Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

14 dómar fundust

Lagagrein: 16. gr. b laga nr. 87/1992 — Lög um gjaldeyrismál

Landsréttur birt 11. mars 2022

666/2020

Seðlabanki Íslands (Jóhannes Karl Sveinsson lögmaður) gegn Þorsteini Má Baldvinssyni (Garðar Guðmundur Gíslason lögmaður)

S lagði árið 2016 stjórnvaldssekt á Þ samkvæmt 1. mgr. 15. gr. a laga nr. 87/1992 um gjaldeyrismál vegna brota gegn tilteknum reglum um gjaldeyrismál, sem settar höfðu verið með stoð í bráðabirgðaákvæði nr. I. við lög um gjaldeyrismál, sbr. lög nr. 134/2008. S afturkallaði ákvörðunina árið 2019. Til stuðnings þeirri ákvörðun vísaði S til svarbréfs ríkissaksóknara 19. febrúar 2019 við fyrirspurn S 15. sama mánaðar um frekari skýringu á afstöðu ríkissaksóknara til gildis refsiheimildar í lögum og reglum um gjaldeyrismál sem fram hefði komið í úrlausnum hans á árinu 2014. Þ höfðaði mál gegn S til heimtu skaða- og miskabóta og byggði á því að S hefði með rannsóknum og töku stjórnvaldsákvarðana í máli hans valdið honum fjárhagslegu tjóni og miska með saknæmum og ólögmætum hætti. Í dómi Landsréttar kom fram að afstaða ríkissaksóknara um gildi refsiheimildar í lögum og reglum um gjaldeyrismál, áður en þeim var breytt með lögum nr. 127/2011, hefði komið skýrt fram í úrlausnum hans á árinu 2014. Af því leiddi að á þeim tíma sem ætluð brot Þ voru framin hefði engin gild eða nothæf refsiheimild verið til staðar í lögum og reglum um gjaldeyrismál. Athugasemdir og efasemdir Umboðsmanns Alþingis í bréfi hans frá 2015 um sama efni og leiðbeiningar hans um þýðingu 69. gr. stjórnarskrárinnar og grundvallarreglur refsiréttarins sem af henni yrðu leiddar, hefðu einnig gefið S ríkt tilefni til að gæta varfærni við beitingu viðurlagaheimildar sinnar. Ef áfrýjandi taldi að sú afstaða ríkissaksóknara sem birtist í úrlausnum hans 20. maí 2014 væri ekki nægilega skýr hefði honum borið í samræmi við áðurgreind varfærnisjónarmið að leita eftir frekari skýringum hans, líkt og hann síðar gerði með fyrirspurn í febrúar 2019. Sýndu gögn málsins að svar ríkisaksóknara, þar sem hann áréttaði skýrt fyrri afstöðu sína, varð til þess að S afturkallaði ákvörðun sína um álagningu stjórnvaldssektar á Þ. Ákvarðanir um álagningu stjórnvaldssekta hefðu í för með sér íþyngjandi inngrip í persónuleg málefni þeirra sem í hlut ættu. Í því ljósi og með hliðsjón af meginreglunni um að réttmætan vafa um skýringu refsiákvæða beri að meta sakborningi í hag, yrði að gera þá kröfu að stjórnvald sem færi með ákvarðanir af þessu tagi gætti varfærni við meðferð valds síns. Ákvörðun S um álagningu stjórnvaldssektar á Þ hefði skort viðhlítandi lagastoð og því verið ólögmæt. Meðferð og afgreiðsla málsins af hálfu starfsmanna S hefði verið slíkum annmörkum háð að skilyrðinu um saknæmi væri einnig fullnægt. Þá væri útlagður kostnaður Þ við að gæta hagsmuna sinna í málinu afleiðing af hinni ólögmætu málsmeðferð S og að hann því skaðabótaskyldur gagnvart Þ vegna þess tjóns. Þá hefði ákvörðun S um álagningu stjórnvaldssektar falið í sér ólögmæta meingerð gegn Þ. S var því gert að greiða Þ nánar tilgreindar skaða- og miskabætur.

