Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

14 dómar fundust

Lagagrein: 2. mgr. 25. gr. laga nr. 19/1991 — Lög um meðferð opinberra mála

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 3. október 2023

E-463/2022

A (Erling Daði Emilsson lögmaður) gegn Sjóvá-Almennum tryggingum hf (Heiður Heimisdóttir lögmaður)

Stefnandi, sem féll í tröppum og meiddist, krafðist viðurkenningar á bótaskyldu úr frjálsri ábyrgðartryggingu fasteignareiganda. Talið var óupplýst hvers vegna stefnandi féll í tröppunum og honum tókst ekki að sýna fram á að vanbúnaði fasteignar væri um að kenna. Var hið stefnda vátryggingafélag því sýknað af viðurkenningakröfu stefnanda.

Hæstiréttur birt 30. maí 2013

56/2013

Hákon Helgason (Karl Ólafur Karlsson hrl) gegn Flugfélagi Íslands ehf (Hrafnhildur Stefánsdóttir hrl)
Lykilorð: Orlof.

H krafðist þess að viðurkenndur yrði réttur hans til framlengingar á vetrarorlofi á grundvelli 6. gr. laga nr. 30/1987 um orlof, vegna veikinda sem komið hefðu í veg fyrir orlofstöku hans. Hafði H skilað inn læknisvottorði til vinnuveitanda síns F ehf. um að hann væri óvinnufær á orlofstímabilinu, en síðan farið til sólarlanda. Talið var að við skýringu ákvæðisins yrði að miða við hvort H hefði getað tekið sér fyrir hendur flest það sem menn gerðu í venjulegu orlofi en ekki við þær sérstöku kröfur sem kynnu að verða gerðar til þess að starfsmenn í tilteknum störfum teldust vinnufærir. Þegar litið var til þess að í vottorði H var talað um minni mátt og stirðleika, hefði H ekki sannað að hann hefði verið ófær um að vera í orlofi á tímabilinu. Var F ehf. því sýknað af kröfu H.

Hæstiréttur birt 6. maí 2010

570/2009

Sjónvarpsmiðstöðin ehf (Kristján B. Thorlacius hrl) gegn Eignarhaldsfélaginu Donnu, ehf, Hafsteini Guðmundssyni og Hreini Guðmundssyni (Sigurður G. Guðjónsson hrl)
Málaflokkur: Leiguréttur

Með yfirlýsingum dagsettum í maí 2007 var fasteigninni Síðumúla 2, eignarhluta 0101, sem áður hafði verið í eigu H og R, þinglýst á nafn D ehf. Í yfirlýsingunum kemur m.a. fram að þann 18. apríl 2002 hefði eignarhald á fasteigninni flust frá H og R, yfir til K ehf. og D ehf., en þau síðar verið sameinuð undir heiti áðurnefnds félags. Í málinu krafðist S ehf. þess að viðurkennt yrði með dómi að forkaupsréttur hans hefði orðið virkur við framsal H og R á eignarhlutum sínum í fyrrgreindri eign. Í dómi Hæstaréttar kemur fram að samkvæmt leigusamningi aðila skyldi S ehf. hafa forkaupsrétt að hinu leigða húsnæði ef ákveðið yrði að selja það á leigutímanum. Yfirfærsla eignaréttar að húsnæðinu, sem aðilar miðuðu við að hefði átt sér stað 18. apríl 2002, á hlut hvors þeirra um sig til einkahlutfélags sem sá hinn sami átti að fullu, gegn endurgjaldi sem eingöngu fólst í hlutum í félaginu, teldist ekki sala í skilningi framangreinds samningsákvæðis. Voru H, R og D ehf. því sýknuð af viðurkenningarkröfu S ehf.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 8. júlí 2009

E-5364/2008

Sjónvarpsmiðstöðin ehf (Guðmundur Ómar Hafsteinsson hdl) gegn Eignarhaldsfélaginu Donnu ehf Hafsteini Guðmundssyni og Hreini Guðmundssyni (Sigurður G. Guðjónsson hrl)

Stefndu voru sýknaðir af kröfu stefnanda um það að samningsbundinn forkaupsréttur að fasteign hafi orðið virkur við yfirfærslu á eignarhlutum í eigninni til einkahlutafélaga.

