A var sakfelldur fyrir ýmis brot gegn umferðarlögum, þar á meðal að aka bifreiðum í sjö skipti sviptur ökurétti, í fjórum þeirra tilvika einnig undir áhrifum ávana- og fíkniefna og í þremur þeirra jafnframt undir áhrifum slævandi lyfja. Auk þess var hann sakfelldur fyrir vörslur fíkniefna. Að sakaferli A virtum var refsing hans ákveðin fangelsi í 15 mánuði og hann sviptur ökurétti ævilangt, auk þess sem hann var dæmdur til að sæta upptöku fíkniefna.
...áður reglugerð nr. 930/2006 með síðari breytingum, um sektir og önnur viðurlög vegna brota á umferðarlögum og reglum settum samkvæmt þeim, segir í viðauka I að finnist fleiri en...
Maður sakfelldur fyrir þjófnað, nytjastuld og umferðarlagabrot.
...eldri reglugerð nr. 930/2006 með áorðnum breytingum. Með hliðsjón af dagsetningum á brotum ákærða samkvæmt ákæruliðum II/3–4 ber við ákvörðun refsingar að fara eftir lagaskilareglum samkvæmt 1...
Ákæruvaldið (
Sigurður Pétur Ólafsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Arnari Freyr Karlssyni (
Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Ákærði dæmdur í 14 mánaða fangelsi og ævilöng svipting ökuréttar hans ítrekuð vegna umferðarlagabrota og brota gegn lögum um ávana- og fíkniefni.
...áður reglugerð nr. 930/2006 með síðari breytingum, um sektir og önnur viðurlög vegna brota á umferðarlögum og reglum settum samkvæmt þeim, segir í viðauka I að finnist fleiri en...
X var dæmdur til að greiða sekt fyrir brot gegn umferðarlögum og ófullnægjandi vörslu graðneyta. Sýknu að hluta, Z var sýknaður alfarið.
...umferðarlaga verður sekt ákveðin með fráviki frá ákvæðum viðauka við reglugerð nr. 930/2006, með hliðsjón af því að þótt ákærða láðist að skrá ,,flatvagninn“ er ljóst að mati dómsins...
Ríkissjóði Íslands gert að greiða stefnanda 250.000 krónur í skaðabætur vegna ólögmætrar handtöku.
...328/2009, um breytingu á reglugerð nr. 930/2006 um sektir og önnur viðurlög vegna brota á umferðarlögum og reglum settum samkvæmt þeim. Stefndi kveður að óumdeilt sé að fram...
Ákæruvaldið (Eyþór Þorbergsson fulltrúi) gegn
Þorvaldi Snæ Péturssyni
Þ var dæmdur í sex mánaða fangelsi fyrir þjófnað, nytjastuld og akstur undir áhrifum fíkniefna. Sviptur ökurétti í fjóra mánuði
...50/1987 með áorðnum breytingum og með hliðsjón af reglugerð nr. 930/2006 um sektir og önnur viðurlög vegna brota á umferðarlögum og reglum settum samkvæmt þeim , sbr. reglugerð...
Brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni og umferðarlögum.
...50/1987, ásamt síðari breytingum, og reglugerð nr. 930/2006, um sektir og önnur viðurlög vegna brota á umferðarlögum og reglum settum samkvæmt þeim, sbr. reglugerð nr. 328/2009, auk...
Brot gegn umferðarlögum, lögum um ávana- og fíkniefni o.fl.
...50/1987, ásamt síðari breytingum, og reglugerð nr. 930/2006, um sektir og önnur viðurlög vegna brota á umferðarlögum og reglum settum samkvæmt þeim, sbr. reglugerð nr. 328/2009, og...
Akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Varsla ávana- og fíkniefna.
...sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, ásamt síðari breytingum, sbr. reglugerð nr. 930/2006 og nr. 328/2009. Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar...
Með dómi héraðsdóms var Þ sakfelldur fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot með því að hafa staðið að innflutningi á 1049,72 g af kókaíni, 2,59 g af tóbaksblönduðu kannabisefni og 2,33 g af hassi og umferðarlagabrot með því að hafa ekið bifreið undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Undir rekstri málsins fyrir Hæstarétti óskaði Þ eftir því að dómkvaddur yrði matsmaður til að meta sakhæfi sitt. Voru niðurstöður hennar í megindráttum þær að Þ væri sakhæfur og að geðræn einkenni hans útilokuðu ekki að refsing kæmi að gagni. Að virtu því mati og að öðru leyti með vísan til forsendna héraðsdóms var niðurstaða héraðsdóms staðfest um sakfellingu Þ og honum gert að sæta fangelsi í 18 mánuði. Þá var hann sviptur ökurétti í 12 mánuði og gerð upptæk þau fíkniefni sem lögregla lagði hald á við rannsókn málsins.
...Samkvæmt reglugerð nr. 930/2006 um sektir og önnur viðurlög vegna brota á umferðarlögum og reglum settum samkvæmt þeim, sbr. breytingu með reglugerð nr. 328/2009 verður ákærði sviptur ökurétti...
