X var ákærður fyrir umferðarlagabrot, með því að hafa ekið bifreið óhæfur til að stjórna henni örugglega sökum áhrifa fíkniefna, og fyrir að hafa ekið bifreiðinni sviptur ökurétti í tvö skipti. Í málinu lá fyrir matsgerð geðlæknis þar sem fram kom að refsing myndi ekki bera árangur gagnvart X. Af þeim sökum var X ekki gerð sérstök refsing með vísan til 16. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Í matsgerðinni kom jafnframt fram hvaða búsetuúrræði kæmi helst til greina X til handa í framtíðinni. Þar sem ekki var talið að háski stafaði af X, og eins og málið lá fyrir dóminum, þótti ekki efni til þess að ákveða um sérstakar ráðstafanir samkvæmt VII. kafla almennra hegningarlaga.
Ákæruvaldið (
Sigríður Elsa Kjartansdóttir saksóknari)
gegn
Sævari Hlyni Jónssyni (
Brynjar Níelsson hrl)
S var sakfelldur fyrir umferðar- og fíkniefnalagabrot og dæmdur til að greiða 165.000 króna sekt, auk þess sem hann var sviptur ökurétti í eitt ár. ,,fyrir umferðarlagabrot, með því að hafa um ellefuleytið að kvöldi föstudagsins 25. júlí 2008 ekið bifreiðinni YV-604 austur Sauðárkróksbraut við Hegranes í Skagafirði, undir áhrifum fíkniefna, og þannig verið óhæfur til að stjórna ökutæki örugglega, en tetrahýdrókannabínól í blóði ákærða mældist 6,3 ng/ml.
Ákæruvaldið (
Daði Kristjánsson settur saksóknari)
gegn
Sigurði Ágústi Sigurðssyni (
Ragnar Aðalsteinsson hrl)
S var ákærður fyrir brot gegn 3., sbr. 2. mgr. 47. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, með því að hafa neitað að láta lögreglu í té þvagsýni í þágu rannsóknar á ætluðu umferðarlagabroti hans. Í dómi Hæstaréttar kom fram að lögreglu hefði verið rétt við yfirheyrslu að gera ákærða grein fyrir því hvaða viðurlögum það kynni að varða ef hann léti ekki í té þvagsýni til rannsóknar og að þau kynnu að verða þyngri ef slíkt sýni yrði ekki gefið. Á hinn bóginn var ekki talið að ákærði losnaði undan refsiábyrgð á synjun sinni af þeirri ástæðu einni að honum hafi ekki verið veitta leiðbeiningar um þetta. Var S því sakfelldur fyrir ofangreint umferðarlagabrot og sviptur ökurétti samkvæmt 2. mgr. 102. gr. umferðarlaga.
X var sakfelld fyrir umferðarlagabrot með því að hafa ekið bifreið undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Var brot X talið varða við 1., sbr. 2. mgr. 45. gr. a. umferðarlaga nr. 50/1987 og hún svipt ökurétti í eitt ár.
Ákæruvaldið (
Helgi Jensson sýslumannsfulltrúi, Birna Kristín Einarsdóttir sýslumannsfulltrúi)
gegn
Agnesi Ósk Þorgrímsdóttur (
Bjarni Guðmundur Björgvinsson hdl)
A var sakfelld fyrir að hafa í tvígang ekið svipt ökurétti og að hafa í bæði skiptin í blekkingarskyni framvísað ökuskírteini þrátt fyrir að vera svipt ökuréttindum. Þá var hún sakfelld fyrir að hafa ekið undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Var A dæmd til að greiða sekt og var svipt ökurétti.
