Staðfestur var úrskurður héraðsdóms um að X skyldi gert að afplána eftirstöðvar fangelsisrefsingar á grundvelli 2. mgr. 82. gr. laga nr. 15/2016 um fullnustu refsinga.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
X (
Þorgils Þorgilsson lögmaður)
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms um að X skyldi gert að afplána eftirstöðvar fangelsisrefsingar á grundvelli 2. mgr. 82. gr. laga nr. 15/2016, um fullnustu refsinga.
X var sakfelldur fyrir brot gegn 209. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með því að hafa, án vitundar A, tekið upp myndband af A og sér þar sem þeir stunduðu kynmök, sent A mynd sem sýndi þá nakta í kynmökum og sent D umrædd gögn í pósti ásamt öðrum gögnum sem var ætlað að sýna fram á að X og A hefðu átt í kynferðissambandi. X var einnig sakfelldur fyrir brot gegn 209. og 2. mgr. 210. gr. almennra hegningarlaga með því að hafa sent tveimur nafngreindum mönnum myndir af A og sér að stunda kynmök. Þá var X sakfelldur fyrir brot gegn 233. gr. almennra hegningarlaga með því að hóta A að birta fyrrgreindar myndir á netinu og senda A tölvuskeyti með hótunum um ofbeldi gegn honum og hans nánustu. Var X talinn hafa ítrekað móðgað og smánað A með þeirri háttsemi sem hann var sakfelldur fyrir svo að í því hafi falist stórfelldar ærumeiðingar í skilningi 233. gr. b almennra hegningarlaga. Við ákvörðun refsingar var litið til ákvæða 1., 5., 6. og 7. töluliðar 1. mgr. og 3. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga. Að því virtu og með hliðsjón af 77. og 78. gr. almennra hegningarlaga var refsing X ákveðin fangelsi í 15 mánuði. Þá var X gert að greiða A miskabætur.
Ákærði var dæmdur í tólf mánaða fangelsi fyrir ítrekuð umferðar- og fíkniefnalagabrot.
Ákæruvaldið (
Elín Hrafnsdóttir fulltrúi)
gegn
Hafþóri Fjalari Kristinssyni (
Snorri Sturluson hdl)
Ákærði dæmdur í tólf mánaða fangelsi fyrir að aka sviptur ökurétti auk þess sem skilorð reynslulausnar var dæmt upp.
Ákærði dæmdur í 75 daga fangelsi fyrir að aka sviptur ökurétti og undir áhrifum áfengis.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Jón H. B. Snorrason saksóknari)
gegn
X (
Ólafur V. Thordersen hdl)
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms um að X skyldi gert að afplána eftirstöðvar fangelsisrefsingar.
Ákærði sakfelldur fyrir þjófnað.
Ákæruvaldið (
Daði Kristjánsson saksóknari)
gegn
Andra Þór Guðmundssyni (
Bjarni Hauksson hrl)
Með dómi héraðsdóms var A sakfelldur fyrir umferðarlagabrot með því að hafa ekið bifreið undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Var refsing hans ákveðin 4 mánaða fangelsi auk þess sem hann var sviptur ökurétti ævilangt. Í málinu krafðist A aðallega ómerkingar héraðsdóms, en til vara að refsing yrði milduð. Reisti hann ómerkingarkröfuna á því að sú tilhögun á skipan dómsvalds í héraði, sbr. 2. mgr. 17. gr. laga nr. 15/1998 um dómstóla, að heimila aðstoðarmönnum dómara meðferð og úrlausn sakamála sem dæmd væru á grundvelli 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála samrýmdist hvorki fyrirmælum 2. gr., V. kafla og 1. mgr. 70. gr. stjórnarskrár né 1. mgr. 6. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Í dómi Hæstaréttar kom fram að af ákvæðum 16. og 17. gr. laga nr. 15/1998 væri ljóst að ráðning og störf aðstoðarmanns dómara, þar með talin þau takmörkuðu dómstörf sem honum mætti fela, væru með öllu á ábyrgð og forræði dómstjóra héraðsdómstóls. Gætu handhafar framkvæmdarvalds hvorki skipt sér af störfum aðstoðarmanns né ráðið neinu um það ráðningarsamband sem þar lægi til grundvallar. Var ómerkingarkröfu A því hafnað. Við ákvörðun refsingar var talið að A hefði með broti sínu rofið skilorð reynslulausnar sem honum hafði verið veitt til tveggja ára á eftirstöðvum fangelsisrefsingar 675 dögum. Var reynslulausnin því tekin upp og refsing A ákveðin fangelsi í 26 mánuði auk þess sem hann var sviptur ökurétti ævilangt.
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms um að X skyldi gert að afplána eftirstöðvar fangelsisrefsingar.
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms um að X skyldi gert að afplána eftirstöðvar fangelsisrefsingar.
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli a. liðar 1. mgr. 95. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.
