Með dómi héraðsdóms var G sakfelldur fyrir umferðarlagabrot með því að hafa ekið bifreið sviptur ökurétti og undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Með brotunum rauf G skilyrði reynslulausnar og var hún tekin upp með vísan til 1. mgr. 82. gr. laga um fullnustu refsinga nr. 15/2016, sbr. 60. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og honum gerð refsing í einu lagi fyrir brotin, sbr. 77. gr. sömu laga. Með vísan til sakaferils G var refsing hans ákveðin fangelsi í 17 mánuði auk þess sem hann var sviptur ökurétti ævilangt. Með dómi Landsréttar 23. mars 2018 var héraðsdómur staðfestur. Dómur Landsréttar var staðfestur með dómi Hæstaréttar 24. maí sama ár. Með úrskurði Endurupptökudóms 31. mars 2022 var hæstaréttarmálið endurupptekið að beiðni G. Með nýjum dómi Hæstaréttar í málinu 7. desember 2022 var dómur Landsréttar 23. mars 2018 ómerktur og málinu vísað til Landsréttar til löglegrar meðferðar og dómsálagningar á ný. Við hina endurteknu málsmeðferð var niðurstaða héraðsdóms staðfest um sakfellingu G. Við ákvörðun refsingar G vísaði Landsréttur til þess dráttar sem orðið hefði á meðferð málsins sem G yrði ekki um kennt. Þá var litið til þess að G hefði eftir uppkvaðningu hins áfrýjaða dóms margsinnis verið dæmdur fyrir ölvunarakstur og sviptur ökurétti þar sem við ákvörðun refsingar hefði verið tekið tillit til ítrekunaráhrifa hins áfrýjaða dóms. Loks var litið til breytinga sem orðið höfðu á högum G. Var refsing G ákveðin fangelsi í 12 mánuði, en fullnustu hennar frestað skilorðsbundið í eitt ár. Þá var G sviptur ökurétti ævilangt.
Með dómi héraðsdóms var X sakfelldur fyrir hótanir, umferðarlagabrot, sérstaklega hættulega líkamsárás og fíkniefnalagabrot. Hann játaði sakargiftir, þar á meðal að hafa slegið brotaþola í höfuðið með skralli úr topplyklasetti, en neitaði að hafa stungið brotaþola með skrúfjárni í vinstri sköflung. Í dómi Landsréttar er rakið að samkvæmt framburði læknis fyrir héraðsdómi var um að ræða lokaðan yfirborðsskurð á sköflungnum sem ekki reyndist þörf á að gera að eða búa um. Þá segir í dóminum að þrátt fyrir að ekki hafi fundist blóð á skrúfjárni því sem fannst á vettvangi væri með vísan til annarra gagna málsins hafið yfir skynsamlegan vafa að X hefði veitt brotaþola áverka með skrúfjárninu á áðurgreindum stað í átökum þeirra á milli. Með hliðsjón af skýrslu réttarmeinafræðings fyrir héraðsdómi og lýsingu vitna á aðförum ákærða þótti háttsemi hans samræmast verknaðarlýsingu í ákæru um að hann hefði stungið brotaþola með skrúfjárninu. Að þessu athuguðu en að öðru leyti með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms var hann staðfestur, þó þannig að til frádráttar refsingu ákærða kæmi gæsluvarðhald sem hann sætti vegna málsins.
H var sakfelld fyrir líkamsárás, þjófnað í samverknaði við aðra, akstur án þess að hafa öðlast ökuréttindi, akstur í fjögur aðgreind skipti svipt ökurétti, þar af einu sinni einnig undir áhrifum fíkniefna, og loks fyrir að hafa í tvígang haft fíkniefni í vörslum sínum. Eldri skilorðsdómur var tekinn upp og H gerð refsing í einu lagi fyrir bæði málin. Var refsing H ákveðin fimm mánaða fangelsi en með hliðsjón af þeim drætti sem orðið hafði á meðferð málsins og þeim jákvæðu breytingum sem orðið hefðu á högum hennar var fullnustu refsingar frestað skilorðsbundið í þrjú ár. Þá voru ákvæði héraðsdóms um upptöku á fíkniefnum, ökuréttarsviptingu og fjárhæð einkaréttarkröfu brotaþola staðfest.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Sigurður Pétur Ólafsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Guðfinni Áskeli Jóhannssyni (
Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir umferðar-, fíkniefna- og vopnalagabrot.
