Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

16 dómar fundust

Lög: Lög um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins nr. 29/1963

Landsréttur birt 25. nóvember 2022

638/2021

Hermann Ottósson (Gísli Guðni Hall lögmaður) gegn Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins (Þórey S. Þórðardóttir lögmaður)

H höfðaði mál gegn LSR og krafðist þess að viðurkennt yrði með dómi að lífeyrisréttindi hans hjá B-deild LSR, sem hann ávann sér með greiðslu iðgjalda á tímabilinu 1. september 1976 til 31. ágúst 1978, verðbættust samkvæmt reglum 3. og 4. mgr. 28. gr. laga nr. 1/1997 um lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins, sbr. 3. málslið 1. mgr. 30. gr. sömu laga. Byggði H á því að hann uppfyllti skilyrði síðastgreinds ákvæðis þar sem hann hefði á árabilinu 1976 til 1979 starfað í samfleytt þrjú ár sem grunnskólakennari og ætti því réttindi hjá sjóðnum vegna þriggja ára eða lengri greiðslutíma. LSR reisti sýknukröfu sína á hinn bóginn á því að H uppfyllti ekki skilyrði um þriggja ára greiðslutíma þar sem hann hefði lagt niður störf í 12 daga sökum verkfalls kennara á umræddu tímabili og iðgjöld hefðu ekki verið greidd á þeim tíma. Í dómi Landsréttar kom fram að réttindi sjóðfélaga í lífeyrissjóðum væru varin af 1. mgr. 72. gr. stjórnarskrárinnar og að við túlkun lagaákvæða sem varði þessi réttindi beri dómstólum að meta hvort löggjafinn hafi meðal annars gætt sjónarmiða um skýrleika lagaheimilda. Jafnframt var verkfallsþátttaka H engu talin breyta um að hann teldist hafa starfað í þjónustu ríkisins í full þrjú ár. Þá var rakið að við setningu laga nr. 1/1997 hafi orðalagi ákvæða um verðtryggingu geymdra lífeyrisréttinda verið breytt frá því að vísa til „starfs í þjónustu launagreiðanda sem aðild á að sjóðnum“ yfir í að miða við „greiðslutíma“. Núgildandi ákvæði 3. málsliðar 1. mgr. 30. gr. laga nr. 1/1997 væri ekki afdráttarlaust um hvort hlé á lífeyrisgreiðslum vegna verkfallsþátttöku valdi því að sjóðfélagi verði ekki talinn hafa náð þriggja ára greiðslutíma en lögskýringargögn með ákvæðinu gæfu ekki til kynna að með orðalagsbreytingunni hafi staðið til að takmarka þegar áunnin réttindi þeirra sem náð hefðu þriggja ára ráðningartíma þegar lagabreytingin tók gildi. Var því ekki talið að túlka skyldi ákvæði 3. málsliðar 1. mgr. 30. gr. laga nr. 1/1997 með þeim hætti að í því hafi falist slík réttindaskerðing. Með hliðsjón af framangreindu var fallist kröfu H.

Hæstiréttur birt 3. október 2013

142/2013

Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins (Þórey S. Þórðardóttir hrl) gegn Davíð Á. Gunnarssyni (Garðar Garðarsson hrl)