Hæstiréttur birt 8. maí 2008

207/2008

A (Arnar Þór Stefánsson hdl) gegn ríkissaksóknara (Hákon Árnason hrl)

Í málinu krafðist A ógildingar á ákvörðun R um að hætt skyldi lögreglurannsókn á atvikum varðandi andlát dóttur hans. Talið var að sú ákvörðun um meðferð valdheimilda R gæti eðli sínum samkvæmt ekki sætt endurskoðun dómstóla og því bæri samkvæmt 1. mgr. 24. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála að vísa málinu frá héraðsdómi.

Hæstiréttur birt 8. maí 2008

379/2007

JB Byggingafélag ehf (Karl Axelsson hrl) og Trésmiðja Snorra Hjaltasonar ehf (Sigurbjörn Ársæll Þorbergsson hdl) gegn íslenska ríkinu (Guðrún Margrét Árnadóttir hrl)

Í auglýsti til sölu í lokuðu útboði 39,86% eignarhlut sinn í ÍA hf. Meðal bjóðenda voru JB ehf. og TSH ehf. sem skiluðu sameiginlegu boði, en gengið var til samninga við AV ehf. Töldu JB ehf. og TSH ehf. að sala hlutafjárins hefði verið ólögmæt vegna margvíslegra ágalla á undirbúningi og framkvæmd hennar. Kröfðust þeir þess að viðurkennd yrði skaðabótaskylda Í annars vegar vegna kostnaðar sem þeir hafi orðið fyrir við að taka þátt í útboðinu og gera tilboð og hins vegar vegna tapaðs hagnaðar af því að Í tók ekki tilboði þeirra.Talið var að stjórnendur ÍA hf., sem fruminnherjar í merkingu þágildandi laga nr. 13/1996 um verðbréfaviðskipti, hafi ekki virt ríkar skyldur sem lagðar voru á fruminnherja skv. 32. og 33. gr. laganna vegna viðskipta þeirra með verðbréf félagsins. Hafi jafnræði þeirra sem tekið hafi þátt í útboðinu því ekki verið tryggt eða réttra samskiptareglna gætt. Var framkvæmd útboðsins því talin ólögmæt. JB ehf. og TSH ehf. voru þó ekki taldir hafa sýnt fram á að við þá hefði verið samið eða þeir átt raunhæfa möguleika á að verða valdir af Í hefði ekki verið brotið gegn lögum. Var Í því sýknað af kröfum JB ehf. og TSH ehf.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 11. apríl 2008

E-1590/2008

Jóhann Kristján Kristjánsson (Arnar Þór Stefánsson hdl) gegn Ríkissaksóknara (Hákon Árnason hrl)

Stefnandi krefst ógildingar á ákvörðun ríkissaksóknara um að ljúka opinberri rannsókn máls. Málinu var vísað frá dómi, þar sem ríkissaksóknari á um það fullnaðarmat hvenær opinberri rannsókn skal lokið. Málið á því ekki undir dómstóla.

Hæstiréttur birt 8. febrúar 2008

21/2008

Ríkislögreglustjóri (Helgi Magnús Gunnarsson saksóknari) gegn skattrannsóknarstjóra ríkisins

Talið varð að R sem handhafi rannsóknar- og ákæruvalds vegna ætlaðra stórfelldra brota á skattalögum, sbr. 262. gr. almennra hegningarlaga, ætti rétt til aðgangs að gögnum er vörðuðu tekjuskattskil A og sérreglur laga nr. 90/2003 um hlutverk S við rannsókn og sektarmeðferð brota samkvæmt þeim lögum gætu ekki staðið þessu í vegi. Því var fallist á beiðni R um húsleitarheimild, enda hafði S ítrekað hafnað því að afhenda umrædd gögn.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 13. febrúar 2007

E-2190/2006

JB Byggingafélag ehf og Trésmiðja Snorra Hjaltasonar hf (Sigurbjörn Ársæll Þorbergsson hdl) gegn íslenska ríkinu (Guðrún Margrét Árnadóttir hrl)

Kröfu stefnenda, um að viðurkennt yrði með dómi að framkvæmd útboðs á 39,86% hlut ríkisins í Íslenskum aðalverktökum hf. hafi verið ólögmæt, var vísað frá dómi ex officio. Íslenska ríkið var sýknað af kröfum stefnenda um að viðurkennd yrði bótaskylda ríkisins gagnvart stefnendum.

