Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjaness

Mál nr. S-72/2008:

Ákæruvaldið

(Sævar Lýðsson fulltrúi)

gegn

Abass Jockey f. 5.9.1972

(Unnar Steinn Bjarndal hdl)

Sakfelldur fyrir framvísun á fölsuðu vegabréfi. Sæti fangelsi í 30 daga.

Mál þetta, sem dómtekið var fyrr í dag, er höfðað með ákæru lögreglustjórans á Suðurnesnum, dagsettri í dag, á hendur Abass Jockey, ríkisborgara Sierra Leone, fæddum 5. september 1972 í Freetown, Sierra Leone, búsettum í Mílanó, Ítalíu., ,,fyrir skjalafals, með því að hafa mánudaginn 28. janúar 2008  eftir komu til Keflavíkurflugvallar með flugi frá Osló framvísað í blekkingarskyni hjá landamæraeftirliti lögreglu í tollsal fölsuðu nígerísku vegabréfi nr. A2892939 með útgáfudag 15. mars 2006 á nafn ákærða.

Telst þetta varða við 1. mgr. 155. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar.“

Farið var með mál þetta samkvæmt 125. gr. laga nr. 19/1991 og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu er sækjanda og ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.

Ákærði hefur skýlaust játað brot sitt. Sannað er með játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að ákærði er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru og eru brot hans þar rétt heimfærð til refsiákvæðis.

Við ákvörðun refsingar ákærða verður litið til þess að vegabréf eru opinber skilríki, sem miklu skiptir að treysta megi í samskiptum manna og þjóða. Samkvæmt 1. mgr. 155. gr. almennra hegningarlaga skal það metið refsingu til þyngingar ef falsað skjal er notað sem opinbert skjal. Ekkert liggur fyrir um að hann hafi áður gerst sekur um refsiverða háttsemi. Með hliðsjón af framangreindu þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í 30 daga.  Með vísan til þess hvers eðlis brot ákærða er og þegar litið er til almennra varnaðaráhrifa refsinga þykja ekki efni til að skilorðsbinda refsingu hans.

Ákærði greiði allan sakarkostnað málsins sem er málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Unnars Bjarndal hdl. sem teljast hæfilega ákveðin 124.500 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti auk ferðakostnaðar að fjárhæð 5.863 krónur.

Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Sævar Lýðsson fulltrúi lögreglustjórans á Suðurnesjum.

Sveinn Sigurkarlsson héraðsdómari kveður upp dóm þennan.

D ó m s o r ð:

Ákærði, Abass Jockey sæti fangelsi í 30 daga.

Ákærði greiði allan sakarkostnað málsins sem er málsvarnarlaun skipaðs verjanda hans, Unnar Bjarndal hdl. 124.500 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti auk ferðakostnaðar að fjárhæð 5.863 krónur.

Sveinn Sigurkarlsson Rétt endurrit staðfestir.

Héraðsdómi Reykjaness 1.2.2008.