D höfðaði mál gegn lífeyrissjóðnum L og krafðist þess í fyrsta lagi að felld yrði úr gildi ákvörðun stjórnar L um að lífeyrir D skyldi miðast við launakjör forstjóra Landspítalans eins og þau voru ákvörðuð af kjararáði 23. febrúar 2010. Í öðru lagi að viðurkennt yrði að lífeyrir D skyldi frá 1. febrúar 2010 miðast við launakjör forstjóra Landspítalans eins og þau voru ákvörðuð af kjararáði 4. júlí 2008. Í þriðja lagi að viðurkennt yrði að lífeyrisgreiðslur samkvæmt öðrum kröfulið ættu frá sama degi að taka breytingum í samræmi við 3. mgr. 24. gr. laga nr. 1/1997 um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins. D hafði gegnt starfi forstjóra ríkisspítala fram til ársins 1995 og var ekki um það deilt að honum hefði verið heimilt að velja að lífeyrir hans yrði miðaður við laun forstjóra Landspítalans. D hóf töku lífeyris 1. febrúar 2010. Talið var að ákvörðun stjórnar L um að miða lífeyri D við ákvörðun kjararáðs um laun forstjóra Landspítalans 23. febrúar 2010 hefði ekki samræmst 2. og 6. mgr. 24. gr. laga nr. 1/1997, enda hefði borið að miða upphaflegan lífeyri D við laun forstjóra Landspítalans eins og þau voru við starfslok hans. Aftur á móti var ekki fallist á kröfu D um að miðað yrði við launakjör forstjóra Landspítalans eins og þau voru ákveðin af kjararáði 4. júlí 2008 þar sem ráðið hafði í ákvörðun sinni ekki greint milli launa fyrir dagvinnu og yfirvinnu. Í dómi Hæstaréttar kom síðan fram að D hefði samkvæmt 1. mgr. 35. gr. laga nr. 1/1997 haft val um það hvort lífeyrisgreiðslur til hans breyttust til samræmis við breytingar sem yrðu á launum er á hverjum tíma væru greidd forstjóra Landspítalans eða hvort þær skyldu breytast samkvæmt ákvæðum 3. mgr. 24. gr. laganna. Veldi D síðari kostinn yrði hann að hlíta því sem fram kæmi í 4. mgr. 28. gr. laganna um að miða bæri lífeyri hans við breytingar á launum fyrir það starf til ársloka 1996 en eftir það breyttist lífeyririnn í samræmi við meðalhækkanir á launum opinberra starfsmanna fyrir dagvinnu samkvæmt 3. mgr. 24. gr., sbr. 3. mgr. 28. gr. laganna. Var L því sýknaður af þeirri kröfu D að viðurkennt yrði að lífeyrisgreiðslur til hans, sem miðast skyldu við launakjör forstjóra Landspítalans eins og þau voru ákveðin af kjararáði 4. júlí 2008, ættu frá og með 1. febrúar 2010 að taka breytingum í samræmi við 3. mgr. 24. gr. laga nr. 1/1997.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 25. janúar 2013

E-990/2012

Davíð Gunnarsson (Garðar Þ. Garðarsson hrl) gegn Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins (Þórey Sigríður Þórðardóttir hrl)
Lykilorð: Lífeyrissjóður.

Fallist var kröfu D um að felld yrði úr gildi ákvörðun LSR um að miða lífeyri hans við ákvörðun Kjararáðs, um laun fyrir hliðstætt starf, sem tekin hafði verið eftir að hann hóf töku lífeyris. Hins vegar var hafnað kröfu hans um að viðurkennt væri að miða bæri við fyrri ákvörðun Kjararáðs þar sem sú ákvörðun hafði miðast við heildarlaun en ekki föst dagvinnulaun.

Hæstiréttur birt 2. nóvember 2012

661/2012

Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins (Þórey Sigríður Þórðardóttir hrl) gegn Sparisjóði Reykjavíkur og nágrennis hf (Hildur Sólveig Pétursdóttir hrl)

Lífeyrissjóðurinn L lýsti kröfu við slit fjármálafyrirtækisins S hf. vegna lífeyrisskuldbindinga sem hvíldu á S hf. en krafan var til komin vegna ógjaldfallinna lífeyrishækkana samkvæmt 1. mgr. 33. gr. laga nr. 1/1997 um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins. Krafa L var hvorki reist á vinnusamningi né fól hún í sér beint endurgjald fyrir vinnu. Með vísan til þess auk almennra sjónarmiða við skýringu 1. mgr. 112. gr. laga nr. 21/1991 um gjaldþrotaskipti o.fl. og samræmisskýringar við 4. tl. sömu greinar var því hafnað að krafa L væri forgangskrafa í skilningi 1. tl. 112. gr. laga nr. 21/1991. Með vísan til ýmissa sjónarmiða um skýringu 1. mgr. 33. gr. laga nr. 1/1997 og 4. tl. 1. mgr. 112. gr. laga nr. 21/1991 var því hafnað að krafa samkvæmt fyrrnefnda ákvæðinu ætti undir síðarnefnda ákvæðið. Var því ekki fallist á með L að krafa lífeyrissjóðsins yrði viðurkennd sem forgangskrafa samkvæmt 1. mgr. 112. gr. laga nr. 21/1991 við slit S hf. heldur væri hún almenn krafa sbr. 113. gr. sömu laga.

