Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

39 dómar fundust

Lög: Lög um Póst- og fjarskiptastofnun nr. 69/2003

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 28. október 2024

E-1846/2021

Sýn hf (Reimar Snæfells Pétursson lögmaður) gegn Fjarskiptastofu (Unnur Lilja Hermannsdóttir lögmaður), Símanum hf (Hallmundur Albertsson lögmaður), Mílu hf (Stefán A. Svensson lögmaður), Nova hf (Heimir Örn Herbertsson lögmaður), Ljósleiðaranum ehf (Hlynur Halldórsson lögmaður) og Fjarskiptastofa (Reimar Snæfells Pétursson lögmaður)

Fallist var á kröfu stefnenda um að fella úr gildi úrskurð úrskurðarnefndar fjarskipta- og póstmála frá 6. nóvember 2020 í máli nr. 7/2019, sem felldi ákvörðun stefnanda, nú Fjarskiptastofu nr. 27/2019, úr gildi. Var fallist á málsástæður stefnenda, sem einnig voru studdar af tveimur stefndu í málinu, í þá veru að ekki hafi verið forsvaranlegt að fella téða ákvörðun Fjarskiptastofu úr gildi þar sem að annmarkar þeir sem úrskurðarnefndin leit til hvað varðar rannsókn málsins og rökstuðning hafi sýnilega ekki talist vera þess eðlis að hafa haft áhrif á niðurstöðu í téðri ákvörðun Fjarskiptastofu sem byggði á heildarmati auk þess sem ekki hafi sýnilega verið farið á svig við leiðbeiningarskyldu við málsmeðferð stofnunarinnar. Þá hafi Fjarskiptastofa lýst því yfir að fallið yrði frá stjórnvaldssekt á hendur stefnda Símanum í ljósi fyrri dómsúrlausnar sem hefði þýðingu hvað það varðaði.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 1. febrúar 2024

E-3251/2018

Síminn hf (Hallmundur Albertsson lögmaður) gegn Fjarskiptastofu (Unnur Lilja Hermannsdóttir lögmaður), Sýn hf. (Reimar Snæfells Pétursson lögmaður), Ljósleiðaranum ehf. (Hlynur Halldórsson lögmaður) og Mílu hf. (Stefán A. Svensson lögmaður)

Hafnað var aðalkröfu Símans hf. um ógildingu á ákvörðun Fjarskiptastofu frá 3. júlí 2018 í máli nr. 10/2018, þar sem stefnandi, Síminn hf., var talinn hafa brotið gegn 5. mgr. 45. gr. fjölmiðlalaga nr. 38/2011. Var hins vegar fallist á varakröfu stefnanda Símans hf. um ógildingu eins töluliðar í umræddri ákvörðun er varðaði sekt vegna umrædds brots þar sem ekki þótti sýnt fram á að umrætt sektarákvæði í fjölmiðlalögum tæki ótvírætt til þeirrar háttsemi sem Síminn hf. taldist hafa viðhaft.

Landsréttur birt 15. desember 2023

726/2023

Sýn hf (Reimar Snæfells Pétursson lögmaður) og Ljósleiðarinn ehf (Hlynur Halldórsson lögmaður) gegn Símanum hf (Andri Andrason lögmaður)

S hf. höfðaði mál þetta gegn F, SÍ hf., M ehf., N hf. og L ehf. til ógildingar á úrskurði úrskurðarnefndar fjarskipta- og póstmála nr. 7/2019. F höfðaði annað mál gegn öllum fyrrgreindum aðilum og krafðist einnig ógildingar umrædds úrskurðar en það mál var sameinað þessu. Rekið var annað mál milli sömu aðila að N hf. undanskildu vegna ákvörðunar Fjarskiptastofu nr. 10/2018. Undir meðferð málsins óskaði SÍ hf. eftir því að dómkvaddur yrði matsmaður til að leggja mat á nánar tilgreind atriði. Féllst héraðsdómur á dómkvaðninguna. Í úrskurði Landsréttar kom fram að spurningar þær sem SÍ hf. óskaði eftir að lagðar yrðu fyrir matsmenn miðuðu allar við tímamark áður en atvik máls þessa gerðust. Virtust spurningarnar þannig varða tímamark og atvik sem fjallað væri um í máli vegna ákvörðunar Fjarskiptastofu nr. 10/2018. Ljóst væri af forsendum úrskurðar úrskurðarnefndar fjarskipta- og póstmála nr. 7/2019, sem mál þetta varðaði, að ákvörðun Fjarskiptastofu nr. 10/2018 væri ekki til endurskoðunar og efnisatriði hennar væru ólík. SÍ hf. hefði að þessu gættu ekki gert grein fyrir því hvernig matsgerðin myndi nýtast til sönnunar í þessu máli. Landsréttur taldi því að matsgerð sú sem SÍ hf. hygðist afla væri bersýnilega tilgangslaus við úrlausn þess ágreinings sem uppi væri í málinu, sbr. 3. mgr. 46. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Var beiðni SÍ hf. um dómkvaðningu matsmanna hafnað.

