaukastefndi L Events, sé látið gegna hvaða hlutverki. Eins og nánar verði rakið beri ekki að gera greinarmun á aðkomu eða horfa á afmarkaða þætti hvers félags, heldur verði að líta á þau sem eina heild. Engu að síður muni stefnandi tiltaka nákvæmlega aðkomu hvers félags fyrir sig. Hann byggi á því að hlutdeild hvers þeirra um sig leiði sjálfstætt til ábyrgðar þess.

Málatilbúnaður stefnanda gagnvart sakaukastefnda Guðmundi byggist á því að framangreind misnotkun á einkahlutafélagaforminu og stjórn félaganna án tillits til form- eða efnisskilyrða hlutafélagalaga leiði til brottfalls ábyrgðartakmörkunar félaganna skv. lögum um einkahlutafélög. Sakaukastefndi Guðmundur beri, sem hluthafi, ábyrgð á fyrrnefndum skuldbindingum félaganna gagnvart stefnanda á grundvelli bótareglna félagaréttar, sbr. 2. mgr. 108. gr. laga nr. 138/1994, og almennra skaðabótareglna.

Verði ekki fallist á að sakaukastefndu beri ábyrgð á kröfu stefnanda á hendur Solstice Productions ehf. byggi stefnandi á því að sakaukastefndu beri í öllu falli ábyrgð á skuldbindingum frumstefnda gagnvart stefnanda á grundvelli ábyrgðaryfirlýsingar framkvæmdastjóra frumstefnda á grundvelli sömu reglna.

Ábyrgð sakaukastefndu á kröfu stefnanda á hendur Solstice Productions ehf.

  1. 1. Sérstaklega um þátt sakaukastefnda Lifandi viðburða Eins og áður greini hafi frumstefndi Live events ehf. lengst af komið fram sem rekstraraðili og eigandi Secret Solstice-tónlistarhátíðarinnar frá hausti 2018. Það hafi því komið stefnanda í opna skjöldu þegar hann sá að það var sakaukastefndi Lifandi viðburðir sem var tilgreindur samningsaðili Reykjavíkurborgar í drögum sem samþykkt voru á borgarráðsfundinum 16. maí 2019. Samningurinn hafi verið undirritaður 31. maí 2019. Í honum hafi augljóslega verið gert ráð fyrir því að það væri sakaukastefndi Lifandi viðburðir sem ræki hátíðina. Í samningnum hafi meðal annars staðið að það félag fengi aðstöðu fyrir hátíðina í Laugardal dagana 21.–23. júní 2019. Þá hafi verið gert ráð fyrir því í samningnum að félagið Lifandi viðburðir tæki á sig margs konar skyldur við Reykjavíkurborg vegna reksturs hátíðarinnar.

    Meðal þeirra skyldna sem félagið gekkst undir hafi verið að gera upp eftirstöðvar skulda fyrri rekstraraðila, Solstice Productions ehf., við Reykjavíkurborg vegna hátíðarinnar árið áður, sem meðal annars hljómsveitin Slayer kom fram á, sbr. greinar 4.1 og 4.2 í samningnum. Samkvæmt fylgiskjali nr. 2 við samninginn skyldi Lifandi viðburðir greiða skuld sem næmi 18.000.000 kr. Þó skyldi Reykjavíkurborg styrkja hátíðina um 8.000.000 kr. sem skyldu ganga upp í uppgjör á fyrrnefndum skuldum eftir fyrirkomulagi sem nánar var tilgreint á fskj. nr. 2 við samninginn. Með öðrum orðum hafi sakaukastefndi Lifandi viðburðir greitt skuldir Solstice Productions ehf. við Reykjavíkurborg vegna hátíðarinnar 2018 með afslætti. Eins og rakið hafi verið hafi Reykjavíkurborg einnig gert það að skilyrði að aðstandendur hátíðarinnar 2019 gerðu upp frekari skuldir Solstice Productions ehf. við aðra nánar tilgreinda íslenska aðila, þar á meðal einkaaðila, sem ekki var getið um í fyrrnefndum samningi.

    Stefnandi telur augljóst að slíkt skilyrði hefði Reykjavíkurborg ekki sett fyrir aðila sem væri ótengdur Solstice Productions ehf. og hefði komist yfir rekstur hátíðarinnar á grundvelli armslengdarsjónarmiða. Að sama skapi telur stefnandi augljóst að sakaukastefndi Lifandi viðburðir hefði aldrei samþykkt þessa skilmála nema vegna tengsla félagsins við Solstice Productions ehf.

  2. Um tengsl Solstice Productions ehf. og nýju félaganna Stefnandi telur tengsl Solstice Productions ehf. við frumstefnda og sakaukastefndu Lifandi viðburði og L Events blasa við. Sömu einstaklingar, sem allir tengjast náið innbyrðis, komi að rekstri tónlistarhátíðarinnar og hafi gert á meðan hún var sögð rekin af Solstice Productions ehf. Þetta séu systkinin Friðrik Ólafsson og Katrín Ólafsson og eiginmaður Katrínar, Jón Bjarni Steinsson.

    Friðrik Ólafsson hafi áður verið einn eigenda, stjórnarmaður og framkvæmdastjóri Solstice Productions ehf. Friðrik hafi verið í samskiptum við starfsmann Reykjavíkurborgar 14. nóvember 2018 vegna forskráningar á hátíðina 2019. Fljótlega eftir það hafi hann hætt að taka þátt í samskiptum við starfsmanninn en stefnandi telji þó að Friðrik hafi áfram komið að hátíðinni.

    Katrín Ólafsson hafi áður verið stjórnarmaður í Solstice Productions ehf. og hafi meðal annars komið fram fyrir hönd félagsins í samningaviðræðum við stefnanda vegna framkomu Slayer á tónlistarhátíðinni 2018. Eins og áður greini hafi Katrín upphaflega verið í stjórn frumstefnda, Live events, og framkvæmdastjóri sakaukastefnda, Lifandi viðburða, og átt mikil samskipti við starfsmann Reykjavíkurborgar á síðari hluta árs 2018 vegna hátíðarinnar 2019. Hún hafi þó horfið úr stjórn fyrrnefnda félagsins 14. nóvember 2018 og hætt sem framkvæmdastjóri þess síðarnefnda 18. desember sama ár. Um svipað leyti hafi Katrín hætt beinum samskiptum við starfsmann Reykjavíkurborgar og hafi framkvæmdastjóri frumstefnda tekið við. Gögn málsins sýni þó að hún hafi áfram tekið virkan þátt í undirbúningi tónlistarhátíðarinnar 2019.

    Jón Bjarni Steinsson sé varaformaður stjórnar frumstefnda, Live events, og sakaukastefndu, Lifandi viðburða og L Events, og komi reglulega fram fyrir hönd þessara félaga. Hann hafi einnig komið fram fyrir hönd Solstice Productions ehf. og hafi meðal annars skrifað umsögn fyrir hönd félagsins til Reykjavíkurborgar 29. júlí 2018 í kjölfar hátíðarinnar það ár.

    Eignarhaldið á hátíðinni hafi einnig haldist innan stórfjölskyldu framangreindra einstaklinga. Stærstu endanlegu eigendur Solstice Productions ehf. hafi verið Jón Ólafsson og Helga Ólafsson, foreldrar Friðriks og Katrínar, en Friðrik hafi einnig átt hlut í félaginu. Nú eigi stjúpfaðir Jóns Bjarna, sakaukastefndi Guðmundur, hátíðina í gegnum áðurnefnd félög.

    Aðstandendur hátíðarinnar virðist hafa gert sér grein fyrir því að þessi tengsl félaganna kynnu að orka tvímælis gagnvart kröfuhöfum Solstice Productions ehf. Stefnandi telur það vera meginástæðu þess að Katrín og Friðrik hættu að koma fram fyrir hönd nýju félaganna með beinum hætti. Það hafi gerst í lok nóvember 2018, um svipað leyti og fréttir birtust af því að Solstice Productions ehf. væri í vanskilum við fjölda manns og að nýtt félag hefði tekið við rekstrinum.

    Lykilatriðið sé þó að Katrín og Friðrik hafi komið fram gagnvart Reykjavíkurborg og hafi verið leiðandi í viðræðum við borgina í nóvember 2018 þegar þeim var veitt vilyrði fyrir því að halda hátíðina aftur árið 2019. Í þeirri viðleitni að fá þetta vilyrði hafi Katrín lýst því yfir í tölvupósti til starfsmanns Reykjavíkurborgar 21. nóvember 2018 að búið væri að semja við flesta kröfuhafa Solstice Productions ehf., að það væri „partur af yfirtöku nýrra aðila að gera upp skuldir Solstice Productions“, en að það væri forsenda þess að hefja greiðslur til kröfuhafa að fá leyfi fyrir hátíðinni næsta sumar. Að mati stefnanda hafi þetta verið augljós ósannindi og telur stefnandi ljóst að aðstandendur hátíðarinnar hafi blekkt Reykjavíkurborg í því skyni fá borgina til þess að samþykkja hátíðina 2019. Í þessum viðræðum hafi verið alls óljóst – og engu máli virst skipta – fyrir hvaða félög Katrín og Friðrik kæmu fram. Á endanum virðist tilviljun hafa ráðið því hvaða hlutverki frumstefndi og sakaukastefndu Lifandi viðburðir og L Events gegndu í hátíðinni.

    Um sama leyti og Friðrik og Katrín hafi dregið sig úr sviðsljósinu hafi Víkingur Heiðar Arnórsson verið gerður að framkvæmdastjóra frumstefnda og hafi hann í kjölfarið tekið við beinum samskiptum við starfsmann Reykjavíkurborgar. Þótt hann hafi aðeins verið skráður framkvæmdastjóri frumstefnda sé ljóst af samskiptum hans við Reykjavíkurborg að hann hafi einnig haft umboð til þess að koma fram fyrir sakaukastefndu Lifandi viðburði og L Events. Þótt ráðning Víkings Heiðars virðist hafa átt að skapa fjarlægð á milli nýju félaganna og Solstice Productions ehf. út á við hafi hann augljóslega unnið náið með aðstandendum síðastnefnda félagsins og hafi þekkt rekstur og hag þess sem ótengdur aðili hefði almennt ekki getað gert.

    Eins og áður greini hafi framkvæmdastjóri frumstefnda óskað eftir því við Reykjavíkurborg að borgin tæki út úr upphaflegum samningsdrögum ákvæði um að sakaukastefndi Lifandi viðburðir skyldi greiða skuldir vegna tónleikahátíðar sem hann hefði haldið árið 2018. Hafi framkvæmdastjórinn sagt að aðstandendur hátíðarinnar óttuðust að með því væru þeir að viðurkenna tenginguna milli Solstice Productions ehf. og sakaukastefnda Lifandi viðburða. Aðstandendur hátíðarinnar hafi því, að einhverju leyti, lagt sig fram um að reyna að afmá eða fela tengsl milli félaganna út á við, þótt stefnandi telji að það hafi hér enga þýðingu – og sýni raunar einmitt hið gagnstæða.

