J var með tveimur héraðsdómum dæmdur til fangelsisrefsingar fyrir fjölda afbrota, þar á meðal á annan tug þjófnaðarbrota og fyrir að hafa margsinnis ekið sviptur ökurétti og undir áhrifum fíkniefna eða lyfja. Fyrir Landsrétti var ákvörðun refsingar vegna beggja dóma til endurskoðunar, auk þess sem J krafðist frávísunar tiltekinna ákæruliða eða sýknu. Landsréttur staðfesti niðurstöðu héraðsdóms um sakfellingu J fyrir brot gegn nálgunarbanni og eignaspjöll með því að hafa brotið rúðu í tilteknu húsi. Kröfu J um frávísun tiltekins ákæruliðar, sem var reist á vanhæfi embættis lögreglustjórans á Suðurlandi, var hafnað. Aftur á móti var fallist á frávísunarkröfu vegna sakargifta um húsbrot þar sem refsikrafa frá leigutaka og umráðamanni húsnæðisins lá ekki fyrir. Var J gert að sæta fangelsi í þrjú ár og niðurstaða héraðsdóms um einkaréttarkröfur staðfest.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Kristín Einarsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Jóhanni Geir Karlssyni (
Stefán Karl Stefánsson lögmaður)
Ákærði m.a. sakfelldur fyrir fjölmörg auðgunarbrot og húsbrot.
Ákæruvaldið Eyþór Þorbergsson (Eyþór Þorbergsson ákæruvaldið) gegn
Jóni Birki Jónssyni Guðmundur St. Ragnarsson
J, sem hafði lagt í vana sinn að fremja fjársvik, var dæmdur í 18 mánaða fangelsi fyrir 22 slík brot, ítrekuð.
Ákæruvaldið (
Guðmundur Þórir Steinþórsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Jóhanni Geir Karlssyni (
Kristján Stefánsson lögmaður)
Ákærði dæmdur í 12 mánaða fangelsi vegna hegningarlaga- og umferðarlagabrota.
Sakfellt fyrir þjófnað
Ákæruvaldið (Katrín Ólöf Einarsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn
Steingrími B. Sigurjónssyni
Ákærði sakfelldur fyrir þjófnað og tilraun til þjófnaðar.
Ákæruvaldið (
Kolbrún Benediktsdóttir varahéraðssaksóknari)
gegn
Hilmari Grétari Sigþórssyni (
Sveinn Andri Sveinsson hrl)
Ákærði sakfelldur fyrir fjölda brota, m.a. þjófnað, líkamsáras og brot gegn valdstjórn. Sýknað að hluta. VIð ákvörðun refstingar var litið til þess að ákærði er vanaafbrotamaður og hafi ítrekað framið brot þessi.
Umferðarlagabrot, skilorðsrof, vanaafbrotamenn
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.
Vanaafbrotamaður
U var sakfelldur fyrir þrjú þjófnaðarbrot, þrjú fíkniefnalagabrot og að hafa fjórum sinnum ekið bifreið sviptur ökurétti, þar af tvö skipti undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Við ákvörðun refsingar var m.a. litið til þess að U átti að baki langan sakaferil og hafði hlotið 34 dóma fyrir ýmis afbrot, þar á meðal 22 dóma fyrir þjófnað eða tilraun til þjófnaðar. Þá var litið til þess að hann játaði brot sín. Var refsing U ákveðin tveggja ára fangelsi og ævilöng ökuréttarsvipting hans áréttuð. Þá voru gerð upptæk 5,02 g af amfetamíni, sem höfðu fundist í fórum U.
Ákæruvaldið (Daði Kristjánsson saksóknari) (
Daði Kristjánsson saksóknari)
gegn
Ágústi Halldórssyni (Vilhjálmur (
Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson hrl)
Á var sakfelldur fyrir að hafa fjórum sinnum ekið bifreið sviptur ökurétti auk þess að hafa í eitt umræddra skipta ekið of hratt. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að Á var síbrotamaður og þess að með brotunum rauf hann reynslulausn sem honum hafði verið veitt. Var refsing hans ákveðin fangelsi í 16 mánuði.