Landsréttur birt 12. maí 2023

73/2022

Yellow Mobile B.V (Jón Bjarni Kristjánsson lögmaður) gegn Fjarskiptastofu (Unnur Lilja Hermannsdóttir lögmaður)

Fjarskiptafyrirtækið Y höfðaði mál gegn F og krafðist ógildingar á úrskurði Ú þar sem staðfest var ákvörðun F um afturköllun á tíðniheimild sem Y hafði fengi úthlutað 2017 í kjölfar uppboðs á slíkum heimildum. Þá krafðist Y einnig viðurkenningar á bótaskyldu F vegna ætlaðs ólögmætis fyrrgreindrar ákvörðunar. Í dómi héraðsdóms, sem staðfestur var með vísan til forsendna, var rakið að með skírskotun til atvika og gagna málsins yrði ekki fallist á að rannsókn þess hafi verið ábótavant, að F hafi ekki gætt leiðbeiningarskyldu eða að afturköllunin hafi farið í bága við meðalhófs- eða jafnræðisreglu stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Afturköllun á tíðniheimild til Y hafi verið lögmæt og var F því sýknað af öllum kröfum Y.

Landsréttur birt 14. október 2022

250/2022

Míla ehf (Stefán A. Svensson lögmaður) gegn Fjarskiptastofu (Jóhannes Karl Sveinsson lögmaður, Unnur Lilja Hermannsdóttir lögmaður, 3. prófmál)

Með ákvörðun 29. desember 2017 útnefndi forveri F M ehf. sem alþjónustuveitanda og lagði á hann alþjónustukvöð í samræmi við nánar greind „ákvörðunarorð“. Í ákvörðunarorðunum kom meðal annars fram að útnefningin gilti til og með 31. desember 2020 en heimilt væri að framlengja útnefningartímabilið til 31. desember 2022 með tilkynningu F til M ehf. þar að lútandi. Í tilkynningu F til M ehf. 31. ágúst 2020 kom fram að F hefði ákveðið að framlengja gildistíma þeirra alþjónustukvaða sem hvíldu á M ehf. til 31. desember 2022. M ehf. kærði umrædda ákvörðun 31. ágúst 2020 til úrskurðarnefndar fjarskipta- og póstmála sem vísaði kærunni frá með úrskurði. Byggði niðurstaða úrskurðarnefndarinnar á því að í ákvörðun F 31. ágúst 2020 hefði ekki falist stjórnvaldsákvörðun heldur hefði framlenging alþjónustukvaðar sem hvíldi á M ehf. byggst á ákvörðun F 29. desember 2017. Ágreiningur aðila fyrir Landsrétti laut að því hvort framangreind ákvörðun 31. ágúst 2020 um að framlengja gildistíma alþjónustukvaða væri stjórnvaldsákvörðun í skilningi laga sem kæranleg hefði verið til úrskurðarnefndar fjarskipta- og póstmála. Í dómi Landsréttar kom fram að af efni tilkynningar F 31. ágúst 2020 væri ljóst að horft hefði verið til fleiri þátta en þess hvort áform um niðurlagningu PSTN kerfisins hefðu gengið eftir. Þannig hefði F lagt mat á hvort lagabreytingar, sem gerðu alþjónustu tæknilega hlutlausa, hefðu haft þýðingu fyrir þær alþjónustuskyldur sem hvíldu á M ehf, í hvaða mæli framfarir í háhraða farnetsþjónustu og ljósleiðaratenginga í strjálbýli væru komnar fram og hvort þær hefðu þýðingu fyrir þessar sömu alþjónustuskyldur. Á grundvelli þess mats hefði F tekið ákvörðun í málinu sem hafði þýðingu fyrir rétt og skyldur M ehf. og yrði henni þannig öldungis jafnað til nýrrar bindandi stjórnvaldsákvörðunar sem M ehf. hefði sérstaka, verulega og lögvarða hagsmuni af að fá endurskoðaða. Sætti ákvörðunin því kæru til úrskurðarnefndar fjarskipta- og póstmála, sbr. 1. mgr. 13. gr. laga nr. 69/2003 um Póst- og fjarskiptastofnun. Samkvæmt því var úrskurður úrskurðarnefndar fjarskipta- og póstmála felldur úr gildi.

