Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 23. maí 2018.
Mál nr. S-222/2018:
Ákæruvaldið
(Sigurður Pétur Ólafsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Sæþóri Braga Sölvasyni
(Páll Kristjánsson lögmaður)
Lykilorð
Ávana- og fíkniefni. Hegningarauki. Játningarmál. Ökuréttarsvipting. Svipting ökuréttar. Umferðarlagabrot. Upptaka. Vopnalagabrot. Vörslur.
Útdráttur
Ákærði var sakfelldur fyrir umferðar-, fíkniefna-, tolla- og vopnalagabrot. Var hann dæmdur til að sæta fangelsi í fjóra mánuði en fresta skyldi fullnustu 30 daga af refsingunni og var sá hluti hennar skilorðsbundinn í tvö ár.
Mál þetta, sem dómtekið var í dag, er höfðað með ákæru, útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 17. apríl 2018, á hendur Sæþóri Braga Sölvasyni, kt. 000000-0000, óstaðsettur í hús, fyrir eftirtalin umferðar-, fíkniefna-, tolla- og vopnalagabrot á árinu 2017 í Reykjavík með því að hafa:
- Miðvikudaginn 12. júlí ekið bifreiðinni [...] sviptur ökuréttindum og óhæfur um að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóði mældist amfetamín 1100 ng/ml) um Háaleitisbraut uns lögregla stöðvaði aksturinn og fyrir að hafa á sama tíma haft í vörslum sínum 13,73 g af amfetamíni sem lögregla lagði hald á.
- Laugardaginn 15. júlí ekið bifreiðinni [...] sviptur ökuréttindum og óhæfur um að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóði mældist amfetamín 850 ng/ml) um Reykjanesbraut uns lögregla stöðvaði aksturinn.
- Fimmtudaginn 17. ágúst haft í vörslum sínum 10,37 g af amfetamíni og hníf ásamt því að eiga og hafa í vörslum sínum 2 ml af anabólískum sterum sem ákærði vissi eða mátti vita að væru ólöglega fluttir til landsins.
- Laugardaginn 23. september haft í vörslum sínum 12,50 g af amfetamíni sem lögregla fann við leit á ákærða við Tunguháls og lagði hald á.
Teljast brot í 1. og 2. lið varða við 1. mgr., sbr. 2. mgr. 45. gr. a. og 1. mgr. 48. gr., allt sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, sbr. 5. gr. laga nr. 66/2006 og 24. gr. laga nr. 24/2007 og telst brot í 1. lið, auk þess og ásamt brotum í 3. og 4. lið varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr., laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 13/1985 og lög nr. 68/2001, og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr., reglugerðar nr. 233/2001 um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni, sbr. reglugerðir nr. 232/2001 og nr. 848/2002 og varðar brot í 3. lið auk þess við b.-lið 2. mgr. 30. gr., sbr. 1. mgr. 36. gr. vopnalaga nr. 16/1998 og 1. mgr. 171. gr., sbr. 169. gr., tollalaga nr. 88/2005.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar og til sviptingar ökuréttar skv. 101. gr. og 102. gr. nefndra umferðarlaga, sbr. 25. gr. laga nr. 44/1993 og 18. gr. laga nr. 66/2006. Jafnframt er þess krafist að ákærði verði dæmdur til að sæta upptöku á framangreindum fíkniefnum samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001 og upptöku á framangreindum vopnum samkvæmt 37. gr. vopnalaga nr. 16/1998 og upptöku á framangreindum anabólískum sterum samkvæmt 3. mgr. 48. gr. lyfjalaga nr. 93/1993, 2. mgr. 68. gr. lyfsölulaga og 1. mgr. 181. gr. tollalaga nr. 88/2005.
Verjandi ákærða krefst vægustu refsingar sem lög leyfa og hæfilegrar þóknunar sér til handa.
Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu þegar sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.
Ákærði hefur skýlaust játað brot sín. Sannað er með játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að ákærði er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og eru brot hans rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru.
Ákærði er fæddur í apríl 1993. Samkvæmt framlögðu sakavottorði, dagsettu 16. apríl 2018, á hann að baki nokkur sakaferil. Hann gekkst undir sektarrefsingu með lögreglustjórasátt vegna fíkniefnaaksturs, 15. maí 2012 og aftur með dómi, 21. janúar 2015. Í síðara skiptið var ákærði jafnframt sakfelldur fyrir fíkniefnalagabrot og sviptingarakstur. Þá hlaut ákærði m.a. dóm fyrir sviptingarakstur 18. mars 2016. Hinn 27. september 2016 var ákærði sakfelldur fyrir sviptingar-, lyfja- og fíkniefnaakstur, þjófnað og brot gegn vopna- og fíkniefnalögum. Var refsingin að hluta til hegningarauki. Ákærði er nú í fjórða sinn innan ítrekunartíma fundinn sekur um brot gegn 45. gr. a umferðarlaga og í annað sinn gegn 1. mgr. 48. gr. sömu laga.
Þau brot sem ákærði er sakfelldur fyrir í þessu máli voru framin fyrir gerð lögreglusáttar, sem ákærði gekkst undir 13. nóvember 2017, og verður refsing fyrir þau ákveðin sem hegningarauki, sbr. 78. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Með hliðsjón af framangreindu, sakarefni þessa máls og 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í fjóra mánuði en fresta skal fullnustu 30 daga af refsingunni og falli sá hluti hennar niður að liðnum tveimur árum frá birtingu dóms þessa haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. laga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.
Með vísan til lagaákvæða í ákæru ber að árétta ævilanga sviptingu ökuréttar ákærði frá birtingu dóms þessa að telja.
Með vísan til lagaákvæða í ákæru eru gerð upptæk til ríkissjóðs 36,6 g af amfetamíni, 2 ml af anabólískum sterum og hnífur sem lögregla lagði hald á við rannsókn málsins.
Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Páls Kristjánssonar lögmanns, krónur, 168.640 að meðtöldum virðisaukaskatti, og 300.804 krónur í annan sakarkostnað.
Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Kristmundur Stefán Einarsson saksóknarfulltrúi. Lilja Rún Sigurðardóttir, aðstoðarmaður dómara, kveður upp dóminn.
D Ó M S O R Ð:
Ákærði, Sæþór Bragi Sölvason, sæti fangelsi í fjóra mánuði en fresta skal fullnustu 30 daga af refsingunni og falli sá hluti hennar niður að liðnum tveimur árum frá birtingu dóms þessa, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. laga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955. Áréttuð er ævilöng svipting ökuréttar ákærða frá birtingu dómsins að telja.
Upptæk eru gerð til ríkissjóðs 36,6 g af amfetamíni, 2 ml af anabólískum sterum og hnífur.
Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Páls Kristjánssonar lögmanns, 168.640 krónur og 300.804 krónur í annan sakarkostnað.
Lilja Rún Sigurðardóttir