Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

122 dómar fundust

Lög: Lög um breyting á lögum um bókhald, nr. 145/1994, lögum um ársreikninga, nr. 144/1994, o.fl. nr. 37/1995

Landsréttur birt 27. október 2023

106/2023

Ákæruvaldið (Ásmunda Björg Baldursdóttir saksóknari) gegn X (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður)
Málaflokkur: Skattaréttur

Með dómi Landsréttar 15. júní 2018 var X sakfelldur fyrir stórfelld skattalaga- og bókhaldsbrot ásamt peningaþvætti. Ákæru á hendur X fyrir að skila efnislega röngum skattframtölum og láta undir höfuð leggjast að skila tekjuskatti og útsvari var hins vegar vísað frá héraðsdómi þar sem skattyfirvöld höfðu áður gert honum að greiða álag á vantalinn skattstofn vegna sömu brota en hin tvíþætta málsmeðferð var talin fara í bága við 4. gr. 7. viðauka mannréttindasáttmála Evrópu. Með úrskurði endurupptökudóms 23. janúar 2023 var fallist á beiðni X um endurupptöku málsins fyrir Landsrétti. Við hina endurteknu málsmeðferð komst Landsréttur að sömu niðurstöðu og í hinum upphaflega dómi um að sakfella bæri X fyrir að hafa skilað efnislega röngum virðisaukaskattskýrslum og ekki staðið skil á virðisaukaskatti sem innheimtur var í starfsemi A ehf. og B ehf. Jafnframt fyrir að hafa ekki staðið skil á virðisaukaskattskýrslum í starfsemi A ehf. Þá var X sakfelldur fyrir að láta undir höfuð leggjast að færa lögboðið bókhald beggja félaga á nánar tilgreindum rekstrartímabilum. Loks var X sakfelldur fyrir peningaþvætti með því leggja fjármuni, sem voru hluti ávinnings af þeim brotum, inn á tilgreinda bankareikninga, geyma þá og ráðstafa þeim svo til persónulega útgjalda og fasteignakaupa. Þá var jafnframt komist að sömu niðurstöðu er varðaði frávísun ákæru að hluta frá héraðsdómi. Var refsing X ákveðin fangelsi í 18 mánuði, en fullnustu hennar frestað skilorðsbundið í 3 ár. Þá var honum gert að greiða 258.000.000 króna í sekt.

Landsréttur birt 10. febrúar 2023

220/2021

Ákæruvaldið (Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari) gegn X og Ö ehf. og XX ehf. og YY ehf. og ÆÆ ehf. (Sveinn Andri Sveinsson lögmaður) og Y og ZZ ehf. og ÞÞ ehf. (Jóhann Karl Hermannsson lögmaður)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

X, Y og Z voru, ásamt tilgreindum félögum þeim tengdum, meðal annars ákærðir fyrir meiri háttar brot gegn skattalögum og peningaþvætti með því að hafa ýmist staðið skil á efnislega röngum skattframtölum, eigi staðið skil á skattframtölum eða þvættað ólögmætan ávinning af skattalagabrotunum. Með dómi héraðsdóms voru ákærðu, X og Z, sakfelldir samkvæmt ákæru en Y var sýknaður að hluta. Fyrir Landsrétti kröfðust X, Y og Z þess að tilgreindum ákæruliðum á hendur þeim yrði vísað frá héraðsdómi. Í úrskurði Landsréttar 2. desember 2022 var fallist á kröfur ákærðu að hluta en þar með var öllum sakargiftum á hendur Z vísað frá héraðsdómi. Kom því eingöngu til skoðunar niðurstaða héraðsdóms um sakfellingu ákærðu X og Y samkvæmt þeim ákæruliðum sem eftir stóðu sem og úrlausn héraðsdóms um upptöku fjármuna á reikningum tilgreindra einkahlutafélaga. Með dómi Landsréttar var niðurstaða hins áfrýjaða dóms staðfest að því er varðaði sakfellingu ákærðu fyrir skattalaga- og bókhaldsbrot í sjálfstæðum atvinnurekstri ákærða X annars vegar og í rekstri einkahlutafélagsins Æ hins vegar. Þá var þeim ákærulið sem beindist að X og varðaði ætlað peningaþvætti vísað frá héraðsdómi með vísan til c-liðar 1. mgr. 152. gr. og 1. mgr. 180. gr. laga nr. 88/2008. Að því er varðar kröfur á hendur einkahlutafélögum tengdum ákærðu X og Y, þá var rakið að upptökukröfur ákæruvaldsins væru settar fram með þeim hætti að þær lytu eingöngu að ólögmætum ávinningi ætlaðra brota sem vísað hefði verið frá héraðsdómi. Samkvæmt þessu, og í ljósi þess hvernig ákæruvaldið hefði kosið að afmarka kröfur sínar um upptöku, gætu þeir fjármunir sem krafist var upptöku á ekki talist ólögmætur ávinningur refsiverðrar háttsemi. Var öllum kröfum ákæruvaldsins um upptöku fjármuna því hafnað. Við ákvörðun refsingar var litið til þess langa tíma sem rannsókn og meðferð málsins hafði tekið. Með þeirri athugasemd en að öðru leyti með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms var refsing ákærðu hvors um sig ákveðin skilorðsbundið fangelsi í 12 mánuði. Þá var X gert að greiða 52.758.807 krónur í sekt til ríkissjóðs og Y 59.056.545 krónur.