Landsréttur birt 24. júní 2022

438/2020

Sýn hf (Reimar Snæfells Pétursson lögmaður) gegn Símanum hf. (Andri Árnason lögmaður, Hallmundur Albertsson lögmaður, 1. prófmál), Fjarskiptastofu (Jóhannes Karl Sveinsson lögmaður) og Ljósleiðaranum ehf. (Hlynur Halldórsson lögmaður) og Mílu ehf. (Stefán A. Svensson lögmaður) og Síminn hf. gegn Fjarskiptastofu og Sýn hf. og Ljósleiðaranum ehf. og Mílu ehf. og Fjarskiptastofa gegn Símanum hf. og Sýn hf. og Ljósleiðaranum ehf. og Mílu ehf.

Með ákvörðun 3. júlí 2018 komst PF, forveri F, að þeirri niðurstöðu að SÍ hf. hefði brotið gegn 5. mgr. 45. gr. fjölmiðlalaga nr. 38/2011 og gerði SÍ hf. að greiða stjórnvaldssekt að fjárhæð 9 milljónir króna. SÍ hf. höfðaði mál á hendur F, SÝ hf., L ehf. og M ehf. til ógildingar á fyrrgreindri ákvörðun. Deildu aðilar um það hvort SÍ hf. hefði brotið gegn 5. mgr. 45. gr. fjölmiðlalaga með því að hafa ekki samið annars vegar við SÝ hf. og hins vegar stefnda L ehf. um flutning og dreifingu á ólínulegu myndefni. Í dómi Landsréttar kom fram að SÍ hf. hefði fullframið brot gegn 5. mgr. 45. gr. fjölmiðlalaga með því að hafa sem fjölmiðlaveita í skilningi 14. töluliðar 2. gr. laganna beint viðskiptum þeirra sem vildu kaupa af honum aðgang að efnisveitunni ,,Sjónvarp Símans Premium“ til tengds fjarskiptafyrirtækis, M ehf., enda hefði ekki verið unnt að kaupa efni úr efnisveitunni nema í gegnum fjarskiptanet SÍ hf. Brot SÍ hefði verið ótvírætt og enn staðið yfir þegar ákvörðun PF var tekin þar sem SÍ hefði þá ekki samið um sanngjarnan og eðlilegan aðgang að fjarskiptaneti L ehf. svo að fyrirtækið gæti miðlað efni úr efnisveitu SÍ hf. með sambærilegum hætti og á sambærilegum kjörum og stefndi M ehf. Féllst Landsréttur á niðurstöðu PF og taldi engin efni til að hrófla við mati F á fjárhæð stjórnvaldssektar sem lögð var á SÍ með hinni umdeildu ákvörðun. Voru F og SÝ hf. því sýknuð af kröfum SÍ.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 7. apríl 2022

E-4084/2021

Míla ehf (Stefán A. Svensson lögmaður) gegn Fjarskiptastofu (Unnur Lilja Hermannsdóttir lögmaður)

Stefnandi krafðist ógildingar á úrskurði úrskurðarnefndar fjarskipta- og póstmála þar sem kæru hans á framlengingu alþjónustukvaðar, sem átti sér stoð í ákvörðun frá árinu 2017, var vísað frá á þeim grundvelli að ekki hefði verið um kæranlega stjórnvaldsákvörðun að ræða. Dómurinn komst að sömu niðurstöðu og taldi ekki efni til þess að telja um stjórnvaldsákvörðun, eða kæranlega ákvörðun, að ræða. Var þá litið til þess að stefnandi hefði hvorki borið undir dómstóla né þar til bært stjórnvald ákvörðunina 2017 þegar efni hennar og raunveruleg þýðing lá fyrir, en þannig hefði réttaröryggi hans verið tryggt. Var stefndi því sýknaður.

