Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

21 dómar fundust

Lykilorð: Umhverfismat

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 11. júní 2026 kl. 15:12

E-106/2026

Brynhildur Briem, Hannes Þór Sigurðsson, Jón Benjamín Jónsson, Örn Ingi Ingvarsson, Ólafur Arnar Jónsson og Ölhóll ehf (Sif Konráðsdóttir lögmaður) gegn íslenska ríkinu og Umhverfis- og orkustofnun og Húsnæðis- og mannvirkja- og skipulagsstofnun (Þorvaldur Hauksson lögmaður), Landsvirkjun (Guðjón Ármannsson lögmaður) og Jóni Árna Vignissyni og Náttúruverndarsamtökum Íslands og Veiðifélagi Þjórsár (enginn)

Deilt var um gildi tveggja stjórnvaldsákvarðana tengdum áformum stefnda Landsvirkjunar um að reisa vatnsaflsvirkjunina (raforkuverið) Hvammsvirkjun í neðri hluta Þjórsár en þær fyrirhuguðu framkvæmdir hafa áður verið til umfjöllunar í dómi Hæstaréttar 9. júlí 2025 í máli nr. 11/2025. Annars vegar var með síðari dómkröfu stefnenda deilt um gildi úrskurðar úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála 15. febrúar 2018 þar sem staðfest var ákvörðun Skipulagsstofnunar 16. desember 2015, samkvæmt 12. gr. þágildandi laga nr. 106/2000, um endurskoðun matsskýrslu Landsvirkjunar frá árinu 2003 en ákvörðunin fól í sér að ekki þyrfti að endurskoða matsþættina vatnalíf og vatnafar. Frávísunarkröfu íslenska ríkisins o.fl. sem laut aðeins að þeirri dómkröfu var hafnað í dóminum en málið, sem rekið var sem flýtimeðferðarmál, var flutt í einu lagi um formhlið og efnishlið þess. Í efnisþætti málsins voru stefndu sýknaðir af kröfu um ógildingu úrskurðarins, m.a. með vísan til þess að með forsendum nefnds dóms Hæstaréttar hefði verið leyst efnislega og með bindandi hætti úr málsástæðum stefnenda er lutu að umhverfismatsferlinu, sbr. meginreglu 1. og 2. mgr. 116. gr. laga nr. 91/1991. Þá var talið að 5. mgr. 101. gr. sömu laga girti fyrir að nýjar málsástæður, sem tilefni hefði verið til að hafa uppi um það efni í fyrra dómsmáli, kæmust að í máli þessu. Sú regla var þó ekki talin girða fyrir að leyst yrði úr öðrum málsástæðum stefnenda sem ekki var talið einsýnt að tilefni hefði verið til að hafa uppi í hinu fyrra máli. Hins vegar var með fyrri dómkröfu stefnenda deilt um gildi ákvörðunar Umhverfis- og orkustofnunar 12. desember 2025 um útgáfu virkjunarleyfis fyrir Hvammsvirkjun, þar sem jafnframt var veitt heimild til að breytingar á vatnshlotunum Þjórsá 1 og Þverá samkvæmt 18. gr. laga nr. 36/2011 um stjórn vatnamála. Stefndu voru einnig sýknaðir af þeirri dómkröfu. Málskostnaður var þó felldur niður með vísan til 3. mgr. 130. gr. laga nr. 91/1991.

Hæstiréttur birt 27. maí 2026 kl. 15:08

68/2025

dánarbú Sigríðar S. Jónsdóttur og Ólafur Þór Jónsson (Sigurður Örn Hilmarsson lögmaður) gegn Landsneti hf. (Þórður Bogason lögmaður) og íslenska ríkinu (Fanney Rós Þorsteinsdóttir ríkislögmaður)

S og Ó kröfðust þess að felld yrði úr gildi ákvörðum umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra þar sem L var heimilað eignarnám til ótímabundinna afnota á landi þeirra vegna lagningar 220 kV háspennulínu, svonefndrar Suðurnesjalínu 2, og að í því skyni yrði nánar tiltekinni kvöð þinglýst á jörðina. Hæstiréttur rakti að í framhaldi af dómum réttarins í málum frá 2016, þar sem felldar voru úr gildi samskonar ákvarðanir ráðherra um eignarnám, hefði L unnið nýja skýrslu um mat á umhverfisáhrifum og borið saman sex valkosti vegna lagningar línunnar, meðal annars þann að leggja jarðstreng. Hæstiréttur féllst ekki á að við meðferð umsóknar L um heimild til eignarnáms eða með ákvörðun sinni þar um hefði ráðherra litið fram hjá áliti Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum framkvæmdarinnar eða tekið ónógt tillit til niðurstöðu stofnunarinnar. Þá hafnaði rétturinn sjónarmiðum um að nánar tilgreind viðmið sem fram kæmu í þingsályktun um stefnu stjórnvalda um lagningu raflína væru í andstöðu við lög eða þýðingarlaus fyrir úrlausn málsins. Bent var á þann annmarka við undirbúning málsins að ekki hefði með tölulegum samanburði verið leitast við að leggja mat á og bera saman rekstrarkostnað á líftíma loftlínu annars vegar og jarðstrengs hins vegar. Rétturinn taldi þetta þó ekki verulegan annmarka, einkum þar sem í matsskýrslu umhverfisáhrifa mátti finna umfjöllun um þau atriði sem máli skiptu við mat á rekstrarkostnaði og áhættuþáttum á líftíma loftlínu og jarðstrengs. Var því talið að L hefði með fullnægjandi hætti lagt hlutlægan grunn að vali sínu á fyrirhugaðri útfærslu Suðurnesjalínu 2 og þar með umsókn sinni um heimild til eignarnáms. Var því þar af leiðandi hafnað að skort hefði á rannsókn málsins við töku ákvörðunar um eignarnám. Loks var ekki fallist á að unnt hefði verið með öðrum vægari úrræðum, svo sem með lagningu jarðstrengs, að ná með viðunandi hætti því markmiði sem að var stefnt með fyrirhugaðri framkvæmd. Hefði því verið fullnægt skilyrðum 23. gr. raforkulaga og 72. gr. stjórnarskrárinnar um að eignarnám í landi S og Ó væri nauðsynlegt. Að þessu gættu en að öðru leyti með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms var hann staðfestur.

Hæstiréttur birt 27. maí 2026 kl. 15:08

67/2025

Eydís Lára Franzdóttir og Guðni Kjartan Franzon (Sigurður Örn Hilmarsson lögmaður) gegn Landsneti hf. (Þórður Bogason lögmaður) og íslenska ríkinu (Fanney Rós Þorsteinsdóttir ríkislögmaður)