    Þrátt fyrir þessa viðleitni til að reyna að afmá tengsl félaganna út á við hafi Víkingur Heiðar og sakaukastefndi Guðmundur talið sig hafa hagsmuni af því að lýsa yfir þeim ósannindum í fjölmiðlum að Solstice Productions ehf. hefði þegar gert upp skuld sína við Slayer, að greiðslukvittanir lægju því til sönnunar og að stefnandi hefði borið fram reikninga sem „fyrri rekstraraðilar hafi hafnað“. Þá hafi framkvæmdastjóri frumstefnda lýst því yfir í fjölmiðlum að gert yrði upp við þá listamenn sem Solstice Productions ehf. var í vanskilum við vegna hátíðarinnar 2018 auk þess sem Katrín Ólafsson hafi fullyrt svipað við Reykjavíkurborg. Þetta sýni, svo ekki verði um villst, hagsmuni aðstandenda hátíðarinnar af því að það liti svo út að fyrri rekstraraðili hefði greitt kröfuhöfum sínum, og þá einna helst stefnanda. Þetta staðfesti annars augljós tengsl milli Solstice Productions ehf. og nýju félaganna.

  3. 3. Sérstaklega varðandi þátt sakaukastefnda L Events Í áðurnefndum tölvupósti framkvæmdastjóra frumstefnda til Reykjavíkurborgar 3. apríl 2019 hafi hann sagt að „[n]ýja félagið sem verið [væri] að stofna [myndi] einnig vera fyrir rekstur Secret Solstice“. Stefnandi telur hafið yfir allan vafa að framkvæmdastjóri frumstefnda hafi hér átt við sakaukastefnda L Events sem sakaukastefndi Guðmundur stofnaði 20. mars 2019. Í tölvupósti framkvæmdastjóra frumstefnda 18. maí 2019 segi að sakaukastefndi L Events muni taka á móti greiðslum fyrir miða á tónlistarhátíðina.

    Þar eð sakaukastefndu hafi ekki orðið við þeirri áskorun stefnanda að leggja fram gögn úr bókhaldi sakaukastefnda L Events sem sýni rekstur hans og efnahag þannig að meta megi tekjur og gjöld, eignir og skuldir dagana 22. maí 2019, 1. júní 2019, 20. júní 2019 og 24. júní 2019 byggi stefnandi á því að allar tekjur vegna miðasölu á Secret Solstice-hátíðina 2019 hafi borist sakaukastefnda L Events, sbr. 1. mgr. 68. gr. laga nr. 91/1991.

    Stefnandi telur að sakaukastefndi Guðmundur hafi stofnað sakaukastefnda L Events gagngert í þeim tilgangi að taka við öllum tekjum af hátíðinni og koma verðmætum frumstefnda þannig undan kröfuhöfum þess félags, einna helst stefnanda. Í því sambandi nægi að benda á það að sakaukastefndi L Events hafi verið stofnaður nokkrum dögum eftir höfðun frumsakar og rétt rúmum mánuði eftir að framkvæmdastjóri frumstefnda lýsti því yfir í fjölmiðlum að félagið myndi gera upp við alla listamenn sem fram hefðu komið á Secret Solstice-tónlistarhátíðinni árið 2018 og hefðu ekki fengið kröfu sína greidda. Í það minnsta sé ljóst að hvorki rökrétt né rekstrarlegt tilefni hafi verið til að stofna sakaukastefnda L Events.

    Þær skýringar sem framkvæmdastjóri frumstefnda hafi gefið Reykjavíkurborg á þætti sakaukastefnda L Events í hátíðinni sýni enn fremur ólögmæti ráðstöfunarinnar. Í fyrsta lagi lýsi skýringarnar broti gegn skyldu til greiðslu virðisaukaskatts samkvæmt lögum nr. 50/1988, enda gildi 4. töluliður 3. mgr. 2. gr. laganna, um undanþágu virðisaukaskatts af aðgangseyri að tónleikum, ekki þegar tónleikar tengist öðru samkomuhaldi eða veitingastarfsemi. Ljóst sé að fjölmörg önnur starfsemi en tónleikahald, þar á meðal veitinga- og áfengissala, fari fram á Secret Solstice-tónlistarhátíðinni og aðstandendum hennar sé því skylt að greiða virðisaukaskatt af miðasölu. Í annan stað hafi miðasala á tónlistarhátíðina og greiðslur til listamanna hafist löngu áður en sakaukastefndi L Events var skráður hjá fyrirtækjaskrá 21. maí 2019, tæpum mánuði fyrir hátíðina. Af þessu sé ljóst að sá tilgangur sem aðstandendur hátíðarinnar segja að hafi verið með stofnun sakaukastefnda L Events standist engan veginn. Tilgangurinn hafi ekki getað verið annar en sá að komast undan ábyrgð. Þetta leiði til þess að sakaukastefndi L Events beri ábyrgð á greiðslu kröfu stefnanda eins og rakið verði.

  4. 4. Sérstaklega um þátt frumstefnda, Live events ehf., frá höfðun frumsakar Sem fyrr segi hafi sakaukastefndi Lifandi viðburðir verið gerður að aðila samkomulagsins við Reykjavíkurborg 31. maí 2019. Í 1. gr. samningsins hafi verið gert ráð fyrir því að félagið sækti um afnotaleyfi til skrifstofu reksturs- og umhirðu hjá Reykjavíkurborg vegna hátíðarinnar. Engu að síður hafi það verið frumstefndi Live events ehf. sem sótti um og fékk afnotaleyfið. Það sýni enn frekar hversu frjálslega aðstandendur hátíðarinnar fari með hlutafélagaformið og nauðsyn þess að samsama þessi félög innbyrðis.

    Eins og áður segi byggi stefnandi meðal annars á því gagnvart frumstefnda að eini tilgangurinn með aðkomu hans að tónlistarhátíðinni hafi verið að koma í veg fyrir að kröfuhafar Solstice Productions ehf. gætu notið fullnustu í þeim verðmætum sem felist í hátíðinni. Eftir að stefnandi höfðaði frumsökina hafi orðið atvik sem styðji framangreint enn frekar. Mikilvægast í því sambandi sé það að sakaukastefndi Lifandi viðburðir hafi skuldbundið sig gagnvart Reykjavíkurborg til þess að greiða skuldir Solstice Productions ehf. við borgina og ýmsa aðra kröfuhafa vegna hátíðarinnar 2018 til þess að fá að halda hátíðina. Ljóst sé að þessi nýju atvik og röksemdir, sem styðji fyrrnefnda málsástæðu gagnvart frumstefnda, komist að í málinu gagnvart honum og beri að líta á sakaukastefnu sem bókun í frumsökinni að þessu leyti.

  5. Ábyrgð sakaukastefndu L Events og Lifandi viðburða (og frumstefnda) á kröfu stefnanda á hendur

Solstice Productions ehf.

Stefnandi byggi á því að Solstice Productions ehf. annars vegar, og frumstefndi, sakaukastefndi Lifandi viðburðir og sakaukastefndi L Events hins vegar, hafi lotið sameiginlegri stjórn framangreindra aðila sem allir tengdust innbyrðis nánum fjölskylduböndum. Þessir aðilar hafi tekið samræmdar ákvarðanir fyrir öll félögin og stuðlað að því í sameiningu að eignir Solstice Productions ehf. gengju að verulegu leyti – ef ekki öllu – til frumstefnda og sakaukastefndu Lifandi viðburða og L Events og hafi um leið borið fyrir borð hagsmuni annarra kröfuhafa. Raunar megi helst ráða af málavöxtum að gripið hafi verið til framangreindra ráðstafana í þeim tilgangi að bera hagsmuni stefnanda fyrir borð. Þannig hafi vörumerkið Secret Solstice, viðskiptasambönd og rekstur tónlistarhátíðarinnar, sem verði að telja allra helstu eignir Solstice Productions ehf., verið framseld frá félaginu til sakaukastefnda Lifandi viðburða í mars 2019 og félagið gert aðili að samningnum við Reykjavíkurborg um hátíðina. Þar eð sakaukastefndu hafi ekki orðið við þeirri áskorun stefnanda að leggja fram kaupsamning um rekstur og vörumerki Secret Solstice ásamt upplýsingum um greiðslur vegna þeirra kaupa byggi stefnandi á því að reksturinn og vörumerkið hafi verið framselt sakaukastefnda Lifandi viðburðum á undirverði og án endurgjalds, sbr. 1. mgr. 68. gr. laga nr. 91/1991.

Enginn annar tilgangur hafi verið með framsali á rekstri og vörumerki hátíðarinnar til sakaukastefnda Lifandi viðburða en að koma í veg fyrir að kröfuhafar Solstice Productions ehf. gætu notið fullnustu í þeim verðmætum sem felist í tónlistarhátíðinni. Aðstandendur hátíðarinnar hafi verið reiðubúnir að ganga svo langt að greiða 18.000.000 kr. skuld Solstice Productions ehf. við Reykjavíkurborg til þess að tryggja að framsalið gæti átt sér stað. Reykjavíkurborg hafi sjálf litið svo á – og sagt berum orðum í bréfi sínu til lögmanns stefnanda 12. maí 2019 – að Solstice Productions ehf. og nýju félögin væru tengdir aðilar.

Eins og áður segi gildi í íslenskum rétti sú regla að aðilar, sem hafi yfirráð yfir félagi og stuðli að því að eignir þess gangi að verulegu leyti til annars félags undir sömu yfirráðum, þannig að hagsmunir kröfuhafa fyrrnefnda félagsins séu bornir fyrir borð, beri skaðabótaábyrgð á tjóni sem kröfuhafi verði fyrir af þeim sökum. Í slíku tilviki hafi einnig verið litið svo á að félagið, sem fái eignirnar framseldar, hafi sömu yfirráð og beri sömu bótaábyrgð óháð raunverulegu eignarhaldi.

