Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

1240 dómar fundust

Lagagrein: 102. gr. laga nr. 50/1987 — Umferðarlög

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 9. maí 2025

E-7532/2023

A (Gunnar Gíslason lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Þorvaldur Hauksson lögmaður)

Lögregla stöðvaði stefnanda við reglubundið umferðareftirlit skv. umferðarlögum þar eð hann ók á ofsahraða. Fallist var á það að mál á hendur stefnanda hefði verið fellt niður í skilningi 1. mgr. 246. gr. laga nr. 88/2008 þegar fíkniefnapróf sýndi að ekki mældust fíkniefni í þvagi hans. Einnig var fallist á að þegar stefnandi fylgdi lögreglunni á lögreglustöð til þess að gefa sýni vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna hefði hann verið handtekinn í skilningi 1. mgr. 90. gr. laga nr. 88/2008, sbr. dóm Landsréttar í máli nr. 363/2024. Það var einnig skilgreint sem líkamsrannsókn í skilningi 77. gr. sömu laga þegar stefnandi gaf lögreglu þvagsýni. Því var hins vegar hafnað að bifreið stefnanda hefði verið haldlögð enda voru ökuréttindi hans runnin út þegar lögregla stöðvaði hann. Stefnanda voru dæmdar miskabætur.

Landsréttur birt 12. desember 2024

363/2024

Íslenska ríkið (Þorvaldur Hauksson lögmaður) gegn A (Leó Daðason lögmaður)

A var stöðvaður af lögreglu við akstur bifreiðar 15. nóvember 2018. Í lögregluskýrslu kom fram að grunur hefði vaknað um akstur undir áhrifum fíkniefna og var A handtekinn og færður á lögreglustöð. A var gert að sæta blóð- og þvagrannsókn og greindist umbrotsefni THC sem er í kannabis í þvagi hans. Seinna var rannsókn á máli A hætt. Höfðaði A málið til heimtu bóta vegna þvingunaraðgerða sem hann hafði verið beittur, bæði handtöku og líkamsrannsókn. Í dómi Landsréttar var rakið að með hliðsjón af 5. mgr. 67. gr. stjórnarskrárinnar stæðu efnisrök til að beita bótareglu 246. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála með lögjöfnun um handtöku A og jafnframt stæðu efnisrök til að beita bótareglunni og þá blóð- og þvagrannsókn sem A varð að sæta meðan hann var sviptur frelsi á grundvelli 2. mgr. 47. gr. umferðarlaga nr. 50/1987. Landsréttur vísaði til þess að skilyrðum 1. mgr. 246. gr. laga nr. 88/2008 fyrir bótaábyrgð Í væri fullnægt. Aftur á móti komst Landsréttur að þeirri niðurstöðu að A hefði valdið eða stuðlað sjálfur að þeim aðgerðum lögreglu sem hann reisti kröfu sína á. Samkvæmt niðurlagi 2. mgr. 246. gr. laga nr. 88/2008 þótti rétt að fella að öllu leyti niður bætur til A. Var því fallist á kröfu Í um sýknu af kröfu A.

Landsréttur birt 16. júní 2023

548/2022

Ákæruvaldið (Guðrún Sveinsdóttir saksóknari) gegn Jóni Þór Gíslasyni (Sigurður Jónsson lögmaður, Sverrir Sigurjónsson lögmaður, 1. prófmál) (Ómar R. Valdimarsson lögmaður einkaréttarkröfuhafa)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

J var sakfelldur fyrir brot gegn valdstjórninni, sbr. 1. mgr. 106. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með því að hafa hótað lögreglumanni líkamsmeiðingum og lífláti auk þess sem hann gerði tilraun til að sparka í fótlegg lögreglumannsins, sem var þar við skyldustörf. Þá var J sakfelldur fyrir líkamsárás, sbr. 217. gr. almennra hegningarlaga með því að hafa veist að fimm mönnum. Ekki var fallist á að um neyðarvörn hefði verið að ræða. Við meðferð málsins í héraði játaði ákærði skýlaust sök að því er varðaði aðra líkamsárás sem honum var gefin að sök, svo og að hafa ekið bifreið sviptur ökurétti og undir áhrifum áfengis og var ákærði sakfelldur fyrir þá háttsemi í héraði. Sætti sú úrlausn ekki endurskoðun fyrir Landsrétti. Við ákvörðun refsingar J var litið til þess að brot hans voru hegningarauki við eldri dóm og sektargerðir, sbr. 78. gr. almennra hegningarlaga, og var honum ákvörðuð refsing samkvæmt 77. gr. sömu laga. Með ölvunarakstri sínum hefði J ítrekað í annað sinn brot gegn 49. gr. umferðarlaga nr. 77/2019, en brot hans gegn 58. gr. sömu laga, akstur sviptur ökurétti, taldist á hinn bóginn til fyrsta brots hans af því tagi. Að virtum atvikum málsins og að teknu tilliti til þess að J viðurkenndi skýlaust sök að hluta, sem og að virtum sakaferli hans var refsing hans ákveðin fangelsi í sex mánuði en fullnustu þriggja mánaða hennar frestað skilorðsbundið í tvö ár. Þá var J einnig gert að greiða sekt til ríkissjóðs að viðlagðri vararefsingu. Jafnframt var J gert að greiða brotaþola miskabætur. Loks var J sviptur ökurétti ævilangt.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 30. janúar 2023

S-22/2022

Ákæruvaldið (Halldór Rósmundur Guðjónsson saksóknarfulltrúi) gegn Kolbeini Vopna Sigurðssyni (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi og til sviptingar ökuréttar fyrir brot gegn almennum hegningarlögum, umferðarlögum og lögreglulögum.

