Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjaness

Mál nr. S-73/2008:

S-73/2008:

Ákæruvaldið

(Alda Hrönn Jóhannsdóttir ftr)

gegn

Kristjáni Þórarni Stefánssyni

Þetta

mál, sem var dómtekið í dag, er höfðað með ákæru lögreglu­stjórans á

Suðurnesjum, útgefinni 19. desember sl., á hendur Kristjáni Þórarni

Stefánssyni, kt. (...), Kirkjuvegi 49, Reykjanesbæ, og Sigurði Frímanni

Hilmarssyni, kt. (...), Heiðarbraut 5, Garði, „fyrir líkamsárás, sunnudaginn

11. mars 2007, fyrir utan Hjallaveg 3, Reykjanesbæ, með því að ákærði Kristján

Þórarinn kýldi Vigni Þór Sturluson, kt. (...), með krepptum hnefa nokkur högg í

andlitið á meðan ákærði Sigurður Frímann hélt Vigni Þór en jafnframt skölluðu

ákærðu báðir Vigni Þór í höfuðið og ákærði Kristján Þórarinn setti hnéð í kvið

Vignis Þórs. Urðu afleiðingar árásarinnar þær að Vignir Þór hlaut

fjölyfirborðsáverka á höfði.

Telst

háttsemi ákærðu varða við 1. mgr. 217. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940,

sbr. lög nr. 20/1981.“

Í

ákæru er þess krafist að ákærðu verði dæmdir til refsingar.

Þegar

málið var tekið fyrir 1. febrúar sl. var ákærði Kristján Þórarinn ekki mættur

sem kann að stafa af misbresti við boðun hans, en fresta þurfti áður boðaðri

fyrirtöku vegna veðurs. Til þess að ekki yrði töf á þeim þætti málsins sem

varðar ákærða Sigurð Frímann var þáttur Kristjáns Þórarins skilinn frá, skv.

heimild í 24. gr. laga nr. 19/1991, en málið var dómtekið á Sigurð Frímann.

Málið

er dæmt samkvæmt 125. gr. laga um meðferð opinberra mála nr. 19/1991. Ákærði,

Kristján Þórarinn, hefur skýlaust viðurkennt að hafa gerst sekur um þá háttsemi

sem honum er gefin að sök í ákæru. Telst sannað með þeirri játningu og

framkomnum sakargögnum að hann hafi gerst sekur um það brot sem tilgreint er í

ákæru og er þar rétt fært til refsiákvæða.

Með

hliðsjón af því að ákærði er mjög ungur að árum, en hann var einungis 15 ára

þegar hann framdi það brot sem hann er nú sakfelldur fyrir, svo og því að hann

hefur hreint sakavottorð og ennfremur því að hann var mjög samvinnuþýður bæði

hjá lögreglu og fyrir dómi þykir rétt að nýta heimild 57. gr. almennra

hegningarlaga og fresta ákvörðun refsingar fyrir brot hans gegn 1. mgr. 217.

Refsiákvörðun.

Sakfellt fyrir minni háttar líkamsárás. Ákvörðun refsingar frestað skilorðsbundið í tvö ár.

Þetta mál, sem var dómtekið í dag, er höfðað með ákæru lögreglustjórans á Suðurnesjum, útgefinni 19. desember sl., á hendur Kristjáni Þórarni Stefánssyni, kt. (...), Kirkjuvegi 49, Reykjanesbæ, og Sigurði Frímanni Hilmarssyni, kt. (...), Heiðarbraut 5, Garði, „fyrir líkamsárás, sunnudaginn 11. mars 2007, fyrir utan Hjallaveg 3, Reykjanesbæ, með því að ákærði Kristján Þórarinn kýldi Vigni Þór Sturluson, kt. (...), með krepptum hnefa nokkur högg í andlitið á meðan ákærði Sigurður Frímann hélt Vigni Þór en jafnframt skölluðu ákærðu báðir Vigni Þór í höfuðið og ákærði Kristján Þórarinn setti hnéð í kvið Vignis Þórs. Urðu afleiðingar árásarinnar þær að Vignir Þór hlaut fjölyfirborðsáverka á höfði.

Telst háttsemi ákærðu varða við 1. mgr. 217. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. lög nr. 20/1981.“

Í ákæru er þess krafist að ákærðu verði dæmdir til refsingar.

Þegar málið var tekið fyrir 1. febrúar sl. var ákærði Kristján Þórarinn ekki mættur sem kann að stafa af misbresti við boðun hans, en fresta þurfti áður boðaðri fyrirtöku vegna veðurs. Til þess að ekki yrði töf á þeim þætti málsins sem varðar ákærða Sigurð Frímann var þáttur Kristjáns Þórarins skilinn frá, skv. heimild í 24. gr. laga nr. 19/1991, en málið var dómtekið á Sigurð Frímann.

Málið er dæmt samkvæmt 125. gr. laga um meðferð opinberra mála nr. 19/1991. Ákærði, Kristján Þórarinn, hefur skýlaust viðurkennt að hafa gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru. Telst sannað með þeirri játningu og framkomnum sakargögnum að hann hafi gerst sekur um það brot sem tilgreint er í ákæru og er þar rétt fært til refsiákvæða.

Með hliðsjón af því að ákærði er mjög ungur að árum, en hann var einungis 15 ára þegar hann framdi það brot sem hann er nú sakfelldur fyrir, svo og því að hann hefur hreint sakavottorð og ennfremur því að hann var mjög samvinnuþýður bæði hjá lögreglu og fyrir dómi þykir rétt að nýta heimild 57. gr. almennra hegningarlaga og fresta ákvörðun refsingar fyrir brot hans gegn 1. mgr. 217. gr. sömu laga. Ekki kemur til refsingar fyrir það brot haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 í tvö ár talið frá uppkvaðningu þessa dóms.

Með vísan til 1. mgr. 165. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála verður ákærði dæmdur til að greiða helming sakarkostnaðar málsins, 4.440 krónur, vegna vottorðs frá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja um áverka Vignis Þórs Sturlusonar.

Ingiríður Lúðvíksdóttir, settur héraðsdómari, kveður upp þennan dóm.

D ó m s o r ð :

Ákvörðun um refsingu ákærða, Kristjáns Þórarins Stefánssonar, fyrir brot gegn 1. mgr. 217. gr. almennra hegningarlaga skal fresta. Ekki kemur til refsingar fyrir það brot haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 í tvö ár talið frá uppkvaðningu þessa dóms.

Ákærði greiði 4.440 kr. í sakarkostnað.

Ingiríður Lúðvíksdóttir Rétt endurrit staðfestir Héraðsdómi Reykjaness 14. febrúar 2008