Ákæruvaldið (
Björn Þorvaldsson saksóknari)
gegn
Dagbjarti Eiði Ólasyni Erlu Ingu Hilmarsdóttur og Þorfinni Hilmarssyni (
Kristján Stefánsson hrl)
D, E og Þ voru sakfelld fyrir hylmingu með því að hafa veitt fé viðtöku sem svikið hafði verið út úr sjóðum Tryggingastofnunar ríkisins. Var refsing D hæfilega ákveðin fangelsi í sex mánuði en þar sem D þótti hafa tekist á við fíkniefnavanda sinn var fullnustu þriggja mánaða af refsingunni frestað skilorðsbundið. Þá var E jafnframt dæmd í sex mánaða fangelsi, en með hliðsjón af sakaferli hennar og nýrra upplýsinga um aðstæður hennar þótti rétt að skilorðsbinda refsingu hennar að fullu. Þá var Þ dæmdur í tólf mánaða fangelsi en fullnustu níu mánaða refsingarinnar var frestað.
Ákærði dæmdur í sex mánaða fangelsi. Vanaafbrotamaður.
X var ákærður fyrir umferðalagabrot með því að hafa ekið sviptur ökurétti og undir áhrifum ólöglegra ávana- og fíkniefna. Var brot hans talið varða við 1. mgr., sbr. 2. mgr. 45. gr. a og 1. mgr. 48. gr. umferðarlaga nr. 50/1987. X hafði verið sviptur ökurétti ævilangt með dómi 12. mars 1998 fyrir umferðarlagabrot. Frá þeim tíma hafði hann margoft verið dæmdur fyrir að aka sviptur ökurétti. Var honum í samræmi við dómvenju gert að sæta fangelsi í fimm mánuði.
Í héraði var Á fundinn sekur um að hafa ekið bifreið tvisvar sinnum óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ólöglegra fíkniefna. Var hann dæmdur til að greiða 140.000 krónur í sekt í ríkissjóð og sviptur ökurétti í níu mánuði. Málinu var skotið til Hæstaréttar vegna ágreinings um tímalengd ökuréttarsviptingar. Í Hæstarétti var ökuréttarsvipting Á þyngd í samræmi við dómvenju við ákvörðun ökuréttarsviptingar, sbr. nú reglugerðar nr. 328/2009. Var Á sviptur ökurétti í 14 mánuði að frádreginni 9 mánaða sviptingu ökuréttar sem hann sætti frá birtingu héraðsdóms.
Í héraði var K fundinn sekur um að hafa ekið bifreið óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ólöglegra fíkniefna. Var hann dæmdur til að greiða 90.000 krónur í sekt í ríkissjóð og sviptur ökurétti í 6 mánuði. Málinu var skotið til Hæstaréttar vegna ágreinings um tímalengd ökuréttarsviptingar. Í Hæstarétti var ökuréttarsvipting K þyngd í samræmi við dómvenju við ákvörðun ökuréttarsviptingar, sbr. nú reglugerð nr. 328/2009. Var K sviptur ökurétti í 12 mánuði að frádreginni 6 mánaða sviptingu ökuréttar sem hann sætti frá birtingu héraðsdóms.
Ákærði krefst þess að refsing verði milduð og hún skilorðsbundin Í lýsingu héraðsdóms á sakarferli ákærða eru nokkrar misfellur. Hann var 25. janúar 2000 dæmdur í tíu mánaða fangelsi, þar af átta mánuði skilorðsbundna í þrjú ár, fyrir brot gegn 252. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Hinn 21. september 2000 var honum dæmdur hegningarauki við þann dóm, eins og greinir í héraðsdómi. Þá var hann 19. desember 2000 dæmdur í sex mánaða fangelsi fyrir brot gegn 2. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga. Þá var honum 22. desember 2005 veitt reynslulausn, sem var skilorðsbundin í tvö ár, á 450 daga eftirstöðvum refsingar samkvæmt dómi 6. mars 2003. Að öðru leyti er sakarferlinum réttilega lýst. Eins og greinir í hinum áfrýjaða dómi rauf ákærði með brotum þeim, sem ákæra 25. mars 2008 tekur til, skilorð reynslulausnarinnar frá 22. desember 2005. Er fallist á með héraðsdómi að ákvarða ákærða refsingu í einu lagi fyrir þau brot sem hann er nú sakfelldur fyrir og þær eftirstöðvar refsivistar sem reynslulausnin tók til, sbr. 1. mgr. 65. gr. laga nr. 49/2005 um fullnustu refsinga. Telst fangelsisrefsing sú, sem dæmd er í héraðsdómi, hæfileg og verður hún ekki bundin skilorði. Ákvæði héraðsdóms um upptöku og sakarkostnað verða staðfest. Ákærði greiði áfrýjunarkostnað málsins, þar með talin málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns fyrir Hæstarétti sem ákveðin verða að meðtöldum virðisaukaskatti, eins og nánar greinir í dómsorði.