K höfðaði mál gegn S og V hf. og krafðist greiðslu skaðabóta vegna tjóns sem hún varð fyrir sem farþegi bifreiðar í eigu S. Deilt var um hvort K skyldi vegna eigin sakar bera að hluta ábyrgð á tjóninu en K hafði legið, án öryggisbeltis, ofan á þremur farþegum bifreiðarinnar í aftursæti hennar. Var ekki talið að gáleysi K hefði verið svo stórkostlegt að það leiddi til skerðingar á bótarétti hennar samkvæmt 2. mgr. 88. gr. umferðarlaga nr. 50/1987. Var því fallist á kröfur K.
...öryggisbelti og breytir engu um það mat að slík vanræksla varði sektum samkvæmt reglugerð nr. 930/2006, sem sett var á grundvelli heimildar í 4. mgr. 100. gr. umferðarlaga. Í...
Stefndu dæmd til að greiða stefnanda frekari skaðabætur vegna umferðarslyss. Heildarbætur lækkaðar um helming þar sem stefnandi var talin hafa sýnt af sér stórkostlegt gáleysi er hann tók sér far með ökumanni bifreiðarinnar sem var undir áhrifum fíkniefna.
...í blóði hennar í miklu magni í skilningi reglugerðar nr. 328/2009, sbr. reglugerð nr. 930/2006 um sektir og önnur viðurlög vegna brota á umferðarlögum og reglum settum samkvæmt...
Ákæruvaldið (
Kolbrún Benediktsdóttir settur saksóknari)
gegn
X (
Jón Rúnar Pálsson hrl)
X var ákærður fyrir umferðarlagabrot með því að hafa sem ökumaður vöruflutningabifreiðar margoft brotið gegn reglum um aksturs- og hvíldartíma ökumanna. Fyrir Hæstarétti bar ákærði fyrir sig að í öllum tilvikum hafi verið um að ræða akstur, sem væri honum refsilaus vegna frávika samkvæmt 13. gr. þágildandi reglugerðar nr. 662/2006 um aksturs- og hvíldartíma ökumanna. Í því ákvæði var kveðið á um heimild ökumanns til að víkja frá ákvæðum reglugerðarinnar að nánar tilteknum skilyrðum uppfylltum, að því tilskyldu að ökumaður skráði í ökurita með hvaða hætti og hvers vegna það væri gert. Upplýst var í málinu að ekki væri mögulegt að skrá í ökuritann neinar slíkar upplýsingar sem féllu undir 13. gr. og því ekki unnt að framkvæma fyrirmælin í greininni. Þegar ákærði var yfirheyrður hjá lögreglu vegna ætlaðra brota var liðið meira en ár frá háttseminni. Honum var samkvæmt ákvæðum 12. gr. reglugerðar nr. 661/2006 ekki skylt að halda til haga gögnum um aksturinn lengur en í eitt ár. Hvorki Vegagerðin né lögregla höfðu gefið honum tilefni til að halda slíkum gögnum til haga lengur, hvort sem þau hefðu verið til eða ekki. Hæstiréttur taldi að það væri ekki á ábyrgð ákærða að ekki lægju fyrir sannanir um rétt hans til þess að víkja frá þeim ákvæðum reglugerðarinnar sem hann væri talinn hafi brotið í ákæru. Var ákærði því sýknaður.
...ræða stöðvi menn ekki um þann tíma og er við það miðað í reglugerð nr. 930/2006, sem miða skal við í þessum efnum, að sektarfjárhæð hækkar eftir því sem...
X var ákærður fyrir brot gegn 1. mgr. 106. gr. og 4. mgr. 220. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með því að hafa ekki sinnt fyrirmælum lögreglu um að ræða við sig, hafa sest upp í bifreið sína og ekið ógætilega í átt að lögreglumanni. Í dómi Hæstaréttar segir meðal annars að ákvörðun lögreglumannanna fjögurra, um að fara til heimilis ákærða umrætt sinn, hefði ekki staðið í tengslum við rannsókn tiltekins brots eða það að grunur hefði beinst að ákærða um refsiverða háttsemi. Yrði hvorki talið sannað að lögreglumennirnir hefðu gert grein fyrir sér í samræmi við ákvæði reglugerðar um lögregluskilríki áður en ákærði lokaði bifreið sinni og ók af stað, né heldur að ákærði hefði mátt sjá lögregluskilríki þeirra vegna myrkurs og fjarlægðar. Var ákærði því sýknaður af ákæru um brot á 1. mgr. 106. gr. almennra hegningarlaga. Þá segir einnig í dómi Hæstaréttar að þótt lagt yrði til grundvallar að ákærði hefði ekið hratt af stað og að atvik málsins hefðu orðið á litlu svæði yrði, eins og ákært var í málinu, ekki talið sannað að hann hefði haft ásetning til brots í ljósi þess að lögreglumaðurinn hefði líklegast hlaupið fyrir bifreiðina er hún var komin af stað. Yrði ákærði því einnig sýknaður af ákæru um brot á 4. mgr. 220. gr. almennra hegningarlaga. Hins vegar taldi Hæstiréttur að X hefði brotið gegn 1. mgr. 5. gr. a umferðarlaga nr. 50/1987, með því að hafa ekið yfir autt svæði á milli bílastæða við heimili ákærða og nærliggjandi akbrautar. Var ákærða gert að greiða 5.000 krónur í sekt til ríkissjóðs.