Hæstiréttur birt 19. júní 2012

32/2012

Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins (Þórey S. Þórðardóttir hrl) gegn Þresti Ólafssyni (Lára Valgerður Júlíusdóttir hrl)

Þ krafðist viðurkenningar á því að hann ætti rétt til lífeyrisgreiðslna úr B-deild L fyrir tímabil er hann gegndi starfi framkvæmdastjóra S og greiddi í A-deild sjóðsins. Starf Þ hjá S uppfyllti skilyrði laga nr. 1/1997 um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins til aðildar að L. Með vísan til 8. mgr. 24. gr. laganna átti Þ því ekki, auk launa, jafnframt rétt til ellilífeyris úr hendi L meðan hann gegndi starfi hjá S. Taldi Hæstiréttur að með því að synja Þ um greiðslu ellilífeyris úr B-deild meðan hann gegndi enn starfi sem veitti rétt til aðildar að L hefði sjóðurinn ekki skert áunninn lífeyrisrétt hans. Þá þóttu engin rök standa til þess að gagnálykta frá lagaskilareglu 1. mgr. 37. gr. laganna á þann veg að Þ hafi, þrátt fyrir áðurnefnda 8. mgr. 24. gr. laganna, átt rétt til töku ellilífeyris samhliða því starfi sem hann gegndi, þar sem hann hafi ekki átt kost á að velja á milli þess að greiða iðgjöld til A- eða B-deildar L. Var L því sýknaður af kröfu Þ.

Hæstiréttur birt 8. mars 2007

405/2006

Djúpavogshreppur (Kristinn Hallgrímsson hrl) gegn Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins (Þórunn Guðmundsdóttir hrl)
Lykilorð: Lífeyrissjóður.

Sveitarfélagið D krafðist þess að viðurkennt yrði að því væri heimilt að greiða iðgjald vegna nafngreinds sveitarstjóra síns til B-deildar Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins á grundvelli laga nr. 1/1997 um sjóðinn, en sveitarstjórinn hafði greitt iðgjöld til sjóðsins vegna fyrri starfa sinna frá árinu 1968. Sjóðurinn taldi að lagaheimild stæði ekki til þessa. Aðilar málsins deildu um hvernig skýra bæri 5. mgr. 4. gr. laganna þar sem fram kemur að launagreiðendur, sem fengið höfðu heimild fyrir árslok 1996 til að greiða iðgjald til sjóðsins fyrir starfsmenn sína, hafi áfram sömu heimild til að greiða iðgjald til B-deildar sjóðsins fyrir þá starfsmenn sína og aðra sjóðsfélaga sem greiddu iðgjald til sjóðsins fyrir árslok 1996. Talið var, með vísan til athugasemda við greinina sem fylgdu frumvarpi til laganna, forsögu hennar og þeirra almennu markmiða sem lágu til grundvallar setningu laga nr. 1/1997, að greinina bæri að skýra á þann veg að þau sveitarfélög ein teldust hafa heimild á grundvelli hennar til að greiða fyrir starfsmenn sína til lífeyrissjóðsins sem fengið höfðu heimild stjórnar hans til slíks samkvæmt nánar tilgreindu ákvæði í eldri lögum um sjóðinn nr. 29/1963 fyrir árslok 1996. Svo háttaði ekki til um D. Var lífeyrissjóðurinn því sýknaður af viðurkenningarkröfu D.

Hæstiréttur birt 1. júní 2006

36/2006

Herþrúður Ólafsdóttir (Dögg Pálsdóttir hrl) gegn Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins (Þórunn Guðmundsdóttir hrl)

H sótti um lífeyri hjá L eftir föður sinn á grundvelli heimildar í 1. málsl. 7. mgr. 27. gr. laga nr. 1/1997. Umsókninni var hafnað þar sem ekki lágu fyrir óyggjandi upplýsingar um að H hefði haldið heimili með föður sínum síðustu fimm ár fyrir andlát hans. H krafðist viðurkenningar á því að hún ætti rétt til greiðslu lífeyris samkvæmt ákvæðinu. Talið var að heimild til að greiða lífeyri til þess sem annast hefði heimili sjóðfélaga um árabil fyrir andlát hans yrði því aðeins virk samkvæmt ákvæðinu að um samfellda búsetu hefði verið að ræða í a.m.k. fimm ár fram að andlátinu. Þar sem gögn málsins báru ekki með sér að þessu skilyrði hefði verið fullnægt var L sýknaður af kröfu H.

