Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
7 dómar fundust
Lagagrein: 48. gr. laga nr. 81/2003 — Lög um fjarskipti
Með úrskurði kærunefndar jafnréttismála var komist að þeirri niðurstöðu að B hefði brotið á rétti A samkvæmt 1. mgr. 26. gr. þágildandi laga nr. 10/2008 um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla með því að ráða tiltekna konu í starf í stað A. Í féllst á að skilyrði bótaréttar A væru fyrir hendi og snerist deila aðila því eingöngu um fjárhæð bóta og vexti. Með dómi Landsréttar var staðfest niðurstaða héraðsdóms um greiðslu bóta að álitum 5.000.000 króna vegna fjártjóns og 700.000 króna miskabóta, auk vaxta.
Lögmaður dæmdur til að greiða manni miskabætur vegna þeirrar háttsemi fulltrúa lögmannsins að hljóðrita símtal við hann án þess að tilkynna honum um það í upphafi símtalsins að það yrði hljóðritað. Lögmaðurinn var sýknaður af kröfu mannsins um skaðabætur vegna tjóns, sem hann kvaðst hafa orðið fyrir, vegna kostnaðar við lögmannsaðstoð við rekstur mála fyrir Fjarskiptastofu og úrskurðarnefnd lögmanna.
Maður sakfelldur fyrir nauðgun, brot gegn blygðunarsemi og brot í nánu sambandi og dæmdur til skilorðs- og óskilorðsbundinnar refsingar og greiðslu bóta o.fl.
Ákæruvaldið (
Sigurður Pétur Ólafsson fulltrúi)
gegn
Vilhjálmi Einari Georgssyni (
Brynjólfur Eyvindsson hdl)
Ákærði dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir hótanir.
Sýknað af kröfum sjómanns um vangreidd vinnulaun og endurgreiðslu útlagðs kostnaðar sem allar voru taldar fyrndar.
Stefnandi krafði stefnda um endurgeiðslu útlagðs kostnaðar vegna viðskipta með bifreið á þeim grunni að stefndi bæri ábyrgð á kostnaði vegna skráningar bifreiðarinnar og afborgana af bílaláni áhvílandi á bifreiðinni þar sem skráning hennar á nafn stefnanda og bílalán á hans nafni hefðu verið málamyndagerningar. Stefndi var sýknaður af kröfum stefnanda
Í málinu var deilt um hvort innborgun stefnanda inn á reikning annars stefnda hefði verið persónulegt lán sem báðum stefndu hafi borið að greiða til baka. Stefndu sýknuð af kröfum stefnanda.