Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 20. desember 2018.
Mál nr. S-248/2018:
Ákæruvaldið
(Sigurður Pétur Ólafsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Ingibjörgu Björnsdóttur
(Ólafur V. Thordersen lögmaður)
Lykilorð
Fangelsi. Játningarmál. Ökuréttarsvipting. Skilorðsbundnir dómar. Svipting ökuréttar. Umferðarlagabrot. Upptaka. Vörslur.
Útdráttur
Ákærða var sakfelld fyrir umferðarlagabrot sem og brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni. Var hún dæmd til að sæta fangelsi í 45 daga, skilorðsbundið til tveggja ára.
Mál þetta, sem dómtekið var í dag, er höfðað með tveimur ákærum, útgefnum af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu. Fyrri ákæran var gefin út 30. apríl sl., á hendur Ingibjörgu Björnsdóttir, kt. 000000-000, [...], Reykjavík, fyrir umferðarlagabrot í Reykjavík á árinu 2017 með því að hafa mánudaginn 3. apríl ekið bifreiðinni [...] án þess að hafa ökuskírteini sitt meðferðis og óhæf um að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóði mældist amfetamín 995 ng/ml og MDMA 40 ng/ml) um [...] uns lögregla stöðvaði aksturinn.
Telst þetta varða við 1. mgr. 48. gr. og 1. mgr., sbr. 2. mgr., 45. gr. a., allt sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987. sbr. 5. gr. laga nr. 66/2006 og 3. gr. laga nr. 24/2007.
Þess er krafist að ákærða verði dæmd til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar og til sviptingar ökuréttar skv. 101. gr. og 102. gr. nefndra umferðarlaga, sbr. 25. gr. laga nr. 44/1993 og 18. gr. laga nr. 66/2006.
Síðari ákæran er gefin út á hendur ákærðu 24. október 2018, fyrir eftirgreind umferðarlagabrot á árinu 2018 með því að hafa:
- Laugardaginn 16. júní í Reykjavík ekið bifreiðinni [...] óhæf um að stjórna henni örugglega vegna áhrifa slævandi lyfja og ávana- og fíkniefna (í blóði mældist amfetamín 325 ng/ml, kókaín 50 ng/ml, alprazólam 33 ng/ml, díazepam 100 ng/ml, nordíazepam 110 ng/ml og auk þeirra fundust MDMA og metamfetamín í þvagi) um Víkurveg uns lögregla stöðvaði aksturinn.
- Laugardaginn 4. ágúst í Kópavogi ekið bifreiðinni [...] án þess að hafa ökuskírteini meðferðis og óhæf um að stjórna henni örugglega vegna áhrifa slævandi lyfja og ávana- og fíkniefna (í blóði mældist amfetamín 560 ng/ml, kókaín 75 ng/ml, MDMA 60 ng/ml, brómazepam 110 ng/ml, klónazepam 31 ng/ml og auk þeirra fannst metamfetamín í þvagi) um Vatnsendaveg uns lögregla stöðvaði aksturinn og fyrir að hafa á sama tíma haft í vörslum sínum 0,07 g af amfetamíni, 0,42 g af ecstasy og þrjár töflur af ecstasy sem lögregla fann við leit og lagði hald á.
- Sunnudaginn 12. ágúst í Reykjavík ekið bifreiðinni [...] óhæf um að stjórna henni örugglega vegna áhrifa slævandi lyfja og ávana- og fíkniefna (í blóði mældist amfetamín 910 ng/ml, MDMA 75 ng/ml, alprazólam 5,9 ng/ml, díazepam 270 ng/ml og nordíazepam 300 ng/ml) um [...] uns lögregla stöðvaði aksturinn.
- Fimmtudaginn 16. ágúst í Reykjavík ekið bifreiðinni [...] óhæf um að stjórna henni örugglega vegna áhrifa slævandi lyfja og ávana- og fíkniefna (í blóði mældist amfetamín 665 ng/ml, MDMA 435 ng/ml, klónazepam 34 ng/ml og auk þeirra fannst kókaín í þvagi) um [...] uns lögregla stöðvaði aksturinn.