Ákæruvaldið (
Sigrún Inga Guðnadóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Þorsteini Gíslasyni (
Guðni Einarsson hdl)
Fjársvik.
Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem X var gert að sæta afplánun á 885 daga eftirstöðvum fangelsisrefsingar, sem honum hafði verið veitt reynslulausn á. Málinu var vísað frá Hæstarétti þar sem kæran uppfyllti ekki áskilnað 2. mgr. 193. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Karl Ingi Vilbergsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
X (
Sveinn Andri Sveinsson hrl)
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms um að X skyldi gert að afplána eftirstöðvar fangelsisrefsingar.
Lögreglustjórinn á Selfossi (
Gunnar Örn Jónsson fulltrúi)
gegn
X (
Ólafur Björnsson hrl)
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms um að X skyldi gert að afplána eftirstöðvar fangelsisrefsingar.
Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi gert að afplána 132 daga eftirstöðvar fangelsisrefsingar, sem honum hafði verið veitt reynslulausn á, var staðfestur.
Lögreglustjórinn á Selfossi (
Ólafur Helgi Kjartansson sýslumaður)
gegn
X (
Kristján Stefánsson hrl)
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms um að X, sem veitt hafði verið reynslulausn, á grundvelli 2. mgr. 65. gr. laga nr. 49/2005 um fullnustu refsinga, skyldi afplána 196 daga eftirstöðvar refsingar, enda taldist kominn fram sterkur grunur um að X hefði framið brot er varðað gæti allt að 6 ára fangelsi.
Maður sakfelldur fyrir líkamsárás. Með henni rauf hann skilyrði reynslulausnar sem hann hafði nýlega hlotið. Óafplánuð refsing dæmd með, alls átta mánaða fangelsi.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Jón H. B. Snorrason saksóknari)
gegn
X (
Bjarni Hauksson hrl)
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms um að X, sem veitt hafði verið reynslulausn á grundvelli 2. mgr. 65. gr. laga nr. 49/2005 um fullnustu refsinga, skyldi gert að afplána 600 daga eftirstöðvar refsingar, enda taldist kominn fram sterkur grunur um að hann hefði framið brot er varðað gæti allt að sex ára fangelsi.
Fallist var á kröfu lögreglu um að X, sem veitt hafði verið reynslulausn, á grundvelli 2. mgr. 65. gr. laga nr. 49/2005 um fullnustu refsinga, skyldi afplána 540 daga eftirstöðvar refsingar, enda taldist kominn fram sterkur grunur um að X hefði framið brot varðað gæti allt að 6 ára fangelsi.
Ákæruvaldið (Birkir Már Magnússon fulltrúi) gegn
X
Dæmt fangelsi fyrir brot gegn valdstjórninni.
Sakfellt fyrir vörslur á kókaíni. Dæmt fangelsi.
Ákæruvaldið (
Laufey Kristjánsdóttir fulltrúi)
gegn
Pétri Steinþóri Gunnarssyni (
Hilmar Baldursson hdl)
Karlmaður dæmdur fyrir þjófnaðarbrot, en með þeim rauf hann reynslulausn á 7 mánaða óafplánaðri fangelsisrefsingu.
A var sakfelldur fyrir að hafa í þrígang ekið bifreið óhæfur til að stjórna henni sökum neyslu fíkniefna og fyrir að hafa fíkniefni í vörslum sínum. Með brotum sínum rauf hann skilyrði reynslulausnar. Gert að sæta fangelsi í 11 mánuði og sviptur ökurétti í 20 mánuði.
T var sakfelldur fyrir brot gegn lögum um útlendinga nr. 96/2002, með því að hafa í byrjun september 2007 komið til landsins og dvalið hér á landi fram til 20. nóvember er lögreglan stöðvaði för hans, og með því brotið gegn ákvörðun Útlendingastofnunar 19. september 2006, sem staðfest var með úrskurði dóms- og kirkjumálaráðuneytis 16. apríl 2007, um brottvísun T af Íslandi og endurkomubann til landsins næstu 10 ár. Þá var hann einnig sakfelldur fyrir að hafa haft í vörslum sínum 25,62 g af amfetamíni. Með broti sínu rauf T skilorð reynslulausnar sem honum hafði verið veitt 12. október 2006 í 2 ár á 419 dögum óafplánaðrar refsingar. Með vísan til 1. mgr. 65. gr. laga nr. 49/2005 um fullnustu refsingar var refsing T gerð í einu lagi samkvæmt 60. gr. almennra hegningarlaga, sbr. 77. gr. sömu laga. Var hún ákveðin fangelsi í 16 mánuði.
