Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 1. mars 2022.
Mál nr. S-3593/2021:
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu
(Kristín Einarsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Jóhanni Elvari Sveinbjörnssyni
(Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Lykilorð
Akstur sviptur ökurétti. Akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Akstur undir áhrifum lyfja. Ávana- og fíkniefni. Fangelsi. Fíkniefnalagabrot. Ítrekun. Lyfjaakstur. Svipting ökuréttar. Umferðarlagabrot. Upptaka.
Útdráttur
Ákærði sakfelldur fyrir að aka ítrekað undir áhrifum ávana- og fíkniefna og eða slævandi lyfja sviptur ökurétti og fyrir vörslur fíkniefna. Rof á skilorði og hegningarauki að hluta. Dæmdur til að sæta fangelsi í 2 ár og 6 mánuði. Ævilöng svipting ökuréttar áréttuð og fíkniefni gerð upptæk.
Dómur
Mál þetta, sem dómtekið var 2. febrúar sl., er höfðað með tveimur ákærum. Fyrri ákæran er útgefin af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 29. júní 2021 á hendur Jóhanni Elvari Sveinbjörnssyni, kt. 000000-0000, [---], Reykjavík, fyrir eftirtalinn brot:
- Fíkniefnilagabrot með því að hafa föstudaginn 17. apríl 2020, haft í vörslum sínum 0,3 g af maríhúana, sem lögregla fann við öryggisleit á ákærða í bifreið á Breiðholtsbraut í Reykjavík, við Stekkjarbakka. M. 007-2020-19604
Telst háttsemi þessi varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr., laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974 og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 808/2018.
- Umferðarlagabrot með því að hafa föstudaginn 3. júlí 2020, ekið bifreiðinni [---] sviptur ökurétti um Reykjanesbraut í Reykjavík, á vegarkafla til norðurs, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn. M. 007-2020-36589
Telst háttsemi þessi varða við 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.
- Umferðar- og fíkniefnilagabrot með því að hafa miðvikudaginn 8. júlí 2020, ekið bifreiðinni [---] sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa slævandi lyfja (í blóðsýni mældist alprazólam 24 ng/ml, klónazepam 48 ng/ml og oxýkódon 770 ng/ml) um Laugarásveg í Reykjavík, við hús nr. 17 og á sama tíma haft í vörslum sínum 4 stykki af Alprazolam Krka, 37 stykki af Ritalin, 5 stykki af Ritalin Uno, 20 stykki af Medikinet og 3 stykki af OxyContin, sem lögregla fann við öryggisleit á ákærða. M. 007-2020-37986
Telst háttsemi þessi varða við 1., sbr. 2. mgr. 48. gr. og 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019 og 3. gr., sbr. 5. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974 og 2. gr., sbr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 808/2018.
- Umferðarlagabrot með því að hafa mánudaginn 3. ágúst 2020, ekið bifreiðinni [- --] sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa slævandi lyfja (í blóðsýni mældist alprazólam 37 ng/ml, fentanýl 1,4 ng/ml, klónazepam 130 ng/ml og oxýkódon 235 ng/ml) um Bæjarháls í Reykjavík, við Dragháls, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn. M. 007-2020-43224
Telst háttsemi þessi varða við 1., sbr. 2. mgr. 48. gr. og 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.
- Umferðarlagabrot með því að hafa laugardaginn 19. september 2020, ekið bifreiðinni [---] sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna ávana- og fíkniefna og slævandi lyfja (í blóðsýni mældist alprazólam 29 ng/ml, klónazepam 52 ng/ml, metýfenidat 110 ng/ml og oxýkódon 435 ng/ml) um Hlíðarsmára í Kópavogi, við Hólasmára, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn. M. 007-2020-54049
Telst háttsemi þessi varða við 1., sbr. 2. mgr. 48. gr., 1., sbr. 2. mgr. 50. gr. og 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.