Landsréttur birt 25. september 2020

285/2019

Síminn hf (Stefán A. Svensson lögmaður) gegn Samkeppniseftirlitinu (Sölvi Davíðsson lögmaður), Sýn hf. (Kristinn Hallgrímsson lögmaður, Dóra Sif Tynes lögmaður, 3. prófmál), Nova hf. (Heimir Örn Herbertsson lögmaður) og Sendafélaginu ehf. (Jóhanna Guðrún Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri)

Með ákvörðun Póst- og fjarskiptastofnunar árið 2014 var fallist á ósk SN og N um samnýtingu tiltekinna tíðniheimilda sem þeim hefði verið úthlutað af P. Samhliða beiðni SN og N til Póst- og fjarskiptastofnunarinnar sendu félögin erindi til S og óskuðu eftir því að þeim yrði veitt undanþága samkvæmt 15. gr. samkeppnislaga nr. 44/2005 vegna stofnunar nýs félags, sem síðar varð SF, í sameiginlegri og jafnri eigu beggja um rekstur dreifikerfis fyrir farsímaþjónustu. Með ákvörðun S var umbeðin undanþága veitt, gegn því að aðilar féllust á að hlíta tilteknum skilyrðum sem samstarfinu væru sett. SM kærði ákvörðun S til áfrýjunarnefndar samkeppnismála, sem staðfesti hana. Höfðaði SM þá mál og krafðist þess að úrskurður áfrýjunarnefndarinnar yrði felldur úr gildi. Byggði SM einkum á því að skilyrði c- og d-liða 1. mgr. 15. gr. samkeppnislaga fyrir veitingu undanþágu frá 10. gr. samkeppnislaga hefðu ekki verið uppfyllt, auk þess sem brotið hefði verið gegn ákvæðum stjórnsýslulaga. Í dómi Landsréttar voru ákvæði 10. og 15. gr. samkeppnislaga rakin og fjallað um þau sjónarmið sem lögð væru til grundvallar við mat á skilyrðum c- og d-liða 1. mgr. 15. gr. Hvað skilyrði c-liðar varðaði taldi Landsréttur að S hefði lagt mat á möguleg skaðleg samkeppnisleg áhif samnýtingar tíðniheimilda og komist að því að samnýtingin væri líkleg til að leiða til aukinnar hagkvæmni frá því sem verið hefði ef samstarfið hefði verið án samnýtingarinnar. Þá hefðu verið sett skilyrði fyrir samstarfinu, sem meðal annars væri ætlað að draga úr mögulegum samkeppnishamlandi áhrifum samstarfsins. Var því talið að mat S á því hvort samnýting tíðniheimilda væri nauðsynlegt skilyrði í skilningi c-liðar 1. mgr. 15. gr. samkeppnislaga hefði verið á málefnalegum rökum reist og að því mati hefði ekki verið hnekkt. Um skilyrði d-liðar sagði í dómi Landsréttar að ekki yrði annað ráðið af ákvörðun S en að ítarleg skoðun hafi farið fram á áhrifum umræddrar samnýtingar á samkeppni á viðkomandi mörkuðum og meðal annars verið sett víðtæk skilyrði fyrir samstarfinu sem hafi verið til þess fallin að hindra alvarleg samkeppnisleg áhrif samstarfsins. Hefði það mat einnig verið á málefnalegum rökum reist og því ekki verið hnekkt af SM. Þannig var ekki talið sýnt fram á að mat S á skilyrðum 1. mgr. 15. gr. samkeppnislaga væri nokkrum þeim annmörkum háð að valdið gæti ógildingu úrskurðarins. Þá var jafnframt hafnað málsástæðum SM um að brotið hafi verið gegn ákvæðum stjórnsýslulaga við meðferð málsins fyrir samkeppnisyfirvöldum. Voru stefndu því sýknaðir af kröfu SM.

