Héraðsdómur Vestfjarða
Dómur 13. febrúar 2007.
Mál nr. S-31/2007:
Ákæruvaldið
(Ólafur Hallgrímsson fulltrúi)
gegn
Jeff Daníel Magnússyni
Með ákæru 21. nóvember 2006 höfðaði lögreglustjórinn á Ísafirði opinbert mál á hendur ákærða, Jeff Daníel Magnússyni, kt. ......., til heimilis að Arnarflöt 7, Súðavík, og ákærðu X;
„báðum fyrir fíkniefnalagabrot framin að Arnarflöt 7, Súðavík, svo sem hér greinir:
fyrir sölu og dreifingu fíkniefna, með því að hafa í félagi á tímabilinu september 2005 til 5. janúar 2006, selt óþekktum einstaklingum allt að 100 grömm af hassi gegn greiðslu kr. 3.000 fyrir hvert gramm.
fyrir að hafa þann 5. janúar 2006, í félagi haft í vörslum sínum 49,80 grömm af hassi ætlað til sölu og dreifingar, sem lögregla fann við húsleit.
Telst þetta varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr., laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 13/1985 og lög nr. 68/2001 og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 848/2002.
Lykilorð
Skilorð. Upptaka. Ávana- og fíkniefni.
Útdráttur
Ákærði sakfelldur fyrir sölu fíkniefna. Var hann dæmdur í fangelsi í einn mánuð, skilorðsbundið í tvö ár. Þá var honum gert að sæta upptöku á fíkniefnum og peningum.
Með ákæru 21. nóvember 2006 höfðaði lögreglustjórinn á Ísafirði opinbert mál á hendur ákærða, Jeff Daníel Magnússyni, kt. ......., til heimilis að Arnarflöt 7, Súðavík, og ákærðu X; „báðum fyrir fíkniefnalagabrot framin að Arnarflöt 7, Súðavík, svo sem hér greinir:
1. fyrir sölu og dreifingu fíkniefna, með því að hafa í félagi á tímabilinu september 2005 til 5. janúar 2006, selt óþekktum einstaklingum allt að 100 grömm af hassi gegn greiðslu kr. 3.000 fyrir hvert gramm. 2. fyrir að hafa þann 5. janúar 2006, í félagi haft í vörslum sínum 49,80 grömm af hassi ætlað til sölu og dreifingar, sem lögregla fann við húsleit.
Telst þetta varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr., laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 13/1985 og lög nr. 68/2001 og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 848/2002. Þess er krafist að ákærðu verði dæmd til refsingar og jafnframt að gerð verði upptæk 49,80 g af hassi, sem lagt var hald á, samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001. Þá er þess jafnframt krafist með vísan til 7. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001, að gerðir verði upptækir peningar að fjárhæð kr. 110.000 sem er ágóði fíkniefnasölu, sbr. 1. lið ákæru og áhöld til fíkniefnaneyslu sem fundust við framangreinda húsleit.“
I.
Í þinghaldi 17. janúar sl. lét sækjandi bóka að magn það sem ákærðu væri gefið að sök að hafa í félagi selt óþekktum einstaklingum væri allt að 60 grömmum, ekki allt að 100 grömmum eins og segir í ákæru. Ákærði kom fyrir dóm fyrrnefndan dag og viðurkenndi sakargiftir eins og þær standa eftir framangreinda breytingu ákæruvalds. Þá samþykkti hann upptökukröfur ákæruvaldsins. Er játning ákærða í samræmi við gögn málsins. Brot hans teljast því sönnuð og varða þau við tilgreind laga- og reglugerðarákvæði í ákæru. Samkvæmt þessu þykir mega leggja dóm á þátt ákærða á grundvelli 125. gr. laga nr. 19/1991. Ákærða X kom fyrir dóm 7. febrúar sl. og neitaði sök. Kemur því til aðalmeðferðar um sakargiftir á hendur henni samkvæmt ákæru lögreglustjórans á Ísafirði frá 21. nóvember sl. Að fenginni afstöðu ákærðu var þáttur ákærða, sem þegar hafði lagt málið í dóm fyrir sitt leyti, skilinn frá upphaflega málinu og er hann nú dæmdur sérstaklega í þessu máli með heimild í 24. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Var mál þetta dómtekið 7. febrúar sl.
II.
Við ákvörðun refsingar verður að líta til þess að fíkniefnabrot ákærða varða meðal annars sölu á allt að 60 grömmum af hassi. Ákærða til málsbóta má hins vegar virða að hann játaði brot sín skýlaust fyrir dómi, hann var samvinnuþýður við alla rannsókn málsins og þá hefur hann ekki áður sætt refsingum. Að öllu þessu virtu þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin 30 daga fangelsi. Eftir atvikum þykir með heimild í 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 mega fresta fullnustu refsingar ákærða og skal hún falla niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dóms þessa að telja haldi hann almennt skilorð nefndrar 57. gr., sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955. Komi til fullnustu refsingarinnar skal fjögurra daga gæsluvarðhald ákærða, frá 6. janúar 2006 til 10. sama mánaðar, koma henni til frádráttar. Við áðurgreinda fyrirtöku 7. febrúar sl., er ákærða X kom fyrir dóm og neitaði sök, tók ákærða fram að hún gerði ekki athugasemd við upptökukröfu ákæruvalds. Samkvæmt þessu og niðurstöðu dómsins hér að framan, sem og með vísan til kröfugerðar ákæruvalds, gagna málsins, samþykkis ákærða og tilgreindra laga- og reglugerðarákvæða í ákæruskjali, verða gerð upptæk fíkniefni og peningar svo sem í dómsorði greinir. Engan sakarkostnað leiddi af rannsókn og rekstri máls þessa. Dóm þennan kveður upp Kristinn Halldórsson, settur héraðsdómari.
D Ó M S O R Ð:
Ákærði, Jeff Daníel Magnússon, sæti fangelsi í 30 daga en fresta skal fullnustu refsingarinnar og skal hún falla niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dóms þessa að telja haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955. Komi til fullnustu refsingarinnar skal fjögurra daga gæsluvarðhald ákærða, frá 6. janúar 2006 til 10. sama mánaðar, koma henni til frádráttar. Ákærði sæti upptöku á 49,80 grömmum af hassi, 110.000 krónum í peningum, og haldlögðum áhöldum til fíkniefnaneyslu sem lögregla fann við húsleit á heimili ákærða 5. janúar 2006.
Kristinn Halldórsson.