...og reglugerð nr. 930/2006 um sektir og önnur viðurlög vegna brota á umferðarlögum og reglum settum samkvæmt þeim. Greiði hann ekki sektina skal hann sæta vararefsingu eins og í...
Ákæruvaldið (
Helgi Jensson sýslumannsfulltrúi)
gegn
Guðmundi Hreindal Svavarssyni (
Jón Rúnar Pálsson hrl)
G var dæmdur í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir fimmtán brot á reglum um aksturs- og hvíldartíma ökumanna.
...ræða stöðvi menn ekki um þann tíma og er við það miðað í reglugerð nr. 930/2006, sem miða skal við í þessum efnum, að sektarfjárhæð hækkar eftir því sem...
X var sakfelld fyrir umferðarlagabrot með því að hafa ekið bifreið undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Var brot X talið varða við 1., sbr. 2. mgr. 45. gr. a. umferðarlaga nr. 50/1987 og hún svipt ökurétti í eitt ár.
...328/2009 um breytingu á reglugerð nr. 930/2006 um sektir og önnur viðurlög vegna brota á umferðarlögum og reglum settum samkvæmt þeim, verður ákærða svipt ökurétti í eitt ár...
Ákæruvaldið (
Daði Kristjánsson settur saksóknari)
gegn
Theódóri Kristjánssyni (
Jón Egilsson hdl)
Karlmaður, sem játaði sök, sakfelldur fyrir ölvunarakstur og brot gegn valdstjórninni. Ákærði dæmdur til greiðslu sektar og sviptur ökurétti.
...viðauka með reglugerð nr. 930/2006 sem sett var með stoð í 4. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987. Í viðaukanum var hins vegar ekki tiltekið hversu sviptingartímabilið skyldi...
Í héraði var Á fundinn sekur um að hafa ekið bifreið tvisvar sinnum óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ólöglegra fíkniefna. Var hann dæmdur til að greiða 140.000 krónur í sekt í ríkissjóð og sviptur ökurétti í níu mánuði. Málinu var skotið til Hæstaréttar vegna ágreinings um tímalengd ökuréttarsviptingar. Í Hæstarétti var ökuréttarsvipting Á þyngd í samræmi við dómvenju við ákvörðun ökuréttarsviptingar, sbr. nú reglugerðar nr. 328/2009. Var Á sviptur ökurétti í 14 mánuði að frádreginni 9 mánaða sviptingu ökuréttar sem hann sætti frá birtingu héraðsdóms.
...328/2009 um breytingu á reglugerð nr. 930/2006 um sektir og önnur viðurlög vegna brota á umferðarlögum og reglum settum samkvæmt þeim, sbr. og dóm réttarins 31. janúar 2008...
Í héraði var K fundinn sekur um að hafa ekið bifreið óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ólöglegra fíkniefna. Var hann dæmdur til að greiða 90.000 krónur í sekt í ríkissjóð og sviptur ökurétti í 6 mánuði. Málinu var skotið til Hæstaréttar vegna ágreinings um tímalengd ökuréttarsviptingar. Í Hæstarétti var ökuréttarsvipting K þyngd í samræmi við dómvenju við ákvörðun ökuréttarsviptingar, sbr. nú reglugerð nr. 328/2009. Var K sviptur ökurétti í 12 mánuði að frádreginni 6 mánaða sviptingu ökuréttar sem hann sætti frá birtingu héraðsdóms.
...328/2009 um breytingu á reglugerð nr. 930/2006 um sektir og önnur viðurlög vegna brota á umferðarlögum og reglum settum samkvæmt þeim, sbr. og dóm réttarins 31. janúar 2008...
K var sýknaður af ákæru um líkamsmeiðingar af gáleysi en sakfelldur fyrir brot á umferðarlögum með því að vera með fleiri farþega en sæti voru fyrir í bifreið hans, en bifreiðin fór útaf vegi í miklu hvassviðri á Hellisheiði eystri og farþeginn J slasaðist lífshættulega.
...Í samræmi við reglugerð nr. 930/2006 um sektir og önnur viðurlög vegna brota á umferðarlögum og reglum settum samkvæmt þeim, þykir refsing hans hæfilega ákveðin 5.000 króna sekt...
Ákæruvaldið (Jóhann Svanur Hauksson fulltrúi) gegn
Júlíusi Ævarssyni
Táningur dæmdur til greiðslu sektar og sviptingar ökuréttar fyrir ofsaakstur.
...Við ákvörðun refsingar verður tekið mið af reglugerð nr. 930/2006 um sektir og önnur viðurlög vegna brota á umferðarlögum og reglum settum samkvæmt þeim, sbr. 4. mgr. 100. gr...