Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

322 dómar fundust

Lög: Lög um breyting á almennum hegningarlögum, nr. 19 12. febrúar 1940. nr. 39/1995

Landsréttur birt 3. október 2024

302/2023

Ákæruvaldið (Einar Tryggvason saksóknari) gegn Guðmundi Erni Jenssyni (Sævar Þór Jónsson lögmaður, Lárus Sigurður Lárusson lögmaður, 3. prófmál)
Málaflokkur: Skattaréttur

G var sakfelldur í héraði fyrir meiri háttar brot gegn skattalögum með því að hafa ekki, sem daglegur stjórnandi einkahlutafélagsins A og síðar skráður framkvæmda- stjóri þess, staðið skil á virðisaukaskattskýrslu félagsins, virðisaukaskatti sem innheimtur var, eða innheimta bar, í rekstri félagsins sem og staðgreiðslu opinberra gjalda, sem haldið var eftir af launum starfsmanna. Í héraði var G gert að sæta fangelsi í sex mánuði skilorðsbundið og greiða fésekt að fjárhæð 31.100.000 krónur. Fyrir Landsrétti var deilt um hvort G gæti talist hafa verið einn af daglegum stjórnendum félagsins það tímabil sem ákæra tæki til. Landsréttur taldi það sannað og að hann hefði sem slíkur borið ábyrgð á skattskilum félagsins. Í þeim efnum leit Landsréttur meðal annars til þess að hann hefði komið að samningsgerð vegna verka fyrir hönd félagsins, undirritað greiðsluáætlanir vegna skattskulda þess, haft umboð fyrir bankareikninga félagsins og prókúru. Þá væri óumdeilt að G hefði tekið við sem framkvæmdastjóri félagsins á tilteknu tímabili. G hefði því átt aðkomu að ákvörðunartöku um hvaða skuldir félagsins væru greiddar umfram aðrar á því tímabili sem ákæran næði til og sýnt af sér stórkostlegt hirðuleysi, sbr. 1. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988 um virðisaukaskatt og 2. mgr. 30. gr. laga nr. 45/1987 um staðgreiðslu opinberra gjalda, sbr. 1. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Var hinn áfrýjaði dómur því staðfestur að öðru leyti en því að G var gert að greiða 34.956.828 krónur í sekt til ríkissjóðs.

Landsréttur birt 27. október 2023

106/2023

Ákæruvaldið (Ásmunda Björg Baldursdóttir saksóknari) gegn X (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður)
Málaflokkur: Skattaréttur

Með dómi Landsréttar 15. júní 2018 var X sakfelldur fyrir stórfelld skattalaga- og bókhaldsbrot ásamt peningaþvætti. Ákæru á hendur X fyrir að skila efnislega röngum skattframtölum og láta undir höfuð leggjast að skila tekjuskatti og útsvari var hins vegar vísað frá héraðsdómi þar sem skattyfirvöld höfðu áður gert honum að greiða álag á vantalinn skattstofn vegna sömu brota en hin tvíþætta málsmeðferð var talin fara í bága við 4. gr. 7. viðauka mannréttindasáttmála Evrópu. Með úrskurði endurupptökudóms 23. janúar 2023 var fallist á beiðni X um endurupptöku málsins fyrir Landsrétti. Við hina endurteknu málsmeðferð komst Landsréttur að sömu niðurstöðu og í hinum upphaflega dómi um að sakfella bæri X fyrir að hafa skilað efnislega röngum virðisaukaskattskýrslum og ekki staðið skil á virðisaukaskatti sem innheimtur var í starfsemi A ehf. og B ehf. Jafnframt fyrir að hafa ekki staðið skil á virðisaukaskattskýrslum í starfsemi A ehf. Þá var X sakfelldur fyrir að láta undir höfuð leggjast að færa lögboðið bókhald beggja félaga á nánar tilgreindum rekstrartímabilum. Loks var X sakfelldur fyrir peningaþvætti með því leggja fjármuni, sem voru hluti ávinnings af þeim brotum, inn á tilgreinda bankareikninga, geyma þá og ráðstafa þeim svo til persónulega útgjalda og fasteignakaupa. Þá var jafnframt komist að sömu niðurstöðu er varðaði frávísun ákæru að hluta frá héraðsdómi. Var refsing X ákveðin fangelsi í 18 mánuði, en fullnustu hennar frestað skilorðsbundið í 3 ár. Þá var honum gert að greiða 258.000.000 króna í sekt.

Hæstiréttur birt 4. október 2023

14/2023

Ákæruvaldið (Ásmunda B. Baldursdóttir saksóknari) gegn X (Halldór Jónsson lögmaður)
Málaflokkur: Skattaréttur

Með dómi Hæstaréttar 11. júní 2015 í máli nr. 550/2014 hafði X verið sakfelldur fyrir meiri háttar brot gegn skattalögum og 262. gr. almennra hegningarlaga. Með úrskurði Endurupptökudóms 28. febrúar 2023 var fallist á beiðni X um endurupptöku málsins hvað hann varðaði. Ákæruvaldið tók undir kröfu X um að vísa málinu frá héraðsdómi þar sem efnismeðferð og sakfelling myndi brjóta í bága við 1. mgr. 4. gr. 7. samningsviðauka við mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, um rétt til að vera ekki saksóttur eða refsað tvívegis. Samkvæmt því og í ljósi málsatvika féllst Hæstiréttur á kröfu ákæruvaldsins um að málinu yrði vísað frá héraðsdómi.

Landsréttur birt 31. mars 2023

605/2022

Ákæruvaldið (Einar Tryggvason saksóknari) gegn X (Gestur Jónsson lögmaður)
Málaflokkur: Skattaréttur

Með dómi Landsréttar árið 2020 var X sakfelldur fyrir meiri háttar brot gegn skattalögum. Með úrskurði Endurupptökudóms frá 2022 var fallist á beiðni X um endurupptöku málsins. Ákæruvaldið tók undir kröfu X um að vísa málinu frá héraðsdómi þar sem efnismeðferð og sakfelling myndi brjóta í bága við 1. mgr. 4. gr. 7. samningsviðauka við mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, um rétt til að vera ekki saksóttur eða refsað tvívegis vegna sama brots. Að gættri þeirri kröfugerð, sem X hefði tekið undir, og í ljósi málsatvika og dóma Hæstaréttar í málum nr. 46/2021 nr. 34/2021 nr. 11/2022 og nr. 21/2022, var málinu vísað frá héraðsdómi.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 13. mars 2023

S-4383/2022

Héraðssaksóknari (Teitur Már Sveinsson saksóknarfulltrúi) gegn Guðmundi Erni Jenssyni (Sævar Þór Jónsson lögmaður), Magnúsi Líndal Sigurgeirssyni (Þórður Guðmundsson lögmaður) og X (Lárus Sigurður Lárusson lögmaður)
Málaflokkur: Skattaréttur

Tveir ákærðu voru sakfelldir fyrir skatta- og hegningarlagabrot og dæmdir í 6 mánaða fangelsi skilorðsbundið til tveggja ára og til greiðslu sektar. Einn ákærðu var sýknaður.