Í því tilviki sem sé hér til úrlausnar hafi eignirnar verið framseldar til þriggja félaga, frumstefnda, Live events, og sakaukastefndu Lifandi viðburða og L Events. Með vísan til þess sem áður greinir um að allir þræðir hafi verið í hendi sömu aðila til þess að taka þá samræmdu ákvörðun að hagsmunir Solstice Productions ehf. gengju til félaganna byggi stefnandi á því að ákvæði 3. mgr. 2. gr. laga nr. 138/1994 hafi tekið til þeirra allra sem móðurfélaga Solstice Productions ehf. Í ljósi þess að aðstandendur félaganna hafi beitt framangreindum ólögmætum aðferðum með því að ráðstafa verðmætum Solstice Productions ehf. til þeirra beri þau skaðabótaábyrgð samkvæmt almennum skaðabótareglum á tjóni sem stefnandi varð fyrir af þessum sökum. Tjón stefnanda nemi fjárhæð kröfu hans á hendur Solstice Productions ehf. sem sé nú töpuð, enda hafi verið gert árangurslaust fjárnám hjá félaginu vegna kröfunnar.

Með sömu rökum byggi stefnandi á því að samsama verði Solstice Productions ehf. annars vegar og frumstefnda, sakaukastefndu Lifandi viðburði og L Events hins vegar og líta á þá sem eina heild. Í samræmi við almennar reglur verði að líta svo á að sakaukastefndu Lifandi viðburðir og L Events beri ásamt frumstefnda óskipta (solidaríska) ábyrgð á skuldbindingum Solstice Productions ehf. gagnvart stefnanda.

Eins og áður segi hafi algjör hending ráðið því hvaða félag, frumstefndi, sakaukastefndi Lifandi viðburðir eða sakaukastefndi L Events, hafi verið látið taka að sér hvaða skuldbindingu vegna Secret Solstice-tónlistarhátíðarinnar 2019. Stefnandi telji ljóst að fjárhagur félaganna sé algjörlega samofinn og að félögin séu í raun rekin sem ein heild. Það sé ljóst að engin þörf hafi verið á því að tónlistarhátíðin væri rekin í fleiri en einu félagi og að verðmætum tengdum hátíðinni væri skipt á milli áðurnefndra félaga með þeim hætti sem haldið var fram. Eins og rakið hafi verið geti þær ástæður sem framkvæmdastjóri frumstefnda hafi gefið Reykjavíkurborg fyrir aðkomu félaganna að hátíðinni ekki með nokkru móti staðist. Þessir aðilar hafi gefið Reykjavíkurborg rangar og misvísandi upplýsingar um eignarhald félaganna, aðkomu þeirra að hátíðinni og að félögin myndu greiða eða yfirtaka skuldir Solstice Productions ehf. Þeir hafi mátt vita um mikilvægi þess að Reykjavíkurborg fengi að þessu leyti réttar upplýsingar, enda hafi starfsmaður borgarinnar ítrekað spurt út í þetta. Þannig verði að líta svo á að félögin hafi ekki haft annan raunverulegan tilgang en þann að koma verðmætum undan kröfuhöfum á ólögmætan hátt og reyna að takmarka persónulega ábyrgð aðstandenda hátíðarinnar.

Ekki beri að gera greinarmun á aðkomu eða horfa á afmarkaða þætti hvers félags, heldur verði að líta á þau sem eina heild og að allt sem var nefnt hér að framan hafi verið gert í tengslum við eitt og sama félagið og leiði til ábyrgðar félaganna eftir fyrrnefndum reglum. Með vísan til sömu raka og leiði til þess að félögin verði hvert og eitt að bera ábyrgð á kröfu stefnanda á hendur Solstice Productions ehf. verði þau að bera ábyrgð á skuldbindingum hvers annars innbyrðis. Jafnvel þótt ekki yrði fallist á þetta telur stefnandi að afmarkaður þáttur hvers félags nægi til þess að viðkomandi félag verði gert ábyrgt á fyrrnefndu tjóni stefnanda.

Ábyrgð sakaukastefndu vegna ábyrgðarloforðs frumstefnda Live events ehf.

Verði ekki fallist á að sakaukastefndu beri ábyrgð á kröfu stefnanda á hendur Solstice Productions ehf. byggir stefnandi á því að sakaukastefndu beri í öllu falli ábyrgð á skuldbindingum frumstefnda gagnvart stefnanda á grundvelli ábyrgðaryfirlýsingar framkvæmdastjóra frumstefnda samkvæmt sömu reglum. Í þessu sambandi byggi stefnandi á öllum sömu málsástæðum og reifaðar hafa verið.

Þannig verði að telja að frumstefndi hafi, sem rekstraraðili Secret Solstice-tónlistarhátíðarinnar, átt tilkall til vörumerkis og reksturs hátíðarinnar, þar á meðal til allra tekna vegna hátíðarinnar. Stefnandi byggi á því að enginn annar tilgangur hafi verið með framsali á rekstri og vörumerki hátíðarinnar til sakaukastefnda Lifandi viðburða og rétti til tekna af miðasölu til L Events en að koma í veg fyrir að kröfuhafar frumstefnda gætu notið fullnustu í þeim verðmætum sem felist í tónlistarhátíðinni. Að auki hafi aðstandendur hátíðarinnar gefið Reykjavíkurborg rangar og misvísandi upplýsingar um eignarhald félaganna og aðkomu þeirra að hátíðinni.

Stefnandi byggi á því að verðmætum og hagsmunum frumstefnda hafi á ólögmætan hátt verið ráðstafað til hagsbóta fyrir sakaukastefndu L Events og Lifandi viðburði. Sem fyrr segi hafi öll félögin lotið stjórn sömu aðila. Þeir hafi tekið samræmdar ákvarðanir fyrir öll félögin og stuðlað að því að eignir og hagsmunir, sem réttilega tilheyrðu frumstefnda, gengju að verulegu leyti til sakaukastefndu L Events og Lifandi viðburða og hafi um leið borið fyrir borð hagsmuni annarra kröfuhafa. Með sömu rökum og áður hafi verið rakin um ábyrgð L Events og Lifandi viðburða á kröfu stefnanda á hendur Solstice Productions byggi stefnandi einnig á því að sakaukastefndu L Events og Lifandi viðburðir hafi haft raunveruleg yfirráð yfir frumstefnda þannig að ákvæði 3. mgr. 2. gr. laga nr. 138/1994 um einkahlutafélög taki til þeirra sem móðurfélaga frumstefnda.

Sem fyrr segi og með vísan til áður rakinna röksemda um ábyrgð L Events telji stefnandi að sá sakaukastefndi hafi verið stofnaður gagngert í þeim ólögmæta tilgangi að koma hagsmunum frumstefnda undan kröfuhöfum þess félags.

Skaðabótaábyrgð sakaukastefnda Guðmundar Hreiðarssonar Viborg

Stefnandi áréttar að sakaukastefndi Guðmundur sé eini eigandi og eini stjórnarmaður bæði frumstefnda Live events ehf. og sakaukastefndu L Events og Lifandi viðburða. Sakaukastefndi Guðmundur hafi því fulla stjórn á öllum félögunum. Af því sé ljóst að hagsmunum Solstice Productions ehf. hafi á endanum verið ráðstafað til hagsbóta fyrir hann. Líta verði svo á að sakaukastefndi Guðmundur hafi haft raunveruleg yfirráð yfir öllum félögunum og hafi stuðlað að því að þau verðmæti sem felist í Secret Solstice-tónlistarhátíðinni gengju til hans og um leið borið fyrir borð hagsmuni annarra kröfuhafa. Stefnandi vísi að öðru leyti til röksemda sinna varðandi ábyrgð sakaukastefndu Lifandi viðburða og L Events að breyttu breytanda.

Þá telur stefnandi ljóst að fjárhagur áðurnefndra félaga sé algjörlega samofinn og að sakaukastefndi Guðmundur stýri félögunum án tillits til form- eða efnisskilyrða hlutafélagalaga. Ljóst sé að enginn raunverulegur og lögmætur tilgangur hafi verið fólginn í því að reka Secret Solsticetónlistarhátíðina í fleiri en einu félagi. Sá sem noti hlutafélagaformið á þennan hátt geti ekki skýlt sér bak við meginregluna um takmarkaða ábyrgð hluthafa. Stefnandi byggi á því að framangreint leiði til brottfalls ábyrgðartakmörkunar félaganna skv. lögum nr. 138/1994 um einkahlutafélög og að sakaukastefndi Guðmundur beri sem hluthafi ábyrgð á fyrrnefndum skuldbindingum félaganna gagnvart stefnanda.

Stefnandi byggi á því að engin skilyrði hafi verið til þess að sakaukastefndi gæti fært verðmæti á milli félaganna á grundvelli VII. eða XII. kafla laga nr. 138/1994. Þá telur stefnandi og byggir á að engin formleg ákvörðun hafi verið tekin í þá veru á vettvangi félaganna enda hafi sakaukastefndu ekki orðið við þeirri áskorun stefnanda að leggja fram gögn um hið gagnstæða.

Með vísan til framangreinds byggi stefnandi á því að sakaukastefndi Guðmundur sé skaðabótaskyldur gagnvart stefnanda, bæði samkvæmt 2. mgr. 108. gr. laga nr. 138/1994 og almennum reglum skaðabótaréttar.

Verði ekki fallist á að sakaukastefndi Guðmundur beri ábyrgð á kröfu stefnanda á hendur Solstice Productions ehf. byggi stefnandi á því að sakaukastefndi beri í öllu falli ábyrgð á skuldbindingum frumstefnda gagnvart stefnanda á grundvelli ábyrgðaryfirlýsingar framkvæmdastjóra frumstefnda á grundvelli sömu reglna. Þetta byggi á sömu röksemdum og að framan, sbr. einnig umfjöllun í kafla 3.

Vextir

Samkvæmt samningi Solstice og Slayer frá 9. febrúar 2018 skyldi hinn fyrrnefndi hafa lokið við að greiða kröfu Slayer 4. júlí 2018 sem sé gjalddagi skuldarinnar. Stefnandi krefst dráttarvaxta samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu af eftirstöðvum skuldarinnar frá 4. júlí 2018, sbr. 1. mgr. 5. gr. laga nr. 38/2001, til greiðsludags.

Stefnandi byggir mál sitt á almennum skaðabótareglum og bótareglum félagaréttar, einkum 108. gr. laga nr. 138/1994. Þá byggi stefnandi á reglum félagaréttar um samsömun. Dráttarvaxtakrafa hans styðjist við 1. mgr. 6. gr., sbr. 1. mgr. 5. gr., laga nr. 38/2001. Krafa um málskostnað styðst við 1. mgr. 130. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Varðandi varnarþing vísast til 1. mgr. 42. gr. laganna.

Málsástæður og lagarök frumstefnda

Stefndi mótmælir málatilbúnaði stefnanda í heild sinni. Lýsing stefnanda á atvikum sé einhliða og fullyrðingar hans séu órökstuddar og fái ekki stoð í gögnum málsins.

