Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

2812 dómar fundust

Lykilorð: Ávana- og fíkniefni

Landsréttur birt 11. júní 2026 kl. 16:26

783/2025

Ákæruvaldið (Óli Ingi Ólason saksóknari) gegn Robertu Maciel De Góes (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður) og Spyridon Chinopoulos (Unnsteinn Örn Elvarsson lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

R og S var gefið að sök stórfellt fíkniefnalagabrot með því að hafa í félagi staðið að innflutningi á samtals 2.503,73 grömmum af kókaíni með 77-85% styrkleika ætluðu til söludreifingar í ágóðaskyni. Fíkniefnin fluttu þau til landsins sem farþegar í flugi frá Alicante á Spáni til Keflavíkur. R var með 1.124,45 grömm og S með 1.379,26 grömm falin innanklæða við komu þeirra til landsins. Þau gengust við þeim hluta sakargifta sem varðaði innflutning fíkniefna, en neituðu að hafa staðið saman að innflutningnum. Þá taldi R að háttsemi hennar fæli einungis í sér hlutdeild í broti þeirra sem hefðu fengið sig til verksins. Landsréttur staðfesti niðurstöðu hins áfrýjaða dóms um að R og S hefðu í sameiningu flutt samtals 2.503,73 grömm af kókaíni til landsins og að á því bæru þau refsiábyrgð sem aðalmenn. Þá var niðurstaða hins áfrýjaða dóms um viðurlög staðfest, þar sem R og S var gert að sæta fangelsi í þrjú ár og upptöku á fíkniefnum.

Landsréttur birt 7. maí 2026 kl. 16:11

703/2025

Ákæruvaldið (Anna Barbara Andradóttir saksóknari) gegn Elíasi Shamsudin (Leifur Runólfsson lögmaður) og Jónasi Shamsudin (Magnús Jónsson lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

J var gefin að sök tilraun til fíkniefnalagabrots með því að hafa í lok árs 2020 staðið að innflutningi á 347,16 g af kókaíni í sölu- og dreifingaskyni. Þá var J einnig gefið að sök fíkniefnalagabrot með því að hafa 12. mars 2021 haft í vörslum sínum 30 stykki af rítalín UNO töflum. Var E gefið að sök fíkniefna- og vopnalagabrot með því að hafa sama dag haft í vörslum sínum 506,9 g af amfetamíni í sölu- og dreifingaskyni og skammbyssu af gerðinni Browning. Loks var E og J gefið að sök að hafa á sama tíma haft í vörslum sínum, í sölu- og dreifingaskyni, 487,8 g af amfetamíni. Játuðu E og J brot sín í héraði og var farið með málið samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Með dómi héraðsdóms voru E og J sakfelldir fyrir þau brot sem þeim voru gefin að sök í ákæru og gert að sæta fangelsi í 12 mánuði. Þá voru gerð upptæk fíkniefni, vopn og 5.000.000 króna í reiðufé. E og J áfrýjuðu málinu til Landsréttar og kröfðust þess að refsing þeirra yrði milduð. Þá krafðist J þess einnig í greinargerð sinni til Landsréttar að upptöku fjármunanna yrði hafnað þar sem þeir væru hluti af láni sem hann hefði fengið. Landsréttur staðfesti héraðsdóm um sakfellingu ákærðu og heimfærslu á brotum þeirra til refsiákvæða. Um kröfu J er laut að því að upptöku fjármunanna yrði hafnað kom fram að sú krafa hefði fyrst komið fram í greinargerð hans til réttarins og því ekki verið tekin upp í áfrýjunarstefnu. Teldist hún þar af leiðandi of seint fram komin, sbr. 2. mgr. 199. gr. laga nr. 88/2008. Um refsingu E og J sagði að ákvarða bæri hana sem hegningarauka við dóm sem þeir höfðu hlotið á árinu 2025, sbr. 78. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Voru brot E og J talin alvarleg og hafa beinst gegn mikilsverðum hagsmunum. Var þó einnig litið til þess að verulegur dráttur hefði orðið á rekstri málsins. Niðurstaða hins áfrýjaða dóms um 12 mánaða fangelsi E og J var með hliðsjón af framangreindu staðfest en frá dæmdri refsingu dróst gæsluvarðhaldsvist sem E og J höfðu sætt á árinu 2021.