Landsréttur birt 25. september 2020

284/2019

Síminn hf (Stefán A. Svensson lögmaður) gegn Póst- og fjarskiptastofnun (Jóhannes Karl Sveinsson lögmaður), Sýn hf. (Kristinn Hallgrímsson lögmaður, Dóra Sif Tynes lögmaður, 3. prófmál), Nova hf. (Heimir Örn Herbertsson lögmaður) og Sendafélaginu ehf. (Jóhanna Guðrún Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri) og Póst- og fjarskiptastofnun (Jóhannes Karl Sveinsson lögmaður) gegn Símanum hf. (Stefán A. Svensson lögmaður)

Með ákvörðun P árið 2014 var fallist á beiðni SN og N um samnýtingu tiltekinna tíðniheimila sem þeim hefði verið úthlutað af P. SM höfðaði mál og krafðist aðallega viðurkenningar á því að ákvörðunin væri ógild, en til vara að hún yrði ógilt með dómi. Ekki var fallist á að P hefði bundið eigin ákvörðun skilyrðum og að fyrir vikið væri hún markleysa eða lögleysa. Var aðalkröfu SM um viðurkenningu á ógildi ákvörðunarinnar því hafnað. Varakröfu sína um ógildingu ákvörðunarinnar reisti SM aðallega á því að sú samnýting SN og N á tíðniheimildum fyrir tilstilli SF, félags í eigu SN og N, sem heimiluð var með hinni umþrættu ákvörðun bryti gegn banni 2. mgr. 7. gr. fjarskiptalaga nr. 81/2003 við framsali tíðniheimilda. Þá byggði SM einnig á því að ákvörðunin væri til þess fallin að raska samkeppni og að ekki hefði verið tekin sjálfstæð afstaða til samkeppnislegra áhrifa af samnýtingu tíðniheimilda. Í dómi Landsréttar kom fram að þrátt fyrir samstarf SN og N í gegnum SF væru SN og N áfram rétthafar viðkomandi tíðniheimilda og bæru þau réttindi og skyldur sem af því leiddi. SF sæi aðeins um starfrækslu þess tækjabúnaðar sem sendi út tíðniheimildir SN og N, en hefði ekki forræði á nýtingarrétti tíðniheimildanna. SN og N hefðu þannig ekki framselt tíðniheimildir sínar til SF. Þá var talið að þótt framsalsbann 2. mgr. 7. gr. laga nr. 81/2003 yrði skilið sem svo að rétthafi tíðniheimilda gæti ekki, upp á sitt eindæmi, heimilað öðrum að nýta tíðniheimildir sem honum hefði verið úthlutað háttaði svo til í málinu að hvorki SN né N hefðu heimilað hvor öðrum að nýta tíðniheimildir hins, heldur hefði P heimilað samnýtingu þeirra með ákvörðun sinni. Taldi Landsréttur það hafa verið í samræmi við skyldur P og innan valdheimilda stofnunarinnar að heimila samnýtinguna. Þar sem ekki lá annað fyrir en að samnýtingunni hefði verið hagað í samræmi við þá skilmála og skilyrði sem henni voru sett væri ekki unnt að líta svo á að SN eða N hefðu með samnýtingunni framselt hvor öðrum tíðniheimildir í bága við 2. mgr. 7. gr. laga nr. 81/2003. Þá var því hafnað að ekki hefði verið gætt að samkeppnisréttarlegum sjónarmiðum eða að ákvörðun P hefði brotið gegn ákvæðum stjórnsýslulaga. Voru stefndu því sýknaðir af kröfum SM.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 1. apríl 2019

E-3954/2015

Síminn hf (Stefán A. Svensson lögmaður) gegn Samkeppniseftirlitinu (Gizur Bergsteinsson lögmaður), Sýn hf. (Snorri Stefánsson lögmaður), Nova ehf. (Heimir Örn Herbertsson lögmaður) og og Sendafélaginu ehf. (Bergur Hauksson lögmaður)

Stefndu voru sýknaðir af dómkröfum stefnanda um ógildingu úrskurðar áfrýjunarnefndar samskeppnismála þar sem ekki þótt vera sýnt fram á það að umræddur úrskurður væri haldin þeim annmörkum sem stefnandi hélt fram.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 20. febrúar 2018

E-1676/2017

Síminn hf (Hallmundur Albertsson hdl) gegn Póst- og fjarskiptastofnun (Jóhannes Karl Sveinsson hrl), Fjarskiptum hf. (Reimar Snæfells Pétursson hrl) og Gagnaveitu og Reykjavíkur ehf. (Jóna Björk Helgadóttir hrl)

Þeirri kröfu fjarskiptafyrirtækis að úrskurður úrskurðarnefndar fjarskipta- og póstmála yrði fellur úr gildi var vísað frá dómi þar eð í úrskurðinum fólst ekki ákvörðun sem batt endi á málið heldur var hún liður í annarri ákvörðun. Hana mátti því ekki bera undir dómstóla fyrr en sú ákvörðun sem batt endi á málið var borin undir dómstóla.