E og G kröfðust þess að felld yrði úr gildi ákvörðum umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra þar sem L var heimilað eignarnám til ótímabundinna afnota á landi þeirra vegna lagningar 220 kV háspennulínu, svonefndrar Suðurnesjalínu 2, og að í því skyni yrði nánar tiltekinni kvöð þinglýst á jörðina. Hæstiréttur rakti að í framhaldi af dómum réttarins í málum frá 2016, þar sem felldar voru úr gildi samskonar ákvarðanir ráðherra um eignarnám, hefði L unnið nýja skýrslu um mat á umhverfisáhrifum og borið saman sex valkosti vegna lagningar línunnar, meðal annars þann að leggja jarðstreng. Hæstiréttur féllst ekki á að við meðferð umsóknar L um heimild til eignarnáms eða með ákvörðun sinni þar um hefði ráðherra litið fram hjá áliti Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum framkvæmdarinnar eða tekið ónógt tillit til niðurstöðu stofnunarinnar. Þá hafnaði rétturinn sjónarmiðum um að nánar tilgreind viðmið sem fram kæmu í þingsályktun um stefnu stjórnvalda um lagningu raflína væru í andstöðu við lög eða þýðingarlaus fyrir úrlausn málsins. Bent var á þann annmarka við undirbúning málsins að ekki hefði með tölulegum samanburði verið leitast við að leggja mat á og bera saman rekstrarkostnað á líftíma loftlínu annars vegar og jarðstrengs hins vegar. Rétturinn taldi þetta þó ekki verulegan annmarka, einkum þar sem í matsskýrslu umhverfisáhrifa mátti finna umfjöllun um þau atriði sem máli skiptu við mat á rekstrarkostnaði og áhættuþáttum á líftíma loftlínu og jarðstrengs. Var því talið að L hefði með fullnægjandi hætti lagt hlutlægan grunn að vali sínu á fyrirhugaðri útfærslu Suðurnesjalínu 2 og þar með umsókn sinni um heimild til eignarnáms. Var því þar af leiðandi hafnað að skort hefði á rannsókn málsins við töku ákvörðunar um eignarnám. Loks var ekki fallist á að unnt hefði verið með öðrum vægari úrræðum, svo sem með lagningu jarðstrengs, að ná með viðunandi hætti því markmiði sem að var stefnt með fyrirhugaðri framkvæmd. Hefði því verið fullnægt skilyrðum 23. gr. raforkulaga og 72. gr. stjórnarskrárinnar um að eignarnám í landi E og G væri nauðsynlegt. Að þessu gættu en að öðru leyti með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms var hann staðfestur.

Hæstiréttur birt 27. maí 2026 kl. 15:08

66/2025

Reykjaprent ehf., dánarbú Sigríðar S. Jónsdóttur, Jón Gestur Ólafsson, Freygerður Anna Ólafsdóttir og Edda Rún Ólafsdóttir (Sigurður Örn Hilmarsson lögmaður) gegn Landsneti hf (Þórður Bogason lögmaður) og íslenska ríkinu (Fanney Rós Þorsteinsdóttir ríkislögmaður)

R o.fl. kröfðust þess að felld yrði úr gildi ákvörðum umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra þar sem L var heimilað eignarnám til ótímabundinna afnota á landi þeirra vegna lagningar 220 kV háspennulínu, svonefndrar Suðurnesjalínu 2, og að í því skyni yrði nánar tiltekinni kvöð þinglýst á jörðina. Hæstiréttur rakti að í framhaldi af dómum réttarins í málum frá 2016, þar sem felldar voru úr gildi samskonar ákvarðanir ráðherra um eignarnám, hefði L unnið nýja skýrslu um mat á umhverfisáhrifum og borið saman sex valkosti vegna lagningar línunnar, meðal annars þann að leggja jarðstreng. Hæstiréttur féllst ekki á að við meðferð umsóknar L um heimild til eignarnáms eða með ákvörðun sinni þar um hefði ráðherra litið fram hjá áliti Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum framkvæmdarinnar eða tekið ónógt tillit til niðurstöðu stofnunarinnar. Þá hafnaði rétturinn sjónarmiðum um að nánar tilgreind viðmið sem fram kæmu í þingsályktun um stefnu stjórnvalda um lagningu raflína væru í andstöðu við lög eða þýðingarlaus fyrir úrlausn málsins. Bent var á þann annmarka við undirbúning málsins að ekki hefði með tölulegum samanburði verið leitast við að leggja mat á og bera saman rekstrarkostnað á líftíma loftlínu annars vegar og jarðstrengs hins vegar. Rétturinn taldi þetta þó ekki verulegan annmarka, einkum þar sem í matsskýrslu umhverfisáhrifa mátti finna umfjöllun um þau atriði sem máli skiptu við mat á rekstrarkostnaði og áhættuþáttum á líftíma loftlínu og jarðstrengs. Var því talið að L hefði með fullnægjandi hætti lagt hlutlægan grunn að vali sínu á fyrirhugaðri útfærslu Suðurnesjalínu 2 og þar með umsókn sinni um heimild til eignarnáms. Var því þar af leiðandi hafnað að skort hefði á rannsókn málsins við töku ákvörðunar um eignarnám. Loks var ekki fallist á að unnt hefði verið með öðrum vægari úrræðum, svo sem með lagningu jarðstrengs, að ná með viðunandi hætti því markmiði sem að var stefnt með fyrirhugaðri framkvæmd. Hefði því verið fullnægt skilyrðum 23. gr. raforkulaga og 72. gr. stjórnarskrárinnar um að eignarnám í landi R o.fl. væri nauðsynlegt. Að þessu gættu en að öðru leyti með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms var hann staðfestur.

Hæstiréttur birt 27. maí 2026 kl. 14:58

41/2025

Eydís Lára Franzdóttir, Guðni Kjartan Franzson, dánarbú Sigríðar Sólrúnar Jónsdóttur, Ólafur Þór Jónsson, Reykjaprent ehf., Jón Gestur Ólafsson, Freygerður Anna Ólafsdóttir og Edda Rún Ólafsdóttir (Sigurður Örn Hilmarsson lögmaður) gegn Sveitarfélaginu Vogum (Ívar Pálsson lögmaður) og Landsneti hf (Þórður Bogason lögmaður)

E o.fl. kröfðust þess að fellt yrði úr gildi framkvæmdaleyfi sem sveitarfélagið V gaf út til L vegna lagningar 220 kV háspennulínu, svonefndrar Suðurnesjalínu 2. Hæstiréttur rakti að útgáfa hins umdeilda framkvæmdaleyfis hefði grundvallast á ítarlegri gagnaöflun sem meðal annars hefði farið fram í tilefni og framhaldi af dómum Hæstaréttar á árunum 2016 og 2017 vegna fyrri áætlana um Suðurnesjalínu 2. Andstætt því sem hefði átt við í þeim málum bæru gögn málsins, einkum ný skýrsla L um mat á umhverfisáhrifum, með sér að fyrirtækið hefði við undirbúning framkvæmda látið fara fram sérstaka athugun á þeim möguleika að leggja jarðstreng, hvar slíkur strengur gæti legið og hver yrðu umhverfisáhrif hans. Hæstiréttur tók undir efnislega niðurstöðu úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála um að annmarkar á áliti Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum vegna skýrslunnar hefðu gefið V tilefni til umfjöllunar um hvort og að hvaða leyti munur á neikvæðum umhverfisáhrifum loftlínu samanborið við jarðstreng væri verulegur eða óverulegur. Ekki var fallist á að V hefði tekið ónógt tillit til athugasemda Skipulagsstofnunar um neikvæð umhverfisáhrif þeirrar framkvæmdar sem L sótti um leyfi fyrir. Þvert á móti bæri rökstuðningur V með sér, svo og öll meðferð málsins, að tekin hefði verið afstaða til álits stofnunarinnar og það lagt til grundvallar í samræmi við ákvæði 2. mgr. 13. gr. þágildandi laga um mat á umhverfisáhrifum og 2. mgr. 14. gr. skipulagslaga. Ekki var tekið undir málsástæður E o.fl. um að samkomulag L og V um lagningu hluta Suðurnesjalínu 1 í jörð eða tilvísun til þess í rökstuðningi V fyrir framkvæmdaleyfi L hefði falið í sér ómálefnalegan grundvöll fyrir útgáfu framkvæmdaleyfisins. Loks var því hafnað að unnt hefði verið með öðrum vægari úrræðum, svo sem með jarðstreng, að ná með viðunandi hætti því markmiði sem að væri stefnt með fyrirhugaðri framkvæmd. Samkvæmt þessu og að öðru leyti með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms var hann staðfestur.

