Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

87 dómar fundust

Lykilorð: Lyfjaakstur

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 7. maí 2025

S-1166/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kamilla Kjerúlf aðstoðarsaksóknari) gegn Guðbjörgu Birgisdóttur (Þorgils Þorgilsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærða sakfelld fyrir umferðarlagabrot. Dæmd í 90 daga fangelsi og ævilöng svipting áréttuð.

Héraðsdómur Reykjaness birt 26. febrúar 2025

S-2958/2024

Ákæruvaldið (Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Lilju Rut Jónasdóttur (Leó Daðason lögmaður)
Lykilorð: Lyfjaakstur. Þjófnaður.
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærða dæmd fyrir umferðar- og hegningarlagabrot.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 16. október 2024

S-3768/2024

Ákæruvaldið (Agnes Ýr Stefánsdóttir saksóknarfulltrúi) gegn Róberti Jónssyni (Sveinn Andri Sveinsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Endurtekinn þjófnaður og lyfja- og fíkniefnaakstur.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 11. september 2024

S-4009/2024

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kamilla Kjerúlf saksóknarfulltrúi) gegn Kristínu Sigríði Arnlaugsdóttur
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærða sakfelld fyrir skjalabrot, akstur svipt ökurétti,akstur undir áhrifum lyfja og akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Dæmd í 135 daga fangelsi og svipt ökurétti ævilangt.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 19. júní 2024

S-1134/2024

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kamilla Kjerúlf saksóknarfulltrúi) gegn Aroni Ívari Sigurbjörnssyni (Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir umferðar- og fíkniefnalagabrot og dæmdur í 15 mánaða fangelsi. Þá var ævilöng svipting ökuréttar áréttuð og ákærða gert að sæta upptöku á haldlögðum efnum.

Héraðsdómur Suðurlands birt 7. maí 2024

S-130/2024

Lögreglustjórinn á Suðurlandi (Rósamunda Jóna Baldursdóttir fulltrúi) gegn Aðalsteini Inga Helgasyni (Jón Egilsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var fundinn sekur um ítrekaðan akstur undir áhrifum fíkniefna, rangar sakargiftir og vopnalagabrot auk annarra brota. Var honum gert að sæta fangelsi í 90 daga, en fullnustu 60 daga refsingarinnar var frestað skilorðsbundið til tveggja ára. Ákærða var jafnframt gerð sekt og hann sviptur ökurétti ævilangt. Þá voru gerð upptæk vopn og ákærði dæmdur til greiðslu alls sakarkostnaðar.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 24. apríl 2024

S-1723/2024

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Agnes Ýr Stefánsdóttir saksóknarfulltrúi) gegn Elís Aroni Valgarðssyni (Snorri Sturluson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot og gert að sæta fangelsi í fjóra mánuði.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 13. mars 2024

S-7073/2023

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kamilla Kjerúlf saksóknarfulltrúi) gegn Einari Braga Þorkelssyni (Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir þjófnað, fíkniefnalaga- og umferðarlagabrot og gert að sæta fangelsi í 90 daga, auk þess sem ævilöng svipting ökuréttar var áréttuð.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 6. mars 2024

S-6199/2023

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kamilla Kjerúlf saksóknarfulltrúi) gegn Baldri Hrafni Þorleifssyni (Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir nokkur umferðarlagabrot og gert að sæta fangelsi í 3 ár og 2 mánuði, auk þess sem áréttuð var ævilöng svipting ökuréttinda.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 13. febrúar 2024

S-6751/2023

Ákæruvaldið (Agnes Ýr Stefánsdóttir saksóknarfulltrúi) gegn Geir Þorsteinssyni (Jóhann Pétursson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Endurtekin auðgunarbrot og umferðarlagabrot, nytjastuldur, skjalamisnotkun og vörslur fíkniefna.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 12. desember 2023

S-321/2023

Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra (Alla Rún Rúnarsdóttir saksóknarfulltrúi) gegn Elvari Hlédísarsyni (Gísli M. Auðbergsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði dæmdur samkvæmt dómvenju til fjögurra og hálfs mánaðar fangelsisvistar fyrir að hafa ekið tvívegis sviptur ökuréttindum, en um fimmtu ítrekun var að ræða. Ákærði var hins vegar sýknaður af ákæru fyrir lyfjaakstur samkvæmt 50. gr. umferðarlaga, þar sem ráðherra hefði ekki sett reglugerð um vanhæfismörk, þ.e. hvenær ökumaður teljist vera óhæfur til að stjórna ökutæki vegna neyslu lyfja, sbr. 6. mgr. 48. gr. umferðarlaga. Í málinu lá fyrir niðurstaða blóðrannsóknar sem sýndi að ákærði hafði neytt umrædds lyfs umfram ávísaðan lyfjaskammt. Hins vegar fór hvorki fram klínískt ökuhæfismat læknis né var kveðið á um óhæfi til aksturs í niðurstöðu blóðrannsóknar. Þótti því einnig óhjákvæmilegt að sýkna ákærða af broti gegn 48. gr. umferðarlaga