Landsréttur birt 2. desember 2022

220/2021

Ákæruvaldið (Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari) gegn X og Ö ehf. og XX ehf. og YY ehf. og ÆÆ ehf. (Sveinn Andri Sveinsson lögmaður), Y og ZZ ehf. og ÞÞ ehf. (Jóhann Karl Hermannsson lögmaður) og Z (Jón Egilsson lögmaður, Kristján Gunnar Valdimarsson lögmaður, 3. prófmál)
Málaflokkur: Skattaréttur

X, Y og Z voru, ásamt tilgreindum félögum þeim tengdum, meðal annars ákærðir fyrir meiri háttar brot gegn skattalögum og peningaþvætti með því að hafa ýmist staðið skil á efnislega röngum skattframtölum, eigi staðið skil á skattframtölum eða þvættað ólögmætan ávinning af skattalagabrotunum. Með dómi héraðsdóms voru ákærðu, X og Z, sakfelldir samkvæmt ákæru en Y var sýknaður að hluta. Fyrir Landsrétti kröfðust X, Y og Z þess að tilgreindum ákæruliðum á hendur þeim yrði vísað frá héraðsdómi. Í úrskurði Landsréttar var rakið að vissir liðir ákæru tækju til sömu annmarka á skattskilum ákærðu og álagsbeiting ríkisskattsstjóra samkvæmt 1. og 2. mgr. 108. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt laut að. Álag ríkisskattsstjóra hefði verið fellt niður með úrskurði yfirskattanefndar en að mati dómsins væri ekki tækur annar skýringarkostur en að leggja til grundvallar að niðurfelling álagsins hafi falið í sér sýknu í skilningi 1. mgr. 4. gr. 7. samningsviðauka við mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Rakin voru þau viðmið um túlkun ákvæðisins sem beitt hefur verið í dómaframkvæmd. Ekki var talið að sýnt hefði verið fram á að viðmið um nægjanlega samþættingu í tíma væru uppfyllt og var þeim ákæruliðum sem fyrrgreint ákvæði tók til því vísað frá héraðsdómi. Þá var tilteknum ákæruliðum, sem sneru að ætluðu peningaþvætti ákærðu, vísað frá héraðsdómi, ýmist vegna þess að ákæruliðirnir uppfylltu ekki kröfur c-liðar 1. mgr. 152. gr. laga nr. 88/2008, eða á grundvelli fyrrgreinds ákvæðis mannréttindasáttmálans.

Landsréttur birt 4. desember 2020

385/2019

Ákæruvaldið (Einar Tryggvason saksóknari) gegn Pétri Þór Sigurðssyni (Björgvin Þorsteinsson lögmaður, Helga Björg Jónsdóttir lögmaður, 1. prófmál)
Málaflokkur: Skattaréttur

P var sakfelldur í héraði fyrir brot gegn lögum um virðisaukaskatt og bókhald, sbr. 1. og 2. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með því að hafa ekki staðið skil á virðisaukaskattsskýrslum, ekki staðið ríkissjóði skil á virðisaukaskatti sem innheimtur var í starfsemi einkahlutafélags hans L ehf. og látið undir höfuð leggjast að færa lögboðið bókhald félagsins. Fyrir Landsrétti krafðist P þess aðallega að málinu yrði vísað frá dómi, til vara að hann yrði sýknaður en til þrautavara vægustu refsingar sem lög leyfa. Landsréttur féllst ekki á þær málsástæður fyrir frávísun málsins að meðferð þess hefði dregist úr hófi í andstöðu við ákvæði stjórnarskrárinnar og mannréttindasáttmála Evrópu, að meðferð málsins fyrir dómstólum bryti bann við endurtekinni málsmeðferð samkvæmt 4. gr. 7. viðauka við mannréttindasáttmála Evrópu, að P hefði ekki notið réttlátrar málsmeðferðar eða að rannsókn málsins væri áfátt. Þá staðfesti Landsréttur niðurstöðu héraðsdóms um sakfellingu P og ákvæði hans um fangelsisrefsingu sem þótti hæfilega ákveðin í sex mánuði en fullnustu hennar frestað skilorðsbundið í tvö ár. P var jafnframt gert að greiða sekt í ríkissjóð að fjárhæð 35.400.000 krónur, að teknu tilliti til lögbundins lágmarks og álags sem kærði hafði þegar greitt, og skyldi 360 daga fangelsi koma í stað sektarinnar yrði hún ekki greidd innan fjögurra vikna.