A, B og S voru sakfelldir fyrir brot gegn 2. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með því að hafa, í félagi með með öðrum, veist að A og þremur öðrum sem hittust fyrir á heimili hans með margvíslegu ofbeldi. Taldi Hæstiréttur að þótt þáttur hvers og eins yrði ekki nákvæmlega aðgreindur væri ljóst að þeir hefðu allir átt þátt í brotinu, hver með sínum hætti og væru því allir aðalmenn í því. A og B voru að auki sakfelldir fyrir hafa í annað sinn í tiltekinni íbúð veist að F og G með þeim hætti að B hefði slegið F með trébarefli á hnakka, en G hefði verið neyddur til að leggjast á magann á gólf þar sem H var neyddur til að kasta yfir hann þvagi auk þess sem B reif í vinstra eyra G með þeim afleiðingum að úr blæddi. Þá voru þeir einnig sakfelldir fyrir tilraun til fjárkúgunar umrætt sinn með því að hafa krafist þess að F greiddi þeim 500.000 krónur daginn eftir og hótað honum frekara ofbeldi yrði hann ekki við kröfum þeirra. Var háttsemin talin varða við 2. mgr. 218. gr., 1. mgr. 217. gr., 225. gr. og 251. gr., sbr. 20. gr. almennra hegningarlaga. A og B voru hins vegar sýknaðir af ákæru um frelsissviptingu H, F og G. Loks var A sakfelldur fyrir líkamsárásir með því að hafa á tiltekinni sólbaðsstofu slegið I oftar en einu sinni í andlitið og tekið hann hálstaki með þeim afleiðingum að hann missti meðvitund og slegið J í andlitið með þeim afleiðingum að hann hlaut mar og nokkra bólgu í kringum hægra auga og yfirborðslæg sár á bæði eyru. Þá var hann einnig sakfelldur fyrir tilraun til fjárkúgunar og hótanir umrætt sinn með því að hafa krafist þess að I og J greiddu honum 500.000 krónur hvort um sig, með hótunum um frekara ofbeldi ef þeir yrðu ekki við kröfum hans auk þess sem hann hótaði þeim frekara ofbeldi og fjárkúgun ef þeir segðu frá atvikinu. Var háttsemi A talin varða við 1. mgr. 217. gr., 2. mgr. 218. gr., 233. gr. og 251. gr., sbr. 20. gr. almennra hegningarlaga. Hins vegar var ekki talið að sannað hefði verið að A hefði svipt I og J frelsi sínu umrætt sinn. Var refsing A ákveðin fangelsi í sjö ár, B í sex ár og S í 20 mánuði. Þá var þeim gert að greiða A skaðabætur.
Ákærði var dæmdur í sex mánaða fangelsi fyrir akstur bifreiðar undir áhrifum fíkniefna og sviptur ökurétti ævilangt.
A var sakfelldur fyrir sjö þjófnaðarbrot, tvær gripdeildir og skjalafals. Við ákvörðun refsingar var m.a. litið til þess að með brotunum rauf A reynslulausn sem honum hafði verið veitt. Þá átti hann að baki langan sakaferil sem sýndi svo ekki yrði um villst að hann væri síbrotamaður. Var refsing hans ákveðin 8 mánuðir í fangelsi.
B var sakfelldur í héraði fyrir fjölmörg umferðarlagabrot, fíkniefnabrot og vopnalagabrot. Var honum gert að sæta fangelsi í 12 mánuði og upptöku amfetamíns og gasvopns auk þess sem hann var sviptur ökurétti ævilangt. Í dómi Hæstaréttar kom fram að B ætti óslitinn sakarferil frá árinu 1999 og hefði ítrekað verið sakfelldur fyrir hegningarlagabrot, fíkniefnabrot, umferðarlagabrot og vopnalagabrot. Við ákvörðun refsingar taldi Hæstiréttur því að líta yrði að líta til 72. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Að þessu gættu staðfesti Hæstiréttur niðurstöðu hins áfrýjaða dóms um sakfellingu og refsingu B.