Landsréttur birt 11. mars 2022

658/2020

Samherji hf (Garðar Guðmundur Gíslason lögmaður) gegn Seðlabanka Íslands (Jóhannes Karl Sveinsson lögmaður)

S hf. höfðaði mál gegn SÍ til heimtu skaða- og miskabóta þar sem S hefði, með framgöngu sinni við rannsókn og meðferð máls hans, sem lauk með álagningu stjórnvaldssektar vegna ætlaðra brota S hf. gegn lögum nr. 87/1992 um gjaldeyrismál og reglum settum samkvæmt þeim, valdið S hf. fjárhagslegu tjóni og miska með saknæmum og ólögmætum hætti. Í dómi Landsréttar kom fram að S hf. gæti ekki krafið SÍ, sem væri sjálfstæð ríkisstofnun, um bætur á grundvelli sakarreglunnar vegna húsleitar- og haldlagningaraðgerða sem SÍ hefði staðið fyrir á hendur S hf. Bótakröfu vegna slíkra aðgerða yrði einungis beint að íslenska ríkinu á grundvelli hinnar hlutlægu bótareglu 246. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Var SÍ því sýknaður af þeim þætti bótakröfunnar sökum aðildarskorts. Þá var SÍ af sömu ástæðu jafnframt sýknaður af kröfu S hf. um greiðslu miskabóta á grundvelli b-liðar 1. mgr. 26. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993 vegna framgöngu SÍ við málsmeðferðina, enda tæki ákvæðið samkvæmt orðalagi sínu og grunnrökum ekki til lögaðila. Að því er varðaði bótakröfur S hf. vegna fjárhagslegs tjóns vísaði Landsréttur til þess að dómkröfur S hf. hefðu meðal annars ekki verið nægilega skýrt sundurliðaðar í stefnu til héraðsdóms. Auk þess voru gögn sem hann lagði fram við þingfestingu til stuðnings dómkröfum sínum ekki fullnægjandi. Með hliðsjón af málatilbúnaði S hf., sem hefði gert ráð fyrir að tjón hans mætti rekja til nokkurra atvika í tengslum við háttsemi SÍ á um fjögurra ára tímabili, væri sérstaklega brýnt að framsetning og sundurliðun dómkrafna væri skýr svo unnt væri að taka til varna, meðal annars með hliðsjón af fyrningarreglum og reglum skaðabótaréttarins um orsakatengsl. Viðleitni S hf. til að bæta úr málatilbúnaði sínum undir rekstri málsins í héraði og við meðferð málsins í Landsrétti hefði ekki varpað skýrara ljósi á málið. Þótti grundvöllur málsins lagður í slíku ósamræmi við fyrirmæli e-liðar 1. mgr. 80. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála að ekki yrði hjá því komist að vísa þeim dómkröfum S hf., sem S hafði ekki þegar verið sýknaður af, sjálfkrafa frá héraðsdómi.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 30. október 2020

E-3903/2019

Samherji hf (Garðar Guðmundur Gíslason lögmaður) gegn Seðlabanka Íslands (Jóhannes Karl Sveinsson lögmaður)

Kröfum stefnanda um greiðslu skaðabóta vegna húsleitar- og haldlagningaraðgerða á hendur seðlabankanum var hafnað þar sem stefnandi var talinn hafa átt að beina bótakröfum vegna slíkra aðgerða að íslenska ríkinu samkvæmt bótareglum laga nr. 88/2008, um meðferð sakamála. Þá var ekki talið að stefnandi hefði sýnt fram á að sá kostnaður sem hann lýsti sem tjóni sínu yrði rakinn til háttsemi stefnda í málinu. Loks var hafnað málatilbúnaði stefnanda um að birting fréttatilkynningar um húsleit á vefsíðu seðlabankans hefði brotið gegn réttindum hans. Auk þess var stefnandi ekki talinn hafa sýnt fram á að starfsmenn stefnda hefðu lekið upplýsingum um fyrirhugaða húsleit til fjölmiðla áður en hún fór fram.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 30. október 2020

