Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. S-320/2019:

S-320/2019:

Ákæruvaldið

(Baldvin Einarsson saksóknarfulltrúi)

gegn

Erlendi Óla Guðmundssyni

Mál

þetta, sem dómtekið var 29. maí sl., er höfðað með ákæru, útgefinni af

lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 16. apríl 2019, á hendur Erlendi Óla

Guðmundssyni, kt. 000000-0000,

[...]

, Reykjavík, fyrir eftirtalin brot:

I.

Gripdeild með því að

hafa sunnudaginn 24. september 2017 í heimildarleysi ruðst inn í verslun

Krónunnar að Jafnaseli 2 í Reykjavík með því að þvinga upp rennihurð og tekið

þaðan ófrjálsri hendi vörur að andvirði kr. 886 sem ákærði tók með sér úr

versluninni án þess að greiða fyrir.

Telst

þetta varða við 245. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

II.

Umferðarlagabrot

með því að hafa fimmtudaginn 1. febrúar 2018 ekið bifreiðinni

[...]

, sviptur ökurétti og óhæfur um að stjórna henni örugglega vegna áhrifa

í Reykjavík uns akstur bifreiðarinnar var stöðvaður við Heilsugæsluna í Árbæ.

Telst

þetta varða við 1., sbr. 2. mgr. 45. gr. a. og 1. mgr. 48. gr., sbr. 1. mgr.

100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, sbr. 5. gr. laga nr. 66/2006 og 3. gr. laga

nr. 24/2007.

III.

Umferðarlagabrot

með því að hafa þriðjudaginn 27. febrúar 2018 ekið bifreiðinni

[...]

, sviptur ökurétti og óhæfur um að stjórna henni örugglega vegna áhrifa

uns akstur bifreiðarinnar var stöðvaður við Hjaltabakka.

Telst

þetta varða við 1., sbr. 2. mgr. 45. gr. a. og 1. mgr. 48. gr., sbr. 1. mgr.

100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, sbr. 5. gr. laga nr. 66/2006 og 3. gr. laga

nr. 24/2007.

IV.

Umferðar-

og fíkniefnalagabrot með því að hafa fimmtudaginn 22. mars 2018 ekið

bifreiðinni

[...]

, sviptur ökurétti og óhæfur um að stjórna henni örugglega vegna áhrifa

stöðvaður vestan gatnamóta við Ármúla, og á sama tíma haft í vörslum sínum 3,86

g af amfetamíni sem lögregla fann við leit í bifreiðinni sem og 0,18 g af

amfetamíni sem lögregla fann á ákærða við öryggisleit.

Telst

þetta varða við 1., sbr. 2. mgr. 45. gr. a. og 1. mgr. 48. gr., sbr. 1. mgr.

100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, sbr. 5. gr. laga nr. 66/2006 og 3. gr. laga

nr. 24/2007 og við 2. gr., sbr. 5. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974,

sbr. lög nr. 13/1985 og lög nr. 68/2001, og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr.,

reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001,

sbr. reglugerð nr. 848/2002.

Akstur án ökuréttar. Ávana- og fíkniefni. Fangelsi. Gripdeild. Ítrekun. Játningarmál. Umferðarlagabrot. Upptaka. Vörslur.

Ákærði var sakfelldur fyrir gripdeild, fíkniefnalagabrot og fyrir að hafa í þrjú skipti ekið undir áhrifum ávana- og fíkniefna, sviptur ökurétti. Var ákærði dæmdur til að sæta fangelsi í 60 daga.

I.

Gripdeild með því að hafa sunnudaginn 24. september 2017 í heimildarleysi ruðst inn í verslun Krónunnar að Jafnaseli 2 í Reykjavík með því að þvinga upp rennihurð og tekið þaðan ófrjálsri hendi vörur að andvirði kr. 886 sem ákærði tók með sér úr versluninni án þess að greiða fyrir.

Telst þetta varða við 245. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

II.

Umferðarlagabrot með því að hafa fimmtudaginn 1. febrúar 2018 ekið bifreiðinni [...], sviptur ökurétti og óhæfur um að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóði mældist amfetamín 1500 ng/ml og metamfetamín 985 ng/ml og að auki mældist amfetamín, metamfetamín og kókaín í þvagi) vestur Hraunbæ í Reykjavík uns akstur bifreiðarinnar var stöðvaður við Heilsugæsluna í Árbæ.

Telst þetta varða við 1., sbr. 2. mgr. 45. gr. a. og 1. mgr. 48. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, sbr. 5. gr. laga nr. 66/2006 og 3. gr. laga nr. 24/2007.

III.

Umferðarlagabrot með því að hafa þriðjudaginn 27. febrúar 2018 ekið bifreiðinni [...], sviptur ökurétti og óhæfur um að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóði mældist amfetamín 1600 ng/ml, diazepam 540 ng/ml, klónazepam 4,0 ng/ml, nordíazepam 620 ng/ml og temazepam 34 ng/ml, að auki mældist amfetamín, kókaín og metamfetamín í þvagi) suður Arnarbakka í Reykjavík uns akstur bifreiðarinnar var stöðvaður við Hjaltabakka.

Telst þetta varða við 1., sbr. 2. mgr. 45. gr. a. og 1. mgr. 48. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, sbr. 5. gr. laga nr. 66/2006 og 3. gr. laga nr. 24/2007.

IV.