- Þriðjudaginn 28. ágúst í Reykjavík ekið bifreiðinni [...] óhæf um að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóði mældist amfetamín 50 ng/ml, kókaín 20 ng/ml og brómazepam 42 ng/ml) um Gvendargeisla uns lögregla stöðvaði aksturinn.
- Miðvikudaginn 12. september í Reykjavík ekið bifreiðinni [...] óhæf um að stjórna henni örugglega vegna áhrifa slævandi lyfja og ávana- og fíkniefna (í blóði mældist amfetamín 698 ng/ml, desmetýlklórdíazepoxíð 520 ng/ml, klónazepam 18 ng/ml, klórdíazepoxíð 280 ng/ml, MDMA 135 ng/ml, metamfetamín 310 ng/ml, nítrazepam 73 ng/ml og nordíazepam 62 ng/ml) um [...] uns lögregla stöðvaði aksturinn.
Teljast brot í 1., 2., 3., 4., 5. og 6. lið varða við 1. mgr., sbr. 2. mgr. 45. gr. a., og auk þess varða brot í 1., 2., 3., 4. og 6. lið við 1. mgr., sbr. 2. mgr., 44. gr, auk þess sem brot í 2. lið telst varða við 1. mgr. 48. gr., allt sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987. sbr. 5. gr. laga nr. 66/2006 og 3. gr. laga nr. 24/2007, ásamt því að brot í 2. lið telst varða við 2. gr., sbr. 5. gr. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 13/1985 og lög nr. 68/2001, og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 848/2002 og auglýsingu nr. 232/2001.
Þess er krafist að ákærða verði dæmd til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar og til sviptingar ökuréttar skv. 101. gr. og 102. gr. nefndra umferðarlaga, sbr. 25. gr. laga nr. 44/1993 og 18. gr. laga nr. 66/2006. Jafnframt er þess krafist að ákærða verði dæmd til að sæta upptöku á framangreindum fíkniefnum samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/200.
Verjandi ákærðu krefst vægustu refsingar sem lög leyfa og hæfilegrar þóknunar sér til handa.
Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu þegar sækjanda og verjanda ákærðu hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.
Ákærða hefur skýlaust játað brot sín. Sannað er með játningu ákærðu og öðrum gögnum málsins að ákærða er sek um þá háttsemi sem henni er gefin að sök og eru brot hennar rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru.
Ákærða er fædd í [...]. Samkvæmt framlögðu sakavottorði, dagsettu 22. október 2018, gekkst hún undir sektarrefsingu með viðurlagaákvörðun 6. júní 2016.
Við ákvörðun refsingar verður litið til framangreinds, greiðrar játningar ákærðu og sakarefni málsins. Að því virtu sem og 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 þykir refsing ákærðu hæfilega ákveðin fangelsi í 45 daga en fresta skal fullnustu refsingarinnar og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá birtingu dóms þessa haldi ákærða almennt skilorð 57. gr. laga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.
Með vísan til lagaákvæða í ákæru er ákærða svipt ökurétti í fimm ár frá birtingu dóms þessa að telja. Með vísan til lagaákvæða í ákæru eru gerð upptæk til ríkissjóðs 0,07 g af amfetamíni, 0,42 g af ecstasy og þrjár töflur af ecstasy, sem lögregla lagði hald á við rannsókn málsins.
Ákærða greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Ólafs V. Thordersen lögmanns, 168.640 krónur, að meðtöldum virðisaukaskatti, og 1.328.973 krónur í annan sakarkostnað.
Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Vilhjálmur Reyr Þórhallsson aðstoðarsaksóknari. Lilja Rún Sigurðardóttir, aðstoðarmaður dómara, kveður upp dóminn.
D Ó M S O R Ð:
Ákærða, Ingibjörg Björnsdóttir, sæti fangelsi í 45 daga en fresta skal fullnustu refsingarinnar og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá birtingu dóms þessa haldi ákærða almennt skilorð 57. gr. laga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955. Ákærða er svipt ökurétti í fimm ár frá birtingu dómsins að telja.
Upptæk eru gerð til ríkissjóðs 0,07 g af amfetamíni, 0,42 g af ecstasy og þrjár töflur af ecstasy.
Ákærða greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Ólafs V. Thordersen lögmanns, 168.640 krónur og 1.328.973 krónur í annan sakarkostnað. Lilja Rún Sigurðardóttir