Ákærði sakfelldur fyrir hótanir, umferðarlagabrot, sérlega hættulega líkamsárás og fíkniefnalagabrot og dæmdur í 16 mánaða fangelsi. Hann játaði brot sín að hluta til.
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum (Alda Hrönn Jóhannsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn
Aleksandar Bozhidarov Kostov
Ákærði sakfelldur fyrir umferðarlagabrot og brot gegn 155. gr. almennra hegningarlaga og dæmdur í 30 daga fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára.
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum (Alda Hrönn Jóhannsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn
Svetislav Pandurevic
Ákærði sakfelldur fyrir akstur án þess að hafa öðlast ökuréttindi og fyrir brot gegn 155. gr. almennra hegningarlaga og dæmdur í 30 daga fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Sigurður Ólafsson aðstoðarsaksóknari) gegn
X
Ákærði sakfellædur fyrir líkamsárás og umferðarlagabrot.
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum (
Alda Hrönn Jóhannsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Dalibor Juzbasic (
Jón Egilsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir umferðarlagabrot og skjalafals. Ákærði dæmdur í 30 daga fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára.
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum (
Alda Hrönn Jóhannsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Pavel Cucu (
Sveinn Andri Sveinsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir akstur án þess að hafa öðlast ökuréttindi og fyrir brot gegn 155. gr. almennra hegningarlaga og dæmdur í 30 daga fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára.
I var sakfelld fyrir umferðar- og fíkniefnalagabrot með því að hafa í sjö tilgreind skipti ekið bifreið óhæf um að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna, að hafa í fimm af þeim skiptum einnig verið undir áhrifum slævandi lyfja og og að hafa í eitt skiptanna haft í vörslum sínum fíkniefni. Í dómi Landsréttar kom fram að í dómaframkvæmd í málum þar sem ákært væri fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna hefur verið gerð sektarrefsing vegna fyrstu og annarrar ákæru í samræmi við ákvæði 8. mgr. 100. gr. umferðarlaga. Var refsing I því ákveðin sekt að fjárhæð 2.200.000 krónur að viðlagðri vararefsingu. Að auki var hún svipt ökurétti í fimm ár og gert að sæta upptöku fíkniefna.
Með ákæru lögreglustjóra í apríl 2018 voru ákærða gefin að sök nánar tilgreind umferðar-, fíkniefna- og vopnalagabrot og var málið þingfest rúmum mánuði síðar. Við fyrirtöku málsins í lok nóvember sama ár var einnig tekið fyrir annað sakamál á hendur X sem höfðað hafði verið með ákæru lögreglustjóra degi fyrr og voru málin sameinuð með heimild í 1. mgr. 169. gr. laga nr. 88/2008. Í úrskurði Landsréttar kom fram að af forsendum hins áfrýjaða dóms yrði ráðið að einungis fyrri ákæran hefði verið til umfjöllunar í dóminum en ekki hefði verið tekin afstaða til ákæruefna samkvæmt síðari ákærunni og dómur ekki lagður á þau. Var samningu dómsins því verulega ábótavant og í andstöðu við 2. og 4. mgr. 183. gr. laga nr. 88/2008. Hinn áfrýjaði dómur var því ómerktur og málinu vísað heim í hérað til löglegrar meðferðar og dómsálagningar að nýju.
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum Alda Hrönn Jóhannsdóttir aðstoðarsaksóknari (Alda Hrönn Jóhannsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn
Abdalrahman Abukhaled
Ákærði sakfelldur fyrir akstur bifreiðar án þess að hafa öðlast ökuréttindi og fyrir brot gegn 155. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Ákærði dæmdur í 30 daga fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára.
