Ákæruvaldið (
Halldór Rósmundur Guðjónsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Sigurjóni Þór Kristinssyni (
Sveinn Andri Sveinsson lögmaður)
Brot gegn valdstjórninni.
Ákæruvaldið (
Arnfríður Gígja Arngrímsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
X (
Ingi Freyr Ágústsson lögmaður)
Brot gegn valdstjórninni, játning, játningarmál, lögreglumaður, lögreglumenn, refsiákvörðun, skilorðsbundnir dómar, skilorðsbundið fangelsi, valdstjórnarbrot, viðurlög.
Sakfellt og sýkna að hluta fyrir brot gegn valdstjórninni. Einnig sakfellt fyrir þjófnaði og endurtekinn akstur undir áhrifum áfengis og fíkniefna o.fl.
Ákæruvaldið (
Friðrik Smári Björgvinsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Ólafi Björgvin Hermannssyni (
Ólafur Valur Guðjónsson lögmaður)
Sakfellt fyrir endurtekinn vímuefna- og sviptingarakstur, brot gegn lögreglulögum og valdstjórninni og stórfelldan innflutning fíkniefna.
Sakfellt fyrir brot gegn valdstjórninni.
Ákæruvaldið (
Dröfn Kjærnested aðstoðarsaksóknari)
gegn
Benedikt Sveins Ásgeirssyni (
Úlfar Guðmundsson lögmaður)
Brot gegn valdstjórninni.
Héraðssaksóknari (
Friðrik Smári Björgvinsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
X (
Jónas Örn Jónasson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir brot gegn valdstjórninni, eignaspjöll, líkamsárás, hótanir og fjársvik. Rof á skilorði og hegningarauki. Refsing ákærða ákveðin 10 mánaða fangelsi
Ákæruvaldið (
Margrét Unnur Rögnvaldsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Amalíu P. Arthursdóttur (
Flosi Hrafn Sigurðsson hdl)
Kona dæmt í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir brot gegn valdstjórninni.
Ákæruvaldið (Pétur Hrafn Hafstein saksóknarfulltrúi) gegn
Jóni E. Vilhjálmssyni
Maður sakfelldur fyrir brot gegn valdsstjórninni.
B var sakfelldur fyrir tvö brot gegn valdstjórninni samkvæmt 1. mgr. 106. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Annars vegar fyrir að hafa vopnaður hnífi veist með ofbeldi og hótunum um ofbeldi að tveimur lögreglumönnum við skyldustörf en fyrir þá háttsemi var B einnig sakfelldur fyrir tilraun til líkamsárásar með hættulegu tæki samkvæmt 2. mgr. 218. gr. laga nr. 19/1940. Hins vegar fyrir að hafa síðar sama dag veist með hótunum að tveimur öðrum lögreglumönnum við skyldustörf. Þá var B sakfelldur fyrir fíkniefnalagabrot með því að hafa haft í vörslum sínum 4,09 grömm af maríhúana og 2 kannabisplöntur og fyrir að hafa um nokkurt skeið ræktað greindar plöntur.Var refsing B ákveðin níu mánaða fangelsi en fullnustu sex mánaða hennar var frestað skilorðsbundið í tvö ár og nánar tilgreindir munir gerðir upptækir.
Ákæruvaldið (
Daði Kristjánsson saksóknari)
gegn
Lárusi Ragnari Einarssyni (
Pétur Kristinsson hdl)
Maður var ákærður fyrir að veitast að tveimur lögreglukonum með ofbeldi. Var hann sakfelldur fyrir ofbeldið gagnvart annarri þeirra en sýknaður af því að hafa slegið hina lögreglukonuna í andlitið af ásetningi. Þá var maðurinn og sakfelldur fyrir að óhlýðnast fyrirmælum og merkjagjöf lögreglu um að nema staðar.
Maður sakfelldur fyrir brot gegn valdstjórninni.
Ákærði sakfelldur fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni og almennum hegningarlögum.
