S ehf. og dótturfélag þess sameinuðust á reikningsárinu 2012 undir nafni og kennitölu S ehf. Við sameininguna færði S ehf. yfirfæranlegt tap dótturfélagsins frá reikningsárunum 2008 og 2009 til frádráttar tekjum í skattframtölum sínum árin 2013 og 2014 og nýtti hið sameinaða félag rekstartapið í skattskilum sínum. Í ágúst 2015 kynnti ríkisskattstjóri S ehf. fyrirhugaða endurákvörðun opinberra gjalda S ehf. árin 2013 og 2014. Með úrskurði í febrúar 2016 felldi ríkisskattstjóri niður ónotað rekstrartap dótturfélagsins frá árunum 2008 og 2009 í skattframtölum S ehf. árin 2013 og 2014 og beitti jafnframt álagi á vanframtalda tekjustofna. Yfirskattanefnd staðfesti þann úrskurð með úrskurði í febrúar 2017 en taldi að fella bæri álagið niður. Í kjölfarið höfðaði S ehf. mál þetta og krafðist þess að úrskurðirnir yrðu felldir úr gildi. Þá var einnig krafist endurgreiðslu þess sem félagið hefði innt af hendi til samræmis við úrskurð yfirskattanefndar. Héraðsdómur féllst á þær kröfur. Í dómi Landsréttar var rakið að ákvæði 54. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt fæli í sér sérreglu gagnvart 51. gr. sömu laga en það hefði að geyma viðbótarskilyrði fyrir því að rekstrartap flyttist við samruna til þess félags sem tæki við. Samkvæmt ákvæðinu þyrftu félögin að hafa með höndum skyldan rekstur og eða starfsemi. Þá flyttist tap ekki milli félaga við sameiningu þegar það félag sem slitið væri ætti fyrir slitin óverulegar eignir eða hefði engan rekstur með höndum. Jafnframt yrði sameining félaga að vera gerð í venjulegum og eðlilegum rekstrartilgangi og hið yfirfærða tap að hafa myndast í sams konar rekstri og það félag sem við tæki hefði haft með höndum. Í ákvæðinu fælist þannig takmörkun á þeirri meginreglu um heimild til frádráttar frá tekjum við samruna sem mælt væri fyrir um í 1. mgr. 51. gr. laganna. Í málinu væri ekki um það deilt að við þann samruna sem til umfjöllunar væri hefði verið uppfyllt það skilyrði að félögin tvö hefðu haft með höndum skyldan rekstur eða starfsemi og að tap yfirtekna félagsins hefði myndast í sams konar rekstri og yfirtökufélagið hefði stundað. Þótt játa yrði hluthöfum töluvert frelsi til að haga skipulagningu hlutafélaga með þeim hætti sem þeir kysu hverju sinni hvíldi á S ehf. að sýna fram á að venjulegur og eðlilegur rekstrartilgangur hafi legið að baki samrunanum. Þegar litið væri til þeirra skýringa sem S ehf. hefur gefið á samrunanum og takmarkaðra umsvifa dótturfélagsins yrði ekki talið að S ehf. hefði tekist það. Þvert á móti væri nærtækast að líta svo á, að öllum atvikum virtum, að tilgangur sameiningarinnar hefði í reynd verið sá að nýta uppsafnað rekstrartap hins yfirtekna félags. Var Í því sýknað af kröfum S ehf.
Stefnandi krafðist þess að úrskurður yfirskattanefndar frá 2017 og úrskurður ríkisskattstjóra frá febrúar 2016, um endurákvörðun opinberra gjalda stefnanda gjaldárin 2013 og 2014, yrði felldir úr gildi og stefnda gert að endurgreiða stefnanda oftekna skatta og gjöld ásamt vöxtum. Fallist var á kröfu stefnanda.
Íslenska ríkið sýknað af kröfu stefnanda um ógildingu á úrskurði yfirskattanefndar að hluta.