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum Alda Hrönn Jóhannsdóttir aðstoðarsaksóknari (Alda Hrönn Jóhannsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn
Mian Kaleem Sadiq
Ákærði sakfelldur fyrir akstur án þess að hafa öðlast ökuréttindi og brot gegn 155. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Ákærði dæmdur í 30 daga fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára.
Ákæruvaldið (Baldvin Einarsson saksóknarfulltrúi) gegn
Erlendi Óla Guðmundssyni
Ákærði var sakfelldur fyrir gripdeild, fíkniefnalagabrot og fyrir að hafa í þrjú skipti ekið undir áhrifum ávana- og fíkniefna, sviptur ökurétti. Var ákærði dæmdur til að sæta fangelsi í 60 daga.
Ákæruvaldið (
Sigurður Pétur Ólafsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Steingrími Þór Sigmundssyni (
Ómar R. Valdimarsson lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir umferðar- og hegningarlagabrot, með því að hafa í þrjú skipti ekið sviptur ökurétti, þar af í tvö skipti einnig undir áhrifum ávana- og fíkniefna og hafði þá jafnframt skipt um skráningarmerki á bifreiðinni í blekkingarskyni. Var hann dæmdur til að sæta fangelsi í 12 mánuði.
Ákærði sakfelldur og gerð fangelsisrefsing eftir að hafa játað ítrekuð brot um akstur án ökuleyfis og undir áhrifum ávana- og fíkniefna, auk þjófnaðar og brots á vopnalögum.
Ákæruvaldið (
Alda Hrönn Jóhannsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Elsu Karen Einarsdóttur (
Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
<p>Sakfellt fyrir umferðarlagabrot, fíkniefnalagabrot og þjófnað.</p>
Ákæruvaldið (
Alda Hrönn Jóhannsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Patreki Snæ Sigurðarsyni (
Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir umferðarlagabrot og vopnalagabrot og dæmdur í þriggja mánaða fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára. Ákærði var sviptur ökurétti í þrjú ár og sex mánuði. Þá var ákærða gert að sæta upptöku á úðavopni.
Ákærði sakfelldur fyrir umferðarlagabrot og brot gegn 148. gr. almennra hegningarlaga og dæmdur í fimm mánaða fangelsi auk þess sem ævilöng ökuréttarsvipting ákærða var áréttuð.
Ákæruvaldið (
Sigurður Pétur Ólafsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Arnari Freyr Karlssyni (
Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Ákærði dæmdur í 14 mánaða fangelsi og ævilöng svipting ökuréttar hans ítrekuð vegna umferðarlagabrota og brota gegn lögum um ávana- og fíkniefni.
Ákæruvaldið (
Sigurður Pétur Ólafsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Ingibjörgu Björnsdóttur (
Ólafur V. Thordersen lögmaður)
Ákærða var sakfelld fyrir umferðarlagabrot sem og brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni. Var hún dæmd til að sæta fangelsi í 45 daga, skilorðsbundið til tveggja ára.
S var sakfelldur fyrir umferðar- og fíkniefnalagabrot með því að hafa í tvö skipti ekið bifreið undir áhrifum ávana- og fíkniefna og sviptur ökurétti. S var auk þess sakfelldur fyrir brot gegn lögum nr. 65/1974 um ávana- og fíkniefni með því að hafa í þrjú skipti haft í vörslum sínum fíkniefni og fyrir brot gegn vopnalögum nr. 16/1998 og tollalögum nr. 88/2005 með því að hafa í eitt skiptanna jafnframt haft í vörslum sínum hníf og stera. Að virtum sakaferli S og með hliðsjón af 77. og 78. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 var refsing S ákveðin fangelsi í fjóra mánuði en fullnustu þrjátíu daga hennar frestað skilorðsbundið í tvö ár. Þá var S sviptur ökurétti ævilangt og gert að sæta upptöku á fíkniefnum, sterum og hníf.
Ákæruvaldið (Alda Hrönn Jóhannsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn
Hákoni Má Jósepssyni
Ákærði var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot og dæmdur í 90 daga fangelsi auk þess sem ævilöng ökuréttarsvipting var áréttuð.
