Með hinum áfrýjaða dómi, sem kveðinn var upp í júlí 2015, var felld úr gildi ákvörðun Þ um að synja A um skráningu í þjóðskrá sem móður og forsjárforeldri B og C og viðurkenndur réttur hennar til slíkrar skráningar. Í september sama ár tilkynnti Þ að A hefði verið skráð sem móðir og forsjáraðili B og C. Í dómi Hæstaréttar kom fram að með þessu hefði verið orðið við þeirri skyldu sem Í og Þ hefði verið lögð á herðar með hinum áfrýjaða dómi. Áfrýjun hans í október 2015 hefði því verið ósamrýmanleg þessu. Var málinu vísað frá Hæstarétti.
Synjun Þjóðskrár um skráningu móðernis I á grundvelli bandarísks dóms þar sem vísað hafði verið til samnings um staðgöngumæðru var felld úr gildi og viðurkenndur réttur I, svo og hinna ólögráða barna, til að hún yrði skráð móðir og forsjárforeldri.
Ákæruvaldið (Eyþór Þorbergsson fulltrúi) gegn
X
Dæmt eins mánaðar skilorðsbundið fangelsi fyrir þjófnaðartilraun.
Ákæruvaldið (
Kolbrún Sævarsdóttir saksóknari)
gegn
Elimari Tómasi Reynissyni (
Hilmar Ingimundarson hrl)
Ákærði sæti fangelsi í 4 mánuði fyrir líkamsárás og fíkniefnabrot.
Ákæruvaldið (Hólmsteinn Gauti Sigurðsson fulltrúi) gegn
Jonas, Statkevicius, Þetta, mál, sem var dómtekið 1. júlí sl., er höfðað með ákæru lögreglustjórans á, höfuðborgarsvæðinu, útgefinni 22. apríl sl., á hendur Jonas Sirvys, kt, Hringbraut 39, Reykjavík, Irmantas Sirvys, kt. , Hringbraut 39, Reykjavík, Jonas Statkevicius, kt. , Hringbraut 39, Reykjavík, og Mindaugas, Visniauskas, kt. , Hjaltabakka 10, Reykjavík, „fyrir eftirtalin, auðgunarbrot, I og Á hendur ákærðu (...)
Sakfellt fyrir þjófnað. Skilorðsbundin refsing. Skaðabætur.
Ákæruvaldið (Hólmsteinn Gauti Sigurðsson fulltrúi) gegn
Irmantas Sirvys, Mindaugas Visniauskas, Þetta mál, sem var, dómtekið 13. maí sl., er höfðað með ákæru lögreglustjórans á, höfuðborgarsvæðinu, útgefinni 22. apríl sl., á hendur Jonas Sirvys, kt, Hringbraut 39, Reykjavík, Irmantas Sirvys, kt. , Hringbraut 39, Reykjavík, Jonas Statkevicius, kt. , Hverfisgötu 42, Reykjavík, og Mindaugas, Visniauskas, kt. , Hjaltabakka 10, Reykjavík, „fyrir eftirtalin, auðgunarbrot, I og Á hendur ákærðu (...)
Sakfellt fyrir þjófnað. Skilorðsbundin refsing. Skaðabætur.
Ákæruvaldið (Dagmar Ösp Vésteinsdóttir fulltrúi) gegn
Tönju Björk Þorsteinsdóttur
Ákvörðun refsingar ákæruð var frestað skilorðsbundið í 2 ár.
Ákæruvaldið (Dagmar Ösp Vésteinsdóttir fulltrúi) gegn
Hjördísi Ágústu Helgadóttur
Ákvörðun refsingar ákærðu var frestað skilorðsbundið í 2 ár.
Ákæruvaldið (Alda Hrönn Jóhannsdóttir ftr) gegn
Kristjáni Þórarni Stefánssyni, Þetta, mál, sem var dómtekið í dag, er höfðað með ákæru lögreglustjórans á, Suðurnesjum, útgefinni 19. desember sl., á hendur Kristjáni Þórarni, Stefánssyni, kt. , Kirkjuvegi 49, Reykjanesbæ, og Sigurði Frímanni og Hilmarssyni, kt. , Heiðarbraut 5, Garði, „fyrir líkamsárás, sunnudaginn
Sakfellt fyrir minni háttar líkamsárás. Ákvörðun refsingar frestað skilorðsbundið í tvö ár.
Ákæruvaldið (Alda Hrönn Jóhannsdóttir ftr) gegn
Sigurður Frímann Hilmarssyni, Þetta mál, sem var, dómtekið 1. febrúar sl., er höfðað með ákæru lögreglustjórans á Suðurnesjum, útgefinni 19. desember sl., á hendur Kristjáni Þórarni Stefánssyni, kt og Kirkjuvegi 49, Reykjanesbæ, og Sigurði Frímanni Hilmarssyni, kt (...)
Sakfellt fyrir minni háttar líkamsárás. Ákvörðun refsingar frestað skilorðsbundið í tvö ár.
Ákæruvaldið (Ólafur Hallgrímsson fulltrúi) gegn
Jeff Daníel Magnússyni
Ákærði sakfelldur fyrir sölu fíkniefna. Var hann dæmdur í fangelsi í einn mánuð, skilorðsbundið í tvö ár. Þá var honum gert að sæta upptöku á fíkniefnum og peningum.
