Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
9 dómar fundust
Lykilorð: Málflutningsumboð
Staðfest riftun kaupa á veghefli og fallist á kröfu um endurgreiðslu kaupverðsins.
Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra (
Agnes Björk Blöndal saksóknarfulltrúi)
gegn
X (
Sunna Axelsdóttir lögmaður)
Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem X var gert að sæta nánar tilgreindu nálgunarbanni á grundvelli laga nr. 85/2011 um nálgunarbann og brottvísun af heimili. Fyrir Landsrétti byggði LNE á því að vísa bæri málinu frá Landsrétti enda hefði X ekki haft aðkomu að kæru málsins. Í úrskurði Landsréttar er rakið að þrátt fyrir að afstaða X um kæruna lægi ekki fyrir hefði skipaður verjandi X haft heimild til að kæra málið til Landsréttar fyrir hönd umbjóðanda síns með hliðsjón af 1. mgr. 35. gr. laga nr. 88/2008 og 18. gr. og 1. og 2. mgr. 21. gr. laga nr. 77/1998 um lögmenn, enda lágu fyrir upplýsingar um að vilji hans hefðu í upphafi staðið til þess, og var frávísunarkröfu LNE því hafnað. Var úrskurður héraðsdóms staðfestur með vísan til forsendna hans. Þá komu kröfur réttargæslumanns ekki til álita, enda átti brotaþoli ekki aðild að málinu samkvæmt 2. mgr. 12. gr. laga nr. 85/2011.
Staðfest var niðurstaða héraðsdóms um að hafna kröfu sóknaraðila, eigenda meirihluta hlutafjár í varnaraðilanum V ehf., um að felld yrði niður gagnsök þar sem krafist var innlausnar hluta í félaginu eftir ákvæðum 2. mgr. 81. gr. laga nr. 138/1994 um einkahlutafélög. Að öðru leyti var kröfum sóknaraðila vísað frá þar sem lagaheimild skorti til að kæra til Landsréttar niðurstöðu héraðsdóms um þau atriði sem þær lutu að.
V hf. kærði úrskurð héraðsdóms þar sem hafnað var kröfu þess um að fella mál D ehf. á hendur V hf. niður á grundvelli b-liðar 1. mgr. 105. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála í ljósi þess að tiltekinn lögmaður hefði ekki haft umboð til að reka málið fyrir hönd D ehf. Í úrskurði Landsréttar kom fram að þótt heimildir lögmannsins til að gæta hagsmuna D ehf. í málinu eftir tiltekið tímamark kynnu að hafa verið takmarkaðri en þær sem fælust almennt í málflutningsumboði yrði ekki fallist á með V hf. að hann hefði skort umboð til að sækja þing í málinu af hálfu félagsins. Hinn kærði úrskurður var því staðfestur.
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli a. og b. liða 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.
Úrskurður héraðsdóms, þar sem A hf. var heimilað að fá KJ og KA borin með beinni aðfarargerð út úr fasteign, var staðfestur að því er KJ varðar. Var málinu hins vegar vísað frá Hæstarétti að því er varðar KA, þar sem KJ hafði ekki umboð til að fara með málið fyrir dómi fyrir hennar hönd, sbr. 1. mgr. 2. gr. laga nr. 77/1998 um lögmenn.
Lögmaður IP-fjarskipa ehf. ekki talinn hafa málflutningsumboð frá félaginu og málið því fell niður varðandi þann aðila. Kröfu Teymis hf. vísað frá dómi þar sem ekki voru til staðar lögvarðir hagsmunir þess félags.
Þór Fannar Ólafsson gegn
Kró ehf, Ólafi S. Þórarinssyni, Kristínu Ólu Karlsdóttur, Hólmfríði Helgu Ólafsdóttur og Háfi sf
Frávísunarkröfu hafnað
Stefndi var dæmdur til að greiða stefnanda fjárhæð sem talin var vangreidd laun og orlofslaun.