P var sakfelldur í héraði fyrir fjölmörg hegningarlagabrot, auk umferðarlagabrota og fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni. Var hann dæmdur í tveggja ára fangelsi og sviptur ökurétti í tvö ár. P krafðist aðallega ómerkingar héraðsdóms vegna vanhæfis dómara þar sem sá héraðsdómari sem kvað upp dóminn hafði degi áður úrskurðað hann í gæsluvarðhald á grundvelli c. liðar 1. mgr. 95. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Með hliðsjón af forsendum umrædds gæsluvarðhaldsúrskurðar féllst Hæstiréttur ekki á með P að ástæða væri til að draga óhlutdrægni dómarans í efa með réttu og var kröfu hans því hafnað. Til vara krafðist P sýknu af því að hafa ekið bifreið undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Meðal annars með vísan til framburðar P hjá lögreglu sem staðfestur var fyrir dómi af þeim lögreglumönnum sem viðstaddir voru skýrslutökuna var P sakfelldur fyrir þetta brot. Staðfesti Hæstiréttur niðurstöðu hins áfrýjaða dóms um refsingu P en þó að teknu tilliti til gæsluvarðhaldsvistar sem honum hafði verið gert að sæta.
Ákæruvaldið (
Hulda Elsa Björgvinsdóttir settur saksóknari)
gegn
Emil Frey Júlíussyni (
Jóhannes Ásgeirsson hrl)
E var meðal annars sakfelldur fyrir þjófnað, hilmingu, fjársvik, umferðarlagabrot og fíkniefnalagabrot samkvæmt fjölmörgum ákæruliðum í ákæru á hendur honum. E játaði sök og sannað þótti með játningu hans og öðrum gögnum málsins að hann hafi gerst sekur um þá háttsemi sem ákært var fyrir. Með vísan til þess að E hafði framið umrædd brot eftir uppkvaðningu tveggja refsidóma á hendur honum var refsing hans ákveðin með vísan til 71. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Við mat á refsingu E var meðal annars litið til þess að hann játaði brot sín skýlaust. Hann væri síbrotamaður með óslitinn sakaferil frá árinu 2007 og hefði margsinnis áður gerst sekur um ýmis hegningarlagabrot, fíkniefnalagabrot og akstur undir áhrifum fíkniefna, en að auki ótal sinnum akstur sviptur ökurétti og önnur umferðarlagabrot. Með vísan til 77. gr. og 255. gr. almennra hegningarlaga var refsing hans ákveðin fangelsi í tvö ár.
Ákæruvaldið (
Valtýr Sigurðsson ríkissaksóknari)
gegn
Unnari Sigurði Hansen (
Kristján Stefánsson hrl)
U var sakfelldur fyrir fjölmörg brot er talin voru varða við almenn hegningarlög auk umferðarlaga. U sem var vanaafbrotamaður hafði auk þess margsinnis hlotið refsingu fyrir umferðarlagabrot og þótti refsing hans hæfilega ákveðin fangelsi í tvö ár og sex mánuði. Þá var U sviptur ökurétti ævilangt.
Ákæruvaldið (
Hulda Elsa Björgvinsdóttir settur saksóknari)
gegn
Hirti Þórarni Sigurðssyni (
Kristján Stefánsson hrl)
H var gefið að sök að hafa ekið bifreið undir áhrifum áfengis, óhæfur um að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna og sviptur ökuréttindum. Hann var í héraði dæmdur í 20 mánaða fangelsi og var sú refsing staðfest í Hæstarétti. Við ákvörðun refsingarinnar var höfð hliðsjón af töfum á málinu, sakaferli H, þess að áfengismagn í blóði hans var verulegt og að um hættubrot var að ræða, sem ákærði virtist leggja í vana sinn að fremja, en einnig til þess að með brotinu rauf H skilorð reynslulausnar á 295 dögum sem dæmd var með, sbr. 72. gr. og 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og 1. mgr. 65. gr. laga nr. 49/2005.
Ákæruvaldið (
Daði Kristjánsson settur saksóknari)
gegn
Lárusi Birni Svavarssyni (
Kristján Stefánsson hrl)
L var sakfelldur fyrir brot gegn 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Var umrætt þjófnaðarbrot framið fyrir uppkvaðningu dóms sem L hafði hlotið 2. júní 2009 þar sem hann var dæmdur í 10 mánaða fangelsi fyrir þjófnaðarbrot, eignaspjöll, húsbrot og fíkniefnabrot. Með hliðsjón af 78. gr. almennra hegningarlaga, svo og 72. gr. og 255. gr. sömu laga, var L dæmdur í tveggja mánaða fangelsi.