Landsréttur birt 10. febrúar 2023

220/2021

Ákæruvaldið (Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari) gegn X og Ö ehf. og XX ehf. og YY ehf. og ÆÆ ehf. (Sveinn Andri Sveinsson lögmaður) og Y og ZZ ehf. og ÞÞ ehf. (Jóhann Karl Hermannsson lögmaður)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

X, Y og Z voru, ásamt tilgreindum félögum þeim tengdum, meðal annars ákærðir fyrir meiri háttar brot gegn skattalögum og peningaþvætti með því að hafa ýmist staðið skil á efnislega röngum skattframtölum, eigi staðið skil á skattframtölum eða þvættað ólögmætan ávinning af skattalagabrotunum. Með dómi héraðsdóms voru ákærðu, X og Z, sakfelldir samkvæmt ákæru en Y var sýknaður að hluta. Fyrir Landsrétti kröfðust X, Y og Z þess að tilgreindum ákæruliðum á hendur þeim yrði vísað frá héraðsdómi. Í úrskurði Landsréttar 2. desember 2022 var fallist á kröfur ákærðu að hluta en þar með var öllum sakargiftum á hendur Z vísað frá héraðsdómi. Kom því eingöngu til skoðunar niðurstaða héraðsdóms um sakfellingu ákærðu X og Y samkvæmt þeim ákæruliðum sem eftir stóðu sem og úrlausn héraðsdóms um upptöku fjármuna á reikningum tilgreindra einkahlutafélaga. Með dómi Landsréttar var niðurstaða hins áfrýjaða dóms staðfest að því er varðaði sakfellingu ákærðu fyrir skattalaga- og bókhaldsbrot í sjálfstæðum atvinnurekstri ákærða X annars vegar og í rekstri einkahlutafélagsins Æ hins vegar. Þá var þeim ákærulið sem beindist að X og varðaði ætlað peningaþvætti vísað frá héraðsdómi með vísan til c-liðar 1. mgr. 152. gr. og 1. mgr. 180. gr. laga nr. 88/2008. Að því er varðar kröfur á hendur einkahlutafélögum tengdum ákærðu X og Y, þá var rakið að upptökukröfur ákæruvaldsins væru settar fram með þeim hætti að þær lytu eingöngu að ólögmætum ávinningi ætlaðra brota sem vísað hefði verið frá héraðsdómi. Samkvæmt þessu, og í ljósi þess hvernig ákæruvaldið hefði kosið að afmarka kröfur sínar um upptöku, gætu þeir fjármunir sem krafist var upptöku á ekki talist ólögmætur ávinningur refsiverðrar háttsemi. Var öllum kröfum ákæruvaldsins um upptöku fjármuna því hafnað. Við ákvörðun refsingar var litið til þess langa tíma sem rannsókn og meðferð málsins hafði tekið. Með þeirri athugasemd en að öðru leyti með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms var refsing ákærðu hvors um sig ákveðin skilorðsbundið fangelsi í 12 mánuði. Þá var X gert að greiða 52.758.807 krónur í sekt til ríkissjóðs og Y 59.056.545 krónur.

Hæstiréttur birt 8. febrúar 2023

42/2022

Ákæruvaldið (Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari) gegn X (Ragnar Halldór Hall lögmaður)
Málaflokkur: Skattaréttur

Með dómi Hæstaréttar 21. september 2017 í máli nr. 283/2016 hafði X verið sakfelldur fyrir meiri háttar brot gegn skattalögum. Með úrskurði Endurupptökudóms 15. júní 2022 var fallist á beiðni X um endurupptöku málsins. Ákæruvaldið tók undir kröfu X um að vísa málinu frá héraðsdómi þar sem efnismeðferð og sakfelling myndi brjóta í bága við 1. mgr. 4. gr. 7. samningsviðauka við mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, um rétt til að vera ekki saksóttur eða refsað tvívegis. Samkvæmt því og í ljósi málsatvika féllst Hæstiréttur á kröfu ákæruvaldsins um að málinu yrði vísað frá héraðsdómi.

Landsréttur birt 9. desember 2022

444/2022

Ákæruvaldið (Einar Tryggvason saksóknari) gegn X (Ragnar Halldór Hall lögmaður)
Málaflokkur: Skattaréttur

Með dómi Landsréttar árið 2020 hafði X verið sakfelldur fyrir meiri háttar brot gegn skattalögum. Með úrskurði Endurupptökudóms frá 2022 var fallist á beiðni X um endurupptöku málsins. Ákæruvaldið tók undir kröfu X um að vísa málinu frá héraðsdómi þar sem efnismeðferð og sakfelling myndi brjóta í bága við 1. mgr. 4. gr. 7. samningsviðauka við mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, um rétt til að vera ekki saksóttur eða refsað tvívegis vegna sama brots. Samkvæmt því og í ljósi atvika málsins féllst Landsréttur á kröfu X og ákæruvaldsins um að málinu yrði vísað frá héraðsdómi.

Landsréttur birt 2. desember 2022

220/2021

Ákæruvaldið (Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari) gegn X og Ö ehf. og XX ehf. og YY ehf. og ÆÆ ehf. (Sveinn Andri Sveinsson lögmaður), Y og ZZ ehf. og ÞÞ ehf. (Jóhann Karl Hermannsson lögmaður) og Z (Jón Egilsson lögmaður, Kristján Gunnar Valdimarsson lögmaður, 3. prófmál)
Málaflokkur: Skattaréttur

X, Y og Z voru, ásamt tilgreindum félögum þeim tengdum, meðal annars ákærðir fyrir meiri háttar brot gegn skattalögum og peningaþvætti með því að hafa ýmist staðið skil á efnislega röngum skattframtölum, eigi staðið skil á skattframtölum eða þvættað ólögmætan ávinning af skattalagabrotunum. Með dómi héraðsdóms voru ákærðu, X og Z, sakfelldir samkvæmt ákæru en Y var sýknaður að hluta. Fyrir Landsrétti kröfðust X, Y og Z þess að tilgreindum ákæruliðum á hendur þeim yrði vísað frá héraðsdómi. Í úrskurði Landsréttar var rakið að vissir liðir ákæru tækju til sömu annmarka á skattskilum ákærðu og álagsbeiting ríkisskattsstjóra samkvæmt 1. og 2. mgr. 108. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt laut að. Álag ríkisskattsstjóra hefði verið fellt niður með úrskurði yfirskattanefndar en að mati dómsins væri ekki tækur annar skýringarkostur en að leggja til grundvallar að niðurfelling álagsins hafi falið í sér sýknu í skilningi 1. mgr. 4. gr. 7. samningsviðauka við mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Rakin voru þau viðmið um túlkun ákvæðisins sem beitt hefur verið í dómaframkvæmd. Ekki var talið að sýnt hefði verið fram á að viðmið um nægjanlega samþættingu í tíma væru uppfyllt og var þeim ákæruliðum sem fyrrgreint ákvæði tók til því vísað frá héraðsdómi. Þá var tilteknum ákæruliðum, sem sneru að ætluðu peningaþvætti ákærðu, vísað frá héraðsdómi, ýmist vegna þess að ákæruliðirnir uppfylltu ekki kröfur c-liðar 1. mgr. 152. gr. laga nr. 88/2008, eða á grundvelli fyrrgreinds ákvæðis mannréttindasáttmálans.