Hæstiréttur birt 16. mars 2017

418/2016

Póst-, fjarskiptastofnun (Einar Karl Hallvarðsson hrl) og Míla ehf (Stefán A. Svensson hrl) gegn Rúnari Árnasyni (Oddgeir Einarsson hrl)

Í málinu krafðist R þess að ógiltur yrði úrskurður úrskurðarnefndar fjarskipta- og póstmála frá árinu 2013 þar sem staðfest var ákvörðun P um að R yrði á grundvelli 2. mgr. 64. gr. laga nr. 81/2003 um fjarskipti gert á sinn kostnað að færa nánar tiltekinn hluta rafmagnsgirðingar á jörð sinni úr stað. Var niðurstaða nefndarinnar reist á því að girðingin truflaði símsamband um símalínu í eigu M ehf., sem lá að hluta í gegnum jörð R, en fyrir lá að R reisti rafmagnsgirðinguna árið 1981 og að símalínan var lögð um jörð hans tveimur árum síðar. Í dómi Hæstaréttar kom fram að ekki lægi annað fyrir nú en að R hefði á sínum tíma orðið við skyldu sinni samkvæmt þágildandi lögum nr. 30/1941 um fjarskipti til að leyfa lagningu símalínunnar, eignarnám hefði ekki verið gert á hluta af landi hans og hann hefði ekki fengið bætur vegna hennar. Þá hefði R ekki sérstaklega verið hafður með í ráðum um hvar línan yrði lögð. Að virtri forsögu 2. mgr. 64. gr. laga nr. 81/2003 og með hliðsjón af 71. gr. þeirra var talið ljóst að fyrrnefnda ákvæðið sneru að því að vernda fjarskiptavirki, sem þegar væru fyrir hendi, fyrir röskun af framkvæmdum eða annars konar aðgerðum, sem síðar kæmu til. Gagnvart þeim aðstæðum, sem uppi væru í málinu, myndi önnur skýring á orðalagi ákvæðisins að auki skerða réttindi R, sem varin væru af 1. mgr. 72. gr. stjórnarskrárinnar, enda væri honum þá ekki aðeins gert að sæta með lögum almennri skerðingu á eignarréttindum sínum, svo sem heimilt væri í þágu almannahagsmuna, heldur jafnframt að bera kostnað af skerðingunni. Var því fallist á kröfu R.

Hæstiréttur birt 16. desember 2016

776/2016

Íslandspóstur ohf (Andri Árnason hrl) gegn Póst- og fjarskiptastofnun (Óskar Thorarensen hrl)

Talið var að Í hefði ekki sýnt fram á lögvarða hagsmuni af því að fá ógiltan úrskurð úrskurðarnefndar fjarskipta- og póstmála þar sem ákvörðun P um fjárhæð póstburðargjalda Í var felld úr gildi, enda höfðu síðari hækkanir Í á gjöldunum verið samþykktar áður en málið var höfðað. Var því staðfestur úrskurður héraðsdóms um að vísa bæri máli Í gegn P frá dómi.

Hæstiréttur birt 27. mars 2015

219/2015

Míla ehf (Andri Árnason hrl) gegn Póst- (Jóhannes Karl Sveinsson hrl) og fjarskiptastofnun (Viðar Lúðvíksson hrl)

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem máli M ehf. á hendur P, G ehf. og O var vísað frá dómi. M ehf. krafðist þess í málinu að ákvörðun P, þar sem fallist var á beiðni G ehf. um samþykki fyrir hlutafjáraukningu í G ehf. sem O átti að verða greiðandi að, yrði felld úr gildi. Í dómi Hæstaréttar kom fram að eftir að hlutafé G ehf. hefði verið hækkað samkvæmt ákvörðun hluthafafundar hefði M ehf. ekki lengur lögvarða hagsmuni af því að krefjast ógildingar á umræddri ákvörðun, sbr. 1. mgr. 25. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 29. september 2014