Tveir karlmenn sakfelldir fyrir fjölda afbrota, aðallega auðgunarbrota. Var annar mannanna þannig sakfelldur fyrir rán, líkamsárás, þjófnaði, gripdeild, fjársvik,hylmingu, ólögmæta meðferð á fundnu fé auk umferðarlaga- og fíkniefnabrota. Var honum gert að sæta fangelsi í 2 ár og 6 mánuði auk sviptingar ökuréttar og greiðslu skaðabóta. Hinn maðurinn var sakfelldur fyrir þjófnaði, gripdeild, umferðarlagabrot og fíkniefnabrot. Var honum gert að sæta fangelsi í 10 mánuði auk sviptingar ökuréttar og greiðslu skaðabóta.
Sakfellt fyrir þjófnaðarbrot og umferðarlagabrot. Sakaferill. Málsbætur.
Ákærði dæmdur í sex mánaða fangelsi. Vanaafbrotamaður.
B var sakfelldur fyrir fjögur þjófnaðarbrot og fyrir ólögmæta meðferð fundins fjár. Tekið var fram að B hefði endurtekið gerst sekur um auðgunarbrot. Með hliðsjón af 71. gr., 72. gr., 77., 78. gr. og 255. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 þótti refsing hans hæfilega ákveðin fangelsi í 15 mánuði.
A var ákærður fyrir brot gegn 3. mgr. 202. gr., 209. gr. og 194. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með nánar tilgreindri háttsemi gegn þremur ungum stúlkum. Þá var hann einnig ákærður fyrir vörslur á barnaklámi og þjófnað. A játaði sök vegna þjófnaðarins en neitaði sök vegna annarra ákæruefna. Var A sakfelldur fyrir þá háttsemi sem honum var gefin að sök. Við ákvörðun refsingar A var litið til þess að hann er síbrotamaður. Þá var brotavilji hans einbeittur og brot hans beindust að ungum reynslulitlum stúlkum, sem hann beitt blekkingum til að komast í samband við. Þótti refsing A hæfilega ákveðin fangelsi í fimm ár. Þá þótti A með háttsemi sinni hafa bakað sér skyldu til greiðslu miskabóta til stúlknanna sem þóttu hæfilega ákveðnar á bilinu 200.000 til 1.000.000 krónur.
U var sakfelldur fyrir tvö þjófnaðarbrot, hilmingu, nytjastuld, þrjú fíkniefnalagabrot og réttindaleysi við akstur í tvö skipti, en sýknaður af ákæru vegna innbrots í félagi við tvo aðra og vegna aksturs sviptur ökurétti og undir áhrifum fíkniefna. Tekið var fram að U væri vanaafbrotamaður og hefði meðal annars margítrekað gerst sekur um auðgunarbrot. Með hliðsjón af 71. gr., 72. gr., 77. gr. og 255. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 þótti refsing hans hæfilega ákveðin fangelsi í 10 mánuði. Skaðabótakröfu sem V hafði uppi í málinu vegna annars þeirra ákæruliða sem U var sýknaður af var vísað frá héraðsdómi.
Ákæruvaldið (
Ragnheiður Harðardóttir vararíkissaksóknari)
gegn
Garðari Garðarssyni (
Hilmar Ingimundarson hrl)
G var sakfelldur fyrir nytjastuld, þjófnað, skjalafals, fjársvik, umferðarlagabrot og fíkniefnalagabrot. Við ákvörðun refsingar var m.a. litið til langs sakaferils G, ítrekunar, langrar brotahrinu, einbeitts brotavilja og þess að hann reyndi eftir fremsta megni að hylja slóð sína. Þá rauf hann með brotum sínum skilyrði reynslulausnar á eftirstöðvum 900 daga refsingar samkvæmt eldri dómi og var hún tekin upp og dæmd með. Refsing G var ákveðin fangelsi í 5 ár en til frádráttar henni kom gæsluvarðhald sem hann hafði sætt. Þá var G sviptur ökurétti ævilangt, gert að sæta upptöku fíkniefna og að greiða nánar tilgreindum aðilum skaðabætur.