Þetta mál verði rakið til meintrar kröfu hljómsveitarinnar Slayer vegna tónleika hennar á Secret Solstice-hátíðinni sumarið 2018. Stefndi hafi ekki komið að þeirri hátíð og sé ekki og hafi aldrei verið í samningssambandi við stefnanda.

Stefndi byggi kröfu um sýknu í fyrsta lagi á aðildarskorti, í öðru lagi byggi hann á því að hann hafi ekki tekist á hendur neina ábyrgð á skuldbindingum Solstice Productions ehf. og í þriðja lagi er byggt á því að framkvæmdastjóri stefnda hefði aldrei getað skuldbundið félagið á þann hátt sem stefnandi byggi á.

Stefndi byggi á því að hann eigi enga aðild að máli um meinta kröfu stefnanda vegna tónleikahalds Slayer á Secret Solstice-hátíðinni sumarið 2018. Stefndi sé ekki og hafi aldrei verið í neinu samningssambandi við stefnanda eða umbjóðendur hans, Slayer Touring LLC og þungarokkssveitina Slayer. Stefnandi eigi ekki neina kröfu á hendur stefnda og því beri samkvæmt 2. mgr. 16. gr. laga um meðferð einkamála nr. 91/1991 að sýkna stefnda af kröfum stefnanda vegna aðildarskorts.

Stefndi byggi á því að hann hafi ekki tekist á hendur neina ábyrgð á skuldbindingum Solstice Productions ehf., hvorki einfalda ábyrgð né sjálfskuldarábyrgð. Stefndi mótmæli því að í málinu liggi fyrir skuldbindandi loforð af hans hálfu um að stefndi ábyrgist greiðslu meintra skulda Solstice Productions ehf. við stefnanda. Ekki sé fullnægt grunnskilyrðum þess að gilt loforð geti talist hafa stofnast.

Loforð sé viljayfirlýsing manns, er feli í sér skuldbindingu af hans hálfu, og sé beint til annars manns, eins eða fleiri, og komin til vitundar hans fyrir tilstilli loforðsgjafa. Stefndi byggi á því að það hafi ekki verið gefin nein skuldbindandi viljayfirlýsing og því síður hafi slíkri yfirlýsingu verið komið til vitundar stefnanda fyrir tilstilli stefnda. Að mati stefnda reyni stefnandi að láta samkomulag á milli stefnanda og Solstice Productions ehf. ná til stefnda. Stefndi hafi ekkert komið að því samkomulagi og verði ekki látinn bera ábyrgð á efndum þess. Í þeim ummælum sem sögð séu höfð eftir framkvæmdastjóra stefnda í fjölmiðlum felist ekki nein yfirlýsing um að stefndi takist á hendur ábyrgð á skuldbindingum annars félags og þau geti ekki gefið viðsemjendum Solstice Productions ehf. ástæðu til að telja sig eiga kröfu á hendur stefnda.

Jafnvel þótt fallist yrði á túlkun stefnanda á þeim ummælum sem séu sögð höfð eftir framkvæmdastjóra stefnda í fjölmiðlum byggi stefndi á því að framkvæmdastjórinn hafi aldrei getað skuldbundið félagið á þann hátt sem stefnandi byggi á. Framkvæmdastjóri stefnda sé hvorki stjórnarmaður í félaginu né prókúruhafi. Umboð hans takmarkist við skuldbindingar í daglegum rekstri félagsins, sbr. 2. mgr. 44. gr. laga nr. 138/1994. Það falli ekki undir daglegan rekstur félagsins að lýsa yfir ábyrgð á skuldbindingum annars félags gagnvart þriðja manni. Því skuldbindi hin meinta ábyrgðaryfirlýsing félagið ekki, enda hefði framkvæmdastjórinn með þessu farið út fyrir þær takmarkanir á heimildum sem framkvæmdastjórum séu settar í lögum um einkahlutafélög nr. 138/1994. Þetta eigi stefnanda að vera fullkomlega ljóst og því höfði hann að mati stefnda mál á hendur stefnda gegn betri vitund.

Í þessu samhengi sé rétt að benda á að í sömu frétt og stefnandi byggi málatilbúnað sinn á komi fram að stjórnarformaður stefnda hafi áður lýst því yfir að uppgjör Secret Solstice hátíðarinnar árið 2018 heyrði ekki undir stefnda heldur væri það í höndum þeirra sem ráku þá hátíð, Solstice Productions ehf., að gera hana upp. Þessi afstaða hafi síðar verið áréttuð, þ.e. að stefndi hafi ekki ábyrgst greiðslur vegna fyrri Secret Solstice-hátíða. Stefndi byggi á því að stefnandi geti ekki valið að horfa fram hjá ummælum stjórnarformanns stefnda um að skuldir vegna eldri hátíðar kæmu stefnda ekki við og horfa þess í stað aðeins til meintra ummæla framkvæmdastjóra stefnda.

Að mati stefnda virðist stefnandi einna helst standa í þessum málarekstri til þess að koma höggi á stefnda og valda honum sem mestu tjóni, meðal annars með því að grafa undan stefnda hjá Reykjavíkurborg, skattayfirvöldum og umboðsskrifstofum þeirra flytjenda sem kynntir hafi verið fyrir Secret Solstice-hátíðina 2019. Stefnandi virðist bera mikla óvild í garð hátíðarinnar og hann setji ekki fyrir sig að slá fram skaðlegum fullyrðingum um stefnda án þess að hafa nokkuð til síns máls.

Til viðbótar þeim lagaákvæðum sem stefndi hafi þegar vísað til byggi hann á meginreglum samninga- og kröfuréttar, reglum hlutafélagaréttar og ákvæðum laga nr. 138/1994 um einkahlutafélög, einkum 44. gr. og 52. gr. Vegna raka um aðildarskort vísar stefndi til 2. mgr. 16. gr. laga nr. 91/1991 og krafa um málskostnað styðst við XXI. kafla sömu laga.

Málsástæður og lagarök sakaukastefndu

Sakaukastefndu byggja kröfu sína um sýknu í fyrsta lagi á því að þeir eigi enga aðild að málinu og því beri að sýkna þá vegna aðildarskorts. Í öðru lagi er byggt á því að sakaukastefndu hafi ekki á neinn hátt valdið stefnanda tjóni, meint tjón hans sé ósannað og beri sakaukastefndu enga ábyrgð á hinu meinta tjóni. Í þriðja lagi er byggt á því að sakaukastefndu hafi ekki með nokkru móti tekist á hendur ábyrgð á meintum skuldbindingum Solstice Productions ehf., hvorki með yfirlýsingum né með framsali á eignum eða skuldum. Loks er byggt á því að rangt sé og ósannað að slík eignar- og stjórnendatengsl séu á milli sakaukastefndu, frumstefnda og félagsins Solstice Productions ehf. að beita megi hinum framúrstefnulegu lögfræðifimleikum sem stefnandi reyni að gera með málshöfðun sinni í frumsök og sakaukasök.

Sakaukastefndu, rétt eins og frumstefndi, séu ekki og hafi aldrei verið í neinu samningssambandi við Slayer Touring LLC, þungarokkssveitina Slayer eða stefnanda. Sakaukastefndu hafi ekki komið að samningsgerð Solstice Productions ehf. við Slayer Touring LLC, þungarokkssveitina Slayer og/eða stefnanda. Solstice Productions ehf. og fyrirsvarsmenn þess félags hafi gert þá samninga. Stefnandi hafi, sem áður segi, höfðað mál á hendur Solstice Productions ehf. og einum fyrirsvarsmanna félagsins, Friðriki Ólafssyni, og virðist byggja það mál á því að fyrirsvarsmaðurinn hafi gengist í ábyrgð fyrir skuld Solstice Productions ehf. við Slayer Touring LLC og/eða stefnanda. Frumsök í þessu máli sé byggð á því að framkvæmdastjóri frumstefnda hafi gefið út ábyrgðaryfirlýsingu gagnvart stefnanda. Sakaukastefndu eigi hvorki aðild að máli sem varði samningssamband Slayer Touring LLC og Solstice Productions né eigi þeir aðild að máli er varði meinta ábyrgðaryfirlýsingu framkvæmdastjóra frumstefnda. Samkvæmt meginreglum um þriðjamannslöggerninga hafi samningur aðeins í för með sér réttindi og skyldur að því er varðar samningsaðila sjálfa. Sakaukastefndu séu ekki samningsaðilar og hafi ekki lýst yfir neins konar ábyrgð. Þegar af þeim sökum beri að sýkna þá vegna aðildarskorts.

Sakaukastefndu byggja á því að meint tjón stefnanda sé alfarið ósannað, en fyrir liggi að ágreiningur hafi verið um það hvort nokkur greiðsluskylda sé fyrir hendi á milli stefnanda og upphaflegs viðsemjanda, Slayer Touring LLC, Solstice Productions ehf. og fyrirsvarsmanna þess félags. Í greinargerð Friðriks Ólafssonar séu rakin þau mótmæli sem Solstice Productions ehf., Friðrik og aðrir fyrirsvarsmenn Solstice Productions ehf. hafi haldið á lofti gegn kröfum stefnanda, Slayer Touring LLC og þungarokkssveitarinnar Slayer. Í greinargerð Friðriks komi meðal annars fram að hann telji meðstefnda í málinu, Solstice Productions ehf., þegar hafa gert upp við stefnanda og umbjóðanda hans að öllu leyti, eða í það minnsta að mjög verulegu leyti. Í greinargerðinni sé meintri kröfu stefnanda hafnað sem ósannaðri og rangri, en sakaukastefndu taka að öllu leyti undir þessar varnir Friðriks og gera þær að sínum að því leyti sem við á.

Þessu til viðbótar byggi stefnandi mál sitt gegn sakaukastefndu á því að hann hafi orðið fyrir tjóni sem sakaukastefndu beri bótaábyrgð á. Hið meinta tjón eigi að vera rakið til þess að verðmætum hafi verið komið undan kröfuhöfum með framsali á vörumerki hátíðarinnar Secret Solstice frá Solstice Productions ehf. til sakaukastefnda, Lifandi viðburða ehf., gegn óeðlilega lágu endurgjaldi. Þessu hafna sakaukastefndu alfarið og telja sig hafa eignast hið framselda á eðlilegum forsendum, meðal annars með yfirtöku tiltekinna og óumdeildra skulda hins eldra félags. Þau verðmæti sem sakaukastefndi hafi fengið afhent séu afskaplega lítils virði ein og sér, enda hafi vörumerkið Secret Solstice ekkert verðgildi ef enginn heldur tónlistarhátíðina. Sakaukastefndu hafna því að þeir hafi fengið framseld verðmæti og að þeir hafi valdið stefnanda tjóni með því framsali, slíkt sé algerlega ósannað. Stefnandi hafi því að mati sakaukastefndu hvorki sýnt fram á réttmæti kröfu sinnar á hendur Solstice Productions ehf. né hafi hann sýnt fram á að sakaukastefndu hafi valdið honum tjóni sem verði rakið til háttsemi sakaukastefndu. Því beri að sýkna þá af kröfum hans.