Landsréttur birt 7. febrúar 2020

115/2019

Ákæruvaldið (Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari) gegn Friðmari Leifs Bogasyni (Sigmundur Hannesson lögmaður)
Málaflokkur: Skattaréttur

F var ákærður fyrir meiri háttar brot gegn skattalögum og bókhaldsbrot í rekstri einkahlutafélags á árinu 2015. F játaði skýlaust þá háttsemi sem honum var gefin að sök en taldi brot sín ekki meiri háttar. Landsréttur féllst ekki á þá málsvörn F og taldi að hann hefði framið brot sitt með sérstaklega vítaverðum hætti sem yki á saknæmi þess. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að F hafði ekki áður gerst brotlegur við lög og játaði brot sín hreinskilnislega. Einnig var tekið tillit til 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Var refsing F ákveðin fangelsi í þrjá mánuði en fullnustu hennar var frestað skilorðsbundið í tvö ár. Þá var F gert að greiða 4.900.000 króna sekt í ríkissjóð og skyldi 90 daga fangelsi koma í stað sektarinnar yrði hún ekki greidd.

Landsréttur birt 1. mars 2019

504/2018

Ákæruvaldið (Jón H. B. Snorrason saksóknari) gegn Gunnari Rúnari Gunnarssyni (Kristján Stefánsson lögmaður)
Málaflokkur: Skattaréttur

G var sakfelldur fyrir meiri háttar brot gegn skattalögum í rekstri tveggja einkahlutafélaga á nánar tilgreindum tímabilum. Jafnframt var hann sakfelldur fyrir bókhaldsbrot í rekstri annars félagsins. Við ákvörðun refsingar var litið til sakaferils G og tekið tillit til 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, auk þess sem refsing hans var tiltekin sem hegningarauki. Var refsing G ákveðin fangelsi í sex mánuði og honum gert að greiða 13.600.000 króna sekt í ríkissjóð.

Landsréttur birt 16. nóvember 2018

82/2018

Ákæruvaldið (Einar Tryggvason saksóknari) gegn Sigurði V. Ragnarssyni (Björgvin Jónsson lögmaður)
Málaflokkur: Skattaréttur

S var ákærður fyrir meiri háttar brot gegn skattalögum og bókhaldsbrot í sjálfstæðri atvinnustarfsemi með því að hafa staðið skil á efnislega röngum skattframtölum og virðisaukaskattsskýrslum vegna rekstraráranna 2005 til og með 2009 auk þess að hafa ekki fært bókhald með lögmæltum hætti á sama tímabili. Skattyfirvöld höfðu áður endurákvarðað skatta S vegna framangreindra brota og gert honum að greiða álag á vantalinn skattstofn. Í dómi Landsréttar var talið að hin tvíþætta málsmeðferð sem S sætti færi í bága við 4. gr. 7. gr. viðauka mannréttindasáttmála Evrópu þar sem hún hefði ekki verið nægilega samþætt í tíma. Var þeim hluta ákæru, sem varðaði brot S gegn lögum um tekjuskatt og lögum um virðisaukaskatt, því vísað frá héraðsdómi. Hins vegar staðfesti Landsréttur niðurstöðu héraðsdóms um að S hefði gerst sekur um bókhaldsbrot. Við ákvörðun refsingar var litið til tafa á meðferð málsins og þess að S hefði ekki áður gerst sekur um refsiverða háttsemi og var ákvörðun refsingar hans frestað skilorðsbundið í tvö ár.