E-3902/2019

Þorsteinn Már Baldvinsson (Garðar Guðmundur Gíslason lögmaður) gegn Seðlabanka Íslands (Jóhannes Karl Sveinsson lögmaður)

Seðlabanka Íslands var gert að greiða stefnanda skaða- og miskabætur fyrir að hafa gert stefnanda sekt vegna brota á gjaldeyrisreglum án þess að til staðar væri gild refsiheimild. Talið var að í ljósi ákvarðana ríkissaksóknara í málum sem seðlabankinn hafði skotið til ríkissaksóknara og þeirri afstöðu sem þar var lýst til gildra refsiheimilda hefðu starfsmenn stefnda mátt hafa vitneskju um annmarka á refsiheimildum fyrir brot á gjaldeyrisreglum. Var því talið að skilyrði skaðabótaskyldu væru uppfyllt og stefnanda dæmdar skaðabætur sem námu kostnaði af því að fá ákvörðun seðlabankans um álagningu sektar hnekkt.

Hæstiréttur birt 8. nóvember 2018

463/2017

Seðlabanki Íslands (Steinar Þór Guðgeirsson lögmaður) gegn Samherja hf (Garðar Guðmundur Gíslason lögmaður)

SÍ hafði til rannsóknar ætluð brot S hf. á reglum um gjaldeyrismál. Þann 10. apríl 2013 beindi SÍ kæru til embættis sérstaks saksóknara vegna brotanna. Sérstakur saksóknari taldi að brotin gætu ekki orðið tilefni lögreglurannsóknar og saksóknar, þar sem reglur þær sem brotin beindust gegn hefðu ekki að geyma heimild til að refsa lögaðilum. Hann benti þó á að væru almenn skilyrði uppfyllt kynnu að vera forsendur til að beita stjórnsýsluviðurlögum. Þann 28. ágúst 2013 var málið því sent aftur til SÍ sem tók í kjölfarið ákvörðun um að kæra fjóra einstaklinga sem voru í fyrirsvari fyrir, eða störfuðu í stjórnunarstöðum hjá S hf. og tengdum félögum, fyrir brot á sömu reglum. Sérstakur saksóknari endursendi þá kæru einnig 4. september 2015, meðal annars með vísan til þess að reglur um gjaldeyrismál væru ekki fullnægjandi refsiheimild. Þann 1. september 2016 tók SÍ þá ákvörðun að leggja stjórnvaldssekt að fjárhæð 15 milljónir króna á S hf. Höfðaði S hf. mál til ógildingar á ákvörðuninni og byggði meðal annars á því að SÍ hefði verið búinn að fella niður málið á hendur sér áður en ákvörðunin hefði verið tekin. Í niðurstöðu sinni vísaði héraðsdómur til bréfasamskipta sem átt höfðu sér stað milli aðila áður en ákvörðunin var tekin, þar sem S hf. hafði meðal annars óskað upplýsinga um hvort rannsókn á þætti félagsins vegna ætlaðra brota væri endanlega lokið. Hafði SÍ svarað á þá leið að hvorki væru til meðferðar mál gegn S hf. né hefðu verið stofnuð fleiri mál á hendur félaginu varðandi ætluð brot þess á lögum og reglum um gjaldeyrismál. Taldi héraðsdómur að líta yrði svo á að samkvæmt þessu hefði legið fyrir afstaða SÍ um niðurfellingu málsins sem S hf. hefði mátt binda réttmætar væntingar við og yrði þannig jafnað til bindandi stjórnvaldsákvörðunar um þetta atriði. Þá hefði ekkert komið fram í málinu um að ákvörðun SÍ um að hefja meðferð máls S hf. að nýju hefði byggst á nýjum gögnum eða vísbendingum um að slík gögn kynnu síðar að koma fram. Hefði því ekki verið sýnt fram á af hálfu SÍ á hvaða grundvelli hefði verið heimilt að taka mál S hf. upp að nýju. Féllst héraðsdómur þá þegar af þeirri ástæðu á kröfu S hf. um ógildingu ákvörðunarinnar og staðfesti Hæstiréttur þá niðurstöðu.