Að því er varðar meinta ábyrgðaryfirlýsingu framkvæmdastjóra Live events ehf. og ábyrgð sakaukastefndu vegna hennar hafna sakaukastefndu því alfarið að þeir geti borið ábyrgð á skuldbindingum Solstice Productions ehf. á grundvelli hinnar meintu yfirlýsingar. Sakaukastefndu taka undir sjónarmið frumstefnda, og gera varnir hans að sínum að því marki sem við á. Þeir árétta að framkvæmdastjóri frumstefnda, Víkingur Heiðar Arnórsson, geti aldrei skuldbundið sakaukastefndu á neinn hátt, enda gegni hann ekki neinni stöðu innan félaganna. Í frumsök byggi frumstefndi á því að yrði fallist á að meint yfirlýsing framkvæmdastjórans í fjölmiðlum væri réttilega höfð eftir honum og réttilega túlkuð af hálfu stefnanda, hefði framkvæmdastjórinn engu að síður ekki getað skuldbundið félagið á þann hátt sem stefnandi byggi á, enda hefði hann með því farið út fyrir umboð sitt, sbr. 2. mgr. 44. gr. laga nr. 138/1994. Í tilfelli sakaukastefndu gegni framkvæmdastjórinn engri formlegri stöðu og hafi ekkert umboð til þess að skuldbinda félögin. Því byggi sakaukastefndu á því að augljóst sé að þeir verði ekki skuldbundnir af meintri ábyrgðaryfirlýsingu framkvæmdastjóra frumstefnda, Live events ehf. Loks mótmæla sakaukastefndu öllum fullyrðingum stefnanda um að sakaukastefndu og frumstefndi hafi misfarið með hlutafélagaformið með það eina markmið að koma verðmætum undan kröfuhöfum. Svo sé alls ekki og slíkt sé algjörlega ósannað að þeirra mati. Það sé á huldu hver hin meintu verðmæti séu. Hins vegar liggi meðal annars fyrir að sakaukastefndu hafi greitt upp tilteknar skuldir Solstice Productions ehf., þ.e.a.s. skuldir sem Reykjavíkurborg taldi félagið standa í við sig. Þá hafna sakaukastefndu alfarið öllum fullyrðingum stefnanda um að svo náin tengsl séu á milli þeirra og fyrri rekstraraðila Secret Solstice-hátíðarinnar að líta verði á alla sem eina heild. Slíkt fái hvorki stoð í meginreglum félagaréttar né í lögum um einkahlutafélög nr. 138/1994.

Sakaukastefndu hafna því alfarið að samningar við Reykjavíkurborg um að þeir tækju yfir tilteknar skuldir eldra félagsins, og óbilgjörn framganga borgarinnar í þeim efnum, geti á einhvern hátt falið í sér staðfestingu á því að sakaukastefndu hafi tekið yfir allar skuldbindingar Solstice Productions ehf. eða að í þessu felist staðfesting á því að svo náin tengsl séu á milli sakaukastefndu og fyrri rekstraraðila hátíðarinnar að líta verði á alla sem einn og sama aðilann. Því fari fjarri að líta megi á málið á þennan hátt. Reykjavíkurborg hafi gert þessa kröfu og sett þessi skilyrði fyrir því að hátíðin yrði haldin þegar undirbúningur hátíðarinnar var svo langt á veg kominn að rekstraraðilar hátíðarinnar mátu það þannig að þeir væru að takmarka tjón sitt með því að verða við þessum kröfum borgarinnar. Sú ákvörðun hafi enga þýðingu gagnvart öðrum meintum kröfuhöfum Solstice Productions ehf. Verði ekki fallist á það með sakaukastefndu að sýkna beri þá af kröfum stefnanda byggja þeir því til vara á því að sýkna beri þá af kröfum stefnanda að svo stöddu. Til stuðnings varakröfunni byggja sakaukastefndu á því að hið meinta tjón stefnanda liggi ekki fyrir fyrr en stefnandi hafi endanlega fengið úr því skorið hvort hann eigi yfir höfuð kröfu á hendur Solstice Productions ehf., Friðrik Ólafssyni eða Live events ehf. Fyrr en sú niðurstaða hafi fengist liggi ekkert fyrir um hið meinta tjón og því verði sakaukastefndu ekki krafðir um efndir hinnar meintu kröfu stefnanda. Því beri að sýkna þá af kröfum stefnanda að svo stöddu, sbr. 2. mgr. 26. gr. laga um meðferð einkamála nr. 91/1991.

Sakaukastefndu hafna öllum áskorunum stefnanda um gagnaframlagningu og hafna því að jafnframt að líta megi svo á að með því séu þeir að samþykkja frásögn stefnanda um efni skjalanna. Stefnandi eigi ekkert tilkall til þeirra skjala sem hann hafi skorað á sakaukastefndu að leggja fram og þeim beri því ekki með nokkru móti að verða við áskorunum hans, sbr. 2. mgr. 67. gr. laga um meðferð einkamála nr. 91/1991.

Sakaukastefndu ítreka mótmæli sín við málatilbúnaði stefnanda, telja hann rangan, misvísandi og afskaplega langsóttan. Þeir hafi ekkert með stefnanda eða umbjóðanda hans að gera og vísi kröfum hans alfarið á bug. Sakaukastefndu taka að öllu leyti undir málatilbúnað frumstefnda og Friðriks Ólafssonar í máli sem stefnandi höfðaði á hendur Solstice Productions ehf. og Friðriki nr. E-1131/2019.

Til viðbótar þeim lagaákvæðum sem þegar hafi verið vísað til byggi sakaukastefndu jafnframt á meginreglum samninga-, kröfu- og félagaréttar um skuldbindingargildi samninga, kröfuábyrgðir, takmarkaða ábyrgð og meginreglur um þriðjamannslöggerninga. Sakaukastefndu vísa til þeirra ákvæða laga nr. 91/1991 sem vísað hefur verið til, en vísa einnig til XXI. kafla laganna að því er varðar kröfur sakaukastefndu um málskostnað.

Niðurstaða

Eins og áður segir reynir annars vegar á það hvort framkvæmdastjóri félagsins Live events ehf. hafi, með yfirlýsingu í fjölmiðlum, skuldbundið félagið og fellt á það skyldu til þess að greiða þá kröfu sem stefnandi eigi á hendur félaginu Solstice Productions ehf. Hins vegar reynir á það hvort sakaukastefndu beri ábyrgð á greiðslu fjárkröfu stefnanda á grundvelli reglna félagaréttar um skaðabætur og samsömum.

Fjárkrafa og tjón stefnanda Eins og fram er komið höfðaði stefnandi þetta mál á hendur frumstefnda, Live events ehf., með stefnu birtri 14. mars 2019. Þá byggði stefnandi einungis á því að með yfirlýsingu framkvæmdastjóra frumstefnda í fjölmiðlum hefði fallið á félagið skylda til þess að greiða skuld Solstice Productions við stefnanda. Frumstefndi lagði greinargerð sína fram á dómþingi 16. apríl 2019 og bar því þá ekki við að stefnandi hefði ekki orðið fyrir neinu fjártjóni í samskiptum sínum við Solstice Productions.

Sama dag og stefnandi þingfesti málið á hendur frumstefnda þingfesti hann einnig mál á hendur Solstice Productions og Friðriki Ólafssyni. Í upphafi var ekki gripið til varna í því máli en síðar um sumarið fékk stefndi Friðrik málið endurupptekið. Í greinargerð sem hann lagði fram 17. september 2019 komu fyrst fram mótmæli við því að fjárkrafa stefnanda á hendur Solstice Productions ætti rétt á sér.

Það var því ekki fyrr en sakaukastefndu lögðu fram greinargerð sína í sakaukasök 30. janúar 2020 að því var haldið fram að tjón stefnanda í viðskiptum við Solstice Productions væri ósannað. Þvert á móti yrði ekki annað séð en að Solstice hefði að fullu, í það minnsta að verulegu leyti, gert upp við hljómsveitina Slayer sem stefnandi leiðir kröfu sína frá.

Dómurinn telur að áður en tekin verði afstaða til þess hvort greiðsluskylda hvíli á frumstefnda og sakaukastefndu verði að svara því hvort stefnandi hafi orðið fyrir tjóni í viðskiptum sínum við Solstice Productions.

Eins og áður greinir samdi félagið Solstice Productions um það við hljómsveitina Slayer að gegn því að hljómsveitin kæmi fram á tónlistarhátíðinni Secret Solstice sumarið 2018 greiddi Solstice Productions þóknun fyrir tónlistarflutning, flutningskostnað og flugferðir. Allt með öllu nam fjárhæðin 329.273 bandaríkjadölum.

Hljómsveitin kom fram á hátíðinni 23. júní. Á gjalddaga 4. júlí 2018 voru enn ógreiddir 173.273 bandaríkjadalir. Fyrst reyndi hljómsveitin að fá Solstice til þess að greiða skuldina og var umboðsmaður í beinu sambandi við Friðrik Ólafsson af þeim sökum. Hann lofaði stöðugt að greiða og tók meðal annars fram í tölvupóstsamskiptum við umboðsmanninn um mánaðamót júlí og ágúst að þessi ógreidda skuld væri efst á lista hans yfir þá sem enn ættu eftir að fá greitt vegna tónlistarhátíðarinnar. Solstice Productions greiddi Slayer 40.000 dali 10. ágúst 2018 en ekkert eftir það. Stefnandi beitti miklum eftirgangsmunum. Í tölvuskeyti sem Friðrik sendi fyrirsvarsmanni stefnanda 13. september 2018 kom fram að hann hefði sett tvær eignir á sölu til þess að geta greitt Slayer persónulega það sem hljómsveitin ætti eftir að fá greitt fyrir að koma fram á hátíðinni. Stefnandi keypti kröfu hljómsveitarinnar á hendur Solstice Productions í október 2018 og hélt áfram innheimtutilraunum sem lauk með því að mál var höfðað.

Eins og áður greinir var stefna á hendur félaginu Solstice Productions árituð um aðfararhæfi 11. júní 2019. Jafnframt var Friðrik Ólafsson dæmdur til þess að greiða skuld Solstice við stefnanda 29. apríl 2020. Félagið Solstice Productions var tekið til gjaldþrotaskipta 27. maí 2020.