Héraðsdómur Reykjaness birt 23. apríl 2025

E-1741/2024

Eydís Lára Franzdóttir, Guðni Kjartan Franzson, Sigríður Sólrún, Jónsdóttir, Ólafur Þór Jónsson, Reykjaprent ehf., Jón Gestur Ólafsson og Freygerður Anna Ólafsdóttir og Edda Rún Ólafsdóttir (Linda Íris Emilsdóttir lögmaður) gegn Sveitarfélaginu Vogum (Ívar Pálsson lögmaður) og Landsneti hf. (Þórður Bogason lögmaður)

Stefndu, Sveitarfélagið Vogar og Landsnet hf., voru sýknir af kröfu um ógildingu framkvæmdaleyfis vegna lagningar Suðurnesjalínu 2.

Landsréttur birt 26. apríl 2024

70/2023

Holt ehf (Guðni Ásþór Haraldsson lögmaður) og Ljósaborg ehf (Davíð Örn Guðnason lögmaður, 1. prófmál) gegn íslenska ríkinu og Skipulagsstofnun (Sonja H. Berndsen lögmaður), Eyjafjarðarsveit (Ólafur Rúnar Ólafsson lögmaður) og og Teigi ehf. (Einar Farestveit lögmaður)

H og L höfðuðu mál og kröfðust þess að ógilt yrði ákvörðun S frá 12. mars 2019 um að fyrirhuguð framkvæmd svínabús að Torfum í Eyjafjarðarsveit væri ekki líkleg til þess að hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif og skyldi því ekki háð mati á umhverfisáhrifum. Málsókn sína byggðu H og L í meginatriðum á því að ákvörðun S hefði verið haldin efnislegum annmörkum. Með vísan til fyrirliggjandi matsgerðar hefði S átt að miða við að framkvæmdin væri matsskyld samkvæmt 5. gr. þágildandi laga nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrifum. Til vara að S hafi ranglega lagt til grundvallar að framkvæmdin myndi ekki hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif vegna umfangs, eðlis eða staðsetningar, sbr. 1. mgr. 6. gr. sömu laga. Í dómi héraðsdóms var því hafnað að hin fyrirhugaða framkvæmd félli undir 5. gr. laganna. Þá kom meðal annars fram að ekki væri annað að sjá af rökstuðningi ákvörðunar S en að stofnunin hafi við ákvörðun sína, um hvort fyrirhuguð framkvæmd væri líkleg til að hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif, í skilningi 1. mgr. 6. gr. laganna, litið með heildstæðum hætti til þeirra viðmiða sem tilgreind voru í 2. viðauka laga nr. 106/2000 og svöruðu til þeirra valforsendna sem voru settar fram í III. viðauka tilskipunar 2011/92/EBE. Bæri ákvörðunin þannig með sér að það mat sem S lagði til grundvallar í málinu hefði verið í samræmi við kröfur laga nr. 106/2000 að þessu leyti og þær alþjóðlegu skuldbindingar sem lögin byggðust á. Vísaði héraðsdómur einnig til þess að í ljósi þess heildstæða mats sem S bar að gera á fyrirhugaðri framkvæmd væri ekki unnt að líta svo á að niðurstöður matsgerðar sýndu fram á efnislega annmarka á ákvörðun S. Yrði þá að líta til þess að þau þrjú atriði sem matsmaður gerði grein fyrir í niðurstöðu sinni lutu einvörðungu að þremur þáttum sem vörðuðu eðli framkvæmdar. Eðli framkvæmdar væri hins vegar einungis eitt þeirra þriggja grundvallarviðmiða sem S bæri að líta til við ákvörðun um matsskyldu samkvæmt 2. viðauka laga nr. 106/2000, sbr. 3. mgr. 6. gr. sömu laga. Var matsgerðin því ekki talin hafa þýðingu fyrir úrlausn málsins. Málsástæðum H og L um að ákvörðun S væri haldin efnisannmörkum var því hafnað. Þá hafnaði héraðsdómur því að S hefði brotið gegn reglum um upplýsinga- og andmælarétt, sbr. 3. mgr. 6. gr. laga nr. 106/2000, og rannsóknarskyldu samkvæmt 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. S, Í og T voru því sýknuð en E var sýknaður á grundvelli aðildarskorts, sbr. 2. mgr. 16. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Fyrir Landsrétti gerðu H og L aðallega þá kröfu að dómur héraðsdóms yrði ómerktur þar sem þörf hefði verið á sérfróðum meðdómsmanni í héraði, enda hefði verið um að ræða matskennda stjórnvaldsákvörðun sem falið hafi í sér sérfræðiþekkingu, auk þess sem fyrir hafi legið matsgerð dómkvadds manns. Í dómi Landsréttar var vísað til þess að með hinum áfrýjaða dómi hefði verið komist að þeirri niðurstöðu, á grundvelli lögfræðilegra röksemda, að matsgerð hins dómkvadda manns hefði ekki þýðingu fyrir úrlausn málsins. Hvorki matsgerðin né eðli ákvörðunarinnar hefði leitt til þess að sérkunnáttu hefði verið þörf í dómi til að leysa úr málsástæðum aðila þannig að efni væru til að ómerkja hinn áfrýjaða dóm. Var kröfu H og L um ómerkingu héraðsdóms því hafnað og hinn áfrýjaði dómur staðfestur með vísan til forsendna.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 1. apríl 2022

E-5076/2020

A og B (Hlynur Jónsson lögmaður) gegn Vegagerðinni (Reynir Karlsson lögmaður)

Stefndi kynnti tillögu um þrjá framkvæmdakosti til veglagningar um Hornafjarðarfljót. Ekki náðist samkomulag um framkvæmdina og tók stefndi hluta af landi stefnenda eignarnámi. Stefnendur kröfðust þess að ákvörðun stefnda um eignarnámið yrði felld úr gildi. Ágreiningur stefnenda og stefnda laut að því hvort andlag eignarnámsins hefði verið ranglega tilgreint, hvort rökstuðningur um að breyta um vegleið hefði verið fullnægjandi, hvort gætt hafi verið meðalhófs við ákvörðunina og hvort byggt hafi verið á ófullnægjandi og úreltum gögnum. Ekki var fallist á að málsmeðferðin hefði verið í andstöðu við ákvæði vegalaga nr. 80/2007 og laga um framkvæmd eignarnáms nr. 11/1973. Þá var rökstuðningur stefnda fyrir vegleiðinni talinn vera fullnægjandi og byggður á viðunandi gögnum. Jafnframt var fallist á að sá samfélagslegi ávinningur og sjónarmið um aukið umferðaröryggi varðandi þá vegleið sem ákveðið var að fara vægju þyngra en röskun á eignarréttindum, umhverfi og kostnaði vegna framkvæmdanna við mat á meðalhófi. Var kröfum stefnenda því hafnað.

Héraðsdómur Norðurlands vestra birt 17. desember 2021

E-184/2019

B. Pálsson ehf (Magnús Óskarsson lögmaður) gegn Sveitarfélaginu Skagafirði (Ívar Pálsson lögmaður)

Stefndi sýknaður af kröfu stefnanda um ógildingu á breytingu á aðalskipulagi stefnda sem tók til lagningu Blöndulínu 3 í Skagafirði.

