Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
2 dómar fundust
Lykilorð: Áreiðanleikakönnun
Stefnandi krafðist þess að viðurkenndur yrði réttur hans til skaðabóta úr hendi stefnda vegna tjóns sem hann sagði hafa leitt af þeirri ákvörðun stefnda að loka fyrir viðskipti um bankareikning stefnanda og slíta viðskiptasambandi aðila í kjölfarið. Munu umræddar aðgerðir hafa komið til í kjölfar þess að há millifærsla barst inn á reikning stefnanda sem stefndi taldi í ósamræmi við upplýsingagjöf hans í áreiðanleikakönnun um mánaðarlega veltu. Í dómi héraðsdóms kom fram að aðgerðir bankans hefðu samrýmst lögum nr. 140/2018 um peningaþvætti og aðgerðir gegn hryðjuverkum og almennum skilmálum stefnda, sem stefnandi hafði skuldbundið sig til að hlíta. Stefnandi hefði að öðru leyti ekki sýnt fram á að brotið hefði verið gegn rétti hans með ólögmætum og saknæmum hætti. Loks var það mat dómsins að meint tjón stefnanda væri með öllu ósannað. Var stefndi því sýknaður af kröfum stefnanda.
Hafnað var kröfu stefnanda um greiðslu skaðabóta úr hendi stefnda í tengslum við kaup stefnanda á öllum hlutabréfum í Lagnalagernum ehf. Var talið ósannað að stefndi hefði með saknæmum og ólögmætum hætti valdið stefnanda rangar upplýsingar um Lagnalagerinn ehf.