Telja verður árangurslaust fjárnám hjá skuldara, hvað þá þegar bú hans er tekið til gjaldþrotaskipta, fullnægjandi sönnun fyrir ógjaldfærni hans. Dómurinn telur að leggja megi til grundvallar að sú fjárhæð sem stefnandi fékk ekki greidda úr hendi Solstice Productions sé það fjártjón sem hann sitji uppi með eftir viðskipti hljómsveitarinnar Slayer við það félag enda hefur hann, á þeim tíma sem liðinn er, ekki fengið neitt frekar greitt upp í kröfuna.

Aðild Frumstefndi og sakaukastefndu byggja allir á því að sýkna verði þá af kröfum stefnanda vegna þess að þeir hafi aldrei verið í samningssambandi við hann. Þeim tjóar ekki sú málsástæða því stefnandi byggir ekki á því að hann hafi átt í samningssambandi við stefndu heldur byggir hann á því að réttarsamband hafi stofnast milli hans og stefndu á annan hátt; við frumstefnda með ábyrgðaryfirlýsingu og við sakaukastefndu með saknæmri háttsemi stjórnenda þeirra og skaðabótaábyrgð af þeim sökum á tjóni stefnanda.

Yfirlýsing framkvæmdastjóra frumstefnda Stefnandi byggir kröfu sína á hendur frumstefnda Live events ehf. á þeirri yfirlýsingu framkvæmdastjóra frumstefnda í fjölmiðlum, mbl.is og visir.is, 6. febrúar 2019 að gert yrði upp við alla listamenn sem hefðu ekki fengið greitt fyrir að koma fram á Secret Solstice-tónlistarhátíðinni 2018.

Frumstefndi mótmælir því ekki að rétt sé haft eftir framkvæmdastjóranum. Hann telur hins vegar að í þeim orðum sem séu höfð eftir honum felist ekki skuldbindandi ábyrgðaryfirlýsing.

Að mati dómsins er yfirlýsingin sem stefnandi byggir á skýr og ótvíræð enda er í henni staðhæft, fyrirvaralaust, að gert verði upp við alla listamenn sem hafi ekki enn fengið greitt fyrir að koma fram á Secret Solstice-tónlistarhátíðinni 2018 („síðustu hátíð“).

Samkvæmt orðalagi yfirlýsingarinnar er ekki vafi á því að henni hafi verið ætlað að skuldbinda frumstefnda Live events ehf. Þegar framkvæmdastjóri frumstefnda ræddi við blaðamenn mátti honum vera ljóst að orð hans myndu birtast víða og þeir listamenn sem enn áttu eftir að fá greitt, eða umboðsmenn þeirra, myndu lesa viðtalið. Hann hlýtur einnig að hafa gengið út frá því að þessir listamenn legðu trúnað á það sem kæmi fram í viðtölunum enda verður ekki annað séð en að yfirlýsingin hafi verið gefin til þess að lægja öldur meðal þeirra tónlistarmanna sem ekki höfðu fengið greitt og auka vilja þeirra til þess að koma fram á næstu Secret Solstice-tónlistarhátíð. Dómurinn telur því að líta verði svo á að yfirlýsingunni hafi verið beint til þeirra listamanna þótt hún kæmi fram í viðtali við blaðamenn. Með vísan til þessa telur dómurinn jafnframt að uppfyllt séu þau skilyrði að vilji frumstefnda til þess að gera upp við listamennina hafi komist til vitundar þeirra fyrir tilstilli frumstefnda, loforðsgjafans.

Að mati dómsins eru því uppfyllt öll skilyrði þess að bindandi loforð hafi verið gefið. Í yfirlýsingunni gefur ekkert til kynna að hún hafi einvörðungu átt að taka til innlendra listamanna eins og frumstefndi byggir á. Viðurkennt er að við túlkun gerninga sem þessara, sem eru ekki örlætisgerningar heldur staðfesting á því að greitt verði fyrir unnið verk, skuli beita traustkenningunni. Samkvæmt henni skulu fjármunaréttargerningar hafa réttaráhrif eftir orðanna hljóðan, þ.e. þeirri merkingu sem viðtakandinn með sanngirni má ætla að felist í orðalagi löggerningsins.

Jafnframt má líta til kröfubréfs sem lögmaður stefnanda sendi fyrirsvarsmanni frumstefnda 18. desember 2018. Í því var gerð grein fyrir samningi Solstice Productions og Slayer, hvað samist hefði um að Solstice greiddi Slayer fyrir að koma fram á tónleikunum, svo og flutningskostnað og flugkostnað. Í bréfinu er einnig tilgreint fyrir hvað Slayer eigi enn eftir að fá greitt og hversu há sú fjárhæð sé. Framkvæmdastjóri frumstefnda vissi því að Slayer leit svo á að hljómsveitin ætti enn kröfu á Solstice Productions og ynni að því að fá hana greidda. Einungis sjö vikum síðar lofaði framkvæmdastjórinn þeim listamönnum sem komið hefðu fram á hátíðinni greiðslu. Hann vissi því að meðal þeirra listamanna sem höfðu ekki fengið greitt að fullu fyrir að koma fram á hátíðinni var hljómsveitin Slayer. Eins og fram er komið var því aldrei borið við að krafa Slayer á hendur Solstice Productions væri umdeild fyrr en Friðrik Ólafsson greip, í september 2019, til varna í málinu sem stefnandi höfðaði á hendur honum í apríl það ár. Rakið hefur verið að í samskiptum Friðriks við Slayer, sumarið 2018, tók hann fram að krafa hljómsveitarinnar væri efst á lista hans yfir þá sem hann þyrfti að gera upp við og hann vefengdi ekki gildi hennar meira en svo að hann lofaði framkvæmdastjóra stefnanda því að hann myndi greiða hana persónulega um leið og hann hefði selt aðra af tveimur eignum sem hann hafði sett á sölu.

Frumstefndi byggir í öðru lagi á því að yfirlýsingin sé ekki skuldbindandi fyrir hann þar eð framkvæmdastjórinn hafi farið út fyrir stöðuumboð sitt. Samkvæmt 2. mgr. 44. gr. laga nr. 138/1994 um einkahlutafélög sé stöðuumboð hans takmarkað við daglegan rekstur félagsins. Til dagslegs reksturs teljist ekki ráðstafandir sem séu óvenjulegar eða mikils háttar. Það hvílir á frumstefnda að sanna að ráðstöfun framkvæmdastjórans falli í þann flokk.

Árétta má að eftir að fréttirnar birtust á visir.is og mbl.is 6. febrúar 2019 kom enginn fram fyrir hönd frumstefnda og lýsti yfir því að framkvæmdastjórinn hefði ekki haft umboð til þess að gefa út þetta loforð. Því getur það ekki haft þýðingu við mat á skuldbindingargildi yfirlýsingarinnar þótt eigandi L- félaganna (Lifandi viðburða, Live events og L Events), Guðmundur Hreiðarsson Viborg, hafi sagt í viðtali í nóvember 2018 að uppgjör hátíðarinnar heyrði ekki undir hann heldur Solstice Productions.

Það kom fram í tölvuskeytum Katrínar Ólafsson til starfsmanns borgarinnar að slá yrði á neikvæða umfjöllun. Það kom fram í skýrslu eiginmanns hennar, Jóns Bjarna, fyrir dómi að nauðsynlegt hefði verið fyrir aðstandendur tónlistarhátíðarinnar að snúa við þeirri neikvæðu umræðu sem hafði farið af stað í nóvember og desember 2018 í kjölfar frétta um skuldaslóð eftir Secret Solstice. Þótt yfirlýsingin kunni að hafa verið gefin sem svar við fyrirspurn blaðamanns var mjög mikilvægt fyrir þá sem ætluðu sér að halda tónlistarhátíðina sumarið 2019 að gefa þessa yfirlýsingu í fjölmiðlum til þess að róa þá listamenn sem höfðu komið fram á hátíðinni og enn hafði ekki verið samið við eða höfðu ekki enn fengið greitt.

Í framburði Jóns Bjarna, varamanns í stjórn frumstefnda, kom fram að framkvæmdastjórinn hefði haft heimild stjórnar til þess að gefa þessa yfirlýsingu vegna íslenskra listamanna sem komu fram á hátíðinni.

Eins og fram er komið veitti Katrín Ólafsson starfsmanni borgarinnar það svar, 21. nóvember 2018, að nýr aðili hefði tekið við rekstri tónlistarhátíðarinnar. Hún gat þess einnig að samið hefði verið við flesta kröfuhafa og væri það „partur af yfirtöku nýrra aðila að gera upp skuldir Solstice Productions“. Jón Bjarni gaf það einnig út á samfélagsmiðlum 27. nóvember 2018 að eina ástæða þess að þau væru að reyna að halda tónlistarhátíðinni lifandi væri sú að þau vildu gera upp skuldir við fólk sem ætti ekki skilið að fá ekki greitt. Hver króna sem kæmi inn yrði nýtt til þess að gera upp skuldir félagsins.

Það verður því að fallast á það með stefnanda að yfirlýsing framkvæmdastjórans í blaðaviðtölum 6. febrúar 2019 hafi verið í samræmi við yfirlýsta stefnu stjórnar félagsins Live events en í henni sátu bæði Katrín Ólafsson og Jón Bjarni. Framkvæmdastjórinn hafði því umboð til þess að gefa þetta loforð.

Þar eð yfirlýsingin er fyrirvaralaus telur dómurinn hvað sem líður nauðsyn þess að róa íslenska listamenn að ekki verði byggt á því að hún taki einungis til þeirra. Með því að gefa þessa yfirlýsingu í fjölmiðlum tók framkvæmdastjóri frumstefnda áhættuna af því hvaða skilning kröfuhafar Solstice Productions myndu leggja í hana. Í henni er ekki gerður greinarmunur á íslenskum listamönnum og erlendum.

Frumstefndi hefur ekki heldur sýnt fram á að sú ráðstöfun sem felst í yfirlýsingunni, að því marki sem hún tekur til kröfu stefnanda, sé mikils háttar miðað við efnahag frumstefnda.

Að mati dómsins hefur frumstefndi Live events ehf. hvorki sýnt fram á að framkvæmdastjórinn hafi farið út fyrir umboð sitt né að stefnandi eða umboðsmaður hans hafi við lestur yfirlýsingarinnar mátt vita að hann hefði farið út fyrir heimild sína og telja verði ósanngjarnt að stefnandi byggi rétt á yfirlýsingunni.