B, sem hafði haft endurgjaldslaus afnot af bifreið í eigu vinnuveitanda síns, krafðist þess að úrskurður skattstjóra um endurákvörðun á opinberum gjöldum hennar vegna hækkunar á bifreiðahlunnindum tiltekin gjaldár yrði felldur úr gildi og að skattframtöl hennar yrðu lögð til grundvallar álagningu opinberra gjalda. B byggði meðal annars á því að afnot hennar af bifreiðinni hefðu verið takmörkuð og að ríkisskattstjóri hefði ekki haft heimild til að gefa út viðmiðunarreglur um skattmat hlunninda. Í héraðsdómi, sem var staðfestur með vísan til forsendna hans, var tekið fram að af hálfu vinnuveitanda B hefðu ekki verið lagðar fram upplýsingar um hvort afnot hennar af bifreiðinni hefðu verið takmörkuð eða ekki. Þá lægju ekki fyrir haldbærar upplýsingar um hver afnot B af bifreiðinni hefðu í raun verið og hver hefðu verið afnot eigandans. Að því virtu var talið að skattstjóra hefði verið heimilt að leggja til grundvallar endurálagningu að afnot B af bifreiðinni hefðu verið án takmarkana. Með vísan til niðurstöðu Hæstaréttar í máli nr. 356/1999 um heimild ríkisskattstjóra til að setja reglur um mat á endurgjaldi bifreiðahlunninda var talið að skattstjóra hefði verið heimilt að miða endurálagningu við reglurnar. Var kröfu B því hafnað.
Ekki var fallist á að umboðslaun sem vátryggingamiðlari fékk greidd frá vátryggingafélagi vegna starfa sinna væru óvissar tekjur í skilningi skattalaga, enda þótt fyrir lægi að hann kynni að þurfa endurgreiða félaginu móttekin laun að hluta eða í heild við þær aðstæður að vátryggingartaki segði síðar upp samningi.
Í ársbyrjun 1993 var ákveðið á hluthafafundi S hf. að hækka og síðan lækka aftur hlutafé í félaginu. Í kjölfarið ákvað stjórn félagsins að lækkunarfjárhæðin yrði greidd hluthöfum, sem allir tengdust fjölskylduböndum, með útgáfu skuldabréfa, sem voru vaxta- og afborgunarlaus til 12 ára. S hf. gjaldfærði síðan árleg afföll af skuldabréfunum í rekstrarreikningum félagsins auk þess sem þau voru skuldfærð í ársreikningum félagsins. Með úrskurði skattstjórans í Reykjavík 18. desember 2001 voru gjaldfærslur affallanna felldar niður gjaldaárin 1996 til 2000 og tekjuskattstofnar félagsins hækkaðir í samræmi við það auk þess sem bætt var við 25% álagi á hækkunina. Niðurstaða skattstjórans var staðfest með úrskurði yfirskattanefndar 24. september 2003 og krafðist S hf. ógildingar á þeim úrskurði. Á það var fallist með Í að skattskil S hf. hefðu verið þannig úr garði gerð að þau tímamörk, sem fram koma í 1. mgr. 97. gr. laga nr. 75/1981 um tekju og eignarskatt, hefðu átt við. Þá var talið að hnökri á málsmeðferð skattstjóra, sem fólst í því að kveða upp tvo úrskurði vegna gjaldársins 1996, hafi ekki átt að leiða til ógildingar á úrskurðinum. Önnur atriði, sem S hf. taldi fela í sér annmarka á meðferð málsins á stjórnsýslustigi, voru einnig talin haldlaus. Á það var fallist með Í að afföll af skuldabréfunum hefðu ekki getað talist til kostnaðar við að afla eða ávaxta fé í rekstri félagsins, sbr. 1. tölul. 1. mgr. 31. gr. laga nr. 75/1981, heldur hafi verið um að ræða útgjöld, sem leiddu af því að losa fé til hluthafanna. Afföllin hefðu því fallið utan við heimild ákvæðisins til að draga kostnað frá tekjum af rekstri. Þá var talið að sú ráðstöfun að greiða lækkun hlutafjárins með þeim hætti sem gert var hefði verið verulega frábrugðin því sem almennt gerðist í slíkum skiptum og ekki væri ástæða til að ætla að til þeirra hefði komið milli óskyldra aðila. Yrði að telja ljóst að tilgangurinn með þeirri ráðstöfun hafi fyrst og fremst verið skattalegur ávinningur. Því var talið að skattstjóra hefði verið heimilt að skerast í leikinn á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 75/1981 og lækka gjaldfærðan rekstrarkostnað félagsins á þann hátt sem hann gerði. Þá var hafnað kröfum S hf. um niðurfellingu álags. Var Í því sýknað af kröfum S hf.