Hæstiréttur birt 16. febrúar 2017

575/2016

Landsnet hf og Sveitarfélagið Vogar (Hjördís Halldórsdóttir hrl, Ívar Pálsson hrl, Áslaug Árnadóttir hdl, 1. prófmál) gegn Bjarneyju Guðrúnu Ólafsdóttur, Geirlaugu Þorvaldsdóttur, Katrínu Þorvaldsdóttur, Margréti Guðnadóttur, Ólafi Þór Jónssyni, Reykjaprenti ehf, Sigríði Jónsdóttur, Skúla Þorvaldssyni og STV ehf (Ásgerður Ragnarsdóttir hrl)

Í málinu kröfðust B o.fl. þess að ógilt yrði ákvörðun sveitarfélagsins V frá árinu 2015 um að veita L hf. framkvæmdaleyfi til að reisa flutningsvirkið Suðurnesjalínu 2 innan marka sinna. Reistu þau kröfu sína á því að við meðferð málsins hefðu verið brotnar ýmsar reglur laga nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrifum, skipulagslaga nr. 123/2010 og stjórnsýslulaga nr. 37/1993, meðal annars með því að ekki hefði verið rannsakað sem skyldi þann kost að leggja línuna í jörðu en ekki í lofti. Með hliðsjón af dómum Hæstaréttar í málum nr. 511-513/2015 nr. 541/2015 og nr. 796/2015 og að virtum helstu reglum laga nr. 106/2000 og 123/2010 um málsmeðferð vegna matsskyldra framkvæmda og efni matsskýrslna var talið að B o.fl. hefðu sýnt fram á að jarðstrengur hefði verið framkvæmdarkostur sem til greina hefði getað komið. Hefði því borið að gera grein fyrir honum í tillögum og matsskýrslum í matsferlinu og bera hann saman við annan eða aðra framkvæmdarkosti. Það hefði ekki verið gert að öðru leyti en því að látið hefði verið nægja að vísa til almennra sjónarmiða um kosti og galla jarðstrengja. Umhverfisáhrifum jarðstrengs í samanburði við aðra framkvæmdarkosti hefði samkvæmt því ekki verið lýst á fullnægjandi hátt og hefði matsferlið og umhverfismatsskýrslan því ekki uppfyllt þann áskilnað sem gerður er í framangreindum lögum og reglugerðum settum samkvæmt þeim. Hefði matsskýrsla L hf. um Suðurnesjalínu 2 og álit Skipulagsstofnunar um skýrsluna því ekki getað verið lögmætur grundvöllur undir ákvörðun sveitarfélagsins V um veitingu framkvæmdaleyfisins. Var fallist á kröfu B o.fl.

Hæstiréttur birt 12. maí 2016

541/2015

Geirlaug Þorvaldsdóttir, Katrín Þorvaldsdóttir, Skúli Þorvaldsson og STV ehf (Ásgerður Ragnarsdóttir hrl) gegn Landsneti hf (Þórður Bogason hrl) og íslenska ríkinu (Fanney Rós Þorsteinsdóttir hrl)

Í málinu kröfðust G, K, S og S ehf. þess að ógilt yrði ákvörðun iðnaðar- og viðskiptaráðherra frá árinu 2014 um annars vegar heimild L hf. til að framkvæma eignarnám til ótímabundinna afnota vegna lagningar 220 kV háspennulínu, svonefndrar Suðurnesjalínu 2, um jörð þeirra í Vogum á Vatnsleysuströnd og hins vegar um þinglýsingu á nánar tilgreindri kvöð á jörðina. Reistu G, K, S og S ehf. kröfu sína á því að ekki væri fullnægt skilyrði um almenningsþörf og meðalhóf fyrir framkvæmdunum, auk þess sem ráðherra hefði ekki sinnt rannsóknarskyldu sinni áður en tekin hefði verið ákvörðun um að heimila eignarnám. Loks hefði L hf. brotið gegn skyldu sinni til samráðs við G, K, S og S ehf. vegna framkvæmdanna og andmælaréttur þeirra ekki verið virtur við meðferð málsins. Í dómi Hæstaréttar kom fram að undirbúningur framkvæmdanna hefði farið eftir formlega lögboðnu ferli. Hefðu til að mynda verið haldnir kynningarfundir, fjallað hefði verið um væntanlegar framkvæmdir hjá sveitarstjórnum og tillögur L hf. sætt meðferð hjá Skipulagsstofnun og Orkustofnun. Á hinn bóginn var fallist á með G, K, S og S ehf. að L hf. hefði ekki rannsakað sem skyldi þann kost að leggja línuna í jörðu en ekki í lofti, eins og eignarnámsbeiðnin hafði kveðið á um. Talið var að G, K, S og S ehf. og aðrir landeigendur hefðu með rökum ítrekað andmælt þeim gögnum sem L hf. hefði vísað til um nauðsyn línulagnar í lofti. Jafnframt hefðu þeir lagt fram gögn sem sýna áttu að jarðstrengir væru raunhæfur kostur og rökstutt þörf á að kanna hann til þrautar áður en ráðist væri í stórvægilegar aðgerðir. Þrátt fyrir þetta hefði L hf. við undirbúning framkvæmdanna ekki látið fara fram sérstaka athugun á þeim möguleika að leggja jarðstreng, heldur hefði hann einkum vísað til almennra sjónarmiða um kosti og galla slíkra strengja. Þá hefði ráðherra ekki haft forgöngu um að þetta atriði yrði sérstaklega athugað áður en hann tók ákvörðun um að heimila eignarnám. Samkvæmt framansögðu og með hliðsjón af 1. mgr. 72. gr. stjórnarskrárinnar og meðalhófsreglu stjórnskipunarréttar, sbr. og 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993, var fallist á kröfur G, K, S og S ehf.

Hæstiréttur birt 12. maí 2016

513/2015

Reykjaprent ehf Sigríður Jónsdóttir og Ólafur Þór Jónsson (Ásgerður Ragnarsdóttir hrl) gegn Landsneti hf (Þórður Bogason hrl) og íslenska ríkinu (Fanney Rós Þorsteinsdóttir hrl)