Landsréttur birt 22. apríl 2026 kl. 16:18

742/2025

Ákæruvaldið (Hulda María Stefánsdóttir saksóknari) gegn Algimantas Saltenis (Guðmundur Njáll Guðmundsson lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

A var gefið að sök stórfellt fíkniefnalagabrot með því að hafa í félagi með tveimur öðrum mönnum staðið að innflutningi á samtals 3.002,01 g af kókaíni frá Spáni til Íslands, ætluðu til söludreifingar hér á landi í ágóðaskyni. A neitaði sök og kvaðst einungis hafa tekið að sér að akstur og ýmiss konar útréttingar að beiðni ónefnds manns í Litáen, sem hann ynni stundum fyrir og sinnti ýmiss konar verkefnum hér á landi. Í dómi héraðsdóms, sem Landsréttur staðfesti með vísan til forsendna hans, var talið hafið yfir skynsamlegan vafa að A hefði verið þátttakandi í innflutningnum og að honum hefði ekki getað hafa dulist að um innflutning á fíkniefnum væri að vera. Var litið svo á að um verkskipta aðild A og meðákærðu í héraði hefði verið að ræða. Var A sakfelldur samkvæmt ákæru. Við ákvörðun refsingar A var litið til sakaferils hans og að gögn málsins bæru með sér að hann hefði lotið boðvaldi annarra en ekki séð um skipulagningu brotsins. Með hliðsjón af þessu og með vísan til 1., 3., 5. og 6. töluliða 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 var refsing A ákveðin fangelsi í þrjú ár, auk þess sem umrædd fíkniefni og farsími hans voru gerð upptæk.

Héraðsdómur Reykjaness birt 9. maí 2026 kl. 14:42

S-1852/2025

Ákæruvaldið (Pétur Fannar Gíslason aðstoðarsaksóknari) gegn Fanneyju Krummu Jensdóttur (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður) og Grími Kolbeinssyni (Þorgils Þorgilsson lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákærðu voru sakfelld fyrir brot gegn ákvæðum laga um ávana- og fíkniefni, auk þess sem annar ákærðu var sakfelldur fyrir vopnalagabrot og brot gegn umferðarlögum.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 1. apríl 2026 kl. 15:25

S-268/2026

Héraðssaksóknari (Sigurður Ólafsson saksóknari) gegn Ali Aoudia (Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður), Higor De Souza Bernardo (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður) og Marco Antonio Raizer Marafon (Jón Bjarni Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Þrír menn sakfelldir fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot með innflutningi á 9000 ml af kókaíni. Var hver þeirra dæmdur til að sæta fangelsi í fimm ár. Gæsluvarðhaldsvist hvers og eins frá 15. nóvember 2025 dregst frá þeirri refsingu.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 26. mars 2026 kl. 12:05

S-4789/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Anna Guðbjörg Hólm Bjarnadóttir saksóknarfulltrúi) gegn Mörtu Rybakiewicz (Ólafur Valur Guðjónsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærða var sakfelld fyrir brot gegn umferðarlögum, almennum hegningarlögum og lögum um ávana- og fíkniefni og dæmd í sjö mánaða fangelsi, en þar af voru fjórir mánuðir skilorðsbundnir, og svipt ökurétti ævilangt.