Dómurinn telur framkvæmdastjórann því hafa veitt skuldbindandi loforð sem stefnandi geti byggt á þá kröfu að Live events ehf. greiði honum eftirstöðvar skuldbindinga Solstice Productions við stefnanda. Frumstefndi ber því einfalda kröfuábyrgð á greiðslu skuldar Solstice Productions við stefnanda og varð sú ábyrg virk um leið og bú Solstice var tekið til gjaldþrotaskipta. Skaðabótaábyrgð sakaukastefndu og samsömun þeirra og Solstice Productions Stefnandi byggir á því að sakaukastefndu Lifandi viðburðir og L Events beri skaðabótaábyrgð á greiðslu skuldar Solstice Productions við hann. Skaðabótaábyrgðin hafi stofnast við það að stjórnendur Solstice Productions hafi flutt allar eignir þess félags í síðarnefndu félögin án þess að skilyrði félagaréttar til þess væru uppfyllt. Solstice beri þannig skaðabótaábyrgð á tjóni stefnanda. Vegna náinna stjórnunartengsla og rekstrarfyrirkomulags verði að líta á L-félögin sem eitt félag og vegna náinna stjórnunartengsla þeirra og Solstice verði að samsama þau sem heild Solstice þannig að þau beri óskipta skaðabótaábyrgð á tjóni stefnanda.

Eins og rakið hefur verið tóku þrjú félög við þeirri starfsemi sem Solstice Productions hafði áður með höndum. Drög voru lögð að því þegar í ágúst 2018 þegar félagið Show ehf. var stofnað, sem heitir nú Lifandi viðburðir, og í september sama ár þegar félagið Show Live ehf. var stofnað, sem heitir nú Live events.

Undirbúningur hófst að Secret Solstice-hátíðinni 2019, strax að lokinni hátíðinni 2018. Þá þegar var á reiki hvort það væri félagið Lifandi viðburðir ehf. eða félagið Live events ehf. sem hefði rekstur hátíðarinnar með höndum. Ekki virtist mikill munur á félögunum annar en nafnið og kennitalan. Guðmundur Hreiðarsson Viborg átti bæði félögin. Hann var eini stjórnarmaðurinn og stjúpsonur hans, Jón Bjarni Steinsson, var varamaður í stjórn og hafði leyfi til að skuldbinda bæði félögin (hafði prókúruumboð). Því verður ekki séð að Lifandi viðburðir hafi verið móðurfélag Live events ehf. Í desember 2018 var kominn framkvæmdastjóri í félagið Live events, Víkingur Heiðar Arnórsson, og hafði hann frá þeim tíma samskipti við Reykjavíkurborg vegna undirbúnings hátíðarinnar 2019. Fram að því kemur nafn hans ekki fyrir í gögnum málsins. Samkvæmt framlögðum gögnum virtist hann geta komið fram fyrir hönd beggja félaganna.

Eins og áður greinir var fjölmiðlum tilkynnt að Live events hefði tekið við vörumerki Secret Solstice og rekstri hátíðarinnar og það félag sótti um leyfi til þess að halda hátíðina í Laugardal. Engu að síður var það félagið Lifandi viðburðir sem fékk vörumerkið framselt frá Solstice Productions 18. febrúar 2019 og það var nafn og kennitala Lifandi viðburða sem var sett í samninginn við Reykjavíkurborg 31. maí 2019. Fyrir hönd Lifandi viðburða ritaði Víkingur undir samninginn. Samkvæmt samningnum var hann löglegur umboðsmaður þess félags þótt þess væri ekki getið í gögnum frá fyrirtækjaskrá.

Það verður því að fallast á það með stefnanda að félögin Live events og Lifandi viðburðir hafi verið rekin eins og væru þau eitt félag og hafi hending ráðið því hvort nafnið var notað í hverju tilviki fyrir sig.

Þriðja félagið, L Events ehf., var stofnað í mars 2019 en skráð hjá fyrirtækjaskrá í maí það ár. Það á Guðmundur Hreiðarsson Viborg, eins og hin tvö félögin, og hann er eini stjórnarmaður en stjúpsonur hans, Jón Bjarni, er varamaður í stjórn.

Þeir sem voru í fyrirsvari fyrir undirbúning tónlistarhátíðarinnar 2019 útskýrðu fyrir Reykjavíkurborg þörfina á því að reka hana framvegis í þremur félögum. Katrín sagði 4. desember 2018 að Live events sæi um að halda hátíðina en það félag væri í eigu Lifandi viðburða. Í byrjun apríl 2019 útskýrði Víkingur fyrir starfsmanni Reykjavíkurborgar að Lifandi viðburðir væri móðurfélag sem ætti 100% þau félög sem stæðu að Secret Solstice hátíðinni. Live events og systurfélög myndu sjá um skipulagningu og rekstur hátíðarinnar. Fleiri en eitt félag væri notað til þess að hver rekstrareining væri rekin á hámarksafköstum með tilliti til skatta og gjalda, svo sem vegna áhrifa þess að ekki sé greiddur virðisaukaskattur af miðum á tónlistarviðburði. Um miðjan maí 2019 kallaði borgin enn eftir útskýringum og þá var svarið það að Lifandi viðburðir væri móðurfélag Live events og L Events og leyfishafi á leigusamningi fyrir Laugardal. Live events væri rekstrarfélag. Allir reikningar með virðisaukaskatti færu á það félag svo, sem kostnaður við uppbyggingu svæðisins og verktakavinna, en L Events tæki á móti greiðslum fyrir miðum og greiddi tónlistarmönnum laun. Það félag sæi um allt sem ekki væri greiddur virðisaukaskattur af. Skýringin væri því meðal annars sú að halda þyrfti aðgreindu því sem selja þyrfti að viðbættum virðisaukaskatti frá því sem ekki bæri virðisaukaskatt.

Skilyrði þess að tónleikar séu undanþegnir virðisaukaskatti er að þeir tengist ekki á neinn hátt öðru samkomuhaldi eða veitingastarfsemi, sbr. 4. tölulið 3. mgr. 2. gr. laga nr. 50/1988 um virðisaukaskatt. Eftir því sem næst verður komist á það ekki við um hátíðina Secret Solstice. Dómurinn fær því ekki séð að það samræmist lögum um virðisaukaskatt að reka tónlistarhátíð sem þessa í fleiri félögum en einu. Dómurinn telur sakaukastefndu því ekki hafa sýnt fram á þörfina fyrir það að reka tónlistarhátíðina í þremur félögum, hvorki vegna fyrirmæla laga né af ástæðum sem varða rekstur tónlistarhátíðar. Til þess er að líta að næstliðin fimm ár hafði hátíðin verið rekin af einu félagi, Solstice Productions. Til þess er einnig að líta að félagið L Events var ekki tilkynnt til fyrirtækjaskrár fyrr en 21. maí 2019, mánuði áður en hátíðin var haldin það ár. Hlutverk þess félags var þó sagt vera að taka við tekjum af miðasölu. Fyrir liggur að miðasala hófst mun fyrr.

Það er því niðurstaða dómsins að öll L-félögin þrjú; Lifandi viðburðir, Live events og L Events hafi verið rekin eins og væru þau eitt félag.

Eins og áður greinir voru systkinin Friðrik Ólafsson og Katrín Ólafsson bæði í stjórn félagsins Solstice Productions og höfðu bæði prókúru. Friðrik var jafnframt hluthafi og var skráður framkvæmdastjóri félagsins. Frá haustinu 2014 vann Jón Bjarni Steinsson einnig fyrir félagið að undirbúningi Secret Solstice-tónlistarhátíðarinnar.

Þótt Solstice Productions væri hætt að undirbúa tónlistarhátíðina sýna framlögð gögn að Friðrik var áfram í samskiptum við Reykjavíkurborg við undirbúning hennar. Jafnframt sýna gögn að hann var tengiliður tónlistarhátíðarinnar við erlenda flytjendur í gegnum félagið Live events ehf. Framlögð gögn sýna einnig að Katrín Ólafsson var framkvæmdastjóri félags sem hét upphaflega Show en fékk síðan nafnið Lifandi viðburðir. Hún tilkynnti ríkisskattstjóra 18. desember 2018 að hún starfaði ekki lengur sem framkvæmdastjóri félagsins og hefði ekki prókúru fyrir það. Eiginmaður hennar hélt hins vegar áfram starfi sínu fyrir félagið og heimild til þess að skuldbinda það. Hún var einnig skráð formaður stjórnar félagsins Show Live ehf. sem fékk síðar nafnið Live events. Ekki liggja fyrir gögn um það hvenær hún sagði sig úr stjórn þess félags en samkvæmt gögnum málsins var það fyrir 20. mars 2019.

Samkvæmt tölvupósti sem Jón Bjarni ritaði starfsmanni Reykjavíkurborgar 20. maí 2019 var Katrín enn viðriðin skipulag tónlistarhátíðarinnar.

Katrín og Friðrik voru einnig við stjórnvölinn þegar unnið var að því að fá leyfi Reykjavíkurborgar fyrir því að halda Secret Solstice-hátíðina 2019. Gögn sýna að starfsmaður borgarinnar gekk út frá því að þau væru að vinna fyrir Solstice Productions þar til þau tilkynntu honum 21. nóvember 2018 að nýr aðili, Live events, hefði tekið við, svo og að samið hefði verið við flesta kröfuhafa og það væri partur af yfirtöku nýrra aðila að gera upp skuldir Solstice Productions.

Að auki greiddi Live events og hugsanlega einnig Lifandi viðburðir kröfur þeirra íslensku listamanna sem ekki höfðu fengið greitt fyrir að koma fram á hátíðinni 2018 og framkvæmdastjóri Live events gaf margnefnda yfirlýsingu. Þau greiddu einnig kröfur Reykjavíkurborgar og KSÍ og rafvirkja og veitingamanna sem höfðu ekki fengið greitt fyrir vinnu við þá hátíð.

Dómurinn telur því fram lögð gögn sýna náin stjórnunartengsl á milli Solstice Productions og hinna tveggja nýju félaga, Lifandi viðburða og Live events, sem tóku við eignum og rekstri tónlistarhátíðarinnar Secret Solstice haustið 2018 enda hélt sama fólkið um stjórnartauma bæði í félaginu sem lét frá sér eignir og rekstur svo og þeim félögum sem við þeim tóku þar til fyrir lá að borgin myndi heimila Secret Solstice-tónleika í Laugardal sumarið 2019 svo og að hún setti það ekki fyrir sig að nýtt félag tæki við rekstrinum gegn því að gert yrði upp við borgina og þá margvíslegu iðnaðarmenn og seljendur þjónustu sem Solstice Productions skuldaði.