Hæstiréttur birt 9. nóvember 2022

10/2022

Ákæruvaldið (Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari) gegn Jóni Ásgeiri Jóhannessyni og Tryggva Jónssyni (Gestur Jónsson lögmaður)
Málaflokkur: Skattaréttur

Með dómi Hæstaréttar 7. febrúar 2013 í máli nr. 74/2012 voru J og T sakfelldir fyrir meiri háttar brot gegn skattalögum, sem þeir frömdu í eigin nafni og sem stjórnendur B hf. Endurupptökudómur féllst á beiðni J og T um endurupptöku málsins. Vísað var til þess að Mannréttindadómstóll Evrópu hefði 18. maí 2017 komist að þeirri niðurstöðu að með framangreindum dómi Hæstaréttar hefði verið brotið gegn rétti J og T samkvæmt 4. gr. 7. viðauka við mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Ákærðu og ákæruvaldið kröfðust þess að vísað yrði frá dómi sakargiftum samkvæmt I. og II. kafla ákæru, en ágreiningur aðila laut að ákvörðun refsingar vegna 1. og 2. tölul. III. kafla ákæru. Í dómi Hæstaréttar kom fram að í ljósi málsatvika og með hliðsjón af dómum Hæstaréttar væri málinu vísað frá héraðsdómi er varðaði sakargiftir samkvæmt I. og II. kafla ákæru. Þá kom fram að með hliðsjón af brotum J samkvæmt III. kafla ákæru og að teknu tilliti til dómaframkvæmdar væru brot hans talin meiri háttar og heimfærð til 1. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og 2. mgr. 30. gr. laga nr. 45/1987. T var talinn hafa brotið gegn 2. mgr. 30. gr. laga nr. 45/1987. Að teknu tilliti til þess verulega dráttar sem orðið hafði á rannsókn málsins og meðferð þess fyrir dómi á fyrri stigum og með hliðsjón af þeim sektargreiðslum sem J og T höfðu þegar innt af hendi var þeim ekki gerð sérstök refsing í málinu.

Hæstiréttur birt 14. september 2022

21/2022

Ákæruvaldið (Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari) gegn X (Stefán Geir Þórisson lögmaður)
Málaflokkur: Skattaréttur

Með dómi Hæstaréttar 15. maí 2014 í máli nr. 465/2013 hafði X verið sakfelldur fyrir meiri háttar brot gegn skattalögum. Með úrskurði Endurupptökudóms 21. janúar 2022 var fallist á beiðni X um endurupptöku málsins. Ákæruvaldið tók undir kröfu X um að vísa málinu frá héraðsdómi þar sem efnismeðferð og sakfelling myndi brjóta í bága við 1. mgr. 4. gr. 7. samningsviðauka við mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, um rétt til að vera ekki saksóttur eða refsað tvívegis. Samkvæmt því og í ljósi málsatvika féllst Hæstiréttur á kröfu ákæruvaldsins um að málinu yrði vísað frá héraðsdómi.

Hæstiréttur birt 22. júní 2022

11/2022

Ákæruvaldið (Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari) gegn X (Heiðar Ásberg Atlason lögmaður)
Málaflokkur: Skattaréttur

Með dómi Hæstaréttar 22. maí 2014 í máli nr. 416/2013 hafði X verið sakfelldur fyrir meiri háttar brot gegn skattalögum. Með úrskurði Endurupptökudóms 21. janúar 2022 var fallist á beiðni X um endurupptöku málsins. Ákæruvaldið tók undir kröfu X um að vísa málinu frá héraðsdómi þar sem efnismeðferð og sakfelling myndi brjóta í bága við 1. mgr. 4. gr. 7. samningsviðauka við mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, um rétt til að vera ekki saksóttur eða refsað tvívegis og vísaði meðal annars til dóms Mannréttindadómstóls Evrópu í máli X. Samkvæmt því og í ljósi málsatvika féllst Hæstiréttur á kröfu ákæruvaldsins um að málinu yrði vísað frá héraðsdómi.

Hæstiréttur birt 25. mars 2021

29/2020

Ákæruvaldið (Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari) gegn Júlíusi Vífli Ingvarssyni (Hörður Felix Harðarson lögmaður)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

J var ákærður fyrir peningaþvætti samkvæmt 1., sbr. 2. mgr. 264. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með því að hafa á árunum 2010 til 2014 geymt ávinning af skattalagabrotum inni á erlendum bankareikningi í sínu nafni og ráðstafað þeim fjármunum á árinu 2014 inn á annan erlendan bankareikning sem var í eigu vörslusjóðs sem skráður var í Panama og J var rétthafi að. Í dómi Hæstaréttar kom fram að í málinu væru uppfylltar þær kröfur um sönnun frumbrots og ávinnings sem væru gerðar í peningaþvættismálum. Óumdeilt var að skattalagabrot J voru fyrnd og að ávinningur brotanna féll til fyrir þann tíma er sjálfsþvætti var gert refsivert með lögum nr. 149/2009. Í dóminum var rakið að sú háttsemi J sem lýst væri í ákæru hefði staðið yfir þegar sjálfsþvætti var gert refsivert 1. janúar 2010 og þar til J ráðstafaði ávinningnum inn á annan bankareikning 2014. Kæmi því ekki til álita að 1. mgr. 2. gr. almennra hegningarlaga og 1. mgr. 69. gr. stjórnarskrárinnar, um bann við afturvirkri beitingu refsilaga, kæmi í veg fyrir að verknaður J teldist refsiverður. Með vísan til forsögu 264. gr. almennra hegningarlaga, tilgangs ákvæðisins og þeirra hagsmuna sem því væri ætlað að vernda var talið að brot gegn því sem fælu í sér ástandsbrot fyrndust ekki fyrr en ástandinu lyki, sbr. 1. mgr. 82. gr. laganna. Niðurstaða hins áfrýjaða dóms um sakfellingu J var því staðfest. Refsing J var ákveðin fangelsi í sex mánuði en fullnustu hennar frestað skilorðsbundið í tvö ár.

Héraðsdómur Suðurlands birt 13. janúar 2021

S-304/2019

Héraðssaksóknari (Ásmunda Björg Baldursdóttir saksóknari) gegn Sigurði Ívari Mássyni (Óskar Sigurðsson lögmaður) og og Sigurði Erni Sigurðssyni (Pétur Fannar Gíslason lögmaður)
Lykilorð: Skattalög.
Málaflokkur: Skattaréttur

Ákærðu sakfelldir fyrir skattalagabrot.

Landsréttur birt 18. desember 2020

534/2019

Ákæruvaldið (Einar Tryggvason saksóknari) gegn X (Ragnar Halldór Hall lögmaður)
Málaflokkur: Skattaréttur

X var sakfelldur í héraði fyrir meiri háttar brot gegn skattalögum og 1. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með því að hafa staðið skil á efnislega röngum skattframtölum gjaldárin 2008 og 2009 vegna tekjuáranna 2007 og 2008 á þann hátt að hafa látið undir höfuð leggjast að telja fram á skattframtölum sínum fjármagnstekjur af uppgjöri á 44 framvirkum gjaldmiðlasamningum, samtals að fjárhæð 110.504.000 krónur. Fyrir Landsrétti krafðist X þess aðallega að málinu yrði vísað frá dómi, til vara sýknu, að því frágengnu að ákvörðun refsingar yrði frestað en að öðrum kosti að fullnustu refsingar yrði frestað skilorðsbundið. Rétturinn féllst ekki á þá röksemd fyrir frávísun málsins að meðferð þess fyrir dómstólum bryti gegn banni við endurtekinni málsmeðferð samkvæmt 4. gr. 7. viðauka við mannréttindasáttmála Evrópu. Þá var heldur ekki fallist á að efni væru til að vísa málinu frá dómi á þeim grunni að úrskurður Landsréttar í máli nr. 277/2018, sem felldi úr gildi frávísunarúrskurð héraðsdóms, hefði verið kveðinn upp af dómstól sem ekki hefði verið skipaður samkvæmt lögum. Landsréttur staðfesti niðurstöðu héraðsdóms um sakfellingu X. Var refsing hans ákveðin fangelsi í fjóra mánuði auk þess sem honum var gert að greiða sekt í ríkissjóð að fjárhæð 19.338.200 krónur, sem nam tvöfaldri fjárhæð þess skattstofns sem undan var dreginn að frádregnum skatti af álagi. Var fullnustu refsingar X, bæði refsivist og fésekt, frestað skilorðsbundið í tvö ár, en ryfi hann skilorð skyldi 270 daga fangelsi koma í stað sektarinnar.