Hæstiréttur birt 27. september 2018

639/2017

Seðlabanki Íslands (Ástríður Gísladóttir lögmaður) og íslenska ríkið (Eiríkur Áki Eggertsson lögmaður) gegn P153 ehf (Reimar Snæfells Pétursson lögmaður)

Í málinu deildu aðilar um gildi og efni ákvörðunar S um að leggja á P ehf. stjórnvaldssekt að tiltekinni fjárhæð vegna nánar tilgreindra brota á lögum nr. 87/1992 um gjaldeyrismál. Þá var deilt um skyldu Í til endurgreiðslu sektarinnar með dráttarvöxtum ef fallist yrði á aðalkröfu P ehf. um ógildingu ákvörðunarinnar eða varakröfu um lækkun sektarinnar. Óumdeilt var að erlent móðurfélag P ehf., N, hafði keypt réttindi samkvæmt nauðasamningi K ehf. og framselt réttindin með lánssamningi til P ehf. en félögin heyrðu til sömu samstæðu í skilningi 1. mgr. 13. gr. g. laga nr. 87/1992. Í héraðsdómi, sem staðfestur var í Hæstarétti með vísan til forsendna hans, kom fram að lánssamningur P ehf. við N hefði falið það í sér að hluta- og kröfuréttindi voru flutt frá N til P ehf. Talið var að samningurinn hefði falið í sér fjármagnshreyfingar milli landa sem hefðu farið í bága við 13. gr. b. og 13. gr. g. laga nr. 87/1992. Í ljósi þeirra undaþága sem giltu um fjármagnshreyfingar innan samstæðu milli landa samkvæmt lögum nr. 87/1992 var talið að S hefði ekki fært fyrir því rök að brot P ehf. hefðu verið til þess fallin að valda alvarlegum og verulegum óstöðugleika í gengis- og peningamálum, svo sem byggt var á í ákvörðun S. Væri þá einnig horft til þess að S hefði látið það viðgangast átölulaust að greiðslur af hálfu K ehf. væru inntar af hendi til annars fyrirtækis í sambærilegri stöðu. Þá voru brot P ehf. ekki talin ítrekuð í skilningi 2. mgr. 15. gr. laganna. Enn fremur var talið að við mat á fjárhæð sektar bæri að líta bæði til þess vafa sem var uppi um skýringu laga nr. 87/1992 svo og viðbragða S við tilkynningum K ehf. og fyrirætlun um að inna af hendi greiðslur til annars tiltekins fyrirtækis. Þótt ekki færi á milli mála að P ehf. hefði leitast við að nýta sér undanþágur í lögum um gjaldeyrismál í því skyni að fá greiddar út kröfur samkvæmt nauðasamningi K ehf., í stað þess að þeim væri ráðstafað á reikning í vörslu S, var talið að ekki hefðu verið færð fyrir því viðhlítandi rök að brot P ehf. hefðu verið sérlega alvarleg með tilliti til markmiða laga um gjaldeyrismál og því ekki efni til að gera P ehf. sérstaka sekt vegna brota sinna. Var sekt P ehf. því felld niður og Í gert að endurgreiða sektarfjárhæðina ásamt dráttarvöxtum.