Ákæruvaldið (
Hulda María Stefánsdóttir fulltrúi)
gegn
Lindu Rut Hreggviðsdóttur (
Hilmar Ingimundarson hrl)
Ákærða var dæmd í 2 mánaða fangelsi, skilorðsbundið í 2 ár, fyrir þjófnað, gripdeild og fjársvik. Þá var henni gert að greiða skaðabætur.
Ákæruvaldið (
Alda Hrönn Jóhannsdóttir ftr)
gegn
Gunnari Róberti Guðjónssyni (
Hilmar Ingimundarson hrl)
G var ákærður fyrir brot gegn hegningarlögum, umferðarlögum og lögum um ávana- og fíkniefni. Hann var sakfelldur að öðru leyti en því að ekki var talið sannað að hann hefði ætlað að selja 16 grömm af kókaíni sem fundust við húsleit á heimili hans. Honum var gert að greiða sekt.
Fellt var úr gildi ákvæði í úrskurði héraðsdóms, sem kvað á um frestun aðalmeðferðar málsins að því er varðaði fjóra ákærðu.
H ehf. var hæstbjóðandi við nauðungarsölu á fiskverkunarhúsi. Átti H ehf. að greiða sýslumanni fjórðung söluverðsins til að boðið teldist samþykkt. Áður en til þess kom framseldi stjórnarformaður H ehf. boðið til G. Í kjölfarið innti G af hendi greiðsluna til sýslumanns sem samþykkti boðið. Á fundi stjórnar H ehf. var stjórnarformanninum bent á að atbeina tveggja stjórnarmanna væri þörf til að skuldbinda félagið. Leitaði H ehf. af þessu tilefni úrlausnar héraðsdóms um ákvörðun sýslumanns en málinu var vísað frá þar sem krafan var of seint fram komin. Höfðaði H ehf. þá mál á hendur G og krafðist þess að viðurkennt yrði með dómi ógildi framsals stjórnarformannsins til G. Brást hinn síðarnefndi við málsókninni með því að framselja boðið til F ehf. sem greiddi sýslumanni eftirstöðvar söluverðs fasteignarinnar og fékk gefið út afsal fyrir henni. H ehf. höfðaði þá sakaukasök á hendur F ehf. og krafðist þess að félaginu yrði gert að gefa sér afsal fyrir fasteigninni gegn nánar tiltekinni greiðslu. Héraðsdómari vísaði málinu frá. Hæstiréttur hafnaði því að ákvæði 2. mgr. 24. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála stæði í vegi fyrir sakaukasök H ehf. á hendur F ehf. Þá yrði að telja H ehf. hafa lögvarða hagsmuni um kröfu sína á hendur G, enda þótt félaginu kynni að vera nægilegt að gera efni þessarar dómkröfu að málsástæðu í sakaukasök sinni á hendur F ehf. Var hinn kærði úrskurður því felldur úr gildi og lagt fyrir héraðsdómara að taka málið til efnismeðferðar.
Í samræmi við játningu M var hann sakfelldur fyrir mörg brot gegn 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og tilraun til slíks brots, auk brots gegn 2. gr., sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974. Við ákvörðun refsingar var litið til 2. mgr. 70. gr., 71. gr., 255. gr. og 72. gr. laga nr. 19/1940, en M var vanaafbrotamaður. Til mildunar horfði að hann hafði á síðara stigi rannsóknar verið samvinnufús og gengist greiðlega við brotum sínum. Tekið var fram að skilorðsbundinn dómur sem M hafði áður hlotið hefði ekki ítrekunaráhrif. Var M dæmdur í 9 mánaða fangelsi og til greiðslu skaðabóta.
Ákæruvaldið (
Ragnheiður Harðardóttir saksóknari)
gegn
Ólafi Má Sævarssyni (
Brynjar Níelsson hrl)
Ó var ákærður fyrir fíkniefnalagabrot með því að hafa ásamt fleirum í hagnaðarskyni staðið að innflutningi 630 g af kókaíni sem ætlað var til sölu hérlendis. Var Ó ákærður fyrir skipulagningu innflutningsins og fjármögnun á kaupunum og að hafa keypt fíkniefnin erlendis og komið þeim til aðila, sem flutti þau til Íslands. Var staðfest niðurstaða héraðsdóms um að eftir framkomnum gögnum og framburði vitna og sakborninga í málinu þætti brot Ó sannað og var hann dæmdur til þriggja ára fangelsisrefsingar.
Ákæruvaldið (
Bragi Steinarsson vararíkissaksóknari)
gegn
Ólafi Páli Rafnssyni (
Kristján Stefánsson hrl)
Ó var ákærður fyrir áfengis- og tolllagabrot með því að hafa smyglað áfengi og vindlingum til landsins. Taldi hann ákvörðun héraðsdóms um fésekt of háa, en með vísan til 3. mgr. 159. gr. laga 19/1991 voru ekki talin efni til að breyta henni Var niðurstaða héraðsdóms því staðfest og Ó dæmdur til greiðslu sektar og upptöku smyglvarningsins.