Ákærðu voru sakfelld fyrir ýmis brot, m.a. umferðarlagabrot, auðgunarbrot unnið í félagi, fíkniefnalagabrot og líkamsárás. Ákærðu játuðu brot sín að stórum hluta.
Ákæruvaldið (Sigurður Pétur Ólafsson aðstoðarsaksóknari) gegn
Jóni Víglundssyni
Ákærði var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot. Var hann dæmdur til að sæta fangelsi í 6 mánuði.
Ákæruvaldið (
Alda Hrönn Jóhannsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Jóni Þór Eymundssyni (
Sveinn Andri Sveinsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir ítrekuð umferðarlagabrot og dæmdur í 12 mánaða fangelsi auk þess sem ævilöng ökuréttarsvipting ákærða var áréttuð.
Ákæruvaldið (Halldór Rósmundur Guðjónsson aðstoðarsaksóknari) gegn
Lóu Lindu Jónsdóttur
Ákærða sakfelld fyrir umferðarlagabrot og fíkniefnalagabrot og dæmd í sex mánaða fangelsi, þar af voru fimm mánuðir skilorðsbundnir til tveggja ára. Ákærða svipt ökurétti ævilangt og var gert að sæta upptöku á fíkniefnum.
Ákæruvaldið (Sigurður Pétur Ólafsson aðstoðarsaksóknari) gegn
Gesti Hrafnkeli Kristmundssyni
Ákærði var sakfelldur fyrir ítrekuð umferðarlagabrot, þjófnaðarbrot sem og tilraun til þjófnaðar. Var hann dæmdur til að sæta fangelsi í fimm mánuði en fresta skyldi fullnustu 60 daga af refsingunni og var sá hluti hennar skilorðsbundinn í tvö ár.
Ákæruvaldið (
Sigurður Pétur Ólafsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Sæmundi Heiðari Emilssyni (
Björgvin Jónsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir umferðar-, fíkniefna- og hegningarlagabrot.
Ákæruvaldið (
Sigurður Pétur Ólafsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Baldvin Reyr Gunnarssyni (
Bjarni Hólmar Einarsson hdl)
Sakfellt fyrir umferðarlagabrot, fíkniefnalagabrot og brot gegn lögum um lögskráningu sjómanna.
Ákæruvaldið (
Halldór Rósmundur Guðjónsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Sigurði Gretti Erlendssyni (
Guðmundína Ragnarsdóttir lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir umferðarlagabrot og dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi.
Ákæruvaldið (Halldór Rósmundur Guðjónsson aðstoðarsaksóknari) gegn
Rolands Kalnins
Ákærði sakfelldur fyrir umferðarlagabrot og dæmdur í fimm mánaða fangelsi og ævilöng ökuréttarsvipting áréttuð.
Ákæruvaldið (Sigurður Pétur Ólafsson aðstoðarsaksóknari) gegn
Garðari Héðni Sigurðssyni
Ákærði var sakfelldur fyrir akstur sviptur ökurétti, ölvunarakstur sem og akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Þá var hann jafnframt sakfelldur fyrir vörslur ávana- og fíkniefna. Var ákærði dæmdur til að sæta fangelsi í 45 daga.
Ákæruvaldið (
Sigurður Pétur Ólafsson aðstoðarsaksóknari, Lísa Gústafsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Arnari Kristinssyni (
Jón Páll Hilmarsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir að aka í tvígang sviptur ökurétti. Var hann dæmdur til að sæta fangelsi í 90 daga.
Ákæruvaldið (
Halldór Rósmundur Guðjónsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Andrési Pétri Jónssyni (
Daníel Reynisson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir umferðarlagabrot með því að hafa í þrígang ekið bifreið sviptur ökurétti og undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Með brotunum rauf ákærði skilyrði reynslulausnar og var hún tekin upp og honum gerð refsing í einu lagi fyrir brotin, fangelsi 18 mánuði auk þess sem ævilöng ökuréttarsvipting ákærða var áréttuð.