Landsréttur birt 21. september 2018

69/2018

Ákæruvaldið (Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari) gegn Viðari Má Friðfinnssyni, Veitingahúsinu Læk ehf, Eignarhaldsfélaginu Læk ehf og Artist ehf (Páll Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Skattaréttur

V var sakfelldur fyrir meiriháttar brot á skattalögum og almennum hegningarlögum. Annars vegar með því að hafa á nánar tilgreindum tímabilum í starfi sínu sem framkvæmdastjóri og stjórnarmaður VL ehf. staðið skil á efnislega röngum virðisaukaskattsskýrslum og vantalið virðisaukaskattskylda veltu félagsins og innheimtan virðisaukaskatt sem bar að standa ríkissjóði skil á. Hins vegar með því að hafa á nánar tilgreindum tímabilum staðið skil á efnislega röngum skattframtölum og komist með því móti hjá því að greiða tekjuskatt og útsvar. Refsing V þótti hæfilega ákveðin fangelsi í 18 mánuði en fullnustu refsingarinnar var frestað skilorðsbundið í tvö ár. Auk þess var honum gert að greiða 242.000.000 króna sekt í ríkissjóð og skyldi 12 mánaða fangelsi koma í stað sektarinnar yrði hún ekki greidd innan fjögurra vikna. Þá var VL ehf. dæmt til að greiða 158.000.000 króna sekt óskipt með V til ríkissjóðs. Í málinu var gerð krafa um upptöku nánar tilgreindra fjármuna VL ehf., EL ehf. og A ehf. sem svaraði til ávinnings þeirra af hinni refsiverðu háttsemi. Landsréttur féllst ekki á að heimild VII. kafla A almennra hegningarlaga nr. 19/1940 til upptöku takmarkaðist við ágóða sem yrði til vegna innflutnings ávana- og fíkniefna, auðgunarbrota og annarrar skipulagðrar brotastarfsemi. Með hliðsjón af skýrum ákvæðum VII. kafla A laganna væru uppfyllt skilyrði til að taka upptökukröfurnar til greina á grundvelli 69. gr. og 69. gr. d laganna.

Hæstiréttur birt 20. september 2018

11/2018

Ákæruvaldið (Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari) gegn X, Y, Z og Þ (Björgvin Þorsteinsson lögmaður)
Málaflokkur: Skattaréttur

Kært var ákvæði í dómi Landsréttar um að vísa frá héraðsdómi sakargiftum á hendur einkahlutafélögunum X, Y, Z og Þ um brot gegn 8. mgr., sbr. 1. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988 um virðisaukaskatt á þeim grundvelli að málsmeðferðin sem félögin sættu færi í bága við 1. mgr. 4. gr. 7. viðauka við mannréttindasáttmála Evrópu. Krafðist ákæruvaldið þess að frávísunin yrði felld úr gildi annars vegar á þeim grunni að lögaðilar yrðu ekki felldir undir bann samkvæmt 1. mgr. 4. gr. 7. viðauka við mannréttindasáttmála Evrópu og hins vegar með vísan til þess að álag á grundvelli 27. gr. laga nr. 50/1988 fæli ekki í sér refsingu í skilningi framangreinds ákvæðis samningsviðaukans með sama hætti og þegar gjaldandi sætti álagi á gjaldstofna samkvæmt 2. mgr. 108. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt. Um fyrrgreinda atriðið vísaði Hæstiréttur til þess að þótt ekki yrði með skýrum hætti ráðið af orðalagi ákvæðisins hvort það tæki einungis til einstaklinga yrði ekki annað séð af dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu en að þar hefði ákvæðinu einnig verið beitt gagnvart lögaðilum. Til þess væri einnig að líta að á grundvelli laga nr. 62/1994 um mannréttindasáttmála Evrópu væri ákvæðið íslensk réttarheimild og sætti sem slíkt skýringu sem hvert annað lagaákvæði fyrir dómstólum. Eðli máls samkvæmt stæðu ekki haldbær efnisrök til að fella lögaðila utan þeirrar verndar, sem ákvæðinu væri ætlað að veita. Að því er varðaði síðargreinda álitaefnið sló Hæstiréttur því föstu að þótt hundraðshluti álags væri ólíkur milli ákvæðanna auk þess munar sem væri á ákvörðun um beitingu þess stæðu ekki efni til þess að gera greinarmun í þessum tveimur tilvikum, enda væri í báðum ákvæðunum um að ræða viðurlög sem taka bæri tillit til við ákvörðun sektar í sakamáli. Að þessu virtu og með vísan til þess að ekki væri ágreiningur um þá niðurstöðu Landsréttar um að rekstur máls gegn félögunum fyrir skattayfirvöldum annars vegar og rannsókn sakamáls á hendur þeim og meðferð þess fyrir dómi hins vegar hafi ekki staðist efnislegan áskilnað 1. mgr. 4. gr. 7. viðauka við mannréttindasáttmála Evrópu var hið kærða ákvæði staðfest.