Héraðsdómur Suðurlands birt 6. september 2022

S-241/2022

Lögreglustjórinn á Suðurlandi (Ólafur Hallgrímsson fulltrúi) gegn Sóleyju Þorbjörnsdóttur (enginn)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærða var fundin sek um ítrekaðan akstur undir áhrifum fíkniefna og henni gerð sekt auk þess sem hún var svipt ökurétti tímabundið.

Héraðsdómur Reykjaness birt 24. júní 2022

S-126/2019

Málið nr. S-126/2019 Ákæruvaldið (Einar E. Laxness aðstoðarsaksóknari) gegn X (Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir fimm umferðarlagabrot framin á árinu 2018. Með brotunum rauf ákærði reynslulausn á 420 daga eftirstöðvum refsinga tveggja dóma frá 2014. Þar sem ákærði var í nóvember 2021 dæmdur í 17 ára fangelsi á Spáni fyrir manndráp af ásetningi, húsbrot og hótanir þótti rétt að gera honum ekki frekari refsingu enda um hegningarauka að ræða. Ákærði var hins vegar sviptur ökurétti ævilangt frá dómsuppsögu að telja.

Landsréttur birt 24. júní 2022

547/2021

Ákæruvaldið (Hulda María Stefánsdóttir saksóknari) gegn Daníel Christensen (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður) og Víði Erni Ómarssyni (Gísli M. Auðbergsson lögmaður) (Arnar Kormákur Friðriksson réttargæslumaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

DC var sakfelldur fyrir að hafa ráðist að A og B með ofbeldi og hótunum um ofbeldi í því skyni að fá A til að draga til baka og/eða breyta framburði sínum í öðru sakamáli og fyrir að hafa slegið A ítrekað í andlitið, tekið hann hálstaki og hótað þeim báðum ofbeldi og lífláti með því meðal annars að ógna þeim með hnífi. Þá var DC einnig sakfelldur fyrir að hafa veitt A högg í höfuð með hnénu. Með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms var staðfest sú niðurstaða hans að heimfæra brotin undir 108. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, nema hvað varðar höfuðhögg með hné, en sú háttsemi var færð undir 2. mgr. 218. gr. laganna. Þá var DC sakfelldur fyrir að hafa í félagi við H, D og E svipt C frelsi sínu í meira en fimm klukkustundir í því skyni að knýja á um greiðslu peningaskuldar við DC. DC var einnig sakfelldur fyrir líkamsárás og hótanir með því að hafa í félagi við H, D og E veist að C með ofbeldi meðan á frelsissviptingunni stóð. Í dómi Landsréttar var ekki fallist á ómerkingarkröfu DC. V var sakfelldur fyrir hlutdeild í brotum DC og dómfelldu H, D og E í málinu, sbr. 22. gr. almennra hegningarlaga, með því að hafa ekið C frá einum stað til annars, sbr. 1. mgr. 180. gr. laga nr. 88/2008. Aðrir en DC og V undu héraðsdómi og áfrýjuðu ekki til Landsréttar. Var refsing DC ákveðin fangelsi í tvö ár en til frádráttar refsingunni komi gæsluvarðhald sem hann sætti. Var refsing V ákveðin fangelsi í níu mánuði en fullnustu refsingarinnar var frestað skilorðsbundið í tvö ár. Þá var DC og V gert að greiða C miskabætur.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 9. maí 2022

S-5361/2019

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Hlyni Frey Gíslasyni (Snorri Sturluson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir umferðar- og fíkniefnalagabrot.

Héraðsdómur Austurlands birt 13. apríl 2022

S-20/2022

Lögreglustjórinn á Austurlandi (Helgi Jensson aðstoðarsaksóknari) gegn Þórður Pétur Pétursson I
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Sakfellt fyrir umferðarlagabrot, þ.a.m. fyrir ölvunar- og sviptingarakstur. Ítrekun

Landsréttur birt 17. desember 2021

56/2021

Ákæruvaldið (Hrafnhildur M. Gunnarsdóttir saksóknari) gegn Ásgeiri Gunnarssyni (Jóhann Pétursson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Á var sakfelldur fyrir fíkniefnalagabrot og fyrir akstur samtímis undir áhrifum áfengis og ávana- og fíkniefna. Með dómi héraðsdóms var Á gert að sæta fangelsi í 60 daga, skilorðsbundið til tveggja ára, og greiða jafnframt 300.000 krónur í sekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá birtingu dómsins en sæta ella fangelsi í 20 daga. Loks var Á sviptur ökurétti í 15 mánuði, fyrst í 12 mánuði frá 15. september 2019 til 15. september 2020 en að auki í þrjá mánuði frá birtingu dómsins að telja. Þá voru haldlögð fíkniefni gerð upptæk. Fyrir Landsrétti undi Á niðurstöðu héraðsdóms um fangelsisrefsingu og greiðslu sektar en krafðist styttingar á sviptingu ökuréttar vegna ölvunar- og fíkniefnaaksturs. Í dómi Landsréttar kom fram að af dómum Hæstaréttar Íslands í málum nr. 335/2008 og 222/2015 þætti mega draga þá ályktun að þegar svo háttaði til eins og í tilviki Á sem ökumanns sem væri samtímis undir áhrifum áfengis og fíkniefna bæri að dæma honum sekt fyrir hvort tveggja þessara brota en ákvarða ökuréttarsviptingu eftir því hvort ölvunar- eða fíkniefnaakstur ætti að leiða til lengri sviptingar en ekki að samanlögðum tíma fyrir bæði brotin. Með vísan til þessa þótti rétt að Á sætti sviptingu ökuréttar í 12 mánuði. Var hinn áfrýjaði dómur staðfestur að öðru leyti, það er um ákvörðun refsingar ákærða, upptöku fíkniefna og sakarkostnað.