Ákæruvaldið (Daði Kristjánsson saksóknari) gegn
Guðbjörgu Gróu Guðmundsdóttur (sjálf)
G var sakfelld fyrir brot gegn valdstjórninni með því að hafa sparkað í fót lögreglumannsins A, sem var við skyldustörf, og reynt að slá hana í andlitið. Með brotinu rauf G skilorð samkvæmt eldri dómi og var hann því tekinn upp og henni gerð refsing í einu lagi fyrir brotin. Þá var það virt G til refsiþyngingar að hún hafði áður verið sakfelld fyrir brot gegn valdstjórninni. Var refsing G ákveðin fangelsi í átta mánuði, en fullnustu fimm mánaða af refsingunni var frestað skilorðsbundið í tvö ár.
Ákæruvaldið (
Daði Kristjánsson saksóknari)
gegn
Arnþóri Jökli Þorsteinssyni (
Ragnar Aðalsteinsson hrl)
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.
Ákæruvaldið (Daði Kristjánsson saksóknari) gegn
Ólafi Ágúst Agnarssyni I
Brot gegn valdstjórninni.
Ákæruvaldið (Daði Kristjánsson saksóknari) gegn
X I
Ákærði sakfelldur fyrir hegningarlagabrot gagnvart fyrrverandi sambýliskonu sinni og brot gegn valdstjórninni.
Ríkissaksóknari (
Daði Kristjánsson saksóknari)
gegn
Hálfdáni Finnbjörnssyni (
Oddgeir Einarsson hrl)
Brot gegn valdstjórninni.
Brot gegn valdstjórninni.
Ákæruvaldið (
Óli Ingi Ólason aðstoðarsaksóknari)
gegn
Eggerti Jens Birgissyni (
Bragi Dór Hafþórsson hdl)
E sakfelldur fyrir valdstjórnarbrot.
Brot gegn valdstjórninni
Ríkissaksóknari (
Daði Kristjánsson saksóknari)
gegn
Maríu Sigurlaugu Arnórsdóttur (
Ómar Örn Bjarnþórsson hdl)
Ákærða sakfelld fyrir hótanir og tvö valdstjórnarbrot.
Ákæruvaldið (
Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari)
gegn
Þórhalli Ölver Gunnlaugssyni (
Sigmundur Hannesson hrl)
Þ var ákærður fyrir brot gegn valdstjórninni með því að hafa hótað lögreglumönum lífláti og fíkniefnabrot með því að hafa haft 2,03 grömm af MDMA og 1,61 gramm af amfetamíni í fórum sínum. Var Þ fundinn sekur um brot gegn 1. mgr. 106. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og 2. gr. sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974. Þ hafði áður verið dæmdur fyrir manndráp og hafði sá dómur ítrekunaráhrif samkvæmt 3. mgr. 106. gr. almennra hegningarlaga við ákvörðun refsingar. Var Þ gert að sæta fangelsi í 6 mánuði.
Ákærði sakfelldur fyrir tilraun til ólögmætrar nauðungar og brot gegn valdstjórninni og dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi.
Ríkissaksóknari (Daði Kristjánsson saksóknari) gegn
Antoni Frey Traustasyni I
Ákærði sakfelldur fyrir brot gegn valdstjórninni og dæmdur í sex mánaða fangelsi skilorðsbundið í tvö ár.
Ákæruvaldið (
Kolbrún Benediktsdóttir saksóknari)
gegn
Stefáni Hrafni Stefánssyni (
Gísli M. Auðbergsson hdl)
Brot gegn valdstjórninni. Dæmt 30 daga fangelsi, en fullnustu frestað skilorðsbundið í 2 ár.
Ákæruvaldið (
Kolbrún Benediktsdóttir saksóknari)
gegn
Garðari Oddi Garðarssyni (
Kristján Stefánsson hrl)
G var ákærður fyrir fíkniefnalagabrot og brot gegn valdstjórninni. Við þingfestingu málsins í héraði krafðist verjandi G þess að dómari málsins viki sæti vegna tengsla við tvö vitni í málinu. Áður en dómarinn vék sæti kannaði hann afstöðu G til sakarefna. Eftir að nýr dómari hafði tekið við málinu lagði verjandi G fram yfirlýsingu hans þar sem áréttuð var fyrri afstaða G og því lýst yfir að hann myndi ekkert eftir atvikum er vörðuðu brot hans gegn valdstjórninni. Fyrir Hæstarétti krafðist G aðallega ómerkingar héraðsdóms annars vegar þar sem hann hefði aldrei komið fyrir héraðsdómara þann, er dæmdi málið og hins vegar þar sem nauðsynlegt hefði verið að fjölskipa héraðsdóminn. Í dómi Hæstaréttar kom meðal annars fram að G hefði átt þess allan kost að mæta til þinghalda, m.a. við aðalmeðferð málsins. Þar sem verjandi hans hefði verið við hana staddur og átt þess kost að beina spurningum til vitna hefði réttinda G verið nægilega gætt eins og á stóð. Auk þess hefði sönnunarfærsla um þá ákæruliði þar sem G neitaði sök farið fram fyrir þeim dómara er málið dæmdi. Var því ekki fallist á ómerkingu héraðsdóms af þeim sökum. Þá féllst Hæstiréttur ekki á það með G að tilefni hefði verið til fjölskipunar héraðsdóms. Staðfesti Hæstiréttur niðurstöðu héraðsdóms um sakfellingu G sem og um upptöku á fíkniefnum og tveimur lömpum. Að teknu tilliti til 60. og 77. gr. almennra hegningarlaga þótti refsing hans hæfilega ákveðin fangelsi í 15 mánuði.
