Fallist á kröfu tryggingarfélags um að ökumanni bifreiðar beri að endurgreiða skaðabætur, sem honum voru greiddar vegna umferðarslyss, þar sem hann hafi ekki átt rétt til þeirra sökum þess að hann hafi verið undir áhrifum ávana- og fíkniefna við akstur bifreiðarinnar í greint sinn og með því valdið því að vátryggingaratburður varð, sem og þar sem hann hafi gefið rangar eða ófullnægjandi upplýsingar í kjölfar slyssins, varðandi ástand sitt á þeim tíma er slysið varð. Í málinu var einnig staðfest kyrrsetningargerð sem gerð var af þessu tilefni.
Stefndi sýknaður af kröfu um bætur vegna handtöku og rannsóknaraðgerða lögreglu í tengslum við umferðareftirlit.
Ákæruvaldið (
Hulda María Stefánsdóttir saksóknari)
gegn
X (
Björgvin Jónsson lögmaður)
X var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot með því að hafa ekið bifreið, sem hafnaði utan vegar í skurði, ófær um að stjórna henni örugglega vegna áhrifa slævandi lyfja. Í dómi Landsréttar kom fram að niðurstaða fyrirliggjandi matsgerðar væri afdráttarlaus um að X hefði verið undir slíkum áhrifum að hann hefði verið óhæfur til að stjórna ökutæki örugglega umrætt sinn. Var X gert að greiða 70.000 króna sekt í ríkissjóð en ella sæta fangelsi í sex daga. Þá var hann sviptur ökurétti í fjóra mánuði.
Ákærða sakfelld fyrir þjófnað en sýknuð af ákæru um akstur bifreiðar án þess að vera fær um að stjórna henni örugglega vegna áhrifa slævandi lyfja. Þar sem ákærða hafði áður gerst sek um þjófnað var refsing hennar ákveðin 30 daga fanelsi en fullnustu refsingarinnar frestað skilorðsbundið í tvör ár.
Ákærði sakfelldur fyrir fíkniefnalagabrot, nytjastuld, umferðarlagabrot og gripdeild. Refsing, sem að hluta var hegningarauki, fangelsi 4 mánuði.
Umferðarlagabrot. Skjalabrot.
Ákæruvaldið (
Auðbjörg Lísa Gústafsdóttir fulltrúi)
gegn
Sigurði Huldari Rúnarssyni (
Sveinn Andri Sveinsson hrl)
Ákærði var dæmdur í fimm mánaða fangelsi fyrir þjófnaði, fjársvik, skjalafals, umferðarlagabrot og fíkniefnabrot. Einnig var hann sviptur ökurétti í eitt ár og dæmdur til að greiða skaðabætur.
Ákæruvaldið (
Halla Einarsdóttir fulltrúi)
gegn
X (
Gunnar Sólnes hrl)
Ákærði sakfelldur fyrir akstur undir áhrifum lyja. Dæmdur til sektargreiðslu og sviptur ökurétti.