Landsréttur birt 17. desember 2021

240/2021

Ákæruvaldið gegn Aroni Árnasyni (Gísli M. Auðbergsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

A var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot með því að hafa margítrekað ekið bifreið sviptur ökurétti, þar af sjö sinnum undir áhrifum ávana- og fíkniefna auk slævandi lyfja í eitt skipti, akstur yfir löglegum hámarkshraða í fimm skipti og akstur gegn rauðu umferðarljósi í tvö skipti. Þá var A sakfelldur fyrir að hafa í tvígang haft í vörslum sínum ávana- og fíkniefni. Samkvæmt dómvenju, að virtum sakaferli A og með hliðsjón af 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 var staðfest niðurstaða héraðsdóms um 22 mánaða fangelsisrefsingu og ævilanga ökuréttarsviptingu. Ekki þóttu efni til að binda refsinguna skilorði.

Landsréttur birt 10. desember 2021

195/2021

Ákæruvaldið (Anna Barbara Andradóttir settur saksóknari) gegn X (Inga Lillý Brynjólfsdóttir lögmaður, Þórir Skarphéðinsson lögmaður, 3. prófmál)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

X var sakfelldur fyrir brot gegn valdstjórninni, gripdeild og umferðar- og lögreglulagabrot. X bar því við að fella bæri niður refsingu með vísan til 1. mgr. 16. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 þar sem refsing yrði ekki talin bera árangur. Í dómi Landsréttar voru ekki talin uppfyllt skilyrði til þess að refsing X yrði látin niður falla á grundvelli þessa ákvæðis. Við ákvörðun refsingar var aftur á móti litið til 75. gr. almennra hegningarlaga vegna geðræns ástands X á verknaðarstundu. Við ákvörðun refsingar var einnig skírskotað til álits matsmanns um að refsing yrði X mjög þungbær vegna veikinda hans og þarfar hans fyrir viðeigandi læknismeðferð og meðhöndlun á sjúkrahúsi. Af þeim sökum var refsing hans ákveðin fangelsi í fjóra mánuði en fullnustu hennar frestað skilorðsbundið í tvö ár. Auk þess skyldi hann sæta sérstöku eftirliti og umsjón á skilorðstímanum samkvæmt 1. tölulið 3. mgr. 57. gr. almennra hegningarlaga. Loks var hann sviptur ökurétti ævilangt.

Landsréttur birt 10. desember 2021

541/2020

Ákæruvaldið (Jón H. B. Snorrason saksóknari) gegn Aðalsteini Árdal Björnssyni (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

A var sakfelldur fyrir fjölmörg hegningarlagabrot, umferðarlagabrot, fíkniefnalagabrot og vopnalagabrot. Með hliðsjón af sakarefni málsins, dómvenju og 77. og 78. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 var refsing A ákveðin fangelsi í 20 mánuði. Að auki var áréttuð ævilöng ökuréttarsvipting hans og honum gert að sæta upptöku fíkniefna og vasahnífs.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 9. desember 2021

S-470/2019

Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra (Eyþór Þorbergsson fulltrúi) gegn Ásólfi Bjartmari Gunnarssyni (Jón Bjarni Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Með vísan til framburðar vitna var bílstjóri hópferðabíls fundinn sekur um ölvunarakstur og sviptur ökurétti í tvö ár, auk þess sem hann var dæmdur til greiðslu 210 þúsund króna sektar.

Héraðsdómur Reykjaness birt 8. nóvember 2021

S-108/2021

Málið nr. S-108/2021 Ákæruvaldið (Kári Ólafsson aðstoðarsaksóknari) gegn X (Leifur Runólfsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Karlmaður sakfelldur fyrir umferðarlagabrot. Þar sem um hegningarauka var að ræða var fjögurra mánaða skilorðsbundin refsing samkvæmt eldri dómi tekin upp og ákærða gerð í einu lagi fimm mánaða fangelsisrefsing, skilorðsbundin í eitt ár.

Héraðsdómur Reykjaness birt 26. október 2021

S-608/2020

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum (Daníel Reynisson aðstoðarsaksóknari) gegn Ragnari Kristjáni Skúlasyni (Bjarni Hauksson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Játningarmál. Ákærði var dæmdur fyrir ítrekuð umferðarlagabrot og eitt fíkniefnalagabrot.

Landsréttur birt 15. október 2021

472/2020

Ákæruvaldið (Einar Tryggvason saksóknari) gegn Arnari Inga Reynissyni (Gísli Tryggvason lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

A var sakfelldur fyrir brot gegn 1. mgr., sbr. 2. mgr. 50. gr. og 1. mgr. 58. gr. umferðarlaga nr. 77/2019 með því að hafa ekið bifreið sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni vegna áhrifa ávana- og fíkniefna. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að A hefði þrisvar áður verið gerð refsing fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Var refsing A í samræmi við dómvenju ákveðin fangelsi í 75 daga og áréttuð svipting ökuréttar ævilangt.