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 3. nóvember 2023

S-5162/2023

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kamilla Kjerúlf saksóknarfulltrúi) gegn Daníel Þór Stefánssyni
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir umferðar- og fíkniefnalagabrot. Skilorðsdómur var dæmdur upp og ákærða gert að sæta 3 mánaða fangelsi, skilorðsbundið í tvö ár og að greiða 1.460.000 króna sekt.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 28. júní 2023

S-2893/2022

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Íris Þóra Júlíusdóttir saksóknarfulltrúi) gegn Ragnari Jóhanni Sævarssyni (Arnar Kormákur Friðriksson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir umferðarlagabrot. Dæmdur í 8 mánaða fangelsi og ævilöng svipting ökuréttar áréttuð.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 12. júní 2023

S-993/2023

Ákæruvaldið (Kamilla Kjerúlf saksóknarfulltrúi) gegn Pétri Birgi Birgissyni (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Sakfellt fyrir sviptingar- og vímuakstur, fíkniefnaalagabrot, þjófnað og nytjastuld.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 24. maí 2023

S-2680/2023

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kamilla Kjerúlf saksóknarfulltrúi) gegn Guðmundi Skorra Óskarssyni (Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir fíkniefnalagabrot, vopnalagabrot og umferðarlagabrot. Dæmdur í 90 daga fangelsi og ævilöng svipting ökuréttar áréttuð.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 23. maí 2023

S-48/2023

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kamilla Kjerúlf saksóknarfulltrúi) gegn Ásgeiri Þór N. Arnarssyni (Snorri Sturluson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir hegningar-, vopna-, fíkniefna-, umferðar- og lögreglulagabrot. Dæmdur í 22 mánaða fangelsi og ævilöng svipting ökuréttar áréttuð.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 10. maí 2023

S-2542/2023

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Íris Þóra Júlíusdóttir saksóknarfulltrúi) gegn Hrefnu Rán Hannesdóttur (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærða sakfelld fyrir umferðar- og hegningarlagabrot. Dæmd í 6 mánaða fangelsi og ævilöng svipting ökuréttar áréttuð.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 27. apríl 2023

S-661/2023

Ákæruvaldið (Friðrik Smári Björgvinsson aðstoðarsaksóknari) gegn Ólafi Björgvin Hermannssyni (Ólafur Valur Guðjónsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Sakfellt og ákvörðuð refsing vegna fjölda brota, þar á meðal brot gegn valdstjórninni, fíkniefnabrot, fíkniefna- og sviptingarakstur, nytjastuld, eignaspjöll og fleira.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 19. apríl 2023

S-5706/2022

Ákæruvaldið (Kristín Einarsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Elvari Má Halldórssyni (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Sakfellt vegna fjölda brota, þar á meðal þjófnað, nytjastuld, skjalafals, umferðar- og fíkniefnalagabrot.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 15. mars 2023

S-718/2023

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kamilla Kjerúlf saksóknarfulltrúi) gegn Elís Aroni Valgarðssyni
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir akstur sviptur ökurétti, sem og akstur undir áhrifum vímuefna og slævandi lyfja. Ákærða gert að sæta fangelsi í 1 ár og 7 mánuði. Ævilöng svipting ökuréttar ákærða áréttuð.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 8. mars 2023

S-1803/2022

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Júlí Karlsson aðstoðarsaksóknari) gegn Skarphéðni Arnari Njálssyni (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir umferðar- og fíkniefnalagabrot. Dæmdur í 6 mánaða fangelsi og ævilöng svipting ökuréttar áréttuð.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 13. febrúar 2023

S-3767/2022

Ákæruvaldið (Kamilla Kjerúlf saksóknarfulltrúi) gegn Hólmari Frey Oddgeirssyni (Snorri Sturluson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Vörslur og framleiðsla fíkniefna og umferðarlagabrot.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 14. desember 2022