Hæstiréttur birt 27. september 2018

638/2017

Seðlabanki Íslands (Ástríður Gísladóttir lögmaður) og íslenska ríkið (Eiríkur Áki Eggertsson lögmaður) gegn Raski ehf (Reimar Snæfells Pétursson lögmaður)

Í málinu deildu aðilar um gildi og efni ákvörðunar S um að leggja á R ehf. stjórnvaldssekt að tiltekinni fjárhæð vegna nánar tilgreindra brota á lögum nr. 87/1992 um gjaldeyrismál. Þá var deilt um skyldu Í til að endurgreiða sektarfjárhæðina með dráttarvöxtum ef fallist yrði á aðalkröfu R ehf. um ógildingu ákvörðunarinnar eða varakröfu um lækkun sektarinnar. Óumdeilt var að erlent móðurfélag R ehf., B, hafði keypt réttindi samkvæmt nauðasamningi K ehf. og framselt réttindin með lánssamningum til R ehf. en félögin heyrðu til sömu samstæðu í skilningi 1. mgr. 13. gr. g. laga nr. 87/1992. Í héraðsdómi, sem staðfestur var í Hæstarétti með vísan til forsendna hans, kom meðal annars fram að lánssamningar R ehf. við B hefðu falið það í sér að hluta- og kröfuréttindi hefðu verið flutt frá B til R ehf. Talið var að samningarnir hefðu falið í sér fjármagnshreyfingar milli landa sem hefðu farið í bága við 13. gr. b. og 13. gr. g. laga nr. 87/1992. Í ljósi þeirra undaþága sem giltu um fjármagnshreyfingar innan samstæðu milli landa samkvæmt lögum nr. 87/1992 var talið að S hefði ekki fært fyrir því rök að brot R ehf. hefðu verið til þess fallin að valda alvarlegum og verulegum óstöðugleika í gengis- og peningamálum, svo sem byggt var á í ákvörðun S. Væri þá einnig horft til þess að S hefði látið það viðgangast átölulaust að greiðslur af hálfu K ehf. væru inntar af hendi til R ehf. Þá voru brot R ehf. ekki talin ítrekuð í skilningi 2. mgr. 15. gr. laganna. Enn fremur var talið að við mat á fjárhæð sektar bæri að líta bæði til þess vafa sem var uppi um skýringu laga nr. 87/1992 svo og viðbragða S við tilkynningum K ehf. og fyrirætlun um að inna af hendi greiðslur til R ehf. Þótt ekki færi á milli mála að R ehf. hefði leitast við að nýta sér undanþágur í lögum um gjaldeyrismál í því skyni að fá greiddar út kröfur samkvæmt nauðasamningi K ehf., í stað þess að þeim væri ráðstafað á reikning í vörslu S, var talið að ekki hefðu verið færð fyrir því viðhlítandi rök að brot R ehf. hefðu verið sérlega alvarleg með tilliti til markmiða laga um gjaldeyrismál og því ekki efni til að gera R ehf. sérstaka sekt vegna brota sinna. Var sekt R ehf. því felld niður og Í gert að endurgreiða sektarfjárhæðina ásamt dráttarvöxtum.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 29. september 2016

E-2995/2016

Ákvörðun Seðlabanka Íslands um að leggja stjórnvaldssekt á S hf. var felld úr gildi með vísan til þess að S hf. hafði verið tilkynnt um að máli félagsins hjá bankanum væri lokið og hefði bankinn ekki með neinum hætti sýnt fram á við meðferð málsins á hvaða grundvelli heimilt hefði verið að taka mál stefnanda upp að nýju með vísan til ákvæða 24. gr. stjórnsýslulaga eða almennra reglna stjórnsýsluréttar, eins og þær horfðu við rannsókn mála og töku ákvarðana um refsikennd viðurlög á grundvelli þeirra heimilda sem stjórnvöldum eru veittar með lögum.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 13. september 2016