Landsréttur birt 15. júní 2018

77/2018

Ákæruvaldið (Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari) gegn X (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður) og Y (Eiríkur Gunnsteinsson lögmaður, Ólafur Kjartansson lögmaður, 1. prófmál)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Í málinu var X sakfelldur fyrir meiri háttar brot gegn skattalögum og bókhaldsbrot í starfsemi einkahlutafélaganna A og B ásamt peningaþvætti. Ákæru á hendur X fyrir að skila efnislega röngum skattframtölum og láta undir höfuð leggjast að skila tekjuskatti og útsvari var vísað frá héraðsdómi þar sem skattyfirvöld höfðu áður gert honum að greiða álag á vantalinn skattstofn vegna sömu brota en hin tvíþætta málsmeðferð var talin fara í bága við 4. gr. 7. viðauka mannréttindasáttmála Evrópu þar sem hún hefði ekki verið nægilega samþætt í tíma. Við ákvörðun refsingar X var litið til þess að hann hefði ekki áður gerst sekur um refsivert brot og tafa á rannsókn málsins. Á hinn bóginn væru brotin stórfelld og bæru vott um einbeittan brotavilja. Var refsing X ákveðin fangelsi í átján mánuði, en fullnustu fimmtán mánaða frestað skilorðsbundið í þrjú ár. Þá var honum gert að greiða 258.000.000 króna í sekt. Y var sýknuð af refsikröfu fyrir peningaþvætti þar sem brot hennar væru fyrnd.

Landsréttur birt 15. júní 2018

65/2018

Ákæruvaldið (Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari) gegn Bjarka Rafni Jónssyni (Jón Elvar Guðmundsson lögmaður)
Málaflokkur: Skattaréttur

BJ var sakfelldur fyrir bókhaldsbrot með því að hafa látið undir höfuð leggjast að færa lögboðið bókhald fyrir einkahlutafélagið B á rekstrarárinu 2008 og vanrækt að varðveita fylgiskjöl og önnur bókhaldsgögn með fullnægjandi hætti. BJ var einnig gefið að sök meiriháttar skattalagabrot með því að hafa ekki staðið skil á virðisaukaskattsskýrslum og virðisaukaskatti félagsins fyrir tiltekin tímabil. Landsréttur vísaði til þess að í skýrslu skattrannsóknarstjóra kæmi fram það mat hans að þeir sölureikningar sem ákæra byggi á væru tilhæfulausir og að við lögreglurannsókn málsins hefði ekkert komið fram sem varpaði nýju ljósi á það. Taldi Landsréttur ekki hafið yfir skynsamlegan vafa að BJ hefði gerst sekur um þann undandrátt á skyldu til greiðslu virðisaukaskatts sem hann var ákærður fyrir, sbr. 109. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Var BJ því sýknaður af þessum lið ákæru. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að óhæfilegur dráttur hefði orðið á meðferð málsins sem ekki hefði verið útskýrður. Var ákvörðun refsingar BJ frestað skilorðsbundið.

Landsréttur birt 4. maí 2018

4/2018

Ákæruvaldið (Einar Tryggvason saksóknari) gegn Rafni Sveinssyni, Atvinnubifreiðum og tækjum ehf, Íslandsleiðum ehf, Húsaborg ehf og Tinnubergi ehf (Björgvin Þorsteinsson lögmaður)
Málaflokkur: Skattaréttur

R var ákærður fyrir meiri háttar brot gegn skattalögum og bókhaldsbrot með því að hafa í starfi sínu sem framkvæmdastjóri og stjórnarmaður einkahlutafélaganna A, Í, H og T látið hjá líða að skila virðisaukaskattsskýrslum fyrir öll tímabil ársins 2011 á lögmæltum tíma, standa skil á virðisaukaskatti og færa bókhald félaganna með lögmæltum hætti. A ehf., Í ehf., H ehf. og T ehf. sættu einnig ákæru fyrir brotin en skattyfirvöld höfðu áður endurákvarðað skatta félaganna vegna brota gegn lögum um virðisaukaskatt og gert þeim að greiða álag á vantalinn skattstofn. Í dómi Landsréttar var talið að hin tvíþætta málsmeðferð sem A ehf., Í ehf., H ehf. og T ehf. sættu færi í bága við 4. gr. 7. viðauka mannréttindasáttmála Evrópu þar sem hún hefði ekki verið nægilega samþætt í tíma. Var þeim hluta ákæru, sem varðaði brot félaganna gegn lögum um virðisaukaskatt, því vísað frá héraðsdómi. Ekki þóttu efni til að vísa samsvarandi ákæruliðum á hendur R frá héraðsdómi enda hefði málsmeðferð gagnvart honum ekki lokið með ákvörðun skattyfirvalda, en einum ákærulið var þó vísað frá vegna tölulegs misræmis. Að öðru leyti var héraðsdómur staðfestur um sakfellingu R og félaganna og heimfærslu til refsiákvæða, en ekki var fallist á að sýkna R af ákæruliðum er vörðuðu vanskil á virðisaukaskatti á grundvelli jafnræðisreglu stjórnarskrár.