- Umferðarlagabrot með því að hafa fimmtudaginn 1. október 2020, ekið bifreiðinni [---] sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna slævandi lyfja (í blóðsýni mældist alprazólam 43 ng/ml, klónazepam 64 ng/ml og oxýkódon 185 ng/ml) um Akrafjallsveg á Akranesi, til móts við Reyn, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn. M. 313-2020-17797
Telst háttsemi þessi varða við 1., sbr. 2. mgr. 48. gr. og 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.
- Umferðarlagabrot með því að hafa fimmtudaginn 1. október 2020, ekið bifreiðinni [---] sviptur ökurétti með 95 km hraða á klukkustund norður Vesturlandsveg í Hvalfjarðargöngum, þar sem leyfður hámarkshraði var 70 km á klukkustund. M. 313-2020-17954
Telst háttsemi þessi varða við 3. mgr. sbr. 5. mgr. 37. gr., 1. mgr. 58. gr., sbr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.
- Umferðarlagabrot með því að hafa mánudaginn 16. nóvember 2020, ekið bifreiðinni [---] sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna og slævandi lyfja (í blóðsýni mældist alprazólam 33 ng/ml, klónazepam 80 ng/ml, metýlfenidat 60 ng/ml, morfin 100 ng/ml og oxýkódon 610 ng/ml) um Hafnarfjarðarveg í Garðabæ, við Arnarnesveg, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn. M. 007-2020-69100
Telst háttsemi þessi varða við 1., sbr. 2. mgr. 48. gr., 1., sbr. 2. mgr. 50. gr. og 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.
- Umferðarlagabrot með því að hafa mánudaginn 21. desember 2020, ekið bifreiðinni [---] sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna og slævandi lyfja (í blóðsýni mældist alprazólam 18 ng/ml, klónazepam 71 ng/ml, metýlfenidat 105 ng/ml, morfín 360 ng/ml og oxýkódon 1000 ng/ml) um Bíldshöfða í Reykjavík, við N1 bensínstöð, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn. M. 007-2020-75819
Telst háttsemi þessi varða við 1., sbr. 2. mgr. 48. gr., 1., sbr. 2. mgr. 50. gr. og 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.
- Umferðarlagabrot með því að hafa mánudaginn 8. mars 2021, ekið bifreiðinni [- --] sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna og slævandi lyfja (í blóðsýni mældist alprazólam 20 ng/ml, klónazepam 46 ng/ml, kókaín 23 ng/ml, morfín 25 ng/ml og oxýkódon 180 ng/ml) um Gullinbrú í Reykjavík, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn. M.007-2021-14236
Telst þessi háttsemi varða við 1., sbr. 2. mgr. 48. gr., 1., sbr. 2. mgr. 50. gr. og 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.
- Umferðar- og fíkniefnilagabrot með því að hafa mánudaginn 22. mars 2021, ekið bifreiðinni [---] sviptur ökurétti, yfir óbrotna miðlínu og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna og slævandi lyfja (í blóðsýni mældist alprazólam 40 ng/ml, klónazepam 125 ng/ml, metýlfenidat 35 ng/ml, morfín 175 ng/ml, oxýkódon 515 ng/ml og tetrahýdrókannabínól 1,4 ng/ml) um Vesturlandsveg í Reykjavík, við Höfðabakkabrú þar sem lögregla stöðvaði aksturinn og á sama tíma haft í vörslum sínum 0,85 g af maríhúana sem lögregla fann við öryggisleit á ákærða. M. 007-2021-16807
Telst háttsemi þessi varða við 3. mgr. 7. gr., 1., sbr. 2. mgr. 48. gr., 1., sbr. 2. mgr. 50. gr. og 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 94. gr. og 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019 og 3. gr., sbr. 5. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974 og 2. gr., sbr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 808/2018.