Landsréttur birt 18. desember 2020

388/2019

Ákæruvaldið (Einar Tryggvason saksóknari) gegn X (Gestur Jónsson lögmaður)
Málaflokkur: Skattaréttur

X var sakfelldur í héraði fyrir meiri háttar brot gegn skattalögum og 1. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með því að hafa staðið skil á efnislega röngum skattframtölum gjaldárin 2007, 2008 og 2009 vegna tekjuáranna 2006, 2007 og 2008 með því að hafa látið undir höfuð leggjast að telja fram á skattframtölum sínum tekjur af uppgjöri á samtals 584 gjaldmiðlasamningum, samtals að fjárhæð 593.522.000 krónur. Fyrir Landsrétti krafðist X þess aðallega að málinu yrði vísað frá dómi, til vara sýknu, að því frágengnu að ákvörðun refsingar yrði frestað en að öðrum kosti að fullnustu refsingar yrði frestað skilorðsbundið. Landsréttur féllst ekki á þá röksemd fyrir frávísun málsins að meðferð málsins fyrir dómstólum bryti gegn banni við endurtekinni málsmeðferð samkvæmt 4. gr. 7. viðauka við mannréttindasáttmála Evrópu. Landsréttur staðfesti niðurstöðu héraðsdóms um sakfellingu X. Var refsing X ákveðin fangelsi í átta mánuði auk þess sem honum var gert að greiða sekt í ríkissjóð að fjárhæð 103.680.100 krónur, sem nam tvöfaldri fjárhæð þess skattstofns sem undan var dreginn að frádregnum skatti af álagi. Var fullnustu refsingar X, bæði refsivist og fésekt, frestað skilorðsbundið í tvö ár, en ryfi X skilorðið skyldi tólf mánaða fangelsi koma í stað sektarinnar.

Landsréttur birt 4. desember 2020

385/2019

Ákæruvaldið (Einar Tryggvason saksóknari) gegn Pétri Þór Sigurðssyni (Björgvin Þorsteinsson lögmaður, Helga Björg Jónsdóttir lögmaður, 1. prófmál)
Málaflokkur: Skattaréttur

P var sakfelldur í héraði fyrir brot gegn lögum um virðisaukaskatt og bókhald, sbr. 1. og 2. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með því að hafa ekki staðið skil á virðisaukaskattsskýrslum, ekki staðið ríkissjóði skil á virðisaukaskatti sem innheimtur var í starfsemi einkahlutafélags hans L ehf. og látið undir höfuð leggjast að færa lögboðið bókhald félagsins. Fyrir Landsrétti krafðist P þess aðallega að málinu yrði vísað frá dómi, til vara að hann yrði sýknaður en til þrautavara vægustu refsingar sem lög leyfa. Landsréttur féllst ekki á þær málsástæður fyrir frávísun málsins að meðferð þess hefði dregist úr hófi í andstöðu við ákvæði stjórnarskrárinnar og mannréttindasáttmála Evrópu, að meðferð málsins fyrir dómstólum bryti bann við endurtekinni málsmeðferð samkvæmt 4. gr. 7. viðauka við mannréttindasáttmála Evrópu, að P hefði ekki notið réttlátrar málsmeðferðar eða að rannsókn málsins væri áfátt. Þá staðfesti Landsréttur niðurstöðu héraðsdóms um sakfellingu P og ákvæði hans um fangelsisrefsingu sem þótti hæfilega ákveðin í sex mánuði en fullnustu hennar frestað skilorðsbundið í tvö ár. P var jafnframt gert að greiða sekt í ríkissjóð að fjárhæð 35.400.000 krónur, að teknu tilliti til lögbundins lágmarks og álags sem kærði hafði þegar greitt, og skyldi 360 daga fangelsi koma í stað sektarinnar yrði hún ekki greidd innan fjögurra vikna.

Landsréttur birt 5. júní 2020

24/2019

Ákæruvaldið (Einar Tryggvason saksóknari) gegn Ágústi Alfreð Snæbjörnssyni (Gunnar Egill Egilsson lögmaður) og X (Ólafur Eiríksson lögmaður)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Á og X voru sakfelldir í héraði fyrir meiri háttar brot gegn skattalögum, sbr. 1. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og 2. mgr. 30. gr. laga nr. 45/1987 um staðgreiðslu opinberra gjalda, með því að hafa á nánar tilgreindum tímabilum í störfum sínum sem framkvæmdastjórar H ehf. látið hjá líða að standa ríkissjóði skil á staðgreiðslu opinberra gjalda. Á var einnig sakfelldur fyrir brot gegn 1. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga og 1. mgr. 40 gr. laga nr. 50/1988 með því að hafa á nánar tilgreindum tímabilum í starfi sínu sem framkvæmdastjóri A látið hjá líða að standa ríkissjóði skil á virðisaukaskatti og virðisaukaskattsskýrslum. Þá var Á sakfelldur fyrir skilasvik, sbr. 2. tölulið 1. mgr. 250. gr. almennra hegningarlaga, með því að hafa sem framkvæmdastjóri A gefið tilmæli um greiðslu á andvirði tveggja lokauppgjöra vegna verksamninga, samtals að fjárhæð 50.105.000 krónur, inn á bankareikning A þrátt fyrir að hafa verið kunnugt um að greiðslurnar hefðu verið veðsettar M hf. Landsréttur staðfesti niðurstöðu héraðsdóms um sakfellingu Á en sýknaði X af kröfum ákæruvaldsins þar sem ekki var talið að hann hefði borið slíka ábyrgð á skattskilum H ehf. á því tímabili sem lýst var í ákæru. Við ákvörðun refsingar Á var litið til þess að honum hafði ekki áður verið gerð refsing auk þess sem litið var til þess að óútskýrður dráttur hefði orðið á meðferð málsins. Var refsing Á ákveðin fangelsi í tvö ár en fullnustu hennar frestað skilorðsbundið í tvö ár. Þá var honum gert að greiða 237.623.978 króna sekt í ríkissjóð og skyldi 360 daga fangelsi koma í stað sektarinnar yrði hún ekki greidd innan fjögurra vikna.

Landsréttur birt 15. maí 2020

213/2019

Ákæruvaldið (Einar Tryggvason saksóknari) gegn Valgarð Þórarni Sörensen (Karl Georg Sigurbjörnsson lögmaður, Jónas Örn Jónasson lögmaður, 2. prófmál)
Málaflokkur: Skattaréttur

V var sakfelldur fyrir brot gegn 1. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, 1. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988 um virðisaukaskatt og 2. mgr. 30. gr. laga nr. 45/1987 um staðgreiðslu opinberra gjalda með því að hafa á nánar tilgreindum tímabilum sem meðstjórnandi og prókúruhafi A ehf. eigi staðið skil á virðisaukaskattsskýrslum félagsins, virðisaukaskatti sem innheimtur var í rekstri þess, skilagreinum félagsins vegna staðgreiðslu opinberra gjalda og staðgreiðslu sem haldið var eftir af launum starfsmanna félagsins. Hann var hins vegar sýknaður af sams konar ákæruefnum í rekstri X ehf. Refsing V var ákveðin fangelsi í tvo mánuði en fullnustu refsingarinnar frestað skilorðsbundið í tvö ár í ljósi mikils dráttar á meðferð málsins og þess að V hefur ekki áður sætt refsingu. Loks var honum gert að greiða 7.700.000 króna sekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá birtingu dómsins en sæta ella fangelsi í fjóra mánuði.