Sakaukastefndu byggja á því að einhver, sem hafi lánað Solstice Productions 130.000.000 kr., hafi leyst til sín eignir þess félags og hafi Lifandi viðburðir og Live events fengið eignir Solstice frá honum. Þessu til stuðnings leggja þeir þó ekki fram nein gögn. Þeir hafa hins vegar ekki byggt á því að það séu ekki til nein gögn um framsalið. Að auki sýna gögn frá Einkaleyfastofu að vörumerkið Secret Solstice var framselt beint frá Solstice Productions til Lifandi viðburða ehf. (þá Show ehf.) Þar eð sakaukastefndu hafa ekki lagt fram nein gögn til stuðnings þessari málsástæðu sinni, jafnvel ekki þótt stefnandi hafi skorað á þá, telur dómurinn að hún verði ekki lögð til grundvallar niðurstöðu málsins. Þvert á móti verði, meðal annars með vísan til gagna frá Einkaleyfastofu, að leggja til grundvallar að eignir og rekstur Solstice Productions hafi farið milliliðalaust fyrst til Lifandi viðburða og Live events og síðar einnig til L Events.

Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu gerði árangurslaust fjárnám hjá Solstice Productions í lok ágúst 2018 og samkvæmt fréttum fjölmiðla var oftar en einu sinni gert árangurslaust fjárnám hjá félaginu. Það var því í reynd ógjaldfært þótt það tefðist alllengi að taka það til gjaldþrotaskipta. Sú töf skýrist af því að fyrirsvarsmaður þess, Friðrik Ólafsson, hafði skráð lögheimili sitt í útlöndum. Eins og atvik málsins sýna var það ekki hugmynd stjórnenda þess félags að reyna að snúa stöðunni við og halda því á floti. Þvert á móti var hugmyndin að leyfa því að sigla í strand en varpa farminum fyrst yfir í önnur félög.

Þar eð fjárhagur Solstice var svo bágur að félagið stefndi í gjaldþrot var saknæmt og ólögmætt að ráðstafa hagsmunum þess til L-félaganna enda voru með því bornir fyrir borð hagsmunir stefnanda og annarra kröfuhafa Solstice í sömu stöðu, þ.e. sem ekki hafði þegar verið greitt eða samið við vegna tónleikanna 2018.

Verður að telja þá sem stjórnuðu á sama tíma bæði Solstice og L-félögunum hafa í sameiningu stuðlað að því að eignir Solstice gengu til L-félaganna. Að mati dómsins verður að telja hina raunverulega stjórnun atvika hafa verið í L-félögunum og líta verður á það þríeyki (Live events, Lifandi viðburði og L Events) sem móðurfélag Solstice Productions enda var ráðstöfun á eignum og rekstri Solstice Productions þeim til hagsbóta og verður ekki annað séð en þau hafi verið gagngert til þess stofnuð.

Eins og áður greinir hafa sakaukastefndu, þrátt fyrir áskorun stefnanda, ekki lagt fram nein gögn um yfirfærslu eigna frá Solstice Productions til L-félaganna, einkum Lifandi viðburða og Live events. Því liggur ekki fyrir hvort L-félögin greiddu nokkuð ef eitthvað fyrir eignir og rekstur Solstice. Telja verður að á þeim hvíli sönnunarbyrðin fyrir því hvort hagsmunir Solstice, sem voru færðir til L-félaganna, hefðu ekki nægt til fullnustu fjárkröfu stefnanda.

Því þykir verða að leggja til grundvallar að höfuðstóll kröfu stefnanda hefði fengist greiddur hefði eignum Solstice ekki verið afsalað til L-félaganna.

Þegar litið er til verkefnis L-félaganna, að reka tónlistarhátíð, er það mat dómsins að líta beri á þau öll sem eina heild enda er hvorki lagalegur né viðskiptalegur tilgangur í að reka hátíðina í fleiri en einu félagi. Af þeim sökum og vegna hinna ólögmætu og saknæmu ráðstafana stjórnenda þeirra við að koma hagsmunum Solstice yfir í L-félögin telur dómurinn að þau verði öll að bera óskipta bótaábyrgð á því tjóni stefnanda sem rekja má til háttsemi stjórnenda þeirra.

Því þarf ekki að taka afstöðu til þeirrar málsástæðu sem stefnandi færir fram til vara fyrir ábyrgð stefndu á tjóni hans, þ.e. ábyrgð sakaukastefndu vegna ábyrgðarloforðs frumstefnda.

Sakaukastefndi Guðmundur Viborg Í skriflegri aðilaskýrslu Jóns Bjarna kom fram, og það kom einnig fram í aðilaskýrslu hans fyrir dómi, að hann hefði gert stjúpföður sínum, Guðmundi Hreiðarssyni Viborg, grein fyrir því í ágúst 2018 að Solstice Productions gæti ekki greitt einum lánardrottna sinna 130.000.000 kr. lán sem væri fallið í gjalddaga. Sakaukastefnda Guðmundi mátti því vera ljóst að þær athafnir stjórnenda L-félaganna að færa Lifandi viðburðum og Live events öll verðmæti úr Solstice Productions þegar skylt var orðið að gefa bú þess upp til gjaldþrotaskipta voru bæði saknæmar og ólögmætar, nema hagsmunir kröfuhafa félagsins væru að fullu tryggðir.

Samkvæmt fram lögðum gögnum er sakaukastefndi Guðmundur eini eigandi allra L-félaganna og stjórnarmaður í þeim öllum. Hann er því sá sem nýtur hags af ólögmætum og saknæmum athöfnum stjórnenda þessara félaga sem hafa orðið stefnanda til tjóns. Því verður að fallast á það að hann beri, með L-félögunum, skaðabótaábyrgð á tjóni stefnanda á grundvelli almennra reglna skaðabótaréttar.

Varakrafa sakaukastefndu Það er varakrafa sakaukastefndu að þeir verði sýknaðir að svo stöddu. Það byggja þeir á því að ábyrgðin sem kynni að verða felld á þá sé svokölluð tjónsábyrgð. Hún komi ekki til fullnustu fyrr en stefnandi hafi reynt til þrautar að ganga að öðrum tryggingum fyrir veðinu og vísa þeir þá meðal annars til dóms þess efnis að Friðriki Ólafssyni, fyrrum framkvæmdastjóra Solstice, bæri að greiða stefnanda stefnufjárhæðina á grundvelli loforðs sem hann hefði gefið fyrirsvarsmanni stefnanda.

Ábyrgðin sem hvílir á frumstefnda er einföld ábyrgð. Hún verður virk þegar aðalskuldari greiðir ekki, til dæmis þegar bú hans er tekið til gjaldþrotaskipta. Sú ábyrgð sem dómurinn telur að hvíli á sakaukastefndu vegna ólögmætra og saknæmra athafna stjórnenda L-félaganna er ekki kröfuábyrgð heldur skaðabótaábyrgð. Dómurinn telur því að henni verði ekki jafnað við tjónsábyrgð samkvæmt kröfurétti og því sé stefnanda ekki skylt að reyna til þrautar að fá aðalskuldara eða ábyrgðarmenn til þess að greiða áður en hann geti krafið sakaukastefndu um bætur. Stefnandi er því sýkn af varakröfu sakaukastefndu.

Það er því niðurstaða dómsins að frumstefndi Live events beri ábyrgð á tjóni stefnanda á grundvelli loforðs sem fólst í yfirlýsingu framkvæmdastjóra stefnda í fjölmiðlum 6. febrúar 2019 og að sú ábyrgð sem hafi við það fallið á Live events sé einföld ábyrgð.

Það er að auki niðurstaða dómsins að það hafi verið saknæmt og ólögmætt að færa L-félögum verðmæti úr Solstice Productions, þegar svo var komið að skylt var að gefa það félag upp til gjaldþrotaskipta, nema tryggja á sama tíma hagsmuni allra kröfuhafa félagsins. Það er jafnframt niðurstaða dómsins að svo náin stjórnunartengsl hafi verið milli Solstice Productions og L-félaganna að samsama verði hin síðarnefndu hinu fyrrnefnda og líta á L-félögin sem móðurfélag Solstice þegar verðmæti voru færð úr því til L-félaganna. Dómurinn telur enn fremur að engin lagaleg heimild sé fyrir því að reka eina tónlistarhátíð í þremur félögum. Því verði að líta á L-félögin þrjú sem eina heild.

Þótt greiðsluskylda Live events byggist á ábyrgð samkvæmt kröfurétti og greiðsluskylda sakaukastefndu Lifandi viðburða, L Events og Guðmundar Hreiðarssonar Viborg byggist á skaðabótaábyrgð verður, vegna hinna nánu stjórnunar- og hagsmunatengsla, að líta svo á að ábyrgð þeirra allra sé óskipt. Stefndu mótmæla ekki vaxtakröfum stefnanda og því verður fallist á þær óbreyttar.

Með vísan til þessarar niðurstöðu og 1. mgr. 130. gr. laga nr. 91/1991 ber öllum stefndu að greiða stefnanda málskostnað óskipt, sbr. 2. mgr. 132. gr. sömu laga.

Málskostnaður stefnanda úr hendi stefndu þykir hæfilega ákveðinn 2.700.000 kr. Við ákvörðun málskostnaðarins var litið til eðlis málsins svo og þess að málið var tvisvar flutt um kröfu stefndu um frávísun, fyrst frumstefnda og síðar sakaukastefndu. Virðisaukaskattur á málflutningsþóknun er meðtalinn í fjárhæðinni. Ingiríður Lúðvíksdóttir héraðsdómari kveður upp þennan dóm.

D Ó M S O R Ð

Stefndu, Live events ehf., L Events ehf., Lifandi viðburðir ehf. og Guðmundur Hreiðarsson Viborg, greiði stefnanda, K2 Agency Limited, óskipt 133.273,45 bandaríkjadali með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá 4. júlí 2018 til greiðsludags. Stefndu greiði stefnanda óskipt 2.700.000 kr. í málskostnað.

Heimildaskrá

Lagaskrá

Lög nr. 50/1988 Lög um virðisaukaskatt 3. mgr. 2. gr.
Lög nr. 91/1991 Lög um meðferð einkamála 2. mgr. 16. gr.2. mgr. 26. gr.1. mgr. 33. gr.1. mgr. 42. gr.44. gr.52. gr.2. mgr. 67. gr.1. mgr. 68. gr.1. mgr. 130. gr.2. mgr. 132. gr.XXI. kafli
Lög nr. 138/1994 Lög um einkahlutafélög 3. mgr. 2. gr.2. mgr. 44. gr.108. gr.1. mgr. 108. gr.2. mgr. 108. gr.
Lög nr. 38/2001 Lög um vexti og verðtryggingu 1. mgr. 5. gr.1. mgr. 6. gr.