Hæstiréttur birt 16. febrúar 2006

409/2005

Djúpavogshreppur (Kristinn Hallgrímsson hrl) gegn Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins (Þórunn Guðmundsdóttir hrl)

Ágreiningur aðila stóð um hvort lagaheimild væri fyrir því að D greiddi til B-deildar L vegna sveitarstjóra D. Við úrlausn á þeim ágreiningi þurfti að skýra tiltekin ákvæði laga nr. 1/1997 um L, að teknu tilliti til eldri laga um sama efni. Til þessa ágreiningsefnis tók héraðsdómari afstöðu án þess að rökstyðja þá niðurstöðu með nokkrum hætti. Voru því ekki uppfyllt fyrirmæli f. liðar 1. mgr. 114. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Óhjákvæmilegt var að ómerkja héraðsdóm og vísa málinu heim í hérað til málflutnings og dómsálagningar að nýju.

Hæstiréttur birt 27. maí 2004

21/2004

Sigurður Njálsson (Einar Sveinn Hálfdánarson hrl) gegn Síldarvinnslunni hf (Helgi Jóhannesson hrl)
Lykilorð: Eftirlaun.

SN, sem starfað hafði sem skrifstofustjóri SR, hélt því fram að hluti starfskjara hans hafi falist í því að hann skyldi njóta ellilífeyris úr eftirlaunasjóði starfsmanna SR. Með því að umræddur lífeyrissjóður var fyrst stofnaður eftir að SN lét af störfum hjá SR og þar sem ekkert benti til þess að í starfskjörum SN hafi falist réttur til greiðslna úr eftirlaunasjóði eftir að hann lét af störfum, var S sýknaður af öllum kröfum SN.

Hæstiréttur birt 7. nóvember 2002

240/2002

Íslenska ríkið (Einar Karl Hallvarðsson hrl) gegn Friðriku Hörpu Ævarrsdóttur (Jónas Haraldsson hrl)

F, sem er lögfræðingur að mennt, réðist til starfa sem fulltrúi sýslumannsins á Akureyri árið 1994. Í nóvember 1996 fór F í barnsburðarleyfi og um rétt hennar til launa í slíku leyfi fór samkvæmt þágildandi reglugerð um barnsburðarleyfi starfsmanna ríkisins. F taldi umsamda 30 klukkustunda fasta yfirvinnu á mánuði hafa verið kaupauka við grunnlaun samkvæmt kjarasamningi, sem aukið vinnuframlag hafi ekki komið fyrir, og þannig hluti þeirra dagvinnulauna sem hún ætti rétt á í barnsburðarleyfi. Talið var sannað að vinnuframlag umfram dagvinnu skyldi ekki koma fyrir greiðslu fyrrgreindra 30 yfirvinnustunda á mánuði. Var lagt til grundvallar niðurstöðu í málinu að umsamið endurgjald F fyrir átta stunda vinnudag skyldi vera laun samkvæmt viðeigandi launaflokki og andvirði 30 yfirvinnustunda. Var talið fullt tilefni til að taka fram í umræddri reglugerð að um dagvinnulaun samkvæmt kjarasamningi væri að ræða, hafi önnur laun fyrir dagvinnu ekki átt að koma til greiðslu í barnsburðarleyfi starfsmanna. Fallist var á kröfu F en enginn tölulegur ágreiningur var í málinu. Þá var miðað við að vanefnd hafi orðið af hálfu Í 1. desember 1998, eða mánuði eftir að F gerði athugasemdir við greiðslu launa í barnsburðarleyfinu, og var krafan látin bera dráttarvexti frá þeim tíma. Aðfinnsluvert þótti hvernig héraðsdómsstefna og héraðsdómur voru úr garði gerð.