Ákæruvaldið gegn
Emilíu Rós Hallsteinsdóttur, Rán. Akstur undir áhrifum ávana-, fíkniefna, X var sakfelld fyrir rán sem hún framdi í, félagi við annan mann. Hún huldi andlit sitt og ógnaði starfsmanni með hnífi, Þá var hún einnig sakfelld fyrir nytjastuld og að hafa í tvígang ekið óhæf um, að stjórna ökutæki örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna. Með brotunum, rauf X skilorð sem hún hafði fengið fyrir umferðarlagabrot og brot gegn, valdstjórninni. Hún hafði áður verið dæmd í skilorðsbundið fangelsi fyrir, ránsbrot en var ekki fullra 18 ára er hún framdi það brot. Henni höfðu einnig, verið gerðar sektir fyrir auðgunar- og umferðarlagabrot. Háttsemi ákærðu við, ránið var talin ógnandi og því metin henni til refsiþyngingar. Hins vegar voru, ekki miklir fjármunir teknir og ákærða játaði brot sín að mestu leyti. Með, hliðsjón af 60. gr. og 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 var refsing, hennar ákveðin fangelsi í 12 mánuði. Um tvö umferðarlagabrot var að ræða og ýmis ólögleg efni mældust í blóði og þvagi ákærðu í bæði skiptin. Var ákærða svipt ökurétti í 18 mánuði frá birtingu héraðsdóms að telja (
Hilmar Ingimundarson hrl)
X var sakfelld fyrir rán sem hún framdi í félagi við annan mann. Hún huldi andlit sitt og ógnaði starfsmanni með hnífi. Þá var hún einnig sakfelld fyrir nytjastuld og að hafa í tvígang ekið óhæf um að stjórna ökutæki örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna. Með brotunum rauf X skilorð sem hún hafði fengið fyrir umferðarlagabrot og brot gegn valdstjórninni. Hún hafði áður verið dæmd í skilorðsbundið fangelsi fyrir ránsbrot en var ekki fullra 18 ára er hún framdi það brot. Henni höfðu einnig verið gerðar sektir fyrir auðgunar- og umferðarlagabrot. Háttsemi ákærðu við ránið var talin ógnandi og því metin henni til refsiþyngingar. Hins vegar voru ekki miklir fjármunir teknir og ákærða játaði brot sín að mestu leyti. Með hliðsjón af 60. gr. og 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 var refsing hennar ákveðin fangelsi í 12 mánuði. Um tvö umferðarlagabrot var að ræða og ýmis ólögleg efni mældust í blóði og þvagi ákærðu í bæði skiptin. Var ákærða svipt ökurétti í 18 mánuði frá birtingu héraðsdóms að telja.
Kona sýknuð af ákæru fyrir akstur undir áhrifum lyfja.
Karlmaður sakfelldur fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna, ölvunarakstur, eignaspjöll og brot gegn náttúruverndarlögum. Ákærði dæmdur til greiðslu sektar og hann jafnframt sviptur ökurétti.
Ákæruvaldið gegn
Ingþóri Halldórssyni Sigurþóri Arnarssyni og Sævari Má Indriðasyni (
Hilmar Ingimundarson hrl)
Rán. Hylming. Þjófnaður. Gripdeild. Fölsun. Varsla fíkniefna. Fjársvik. Samverknaður. Fyrning. Rannsókn. Skilorð. Upptaka. Svipting ökuréttar. Akstur undir áhrifum lyfja. I var sakfelldur fyrir rán, hylmingu, gripdeild í tvígang, tilraun til þjófnaðar, fjögur fölsunarbrot, vörslu fíkniefna og fjársvik. Með gripdeild og fölsunarbroti 22. og 24. 2006 rauf hann skilorð eldri dóms og var hann tekinn upp og honum ákvörðuð refsing í einu lagi samkvæmt 60. gr. og 77. gr. almennra hegningarlaga. Þá var refsing hans fyrir stóran hluta brotanna ákveðin sem hegningarauki samkvæmt 78. gr. laganna. Þótti refsing hans hæfilega ákveðin 18 mánaða fangelsi auk þess sem honum gert að greiða brotaþolum skaðabætur. SÞ var sakfelldur fyrir þjófnað, þrjú hylmingarbrot, tvær gripdeildir, vörslu fíkniefna í tvígang og tvö umferðarlagabrot. Refsing hans var að hluta ákvörðuð sem hegningarauki og þótti hæfilega ákveðin fimm mánaða fangelsi. Þá var hann sviptur ökurétti í 8 mánuði og honum gert að greiða brotaþolum skaðabætur. SM var sakfelldur fyrir rán og þjófnað. Var refsing hans ákvörðuð sem hegningarauki og þótti hæfilega ákveðin fangelsi í 8 mánuði. Þá var honum gert að greiða brotaþolum skaðabætur.