Landsréttur birt 12. mars 2026

697/2025

Ákæruvaldið (Anna Barbara Andradóttir saksóknari) gegn Kendry Ariel Agramonte Moreta (Leifur Runólfsson lögmaður, Ólafur Valur Guðjónsson lögmaður, 4. prófmál)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

K var gefið að sök stórfellt fíkniefnalagabrot með því að hafa gert tilraun til að taka á móti og hafa í vörslum sínum 2.897,61 grömm af kókaíni, ætluðu til söludreifingar hér á landi í ágóðaskyni, sem meðákærði X flutti til landsins en áður en X afhenti efnin hafði lögregla lagt hald á þau. Í dómi Landsréttar var litið til þess að framburður K hefði verið ótrúverðugur. Í heild sinni væri ólíkindablær á frásögn hans, auk þess sem framburður hans væri óljós, misvísandi og reikull. Þá styddu ný gögn um rannsókn á síma sem K var með þegar hann var handtekinn ekki við framburð hans. Þvert á móti renndu þau frekari stoðum undir framburð X og málatilbúnað ákæruvaldsins um að K hafi haft það hlutverk við innflutning haldlagðra fíkniefna sem honum var gefið að sök í ákæru. Að þessu gættu en að öðru leyti með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms var staðfest niðurstaða hans um að færðar hafi verið fullnægjandi sönnur á þær sakir sem K var borinn sökum um í málinu og væri háttsemi hans réttilega heimfærð til refsiákvæða og staðfest ákvörðun héraðsdóms um refsingu.

Landsréttur birt 12. mars 2026

690/2025

Ákæruvaldið (Anna Barbara Andradóttir saksóknari) gegn Wojciech Pawelczyk (Kjartan Ragnars lögmaður, Birkir Már Árnason lögmaður, 1. prófmál)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

W var gefið að sök að hafa staðið að innflutningi á 5.200 ml af amfetamínbasa, ætluðum til söludreifingar í ágóðaskyni, sem barst með póstsendingu frá Póllandi en nafngreindur maður hér á landi var skráður viðtakandi hennar fyrir tilstuðlan W. Í hinum áfrýjaða dómi var W sakfelldur samkvæmt ákæru og gert að sæta fangelsi í fimm ár. Með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms taldi Landsréttur sannað að W hefði staðið að innflutningi efnisins með þeim hætti sem greindi í ákæru. Taldi Landsréttur ekkert fram komið sem fengi hróflað við sönnunarmati héraðsdóms og gætu athugasemdir W við rannsókn málsins, þar með talið um skort á könnun á aðkomu annarra, engu breytt um að það brot sem ákæra lyti að hefði verið fullframið þegar efnið barst með pósti til landsins. Var niðurstaða hins áfrýjaða dóms um sakfellingu W því staðfest og brotið talið réttilega heimfært til 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Þá staðfesti Landsréttur einnig niðurstöðu hins áfrýjaða dóms um refsingu W, fangelsi í fimm ár, upptöku og sakarkostnað, en við ákvörðun refsingar var í dómi Landsréttar litið til 1. og 3. töluliðar 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga auk þeirra sjónarmiða sem rakin voru í hinum áfrýjaða dómi.

Hæstiréttur birt 11. mars 2026

58/2025

Ákæruvaldið (Anna Barbara Andradóttir saksóknari) gegn Elíasi Shamsudin (Leifur Runólfsson lögmaður), Jónasi Shamsudin (Jón Magnússon lögmaður) og Samúel Jóa Björgvinssyni (Jón Egilsson lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