Landsréttur birt 7. maí 2020

69/2020

Ákæruvaldið (Ásmunda Björg Baldursdóttir saksóknari) gegn X (Óskar Sigurðsson lögmaður) og Y (Pétur Fannar Gíslason lögmaður)
Málaflokkur: Skattaréttur

Felldur var úr gildi úrskurður héraðsdóms þar sem máli ákæruvaldsins gegn X og Y, sem fyrirsvarsmanna A ehf., var vísað frá dómi á grundvelli þess að skort hefði á skilyrði um nauðsynlega samþættingu málsmeðferða í efni og tíma á hendur þeim vegna meintra skattalagabrota, í trássi við 4. gr. 7. viðauka mannréttindasáttmála Evrópu. Var það niðurstaða Landsréttar að ekki yrði talið að rannsókn á skattskilum félagsins hefði lokið með skýrslu skattrannsóknarstjóra árið 2014 enda hefði ekki komið til endurákvörðunar gjalda vegna gjaldþrots og afskráningar félagsins, auk þess sem skattrannsóknarstjóri hefði vísað málinu til rannsóknar héraðssaksóknara ári síðar. Tafir á rannsókn málsins þar gætu ekki breytt því. Þá var talið að um tvö aðskilin mál væri að ræða, annars vegar persónuleg skattskil aðila og hins vegar skattskil félagsins, og því hefði það ekki þýðingu að leysa úr því hvort skilyrði um samþættingu málsmeðferða væri til staðar.

Landsréttur birt 6. mars 2020

474/2019

Ákæruvaldið (Jón H. B. Snorrason saksóknari) gegn Fríðu Maríönnu Stefánsdóttur (Sævar Þór Jónsson lögmaður)
Málaflokkur: Skattaréttur

F var sakfelld fyrir brot gegn 1. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, 1. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988 um virðisaukaskatt og 2. mgr. 30. gr. laga nr. 45/1987 um staðgreiðslu opinberra gjalda með því að hafa á nánar tilgreindum tímabilum í starfi sínu sem stjórnarmaður og prókúruhafi R ehf. látið hjá líða að standa ríkissjóði skil á virðisaukaskatti sem innheimtur var í rekstri R ehf., skilagreinum félagsins vegna staðgreiðslu opinberra gjalda og staðgreiðslu sem haldið var eftir af launum starfsmanna félagsins. Við ákvörðun refsingar var litið til sakaferils F og refsing hennar ákveðin fangelsi í átta mánuði en fullnustu refsingarinnar frestað skilorðsbundið í tvö ár. Þá var henni gert að greiða 50.500.000 króna sekt í ríkissjóð innan fjögurra vikna frá birtingu dómsins en sæta ella 12 mánaða fangelsi í stað sektarinnar.

Landsréttur birt 28. febrúar 2020

687/2019

Ákæruvaldið (Ásmunda Björg Baldursdóttir saksóknari) gegn X (Heiðar Ásberg Atlason lögmaður, Bjarnfreður Ólafsson lögmaður, 1. prófmál)
Málaflokkur: Skattaréttur

Felldur var úr gildi úrskurður héraðsdóms þar sem máli ákæruvaldsins gegn X, sem áður hafði sætt álagi skattyfirvalda vegna sömu brota, var vísað frá dómi. Var það niðurstaða Landsréttar að fullnægt væri skilyrðum um nauðsynlega samþættingu málsmeðferðanna í efni og tíma og því ekki brotið gegn 4. gr. 7. viðauka mannréttindasáttmála Evrópu.

Landsréttur birt 28. febrúar 2020

686/2019

Ákæruvaldið (Ásmunda Björg Baldursdóttir saksóknari) gegn X (Heiðar Ásberg Atlason lögmaður, Bjarnfreður Ólafsson lögmaður, 1. prófmál)
Málaflokkur: Skattaréttur

Felldur var úr gildi úrskurður héraðsdóms þar sem máli ákæruvaldsins gegn X, sem áður hafði sætt álagi skattyfirvalda vegna sömu brota, var vísað frá dómi. Var það niðurstaða Landsréttar að fullnægt væri skilyrðum um nauðsynlega samþættingu málsmeðferðanna í efni og tíma og því ekki brotið gegn 4. gr. 7. viðauka mannréttindasáttmála Evrópu.

Landsréttur birt 28. febrúar 2020

685/2019

Ákæruvaldið (Ásmunda Björg Baldursdóttir saksóknari) gegn X (Heiðar Ásberg Atlason lögmaður, Bjarnfreður Ólafsson lögmaður, 1. prófmál)
Málaflokkur: Skattaréttur

Felldur var úr gildi úrskurður héraðsdóms þar sem máli ákæruvaldsins gegn X, sem áður hafði sætt álagi skattyfirvalda vegna sömu brota, var vísað frá dómi. Var það niðurstaða Landsréttar að fullnægt væri skilyrðum um nauðsynlega samþættingu málsmeðferðanna í efni og tíma og því ekki brotið gegn 4. gr. 7. viðauka mannréttindasáttmála Evrópu.

Landsréttur birt 28. febrúar 2020

684/2019

Ákæruvaldið (Ásmunda Björg Baldursdóttir saksóknari) gegn X (Heiðar Ásberg Atlason lögmaður, Bjarnfreður Ólafsson lögmaður, 1. prófmál)
Málaflokkur: Skattaréttur

Felldur var úr gildi úrskurður héraðsdóms þar sem máli ákæruvaldsins gegn X, sem áður hafði sætt álagi skattyfirvalda vegna sömu brota, var vísað frá dómi. Var það niðurstaða Landsréttar að fullnægt væri skilyrðum um nauðsynlega samþættingu málsmeðferðanna í efni og tíma og því ekki brotið gegn 4. gr. 7. viðauka mannréttindasáttmála Evrópu.

Landsréttur birt 14. febrúar 2020

870/2018

Ákæruvaldið (Einar Tryggvason saksóknari) gegn Antoni Bjarnasyni (Magnús Guðlaugsson lögmaður) og Guðmundi S. Guðmundssyni (Jón G. Briem lögmaður)
Málaflokkur: Skattaréttur

A og G voru sakfelldir fyrir meiri háttar brot gegn 1. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, 1. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988 um virðisaukaskatt og 2. mgr. 30. gr. laga nr. 45/1987 um staðgreiðslu opinberra gjalda með því að hafa í störfum sínum, A sem stjórnarformaður og daglegur stjórnandi S ehf. og G sem framkvæmdastjóri og stjórnarmaður félagsins, á tilteknum tímabilum á árunum 2014 og 2015 látið hjá líða að standa skil á virðisaukaskattskýrslu og skila staðgreiðsluskilagreinum og standa skil á slíkum gjöldum. Var refsing A og G hvors fyrir sig ákveðin fangelsi í fimm mánuði en fullnustu hennar frestað og skyldi hún falla niður að liðnum tveimur árum héldu þeir almennt skilorð. Þá var A dæmdur til að greiða 23.300.000 króna sekt í ríkissjóð og skyldi 300 daga fangelsi koma í stað sektarinnar yrði hún ekki greidd. Loks var G dæmdur til að greiða 22.500.000 króna sekt í ríkissjóð og skyldi 300 daga fangelsi koma í stað sektarinnar yrði hún ekki greidd.