Hæstiréttur birt 23. maí 2002

286/2001

Lára Hafliðadóttir (Helgi Birgisson hrl) gegn Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins (Þórunn Guðmundsdóttir hrl)

Aðilar deildu um upphæð ellilífeyris LH eftir að hún lét af störfum í félagsmálaráðuneytinu árið 1991. LH hafði gegnt starfi deildarstjóra í ráðuneytinu frá árinu 1978 og fram til þess dags er hún lét af störfum. Hafði hún fengið greiddan lífeyri frá LSR miðað við þá stöðu. Fyrir lá í málinu að starfsskyldur LH í ráðuneytinu þann tíma sem hún gegndi störfum þar sem deildarstjóri voru m.a. fólgnar í því að annast skjalavörslu og um 16 ára skeið hafði hún það verkefni innan ráðuneytisins að hafa umsjón með Jöfnunarsjóði sveitarfélaga, eða fram til ársins 1990. LH taldi að störf sín sem umsjónarmanns sjóðsins ætti að meta henni til hagsbóta við ákvörðun upphæðar lífeyrisins og reisti hún kröfu sína bæði á eftirmannsreglunni í lögum um LSR og á svokallaðri tíu ára reglu í sömu lögum. Sýnt þótti að til ársloka 1989 hafi það verkefni fallið undir deildarstjórastöðu LH að annast umsjón með Jöfnunarsjóði sveitarfélaga, en í því verkefni hafi ekki falist sérstök staða í skilningi eftirmannsreglunnar svokölluðu. Einnig var fram komið að 1. janúar 1990 hafi sjóðurinn breyst mjög með nýjum lögum um tekjustofna sveitarfélaga og auknum verkefnum. Starf umsjónarmanns sjóðsins hafi aldrei verið sérstök staða í lögum og ekki hafi verið sýnt fram á að ráð hafi verið fyrir henni gert í kjarasamningum. Þá lá og fyrir að þegar LH hætti að hafa þetta verkefni með höndum hélt hún óbreyttum launum sínum sem deildarstjóri. Samkvæmt þessu var ekki unnt að líta svo á að krafa hennar yrði reist á svokallaðri tíu ára reglu. Var LSR sýknaður af kröfum LH í málinu.

Hæstiréttur birt 3. maí 2001

124/2001

Ólafur Þorláksson (Ragnar Aðalsteinsson hrl) gegn Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins (Þórunn Guðmundsdóttir hrl)

Ó krafðist þess að viðurkennt yrði að lífeyrisgreiðslur til hans ættu að miðast við laun héraðsdómara í stað löglærðs fulltrúa og deildarstjóra hjá sýslumanninum í Reykjavík. Kröfur Ó þóttu vera sama efnis og kröfur hans í máli er hann hafði áður höfðað á hendur L, en í meginatriðum skildi þar eingöngu á milli að greiðslukröfur Ó tóku í síðara málinu ekki að öllu leyti til sama tímabils og áður. Höfðu lyktir fyrra málsins orðið þær að Hæstiréttur sýknaði L af kröfum Ó. Héraðsdómur vísaði síðara máli Ó á hendur L frá dómi og kærði Ó þann úrskurð til Hæstaréttar, sem komst að þeirri niðurstöðu að Ó hefði verið í lófa lagið að halda málsástæðum sínum í síðara málinu fram frá fyrstu stigum fyrra málsins og fá þar efnislega leyst úr kröfum sínum á grundvelli þeirra. Var niðurstaða héraðsdóms því staðfest með vísan til þeirrar meginreglu, sem fram kemur í 2. mgr. 116. gr. laga nr. 91/1991.

Hæstiréttur birt 30. mars 2000

435/1999

Haraldur Ásgeirsson (Helgi V. Jónsson hrl) gegn Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins, til vara gegn, Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins og íslenska ríkinu (Jón G. Tómasson hrl)