X, Y og Z voru sakfelldir fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot samkvæmt 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með því að hafa haft í vörslum sínum í sölu- og dreifingarskyni 2943,38 grömm af MDMA-kristöllum. Z var til viðbótar sakfelldur fyrir brot gegn sama ákvæði með því að hafa haft í vörslum sínum í sölu- og dreifingarskyni 1.781 töflu af MDMA, fyrir fíkniefnalagabrot með því að hafa haft í vörslum sínum ýmis önnur fíkniefni í sölu- og dreifingarskyni sem og fyrir umferðarlagabrot. Þá var Y einnig sakfelldur fyrir fíkniefnalagabrot með því að hafa haft í vörslum sínum nánar tilgreind fíkniefni og vopnalagabrot. Í málinu var annars vegar deilt um sýknukröfu Y vegna fyrrgreinds brots gegn 173. gr. a almennra hegningarlaga og hins vegar ákvörðun refsingar. Með nánar tilgreindum athugasemdum staðfesti Hæstiréttur niðurstöðu hins áfrýjaða dóms um sakfellingu Y. Við ákvörðun refsingar leit Hæstiréttur meðal annars til þess að úr MDMA-kristöllunum hefði mátt framleiða ríflega 23.000 MDMA-töflur og því um að ræða verulegt magn efnis sem og til nýlegra dóma réttarins í sambærilegum málum. Með hliðsjón af því var refsing allra ákærðu þyngd frá því sem ákveðið hefði verið í hinum áfrýjaða dómi og refsing ákærðu X og Y ákveðin fangelsi í þrjú ár en Z fangelsi í þrjú og hálft ár.

Héraðsdómur Vestfjarða birt 5. mars 2026

S-10/2026

Lögreglustjórinn á Vestfjörðum (Kristján Óskar Ásvaldsson saksóknarfulltrúi) gegn Þórði Sesselíusi Úlfi Júlíussyni
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði, sem skýlaust játaði sök, var dæmdur í 30 daga fangelsi fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Þá var ákærði sviptur ökurétti ævilangt.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 20. febrúar 2026

S-766/2026

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kamilla Kjerúlf aðstoðarsaksóknari) gegn Rafal Ryszard Kottlewski (Leifur Runólfsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir ýmis hegningarlagabrot, brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni og umferðarlagabrot og dæmdur í 16 mánaða fangelsi og sviptur ökurétti ævilangt.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 18. febrúar 2026

S-5621/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kamilla Kjerúlf aðstoðarsaksóknari) gegn Halit Kalemasi (Gunnar Gíslason lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Maður sem játaði brot sitt sakfelldur fyrir fíkniefnalagabrot. Dæmdur til 30 daga fangelsisvistar, skilorðsbundið, og til að sæta upptöku á efnum, síma og peningum.

Landsréttur birt 12. febrúar 2026

453/2025

Ákæruvaldið (Hulda María Stefánsdóttir saksóknari) gegn Sigurði Kristinssyni (Hilmar Magnússon lögmaður), Baldri Þór Sigurðarsyni (Ingi Freyr Ágústsson lögmaður), Sigfúsi Bergmann Svavarssyni (Guðmundur Njáll Guðmundsson lögmaður), Agurim Xixa (Almar Þór Möller lögmaður), Elsu Ruth Róbertsdóttur (Þorgils Þorgilsson lögmaður) og X (Gísli Kr. Björnsson lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