Landsréttur birt 7. febrúar 2020

115/2019

Ákæruvaldið (Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari) gegn Friðmari Leifs Bogasyni (Sigmundur Hannesson lögmaður)
Málaflokkur: Skattaréttur

F var ákærður fyrir meiri háttar brot gegn skattalögum og bókhaldsbrot í rekstri einkahlutafélags á árinu 2015. F játaði skýlaust þá háttsemi sem honum var gefin að sök en taldi brot sín ekki meiri háttar. Landsréttur féllst ekki á þá málsvörn F og taldi að hann hefði framið brot sitt með sérstaklega vítaverðum hætti sem yki á saknæmi þess. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að F hafði ekki áður gerst brotlegur við lög og játaði brot sín hreinskilnislega. Einnig var tekið tillit til 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Var refsing F ákveðin fangelsi í þrjá mánuði en fullnustu hennar var frestað skilorðsbundið í tvö ár. Þá var F gert að greiða 4.900.000 króna sekt í ríkissjóð og skyldi 90 daga fangelsi koma í stað sektarinnar yrði hún ekki greidd.

Hæstiréttur birt 21. maí 2019

12/2018

Ákæruvaldið (Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari) gegn Jóni Ásgeiri Jóhannessyni og Tryggva Jónssyni (Gestur Jónsson lögmaður)

Með dómi Hæstaréttar í máli nr. 74/2012 voru J og T sakfelldir fyrir nánar tilgreind brot vegna eigin skattskila og vegna skattalagabrota í starfsemi B hf. Með úrskurði endurupptökunefndar í apríl 2018 var fallist á beiðni þeirra um endurupptöku málsins á grundvelli d. liðar 1. mgr. 228. gr., sbr. 1. mgr. 232. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála sem kveður á um heimild dómfellds manns til að leita endurupptöku ef sýnt er fram á að verulegir gallar hafi verið á meðferð máls sem áhrif hafi haft á niðurstöðu þess. Vísaði nefndin til þess að Mannréttindadómstóll Evrópu hefði 18. maí 2017 komist að þeirri niðurstöðu að með framangreindum dómi Hæstaréttar hefði verið brotið gegn rétti J og T samkvæmt 4. gr. 7. samningsviðauka mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, þar sem þeir hafi verið saksóttir og refsað tvívegis vegna sömu eða efnislega sömu háttseminnar í tveimur aðskildum málum sem ekki hafi tengst með fullnægjandi hætti. Í dómi Hæstaréttar kom fram að eftir meginreglu fyrri málsliðar 60. gr. stjórnarskrárinnar hafi dómstóllinn úrskurðarvald um ákvarðanir endurupptökunefndar og yrði því að taka afstöðu til þess hvort lög hafi með réttu staðið til þeirrar niðurstöðu sem nefndin komst að í úrskurði sínum. Tekið var fram að með aðild að mannréttindasáttmála Evrópu hefðu samningsríkin ekki undirgengist þjóðréttarlega skuldbindingu um að tryggja þeim, sem Mannréttindadómstóll Evrópu telur að brotið hafi verið gegn við meðferð máls fyrir innlendum dómstóli, rétt til að fá málið endurupptekið. Hvorki væri í lögum nr. 88/2008 né öðrum íslenskum lögum mælt berum orðum fyrir um heimild til endurupptöku máls að gengnum dómi mannréttindadómstólsins. Endurupptaka yrði því ekki reist á beinni lagaheimild. Þá var ekki talið að ákvæði d. liðar 1. mgr. 228. gr. laga nr. 88/2008 heimilaði endurupptöku málsins. Var meðal annars vísað til þess að ekki yrði séð að tilgangur löggjafans með setningu ákvæðisins hafi verið að veita úrlausnum Mannréttindadómstóls Evrópu meira vægi en þær höfðu áður í kjölfar niðurstöðu þess dómstóls um að brotið hafi verið gegn mannréttindasáttmála Evrópu við meðferð máls fyrir íslenskum dómstólum. Slík grundvallarbreyting á íslenskri löggjöf hefði þurft að koma fram með ótvíræðum hætti við lagasetninguna og yrði ákvæðið hvorki með rýmkandi lögskýringu né lögjöfnun talið veita heimild til endurupptöku máls við fyrrgreindar aðstæður. Þá væri einnig til þess að líta að fyrir lægi að óhlutdrægur og óháður dómstóll hafi komist að niðurstöðu í máli dómfelldu í samræmi við ákvæði 61. gr. stjórnarskrárinnar, sbr. fyrrnefndan dóm Hæstaréttar í máli nr. 74/2012. Í honum hafi sérstaklega verið fjallað um 4. gr. 7. viðauka mannréttindasáttmálans og komist að þeirri niðurstöðu að meðferð málsins væri ekki í andstöðu við ákvæðið þannig að frávísun varðaði. Samkvæmt 2. gr. laga nr. 62/1994 væru úrlausnir mannréttindadómstólsins ekki bindandi að íslenskum landsrétti. Leggja yrði til grundvallar að með þessu hafi löggjafinn áréttað að þrátt fyrir lögfestingu mannréttindasáttmálans væri hér á landi byggt á grunnreglunni um tvíeðli landsréttar og þjóðaréttar. Fælist í niðurstöðu dómstóla að þeir hefðu með lögskýringu í reynd mælt fyrir um lagabreytingar í framagreindum tilgangi færu þeir út fyrir þau mörk sem stjórnlög setja valdheimildum þeirra, sbr. 2. gr. og 1. málslið 61. gr. stjórnarskrárinnar. Var málinu því vísað frá Hæstarétti.

Landsréttur birt 1. mars 2019

504/2018

Ákæruvaldið (Jón H. B. Snorrason saksóknari) gegn Gunnari Rúnari Gunnarssyni (Kristján Stefánsson lögmaður)
Málaflokkur: Skattaréttur

G var sakfelldur fyrir meiri háttar brot gegn skattalögum í rekstri tveggja einkahlutafélaga á nánar tilgreindum tímabilum. Jafnframt var hann sakfelldur fyrir bókhaldsbrot í rekstri annars félagsins. Við ákvörðun refsingar var litið til sakaferils G og tekið tillit til 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, auk þess sem refsing hans var tiltekin sem hegningarauki. Var refsing G ákveðin fangelsi í sex mánuði og honum gert að greiða 13.600.000 króna sekt í ríkissjóð.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 4. desember 2018

S-400/2017

Ákæruvaldið (Ólafur Hallgrímsson saksóknarfulltrúi) gegn Ágústi Alfreð Snæbjörnssyni (Gunnar Egill Egilsson lögmaður) og og Q (Ólafur Eiríksson lögmaður)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Ákærðu sakfelldir fyrir meiriháttar brot gegn skattalögum og almennum hegningarlögum. Annar ákærða var jafnframt sakfelldur fyrir skilasvik.

Landsréttur birt 16. nóvember 2018

82/2018

Ákæruvaldið (Einar Tryggvason saksóknari) gegn Sigurði V. Ragnarssyni (Björgvin Jónsson lögmaður)
Málaflokkur: Skattaréttur

S var ákærður fyrir meiri háttar brot gegn skattalögum og bókhaldsbrot í sjálfstæðri atvinnustarfsemi með því að hafa staðið skil á efnislega röngum skattframtölum og virðisaukaskattsskýrslum vegna rekstraráranna 2005 til og með 2009 auk þess að hafa ekki fært bókhald með lögmæltum hætti á sama tímabili. Skattyfirvöld höfðu áður endurákvarðað skatta S vegna framangreindra brota og gert honum að greiða álag á vantalinn skattstofn. Í dómi Landsréttar var talið að hin tvíþætta málsmeðferð sem S sætti færi í bága við 4. gr. 7. gr. viðauka mannréttindasáttmála Evrópu þar sem hún hefði ekki verið nægilega samþætt í tíma. Var þeim hluta ákæru, sem varðaði brot S gegn lögum um tekjuskatt og lögum um virðisaukaskatt, því vísað frá héraðsdómi. Hins vegar staðfesti Landsréttur niðurstöðu héraðsdóms um að S hefði gerst sekur um bókhaldsbrot. Við ákvörðun refsingar var litið til tafa á meðferð málsins og þess að S hefði ekki áður gerst sekur um refsiverða háttsemi og var ákvörðun refsingar hans frestað skilorðsbundið í tvö ár.