G ehf. færði til gjalda um það bil 15 milljónir króna í rekstrarreikningum sínum árin 1994 og 1995 vegna kaupa á lögfræðiþjónustu af H ehf., sem lögmennirnir G og J veittu viðskiptavinum G ehf. en þáðu greiðslur fyrir frá H ehf. Á þeim tíma, sem málið varðaði, var G eigandi að 99% hlut í báðum félögunum. Athugun skattstjóra á bókhaldsgögnum H ehf. leiddi í ljós að kostnaður félagsins vegna þjónustu, sem það keypti af G, og launa og launatengdra gjalda, sem það greiddi vegna hans og J, nam samtals 185.000 krónum árið 1994 og 3.799.148 krónum árið 1995. Fyrir álagningu opinberra gjalda gjaldárið 1995 námu eftirstöðvar ónotaðs rekstrartaps H ehf. frá fyrri árum tæplega 19 milljónum króna. Kom því ekki til álagningar tekjuskatts á félagið á árunum 1995 og 1996 vegna tekna þess af þeirri þjónustu, sem var seld G ehf. Í dómi Hæstaréttar segir að eins og atvikum sé háttað verði að ganga út frá því, líkt og gert hafi verið af hálfu skattyfirvalda, að viðskipti félaganna hafi fyrst og fremst komið til vegna þeirra hagsmuna, sem aðaleigandi þeirra hafði af því hjá hvoru félaginu tekjur G ehf. af seldri þjónustu kæmu til skattlagningar. Þá yrði að teljast ljóst að ákvörðun um að greiða þeim G og J fyrir þjónustu, sem var veitt viðskiptavinum G ehf., af reikningi H ehf., hafi fyrst og fremst haft það markmið að mynda viðskipti á milli félaganna með það fyrir augum að nýta rekstrartap H ehf. á móti tekjum G ehf., enda muni viðskiptunum að mestu hafa lokið þegar ónotaða rekstrartapið var upp urið. Séu ekki efni til að draga í efa að áðurnefnd stjórnunar- og eignatengsl milli félaganna hafi þar ráðið úrslitum. Í ljósi alls þessa hafi skipti félaganna verið verulega frábrugðin því, sem almennt gerist í slíkum viðskiptum, og engin ástæða til að ætla að til þeirra hefði komið milli óskyldra aðila. Hafi skattstjóra því verið rétt að lækka gjaldfærðan rekstrarkostnað G ehf. um þær fjárhæðir, sem voru mismunur á því gjaldi, sem félagið innti af hendi til H ehf., og þeim greiðslum, sem runnu frá síðarnefnda félaginu til G og J, sbr. þá meginreglu, sem búi að baki 1. mgr. 58. gr. laga nr. 75/1981.