Í málinu kröfðust R ehf., Ó og S þess að ógilt yrði ákvörðun iðnaðar- og viðskiptaráðherra frá árinu 2014 um annars vegar heimild L hf. til að framkvæma eignarnám til ótímabundinna afnota vegna lagningar 220 kV háspennulínu, svonefndrar Suðurnesjalínu 2, um jörð þeirra í Vogum á Vatnsleysuströnd og hins vegar um þinglýsingu á nánar tilgreindri kvöð á jörðina. Reistu R ehf., Ó og S kröfu sína á því að ekki væri fullnægt skilyrði um almenningsþörf og meðalhóf fyrir framkvæmdunum, auk þess sem ráðherra hefði ekki sinnt rannsóknarskyldu sinni áður en tekin hefði verið ákvörðun um að heimila eignarnám. Loks hefði L hf. brotið gegn skyldu sinni til samráðs við R ehf., Ó og S vegna framkvæmdanna og andmælaréttur þeirra ekki verið virtur við meðferð málsins. Í dómi Hæstaréttar kom fram að undirbúningur framkvæmdanna hefði farið eftir formlega lögboðnu ferli. Hefðu til að mynda verið haldnir kynningarfundir, fjallað hefði verið um væntanlegar framkvæmdir hjá sveitarstjórnum og tillögur L hf. sætt meðferð hjá Skipulagsstofnun og Orkustofnun. Á hinn bóginn var fallist á með R ehf., Ó og S að L hf. hefði ekki rannsakað sem skyldi þann kost að leggja línuna í jörðu en ekki í lofti, eins og eignarnámsbeiðnin hafði kveðið á um. Talið var að R ehf., Ó og S og aðrir landeigendur hefðu með rökum ítrekað andmælt þeim gögnum sem L hf. hefði vísað til um nauðsyn línulagnar í lofti. Jafnframt hefðu þeir lagt fram gögn sem sýna áttu að jarðstrengir væru raunhæfur kostur og rökstutt þörf á að kanna hann til þrautar áður en ráðist væri í stórvægilegar aðgerðir. Þrátt fyrir þetta hefði L hf. við undirbúning framkvæmdanna ekki látið fara fram sérstaka athugun á þeim möguleika að leggja jarðstreng, heldur hefði hann einkum vísað til almennra sjónarmiða um kosti og galla slíkra strengja. Þá hefði ráðherra ekki haft forgöngu um að þetta atriði yrði sérstaklega athugað áður en hann tók ákvörðun um að heimila eignarnám. Samkvæmt framansögðu og með hliðsjón af 1. mgr. 72. gr. stjórnarskrárinnar og meðalhófsreglu stjórnskipunarréttar, sbr. og 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993, var fallist á kröfur R ehf., Ó og S.

Hæstiréttur birt 12. maí 2016

512/2015

Bjarney Guðrún Ólafsdóttir Ólafur Þór Jónsson og Sigríður Jónsdóttir (Ásgerður Ragnarsdóttir hrl) gegn Landsneti (Þórður Bogason hrl) og íslenska ríkinu (Fanney Rós Þorsteinsdóttir hrl)

Í málinu kröfðust B, Ó og S þess að ógilt yrði ákvörðun iðnaðar- og viðskiptaráðherra frá árinu 2014 um annars vegar heimild L hf. til að framkvæma eignarnám til ótímabundinna afnota vegna lagningar 220 kV háspennulínu, svonefndrar Suðurnesjalínu 2, um jörð þeirra í Vogum á Vatnsleysuströnd og hins vegar um þinglýsingu á nánar tilgreindri kvöð á jörðina. Reistu B, Ó og S kröfu sína á því að ekki væri fullnægt skilyrði um almenningsþörf og meðalhóf fyrir framkvæmdunum, auk þess sem ráðherra hefði ekki sinnt rannsóknarskyldu sinni áður en tekin hefði verið ákvörðun um að heimila eignarnám. Loks hefði L hf. brotið gegn skyldu sinni til samráðs við B, Ó og S vegna framkvæmdanna og andmælaréttur þeirra ekki verið virtur við meðferð málsins. Í dómi Hæstaréttar kom fram að undirbúningur framkvæmdanna hefði farið eftir formlega lögboðnu ferli. Hefðu til að mynda verið haldnir kynningarfundir, fjallað hefði verið um væntanlegar framkvæmdir hjá sveitarstjórnum og tillögur L hf. sætt meðferð hjá Skipulagsstofnun og Orkustofnun. Á hinn bóginn var fallist á með B, Ó og S að L hf. hefði ekki rannsakað sem skyldi þann kost að leggja línuna í jörðu en ekki í lofti, eins og eignarnámsbeiðnin hafði kveðið á um. Talið var að B, Ó og S og aðrir landeigendur hefðu með rökum ítrekað andmælt þeim gögnum sem L hf. hefði vísað til um nauðsyn línulagnar í lofti. Jafnframt hefðu þeir lagt fram gögn sem sýna áttu að jarðstrengir væru raunhæfur kostur og rökstutt þörf á að kanna hann til þrautar áður en ráðist væri í stórvægilegar aðgerðir. Þrátt fyrir þetta hefði L hf. við undirbúning framkvæmdanna ekki látið fara fram sérstaka athugun á þeim möguleika að leggja jarðstreng, heldur hefði hann einkum vísað til almennra sjónarmiða um kosti og galla slíkra strengja. Þá hefði ráðherra ekki haft forgöngu um að þetta atriði yrði sérstaklega athugað áður en hann tók ákvörðun um að heimila eignarnám. Samkvæmt framansögðu og með hliðsjón af 1. mgr. 72. gr. stjórnarskrárinnar og meðalhófsreglu stjórnskipunarréttar, sbr. og 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993, var fallist á kröfur B, Ó og S.

Hæstiréttur birt 12. maí 2016

511/2015

Margrét Guðnadóttir (Ásgerður Ragnarsdóttir hrl) gegn Landsneti (Þórður Bogason hrl) og íslenska ríkinu (Fanney Rós Þorsteinsdóttir hrl)

Í málinu krafðist M þess að ógilt yrði ákvörðun iðnaðar- og viðskiptaráðherra frá árinu 2014 um annars vegar heimild L hf. til að framkvæma eignarnám til ótímabundinna afnota vegna lagningar 220 kV háspennulínu, svonefndrar Suðurnesjalínu 2, um jörð hennar í Vogum á Vatnsleysuströnd og hins vegar um þinglýsingu á nánar tilgreindri kvöð á jörðina. Reisti M kröfu sína á því að ekki væri fullnægt skilyrði um almenningsþörf og meðalhóf fyrir framkvæmdunum, auk þess sem ráðherra hefði ekki sinnt rannsóknarskyldu sinni áður en tekin hefði verið ákvörðun um að heimila eignarnám. Loks hefði L hf. brotið gegn skyldu sinni til samráðs við M vegna framkvæmdanna og andmælaréttur hennar ekki verið virtur við meðferð málsins. Í dómi Hæstaréttar kom fram að undirbúningur framkvæmdanna hefði farið eftir formlega lögboðnu ferli. Hefðu til að mynda verið haldnir kynningarfundir, fjallað hefði verið um væntanlegar framkvæmdir hjá sveitarstjórnum og tillögur L hf. sætt meðferð hjá Skipulagsstofnun og Orkustofnun. Á hinn bóginn var fallist á með M að L hf. hefði ekki rannsakað sem skyldi þann kost að leggja línuna í jörðu en ekki í lofti, eins og eignarnámsbeiðnin hafði kveðið á um. Talið var að M og aðrir landeigendur hefðu með rökum ítrekað andmælt þeim gögnum sem L hf. hefði vísað til um nauðsyn línulagnar í lofti. Jafnframt hefðu þeir lagt fram gögn sem sýna áttu að jarðstrengir væru raunhæfur kostur og rökstutt þörf á að kanna hann til þrautar áður en ráðist væri í stórvægilegar aðgerðir. Þrátt fyrir þetta hefði L hf. við undirbúning framkvæmdanna ekki látið fara fram sérstaka athugun á þeim möguleika að leggja jarðstreng, heldur hefði hann einkum vísað til almennra sjónarmiða um kosti og galla slíkra strengja. Þá hefði ráðherra ekki haft forgöngu um að þetta atriði yrði sérstaklega athugað áður en hann tók ákvörðun um að heimila eignarnám. Samkvæmt framansögðu og með hliðsjón af 1. mgr. 72. gr. stjórnarskrárinnar og meðalhófsreglu stjórnskipunarréttar, sbr. og 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993, var fallist á kröfur M.