H gegndi embættisstörfum í þjónustu ríkisins frá 1945 til 1985, er hann hóf töku eftirlauna úr Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins (L) á grundvelli launa fyrir starf sem forstöðumaður Rannsóknastofnunar byggingariðnaðarins (RB), er hann gegndi um 20 ára skeið. Höfðaði H mál gegn L og til vara L og íslenska ríkinu og krafðist þess að viðurkennt yrði að eftirlaun hans tækju mið af reglubundnum heildarlaunum eftirmanns hans hjá RB auk þess sem hann krafðist greiðslu vangoldinna eftirlauna. Ekki var talið að skilja bæri ákvæði 3. mgr. 12. gr. laga nr. 29/1963, sem í gildi voru meðan H átti aðild að sjóðnum sem starfsmaður, þannig að upphæð ellilífeyris skyldi vera hlutfall af öllum launum vegna starfsins hverju nafni sem þau nefndust. Var ekki fallist á að reglubundnar greiðslur fyrir yfirvinnu til forstjóra RB hafi eðlis síns vegna verið tengdar föstum embættislaunum með þeim hætti, að skylt væri að líta á þær sem hluta af launum fyrir dagvinnu, sem veitt hefðu rétt til eftirlauna. Var einnig litið til þess að framkvæmd reglna um iðgjöld L og ákvörðun eftirlauna úr sjóðnum hafi legið ljós fyrir allan þann tíma, sem hinar reglubundnu greiðslur voru við lýði. Hefðu greiðslurnar ótvírætt verið ákvarðaðar forstjóranum á þeim grundvelli að þær hefðu hvorki áhrif á iðgjöld né eftirlaun, og hafi svo einnig verið um hliðstæðar greiðslur til annarra ríkisstarfsmanna á sama tíma. Voru L og íslenska ríkið sýknuð af kröfum H.

Hæstiréttur birt 10. febrúar 2000

327/1999

Íslenska ríkið (Einar Karl Hallvarðsson hrl) gegn Baldri Ágústssyni (Gestur Jónsson hrl)

B hafði starfað hjá F frá 1963, fyrst sem aðstoðarmaður, en sem flugumferðarstjóri frá árinu 1968. B fékk launalaust leyfi frá október 1983 til júní 1984. Vegna erfiðleika í einkalífi og undanfarandi lyfjanotkunar gat B ekki sinnt störfum sínum þegar hann kom úr leyfinu. Gekkst hann í framhaldi af því, að frumkvæði F, undir ýmsar sálfræði- og læknisrannsóknir og var ekki að störfum á meðan. Fór B meðal annars í viðtöl hjá geðlækninum HP, sem síðan ritaði F bréf þar sem fram kemur að hann telji B ekki fullnægja heilbrigðisskilyrðum reglugerðar um skírteini útgefin af F. Var B ekki gerð grein fyrir efni gagna sem F fékk frá læknum og sálfræðingum. Geðlæknir B, HÓ, gaf út vottorð í júlí 1984, þar sem fram kemur að B sé vinnufær. Flugumferðarstjóra-skírteini B var afturkallað í lok september 1984 á þeim forsendum að hann hefði mætt tvívegis á vaktir fyrri hluta júnímánaðar þótt hann hefði verið óvinnufær samkvæmt læknisvottorði. Gilti afturköllunin að minnsta kosti á meðan samgönguráðuneytið hefði mál B til meðferðar. Mótmælti B þessu og krafðist launa og að felld yrði úr gildi ákvörðun F um afturköllun flugumferðarstjóraskírteinis hans. Náðist samkomulag um launagreiðslur, en krafa um afturköllun ákvörðunar F var ekki afgreidd efnislega. Höfðaði B mál á hendur íslenska ríkinu (Í) til heimtu skaða- og miskabóta. Talið var að F og samgönguráðherra hefði borið að upplýsa B um niðurstöðu þeirra sérfræðinga, sem rannsökuðu hann að frumkvæði F, enda gat hún varðað mikilvæga hagsmuni hans, og að athafnaleysi þeirra að þessu leyti væri saknæmt og bakaði Í skaðabótaskyldu. Þá var afturköllun flugumferðarstjóra-skírteinisins ekki markaður ákveðinn tími í samræmi við ákvæði reglugerðar nr. 301/1978 um skírteini gefin út af flugmálastjórn og beiðni B um að ákvörðun um afturköllun skírteinisins yrði felld úr gildi ekki afgreidd efnislega. Ekki var talið að bótaréttur B væri fyrndur eða fallinn niður vegna tómlætis. Var Í dæmt til að bæta B tjón hans, sem rakið yrði til hinnar bótaskyldu háttsemi, en ekki voru talin skilyrði fyrir því að dæma B miskabætur.