SK, BÞS, SBS og AX voru ákærðir fyrir skipulagða brotastarfsemi og stórfellt fíkniefnalagabrot, sbr. 173. gr. a og 175. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með því að hafa staðið saman að innflutningi á 5.733,60 g af metamfetamín kristöllum með 81% styrkleika í metamfetamínbasa sem samsvaraði 100% af amfetamínklóríði, ætluðu til söludreifingar hér á landi. Voru efnin falin í bifreið sem flutt var inn til landsins. Við komu til landsins voru efnin fjarlægð og gerviefni sett í þeirra stað áður en ákærðu var afhent bifreiðin. X var gefin að sök hlutdeild í tilraun til stórfellds fíkniefnalagabrots með því að hafa 24. október 2024 sótt bifreiðina ásamt SBS og BÞS, vitandi að fíkniefni væru í bifreiðinni, og þannig veitt þeim liðsinni með stuðningi og hvatningu. Þá var ERR sökuð um hlutdeild í tilraun til stórfellds fíkniefnalagabrots með því að hafa 25. október 2024 aðstoðað SK og AX við að fjarlægja fíkniefnin úr bifreiðinni. Voru ætluð brot X og ERR talin varða við 173. gr. a almennra hegningarlaga, sbr. 20. og 22. gr. sömu laga. Með dómi héraðsdóms voru SK, BÞS, SBS og AX sakfelldir fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot en sýknaðir af þeim hluta ákæru er laut að skipulagðri brotastarfsemi. Þá var ERR sakfelld samkvæmt ákæru en X var sýknaður af kröfum ákæruvaldsins. Fyrir Landsrétti voru SK, BÞS, SBS og AX allir sakfelldir fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot. Sömuleiðis var staðfest niðurstaða héraðsdóms um sakfellingu ERR samkvæmt ákæru. Landsréttur féllst á það með héraðsdómi að ekki yrði talið að X hefði á nokkurn hátt átt þátt í því að brotið var framið, enda hafi það að stærstum hluta verið yfirstaðið þegar tilgreind samtöl áttu sér stað. Ekki væri hægt að ljá neitt í háttsemi eða orðum X slíkt vægi að það hafi styrkt áform BÞS og SBS. X hafi auk þess á þessum tíma verið umkomulaus, búið með samþykki BÞS og SBS í bifreið þeirra og ekki átt í önnur hús að venda. Yrði ekki gerð sú krafa að X við þær aðstæður yfirgæfi bifreiðina þótt hugsanlega hafi grunur vaknað með honum að í hinni innfluttu bifreið væru fíkniefni. Var niðurstaða héraðsdóms um sýknu X staðfest. Þá tók Landsréttur til skoðunar hvort háttsemi SK, BÞS, SBS og AX teldist vera skipulögð brotastarfsemi. Rétturinn taldi að ákæruvaldið hefði hvorki leitt sönnur, svo hafið væri yfir skynsamlegan vafa, að tilvist skipulagðra brotasamtaka í tilfelli ákærðu né að þeir hafi haft ásetning til að fremja brot sem lið í starfsemi skipulagðra brotasamtaka í skilningi 175. gr. a almennra hegningarlaga. Voru SK, BÞS, SBS og AX því sýknaðir af ákæru fyrir brot gegn því ákvæði. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að um var að ræða samverknað SK, BÞS, SBS og AX með verkskiptri aðild þar sem þáttur hvers og eins var mismikill. Þá var litið til þess að ásetningur þeirra og ERR hafi verið einbeittur. Enn fremur var litið til þess að um var að ræða mikið magn hættulegra fíkniefna og veruleg hætta á að þau færu í sölu og dreifingu til ótiltekins fjölda manna hér á landi. Við refsingu þeirra var því litið til 1., 3., 5., 6. og 8. töluliðar 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga og einnig 2. mgr. 70. gr. sömu laga varðandi SK, BÞS, SBS og AX. Einnig var litið til sakaferils SK og BÞS við ákvörðun refsingar þeirra. Var SK gert að sæta fangelsi í átta ár, BÞS í fjögur ár, SBS í þrjú og hálft ár, AX í fimm og hálft ár og ERR skilorðsbundið í 10 mánuði. Loks voru fíkniefnin og tilgreindir munir gerð upptæk..

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 5. febrúar 2026

S-5756/2025

Héraðssaksóknari (Sonja Símonardóttir saksóknarfulltrúi) gegn Oskars Pocekajevs (Enginn)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Maður sakfelldur og dæmdur til sex mánaða skilorðsbundinnar fangelsisrefsingar fyrir stórfellt fíknefnabrot með því að hafa, ásamt öðrum manni, í sameiningu haft i vörslum sínum í sölu- og dreifingarskyni 57 kannabisplöntur, 29.150 g af kannabisplöntum og 25.420 g af maríhúana og hafa um nokkurt skeið fram til þess dags ræktað greindar plöntur en lögregla lagði hald á framangreind fíkniefni við leit. Var málið dæmt sem útivistarmál.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 5. febrúar 2026