Hæstiréttur birt 16. febrúar 2006

383/2005

Y (Sif Konráðsdóttir hrl) gegn íslenska ríkinu (Einar Karl Hallvarðsson hrl)

Í september 2002 lagði Y fram kæru á hendur M fyrir kynferðisbrot, sem hann átti að hafa framið gegn henni á árunum 1985 til 1989. Skýrsla var fyrst tekin af M í maí 2003 og ákæra gefin út í september sama ár. M var sýknaður af refsikröfu þar sem brot hans voru talin fyrnd og bótakröfu Y á hendur honum vísað frá dómi. Y krafði Í um skaðabætur þar sem hún taldi að rekja mætti sýknuna til þess að óhæfilegur dráttur hefði orðið á rannsókn málsins, sem leiddi til þess að M hefði ekki verið kynnt sakarefnið fyrr en brotin voru fyrnd. Talið var ósannað að Y hafi orðið fyrir tjóni af þessum sökum enda hefði ekki verið tekin afstaða til þess í refsimálinu hvort M hefði gerst sekur um þá háttsemi, sem hann var ákærður fyrir. Y byggði enn fremur á því að aðgerðarleysi lögreglu hafi falið í sér ólögmæta meingerð gagnvart sér. Í dómi Hæstaréttar kom fram að lögreglan hafi mátt gera ráð fyrir að Y hafi a.m.k. verið orðin 9 ára þegar tvö tilvik, sem ákært var út af, áttu sér stað. Hún varð 9 ára 13. maí 1988 og áleit lögreglan því að sakir væri ekki fyrndar, þegar skýrsla var tekin af M 7. maí 2003. Þá var talið að sá dráttur, sem varð á rannsókn málsins, gæti ekki breytt neinu um niðurstöðu þessa máls. Var þar vísað til þess að ekki varð með vissu ráðið af framburði Y fyrir dómi í refsimálinu hvenær M átti, áður en Y náði 9 ára aldri, að hafa síðast brotið gegn henni. Yrði því að gera ráð fyrir að brotin hefðu eftir sem áður verið talin fyrnd þó að lögregluskýrsla hefði verið tekin fyrr af M. Í var því sýknað af kröfu Y.

Hæstiréttur birt 29. nóvember 2001

178/2001

X (Lára Valgerður Júlíusdóttir hrl) gegn íslenska ríkinu (Skarphéðinn Þórisson hrl)