Landsréttur birt 24. september 2021

79/2021

Ákæruvaldið (Marín Ólafsdóttir saksóknari) gegn Guðfinni Hafliða Einarssyni (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

G var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot með því að hafa ekið bifreið án þess að hafa ökuskírteini meðferðis og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna. Að virtum sakaferli G og í samræmi við dómvenju var refsing hans ákveðin fangelsi í 30 daga. Þá var hann sviptur ökurétti ævilangt þar sem brot hans taldist ítrekað öðru sinni í skilningi 3. mgr. 99. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.

Landsréttur birt 16. september 2021

423/2020

Ákæruvaldið (Jón H. B. Snorrason saksóknari) gegn X (Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður) (Auður Björg Jónsdóttir lögmaður einkaréttarkröfuhafa)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Með dómi héraðsdóms var X sakfelldur fyrir hótanir, umferðarlagabrot, sérstaklega hættulega líkamsárás og fíkniefnalagabrot. Hann játaði sakargiftir, þar á meðal að hafa slegið brotaþola í höfuðið með skralli úr topplyklasetti, en neitaði að hafa stungið brotaþola með skrúfjárni í vinstri sköflung. Í dómi Landsréttar er rakið að samkvæmt framburði læknis fyrir héraðsdómi var um að ræða lokaðan yfirborðsskurð á sköflungnum sem ekki reyndist þörf á að gera að eða búa um. Þá segir í dóminum að þrátt fyrir að ekki hafi fundist blóð á skrúfjárni því sem fannst á vettvangi væri með vísan til annarra gagna málsins hafið yfir skynsamlegan vafa að X hefði veitt brotaþola áverka með skrúfjárninu á áðurgreindum stað í átökum þeirra á milli. Með hliðsjón af skýrslu réttarmeinafræðings fyrir héraðsdómi og lýsingu vitna á aðförum ákærða þótti háttsemi hans samræmast verknaðarlýsingu í ákæru um að hann hefði stungið brotaþola með skrúfjárninu. Að þessu athuguðu en að öðru leyti með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms var hann staðfestur, þó þannig að til frádráttar refsingu ákærða kæmi gæsluvarðhald sem hann sætti vegna málsins.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 30. júní 2021

S-385/2019

Ákæruvaldið (Sigurður Ólafsson aðstoðarsaksóknari) gegn Daníel Christensen (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður), KK (Sigurður Freyr Sigurðsson lögmaður), LL (Snorri Sturluson lögmaður), Elmari Þór Sveinarssyni (Þórður Már Jónsson lögmaður), Ísak Loga Bjarnasyni (Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður), Sindra Snæ Stefánssyni og og Víði Erni Ómarssyni (Gísli M. Auðbergsson lögmaður) (Axel Kári Vignisson réttargæslumenn brotaþola) (Andrés Már Magnússon réttargæslumenn brotaþola)
Lykilorð: Líkamsárás. Neyðarvörn.
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Fimm karlmenn voru sakfelldir fyrir ýmis hegningarlagabrot á árunum 2017-2018, þar á meðal brot gegn valdstjórninni, frelsissviptingu, stórfelldar líkamsárásir og hótanir. Tveir menn voru sýknaðir en til meðferðar voru sjö ákærur á hendur jafnmörgum mönnum. Sá sem þyngstan dóm hlaut þarf samkvæmt dóminum að afplána sína refsingu en refsingar annarra voru skilorðsbundnar.

Landsréttur birt 23. júní 2021

40/2020

Ákæruvaldið gegn Jóhanni Páli Jóhannssyni (Guðbrandur Jóhannesson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

J var sakfelldur fyrir fjölmörg umferðarlagabrot, fíkniefnalagabrot, vopnalagabrot og brot á lögreglulögum. Í samræmi við 1. mgr. 2. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 var með dómi Landsréttar dæmt um umferðarlagabrot J eftir nýjum umferðarlögum nr. 77/2019 sem tóku gildi eftir að hinn áfrýjaði dómur féll. Við ákvörðun refsingar var litið til sakaferils J, sbr. 5. tölulið 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga, 77. gr. sömu laga og áralangrar dómvenju en jafnframt til skýlausrar játningar hans. Var refsing J ákveðin fangelsi í tvö ár auk þess sem áréttuð var ævilöng ökuréttarsvipting hans og honum gert að sæta upptöku fíkniefna og kylfu.

Landsréttur birt 18. júní 2021

246/2020

Ákæruvaldið (Marín Ólafsdóttir saksóknari) gegn X (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

X var sakfelldur fyrir fjölmörg umferðarlagabrot, fíkniefnalagabrot og hegningarlagabrot, þar á meðal líkamsárás, samkvæmt þremur ákærum sem gefnar voru út 13. ágúst 2019, 26. september 2019 og 14. janúar 2020. Með dómi Landsréttar var dæmt um umferðarlagabrot X samkvæmt ákærunni 13. ágúst 2019 eftir nýjum umferðarlögum nr. 77/2019 sem tóku gildi eftir að ákæran var gefin út. Hluti af brotum X voru hegningarauki við annars vegar dóm hans frá 4. febrúar 2019 og hins vegar sátt frá 2. nóvember 2017. Var fyrrnefndur dómur X tekinn upp með vísan til 60. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og refsing ákveðin í einu lagi með hliðsjón af 77. og 78. gr. laganna. Við ákvörðun refsingar X var meðal annars litið til þess að grundvallarbreyting hefði orðið á högum hans og til 5., 6. og 8. töluliðar 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga. Var refsing X ákveðin fangelsi í tvö ár og ævilöng svipting ökuréttar hans áréttuð, auk þess sem gerð voru upptæk tilgreind fíkniefni og honum gert að greiða K ehf. tiltekna fjárhæð ásamt vöxtum og dráttarvöxtum.