Ungur karlmaður sakfelldur fyrir þjófnað, eignaspjöll og umferðarlagabrot. Refsing ákveðin tveggja mánaða fangelsi, en fullnustu refsingarinnar frestað skilorðsbundið í tvö ár. Þá var ákærði jafnframt sviptur ökurétti í eitt ár fyrir að neita að veita atbeina sinn við rannsókn máls á ætluðu broti hans fyrir akstur undir árhrifum ávana- og fíkniefna.
Ákæruvaldið (
Ólafur Helgi Kjartansson sýslumaður)
gegn
Jóni Ragnari Birkis Dellner (
Jón Þór Ólason hdl)
Ákært og sakfellt fyrir vörslur fíkniefna, hraðakstur og fíkniefnaakstur. Ákærði rauf skilorðsdóm og var sá dómur dæmdur upp. Dæmdur í 2ja mánaða fangelsi og sviptur ökurétti í tvö ár auk þess að sæta upptöku fíkniefna og greiða allan sakarkostnað.
Ákæruvaldið (
Gunnar Örn Jónsson ftr)
gegn
Heiðari Þór Hafþórssyni (
Þórdís Bjarnadóttir hdl),
Agnesi Ósk Þorgrímsdóttur (
Hilmar Baldursson hdl) og
Daníel Guðlaugssyni og Kristbjörgu Ólafsdóttur (sjálf)
Ákært fyrir þjófnað og hylmingu. Einn ákærða dæmdur í eins mánaðar fangelsi, skilorðsbundið. Hegningarauki. Tveimur ákærðu var ekki gerð sérstök refsing þar sem um hegningarauka var að ræða og ákvörðun refsingar einnar ákærðu var frestað skilorðsbundið í eitt ár. Tæp tvö ár voru liðin frá því brotin áttu sér stað og þar til ákæra var gefin út.
Ákæruvaldið (Ólafur Þór Hauksson sýslumaður) gegn
Jóni Valgeiri Pálssyni
Maður sakfelldur fyrir eignaspjöll.
Ákæruvaldið (
Kolbrún Benediktsdóttir fulltrúi)
gegn
Steinþóri Kristjánssyni (
Grímur Sigurðarson hdl)
Ákærði var dæmdur í 12 mánaða fangelsi fyrir brot gegn valdstjórninni. Skilorðsrof. Ítrekun.
M var ákærður fyrir líkamsárás skv. 1. mgr. 217. gr. almennra hegningarlaga með því að hafa ráðist á V á heimili hennar og gripið í hár hennar, hárreytt hana og fellt í gólfið og eftir að hún hafi staðið upp tekið hana kverkataki og ýtt upp við vegg. M játaði verknaðinn fyrir héraðsdómi. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að M hafði áður verið dæmdur fyrir brot gegn 1. mgr. 106. gr. hegningarlaga og hafði sá dómur ítrekunaráhrif á brot M, skv. 71. gr., sbr. 1. mgr. 218. gr. hegningarlaga. Þá var litið til þess að um skilorðsrof var að ræða og að M réðst á V þó börn hennar væru á heimilinu og yrðu að einhverju leyti vitni að átökunum. Hins vegar var einnig litið til 2. málsliðar 3. mgr. 218. gr. b. laganna þar sem aðdragandi árásarinnar voru erfiðleikar í samskiptum M og V og hún hafði ögrað og hótað honum. Var refsing M ákveðin fangelsi í fimm mánuði.