Karlmaður á sextugsaldri dæmdur í sjö mánaða fangelsi fyrir þjófnað.
Ákæruvaldið (
Einar Laxness fulltrúi)
gegn
Einari Erni Sigurðssyni (
Brynjar Níelsson hrl)
Ákærði var dæmdur í 60 daga fangelsi fyrir þjófnaðarbrot. Þá var honum gert að greiða skaðabætur.
Ákæruvaldið (
Kolbrún Sævarsdóttir saksóknari)
gegn
Hirti Þórarni Sigurðssyni (
Kristján Stefánsson hrl)
H var gefið að sök að hafa ekið bifreið undir áhrifum áfengis og sviptur ökurétti í fimm skipti á tímabilinu frá 5. desember 2005 til 21. janúar 2006. Hann játaði brot sín og var í héraði dæmdur í 18 mánaða fangelsi. Var sú refsing staðfest í Hæstarétti. Við ákvörðun refsingarinnar var höfð hliðsjón af löngum sakaferli H, þess að áfengismagn í blóði hans var verulegt í öll skiptin og um hættubrot var að ræða, sem ákærði virtist leggja í vana sinn að fremja, en einnig til þess að hann gekkst við brotunum, sbr. 6. tölulið 1. mgr. 70. gr., 72. gr. og 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 .
Ákæruvaldið (
Bogi Nilsson ríkissaksóknari)
gegn
Aðalsteini Árdal Björnssyni (
Hilmar Ingimundarson hrl)
A var með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur 19. ágúst 2005 sakfelldur fyrir nytjastuld og fyrir að aka bifreið sviptur ökurétti. Var hann dæmdur í 6 mánaða fangelsi. Eftir uppkvaðningu hins áfrýjaða dóms gekk dómur í Hæstarétti 13. október 2005 vegna fjögurra héraðsdóma sem allir voru kveðnir upp fyrir hinn áfrýjaða dóm. Með dómi Hæstaréttar 13. október 2005 var ákærði dæmdur til tveggja ára fangelsisvistar fyrir ýmis brot. Hið áfrýjaða mál var ekki sameinað máli því sem dæmt var í Hæstarétti 13. október 2005. Þegar allt framangreint var virt og hliðsjón höfð af 72., 77. og 78. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 taldi Hæstiréttur hæfilega refsingu A vera ákveðin fangelsi í þrjá mánuði.
Ákæruvaldið (
Sigríður J. Friðjónsdóttir saksóknari)
gegn
Einari Snæbirni Eyjólfssyni (
Kristján Stefánsson hrl)
E var með dómi héraðsdóms sakfelldur fyrir þjófnað með því að hafa stolið þremur DVD-diskasöfnum úr verslun. Öryggisvörður bar að E hafi gengið út um öryggishlið verslunarinnar með varninginn innanklæða, en snúið við inn í verslunina er þjófavarnarkerfi fór í gang. Þá bar hann að E hafi viðurkennt þjófnaðinn og var það einnig skráð í frumskýrslu lögreglu. E neitaði sök fyrir dómi og kvaðst eingöngu hafa gengið áleiðis að öryggishliðinu en farið of nærri. Framburður lögreglumannanna um játningu E í þeirra viðurvist hafði ekki sönnunargildi í málinu og naut því ekki annarra sönnunargagna um ætlaðan þjófnað E en framburðar öryggisvarðar. Gegn neitun E og með hliðsjón af 1. mgr. 48. gr. laga um meðferð opinberra mála var ósannað að E hafi gerst sekur um þjófnaðinn og var hann því sýknaður af þeim sakargiftum. Þá voru E einnig gefin að sök tvö önnur þjófnaðarbrot, þar á meðal að hafa stolið nánar tilgreindri fartölvu ásamt gögnum og fylgihlutum, að áætluðu verðmæti hátt í 10 milljónir króna. Var það talið langt umfram það sem venjulegt geti talist um muni af þessu tagi. Ekki naut þó annarra gagna í málinu um verðmæti varningsins en lista sem fylgdi bótakröfu vegna þjófnaðarins, sem E hafði mótmælt sem of hárri. Var því talið óupplýst hvert var verðmæti þess sem E tók þátt í að stela umrætt sinn og var við ákvörðun refsingar miðað við að það hafi verið miklum mun lægra en áætlað var í ákæru. Var refsing E ákveðin fangelsi í átta mánuði með vísan til 71. gr. og 78. gr. almennra hegningarlaga.