Landsréttur birt 11. júní 2021

833/2019

Ákæruvaldið (Guðrún Sveinsdóttir settur saksóknari) gegn Guðmundi Friðriki Stefánssyni (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður, Guðmundur Njáll Guðmundsson lögmaður, 2. prófmál)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

G var sakfelldur fyrir þjófnað, skjalafals og akstur í þrjú aðgreind skipti sviptur ökurétti, þar af í eitt skipti einnig undir áhrifum áfengis og fíkniefna. Í samræmi við 1. mgr. 2. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 var með dómi Landsréttar dæmt um umferðarlagabrot G eftir nýjum umferðarlögum nr. 77/2019 sem tóku gildi eftir að hinn áfrýjaði dómur féll. Með brotunum rauf G skilyrði reynslulausnar og var honum gerð refsing í einu lagi fyrir brotin, sbr. 1. mgr. 82. gr. laga um fullnustu refsinga nr. 15/2016, og 60. gr., sbr. 77. gr., hegningarlaga. Við ákvörðun refsingar var einnig litið til sakaferils G og þótti refsing hans hæfilega ákveðin fangelsi í 22 mánuði auk þess sem áréttuð var ævilöng ökuréttarsvipting hans.

Landsréttur birt 4. júní 2021

60/2020

Ákæruvaldið (Óli Ingi Ólason saksóknari) gegn Reyni Strandberg Arnarsyni (Gísli Tryggvason lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

R var sakfelldur fyrir hylmingu og akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna auk annarra umferðarlagabrota. Í samræmi við 1. mgr. 2. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 var með dómi Landsréttar meðal annars dæmt um umferðarlagabrot R eftir nýjum umferðarlögum nr. 77/2019 sem tóku gildi eftir að hinn áfrýjaði dómur féll. Refsing R var ákveðin fangelsi í 30 daga en fullnustu hennar frestað skilorðsbundið í tvö ár. Þá var honum gert að greiða sekt í ríkissjóð auk þess sem hann var sviptur ökurétti.

Landsréttur birt 28. maí 2021

175/2020

Ákæruvaldið (Hulda María Stefánsdóttir saksóknari) gegn X (Steinbergur Finnbogason lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

X var gefin að sök líkamsárás, með því að hafa rifið í hár A, sparkað í og/eða traðkað á brjóstkassa og sparkað í andlit hennar, og sigað á hana dobermann-hundi sem hafi glefsað og klórað í hana, með nánar tilgreindum afleiðingum. Í dómi Landsréttar er rakið að hvorki vætti vitna né fyrirliggjandi læknisvottorð sýndu, þannig að hafið væri yfir skynsamlegan vafa, að X hefði sigað hundinum á A eða að hann hefði glefsað og klórað í hana, eða að X hefði sparkað í andlit A. Var X því sýknuð af þeim ákæruatriðum. Að öðru leyti var hinn áfrýjaði dómur staðfestur um sakfellingu X og um heimfærslu til 1. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að X gekkst undir tvær lögreglustjórasáttir og viðurlagaákvörðun fyrir uppkvaðningu hins áfrýjaða dóms og bar því að dæma henni hegningarauka samkvæmt 78., sbr. 77. gr. almennra hegningarlaga. Að því virtu þótti refsing X hæfilega ákveðin fangelsi í fjóra mánuði sem bundin var skilorði. Þá var staðfest ákvæði héraðsdóms um miskabætur til handa A.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 19. maí 2021

S-7287/2019

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Smára Valgeirssyni (Þorgils Þorgilsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði dæmdur í 12 mánaða fangelsi fyrir ýmis umferðar-og fíkniefnalagabrot. Ævilöng svipting ökuréttar áréttuð og fíkniefni gerð upptæk.

Landsréttur birt 30. apríl 2021

41/2020

Ákæruvaldið gegn Jóhanni Rúnari Sigurðssyni og Heiðari Þór Guðmundssyni (Gísli Tryggvason lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

J og H voru sakfelldir fyrir þjófnaðarbrot með því að hafa farið inn á athafnasvæði fiskvinnslufyrirtækis og tekið ófrjálsri hendi 70 málmeiningar af óþekktri tegund. Þá var H sakfelldur fyrir vörslur ávana- og fíkniefna, meðal annars í sölu- og dreifingarskyni, og J sakfelldur fyrir akstur bifreiðar í átta skipti undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Brotin voru framin í mismunandi lögsagnarumdæmum og lá ekki fyrir ákvörðun ríkissaksóknara um að fela einum lögreglustjóra saksókn í málinu, sbr. 4. mgr. 24. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Þótti það ekki koma að sök og var tilgreindum ákæruliðum ekki vísað frá dómi af þeirri ástæðu. Við ákvörðun refsingar var meðal annars litið til þess að þjófnaðarbrotið var framið í samverknaði, sbr. 2. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, og einnig litið til 8. töluliðar 70. gr. og 77. gr. sömu laga. Með brotum þeim sem J var sakfelldur fyrir rauf hann skilorð eldri dóms sem var tekinn upp og refsing dæmd í einu lagi. Var J gert að sæta fangelsi í fjóra mánuði og var hann sviptur ökurétti í fjögur ár og tvo mánuði frá birtingu dómsins að telja. Með hluta brotanna sem H var sakfelldur fyrir rauf hann skilyrði reynslulausnar og var honum gerð refsing í einu lagi fyrir brotin, sbr. 1. mgr. 82. gr. laga um fullnustu refsinga nr. 15/2016, sbr. 60. gr. hegningarlaga og þótti refsing hans hæfilega ákveðin fangelsi í 10 mánuði. Þá voru hin haldlögðu fíkniefni H gerð upptæk.