S-4640/2022

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Gunnhildur Anna Alfonsdóttir saksóknarfulltrúi) gegn Hinriki Jónssyni
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir umferðarlagabrot og dæmdur í 10 mánaða fangelsi. Ævilöng svipting ökuréttar áréttuð.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 9. nóvember 2022

S-4158/2022

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Gyða Ragnheiður Stefánsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Sæþóri Braga Sölvasyni (Páll Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir þjófnað, fíkniefna-, umferðar- og vopnalagabrot. Dæmdur í 5 mánaða fangelsi og ævilöng svipting ökuréttar áréttuð. Fíkniefni og hnífar gerðir upptækir. Um var að ræða hegningarauka og skilorðsrof og var skilorð samkvæmt fyrri dómi dæmt upp.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 12. október 2022

S-2034/2022

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Katrín Ólöf Einarsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Sævari Má Indriðasyni (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir fíkniefna- og umferðarlagabrot. Dæmdur í 7 mánaða fangelsi og sviptur ökurétti ævilangt. Um var að ræða rof á skilorði og var skilorðsdómur dæmdur upp.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 30. júní 2022

S-2789/2021

Ákæruvaldið (Silja Rán Arnarsdóttir saksóknarfulltrúi) gegn Róberti Birgi Gíslasyni (Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður) (Reynir Þór Garðarsson lögmaður einkaréttarkröfu)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Sakfellt og sýkna að hluta fyrir brot gegn valdstjórninni. Einnig sakfellt fyrir þjófnaði og endurtekinn akstur undir áhrifum áfengis og fíkniefna o.fl.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 2. mars 2022

S-5990/2021

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Árni Bergur Sigurðsson aðstoðarsaksóknari) gegn Hilmari Þór Hannessyni (Þorgils Þorgilsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir hegningarlagabrot, fíkniefnalagabrot og ítrekuð umferðarlagabrot. Dæmdur til að sæta fangelsi í 24 mánuði. Ævilöng svipting ökuréttar áréttuð og fíkniefni gerð upptæk.svi

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 1. mars 2022

S-3728/2021

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Auðbjörg Lísa Gústafsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Arnari Inga Jónssyni (Þorgils Þorgilsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir ítrekuð brot gegn umferðar- hegningar- og fíkniefnalögum. Rof á reynslulausn. Dæmdur til að sæta fangelsi í 3 ár. Ævilöng svipting ökuréttar áréttuð og fíkniefni gerð upptæk.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 1. mars 2022

S-3593/2021

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kristín Einarsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Jóhanni Elvari Sveinbjörnssyni (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir að aka ítrekað undir áhrifum ávana- og fíkniefna og eða slævandi lyfja sviptur ökurétti og fyrir vörslur fíkniefna. Rof á skilorði og hegningarauki að hluta. Dæmdur til að sæta fangelsi í 2 ár og 6 mánuði. Ævilöng svipting ökuréttar áréttuð og fíkniefni gerð upptæk.

Héraðsdómur Reykjaness birt 28. febrúar 2022

S-45/2022

Héraðssaksóknari (Fanney Björk Frostadóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Hinrik Inga Óskarssyni (Þorgils Þorgilsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir frelsissviptingu, rán, líkamsárás, eignaspjöll, brot á nálgunarbanni, akstur undir áhrifum fíkniefna og lyfja og fleiri umferðarlagabrot.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 17. febrúar 2022

S-5462/2021

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Árni Bergur Sigurðsson aðstoðarsaksóknari) gegn Finni Loftssyni
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir að aka í þriðja sinn, innan ítrekunartíma, undir áhrifum áfengis. Dæmdur til að sæta fangelsi í 30 daga og sviptur ökurétti ævilangt.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 16. febrúar 2022

S-29/2022

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Árni Bergur Sigurðsson aðstoðarsaksóknari) gegn Eyþóri Hlynssyni
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir umferðar-, fíkniefna- og hegningarlagabrot. Sviptur ökurétti ævilangt og fíkniefni gerð upptæk.