H var gefið að sök að hafa sem framkvæmdastjóri, stjórnarmaður og prókúruhafi F.H. Verks ehf. eigi skilað virðisaukaskattskýrslum félagsins á lögmæltum tíma vegna tilgreindra uppgjörstímabila og að hafa eigi staðið ríkissjóði skil á virðisaukaskatti vegna sömu tímabila, samtals að fjárhæð 11.658.207 krónur. Þá var honum gefið að sök að hafa ekki á lögmæltum tíma staðið skil á skilagreinum vegna staðgreiðslu opinberra gjalda vegna tilgreindra tímabila og að hafa eigi skilað staðgreiðslu opinberra gjalda sem haldið var eftir af launum starfsmanna félagsins vegna tilgreindra tímabila, samtals að fjárhæð 12.618.906 krónur. H játaði brot sín og var því farið með málið samkvæmt ákvæðum 125. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Við flutning um lagaatriði og viðurlög í héraði lét ákæruvaldið bóka: „Ákæruvaldið kveðst fallast á það með vísun til framlagðra gagna að ákærðu hafi fyrir útgáfu ákæru þegar greitt 1/3 hluta vangoldins virðisaukaskatts og vangoldinnar staðgreiðslu.“ Var H dæmdur í héraði til að sæta fangelsi í tvo mánuði, en fullnustu refsingarinnar var frestað. Þá var honum gert að greiða 2.500.000 krónur í sekt til ríkissjóðs en sæta ella fangelsi í 68 daga. Fyrir Hæstarétti krafðist ákæruvaldið þyngingar á refsingu H og byggðist krafan einkum á því að við mat á refsingu hans hefðu innborganir á skattskuldir verið metnar ranglega. Í dómi Hæstaréttar sagði meðal annars að í héraði hefði ákæruvaldið byggt á því að H hefði fyrir útgáfu ákæru innt af hendi greiðslu á verulegum hluta skatts vegna hvers gjaldtímabils og hefði málið verið rekið sem játningarmál á þeirri forsendu. Þótti því ekki ástæða til að hnekkja ákvörðun héraðsdóms um refsingu H og var hinn áfrýjaði dómur staðfestur.
Yfirlýsing G við dómsuppsögu sem gefin var að viðstöddum verjanda um að hann hefði unað héraðsóminum var talin bindandi. Þá var áfrýjunarstefna í málinu gefin út of seint. Var málinu vísað frá Hæstarétti af þeim sökum.
Ákæruvaldið (Eyjólfur Ármannsson fulltrúi) gegn
Hilmari Sigursteinssyni
Ákærði dæmdur til að sæta þriggja mánaða skilorðsbundnu fangelsi og greiðslu 6,5 milljón króna sektar vegna brota gegn skatta- og bókhaldslögum.
Ákæruvaldið (Dagmar Ösp Vésteinsdóttir fulltrúi) gegn
Thi Thu Nguyet Vu
Ákærða sakfelld fyrir þjófnað.
Ákæruvaldið (Dagmar Ösp Vésteinsdóttir fulltrúi) gegn
Loi Ngoc Nguyen
Ákærði var dæmdur í tveggja mánaða fangelsi fyrir þjófnað. Skilorðsrof.
Sakfellt fyrir líkamsárás. Bætur dæmdar.
Ákæruvaldið (Linda Ósk Wiium ftr) gegn
Krzysztof Nogal (sjálfur)
Ákært fyrir líkamsárás. Játning og hegningarauki.
Ákært og sakfellt fyrir vörslur fíkniefna. Hegningarauki. Ákærða ekki gerð sérstök refsing.
Ákæruvaldið (Linda Ósk Wiium ftr) gegn
Friðþjófi Erni Vignissyni (sjálfur)
Ákærði var dæmdur í tveggja mánaða fangelsi, skilorðsbundið í 2 ár, fyrir brot gegn valdstjórninni.
Karlmaður dæmdur fyrir brot gegn skatta- og bókhaldslögum. Refsing ákveðin 2ja mánaða skilorðsbundið fangelsi og 11 milljóna króna sekt.
Ákæruvaldið (
Einar Tryggvason fulltrúi)
gegn
Frey Karlssyni (
Bragi Björnsson hdl)
Manni og einkahlutafélagi gerð refsing fyrir meiri háttar brot gegn skattalögum.