Umferðar- og fíkniefnalagabrot með því að hafa fimmtudaginn 22. mars 2018 ekið bifreiðinni [...], sviptur ökurétti og óhæfur um að stjórna henni örugglega vegna   áhrifa   ávana-   og   fíkniefna   (í   blóði   mældist   amfetamín   1600   ng/ml, klónazepam 86 ng/ml og kókaín 60 ng/ml, að auki mældist amfetamín, kókaín, MDMA og metamfetamín í þvagi) vestur Háaleitisbraut í Reykjavík, uns akstur bifreiðarinnar var stöðvaður vestan gatnamóta við Ármúla, og á sama tíma haft í vörslum sínum 3,86 g af amfetamíni sem lögregla fann við leit í bifreiðinni sem og 0,18 g af amfetamíni sem lögregla fann á ákærða við öryggisleit.

Telst þetta varða við 1., sbr. 2. mgr. 45. gr. a. og 1. mgr. 48. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, sbr. 5. gr. laga nr. 66/2006 og 3. gr. laga nr. 24/2007 og við 2. gr., sbr. 5. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 13/1985 og lög nr. 68/2001, og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 848/2002.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar og til að sæta sviptingu ökuréttar skv. 101. og 102. gr. laga nr. 50/1987, sbr. 25. og 26. gr. laga nr. 44/1993, sbr. 18. gr. laga nr. 66/2006. Þá er gerð krafa um að framangreind fíkniefni, samtals 4,04 g af amfetamíni, sem hald var lagt á, verði gerð upptæk, skv. 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001.

Verjandi   ákærða   krefst   vægustu   refsingar   sem   lög   leyfa   og   hæfilegrar þóknunar sér til handa.

Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu þegar sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.

Ákærði hefur skýlaust játað brot sín. Sannað er með játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að ákærði er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og eru brot hans rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru.

Ákærði er fæddur í [...] og er í máli þessu sakfelldur fyrir gripdeild, umferðar- og fíkniefnalagabrot. Samkvæmt framlögðu sakavottorði, dagsettu 10. apríl 2019, á ákærði nokkurn sakaferil að baki sem nær allt aftur til ársins 2002. Þau brot ákærða sem þýðingu hafa við ákvörðun refsingar í málinu, samkvæmt sakavottorði, eru í fyrsta lagi tvær lögreglustjórasáttir sem ákærði gekkst undir hinn 30. ágúst 2016, annars vegar fyrir að aka undir áhrifum ávana- og fíkniefna og fíkniefnalagabrot samkvæmt 2., sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974 og hins vegar vegna brota gegn sömu ákvæðum laga um ávana- og fíkniefni. Þá   var   ákærði   öðru   lagi   dæmdur   í   60   daga   fangelsi   með   dómi   Héraðsdóms Reykjavíkur   hinn   27.   febrúar   2017,   fyrir   vopnalagabrot,   tilraun   til   þjófnaðar, fíkniefnalagabrot og fyrir að aka undir áhrifum ávana- og fíkniefna, sviptur ökurétti. Með   dómi   Landsréttar   hinn   16.   febrúar   2018   var   refsing   ákærða   samkvæmt fyrrgreindum dómi Héraðsdóms Reykjavíkur þyngd í 6 mánaða fangelsi. Sakaferill ákærða hefur að öðru leyti ekki þýðingu í málinu.

Við ákvörðun refsingar hér verður þannig við það miðað að ákærði gerist nú í þriðja sinn sekur um að aka undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Þá verður enn fremur litið til greiðrar játningar ákærða og þess að verðmæti þeirra vara sem ákærði tók ófrjálsri   hendi,   sbr.   ákærulið   1,   var   aðeins   smáræði.   Með   hliðsjón   af   öllu framangreindu, sakarefni málsins, dómvenju og 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í 60 daga.

Með vísan til lagaákvæða í ákæru er ákærði sviptur ökurétti ævilangt frá birtingu dómsins að telja.

Með vísan til lagaákvæða í ákæru skal ákærði sæta upptöku á 4,04 g af amfetamíni sem lögregla lagði hald á við rannsókn málsins.

Ákærði, greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns á rannsóknarstigi málsins, Jóns Bjarna Kristjánssonar lögmanns, 66.960 krónur, að virðisaukaskatti meðtöldum   og   skipaðs   verjanda   síns   fyrir   dómi,   Stefáns   Karls   Kristjánssonar lögmanns, 105.400 krónur, einnig að virðisaukaskatti meðtöldum. Þá greiði ákærði jafnframt 547.960 krónur í annan sakarkostnað.

Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Haukur Gunnarsson saksóknarfulltrúi fyrir hönd Baldvins Einarssonar saksóknarfulltrúa.

Þórhildur Líndal, aðstoðarmaður dómara, kveður upp dóminn.

D Ó M S O R Ð:

Ákærði, Erlendur Óli Guðmundsson, sæti fangelsi í 60 daga.

Ákærði er sviptur ökurétti ævilangt frá birtingu dómsins að telja.

Ákærði sæti upptöku á 4,04 g af amfetamíni.

Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns á rannsóknarstigi málsins, Jóns Bjarna Kristjánssonar lögmanns, 66.960 krónur, og skipaðs verjanda síns fyrir dómi, Stefáns Karls Kristjánssonar lögmanns, 105.400 krónur, og 547.960 krónur í annan sakarkostnað.

Þórhildur Líndal