- Umferðarlagabrot með því að hafa mánudaginn 5. apríl 2021, ekið bifreiðinni [- --] sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna og slævandi lyfja (í blóðsýni mældist klónazepam 38 ng/ml, metýfenidat 10 ng/ml, morfin 125 ng/ml, nítrazepam 190 ng/ml, oxýkódon 75 ng/ml og tetrahýdrókannabínól 3,2 ng/ml) um Engihjalla í Kópavogi, framan við verslunina Iceland, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn. M. 007-2021-19587
Telst háttsemi þessi varða við 1., sbr. 2. mgr. 48. gr., 1., sbr. 2. mgr. 50. gr. og 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.
- Umferðarlagabrot með því að hafa föstudaginn 23. apríl 2021, ekið bifreiðinni [- --] sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna og slævandi lyfja (í blóðsýni mældist alprazólam 14 ng/ml, klónazepam 160 ng/ml, morfin 35 ng/ml, oxýkódon 420 ng/ml og tetrahýdrókannabínól 1,7 ng/ml) um Hringbraut í Reykjavík, við hús nr. 55 við Bræðraborgarstíg, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn. M. 007-2021-23175.
Telst háttsemi þessi varða við 1., sbr. 2. mgr. 48. gr., 1., sbr. 2. mgr. 50. gr. og 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar, sviptingu ökuréttinda og til greiðslu alls sakarkostnaðar. Krafist er upptöku á 1,1 g af maríhúana, 4 stykkjum af Alprazolam Krka, 37 stykkjum af Ritalin, 5 stykkjum af Ritalin Uno, 20 stykkjum af Medikinet og 3 stykkjum af OxyContin, sem hald var lagt á, samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 808/2018.
Seinni ákæran er gefin út af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 18. janúar 2022 fyrir eftirtalin brot:
- Fíkniefnilagabrot með því að hafa, fimmtudaginn 29. apríl 2021, haft í vörslum sínum 0,73 g af tóbaksblönduðu kannabisefni, sem lögregla fann við öryggisleit á ákærða, á gististaðnum Blue Mountain apartments í Kópavogi, við Urðarhvarf M.007-2021-24732
Telst háttsemi þessi varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974 og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 808/2018.
- Umferðarlagabrot með því að hafa fimmtudaginn 2. september 2021, ekið bifreiðinni [---] sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna og slævandi lyfja ( í blóðsýni mældist díazepam 46 ng/ml, klónazepam 185 ng/ml, morfín 230 ng/ml, nordíazepam 120 ng/ml, oxýkódon 485 ng/ml og tetrahýdrókannabínól 8,4 ng/ml) um Snorrabraut í Reykjavík, við Rauðarárstíg, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn. M.007-2021-54148
Telst háttsemi þessi varða við 2. mgr. 4. gr., 1.sbr. 2. mgr. 50. gr. og 1.mgr. 58. gr. sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.
Þessi er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar og til að sæta sviptingu ökuréttar skv. 99. gr. og 101. gr. umferðarlaga nr. 77/2019. Krafist er upptöku á 0,73 g af tóbaksblönduðu kannabisefni, sem hald var lagt á, samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 808/2018.
Málin voru sameinuð í þinghaldi 26. janúar 2022.
Ákærði hefur játað skýlaust fyrir dómi þá háttsemi sem honum er gefin að sök samkvæmt báðum ákærum. Sannað er með játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að ákærði er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og eru brot hans rétt heimfærð til refsiákvæða í ákærum. Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu þegar sækjanda, verjanda ákærða og ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga. Ákæruvaldið gerir sömu dómkröfur og greinir í ákæru. Ákærði krefst vægustu refsingar sem lög leyfa. Þá er krafist hæfilegrar þóknunar til handa verjanda.
