Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

18 dómar fundust

Lykilorð: Kaupleigusamningur

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 19. desember 2013

E-1003/2013

Skyggni ehf (Benedikt Egill Árnason hdl) gegn Landsbankanum hf (Ólafur Örn Svansson hrl)

Fjármálafyrirtæki sýknað af kröfu um viðurkenningu á því að krafa um endurgreiðslu á ofgreiddum greiðslum fyrri greiðanda samkvæmt samningi um kaupleigu á bifreið hefði verði framseld að fullu til nýs greiðanda með samningi um yfirtöku hans á skyldum og réttindum samkvæmt bílasamningnum.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 15. nóvember 2013

E-4602/2011

Eykt ehf (Magnús Pálmi Skúlason hdl) gegn Lýsingu hf (Ólafur Hvanndal Ólafsson hdl)

Ágreiningur um uppgjör 32 kaupleigusamninga sem lagt var til grundvallar að hefðu haft að geyma ólögmæta gengistryggingu skuldbindinga, þ.á m. um hvort fullnægt væri skilyrðum samkvæmt dómaframkvæmd Hæstaréttar til að beita undantekningu frá þeirri meginreglu að kröfuhafi, sem fengið hefur minna greitt en hann átti rétt á, eigi kröfu á hendur skuldara um það sem vangreitt er, og þá loks hvaða útreikningsaðferð bæri að leggja til grundvallar.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 30. október 2013

E-3285/2012

Ölgerðin Egill Skallagrímsson ehf (Þorsteinn Einarsson hrl) gegn Lýsingu hf (Árni Ármann Árnason hrl)
Málaflokkur: Leiguréttur

Því var hafnað að fjármögnunarleigusamningur, sem stefnandi hafði gert við stefnda, væri samkvæmt efni sínu lánssamningur en ekki leigusamningur. Í samræmi við þá niðurstöðu var ekki talið að gengistryggingarákvæði samningsins bryti í bága við ákvæði laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 24. september 2013

E-3286/2012

Suðurverk hf (Þorsteinn Einarsson hrl) gegn Lýsingu hf (Árni Ármann Árnason hrl)

Því var hafnað að þrír fjármögnunarleigusamningar, sem stefnandi hafði gert við stefnda, væru samkvæmt efni sínu lánssamningar en ekki leigusamningar. Í samræmi við þá niðurstöðu var ekki talið að gengistryggingarákvæði samninganna brytu á bága við ákvæði laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 13. nóvember 2009

E-4501/2009

SP-fjármögnun hf (Sigurmar Kristján Albertsson hrl) gegn Óskari Sindra Atlasyni (Björn Þorri Viktorsson hrl)

Aðilar gerðu með sér kaupleigusamning um bifreið. Samið var um greiðslu í japönskum jenum og svissneskum frönkum. Stefndi stóð ekki í skilum og bar við í fyrsta lagi að óheimilt hafi verið af stefnanda að binda afborganir lánsins við gengi japansk jens og svissneska franka samkvæmt ákvæðum 13. og 14. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu; í öðru lagi að forsendur samningsins hefu brostið og í þriðja lagi að ósanngjarnt og andstætt góðri viðskiptavenju væri af stefnanda að bera samninginn fyrir sig, sbr. 36. gr. laga nr. 7/1936 um samningsgerð, umboð og ógilda löggerninga. Fallist var á með stefnanda að heimilt hefði verið að binda afborganir lánsins í íslensum krónum við gengi krónunnar gagnvart japönsku jeni og svissneskum frönkum. Stefndi hafi vitandi vits tekið lán í erlendri mynt. Lög stæðu ekki í vegi fyrir að hægt væri að krefjast skila á sambærilegu verðmæti og lánað var.