I var sakfelldur fyrir líkamsárás, sem varðaði við 1. mgr. 217. gr. almennra hegningarlaga, með því að hafa hrint A utan í vegg, slegið hann nokkur hnefahögg og sparkað í hann liggjandi nokkrum sinnum með þeim afleiðingum að hann hlaut áverka í andliti og á líkama. J var einnig ákærður fyrir líkamsárásina auk umferðarlagabrots. Hann neitaði að hafa tekið þátt í líkamsárásinni en undi niðurstöðu héraðsdóms um sakfellingu fyrir umferðarlagabrotið. Ekki þótti unnt að fullyrða að J hefði tekið beinan þátt í líkamsárásinni en talið að hann hefði liðsinnt I þannig að hann teldist hlutdeildarmaður í brotinu samkvæmt 1. mgr. 22. gr. almennra hegningarlaga. I hafði ekki áður gerst sekur um refsivert brot. Atlaga hans þótti tilefnislaus og illyrmisleg og var refsing hans ákveðin fimm mánaða fangelsi. Með broti J rauf hann skilyrði reynslulausnar sem honum hafði verið veitt í eitt ár á 30 dögum óafplánaðrar refsingar. Með vísan til 1. mgr. 65. gr. laga nr. 49/2005 um fullnustu refsinga var honum því gerð refsing í einu lagi fyrir þessi brot, sem var ákveðin fangelsi í fimm mánuði.
Ákæruvaldið (
Daði Kristjánsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Tomas Arlauskas (
Björgvin Jónsson hrl)
Sakfelldur fyrir brot gegn útlendingalögum og lögum um ávana- og fíkniefni.
B var sakfelldur fyrir að hafa ekið bifreið sviptur ökurétti. Með brotinu rauf hann skilorð reynslulausnar sem honum hafði verið veitt á 170 dögum óafplánaðrar refsingar. Með vísan til 1. mgr. 65. gr. laga nr. 49/2005 um fullnustu refsinga var honum gerð refsing í einu lagi samkvæmt 60. gr. almennra hegningarlaga og hún ákveðin fangelsi í sex mánuði. Að teknu tilliti til upplýsinga um betri hegðun hans að undanförnu þótti rétt að skilorðsbinda refsinguna að fullu.
Ákæruvaldið (
Kolbrún Sævarsdóttir saksóknari)
gegn
Elimar Tómasi Reynissyni (
Hilmar Ingimundarson hrl)
E var sakfelldur fyrir vörslur fíkniefna, þjófnað og að hafa ekið þrívegis ölvaður og sviptur ökurétti. Með brotum sínum rauf E skilorð reynslulausnar sem honum hafði verið veitt í tvö ár á 270 dögum óafplánaðrar refsingar og var honum því gerð refsing í einu lagi. E hafði einu sinni áður hlotið refsingu fyrir að aka sviptur ökurétti og í fjögur skipti fyrir ölvunarakstur. Refsing E var ákveðin fangelsi í 15 mánuði og var hann sviptur ökurétti í 5 ár.
Ákæruvaldið (
Helgi Jensson sýslumannsfulltrúi)
gegn
Guðlaugi Helga Valssyni (
Kristján Stefánsson hrl)
Karlmaður sakfelldur fyrir þjófnað, hraðakstur og akstur undir áhrifum fíkniefna. Með brotum sínum rauf ákærði skilyrði reynslulausnar og voru eftirstöðvar refsingar ákærða teknar upp og dæmdar með þessu máli. Refsing ákveðin fangelsi í 6 mánuði og sekt að fjárhæð 210.000 krónur. Þá var ákærði sviptur ökurétti í 12 mánuði.
Rúmlega tvítugur karlmaður dæmdur í 12 mánaða fangelsi, þar af 9 mánuði skilorðsbundna, vegna ofsaaksturs í Reykjavík að kvöldi 16. febrúar 2007.
A var sakfelldur fyrir að hafa ekið sviptur ökurétti og undir áhrifum áfengis. Hann hafði verið sviptur ökurétti ævilangt árið 1994 og aftur árið 1999 og ekki öðlast ökurétt að nýju. Þar sem hann hafði enn unnið sér til ökuréttarsviptingar í þessu máli var ævilöng ökuréttarsvipting hans áréttuð. Með brotum sínum rauf A skilorð reynslulausnar sem honum hafði verið veitt á 110 dögum óafplánaðrar refsingar og var honum því gerð refsing í einu lagi. Við ákvörðun refsingar var jafnframt litið til 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og langs sakarferils hans. Refsing A var ákveðin fangelsi í fimm mánuði.
A var sakfelldur fyrir fíkniefnalagabrot og að hafa ekið bifreið þrívegis sviptur ökurétti. Rauf hann með brotunum skilorð reynslulausnar á 330 daga eftirstöðvum refsingar. Niðurstaða héraðsdóms um 13 mánaða óskilorðsbundna fangelsisrefsingu A var staðfest.
Ákæruvaldið (Sturla Þórðarson yfirlögfræðingur) gegn
Agnari Víði Bragasyni
Karlmaður dæmdur í 13 mánaða fangelsi fyrir umferðarlagabrot. 330 daga eftirstöðvar óafplánaðrar refsingar var dæmd upp.