Hæstiréttur birt 14. mars 2008

114/2008

Ragnar Stefánsson, Ásgeir Núpan Ágústsson, Ásmundur Gíslason, Helga Erlendsdóttir, Ragnar Jónsson, Hjalti Egilsson, Eiríkur Egilsson, Bjarni Hákonarson, Finndís Harðardóttir, Kristján Jónsson, Kjartan Jónsson, Lovísa Eymundsdóttir, Meðalfell ehf, Þorleifur Hjaltason, Guðbjörg Ósk Jónsdóttir, Anna Lilja Jónsdóttir og Þorbergur Hjalti Jónsson (Karl Axelsson hrl) gegn íslenska ríkinu (Guðrún Margrét Árnadóttir hrl) og Vegagerðinni (Kristinn Bjarnason hrl)

V lagði fram tillögu að matsáætlun til S, í samræmi við ákvæði laga nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrifum, vegna fyrirhugaðrar lagningar hringvegar um Hornafjarðarfljót. Komu sóknaraðilar málsins á framfæri athugasemdum við stofnunina og með hliðsjón af þeim athugasemdum meðal annars var tillagan samþykkt með breytingum, sem fólu í sér að lagt var fyrir V að kanna fleiri vegarstæði en tillaga að matsáætlun gerði ráð fyrir. V kærði umrædda ákvörðun S til umhverfisráðherra sem felldi ákvörðunina úr gildi að því leyti sem hún fól í sér mat á öðrum kostum en V hafði byggt tillögu sína að matsáætlun á. Var málið höfðað af sóknaraðilum til að fá þeim úrskurði umhverfisráðherra hnekkt. Talið var að þótt 14. gr. laga nr. 106/2000 takmarki kæruheimild við framkvæmdaraðila raskaði það ekki rétti manna til að bera mál undir dómstóla ættu þeir lögvarinna hagsmuna að gæta af úrlausn máls. Með hliðsjón af því, að matsáætlun samkvæmt 8. gr. laga nr. 106/2000 afmarki í meginatriðum til hvaða atriða mat á umhverfisáhrifum taki og að endanleg ákvörðun um legu vegar verði að byggjast á vegleið sem sætt hafi slíku mati og með vísan til e. liðar 2. töluliðar 2. mgr. 13. gr. reglugerðar nr. 1123/2005 um mat á umhverfisáhrifum og að ráða megi af gögnum málsins að sóknaraðilar eigi lönd að þeim vegarstæðum sem S ákvað að koma skyldu til mats, var talið að sóknaraðilar ættu lögvarinna hagsmuna að gæta af úrlausn dómkröfu sinnar. Var hinn kærði úrskurður um frávísun málsins því felldur úr gildi og lagt fyrir héraðsdómara að taka málið til efnismeðferðar.

Hæstiréttur birt 27. september 2007

182/2007

Björgun ehf (Karl Axelsson hrl, Ragnheiður M. Ólafsdóttir hdl) gegn íslenska ríkinu (Óskar Thorarensen hrl, Þórey S. Þórðardóttir hdl)

Félagið B hafði stundað vinnslu af hafsbotni frá árinu 1963. Árið 1990 veitti iðnaðarráðuneytið B leyfi til þrjátíu ára til vinnslu á hafsbotni á grundvelli laga nr. 73/1990 um eignarrétt íslenska ríkisins að auðlindum hafsbotnsins. Árið 2000 samþykkti Alþingi lög nr. 101/2000 um breytingar á lögum um eignarrétt íslenska ríkisins að auðlindum hafsbotnsins. Í 6. gr. breytingarlaganna, sem varð að ákvæði II til bráðabirgða í lögum nr. 73/1990, var kveðið á um að þeir sem hefðu leyfi til leitar og hagnýtingar efna á, í eða undir hafsbotni, skyldu halda þeim í fimm ár frá gildistöku laganna. Með vísan til bráðabirgðaákvæðisins var B tilkynnt í september 2004 að leyfi hans frá 1990 myndi falla úr gildi í maí 2005. B tilkynnti þá til Skipulagsstofnunar að hann hygðist sækja um endurnýjun á leyfi sínu og í kjölfar þeirrar tilkynningar kunngerði stofnunin B að fyrirhuguð efnistaka hans skyldi háð mati á umhverfisáhrifum. B kærði ákvörðunina til umhverfisráðherra sem staðfesti niðurstöðu Skipulagsstofnunar. Höfðaði B mál til þess að fá ákvörðunina fellda úr gildi. Talið var að þær breytingar sem gerðar voru með lögum nr. 101/2000 hafi verið almennar og málefnalegar og að ekki hafi verið sýnt fram á að þær hafi ekki stuðst við haldbær rök eða viðurkennd löggjafarsjónarmið. Var því ekki fallist á að ákvæði 72. gr. og 75. gr. stjórnarskrárinnar stæðu því í vegi að mælt væri fyrir um stjórnun á nýtingu auðlinda á hafsbotni eins og gert var með lögum nr. 101/2000. Ekki var á það fallist að ákvæði II til bráðabirgða í lögum nr. 73/1990 bryti í bága við 1. mgr. 65. gr. stjórnarskrárinnar. Ákvæði 1. mgr. 65. gr. stjórnarskrárinnar stæði því ekki í vegi að löggjafinn setti mismunandi lagareglur um ólíkar framkvæmdir, enda væri þar byggt á málefnanlegum sjónarmiðum. Ótiltekin opinber leyfi um framkvæmdir, sem gefin væru út á grundvelli annarra laga en laga nr. 73/1990, gætu ekki talist sambærileg þeim leyfum sem út væru gefin á grundvelli þeirra laga þannig að þau væru tæk til samanburðar við beitingu jafnræðisreglu. Með vísan til tilgangs ákvæðis II til bráðabirgða í lögum nr. 73/1990 og þess aðlögunartíma sem B naut þótti sýnt að meðalhófs hefði verið gætt við setningu laga nr. 101/2000. Ekki var talið að B hefði fyrirgert rétti sínum vegna tómlætis. Var staðfest niðurstaða héraðsdóms um að sýkna bæri Í af kröfum B.

Hæstiréttur birt 9. júní 2005

20/2005

Íslenska ríkið, Alcoa á Íslandi ehf (Skarphéðinn Þórisson hrl) og Fjarðaál sf (Hörður Felix Harðarson hrl) gegn Hjörleifi Guttormssyni og Hjörleifur Guttormsson (Atli Gíslason hrl)