Ákæruvaldið (
Kolbrún Benediktsdóttir saksóknari)
gegn
Arnari Björgvini Arnarsyni (
Gísli M. Auðbergsson hdl)
Ákærði sakfelldur fyrir brot gegn valdstjórninni, með því að hafa tvívegis veist að lögreglumönnum sem höfðu afskipti af honum við skyldustörf.
Ákæruvaldið (
Guðjón Jóel Björnsson ftr)
gegn
X (
Gunnar Sólnes hrl)
Maður sakfelldur fyrir ölvunarakstur og fyrir brot gegn valdstjórninni. Skilorðsdómur dæmdur upp, alls sex mánaða fangelsi.
Ákæruvaldið (Kolbrún Benediktsdóttir saksóknari) gegn
Baldri Smára Elfarssyni
Brot gegn valdstjórninni. Ákærði játaði sök. Dæmt 30 daga skilorðsbundið fangelsi.
Ákæruvaldið (Eyþór Þorbergsson sýslumannsfulltrúi) gegn
X
Sakfellt fyrir brot gegn valdstjórninni og umferðarlagabrot.
Ákærði var talinn ósakhæfur og dæmdur til að sæta öryggisgæslu á viðeigandi stofnun vegna manndráps og líkamsárásar. Þá var hann dæmdur til að greiða skaðabætur.
Ákæruvaldið (Birkir Már Magnússon fulltrúi) gegn
Vilhjálmi Sigurði Viðarssyni (sjálfur)
Karlmaður sakfelldur fyrir brot gegn valdsstjórninni
Ákærði dæmdur í 2 mánaða fangelsi fyrir brot gegn valdstjórninni.
Ákæruvaldið (
Kolbrún Benediktsdóttir settur saksóknari)
gegn
Björgvin Þór Kristjánssyni (
Kristján Stefánsson hrl)
B var sakfelldur fyrir brot gegn 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með því að hafa brotist inn í þjónustumiðstöð á H og 1. mgr. 106. gr. sömu laga með því að hafa hótað tveimur lögreglumönnum við skyldustörf á H lífláti og líkamsmeiðingum. B játaði brot sitt samkvæmt 244. gr. laganna, krafðist sýknu fyrir brot gegn 1. mgr. 106. gr. laganna en að öðru leyti að refsing samkvæmt hinum áfrýjaða dómi yrði milduð. Í Hæstarétti var, með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms, staðfest niðurstaða hans um sakfellingu B vegna framangreindra brota. Við ákvörðun refsingar var einkum litið til ákvæða 3. mgr. 106. gr. og 255. gr. laga nr. 19/1940 og refsing hans ákveðin fangelsi í 12 mánuði.
B dæmdur til 18 mánaða óskilorðsbundinnar fangelsisvistar, auk sektar og ökuréttarsviptingar, fyrir brot gegn valdstjórninni, tilraun til stórfelldrar líkamsárásar og umferðarlagabrot. Ítrekuð brot. Sýknað af ákæru fyrir tilraun til manndráps.