E-4453/2014

Síminn hf (Friðrik Árni Friðriksson Hirst lögmaður) gegn Póst- og fjarskiptastofnun (Unnur Lilja Hermannsdóttir lögmaður), Sýn hf. (Snorri Stefánsson lögmaður), Nova ehf. (Heimir Örn Herbertsson lögmaður) og og Sendafélaginu ehf. (Bergur Hauksson lögmaður)

Stefndu voru sýknaðir af dómkröfum stefnanda um ógildi eða ógildingu ákvörðunar stefnda Póst- og fjarskiptastofnunar þar sem ekki þótt sýnt fram á að umrædd ákvörðun væri haldin þeim annmörkum sem stefnandi hélt fram.

Hæstiréttur birt 16. maí 2013

15/2013

Síminn hf (Andri Árnason hrl) gegn íslenska ríkinu og til vara Póst- og fjarskiptastofnun (Einar Karl Hallvarðsson hrl)

S hf. krafði Í um greiðslu dráttarvaxta af framlagi úr Jöfnunarsjóði alþjónustu. Framlag S hf. úr sjóðnum var ákvarðað með úrskurði úrskurðanefndar fjarskipta- og póstmála 10. október 2007, en S hf. fékk greitt úr sjóðnum 26. febrúar 2009. Í niðurstöðu Hæstaréttar sagði m.a. að með VI. kafla laga nr. 81/2003 um fjarskipti hefði verið komið á kerfi sem í hefði falist innbyrðis jöfnun kostnaðar af alþjónustu milli fjarskiptafyrirtækja. Í 3. málslið 3. mgr. 22. gr. laga nr. 81/2003 væri kveðið á um að yrðu útgjöld hærri en sem næmi jöfnunargjöldum á árinu skyldi gjaldfæra þann mismun á skuldbindingar næsta árs. Yrði ákvæðið skýrt svo að forsenda fyrir greiðslum úr sjóðnum væri sú að til væri fé í sjóðnum af innheimtu jöfnunargjaldi til að standa undir greiðslunum, enda væri það í samræmi við að í fyrirkomulaginu fælist innbyrðis jöfnun kostnaðar milli fjarskiptafyrirtækja. Var Í sýknað af kröfu S hf.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 18. mars 2013

E-1774/2012

Síminn hf (Friðrik Árni Friðriksson Hirst hdl) gegn Póst- og fjarskiptastofnun (Hörður Helgi Helgason hdl) og A (Þorbjörg Inga Jónsdóttir hrl)
Lykilorð: Ógilding. Sýkna.

Ákvörðun Póst-og fjarskiptastofnunar um ámælisvert athafnarleysi Símans hf. á meðferð öryggisatviks, ekki talin skorta lagastoð né haldin verulegum annmarka. Voru stefndu í málinu sýknuð af kröfu Símans hf. um að ákvörðunin yrði dæmd ógild með dómi.

Hæstiréttur birt 14. apríl 2011

500/2010

Síminn hf (Stefán A. Svensson hrl) gegn Jöfnunarsjóði alþjónustu (Einar Karl Hallvarðsson hrl)

S hf. höfðaði mál gegn sjóðnum J, sem starfaði samkvæmt lögum nr. 69/2003 um Póst- og fjarskiptastofnun, og krafðist greiðslu dráttarvaxta af framlagi úr sjóðnum til S hf. Í dómi Hæstaréttar kom fram að af 5. mgr. 17. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála yrði leitt að máli skyldi að meginreglu beint að íslenska ríkinu þótt það varðaði atriði, sem heyrði undir sérstaka stofnun þess, eða sjóð, enda væri ekki mælt á annan veg í lögum eða viðkomandi stofnun eða sjóður lyti sjálfstæðri stjórn. J hefði ekki lögbundið heiti og ekki væru í lögum fyrirmæli um stjórn hans né starfsemi. J gæti því ekki átt réttindi eða borið skyldur í skilningi fyrri málsliðar 1. mgr. 16. gr. laga nr. 91/1991. Engu breytti þótt fjárhagur J kynni í reikningshaldi ríkisins að vera skilinn frá Póst- og fjarskiptastofnun eða að hann hefði „sjálfstætt fjárlaganúmer“ eins og S hf. hafði bent á. Eins og málatilbúnaði S hf. var háttað þótti ekki unnt að líta svo á að hann beindi málinu að íslenska ríkinu, enda hefðu varnir J meðal annars gagngert lotið að því að sýkna bæri hann vegna sérstakra aðstæðna sem vörðuðu hann. Málinu var því vísað frá héraðsdómi af sjálfsdáðum vegna brests á aðildarhæfi J.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 25. júní 2010