Héraðsdómur Suðurlands birt 23. apríl 2021

S-121/2019

Lögreglustjórinn á Suðurlandi (Margrét Harpa Garðarsdóttir fulltrúi) gegn X (Ingólfur Vignir Guðmundsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir að aka sviptur ökurétti undir áhrifum ávana- og fíkniefna, fíkniefnalagabrot og brot gegn vopnalögum. Með brotum sínum rauf ákærði skilorð eldra dóms og var refsingin dæmd upp. Var ákærða gert að sæta fangelsi í 4 ár og 3 mánuði. Þá var áréttuð ævilöng svipting ökuréttar ákærða og honum gert að sæta upptöku á fíkniefnum, haglabyssu og 20 haglaskotum er lagt var hald á við rannsókn lögreglu.

Héraðsdómur Reykjaness birt 6. apríl 2021

S-224/2021

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Einar Laxness aðstoðarsaksóknari) gegn Steinari Má Guðráðssyni
Lykilorð: Umferðarlagabrot.
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna og fyrir að aka sviptur ökurétti.

Héraðsdómur Reykjaness birt 6. apríl 2021

S-3068/2020

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Vilhjálmur Reyr Þórhallsson aðstoðarsaksóknari) gegn Guðmundi Kristjáni Kristjónssyni (Elva Ósk Wiium lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákærði sakfelldur fyrir umferðar- og fíkniefnalagabrot.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 29. mars 2021

S-7388/2019

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Baldvin Einarsson aðstoðarsaksóknari) gegn X (Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir ýmis umferðar- og hegningarlagabrot.

Landsréttur birt 26. mars 2021

804/2019

Ákæruvaldið (Hrafnhildur M. Gunnarsdóttir saksóknari) gegn Pálma Snæ Magnússyni (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður) og Jónasi Val Jónassyni (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

J var sakfelldur fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot með því að hafa staðið að innflutningi á samtals 994,42 g af kókaíni ásamt P sem var sakfelldur fyrir tilraun til brotsins þar sem tollstjóri hafði lagt hald á efnin og komið fyrir í þeirra stað gerviefnum áður en P tók á móti sendingunni. Jafnframt var J sakfelldur fyrir peningaþvætti, þjófnaðarbrot, fíkniefnalagabrot og umferðarlagabrot. Við ákvörðun refsingar var meðal annars litið til 1. og 3. töluliðar 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga og þess að um verkskiptan samverknað þeirra var að ræða, sbr. 2. mgr. 70. gr. sömu laga. Jafnframt var litið til sakaferils þeirra og var refsing P ákveðin sem hegningarauki, sbr. 78. gr. almennra hegningarlaga. Var refsing J ákveðin fangelsi í 22 mánuði og refsing P fangelsi í 12 mánuði. Ákvæði héraðsdóms um tímabundna sviptingu ökuréttar var á hinn bóginn fellt úr gildi þar sem í greinargerð ákæruvaldsins til Landsréttar var ekki vikið að kröfum þess er lutu að ákvæði héraðsdóms þess efnis.

Landsréttur birt 26. mars 2021

762/2019

Ákæruvaldið gegn Ívari Karli Sigurðarsyni (Gísli Tryggvason lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Með hinum áfrýjaða dómi var Í sakfelldur fyrir umferðarlagabrot með því að hafa ekið bifreið óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna sem mældust í þvagsýni hans. Var hann dæmdur til greiðslu sektar og sviptur ökurétti í tvö ár. Eftir uppkvaðningu hins áfrýjaða dóms tóku ný umferðarlög gildi og samkvæmt þeim telst ökumaður nú aðeins undir áhrifum ávana- og fíkniefna eða lyfja og óhæfur til að stjórna ökutæki örugglega ef ávana- eða fíkniefni eða lyf finnast í blóði hans. Í dómi Landsréttar kom fram að líta yrði svo á að lagabreytingin bæri vitni um breytt mat löggjafans á refsinæmi verknaðarins. Var sakfelling Í því staðfest en refsing hans og ökuréttarsvipting, að því leyti sem hún hefði ekki komið til framkvæmda, felld niður með vísan til 2. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Þá var Í gert að greiða sakarkostnað málsins í héraði en áfrýjunarkostnaður felldur á ríkissjóð.