Landsréttur birt 4. október 2018

456/2018

Ákæruvaldið (Kristín Ingileifsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn X (Gestur Jónsson lögmaður)
Málaflokkur: Skattaréttur

Felldur var úr gildi úrskurður héraðsdóms þar sem máli ákæruvaldsins gegn X, sem áður hafði sætt álagi skattyfirvalda vegna sömu brota, var vísað frá dómi. Var það niðurstaða Landsréttar að fullnægt væri skilyrðum um nauðsynlega samþættingu málsmeðferðanna í efni og tíma og því ekki brotið gegn 4. gr. 7. viðauka mannréttindasáttmála Evrópu. Því var enn fremur hafnað að brotið hefði verið gegn jafnræðisreglum með saksókn á hendur X.

Landsréttur birt 27. september 2018

455/2018

Ákæruvaldið (Kristín Ingileifsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn X (Halldór Jónsson lögmaður)
Málaflokkur: Skattaréttur

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem máli ákæruvaldsins gegn X, sem áður hafði sætt álagi skattyfirvalda vegna sömu brota, var vísað frá dómi þar eð hin tvíþætta málsmeðferð færi í bága við 4. gr. 7. viðauka mannréttindasáttmála Evrópu.

Landsréttur birt 21. september 2018

69/2018

Ákæruvaldið (Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari) gegn Viðari Má Friðfinnssyni, Veitingahúsinu Læk ehf, Eignarhaldsfélaginu Læk ehf og Artist ehf (Páll Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Skattaréttur

V var sakfelldur fyrir meiriháttar brot á skattalögum og almennum hegningarlögum. Annars vegar með því að hafa á nánar tilgreindum tímabilum í starfi sínu sem framkvæmdastjóri og stjórnarmaður VL ehf. staðið skil á efnislega röngum virðisaukaskattsskýrslum og vantalið virðisaukaskattskylda veltu félagsins og innheimtan virðisaukaskatt sem bar að standa ríkissjóði skil á. Hins vegar með því að hafa á nánar tilgreindum tímabilum staðið skil á efnislega röngum skattframtölum og komist með því móti hjá því að greiða tekjuskatt og útsvar. Refsing V þótti hæfilega ákveðin fangelsi í 18 mánuði en fullnustu refsingarinnar var frestað skilorðsbundið í tvö ár. Auk þess var honum gert að greiða 242.000.000 króna sekt í ríkissjóð og skyldi 12 mánaða fangelsi koma í stað sektarinnar yrði hún ekki greidd innan fjögurra vikna. Þá var VL ehf. dæmt til að greiða 158.000.000 króna sekt óskipt með V til ríkissjóðs. Í málinu var gerð krafa um upptöku nánar tilgreindra fjármuna VL ehf., EL ehf. og A ehf. sem svaraði til ávinnings þeirra af hinni refsiverðu háttsemi. Landsréttur féllst ekki á að heimild VII. kafla A almennra hegningarlaga nr. 19/1940 til upptöku takmarkaðist við ágóða sem yrði til vegna innflutnings ávana- og fíkniefna, auðgunarbrota og annarrar skipulagðrar brotastarfsemi. Með hliðsjón af skýrum ákvæðum VII. kafla A laganna væru uppfyllt skilyrði til að taka upptökukröfurnar til greina á grundvelli 69. gr. og 69. gr. d laganna.

Hæstiréttur birt 20. september 2018

11/2018

Ákæruvaldið (Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari) gegn X, Y, Z og Þ (Björgvin Þorsteinsson lögmaður)
Málaflokkur: Skattaréttur

Kært var ákvæði í dómi Landsréttar um að vísa frá héraðsdómi sakargiftum á hendur einkahlutafélögunum X, Y, Z og Þ um brot gegn 8. mgr., sbr. 1. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988 um virðisaukaskatt á þeim grundvelli að málsmeðferðin sem félögin sættu færi í bága við 1. mgr. 4. gr. 7. viðauka við mannréttindasáttmála Evrópu. Krafðist ákæruvaldið þess að frávísunin yrði felld úr gildi annars vegar á þeim grunni að lögaðilar yrðu ekki felldir undir bann samkvæmt 1. mgr. 4. gr. 7. viðauka við mannréttindasáttmála Evrópu og hins vegar með vísan til þess að álag á grundvelli 27. gr. laga nr. 50/1988 fæli ekki í sér refsingu í skilningi framangreinds ákvæðis samningsviðaukans með sama hætti og þegar gjaldandi sætti álagi á gjaldstofna samkvæmt 2. mgr. 108. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt. Um fyrrgreinda atriðið vísaði Hæstiréttur til þess að þótt ekki yrði með skýrum hætti ráðið af orðalagi ákvæðisins hvort það tæki einungis til einstaklinga yrði ekki annað séð af dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu en að þar hefði ákvæðinu einnig verið beitt gagnvart lögaðilum. Til þess væri einnig að líta að á grundvelli laga nr. 62/1994 um mannréttindasáttmála Evrópu væri ákvæðið íslensk réttarheimild og sætti sem slíkt skýringu sem hvert annað lagaákvæði fyrir dómstólum. Eðli máls samkvæmt stæðu ekki haldbær efnisrök til að fella lögaðila utan þeirrar verndar, sem ákvæðinu væri ætlað að veita. Að því er varðaði síðargreinda álitaefnið sló Hæstiréttur því föstu að þótt hundraðshluti álags væri ólíkur milli ákvæðanna auk þess munar sem væri á ákvörðun um beitingu þess stæðu ekki efni til þess að gera greinarmun í þessum tveimur tilvikum, enda væri í báðum ákvæðunum um að ræða viðurlög sem taka bæri tillit til við ákvörðun sektar í sakamáli. Að þessu virtu og með vísan til þess að ekki væri ágreiningur um þá niðurstöðu Landsréttar um að rekstur máls gegn félögunum fyrir skattayfirvöldum annars vegar og rannsókn sakamáls á hendur þeim og meðferð þess fyrir dómi hins vegar hafi ekki staðist efnislegan áskilnað 1. mgr. 4. gr. 7. viðauka við mannréttindasáttmála Evrópu var hið kærða ákvæði staðfest.

Landsréttur birt 22. júní 2018

477/2018

Ákæruvaldið (Ólafur Hallgrímsson saksóknarfulltrúi) gegn X og Y (enginn)
Málaflokkur: Skattaréttur

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar vísað var frá dómi tilteknum hluta ákæru á hendur X og Y er varðaði vanskil Z ehf. á innheimtum virðisaukaskatti á nánar tilgreindum uppgjörstímabilum. Í úrskurði Landsréttar var ekki fallist á að rannsókn málsins hefði verið svo áfátt að það varðaði frávísun málsins frá héraðsdómi, en X og Y hefðu frá upphafi rannsóknar haft alla möguleika á að leggja fram og vísa til gagna um rekstur félagsins. Þá lægi fyrir að hvorki X né Y hefðu haldið því fram að leiðréttingarskýrslur gæfu ekki rétta mynd af rekstri félagsins. Var hinn kærði úrskurður því felldur úr gildi og lagt fyrir héraðsdóm að taka málið til efnismeðferðar.