E-2877/2016

aðalmeðferð 14. júní sl. Stefnandi er P153 ehf., Öldugötu 4, Reykjavík. Stefndu eru Seðlabanki Íslands, Kalkofnsvegi 1, Reykjavík og fjármála- og efnahagsráðherra fyrir hönd íslenska ríkisins, Arnarhváli, Reykjavík gegn stefnda, Seðlabanka Íslands, gerir stefnandi aðallega þá kröfu að ógilt verði sú ákvörðun hans 19. ágúst, 2016 að leggja á stefnanda stjórnvaldssekt að fjárhæð 24.200.000 krónur, en til, vara, að ákvörðuninni verði breytt á þann veg að fjárhæð sektarinnar verði, lækkuð stórkostlega. Gegn stefnda íslenska ríkinu gerir stefnandi þá kröfu að, honum verði gert að greiða stefnanda 25.270.178 krónur auk dráttarvaxta og samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá 23

Stjórnvaldssekt sem Seðlabanki Íslands lagði á einkahlutafélagið P vegna brota á lögum nr. 87/1992 um gjaldeyrismál, með síðari breytingum, var felld niður.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 13. september 2016

E-2876/2016

aðalmeðferð 14. júní sl. Stefnandi er Rask ehf., Lágmúla 7, Reykjavík. Stefndu eru Seðlabanki Íslands, Kalkofnsvegi 1, Reykjavík og fjármála- og efnahagsráðherra fyrir hönd íslenska ríkisins, Arnarhváli, Reykjavík gegn stefnda, Seðlabanka Íslands, gerir stefnandi aðallega þá kröfu að ógilt verði sú ákvörðun hans 19. ágúst, 2016 að leggja á stefnanda 75 milljóna króna stjórnvaldssekt, en til vara, að, ákvörðuninni verði breytt á þann veg að fjárhæð sektarinnar verði lækkuð, stórkostlega. Gegn stefnda íslenska ríkinu gerir stefnandi þá kröfu að honum og verði gert að greiða stefnanda 78.160.034 krónur auk dráttarvaxta samkvæmt 1

Stjórnvaldssekt sem Seðlabanki Íslands lagði á einkahlutafélagið R vegna brota á lögum nr. 87/1992 um gjaldeyrismál, með síðari breytingum, var felld niður.

Hæstiréttur birt 4. apríl 2014

206/2014

Ákæruvaldið (Arnþrúður Þórarinsdóttir saksóknari) gegn X (Grímur Sigurðsson hrl), Y (Reimar Snæfells Pétursson hrl), Z (Karl Axelsson hrl) og Þ (Arnar Þór Stefánsson hrl)

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem ákæru á hendur X, Y, Z og Þ var vísað frá dómi. Með dómi Hæstaréttar var hinn kærði úrskurður felldur úr gildi og lagt fyrir héraðsdóm að taka málið til efnismeðferðar. Talið var að ákæran uppfyllti skilyrði c. liðar 1. mgr. 152. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Verknaðarlýsing hennar væri fullnægjandi enda yrði ekki gerð sú krafa að lýst væri sérstaklega samkynja eða eðlislíkum brotum í framhaldandi röð þegar um væri að ræða framhaldsbrot. Yrði heldur ekki að lýsa sérstaklega þætti hvers varnaraðila þegar byggt væri á því að þeir hefðu haft með sér samverknað.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 20. nóvember 2013

K-4/2013

Applicon ehf (Hjördís Halldórsdóttir hrl) gegn embætti sérstaks saksóknara (Finnur Þór Vilhjálmsson hdl)

Sóknaraðili bar undir héraðsdóm synjun sýslumanns á því að leggja lögbann við því að varnaraðili notaði tilgreind viðskiptamannakerfi sóknaraðila og að varnaraðila yrði gert að eyða þeim afritum kerfanna sem hann hefði undir höndum, þ. á m. frumkóða þeirra. Sóknaraðili krafðist þess að ákvörðunin yrði felld úr gildi og að lagt yrði fyrir sýslumann að leggja á lögbann samkvæmt framansögðu. Málið var flutt í einu lagi um kröfu varnaraðila um frávísun og um efniskröfur aðila. Frávísun málsins var hafnað. Dómurinn taldi að notkun varnaraðila á umræddum hugbúnaði væri hluti af lögreglurannsókn og bryti ekki gegn höfundarétti sóknaraðila og að ekki hefði verið gengi lengra með notkun hugbúnaðarins en nauðsyn krefði. Þá var talið ósannað að starfsmenn Seðlabanka Íslands hefðu ,,hakkað" sig inn í hugbúnaðinn. Var kröfum sóknaraðila því hafnað og ákvörðun sýslumanns staðfest.