Ákæruvaldið (
Ragnheiður Harðardóttir vararíkissaksóknari)
gegn
Þórði Pétri Péturssyni (
Bjarni Þór Óskarsson hrl)
Þ var fundinn sekur um tvö innbrot og tvær tilraunir til innbrots í október og desember 2004 og í febrúar 2005. Þ átti langan brotaferil að baki og með fyrrnefndum brotum sínum rauf hann skilorð reynslulausnar á 130 daga eftirstöðvum refsingar. Var refsing hans hæfilega ákveðin fangelsi í tólf mánuði.
Ákæruvaldið (
Bragi Steinarsson vararíkissaksóknari)
gegn
Einari Birni Ingvasyni (
Kristján Stefánsson hrl)
E var sakfelldur fyrir rán, akstur án ökuréttar, ölvunarakstur og að hafa haft fíkniefni í vörslum sínum. Með vísan til 72., 78. og 255. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 var E gert að sæta fangelsi í 2 ár og 6 mánuði.
Ákæruvaldið (
Bragi Steinarsson vararíkissaksóknari)
gegn
Sigurði Hólm Sigurðssyni (
Sigmundur Hannesson hrl)
S, sem var vanaafbrotamaður, var sakfelldur fyrir hylmingu, níu þjófnaðarbrot, eina tilraun til þjófnaðar og umferðarlagabrot. Hafði S hlotið 27 sinnum dóma á árunum 1979 til 2000, en þrír þeirra höfðu ítrekunaráhrif. Var refsing S ákveðin fangelsi í tvö ár og sex mánuði, sbr. 71. gr., 72. gr., 77. gr. og 255. gr. almennra hegningarlaga. Var refsingin hegningarauki við sex mánaða fangelsi samkvæmt öðrum héraðsdómi, sem hafði gengið eftir uppkvaðningu héraðsdóms í málinu.
Ákæruvaldið (
Bragi Steinarsson vararíkissaksóknari)
gegn
Borgþóri Gústafssyni (
Hilmar Ingimundarson hrl)
B var ákærður fyrir umferðarlagabrot með því að hafa ekið bifreið undir áhrifum áfengis og sviptur ökurétti og svo óvarlega að hann ók aftan á aðra bifreið sem var kyrrstæð við rautt umferðarljós. B játaði brot sitt. Hafði B 15 sinnum verið dæmdur fyrir ölvun við akstur og jafnframt 14 sinnum fyrir akstur sviptur ökurétti. Var refsing B ákveðin fangelsi í sex mánuði, sbr. 72. gr. og 77. gr. almennra hegningarlaga.
Ákæruvaldið (
Bragi Steinarsson vararíkissaksóknari)
gegn
Þjófnaður. Húsbrot. Fíkniefni. Hlutdeild Ítrekun. Vanaafbrotamaður. Reynslulausn Á var sakfelldur fyrir þjófnaði, hlutdeild í þjófnaði, húsbrot og fíkniefnalagabrot. Með brotunum rauf Á reynslulausn á (
Brynjar Níelsson hrl)
Á var sakfelldur fyrir þjófnaði, hlutdeild í þjófnaði, húsbrot og fíkniefnalagabrot. Með brotunum rauf Á reynslulausn á eftirstöðvum 300 daga refsivistar. Hafði Á áður verið dæmdur meðal annars fyrir þjófnaðarbrot, sem höfðu ítrekunaráhrif, og brotaferill hans verið samfelldur frá því hann hlaut fyrst dóm fyrir auðgunarbrot á árinu 2001. Til þess var hins vegar litið að hann játaði brot sín hreinskilnislega. Var Á talinn vera vanaafbrotamaður og refsing hans ákveðin fangelsi í 2 ár og 6 mánuði, sbr. 1. mgr. 71. gr. og 72. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Ákæruvaldið (
Bragi Steinarsson vararíkissaksóknari)
gegn
Anthony Lee Bellere (
Hilmar Ingimundarson hrl)
A, sem frá 18 ára aldri hafði hlotið 24 refsidóma, var dæmdur í þriggja mánaða fangelsi fyrir þjófnað.