X var stödd ein í bifreið kunningja síns þar sem hún hafði leitað afdreps vegna ölvunar á nýársdag 1994. Kom þá nafngreindur maður inn í bifreiðina og hafði við hana samfarir, en hún kvaðst ekki hafa komið neinum vörnum við vegna ölvunarástands síns. Var maðurinn handtekinn þar á staðnum og málið rannsakað í kjölfarið. Leiddi það til þess að hann var ákærður 15. febrúar sama árs og var athæfi hans talið varða við 196. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Maðurinn fór hins vegar til Grænlands 19. febrúar sama árs áður en tekist hafði að birta honum ákæruna og fyrirkall. Að tilhlutan ríkissaksóknara var þess krafist án árangurs að dönsk stjórnvöld framseldu manninn til Íslands svo unnt yrði að ljúka meðferð dómsmálsins gegn honum. Var síðan leitað eftir því að opinbert mál yrði höfðað gegn honum í Danmörku, en þeirri málaleitan var einnig hafnað af þarlendum yfirvöldum í október 1997. Í kjölfarið lýsti ríkissaksóknara því yfir að ekki yrði séð að ákæruvaldið gæti aðhafst frekar í málinu. Af þessu tilefni höfðaði X skaðabótamál á hendur íslenska ríkinu. Var málatilbúnaður hennar reistur á því að ríkissaksóknara hafi orðið á mistök við rekstur málsins, sem kenna megi um að hinn ákærði hafi ekki hlotið dóm og þar með refsingu, en með því hafi ríkissaksóknari stuðlað að tjóni hennar. Benti hún meðal annars á að ríkissaksóknari hefði látið undir höfuð leggjast að krefjast gæsluvarðhalds eða farbanns yfir manninum, sem væri erlendur ríkisborgari, þótt ljóst væri samkvæmt yfirlýsingu, sem lögregla hafði eftir honum í skýrslu 26. janúar 1994, að hann hygðist fara úr landi. Í dómi Hæstaréttar segir að sú skylda hvíli á ákæruvaldi að hlutast til um að mál séu rannsökuð og þeim síðan lokið svo fljótt, sem kostur er, og með þeim hætti, sem eðlilegt getur talist. Sé út af brugðið geti það varðað þann starfsmann ríkisins ábyrgð, sem hlut á að máli. Aðgerðir ákæruvalds, sem feli í sér tilteknar þvingunarráðstafanir, geta jafnframt leitt til bótaskyldu gagnvart þeim, sem fyrir þeim verður, eftir ákvæðum XXI. kafla laga nr. 19/1991 eða almennum reglum skaðabótaréttar. Sú aðstaða sé ekki fyrir hendi gagnvart þeim, sem verði fyrir tjóni af völdum brotamanns. Tjónþolinn skuli eiga þess kost að koma að bótakröfu í máli gegn hinum brotlega, en að öðru leyti sé ekki réttarsamband milli tjónþola og ákæruvalds. Sé hvorki tjónþola né öðrum ætlað að hafa áhrif á einstakar ákvarðanir ríkissaksóknara í tengslum við framkvæmd ákæruvalds, en um þær njóti ríkissaksóknari sjálfstæðis í starfi. Eigi það eins við um mat hans á því hvort nauðsyn sé fyrir hendi, sem réttlæti að krefjast þess að grunaður maður eða ákærður sæti þvingunarráðstöfunum. Af framanröktu leiði að tjónþoli geti ekki haft síðar uppi bótakröfu á hendur íslenska ríkinu með vísan til þess að aðgerða eða frekari aðgerða hafi verið þörf gagnvart ætluðum brotamanni heldur en þeirra, sem handhafi ákæruvalds greip til. Var íslenska ríkið því sýknað af kröfu X.

Hæstiréttur birt 3. febrúar 2000

277/1999

Háskóli Íslands (Gestur Jónsson hrl) gegn Aitor Eyþóri Yraola (Helgi Birgisson hrl, Jón G. Tómasson hrl)

A var ráðinn sem stundakennari við Háskóla Íslands (HÍ) 1981, en frá 1984 var hann settur af menntamálaráðherra í stöðu lektors til eins árs í senn. Á árinu 1989 sótti A um flutning úr lektorsstöðu í dósentsstöðu, en dómnefnd sem skipuð var til að fjalla um hæfi hans komst að þeirri niðurstöðu að hann væri ekki hæfur til að gegna dósentsstöðu. Árið 1991 var A ráðinn í stöðu lektors við HÍ, ótímabundið með gagnkvæmum þriggja mánaða uppsagnarfresti. Á árinu 1995 var A sagt upp lektorsstarfi sínu með vísan til uppsagnarákvæðis ráðningarsamnings og var staða hans auglýst laus til umsóknar. A var, auk eins annars umsækjanda, metinn hæfur til að gegna stöðunni, en hlaut minnihluta atkvæða á deildarfundi og var ekki ráðinn. Höfðaði hann mál gegn HÍ og íslenska ríkinu (Í) og krafðist viðurkenningar á að ráðningarsamningur hans við HÍ væri enn í gildi, auk þess sem hann krafðist vangreiddra launa og skaðabóta. Talið var að ótímabundinn ráðningarsamningur sem gerður var við A 1991 hefði ekki verið í samræmi við 11. gr. laga nr. 131/1990 um Háskóla Íslands, þar sem segir að ráðherra skipi lektora. Þrátt fyrir að rangri aðferð hefði verið beitt við ráðninguna var talið að aðeins ráðherra hefði getað veitt A lausn frá störfum í samræmi við 7. og 10. gr. þágildandi laga nr. 38/1954 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Því var talið að A hefði verið sagt upp á ólögmætan hátt. Einnig var talið að brotið hefði verið gegn 12. og 13. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og 1. mgr. 11. gr. laga nr. 38/1954 við uppsögn A. Með vísan til laga nr. 38/1954 var ekki talið að A ætti rétt til að fá starf sitt aftur. Var Í sýknað af kröfum A, en HÍ dæmdur til að greiða honum skaðabætur.