Héraðsdómur Vestfjarða birt 4. júlí 2017

S-56/2016

Ákæruvaldið (Matthea Oddsdóttir saksóknarfulltrúi) gegn Hauki Vagnssyni (Bragi Dór Hafþórsson hdl)
Málaflokkur: Skattaréttur

Skattalagabrot. Ákærði sakfelldur fyrir að standa ekki skil á virðisaukaskattsskýrslum og skattframtölum og fyrir að standa ríkissjóði ekki skil á virðisaukaskatti, auk bókhaldsbrots.

Hæstiréttur birt 2. júní 2017

337/2017

Ákæruvaldið (Björn Þorvaldsson saksóknari) gegn X, Y ehf, Z ehf, Þ ehf, Æ ehf og Ö ehf (enginn)
Málaflokkur: Skattaréttur

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem nánar tilgreindum ákærulið í máli ákæruvaldsins gegn varnaraðilum var vísað frá dómi þar sem í engu var vikið að því á hvaða tímabili brotið hefði átt sér stað, sbr. c. lið 1. mgr. 152. gr. laga nr. 88/2008.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 13. júní 2016

S-427/2016

Lykilorð: Skattar.
Málaflokkur: Skattaréttur

Sakfellt fyrir skattalagabrot.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 5. maí 2017

S-930/2016

Ákæruvaldið (Ásmunda Björg Baldursdóttir saksóknari) gegn Snæbirni Steingrímssyni (Gísli Kr. Björnsson hdl)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Ákærði sakfelldur fyrir fjárdrátt, umboðssvik og brot gegn lögum um bókhald. Einnig fyrir brot gegn lögum um virðisaukaskatt. Hann var dæmdur í 16 mánaða fangelsi þar af var fullnustu refsingar 13 mánaða refsingarinnar frestað skilorðsbundið. Ákærði var einnig dæmdur til greiðslu sektar.

Hæstiréttur birt 6. apríl 2017

770/2015

Ákæruvaldið (Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari) gegn Gunnari Erni Haraldssyni (Jón Egilsson hrl)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

G voru gefin að sök umboðssvik með því að hafa sem eigandi, framkvæmdastjóri og stjórnarmaður B ehf. misnotað aðstöðu sína og ráðstafað frá félaginu, til annarra félaga sem G var í fyrirsvari fyrir, 31 fasteign sem félagið leigði út án þess að nokkurt endurgjald hefði komið fyrir og án þess að áhvílandi lánum væri skuldskeytt. Þá var G gefið að sök bókhaldsbrot með því að hafa látið undir höfuð leggjast að varðveita bókhaldsgögn B ehf. vegna starfsemi þess á árinu 2008 og nánar tilgreind brot gegn lögum um ársreikninga. Kröfu G um frávísun málsins var hafnað. Þá kom fram í dómi Hæstaréttar að B ehf. hefði hvorki orðið fyrir tjóni né hefði skapast veruleg fjártjónshætta við það eitt að félagið hefði misst eignarhald á umræddum fasteignum, enda yrði með hliðsjón af saksókninni að leggja til grundvallar að engin af eignunum hefði hrokkið fyrir áhvílandi skuldum. Skipti þá engu þótt ekki hefði verið aflað samþykkis veðhafa fyrir skuldskeytingu þannig að B ehf. yrði leyst undan áhvílandi skuldum. Hins vegar hefði ráðstöfunin falið í sér að félagið var svipt leigutekjum af eignunum og þar með rekstrargrundvelli sínum. Var G því sakfelldur fyrir brot gegn 249. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og var það engu talið breyta um refsinæmi brotsins þótt G hefði notað fjármunina til viðhalds og framkvæmda á eignunum. Þá var G sakfelldur fyrir brot gegn lögum nr. 145/1994 um bókhald með því að hafa látið undir höfuð leggjast að varðveita bókhald B ehf. vegna starfsemi þess á árinu 2008 og fyrir brot gegn lögum nr. 3/2006 um ársreikninga með því að hafa látið undir höfuð leggjast að láta fylgja yfirlit um sjóðsstreymi með ársreikningi félagsins sama ár. Hins vegar var G sýknaður af ákæru um brot gegn síðastgreindum lögum fyrir að hafa greint rangt frá í skýrslu stjórnar í ársreikningi B ehf. 2008 og fyrir rangfærslu í efnahagsreikningi ársreiknings félagsins sama ár. Var refsing G ákveðin fangelsi í 1 ár en meðal annars með hliðsjón af því hve langt var um liðið frá því að brotin voru framin var refsingin skilorðsbundin til tveggja ára.