Ákærði er fæddur í maí 1980. Samkvæmt framlögðu sakavottorði, dagsettu 14. janúar 2022, á ákærði sakaferil að baki sem nær aftur til ársins 1997. Frá því ári hefur ákærði hlotið 13 refsidóma meðal annars fyrir brot gegn umferðarlögum, almennum hegningarlögum og lögum um ávana- og fíkniefni. Nú síðast var ákærði með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur, 28. janúar 2021, dæmdur til að sæta fangelsi í 9 mánuði skilorðsbundið til tveggja ára, meðal annars fyrir þjófað, fyrir að aka sviptur ökurétti undir áhrifum ávana- og fíkniefna og slævandi lyfja og fyrir vörslur fíkniefna.
Brot samkvæmt ákæruliðum nr. 1-9 í ákæru dagsettri 29. júní 2021 voru framin fyrir uppsögu framangreinds dóms frá 28. janúar 2021 og verður ákærða því dæmdur hegningarauki hvað þau brot varðar, sbr. 78. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Með öðrum brotum sínum hefur ákærði rofið skilorð framangreinds dóms frá 28. janúar 2021. Ber því að dæma skilorðsdóminn upp og ákvarða ákærða refsingu í einu lagi eftir reglum 77. gr., sbr. 60. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Við ákvörðunar refsingar nú verður litið til þess að ákærði játaði brot sín greiðlega fyrir dómi og er það honum til refsilækkunar. Á hinn bóginn ber að líta til þess að ákærði er nú sakfelldur fyrir að aka ítrekað undir áhrifum ávana- og fíkniefna og eða slævandi lyfja sviptur ökurétti. Við ákvörðun refsingar verður þannig við það miðað að ákærði hafi nú með brotum sínum í ákæruliðum nr. 10-13 í ákæru dagsettri 29. júní 2021 og ákærulið nr. 2 í ákæru dagsettri 18. janúar 2022, í fimmta sinn, innan ítrekunartíma í skilningi 71. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, gerst sekur um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna og í fjórða sinn fyrir akstur sviptur ökurétti. Þá er ákærði einnig sakfelldur fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974 en brot gegn þeim lögum geta varðað allt að 6 ára fangelsi, sbr. 5. gr. laganna.
Með hliðsjón af framangreindu, sakarefni þessa máls, sakaferils ákærða, dómvenju og ákvæðum 60., 77., og 78. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í 2 ár og 6 mánuði. Ekki þykir fært að skilorðsbinda refsinguna. Með vísan til lagaákvæða í ákæru er áréttuð ævilöng svipting ökuréttar ákærða. Í samræmi við kröfu ákæruvaldsins og með vísan til lagaákvæða i ákæru eru gerð upptæk til ríkissjóðs 1,1 gramm af maríhúana, 4 stykki af Alprazolam Krka, 37 stykki af Ritalin, 5 stykki af Ritalin Uno, 20 stykki af Medikinet, 3 stykki af OxyContin og 0,73 grömm af tóbaksblönduðu kannabisefni, sem hald var lagt á við rannsókn málsins.
Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Stefáns Karls Kristjánssonar lögmanns, 432.450 krónur, að meðtöldum virðisaukaskatti, og 2.424.140 krónur í annan sakarkostnað.
Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Sonja H. Berndsen aðstoðarsaksóknari fyrir Kristínu Einarsdóttur aðstoðarsaksóknara. Snorri Örn Clausen, aðstoðarmaður dómara, kveður upp dóminn.
D Ó M S O R Ð:
Ákærði, Jóhann Elvar Sveinbjörnsson, sæti fangelsi í 2 ár og 6 mánuði. Áréttuð er ævilöng svipting ökuréttar ákærða. Upptæk eru gerð til ríkissjóðs 1,1 gramm af maríhúana, 4 stykki af Alprazolam Krka, 37 stykki af Ritalin, 5 stykki af Ritalin Uno, 20 stykki af Medikinet, 3 stykki af OxyContin og 0,73 grömm af tóbaksblönduðu kannabisefni.
Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Stefáns Karls Kristjánssonar lögmanns, 432.450 krónur, og 2.424.140 krónur í annan sakarkostnað.
Snorri Örn Clausen