S-4356/2025

Héraðssaksóknari (Sonja Símonardóttir saksóknarfulltrúi) gegn Páli Gísla Jónssyni (Auður Björg Jónsdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Maður sakfelldur og dæmdur til 15 mánaða skilorðsbundinnar fangelsisrefsingar fyrir stórfellt fíknefnabrot með því að hafa, ásamt öðrum manni, í sameiningu haft i vörslum sínum í sölu- og dreifingarskyni 57 kannabisplöntur, 29.150 g af kannabisplöntum og 25.420 g af maríhúana og hafa um nokkurt skeið fram til þess dags ræktað greindar plöntur en lögregla lagði hald á framangreind fíkniefni við leit. Voru umrædd efni og haldlagðir munir gerðir upptækir. Hafnað var kröfu verjanda um að ákæru málsins yrði vísað frá dómi.

Héraðsdómur Reykjaness birt 26. janúar 2026

S-2970/2025

Ákæruvaldið (Karl Ingi Vilbergsson saksóknari) gegn Eivydas Laskauskas (Ómar Örn Bjarnþórsson lögmaður), Kamile Radzeviciute (Ingi Freyr Ágústsson lögmaður) og Egidijus Dambrauskas (Arnar Kormákur Friðriksson lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Sakfellt fyrir innflutning á umtalsverðu magni fíkniefna til landsins. Samverknaður.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 22. janúar 2026

S-5633/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kamilla Kjerúlf aðstoðarsaksóknari) gegn Santino Gkermeni (Gunnar Gíslason lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákærði sakfelldur fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni og dæmdur í 60 daga skilorðsbundið fangelsi.

Héraðsdómur Vesturlands birt 23. desember 2025

S-252/2025

Lögreglustjórinn á Vesturlandi (Emil Sigurðsson aðstoðarsaksóknari) gegn X (Snorri Steinn Vidal lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákærði sýknaður af ákæru vegna ólögmæts lyfjainnflutnings þar sem upplýsingar á vefsíðu Lyfjastofnunar um gildandi reglur og þar með leyfilegt magn voru rangar. Ákærði því talinn í góðri trú og huglæg skilyrði fyrir broti hafi því skort. Lyfin voru öll samkvæmt lyfseðli og ætluð til eigin nota.

Héraðsdómur Vesturlands birt 23. desember 2025

S-251/2025

Lögreglustjórinn á Vesturlandi (Emil Sigurðsson aðstoðarsaksóknari) gegn X (Snorri Steinn Vidal lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákærða sýknuð af ákæru vegna ólögmæts lyfjainnflutnings þar sem upplýsingar á vefsíðu Lyfjastofnunar um gildandi reglur og þar með leyfilegt magn voru rangar. Ákærði því talinn í góðri trú og huglæg skilyrði fyrir broti hafi því skort. Lyfin voru öll samkvæmt lyfseðli og ætluð til eigin nota.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 17. desember 2025

S-2038/2025

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Gunnhildur Anna Alfonsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Davíð Þór Stefnissyni (Hilmar Garðars Þorsteinsson lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákvörðun refsingar frestað skilorðsbundið í tvö ár enda gangist ákærði undir sérhæfða lyfja- og geðræna meðferð hjá yfirlækni á réttargeðdeild.

Landsréttur birt 11. desember 2025

538/2025

Ákæruvaldið (Anna Barbara Andradóttir saksóknari) gegn Maxence Yannick Bertrand (Sævar Þór Jónsson lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Með hinum áfrýjaða dómi var M sakfelldur fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot með því að hafa staðið að innflutningi á samtals 13.032,33 g af kókaíni með styrkleika 83- 87%, ætluðu til söludreifingar hér á landi í ágóðaskyni. M játaði sök við meðferð málsins í héraði og var gert að sæta fangelsi í sex og hálft ár og upptöku á fíkniefnunum. Fyrir Landsrétti var eingöngu ágreiningur um ákvörðun refsingar. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að M flutti til landsins mikið magn af afar sterkum fíkniefnum sem ætluð voru til söludreifingar hér á landi og brotaviljinn einbeittur. Á hinn bóginn horfði það til mildunar að hann var 18 ára þegar brotið var framið. Þá játaði hann brotið á rannsóknarstigi og fyrir dómi. Loks var tekið tillit til þess að ekki lá annað fyrir en að hlutverk M hefði einvörðungu verið í því fólgið að koma efnunum hingað til lands og fá þau öðrum í hendur og ekkert sem benti til þess að hann hefði komið að skipulagningu og fjármögnun innflutningsins. Með hliðsjón af þessu var refsing M ákveðin fangelsi í fimm ár.