Umhverfismat. Starfsleyfi. Stjórnsýsla. Aðild. Áfrýjunarheimild. Frávísun máls að hluta frá héraðsdómi. Frávísun máls að hluta frá Hæstarétti. Gjafsókn. Í málinu var deilt um lögmæti umhverfismats og veitingar starfsleyfis álvers í Reyðarfirði. Höfðu áætlanir verið uppi um að reist yrði álver í tveimur áföngum með 420.000 tonna framleiðslugetu á ári, ásamt rafskautaverksmiðju og hafði farið fram lögboðið umhverfismat vegna þeirrar framkvæmdar. Fallið var frá þessum áformum áður en starfsleyfi hafði verið gefið út og ákveðið að óska eftir að fá að reisa álver með 322.000 tonna framleiðslugetu á ári og falla frá áformum um að reisa rafskautaverksmiðju. Komst Skipulagsstofnun að þeirri niðurstöðu að ekki þyrfti að fara fram nýtt umhverfismat vegna hinna breyttu áforma. Kærði H þá niðurstöðu til umhverfisráðherra sem staðfesti niðurstöðuna með úrskurði. Umhverfisstofnun veitti starfsleyfi vegna framkvæmdarinnar og freistaði H þess einnig að kæra þá ákvörðun en umhverfisráðherra vísaði kæru hans frá. Krafðist H þess meðal annars fyrir dómi að fá þessum tveimur ákvörðunum umhverfisráðherra hnekkt. Héraðsdómur hafði í efnisdómi vísað frá dómi öðrum kröfum H en sú niðurstaða hafði ekki verið kærð til Hæstaréttar í samræmi við reglur XXIV. kafla laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Gátu þær kröfur því ekki komið til álita við áfrýjun og var vísað frá Hæstarétti. Um fyrri kröfuna var tekið fram að starfsleyfi hafi ekki verið gefið út vegna upphaflegra áætlana um byggingu álvers með 420.000 tonna framleiðslugetu, þótt undirbúningur leyfisveitingar hafi verið á lokastigi. Því hafi skilyrði ekki verið fyrir hendi til að verða við beiðni um að nýtt umhverfismat þyrfti ekki að fara fram á grundvelli 6. gr. laga um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000, sbr. 13. lið 2. viðauka við lögin, sem byggð hafi verið á því að ekki væri um nýja framkvæmd að ræða heldur breytingu á framkvæmd, sem þegar hafi verið fyrirhuguð. Var og tekið fram að nota hafi átt að einhverju leyti aðra tækni við framleiðslu í álverinu en upphaflega hafi verið áætlað og taka hafi átt á mengandi útblæstri með allt öðrum hætti. Að auki hafi verksmiðjan verið verulega breytt í útliti. Var því talið að umhverfismat hefði þurft að fara fram að nýju. Varðandi síðari kröfu H var talið að samkvæmt 2. mgr. 32. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir mætti kæra ákvarðanir Umhverfisstofnunar um veitingu starfsleyfis til umhverfisráðherra. Ekki væri í lagagreininni tekið fram hverjir nytu aðildar að slíkum kærum og þótti verða að skýra ákvæðið með hliðsjón af reglum stjórnsýslulaga en almennt væri viðurkennt samkvæmt stjórnsýslurétti að aðilar máls gætu þeir einir verið sem hafi verulegra og einstaklegra hagsmuna að gæta af stjórnavaldsákvörðun. H átti heimilisfesti í Fjarðarbyggð en heimili hans var langt frá hinu fyrirhugaða álveri og taldist hann því ekki geta reist aðild sína á reglum grenndarréttar og ekki var talið að hann hefði sýnt fram á að hann ætti annarra einstaklegra og verulegra hagsmuna að gæta um byggingu álversins. Ekki breytti neinu í þessu sambandi að H hafi notið réttar samkvæmt lögum nr. 7/1998 til að gera athugasemdir við tillögur Umhverfisstofnunar um starfsleyfi. Var því staðfesti niðurstaða héraðsdóms um að hafna kröfu H um ógildingu á þeirri ákvörðun umhverfisráðherra að vísa frá kæru H vegna veitingar starfsleyfisins.

Hæstiréttur birt 5. júní 2003

68/2003

Gunnar H. Sigurðsson Árni J. Friðbjarnarson (Karl Axelsson hrl) og Jón H. Sigurðsson (Halldór Jónsson hdl) gegn Vegagerðinni og Reykjavíkurborg (Ásgeir Magnússon hrl, Hilmar Magnússon hdl, Hjörleifur Kvaran hrl)

Þrír íbúar við Garðhús í Reykjavík, kröfðust þess að úrskurður umhverfisráðuneytisins, þar sem staðfestur var úrskurður Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum vegna fyrirhugaðrar lagningar framhalds Hallsvegar, tveggja akreina vegar frá Fjallkonuvegi að Víkurvegi og framhjá húsum íbúanna, yrði felldur úr gildi sökum efnislegra annmarka. Héldu þeir því einkum fram að áhrif heildarframkvæmdarinnar hefðu ekki verið metin, þar sem meta hefði átt fjögurra akreina veg í stað tveggja, matið gæfi ekki nægilega til kynna líkleg áhrif framkvæmdarinnar á umhverfið auk þess sem arðsemismat hennar væri ábótavant. Fallist var á að lagning tveggja akreina frá Fjallkonuvegi að Víkurvegi stæðist sem sjálfstæð framkvæmd og væri eðlileg með tilliti til umferðar um hverfið enda hefði hún verið fyrirhuguð frá upphafi og tekið tillit til hennar við hönnun hverfisins. Var því staðfest sú úrlausn héraðsdóms að sjálfstætt mat á umhverfisáhrifum þeirrar framkvæmdar hefði mátt fara fram. Kæmi hins vegar til frekari framkvæmda við Hallsveg og tengingar við aðrar umferðaræðar yrði að fara fram nýtt mat vegna þeirra og yrði þá að taka fullt tillit til byggðarinnar við Garðhús. Þá hefði með lækkun vegarins og fyrirhuguðum mótvægisaðgerðum í samráði við húseigendur verið uppfyllt ákvæði reglugerðar nr. 933/1999 um hávaða auk þess sem ekki væri annað komið fram en að útreikningar á arðsemi framkvæmdarinnar hefðu verið gerðir með fullnægjandi hætti. Voru V og R því sýknaðar af kröfum íbúanna.

Hæstiréttur birt 17. febrúar 2003

568/2002

Atli Gíslason, Guðmundur Páll Ólafsson, Náttúruverndarsamtök Íslands og Ólafur S. Andrésson (Atli Gíslason hrl) gegn íslenska ríkinu (Skarphéðinn Þórisson hrl) og Landsvirkjun (Hreinn Loftsson hrl)

Kærumál. Umhverfismat. Stjórnvaldsúrskurður. Aðild. Samaðild. Lögvarðir hagsmunir. Stjórnarskrá. Frávísun máls frá héraðsdómi að hluta. Gjafsókn. Sóknaraðilar höfðuðu mál á hendur íslenska ríkinu og L, þar sem þeir kröfðust þess aðallega að varnaraðilum yrði með dómi gert að leggja skýrslu L um mat á umhverfisáhrifum Kárahnjúkavirkjunar að nýju undir athugun og úrskurð Skipulagsstofnunar samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum. Til vara kröfðust þeir að úrskurður umhverfisráðherra um málið yrði ómerktur. Úrskurður héraðsdóms um frávísun málsins var kærður til Hæstaréttar. Var staðfest niðurstaða héraðsdóms um frávísun aðalkröfu sóknaraðila, en þeir þóttu ekki hafa lögvarða hagsmuni af því að efnisdómur gengi um hana. Í fyrra máli sóknaraðila á hendur íslenska ríkinu um sama sakarefni hafði því verið slegið föstu í dómi Hæstaréttar, með vísan til meginreglu fyrri málsliðar 60. gr. stjórnarskrárinnar, að sóknaraðilar hefðu lögvarða hagsmuni af því að fá úrlausn dómstóla um fyrrnefnda varakröfu sína en þeir höfðu allir kært úrskurð Skipulagsstofnunar til umhverfisráðherra. Í dómi Hæstaréttar segir að um aðild til varnar í máli sem þessu yrði að fylgja þeirri almennu reglu að ekki verði leyst úr kröfu um gildi stjórnvaldsákvörðunar án þess að þeir eigi hlut að máli, sem hafi einstaklegra, beinna og lögvarinna hagsmuna að gæta af úrlausn kröfunnar. Meta yrði eftir almennum reglum stjórnsýsluréttar hverjir þeirra fjölmörgu, sem kærðu úrskurð Skipulagsstofnunar til umhverfisráðherra, hefðu getað átt aðild að því kærumáli ef ekki hefði notið við hinnar sérstöku heimildar í lögum um mat á umhverfisáhrifum um aðild að stjórnsýslumálum samkvæmt lögunum. Var hvorki talið að Þ, eigandi jarðar í Jökulsárhlíð, né sveitarfélögin F og AH, ættu slíka beina, einstaklega og lögvarða hagsmuni af úrlausn málsins að nauðsynlegt hefði verið að beina varakröfunni að þeim til þess að efnisdómur gæti gengið um kröfuna. Þá hefði ekki verið sýnt fram á að aðrir, sem kærðu úrskurð Skipulagsstofnunar til umhverfisráðherra, gætu haft þá lögvörðu hagsmuni af úrlausn um varakröfuna að nauðsyn bæri til að beina henni að þeim. Var hinn kærði úrskurður felldur úr gildi að því er varðaði varakröfu sóknaraðila og lagt fyrir héraðsdóm að taka málið að því leyti til efnismeðferðar.