Ákæruvaldið (
Bragi Steinarsson vararíkissaksóknari)
gegn
Lárusi Birni Svavarssyni (
Páll Arnór Pálsson hrl)
Í samræmi við játningu L var hann sakfelldur fyrir brot gegn 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Við ákvörðun refsingar var litið til 71. gr., 255. gr. og 72. gr. sömu laga, en L var vanaafbrotamaður. Staðfest var niðurstaða héraðsdóms um 6 mánaða fangelsisvist L.
Ákæruvaldið (
Bragi Steinarsson vararíkissaksóknari)
gegn
Jóhannesi Guðmundssyni (
Kristján Stefánsson hrl)
Í samræmi við játningu J var hann sakfelldur fyrir brot gegn 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Við ákvörðun refsingar var litið til 71. gr., 255. gr. og 72. gr. laga nr. 19/1940, en J var vanaafbrotamaður. Var J dæmdur í 4 mánaða fangelsi.
Ákæruvaldið (
Bragi Steinarsson vararíkissaksóknari)
gegn
Agnari Víði Bragasyni (
Sigurður Georgsson hrl)
A var sakfelldur fyrir hegningar-, umferðar- og fíkniefnalagabrot. Með tilliti til eldri dóma sem höfðu ítrekunaráhrif, svo og þess að ákærði var vanaafbrotamaður, var refsing hans ákveðin fangelsi í níu mánuði. Ökuréttarsvipting hans þótti hæfilega ákveðin í þrjú ár.
Ákæruvaldið (
Bragi Steinarsson vararíkissaksóknari)
gegn
Sævari Arnfjörð Hreiðarssyni (
Hilmar Ingimundarson hrl)
S var sakfelldur fyrir þjófnaðarbrot sem og tilraunir til þjófnaða, skjalafals, fjársvik. Við ákvörðun refsingar S var litið til þess að brotin voru mörg og vörðuðu sum töluverðar fjárhæðir. Hafði S, sem var vanaafbrotamaður, margsinnis verið dæmdur fyrir ýmis auðgunarbrot, meðal annars með dómum Hæstaréttar frá 15. nóvember 2001 og 14. febrúar 2002. Voru brotin framin áður en síðastgreindir dómar voru kveðnir upp. Var S því dæmdur hegningarauki samkvæmt 78. gr. almennra hegningarlaga. Höfðu margir dómanna ítrekunaráhrif á brot hans, sbr. 71. gr. laganna. Var refsing hans hæfilega ákveðin fangelsi í 18 mánuði með vísan til 72. gr. og 255. gr., sbr. 77. gr. þeirra laga.
Ákæruvaldið (
Bragi Steinarsson vararíkissaksóknari)
gegn
Brynjólfi Jónssyni (
Sigurður Georgsson hrl)
B, sem var vanaafbrotamaður, var ákærður fyrir fjársvik og tvær tilraunir til þjófnaðar. B játaði brotin. Hafði hann frá árinu 1983 hlotið átján refsidóma og höfðu þrír þeirra ítrekunaráhrif á þessi brot hans. Var refsing hans ákveðin óskilorðsbundið fangelsi í 6 mánuði að teknu tilliti til 77. gr. almennra hegningarlaga, sbr. 71. gr., 72. gr. og 255. gr. sömu laga.
Ákæruvaldið (
Bragi Steinarsson vararíkissaksóknari)
gegn
Bjarna Leifi Péturssyni (
Hilmar Ingimundarson hrl)
B, sem er vanaafbrotamaður, var dæmdur í 6 mánaða fangelsi fyrir þrjú þjófnaðarbrot. Við ákvörðun refsingarinnar var litið til þess að B hafði ítrekað gerst sekur um þjófnað og að hann hafði drýgt eitt brotanna í félagi við annan mann.