Ákæruvaldið (Sigurður Pétur Ólafsson aðstoðarsaksóknari) gegn
Sturlu Einarssyni
Ákærði var sakfelldur fyrir að hafa ekið sviptur ökurétti og undir áhrifum áfengis. Var hann dæmdur til að sæta fangelsi í 30 daga.
Ákæruvaldið (Sigurður Pétur Ólafsson aðstoðarsaksóknari) gegn
Evaldas Visbergs
Ákærði var sakfelldur fyrir að hafa margítrekað eða í alls átta skipti ekið sviptur ökurétti, þar af í tvígang einnig undir áhrifum áfengis. Var hann dæmdur til að sæta fangelsi í tíu mánuði.
X var sakfelldur í héraði og fyrir Landsrétti fyrir umferðarlagabrot með því að hafa ekið bifreið sviptur ökurétti og undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Fyrir Hæstarétti krafðist X aðallega ómerkingar hins áfrýjaða dóms en til vara sýknu af kröfum ákæruvaldsins á þeim grundvelli að skipun eins dómara sem sat í dómi í málinu fyrir Landsrétti hefði ekki verið í samræmi við lög, svo sem áskilið væri í 59. gr. stjórnarskrárinnar og 2. málslið 1. mgr. 6. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Hefði þetta leitt til þess að fyrir Landsrétti hefði X ekki notið réttlátrar málsmeðferðar fyrir óháðum og óhlutdrægum dómstóli, eins og honum væri tryggður réttur til í 1. mgr. 70. gr. stjórnarskrárinnar, sbr. 1. málslið 1. mgr. 6. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Í niðurstöðu Hæstaréttar var m.a. rakið að við skipun dómara við Landsrétt hefði verið fylgt formreglum III. kafla lag nr. 50/2016 um dómstóla, svo og ákvæðis IV til bráðabirgða við þau lög, en þó að því frátöldu að við meðferð Alþingis á tillögum dómsmálaráðherra hefðu ekki verið greidd atkvæði um skipun hvers dómara fyrir sig. Hefði það þó ekki verið annmarki sem vægi hefði. Því næst var rakið að rétturinn hefði í dómum í málum nr. 591/2017 og 592/2017 slegið því föstu að slíkir annmarkar hefðu verið á málsmeðferð dómsmálaráðherra í aðdraganda skipunar dómara við Landsrétt að skaðabótaskyldu hefði varðað úr hendi íslenska ríkisins. Þegar afstaða væri tekin til afleiðinga þessara annmarka yrði á hinn bóginn að líta til þess að ótímabundin skipun allra dómaranna fimmtán við Landsrétt hefði orðið að veruleika við undirritun skipunarbréfa þeirra 8. júní 2017. Þau hefðu öll fullnægt skilyrðum 2. mgr. 21. gr. laga nr. 50/2016 til að hljóta skipun í embætti og hefðu frá þeim tíma notið þeirrar stöðu samkvæmt 61. gr. stjórnarskrárinnar að þeim yrði ekki vikið úr embætti nema með dómi. Frá því skipun þeirra hefði tekið gildi hefðu þau samkvæmt sama ákvæði stjórnarskrárinnar, sbr. og 1 mgr. 43. gr. laga nr. 50/2016, jafnframt borið þá höfuðskyldu að fara í embættisverkum sínum einungis eftir lögum. Þeim hefði einnig verið áskilið með síðastnefndu lagaákvæði sjálfstæði í dómstörfum en jafnframt lagt þar á herðar að leysa þau á eigin ábyrgð og lúta í þeim efnum aldrei boðvaldi annarra. Að þessu virtu taldi Hæstiréttur að ekki væri næg ástæða til að draga á réttmætan hátt í efa að X hefði, þrátt fyrir annmarka á málsmeðferð dómsmálaráðherra, fengið notið í Landsrétti réttlátrar meðferðar máls síns fyrir óháðum og óhlutdrægum dómendum. Var aðalkröfu og varakröfu X því hafnað. Þá var dómur Landsréttar staðfestur um sakfellingu X og ákvörðun refsingar hans.