Hæstiréttur birt 12. júní 2002

231/2002

Atli Gíslason, Guðmundur Páll Ólafsson, Náttúruverndarsamtök Íslands og Ólafur S. Andrésson (Atli Gíslason hrl) gegn íslenska ríkinu (Skarphéðinn Þórisson hrl)

A, G, N og Ó höfðuðu mál á hendur íslenska ríkinu þar sem þeir kröfðust þess aðallega að úrskurður umhverfisráðherra um mat á umhverfisáhrifum Kárahnjúkavirkjunar yrði felldur úr gildi og ráðherra gert að staðfesta úrskurð Skipulagsstofnunar sem hafði lagst gegn framkvæmdinni. Var krafan einkum studd þeim rökum að gagnstætt því, sem ráðherra hefði lagt til grundvallar, myndi virkjunin valda verulegum og óafturkræfum umhverfisáhrifum. Til vara kröfðust þeir þess að úrskurður umhverfisráðherra yrði ómerktur. Var krafan reist á því að meðferð ráðherra á málinu hefði í ýmsu verið andstæð lögum. A, G, N og Ó lýstu hagsmunum sínum af málsókninni á þann hátt að A, G og Ó væru allir einlægir náttúruverndar- og umhverfissinnar, sem að lögum væru hvattir til þátttöku í umhverfisvernd, auk þess að N hefði á stefnuskrá sinni að vinna gegn náttúruspjöllum. Í dómi Hæstaréttar segir að um aðild að dómsmáli, sem höfðað sé um ákvörðun stjórnvalds á grundvelli laga nr. 106/2000 um mat á umhverifisáhrifum, fari eftir almennum reglum, þar á meðal þeirri grunnreglu að baki ákvæðum laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála að dómstólar leysi ekki úr sakarefni nema sýnt sé að það skipti að lögum máli fyrir stöðu stefnanda að fá dóm um það. Heimild A, G, N og Ó til að hafa uppi í dómsmáli aðalkröfu sína, reista á framangreindum rökum, sé ekki að lögum háð því að þeir hafi látið mat á umhverfisáhrifum Kárahnjúkavirkjunar til sín taka þegar það var til meðferðar hjá Skipulagsstofnun eða umhverfisráðherra. Verði því ekki fallist á að heimild þeirra til að eiga aðild að dómsmáli um þessa kröfu geti verið rýmri en leiði af almennum reglum af þeim sökum einum að þeir hafi átt aðild að undanfarandi málsmeðferð stjórnvalda. Ekkert þeirra atriða sem A, G, N og Ó haldi fram til stuðnings því að þeir hafi hagsmuni af því að fá úrlausn dómstóla um aðalkröfu sína sé þess eðlis að þeir geti talist hafa slíka lögvarða hagsmuni af því að efnisdómur gangi um kröfuna. Þegar af þessari ástæðu verði að vísa kröfunni frá héraðsdómi. Varakrafa þeirra sé reist á því að meðferð ráðherra á málinu hafi verið andstæð lögum. Í skjóli meginreglu fyrri málsliðar 60. gr. stjórnarskrárinnar njóti sá, sem aðild hafi átt að máli fyrir stjórnvaldi, almennt réttar til að bera undir dómstóla hvort farið hafi verið að lögum við meðferð þess og úrlausn. Verði einu að gilda í því sambandi hvort aðild þess, sem í hlut á, hafi helgast af fyrrnefndum almennum reglum stjórnsýsluréttar eða sérreglum í lögum. Af þessum sökum skorti A, G, N og Ó ekki lögvarða hagsmuni af því að fá úrlausn dómstóla um varakröfu sína. Aðilar að umræddu kærumáli fyrir umhverfisráðherra hafi verið 122 talsins. Auk A, G, N og Ó hafi þrír þeirra gert kröfu um að úrskurður Skipulagsstofnunar yrði staðfestur, en 115 haft uppi gagnstæða kröfu. Eins og málið liggi fyrir Hæstarétti verði ekki séð hversu margir af þessum aðilum við meðferð málsins fyrir umhverfisráðherra geti talist hafa átt einstaklegra, beinna og lögvarinna hagsmuna að gæta af úrlausn þess. Ótvírætt sé þó að Landsvirkjun hafi sem framkvæmdaraðili í skilningi laga nr. 106/2000 haft slíka hagsmuni. Úr varakröfunni verði því ekki leyst fyrir dómstólum án þess að þar eigi aðild Landsvirkjun og aðrir þeir, sem kunni að hafa átt slíka hagsmuni meðal annarra, sem kærðu úrskurð Skipulagsstofnunar til ráðherra. Með því að sóknaraðilar hafi ekki gætt þess að beina varakröfu sinni að þeim, sem hér um ræði, sé slíkur galli á málsókn þeirra að einnig verði að vísa þessari kröfu frá héraðsdómi.

Hæstiréttur birt 23. maí 2001

113/2001

Íslenska ríkið (Skarphéðinn Þórisson hrl) gegn Stjörnugrís hf (Gestur Jónsson hrl)

S gerði kröfu um að felldur yrði úr gildi úrskurður umhverfisráðherra þess efnis, að ákvörðun heilbrigðisnefndar skyldi standa óbreytt og S því tilkynna Skipulagsstofnun um fyrirhugaða framkvæmd sína við stækkun svínabús í samræmi við nýsett lög nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrifum. Umrædda ákvörðun sína tók heilbrigðisnefnd að fengnu skriflegu áliti umhverfisráðuneytisins þar sem fram kom sú niðurstaða ráðuneytisins að nefnd lög giltu um breytingu á starfsleyfi fyrir svínabúið. Hæstiréttur féllst á kröfur S og taldi umhverfisráðherra vanhæfan til meðferðar málsins á æðra stjórnsýslustigi. Með úrskurði sínum hefði umhverfisráðherra staðfest, sem æðra sett stjórnvald, ákvörðun lægra setts stjórnvalds, sem reist var á skýrri afstöðu ráðuneytisins sjálfs í þessu tiltekna máli í áðurnefndu bréfi. Það hafi verið skrifað í umboði ráðherra og verði að líta svo á að hann hafi þannig látið í ljós álit sitt á niðurstöðu málsins, á meðan það var til meðferðar á lægra stjórnsýslustigi.