F var sakfelldur fyrir þjófnað með því að hafa stolið tveimur leikjatölvum og fyrir að hafa ekið undir áhrifum ávana- og fíkniefna í tvígang og í síðara skiptið einnig undir áhrifum áfengis. F var dæmdur til að sæta fangelsi í sex mánuði en fullnustu fimm mánaða refsingarinnar var frestað. Þá var F dæmdur til greiðslu 250.000 króna sektar og sviptur ökurétti í þrjú ár.
K var sakfelldur fyrir vörslur fíkniefna og fyrir að hafa heimildarlaust og sviptur ökurétti ekið bifreið frá Reykjavíkur til Dalvíkur sem hann hafði fengið að reynsluaka hjá bílasölu. K var dæmdur til að sæta fangelsi í níu mánuði og fíkniefni gerð upptæk.Við ákvörðun refsingar K var litið til þess að hann var í níunda sinn fundinn sekur um akstur sviptur ökurétti og höfðu ítrekunaráhrif aldrei rofnað á milli brotanna. Þá rauf K skilorð reynslulausnar. Þann 27. nóvember 2007 var K dæmdur til greiðslu sektar fyrir fíkniefnalagabrot. Var fíkniefnalagabrotið sem K var nú sakfelldur fyrir framið fyrir þann dóm, og bar því að dæma K hegningarauka. Ákærða var því gerð refsing í málinu að teknu tilliti til 78. og 77. gr. almennra hegningarlaga.
A var sakfelldur fyrir brot gegn 1. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga, með því að hafa ráðist á B og slegið hann hnefahöggi í andlitið svo að hann féll í jörðina og hlaut tilgreinda áverka. A var dæmdur í fimm mánaða skilorðsbundið fangelsi og til greiðslu skaðabóta til handa B.
Ákæruvaldið (Jón Einarsson fulltrúi) gegn
Dan Sava
Útlendingur sakfelldur fyrir að brjóta gegn komubanni til landsins.
Ákæruvaldið (Ólafur Þór Hauksson sýslumaður) gegn
Theodóru Sif Theodórsdóttur Ásgeiri Garðari Ásgeirssyni
Kona sakfelld fyrir líkamsárás og maður sakfelldur fyrir hlutdeild í því broti.
Ákæruvaldið (Dagmar Ösp Vésteinsdóttir fulltrúi) gegn
Magneu Hrönn Örvarsdóttur
Ákærða var dæmd í mánaðarfangelsi, skilorðsbundið í 2 ár, fyrir þjófnaði og fjársvik.
Ákæruvaldið (Dagmar Ösp Vésteinsdóttir fulltrúi) gegn
Henryk Szymon Sobkowiak
Ákærði var dæmdur í fangelsi í 1 mánuð, skilorðsbundið í 2 ár, fyrir að stela vodkaflösku. Ítrekunaráhrif.
Umferðarlagabrot. Bifreiðir. Akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Svipting ökuréttar. Nytjastuldur. Fíkniefnalagabrot. A var sakfelldur fyrir vörslur fíkniefna, nytjastuld og akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Var hann dæmdur til greiðslu sektar að fjárhæð 300.000 krónur og sviptur ökurétti í eitt ár.
Ákæruvaldið (Gunnar Örn Jónsson ftr) gegn
Kamil Szoda (enginn)
Sakfellt fyrir fíkniefnaakstur og vörslur fíkniefna.
Ákæruvaldið (Eyjólfur Ármannsson fulltrúi) gegn
Aðalsteini Má Júlíussyni
Ákærði sakfelldur fyrir meiriháttar brot gegn skatta- og bókhaldslögum framin í sjálfstæðri atvinnustarfsemi sinni.
Ákæruvaldið (
Daði Jóhannesson fulltrúi)
gegn
Þorkeli Árnasyni (
Ingi Tryggvason hdl)
Maður sakfelldur fyrir meiriháttar líkamsárás.
Ákæruvaldið (Gunnar Örn Jónsson ftr) gegn
Alexander Murdo Macleod (sjálfur)
Sakfellt fyrir eignaspjöll en ákærði játaði. Bótakröfu vísað frá dómi.