Hæstiréttur birt 17. nóvember 2016

358/2015

Ákæruvaldið (Einar Tryggvason saksóknari) gegn X (Björgvin Jónsson hrl)
Málaflokkur: Skattaréttur

X var ákærður fyrir meiriháttar brot gegn skattalögum og 1. og 2. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með því að hafa í sjálfstæðri atvinnustarfsemi sinni skilað efnislega röngum skattframtölum og virðisaukaskattsskýrslum vegna áranna 2005 til 2009 og ekki staðið skil á þeim gjöldum. Í dómi Hæstaréttar kom fram að hvað sem liði skýringum sakflytjenda hefði engin niðurstaða fengist á því til hvaða gagna héraðsdómur hefði litið og lagt til grundvallar þegar ætluð heildarvanskil X voru metin. Var því talið að verulegir annmarkar hefðu verið á samningu hins áfrýjaða dóms, sbr. f. og g. liði 2. mgr. 183. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Var hinn áfrýjaði dómur ómerktur og málinu vísað heim í hérað til löglegrar meðferðar að nýju.

Héraðsdómur Reykjaness birt 26. október 2016

S-297/2016

Ákæruvaldið (Kristín Ingileifsdóttir saksóknarfulltrúi) gegn Kristni Ingimundarsyni (Jón Bjarni Kristjánsson hdl)
Málaflokkur: Skattaréttur

Ákærði var sakfelldur fyrir meiri háttar brot gegn skattalögum og lögum um bókhald og gert að sæta fangelsi í 15 mánuði, skilorðsbundið til tveggja ára. Var ákærða dæmdur hegningarauki við skilorðsdóm frá árinu 2015 sem tekinn var upp og ákærða gerð refsing í einu lagi fyrir öll brotin. Þá var ákærða gert að greiða sekt til ríkissjóðs sem nam þrefaldri fjárhæð vanskila.

Héraðsdómur Reykjaness birt 12. október 2016

S-127/2016

Ákæruvaldið (Ólafur Hallgrímsson saksóknarfulltrúi) gegn Jóhanni P. Kristbjörnssyni (Unnar Steinn Bjarndal hrl)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Ákærði sakfelldur fyrir fjárdrátt og meiriháttar brot á lögum um bókhald og lögum um ársreikninga. Refsing ákveðin sex mánaða skilorðsbundið fangelsi.

Hæstiréttur birt 22. september 2016

499/2015

Ákæruvaldið (Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari) gegn Viðari Sigurðssyni (Valgeir Kristinsson hrl)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

V, eigandi og framkvæmdastjóri M ehf., var sakfelldur fyrir fjárdrátt samkvæmt 247. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með því að hafa misnotað aðstöðu sína og dregið sér 4.000.000 krónur út af bankareikningi M ehf. og nýtt í eigin þágu. Einnig var V sakfelldur fyrir skilasvik samkvæmt 3. og 4. tölulið 1. mgr. 250. gr. almennra hegningarlaga fyrir að skerða rétt lánadrottna M ehf. til að öðlast fullnægju af eignum félagsins með því að hafa í fyrsta lagi misnotað aðstöðu sína og dregið sér 2.844.000 krónur út af bankareikningi M ehf. og nýtt í eigin þágu og í öðru lagi fyrir að hafa látið P leigjanda íbúðar í eigu M ehf. greiða leigugreiðslur inn á bankareikning S ehf. en það félag var einnig í eigu V. Þá var V sakfelldur fyrir brot á lögum nr. 145/1994 um bókhald með því að hafa látið undir höfuð leggjast að færa lögboðið bókhald vegna rekstrar M ehf. á árunum 2010 og 2011. Var refsing hans ákveðin fangelsi í 9 mánuði en fullnustu refsingarinnar frestað skilorðsbundið í tvö ár.

Hæstiréttur birt 3. mars 2016

398/2015

Ákæruvaldið (Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari) gegn Magnúsi Haukssyni (Sigurður G. Guðjónsson hrl)
Málaflokkur: Skattaréttur

M var sakfelldur fyrir brot gegn skattalögum með því að hafa í sjálfstæðri atvinnustarfsemi sinni ekki staðið skil á virðisaukaskattskýrslum og virðisaukaskatti á nánar tilgreindum tímabilum. Þá var hann sakfelldur fyrir bókhaldsbrot. Voru brotin talin meiri háttar og varða við 2. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Við ákvörðun refsingar var M gerður hegningarauki samkvæmt 78. gr. almennra hegningarlaga vegna hluta brotanna. Auk þess var tekið tillit til brotaferils M en hann hafði þrívegis áður hlotið dóma fyrir brot gegn 262. gr. almennra hegningarlaga og ýmsum ákvæðum skattalaga. Var refsing M ákveðin fangelsi í níu mánuði, en fullnustu sex mánaða af refsingunni var frestað skilorðsbundið í þrjú ár. Þá var B gert að greiða 56.500.000 króna sekt í ríkissjóð og skyldi eins árs fangelsi koma í stað sektarinnar yrði hún ekki greidd.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 7. desember 2015

