Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

9 dómar fundust

Lykilorð: Málflutningsumboð

Landsréttur birt 30. mars 2022

171/2022

Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra (Agnes Björk Blöndal saksóknarfulltrúi) gegn X (Sunna Axelsdóttir lögmaður)

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem X var gert að sæta nánar tilgreindu nálgunarbanni á grundvelli laga nr. 85/2011 um nálgunarbann og brottvísun af heimili. Fyrir Landsrétti byggði LNE á því að vísa bæri málinu frá Landsrétti enda hefði X ekki haft aðkomu að kæru málsins. Í úrskurði Landsréttar er rakið að þrátt fyrir að afstaða X um kæruna lægi ekki fyrir hefði skipaður verjandi X haft heimild til að kæra málið til Landsréttar fyrir hönd umbjóðanda síns með hliðsjón af 1. mgr. 35. gr. laga nr. 88/2008 og 18. gr. og 1. og 2. mgr. 21. gr. laga nr. 77/1998 um lögmenn, enda lágu fyrir upplýsingar um að vilji hans hefðu í upphafi staðið til þess, og var frávísunarkröfu LNE því hafnað. Var úrskurður héraðsdóms staðfestur með vísan til forsendna hans. Þá komu kröfur réttargæslumanns ekki til álita, enda átti brotaþoli ekki aðild að málinu samkvæmt 2. mgr. 12. gr. laga nr. 85/2011.

Landsréttur birt 14. maí 2019

177/2019

Ágúst Valfells, Helga Valfells, Jón Valfells, Matthildur Ólafsdóttir Valfells og Sveinn Valfells (Þórólfur Jónsson lögmaður) gegn Ársæli Valfells og Damocles Services Ltd. og Nönnu Helgu Valfells (Sigurður Kári Kristjánsson lögmaður) og Vesturgarði ehf. (Víðir Smári Petersen lögmaður)

Staðfest var niðurstaða héraðsdóms um að hafna kröfu sóknaraðila, eigenda meirihluta hlutafjár í varnaraðilanum V ehf., um að felld yrði niður gagnsök þar sem krafist var innlausnar hluta í félaginu eftir ákvæðum 2. mgr. 81. gr. laga nr. 138/1994 um einkahlutafélög. Að öðru leyti var kröfum sóknaraðila vísað frá þar sem lagaheimild skorti til að kæra til Landsréttar niðurstöðu héraðsdóms um þau atriði sem þær lutu að.

Landsréttur birt 15. janúar 2019

933/2018

Valitor hf (Ólafur Eiríksson lögmaður) gegn Datacell ehf (Þórhallur H. Þorvaldsson lögmaður) og Sunshine Press Productions ehf (Sveinn Andri Sveinsson lögmaður)

V hf. kærði úrskurð héraðsdóms þar sem hafnað var kröfu þess um að fella mál D ehf. á hendur V hf. niður á grundvelli b-liðar 1. mgr. 105. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála í ljósi þess að tiltekinn lögmaður hefði ekki haft umboð til að reka málið fyrir hönd D ehf. Í úrskurði Landsréttar kom fram að þótt heimildir lögmannsins til að gæta hagsmuna D ehf. í málinu eftir tiltekið tímamark kynnu að hafa verið takmarkaðri en þær sem fælust almennt í málflutningsumboði yrði ekki fallist á með V hf. að hann hefði skort umboð til að sækja þing í málinu af hálfu félagsins. Hinn kærði úrskurður var því staðfestur.

Hæstiréttur birt 8. maí 2012

296/2012

Kári Kort Jónsson og Kristín Alfreðsdóttir (enginn) gegn Arion banka hf (Karl Óttar Pétursson hrl)
Málaflokkur: Leiguréttur

Úrskurður héraðsdóms, þar sem A hf. var heimilað að fá KJ og KA borin með beinni aðfarargerð út úr fasteign, var staðfestur að því er KJ varðar. Var málinu hins vegar vísað frá Hæstarétti að því er varðar KA, þar sem KJ hafði ekki umboð til að fara með málið fyrir dómi fyrir hennar hönd, sbr. 1. mgr. 2. gr. laga nr. 77/1998 um lögmenn.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 3. apríl 2009

E-3252/2009

Teymi hf og IP-fjarskipti ehf (Sigurður G. Guðjónsson hrl) gegn Hermanni Jónassyni (Andri Árnason hrl) og Jóhanni Óla Guðmundssyni. (Hróbjartur Jónatansson hrl)

Lögmaður IP-fjarskipa ehf. ekki talinn hafa málflutningsumboð frá félaginu og málið því fell niður varðandi þann aðila. Kröfu Teymis hf. vísað frá dómi þar sem ekki voru til staðar lögvarðir hagsmunir þess félags.