Ákært fyrir að aka undir áhrifum lyfja svo að ökumaður hefði ekki getað stjórnað ökutækinu örugglega. Ekki var talið sannað í málinu að svo hefði verið og ákærða sýknuð af kröfum ákæruvaldsins.
B var sakfelldur fyrir brot gegn 4. mgr. 220. gr. almennra hegningarlaga með því að hafa í júní á síðasta ári skotið með haglabyssu á íbúðarhús við Burknavelli í Hafnarfirði. G og GG voru sakfelldir fyrir hlutdeild í því broti. Þá var GG að auki sakfelldur fyrir líkamsárás, tilraun til brennu, fjársvik og umferðarlagabrot og ákærði G fyrir nytjastuld. B var dæmdur í 15 mánaða fangelsi, GG í tveggja ára fangelsi og G í 9 mánaða fangelsi.
Ákæruvaldið (
Kolbrún Sævarsdóttir saksóknari)
gegn
Gísla Þór Gíslasyni (
Kristján Stefánsson hrl)
G var sakfelldur fyrir að hafa ekið tvívegis sviptur ökurétti. Hins vegar þótti ekki sannað að hann hefði í annað skiptið einnig verið ófær um að stjórna bifreið örugglega vegna neyslu lyfja. Í dómi Hæstaréttar var sakarferill G rakinn og þótti refsing hans með hliðsjón af dómvenju hæfileg fangelsi í tvo mánuði. Í ljósi góðrar umsagnar frá Fangelsismálastofnun og vinnuveitanda G þótt mega fresta fullnustu refsingarinnar skilorðsbundið í tvö ár.
Ákæruvaldið (
Bjarni G. Stefánsson lögreglustjóri)
gegn
Skúla Má Hilmarssyni (
Ingimar Ingimarsson hdl)
Karlaður sakfelldur fyrir að aka bifreið undir áhrifum fíkniefna og fyrir að hafa fíkniefni í fórum sínum.
Ákærði sakfelldur fyrir að hafa ekið bifreið ófær um að stjórna ökutæki vegna svefnhöfgi en talið var ósannað að hann hefði verið ófær um aksturinn vegna áhrifa örvandi og deyfandi efna. Brot ákærða var hegningarauki við tvo fangelsisdóma frá því í maí sl. og var honum því ekki gert sérstök refsing í málinu en hann var sviptur ökurétti í tvo mánuði. Þá var ákærða gert að greiða allan sakarkostnað málsins.
Ákæruvaldið (
Hulda María Stefánsdóttir fulltrúi)
gegn
Ingþóri Halldórssyni, Sigurþóri Arnarssyni, Steinari Erni Indriðasyni og Sævari Má Indriðasyni (
Róbert Árni Hreiðarsson réttargæslumaður) (
Hilmar Ingimundarson réttargæslumaður)
Fjórir karlmenn dæmdir til fangelsisvistar fyrir ýmis hegningarlagabrot, vörslu fíkniefna og umferðarlagabrot. Tveir þeirra voru sviptir ökurétti.
Ákærði sakfelldur fyrir akstur undir áhrifum lyfja.
Ákæruvaldið (Gunnar Örn Jónsson) gegn
Lúðvík Eiríkssyni (enginn)
Karlmaður dæmdur til að greiða sekt vegna lyfjaaksturs og vörslu fíkniefna og sviptur ökurétti í 6 mánuði.
Ákæruvaldið (
Ragnheiður Harðardóttir saksóknari)
gegn
Emilíu Rós Hallsteinsdóttur (
Örn Clausen hrl)
X var ákærður fyrir tilraun til þjófnaðar. Var honum gefið að sök að hafa í fjögur skipti reynt að brjótast inn í fyrirtæki í auðgunarskyni. Var hann sakfelldur fyrir að hafa reynt það í þrígang en í einu tilviki þótti það ekki fyllilega sannað. Með hliðsjón af löngum brotaferli X var honum gert að sæta fangelsi í 12 mánuði.