Ákæruvaldið (
Sigríður Elsa Kjartansdóttir vararíkissaksóknari)
gegn
X (
Jón Egilsson hdl)
X var sakfelld fyrir brot gegn valdstjórninni með því að hafa slegið lögreglumann, sem var við skyldustörf, í vinstri kinn. Hæstiréttur frestaði ákvörðun refsingar ákærðu með vísan til þess að engir áverkar hefðu hlotist af háttsemi hennar og hún hafi ekki áður gerst sek um refsivert brot. Þá hafi óhæfilegur dráttur orðið á rannsókn málsins hjá lögreglu.
Ákæruvaldið (
Dröfn Kærnested aðstoðarsaksóknari)
gegn
Ármanni Óskari Guðmundssyni (
Leifur Runólfsson hdl)
Ákærði sakfelldur fyrir árás á opinberan starfsmann
Þ var sakfelld fyrir brot gegn 1. mgr. 106. gr. og 2. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með því að hafa kastað glerglasi í höfuð lögreglukonu svo hún hlaut bólgu og mar á enni. Ekki þótti unnt að draga í efa óhlutdrægni sýslumannsins á Selfossi eða lögreglumanna hans sem unnu að rannsókn málsins, enda þótt brotaþoli hefði starfað við sama sýslumannsembætti. Refsing Þ var ákveðin fangelsi í átta mánuði sem var skilorðsbundin til þriggja ára vegna ungs aldurs og hreins sakaferils Þ og vegna þess að afleiðingar brotsins voru ekki alvarlegar. Þ var einnig gert að greiða brotaþola 100.000 krónur í miskabætur.
Ákærði dæmdur til 9 mánaða óskilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir brot gegn valdstjórninni og þjófnað. Ítrekuð brot.
Ákæruvaldið (Daði Kristjánsson settur saksóknari) gegn
Sigurjóni Sindra Skjaldarsyni
Maður sakfelldur fyrir að ráðast á lögreglumenn.
Ákæruvaldið (
Dagmar Ösp Vésteinsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Grétari Má Guðfinnssyni og Þorsteini Rúnari Ólafssyni (
Sigurður A. Þóroddsson hrl)
Tveir karmenn sakfelldir fyrir brot gegn valdstjórninni.
C, MV, MJ, RC, RÞ og RP voru sakfelldir fyrir brot gegn 1. mgr. 106. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með því að hafa veist með ofbeldi að tveimur nafngreindum lögreglumönnum, sem kvaddir höfðu verið á vettvang til að stöðva hávaðasamt samkvæmi sem ákærðu tóku þátt í. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að báðir lögreglumennirnir hlutu alvarlega áverka með varanlegum afleiðingum fyrir heilsu þeirra. Þá var litið til þeirrar breytingar sem gerð var til þyngingar á refsimörkum 1. mgr. 106. gr. almennra hegningarlögum með lögum nr. 25/2007 og þess að ákærðu réðust að tilefnislausu og margir saman á lögreglumennina tvo og beittu við aðförina verulegu ofbeldi. Var refsing C, RÞ og RP ákveðin fangelsi í níu mánuði, refsing MV og MJ fangelsi í sex mánuði og refsing RC fangelsi í sjö mánuði.
Sýknað af valdstjórnarbroti.
Ákæruvaldið (
Dagmar Ösp Vésteinsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Sigurði Frey Péturssyni (
Páley Borgþórsdóttir hdl)
Karlmaður dæmdur í 12 mánaða óskilorðsbundið fangelsi fyrir brot gegn valdstjórninni. Skilorðsdómur dæmdur með.
Ákæruvaldið (
Dröfn Kærnested fulltrúi)
gegn
Karen Guðmundsdóttur (
Jón Egilsson hdl)
Sakfellt fyrir brot gegn valdstjórninni
Ákæruvaldið (
Eyþór Þorbergsson fulltrúi)
gegn
X (
Gunnar Sólnes hrl)
Ákærði sakfelldur fyrir brot gegn valdstjórninni og líkamsárás. Miskabætur.
Ákærða sakfelld fyrir brot gegn valdstjórninni og hættulega líkamsárás. Dæmdar miskabætur.
Ákæruvaldið (
Hulda Elsa Björgvinsdóttir settur
saksóknari)
gegn
Þorsteini Inga Þorleifssyni (
Leifur Runólfsson hdl)
Ákærði dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsli fyrir brot gegn valdstjórninni.
Ákæruvaldið (Dagmar Ösp Vésteinsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn
Eiríki Gunnlaugssyni
Sakfellt fyrir brot gegn valdstjórninni.