Héraðsdómur Reykjaness birt 8. febrúar 2022

S-2242/2021

Málið nr. S-2242/2021 Ákæruvaldið (Ásmundur Jónsson aðstoðarsaksóknari) gegn X (Jóhannes Albert Kristbjörnsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Kona á sextugsaldri var sakfelld fyrir tvö þjófnaðarbrot í verslunum í Reykjavík og fyrir að hafa þrívegis ekið bifreið undir áhrifum ávana- og fíknilyfja og annarra lyfja. Þótti refsing hæfilega ákveðin 45 daga fangelsi og 450.000 króna sekt í ríkissjóð. Jafnframt var ákærða svipt ökurétti í fjögur og hálft ár og gert að greiða allan sakarkostnað.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 26. janúar 2022

S-5981/2021

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Árni Bergur Sigurðsson aðstoðarsaksóknari) gegn Írenu Lilju Kolbrúnardóttur
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærða sakfelld fyrir umferðar- og fíkniefnalagabrot og gert að sæta fangelsi í 75 daga. Þá var ákærða svipt ökurétti ævilangt og gert að greiða sakarkostnað. Fíkniefni gerð upptæk.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 22. desember 2021

S-1543/2020

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Einar Laxness aðstoðarsaksóknari) gegn Ívari Erni Katrínarsyni (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir umferðar- og fíkniefnalagabrot og gert að sæta fangelsi í 9 mánuði. Fíkniefni gerð upptæk og áréttuð ævilöng ökuréttarsvipting.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 16. desember 2021

S-2673/2021

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kristmundur Stefán Einarsson aðstoðarsaksóknari) gegn Berglindi Ósk Ólafsdóttur (Þorgils Þorgilsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærða sakfelld fyrir fjölmörg hegningar- og fíkniefnalagabrot og fyrir að aka ítrekað undir áhrifum ávana- og fíkniefna svipt ökurétti. Með brotum sínum rauf ákærða skilorð eldri dóms sem tekinn var upp og ákærðu gerð refsing í einu lagi. Dæmd til að sæta fangelsi í 17 mánuði og svipt ökurétti ævilangt. Fíkniefni gerð upptæk.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 15. desember 2021

S-5630/2021

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Júlí Karlsson saksóknarfulltrúi) gegn Hörn Guðjónsdóttur
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærða sakfelld fyrir að aka undir áhrifum áfengis í fimmta sinn og fyrir að aka svipt ökurétti í fjórða sinn, innan ítrekunartíma í skilningi 71. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Dæmd til að sæta fangelsi í 5 mánuði og ævilöng ökuréttarsvipting áréttuð.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 6. desember 2021

S-4768/2021

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Lína Ágústsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Theódór Emil Pantazis
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir þjófnaðarbrot og fyrir að aka ítrekað undir áhrifum slævandi lyfja. Dæmdur til að sæta fangelsi í tvo mánuði, skilorðsbundið til tveggja ára.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 1. desember 2021

S-4272/2021

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Baldvin Einarsson aðstoðarsaksóknari) gegn Eydísi Hönnu Ívarsdóttur (Guðmundur Njáll Guðmundsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærða sakfelld fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna, þjófnaðarbrot og nytjastuld. Dæmd til að sæta fangelsi í 3 mánuði, skilorðsbundið til tveggja ára.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 10. nóvember 2021

S-2786/2021

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Árni Bergur Sigurðsson aðstoðarsaksóknari) gegn Hrafnkeli Dwight Batson (Áslaug Lára Lárusdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir fíkniefna- og umferðarlagabrot en með brotunum rauf ákærði skilyrði reynslulausnar og var ákærðu gert að sæta fangelsi í 8 mánuði. Þá voru gerð upptæk fíkniefni og ákærði sviptur ökurétti ævilangt.

Héraðsdómur Reykjaness birt 5. nóvember 2021

S-3017/2020

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Haukur Gunnarsson aðstoðarsaksóknari) gegn Guðnýju Báru Tryggvadóttur (Kristján Flygenring lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Játningarmál. Ákærða sakfelld fyrir brot á lyfja- og lyfsölulögum, tollalagabrot og akstur undir áhrifum lyfja.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 27. október 2021

S-2831/2021

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Erlingi Einarssyni (Sigurður Freyr Sigurðsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir umferðarlaga, fíkniefnalaga- og hegningarlagabrot, þ. á m. ítrekaðan þjófnað, og gert að sæta fangelsi í 21 mánuði. Gæsluvarðhald sem ákærði hafði sætt var látið dragast frá refsingunni. Þá var ákærða gert að greiða aðra af þeim einkaréttarkröfum sem voru gerðar í málinu en hinni var vísað frá dómi. Þá voru gerð upptæk fíkniefni til ríkissjóðs. Áréttuð ævilöng ökuréttarsvipting ákærða.

Hleð fleiri dómum…