Ákæruvaldið (
Sigurður Pétur Ólafsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Sæþóri Braga Sölvasyni (
Páll Kristjánsson lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir umferðar-, fíkniefna-, tolla- og vopnalagabrot. Var hann dæmdur til að sæta fangelsi í fjóra mánuði en fresta skyldi fullnustu 30 daga af refsingunni og var sá hluti hennar skilorðsbundinn í tvö ár.
Ákæruvaldið (Halldór Rósmundur Guðjónsson saksóknarfulltrúi) gegn
Slawomir Jan Kaczykowski
Ákærði dæmdur í 60 daga fangelsi og sviptur ökurétti ævilangt fyrir að aka sviptur ökurétti og undir áhrifum áfengis.
Ákæruvaldið gegn
Þóri Bergmann Daníelssyni (
Jón Egilsson lögmaður)
Þ var sakfelldur fyrir tollalagabrot og fyrir að hafa ekið bifreið sviptur ökurétti. Að virtum sakaferli Þ og dómvenju var ákærða gert að sæta fangelsi í 60 daga.
Ákæruvaldið (Alda Hrönn Jóhannsdóttir saksóknarfulltrúi) gegn
Theodóri Hertervig Línusyni
Ákærði dæmdur í 45 daga fangelsi og sviptur ökurétti ævilangt fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Þá var ákærða gert að sæta upptöku á fíkniefnum.
S var sakfelldur fyrir að hafa ekið bifreið sviptur ökurétti og undir áhrifum ávana- og fíkniefna. S neitaði að hafa ekið bifreiðinni umrætt sinn en með vísan til framburðar tveggja lögreglumanna taldi Landsréttur sannað að hann hefði gert það. Að virtum sakaferli S og með því að hann rauf með brotum sínum skilyrði reynslulausnar var staðfest niðurstaða héraðsdóms um refsingu hans og sviptingu ökuréttar.
Ákæruvaldið (
Sigurður Pétur Ólafsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Adam Guzewicz (
Bjarni Hauksson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir fíkniefna- og umferðarlagabrot og gert að sæta fangelsi í 12 mánuði.
Ákæruvaldið (Halldór Rósmundur Guðjónsson saksóknarfulltrúi) gegn
Kristni Viðari Oddssyni
Ákærði, sem skýlaust játaði sök fyrir dómi, var dæmdur í þrjátíu daga fangelsi fyrir að aka sviptur ökurétti.
Ákæruvaldið (Halldór Rósmundur Guðjónsson saksóknarfulltrúi) gegn
Unnari Erni Rósenkarssyni
Ákærði, sem skýlaust játaði sök fyrir dómi, var dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi fyrir að aka sviptur ökurétti.
Ákæruvaldið (Halldór Rósmundur Guðjónsson saksóknarfulltrúi) gegn
Friðjóni Veigari Gunnarssyni
Ákærði, sem skýlaust játaði sök fyrir dómi, var dæmdur í fimmtán daga fangelsi og sviptur ökurétti ævilangt, fyrir akstur bifreiðar sviptur ökurétti og undir áhrifum ávana- og fíkniefna, en með dómnum var honum gerður hegningarauki eldri dóm.
Ákæruvaldið (
Vilhjálmur Reyr Þórhallsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Bjarka Fannari Smárasyni (
Jón Bjarni Kristjánsson hdl)
Ákærði var sakfelldur fyrir að aka bifreið í tvígang sviptur ökurétti og undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Hann játaði brot sín, en með þeim rauf hann skilyrði fyrir tveggja ára frestun á fullnustu tveggja mánaða skilorðsbundins hluta fangelsisrefsingar eldri dóms og var sú refsing dæmd með þeirri refsingu sem ákærða var gerð í málinu. Refsing ákærða þótti hún hæfilega ákveðin fangelsi í sjö mánuði, en fresta skyldi hluta refsingarinnar skilorðsbundið til tveggja ára. Þá var ákærði sviptur ökurétti ævilangt.
Ákæruvaldið (
Sigurður Pétur Ólafsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Irmantas Sirvys (
Brynjólfur Eyvindsson hdl)
Ákærði dæmdur í fangelsi í fjóra mánuði og 15 daga fyrir að aka í tvígang sviptur ökurétti.