A fluttist til Bretlands vorið 1996 en kom aftur til Íslands vorið 1999. Með úrskurði ríkisskattstjóra var felld niður full og ótakmörkuð skattskylda hennar hér á landi frá og með 1. júní 1996. A höfðaði mál til ógildingar á úrskurði ríkisskattstjóra um skattalegt heimilisfesti. Héraðsdómur komst að þeirri niðurstöðu að úrskurðurinn hefði verið lögmætur og var kröfum A hafnað. Fyrir Hæstarétti tefldi A fram nýjum málsástæðum, sem gegn mótmælum Í var ekki tekið tillit til. Að öðru leyti var héraðsdómur staðfestur.
Í úrskurði ríkisskattstjóra 20. mars 1997 var talið að skattskyld velta V árið 1990 hefði verið vantalin um fjárhæðir tiltekinna sölureikninga sem allir höfðu verið útgefnir 1. janúar 1991 vegna vinnu sem unnin hafði verið í desember 1990. Var V gert að greiða viðbótarvirðisaukaskatt auk álags af þessum sökum. Úrskurður ríkisskattstjóra var staðfestur af yfirskattanefnd. V krafðist ógildingar úrskurðar yfirskattanefndar og taldi að miða ætti við útgáfudag reiknings við uppgjör skattskyldrar veltu, sbr. 1. mgr. 13. gr. laga nr. 50/1987 um virðisaukaskatt. Í héraðsdómi var talið, að V hefði samkvæmt 3. gr. reglugerðar nr. 501/1989 um bókhald og tekjuskráningu virðisaukaskattsskyldra aðila borið að gefa út reikninga sína í lok þess mánaðar sem vinnan var innt af hendi. Þótt á það væri fallist, að reynst gæti óhæg skylda að gefa út reikning við sérhverja afhendingu eða í lok mánaðar þætti það eitt ekki veita nægjanlega stoð til að víkja frá skýrum ákvæðum settra laga og stjórnvaldsfyrirmæla. Var kröfu V um ógildingu úrskurðarins hafnað. Fyrir Hæstarétti krafðist V aðallega ómerkingar héraðsdóms, þar sem þörf hefði verið sérfróðra meðdómenda í héraði með þekkingu á venjum um útgáfu reikninga þjónustufyrirtækja. Talið var, að ágreiningsefni málsins lyti að túlkun á lögum nr. 50/1988 og þágildandi reglugerð nr. 501/1989. Eins og hér háttaði til hefðu staðhæfingar um venju og framkvæmd orðið að koma fram sem hluti málflutnings aðila og hefði héraðsdómari verið bær til þess að leysa úr málinu. Væru því ekki efni til þess að verða við ómerkingarkröfu V. Með skírskotun til forsendna héraðsdóms var hann staðfestur.
Kærumáli um fjárnám var vísað frá Hæstarétti þar sem ekki var fullnægt skilyrði um áfrýjunarfjárhæð í 1. mgr. 152. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála, sbr. 6. gr. laga nr. 38/1994.
Skattstjóri féllst ekki á sjálfstæða skattskyldu félagsins B, sem skilað hafði skattframtali í fyrsta sinn á árinu 1988. B mótmælti ákvörðuninni og í desember 1994 féllst skattstjórinn á sjálfstæða skattaðild B og lagði skattframtal félagsins 1988 til grundvallar álagningu opinberra gjalda fyrir það ár. B kærði endurákvörðunina til yfirskattanefndar, sem taldi að skattstjóra hefði verið endurákvörðunin heimil. B skilaði skattframtölum fyrir árin 1989-1994, en ekki voru lögð opinber gjöld á félagið samkvæmt framtölunum fyrr en í desember 1994. B kærði ákvörðunina varðandi árin 1989-1992 til yfirskattanefndar, sem taldi að skattstjóra hefði verið endurákvörðunin heimil. Talið var að B hefði ekki getað vænst annars en að gjöld yrðu lögð á félagið vegna framtals 1988 að fenginni niðurstöðu kærumeðferðar um skattaðild sína. Var kröfu B um endurgreiðslu hafnað að þessu leyti, svo og kröfu um að felldur yrði úr gildi úrskurður yfirskattanefndar varðandi árið 1988. Hins vegar var talið að ágreiningur um skattaðild B hefði á engan hátt hindrað skattstjóra í að leggja gjöld á B fyrir árin 1989-1992. Var því talið að skattstjóri hefði aðeins haft tveggja ára frest til að endurákvarða skatta B, sbr. 2. mgr. 97. gr. laga 75/1981 og var heimild hans til endurákvörðunar gjalda vegna áranna 1989-1992 því talin fallin niður í desember 1994. Var staðfest niðurstaða héraðsdóms um skyldu ríkisins til endurgreiðslu álagðra gjalda fyrir árin 1989-1992 og úrskurður yfirskattanefndar varðandi þau ár felldur úr gildi.