Landsréttur birt 22. júní 2018

47/2018

Ákæruvaldið (Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari) gegn Sigurmundi Gísla Einarssyni og Guðmundu ehf (Jón Bjarni Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Skattaréttur

S var sakfelldur fyrir brot gegn 1. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, 1. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988 um virðisaukaskatt og 2. mgr. 30. gr. laga nr. 45/1987 um staðgreiðslu opinberra gjalda með því að hafa á nánar tilgreindum tímabilum í starfi sínu sem framkvæmdastjóri og stjórnarmaður V ehf. og sem stjórnarmaður og daglegur stjórnandi G ehf. látið hjá líða að standa ríkissjóði skil á virðisaukaskatti sem innheimtur var í rekstri V ehf. og opinberum gjöldum sem haldið var eftir af launum starfsmanna beggja félaganna. Upplýst var í málinu að vangoldinn virðisaukaskattur og opinber gjöld vegna tiltekinna tímabila sem ákæra tók til höfðu að verulegu leyti verið greidd eftir eindaga. Var því talið að undanþágur frá lágmarki fésekta samkvæmt 1. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988 og 2. mgr. 30. gr. laga nr. 45/1987 ættu við um þær skuldir. Við ákvörðun refsingar S var meðal annars litið til þessa sem og að S hafði ekki áður verið gerð refsing, en á hinn bóginn einnig til þess að brot hans voru framin til hagsbóta fyrir G ehf. Var refsing S ákveðin fangelsi í sex mánuði en fullnustu refsingarinnar var frestað skilorðsbundið í tvö ár. Þá var honum gert að greiða 33.500.000 króna sekt í ríkissjóð og skyldi 12 mánaða fangelsi koma í stað sektarinnar yrði hún ekki greidd innan fjögurra vikna. Þá var G ehf. dæmt til 10.600.000 króna sektargreiðslu óskipt með S á grundvelli 9. mgr. 30. gr. laga nr. 45/1987.

Landsréttur birt 15. júní 2018

77/2018

Ákæruvaldið (Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari) gegn X (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður) og Y (Eiríkur Gunnsteinsson lögmaður, Ólafur Kjartansson lögmaður, 1. prófmál)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Í málinu var X sakfelldur fyrir meiri háttar brot gegn skattalögum og bókhaldsbrot í starfsemi einkahlutafélaganna A og B ásamt peningaþvætti. Ákæru á hendur X fyrir að skila efnislega röngum skattframtölum og láta undir höfuð leggjast að skila tekjuskatti og útsvari var vísað frá héraðsdómi þar sem skattyfirvöld höfðu áður gert honum að greiða álag á vantalinn skattstofn vegna sömu brota en hin tvíþætta málsmeðferð var talin fara í bága við 4. gr. 7. viðauka mannréttindasáttmála Evrópu þar sem hún hefði ekki verið nægilega samþætt í tíma. Við ákvörðun refsingar X var litið til þess að hann hefði ekki áður gerst sekur um refsivert brot og tafa á rannsókn málsins. Á hinn bóginn væru brotin stórfelld og bæru vott um einbeittan brotavilja. Var refsing X ákveðin fangelsi í átján mánuði, en fullnustu fimmtán mánaða frestað skilorðsbundið í þrjú ár. Þá var honum gert að greiða 258.000.000 króna í sekt. Y var sýknuð af refsikröfu fyrir peningaþvætti þar sem brot hennar væru fyrnd.

Landsréttur birt 15. júní 2018

65/2018

Ákæruvaldið (Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari) gegn Bjarka Rafni Jónssyni (Jón Elvar Guðmundsson lögmaður)
Málaflokkur: Skattaréttur

BJ var sakfelldur fyrir bókhaldsbrot með því að hafa látið undir höfuð leggjast að færa lögboðið bókhald fyrir einkahlutafélagið B á rekstrarárinu 2008 og vanrækt að varðveita fylgiskjöl og önnur bókhaldsgögn með fullnægjandi hætti. BJ var einnig gefið að sök meiriháttar skattalagabrot með því að hafa ekki staðið skil á virðisaukaskattsskýrslum og virðisaukaskatti félagsins fyrir tiltekin tímabil. Landsréttur vísaði til þess að í skýrslu skattrannsóknarstjóra kæmi fram það mat hans að þeir sölureikningar sem ákæra byggi á væru tilhæfulausir og að við lögreglurannsókn málsins hefði ekkert komið fram sem varpaði nýju ljósi á það. Taldi Landsréttur ekki hafið yfir skynsamlegan vafa að BJ hefði gerst sekur um þann undandrátt á skyldu til greiðslu virðisaukaskatts sem hann var ákærður fyrir, sbr. 109. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Var BJ því sýknaður af þessum lið ákæru. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að óhæfilegur dráttur hefði orðið á meðferð málsins sem ekki hefði verið útskýrður. Var ákvörðun refsingar BJ frestað skilorðsbundið.

Hæstiréttur birt 30. maí 2018

14/2018

Ákæruvaldið (Ásmunda B. Baldursdóttir saksóknari) gegn X (Reimar Snæfells Pétursson lögmaður)
Málaflokkur: Skattaréttur

Kærður var úrskurður Landsréttar þar sem staðfestur var úrskurður héraðsdóms um að vísa máli ákæruvaldsins á hendur X frá dómi. Í niðurstöðu Hæstaréttar kom fram að skýra yrði kæruheimild í a. lið 1. mgr. 211. gr. laga nr. 88/2008 á þann hátt að úrskurður Landsréttar gæti sætt kæru til Hæstaréttar ef þar hefði verið tekin ákvörðun um að vísa máli frá héraðsdómi, sem ekki hefði fyrr verið gert, en ekki ef þar hefði verið staðfestur úrskurður héraðsdóms um frávísun. Brast því heimild til að kæra úrskurð Landsréttar í málinu og var því vísað frá Hæstarétti.

Héraðsdómur Suðurlands birt 17. maí 2018

S-77/2018

Ákæruvaldið (Sigríður Árnadóttir saksóknarfulltrúi) gegn Kristni Pálssyni
Málaflokkur: Skattaréttur

Ákærði var fundinn sekur um meiri háttar brot gegn skattalögum í eigin atvinnurekstri. Skilorð eldri dóms var dæmt upp og ákærða gert að sæta fangelsi í tólf mánuði, sem skilorðbundið var að hluta. Þá var ákærða og gert sekt.

Landsréttur birt 9. maí 2018

388/2018

Ákæruvaldið (Ásmunda Björg Baldursdóttir saksóknari) gegn X (Gestur Jónsson lögmaður)
Málaflokkur: Skattaréttur

Lengri tími en fjórar vikur liðu frá munnlegum málflutningi um frávísunarkröfu X þar til úrskurður var kveðinn upp. Þar sem málið var ekki flutt að nýju og ekki mátti ráða að aðilum hefði verið gefinn kostur á því né að þeir hefðu lýst því yfir að þess gerðist ekki þörf, og að dómari væri því sammála, var hinn kærði úrskurður ómerktur og málinu vísað heim í hérað til munnlegs málflutnings og uppkvaðningar úrskurðar að nýju.

Landsréttur birt 9. maí 2018

387/2018

Ákæruvaldið (Ásmunda Björg Baldursdóttir saksóknari) gegn X (Halldór Jónsson lögmaður)
Málaflokkur: Skattaréttur

Lengri tími en fjórar vikur liðu frá munnlegum málflutningi um frávísunarkröfu X þar til úrskurður var kveðinn upp. Þar sem málið var ekki flutt að nýju og ekki mátti ráða að aðilum hefði verið gefinn kostur á því né að þeir hefðu lýst því yfir að þess gerðist ekki þörf, og að dómari væri því sammála, var hinn kærði úrskurður ómerktur og málinu vísað heim í hérað til munnlegs málflutnings og uppkvaðningar úrskurðar að nýju.

Hleð fleiri dómum…