E-12659/2009

Síminn hf (Andri Árnason hrl) gegn Póst- og fjarskiptastofnun (Sigurður Gísli Gíslason hrl)

Stefndi sýknaður af kröfu stefnanda um greiðslu dráttarvaxta af kostnaði stefnanda af að veita svokallaða alþjónustu, samkvæmt lögum um fjarskipti nr. 81/2003. Fjárhæð kostnaðar af að veita þessa þjónustu hafi verið ákveðin af úrskurðarnefnd fjarskipta- og póstmála.

Hæstiréttur birt 21. ágúst 2009

396/2009

Síminn hf (Andri Árnason hrl) gegn Póst-, fjarskiptastofnun, Neyðarlínunni ohf (Einar Karl Hallvarðsson hrl) og Og fjarskiptum ehf (Dögg Pálsdóttir hrl)

Talið var að S hefði ekki sýnt fram á lögvarða hagsmuni af því að fá ógiltan úrskurð úrskurðarnefndar fjarskipta- og póstmála um að veita N fjárframlag til alþjónustu samkvæmt 21. gr. laga nr. 81/2003. Var því staðfestur úrskurður héraðsdóms um að vísa bæri máli S gegn P, N og O frá dómi.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 23. júní 2009

E-8493/2008

Síminn hf (Andri Árnason hrl) gegn Póst- (Einar Karl Hallvarðsson hrl) og fjarskiptastofnun (Þórarinn V. Þórarinsson hdl)

Krafist var að úrskurður úrskurðarnefndar fjarskipta- og póstmála frá 4. apríl 2008 yrði felldur úr gildi þar sem staðfest var ákvörðun Póst- og fjarskiptastofnunar um að veita Neyðarlínunni framlag úr jöfnunarsjóði alþjónustu. Málinu var vísað frá dómi þar sem stefnandi hafði ekki lögvarða hagsmuni af úrlausn sakarefnisins.

Hæstiréttur birt 10. febrúar 2009

15/2009

Og fjarskipti ehf (Eva Bryndís Helgadóttir hrl) gegn Símanum hf og Póst- og fjarskiptastofnun (Andri Árnason hrl)

Talið var að O ehf. hefði ekki sýnt fram á lögvarða hagsmuni af því að fá ógiltan úrskurð úrskurðarnefndar fjarskipta- og póstmála, þar sem leyst var úr ágreiningi milli S og P um rétt S til greiðslu úr jöfnunarsjóði, samkvæmt 22. gr. laga nr. 81/2003. Var staðfestur úrskurður héraðsdómara um að vísa máli O ehf. gegn S og P frá héraðsdómi.

Hæstiréttur birt 2. desember 2004

444/2004

Og fjarskipti hf (Ragnar Aðalsteinsson hrl) gegn Landssíma Íslands hf, Póst-, fjarskiptastofnun, úrskurðarnefnd fjarskipta- (Andri Árnason hrl) og póstmála (Ólafur Haraldsson hrl)

O hf. krafðist að viðurkennt yrði að tiltekinn úrskurður úrskurðarnefndar fjarskipta- og póstmála væri ekki bindandi fyrir sig og hann yrði dæmdur ógildur gagnvart sér. Hæstiréttur tók fram að ágreiningslaust væri að niðurstaða úrskurðarins beindist sérstaklega að O hf. og varðaði hagsmuni hans. Af málatilbúnaði þess yrði ekki annað ráðið en að málsóknin væri reist á því að umræddur úrskurður hefði ekki þau réttaráhrif sem honum væru ætluð. Úrskurðurinn hefði hins vegar réttaráhrif samkvæmt efni sínu svo lengi sem dómstólar felldu hann ekki úr gildi. Ætti O hf. þess kost að krefjast dóms um ógildingu hans teldi hann annmarka á formi hans eða efni en ekki væri á færi dómstóla að breyta efni hans. Þar sem O hf. hafði ekki uppi kröfu um ógildingu úrskurðarins var fallist á með héraðsdómara að vísa málinu frá héraðsdómi.