S-242/2015

Ákæruvaldið (Matthea Oddsdóttir saksóknarfulltrúi) gegn Rúnari Þrúðmarssyni (Gylfi Jens Gylfason hdl)
Lykilorð: Fjárdráttur.
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Brot gegn skatta- og bókhaldslögum.

Hæstiréttur birt 19. nóvember 2015

660/2014

Ákæruvaldið (Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari) gegn Sigtryggi Leví Kristóferssyni (Magnús Guðlaugsson hrl) og Hildi Nönnu Jónsdóttur (Björgvin Jónsson hrl)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

S og H voru sakfelld fyrir fjárdrátt samkvæmt 247. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með því að hafa dregið sér samtals 70.003.000 krónur af fjármunum H ehf. og ráðstafað í eigin þágu, annars vegar til greiðslu á persónulegri skuld S og hins vegar til kaupa á einbýlishúsi. Var ekki fallist á að um hafi verið að ræða lán til S og H frá H ehf. auk þess sem þau hafi með ráðstöfun fjárins til sín valdið kröfuhöfum félagsins fjártjóni. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að þau höfðu ekki sætt refsingu áður og að um allháa fjárhæð var að ræða. Var refsing S og H, hvors um sig, ákveðin fangelsi í 12 mánuði en að virtum drætti á meðferð málsins var fullnustu refsingarinnar frestað skilorðsbundið til tveggja ára.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 15. október 2015

S-70/2015

Ákæruvaldið (Þorbjörg Sveinsdóttir saksóknarfulltrúi) gegn X (Sveinn Andri Sveinsson hrl)
Lykilorð: Skattsvik.
Málaflokkur: Skattaréttur

Sakfellt fyrir brot gegn skattalögum o.fl.

Héraðsdómur Reykjaness birt 29. september 2015

S-447/2014

Ákæruvaldið (Birgir Jónasson aðstoðarsaksóknari) gegn Gunnari Erni Haraldssyni (Jón Egilsson hrl)
Lykilorð: Bókhald. Sektir. Umboðssvik.
Málaflokkur: Auðgunarbrot

G sýknaður af ákæru um umboðssvik. Sakfelldur fyrir brot gegn hókhaldslögum og lögum um ársreikninga og gert að greiða sekt.

Héraðsdómur Reykjaness birt 9. apríl 2014

S-756/2013

Sérstakur saksóknari (Kristín Ingileifsdóttir saksóknarfulltrúi) gegn Fylki Aðalsteini Jónssyni (Sigurður Sigurjónsson hrl)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Ákærði sakfelldur fyrir meiri háttar brot gegn lögum um virðisaukaskatt og lögum um bókhald, en sýknaður af ákæru vegna skilasvika.

Hæstiréttur birt 13. desember 2013

772/2013

Ákæruvaldið (Björn Þorvaldsson saksóknari) gegn X og Y ehf (Björgvin Þorsteinsson hrl)
Málaflokkur: Skattaréttur

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem hafnað var kröfu X og Y ehf. um að ákæruvaldinu yrði gert að afla nánar tiltekinna upplýsinga. Kærunni var vísað frá Hæstarétti þar sem úrskurðurinn sætti ekki kæru samkvæmt 1. mgr. 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.

Héraðsdómur Reykjaness birt 13. desember 2013

S-729/2013

Ákæruvaldið (Birgir Jónasson saksóknarfulltrúi) gegn Magnúsi Hvanndal Magnússyni (Haukur Halldórsson hdl)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Ákærði var sakfelldur fyrir skilasvik með því að hafa tekið til sín mestan hluta lagers eftir að félag sem hann átti og rak hafði verið úrskurðað gjaldþrota. Var ákærði dæmdur í tólf mánaða fangelsi en rétt þótti að skilorðsbinda refsinguna að hluta. Þá var ákærði dæmdur til að greiða þrotabúinu skaðabætur að andvirði lagersins. Ákærði var sýknaður af bókhaldsbroti þar sem ósannað var að bókhaldið hafi verið á ábyrgð ákærða þegar það hvarf. Ákærði var einnig dæmdur til að greiða 2/3 hluta alls sakarkostnaðar.

Hleð fleiri dómum…