Hæstiréttur birt 8. október 2013

408/2013

Ákæruvaldið (Arnþrúður Þórarinsdóttir saksóknari) gegn X (Grímur Sigurðsson hrl), Y (Reimar Snæfells Pétursson hrl), Z (Karl Axelsson hrl) og Þ (Arnar Þór Stefánsson hrl)

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar ákæruvaldinu var í sakamáli á hendur X o.fl. heimilað að leggja fram hluta skjalaskrár og leiða A fyrir dóm sem vitni. Skjölin sem um var að ræða voru tilkynning Seðlabanka Íslands til Fjármálaeftirlitsins, svar bankans við beiðni ákæruvaldsins, afrit af tölvupóstsamskiptum X o.fl. við A og skýrsla hennar hjá lögreglu. Í málinu reyndi á hvort ákæruvaldinu væri óheimilt að leggja fram fyrrgreind skjöl á grundvelli 4. mgr. 134. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, sbr. 2. mgr. 119. gr. sömu laga. Í dómi Hæstaréttar var talið að líta yrði svo á að undir b. lið síðastgreindrar málsgreinar gætu fallið einka-, fjárhags- og viðskiptamálefni einstaklinga jafnt sem lögpersóna, að því tilskyldu að þeim sérfræðingum sem heyrðu undir ákvæðið hefði verið trúað fyrir slíkum upplýsingum í starfi þeirra. Af síðastefndu leiddi að ákvæðið ætti ekki við væri manni trúað fyrir upplýsingum utan starfs hans sem sérfræðings, til dæmis af vini eða vandamanni. Þá var í dómi réttarins meðal annars vísað til þess að við skýringu ákvæðisins, sem fæli í sér undantekningu frá vitnaskyldu, yrði að líta til þess að því sé ætlað að vernda trúnaðarsamband sérfræðings og skjólstæðings sem til hans leitar þannig að skjólstæðingurinn geti almennt treyst því að upplýsingar, sem hann láti sérfræðingnum í té um einkamálefni sín, verði ekki síðar notaðar gegn honum í sakamáli án hans vilja. Talið var að tilkynning Seðlabanka Íslands til Fjármálaeftirlitsins og svar bankans við beiðni ákæruvaldsins fælu ekki í sér trúnaðarupplýsingar í merkingu b. liðar 2. mgr. 119. gr. laga nr. 88/2008. Þá yrði ekki talið að X o.fl. hefðu leitað ráðgjafar hjá A sem lögmanni, heldur sem lögfræðingi með sérþekkingu á reglum um gjaldeyrisviðskipti. Litið var svo á að tölvupóstsamskipti X o.fl. við A og skýrsla hennar hjá lögreglu heyrðu undir undanþágu frá vitnaskyldu með vísan til eðlis og umfangs þeirrar ráðgjafar er A hefði veitt X o.fl., enda hefðu þeir eins og atvikum málsins var háttað mátt líta svo á með réttu að viðlíka trúnaðarskylda fylgdi samskiptum þeirra við A og um væri að ræða samskipti við lögmann, þannig að þeir gætu almennt treyst því að upplýsingarnar sem þeir trúðu A fyrir yrðu ekki síðar notaðar gegn þeim í sakamáli án vilja þeirra. Ekki yrði séð að tölvupóstsamskipti X o.fl. við A og skýrsla hennar hjá lögreglu gætu skipt sköpum um niðurstöðu málsins og því var ákæruvaldinu synjað um að leggja fram þau skjöl. Loks var talið að A yrði ekki leidd sem vitni án leyfis X o.fl. sökum fyrirmæla b. liðar 2. mgr. 119. gr. laga nr. 88/2008.