Landsréttur birt 26. mars 2021

689/2019

Ákæruvaldið (Marín Ólafsdóttir saksóknari) gegn Ragnari Ólafssyni (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

R var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot með því að hafa ekið bifreið í tvö aðgreind skipti undir áhrifum ávana- og fíkniefna og fyrir fíkniefnalagabrot með því að hafa haft í vörslum sínum tiltekið magn af marijúana. Við meðferð málsins í héraði játaði R sök en bar því við að umferðarlagabrotin væru fyrnd. Í dómi Landsréttar kom fram að umferðarlagabrotin hefðu ekki verið fyrnd þegar ákæra var gefin út í málinu. Enn fremur var rakið að eftir uppkvaðningu hins áfrýjaða dóms hefðu tekið gildi ný umferðarlög og að dæma skyldi um háttsemi R eftir þeim lögum. Þá var fjallað um áhrif fyrri brota R við ákvörðun refsingar og rakið að háttsemin sem R hefði verið sakfelldur fyrir með tilgreindum dómi Hæstaréttar væri ekki lengur refsinæm samkvæmt gildandi umferðarlögum. Af lögskýringargögnum með 3. gr. almennra hegningarlaga mætti ráða að horfa skyldi til refsiákvörðunar eldri dóma og viðurlagaákvarðana við mat á ítrekunaráhrifum og ákvörðunar refsingar þrátt fyrir slíkar breytingar. Á hinn bóginn mætti leiða þau grunnsjónarmið af ákvæðum stjórnarskrár og mannréttindasáttmála Evrópu, um bann við afturvirkni refsilaga, og dómaframkvæmdar Mannréttindadómstóls Evrópu, að sakaður maður ætti að njóta þess ef háttsemi sem áður hefði verið talin refsinæm þætti það ekki lengur. Af þessum sökum kæmi umræddur dómur Hæstaréttar ekki til skoðunar við mat á sakaferli R og ákvörðun refsiviðurlaga. Var refsing R ákveðin 60 daga fangelsi en með hliðsjón af óhóflegum drætti á útgáfu ákæru í málinu var fullnustu refsingar frestað skilorðsbundið í tvö ár. Þá voru ákvæði héraðsdóms um upptöku fíkniefna og ökuréttarsviptingu staðfest.

Héraðsdómur Reykjaness birt 23. mars 2021

S-1241/2020

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Ásgrími Gunnari Egilssyni
Lykilorð: Umferðarlagabrot.
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir að aka undir áhrifum áfengis.

Landsréttur birt 19. mars 2021

3/2020

Ákæruvaldið gegn Alfreð Mortensen (Ásgeir Örn Blöndal Jóhannsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

A var sakfelldur fyrir að hafa, á tímabilinu frá október 2017 til júní 2018, ekið bifreið sviptur ökurétti í fjögur skipti og þar af óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa áfengis í eitt skipti. Þá var hann sakfelldur fyrir þjófnað og vopnalagabrot. Hann játaði sök. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að hann hafði ítrekað sætt viðurlagaákvörðunum og fangelsisrefsingum vegna brota af sama toga, allt frá árinu 2009, og þar af sex sinnum verið fundinn sekur um akstur sviptur ökurétti. Með hliðsjón af framangreindu og að teknu tilliti til þjófnaðar- og vopnalagabrota A þótti refsing hans hæfilega ákveðin 13 mánaða fangelsi. Þá voru ákvæði héraðsdóms um sviptingu ökuréttar og sektargreiðslu í ríkissjóð staðfest.

Landsréttur birt 19. mars 2021

779/2019

Ákæruvaldið (Hulda María Stefánsdóttir saksóknari) gegn X (Björgvin Jónsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

X var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot með því að hafa ekið bifreið, sem hafnaði utan vegar í skurði, ófær um að stjórna henni örugglega vegna áhrifa slævandi lyfja. Í dómi Landsréttar kom fram að niðurstaða fyrirliggjandi matsgerðar væri afdráttarlaus um að X hefði verið undir slíkum áhrifum að hann hefði verið óhæfur til að stjórna ökutæki örugglega umrætt sinn. Var X gert að greiða 70.000 króna sekt í ríkissjóð en ella sæta fangelsi í sex daga. Þá var hann sviptur ökurétti í fjóra mánuði.

Héraðsdómur Reykjaness birt 15. mars 2021

S-1556/2020

Ákæruvaldið (Daníel Reynisson saksóknarfulltrúi) gegn X (Arnar Kormákur Friðriksson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Karlmaður á þrítugsaldri var dæmdur í 12 mánaða fangelsi fyrir peningaþvætti, hylmingu, fjölda umferðarlagabrota, brot gegn vopnalögum, fíkniefnalögum o.fl. Refsing var skilorðsbundin, ekki síst í ljósi þess að ákærði hafði ekki áður hlotið refsidóm. Þá var ákærði sviptur ökurétti í fimm ár. Synjað var um upptöku á tveimur bifreiðum í eigu ákærða, en fjöldi annarra verðmæta gerður upptækur til ríkissjóðs.

Héraðsdómur Reykjaness birt 2. mars 2021

S-3277/2020

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Gyða Ragnheiður Stefánsdóttir saksóknarfulltrúi) gegn Sveini Annasi Pálssyni
Lykilorð: Umferðarlagabrot.
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir umferðarlagabrot.

Héraðsdómur Reykjaness birt 2. mars 2021

S-3061/2020

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Patrick Kanwischer
Lykilorð: Umferðarlagabrot.
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði dæmdur fyrir umferðar- og lögreglulagabrot.

Héraðsdómur Reykjaness birt 18. febrúar 2021

S-1577/2020

Ákæruvaldið (Friðrik Smári Björgvinsson aðstoðarsaksóknari) gegn X (Inga Lillý Brynjólfsdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir brot gegn valdstjórninni, gripdeild og akstur án ökuréttar og undir áhrifum ávana- og fíkniefna.