Hluthafar í hlutafélaginu F keyptu í árslok 1990 öll hlutabréf í hlutafélaginu H á nafnverði. Hlutafélagið H var síðan strax sameinað hlutafélaginu F og fengu hlutafarnir aukið hlutafé fyrir. Tveimur dögum síðar voru allar eignir og skuldir sem tilheyrt höfðu H seldar nýju félagi, Þ, en eigendur þess voru að mestu leyti þeir sömu og áður höfðu átt H. Var tilgangur þessara eignayfirfærslna sá einn, að nýta yfirfæranlegt tap H á móti rekstrarhagnaði F við álagningu tekjuskatts. Var tilgangi þessum m.a. lýst í kaupsamningi sem fylgdi skattframtali F vegna rekstrarársins 1990. F nýtti tapið vegna álagningar árin 1991, 1992 og 1993 en árið 1994 lagði skattstjóri tekjuskatt vegna þessara ára að nýju á F og taldi að óheimilt hefði verið að nýta tapið þar sem ekki hefði verið um að ræða algjöran samruna í skilningi skattaréttar. Féllst yfirskattanefnd á hina breyttu álagningu í úrskurði. F stefndi ríkinu til að fá álagningu þessari hnekkt. Taldi hann álagninguna vera efnislega ranga auk þess sem tveggja ára frestur skattstjóra til að endurskoða fyrri álagningu sína hefði verðið liðinn. Talið var að ekki hefði verið um algjöran samruna að ræða. Þá var talið að í framtali ársins 1991 og fylgigögnum þess hefði ekki verið að finna fullnægjandi upplýsingar til að byggja á rétta álagningu skattsins. Hefði skattstjóri því haft sex ára frest til að endurskoða álagningu sína. Var ríkið því sýknað af kröfum F.
H og Þ stofnuðu sameignarfélagið P sem tilkynnt var til firmaskrár. Var svo um samið að félagið skyldi vera eigandi alls hlutafjár H og Þ í tilteknum hlutafélögum og rekið sem sjálfstæður skattaðili. P taldi svo fram sem sjálfstæður skattaðili árin 1992 til 1996. Skattstjóri ákvað árið 1996 að endurákvarða opinber gjöld P þannig að þau féllu niður en þess í stað skattleggja eignir og tekjur P með eignum og tekjum H of Þ. Auk þessa lagði skattstjóri álag á skattstofna H og Þ við álagningu opinberra gjalda vegna framangreinds tímabils. Talið var að P uppfyllti að formi til skilyrði þess að teljast sjálfstæður skattaðili samkvæmt 3. tl. 1. mgr. 3. gr. laga nr. 75/1981 um tekju- og eignarskatt. Skilyrði fyrir sjálfstæðri skattskyldu sameignarfélags væri hins vegar að félag hefði atvinnurekstur með höndum en því væri ekki til að dreifa um P. Var því hafnað kröfu P, H og Þ um ógildingu ákvarðana skattstjóra. Þá var talið að framtöl P, H og Þ hefðu verið með þeim hætti að heimilt hefði verið að endurákvarða opinber gjöld þeirra og leggja álag á skattstofna H og Þ.