Ákæruvaldið (
Bragi Steinarsson vararíkissaksóknari)
gegn
Hirti Þórarni Sigurðssyni (
Kristján Stefánsson hrl)
H var ákærður fyrir umferðarlagabrot með því að hafa ekið bifreið sviptur ökurétti. Játaði hann brot sitt. H hafði margoft áður verið sakfelldur fyrir sams konar brot og ákæra í málinu tók til, auk annarra brota á umferðarlögum og þótti verða að líta til þessa sakaferils H við ákvörðun refsingar. Með broti sínu rauf H skilyrði reynslulausnar sem honum hafði verið veitt á samtals 200 daga eftirstöðvum fangelsisrefsingar sem honum hafði verið gert að sæta með dómum Hæstaréttar 24. febrúar 2000 og Héraðsdóms Reykjaness 7. apríl sama árs. Var refsing H fyrir brot hans er ákæran í máli þessu laut að og óafplánuð refsing samkvæmt fyrrnefndum dómum ákveðin í einu lagi í héraðsdómi. Samkvæmt þessu og að öðru leyti með vísun til forsendna héraðsdóms var niðurstaða hans um 12 mánaða fangelsisrefsingu H staðfest.
Ákæruvaldið (
Sigríður Jósefsdóttir saksóknari)
gegn
Ölvunarakstur. Akstur án ökuréttar. Vanaafbrotamaður Ökuréttarsvipting Í samræmi við játningu Á var hann sakfelldur fyrir að hafa tvívegis ekið bifreið undir áhrifum áfengis og þrisvar sviptur ökurétt (
Sigurður Georgsson hrl)
Í samræmi við játningu Á var hann sakfelldur fyrir að hafa tvívegis ekið bifreið undir áhrifum áfengis og þrisvar sviptur ökurétti. Hafði Á margsinnis áður verið sakfelldur fyrir sams konar brot og var refsing hans ákvörðuð með hliðsjón af 72. gr. laga nr. 19/1940, en jafnframt vísað til 77. gr. sömu laga. Að öllu gættu þótti refsing hans hæfilega ákveðin fangelsi í 10 mánuði og var enn áréttað að hann skyldi vera sviptur ökurétti ævilangt.
Í samræmi við játningu M var hann sakfelldur fyrir mörg brot gegn 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og tilraun til slíks brots, auk brots gegn 2. gr., sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974. Við ákvörðun refsingar var litið til 2. mgr. 70. gr., 71. gr., 255. gr. og 72. gr. laga nr. 19/1940, en M var vanaafbrotamaður. Til mildunar horfði að hann hafði á síðara stigi rannsóknar verið samvinnufús og gengist greiðlega við brotum sínum. Tekið var fram að skilorðsbundinn dómur sem M hafði áður hlotið hefði ekki ítrekunaráhrif. Var M dæmdur í 9 mánaða fangelsi og til greiðslu skaðabóta.
Ákæruvaldið (
Bragi Steinarsson vararíkissaksóknari)
gegn
Sævari Arnfjörð Hreiðarssyni (
Hilmar Ingimundarson hrl)
S var ákærður fyrir líkamsárás og þjófnað. Niðurstaða héraðsdóms um sakfellingu var staðfest. S átti langan og nær óslitinn sakaferil að baki og hafði ítrekað gerst sekur um auðgunarbrot. Var honum dæmdur hegningarauki, sbr. 78. gr. laga nr. 19/1940 og refsing hans ákvörðuð með hliðsjón af 71. gr., 72. gr. og 255. gr. sömu laga. S var dæmdur í fimm mánaða fangelsisvist.
Ákæruvaldið (
Bragi Steinarsson vararíkissaksóknari)
gegn
Sævari Þór Magnússyni (
Hilmar Ingimundarson hrl)
S var ákærður fyrir akstur án ökuréttar. Var niðurstaða héraðsdóms um sakfellingu og refsingu staðfest og S dæmdur til fangelsisrefsingar, en hann hafði frá árinu 1989 í 11 skipti hlotið refsingu fyrir akstur sviptur ökurétti.