Landsréttur birt 29. janúar 2021

645/2019

Ákæruvaldið gegn Þorvaldi Árna Þorvaldssyni (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Þ var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot með því að hafa ekið bifreið sviptur ökurétti og undir áhrifum áfengis. Í samræmi við 1. mgr. 2. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 var með dómi Landsréttar dæmt um umferðarlagabrot Þ eftir nýjum umferðarlögum nr. 77/2019 sem tóku gildi eftir að hinn áfrýjaði dómur féll. Að virtum sakaferli Þ og með hliðsjón af 78. gr. almennra hegningarlaga var refsing Þ ákveðin fangelsi í 60 daga. Þá var hann sviptur ökurétti ævilangt.

Landsréttur birt 18. desember 2020

744/2019

Ákæruvaldið (Einar Tryggvason saksóknari) gegn X (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

X var ákærður fyrir umferðarlagabrot með því að hafa ekið bifreið undir áhrifum áfengis með þeim afleiðingum að bifreiðin rakst á götuvita og að hafa ekið brott af vettvangi án þess að gera lögreglu viðvart um óhappið. Í dómi Landsréttar var tekið fram að refsing fyrir umferðarlagabrotin myndi ekki fara fram úr sektum og fyrndist því á tveimur árum. Hafi sök X verið fyrnd þegar hann var yfirheyrður af lögreglu um sakarefnið. X var einnig gefið að sök brot gegn valdstjórninni samkvæmt 1. mgr. 106. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með því að hafa, eftir að hafa verið handtekinn vegna framangreindra umferðarlagabrota og færður á lögreglustöð, hótað tveimur lögreglumönnum ofbeldi með nánar tilgreindum ummælum. Í dómi Landsréttar kom fram að ekki yrði annað ráðið en að lýsing á þeirri háttsemi sem X var gefin að sök væri reist á skýrslu lögreglumanns sem jafnframt væri annar brotaþola í málinu. X hefði neitað að hafa viðhaft ummælin og lögreglumennirnir sem í hlut áttu hafi munað atvik illa er þeir gáfu skýrslu fyrir dómi. Taldi Landsréttur að ekki væri komin fram sönnun fyrir því að X hefði hótað lögreglumönnunum tveimur. Var X því sýknaður af kröfum ákæruvaldsins.

Héraðsdómur Suðurlands birt 3. desember 2020

S-615/2020

Lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum (Arndís Bára Ingimarsdóttir fulltrúi) gegn Ásgeiri Gunnarssyni og Sævari Erni Guðmundssyni (Aníta Óðinsdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Tveir menn voru fundnir sekir um fíkniefnalagabrot. Þá var annar þeirra jafnframt fundinn sekur um ölvunar- og vímuakstur. Voru báðir dæmdir til að sæta fangelsi, en fullnustu refsingu beggja frestað skilorðsbundið. Þá var annar jafnframt dæmdur til greiðslu sektar og hann sviptur ökurétti.

Héraðsdómur Reykjaness birt 23. nóvember 2020

S-975/2019

Ákæruvaldið (Súsanna Björg Fróðadóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Steinþóri Einarssyni (Snorri Sturluson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir brot á almennum hegningarlögum, umferðarlögum, lögum um ávana- og fíkniefni, vopnalögum, lögreglulögum, lyfjalögum og tollalögum

Landsréttur birt 30. október 2020

145/2019

Ákæruvaldið (Marín Ólafsdóttir saksóknari) gegn Helenu Natalíu Albertsdóttur (Gísli Tryggvason lögmaður) (Agnar Þór Guðmundsson lögmaður einkaréttarkröfuhafa)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

H var sakfelld fyrir líkamsárás, þjófnað í samverknaði við aðra, akstur án þess að hafa öðlast ökuréttindi, akstur í fjögur aðgreind skipti svipt ökurétti, þar af einu sinni einnig undir áhrifum fíkniefna, og loks fyrir að hafa í tvígang haft fíkniefni í vörslum sínum. Eldri skilorðsdómur var tekinn upp og H gerð refsing í einu lagi fyrir bæði málin. Var refsing H ákveðin fimm mánaða fangelsi en með hliðsjón af þeim drætti sem orðið hafði á meðferð málsins og þeim jákvæðu breytingum sem orðið hefðu á högum hennar var fullnustu refsingar frestað skilorðsbundið í þrjú ár. Þá voru ákvæði héraðsdóms um upptöku á fíkniefnum, ökuréttarsviptingu og fjárhæð einkaréttarkröfu brotaþola staðfest.

Héraðsdómur Suðurlands birt 22. október 2020

S-404/2020

Lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum (Arndís Bára Ingimarsdóttir lögreglustjóri) gegn Alexander Þór Heimissyni (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var fundinn sekur um umferðarlagabrot, meðal annars ítrekaðan ölvunarakstur og akstur undir áhrifum fíkniefna svo og nytjastuld og fíkniefnalagabrot. Var honum gert að sæta fangelsi í 90 daga, en fullnustu 45 daga refsingarinnar var frestað skilorðsbundið til tveggja ára. Þá var ákærði sviptur ökurétti ævilangt og gert að sæta upptöku fíkniefna.

Héraðsdómur Reykjaness birt 16. október 2020

S-2258/2019

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Gylfa Gunnarssyni (Þormóður Skorri Steingrímsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir umferðarlagabrot og dæmdur í 90 daga fangelsi en fullnstu 60 daga af refsingunni frestað skilorðsbundið í tvö ár. Þá var ákærði sviptur ökurétti ævilangt.

Hleð fleiri dómum…