Ákæruvaldið (Ólafur Þór Hauksson sýslumaður) gegn
Jóni Indriða Þórhallssyni
Maður sakfelldur fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna og fyrir vörslur fíkniefna.
Maður sakfelldur fyrir þjófnað og umboðssvik.
Maður dæmdur í 4 mánaða skilorðbundið fangelsi fyrir að særa blygðunarsemi ungrar konu.
P var sakfelldur fyrir brot gegn 4. mgr. 210. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 fyrir að hafa haft í vörslum sínum 14.713 ljósmyndir og 207 hreyfimyndir sem sýndu börn á kynferðislegan og klámfenginn hátt. Með brotinu rauf hann skilorð dóms frá 3. desember 2004 þar sem hann hlaut sjö mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir brot gegn 1. mgr. 202. gr. almennra hegningarlaga. Í samræmi við 60. gr. almennra hegningarlaga var sá dómur tekinn upp og bæði málin dæmd í einu lagi, sbr. 77. gr. sömu laga. Að þessu virtu var refsing P ákveðin fangelsi í 15 mánuði en ekki þóttu efni til að skilorðsbinda refsinguna að neinu leyti.
S var sakfelldur fyrir brot gegn 1. mgr. 155. gr. almennra hegningarlaga með því að hafa selt L tryggingarbréf að fjárhæð 2.000.000 króna en á bréfið hafði S falsað áritun útgefanda og samþykkjenda fyrir veðsetningu fasteignar og vitundarvotts. Einnig með því að hafa selt L víxil að fjárhæð 2.000.000 króna en á víxilinn hefði S falsað áritun samþykkjanda víxilsins. Fyrir dómi játaði S sök og samþykkti bótakröfu vegna víxilsins. Með játningu S, sem samrýmdist framburði S hjá lögreglu og öðrum gögnum málsins taldist brot S sannað og var refsing hans ákveðin fangelsi í átta mánuði en fullnustu fimm mánaða af refsingunni var frestað.
Ákæruvaldið (Linda Ósk Wiium ftr) gegn
Þresti Þórhallssyni (sjálfur)
Ákært og sakfellt fyrir fíkniefnaakstur og vörslur fíkniefna.
Ákæruvaldið (
Linda Ósk Wiium ftr)
gegn
Úlfari Þór Gunnarssyni (
Ágúst Stefánsson hdl)
Ákært og sakfellt fyrir fíkniefnaakstur og vörslur fíkniefna.
Ákært og sakfellt fyrir líkamsárás. Ákærðu játuðu greiðlega og voru ungir að árum. Dæmdir til greiðslu sektar og til greiðslu skaðabóta.
Ákæruvaldið (Gunnar Örn Jónsson ftr) gegn
Sindra Frey Jónssyni (sjálfur)
Ákærði sakfelldur fyrir líkamsárás. Ákærði játaði brotið. Refsing ákveðin fangelsi í fjóra mánuði en skilorðsbundin til þriggja ára. Ákærði var einnig dæmdur til að greiða brotaþola skaðabætur.
E var sakfelldur fyrir að hafa ekið bifreið ófær um að stjórna henni örugglega vegna neyslu ólögmætra ávana- og fíkniefna og fyrir að hafa haft í fórum sínum 0,31 gramm af hassi. Í dómi héraðsdóms var E dæmdur í 30 daga fangelsi og sviptur ökurétti ævilangt. Í kröfugerð ákæruvaldsins til Hæstaréttar kom fram að E skyldi einungis sæta sektum fyrir brot sitt. Við flutning málsins var upplýst að kröfugerðin hefði markast af misskilningi um að við ákvörðun refsingar hefði ekki átt að líta til sektargerðar sem E hefði gengist undir árið 2000. Með vísan til 2. mgr. 155. gr. laga nr. 19/1991 var talið að ákæruvaldið væri bundið af málatilbúnaði sínum í greinargerð. E var því dæmdur til greiðslu sektar að fjárhæð 180.000 krónur og sviptur ökurétti ævilangt.