Landsréttur birt 11. desember 2025

187/2025

Ákæruvaldið (Anna Barbara Andradóttir saksóknari) gegn Önnu Kiluk (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

A var í héraði sakfelld fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot með því að hafa staðið að innflutningi á tilgreindum fíkniefnum ætluðum til söludreifingar hér á landi í ágóðaskyni. A játaði sök við þingfestingu málsins í héraði og var farið með málið sem játningarmál. Var A gert að sæta fangelsi í 15 mánuði að frádregnu gæsluvarðhaldi sem hún hafði sætt, auk þess sem fíkniefnin voru gerð upptæk. A áfrýjaði málinu til Landsréttar og byggði á því að játning hennar hefði ekki verið í samræmi við gögn málsins, enda hefði hún ekki við rannsókn málsins játað að hafa flutt efnin inn til landsins í söluskyni. Í dómi Landsréttar var vísað til þess að A hefði í þinghaldi játað skýlaust að hafa gerst sek um þá háttsemi sem henni var gefin að sök í ákæru. A hefði notið aðstoðar verjanda við meðferð málsins í héraði og hefði efni ákærunnar verið kynnt henni með aðstoð túlks. Féllst rétturinn á þá niðurstöðu héraðsdóms að játning A fengi stoð í framlögðum gögnum málsins. Að þessu gættu en að öðru leyti með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms var hann staðfestur.

Landsréttur birt 11. desember 2025

103/2025

Ákæruvaldið (Dröfn Kærnested saksóknari) gegn Sigurbjörgu Sjöfn Rafnsdóttur (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

S var ásamt meðákærðu í héraði gefið að sök stórfellt fíkniefnalagabrot með því að hafa þann 20. maí 2022 haft í vörslum sínum í sölu- og dreifingarskyni 3.445 grömm af kannabislaufum, 91 kannabisplöntu og 1.403,48 grömm af marijúana og hafa um nokkurt skeið ræktað greindar plöntur, sem lögregla lagði hald á við leit á landareign S, og 9.660 grömm af marijúana sem fundust við leit í nánar tilgreindu sumarhúsi og 780 grömm sem meðákærði X hafði afhent meðákærða Y til dreifingar. Í dómi Landsréttar kom meðal annars fram að útilokað væri að S hefði umræddan dag haft í vörslum sínum þau 780 grömm af marijúana sem afhent höfðu verið meðákærða Y 4. maí 2022 og hann síðar afhent þriðja aðila. Einnig lægi ekkert fyrir um að S hefði haft aðgang að þeim 9.660 grömmum af marijúana sem fundust í umræddu sumarhúsi, yrði S því ekki sakfelld fyrir þá háttsemi. Landsréttur féllst hins vegar á að S hefði haft í vörslum sínum í sölu- og dreifingarskyni þær kannabisplöntur og -lauf auk þess magns marijúana sem lögregla lagði hald á við leit á landareign S. Enn fremur var fallist á að S hefði um nokkurt skeið litið til með ræktun þeirra kannabisplantna sem haldlagðar voru á landareign hennar og þeirra plantna sem notaðar voru, að öllu eða langmestu leyti, til framleiðslu á umræddum 9.660 og 780 grömmum af marijúana. Ekki var talin komin fram nægjanleg sönnun að S hafi af ásetningi sýnt af sér háttsemi sem varðaði við 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og var háttsemi S því heimfærð undir 2. gr., sbr. 5., og 6. gr., laga nr. 65/1974 um ávana- og fíkniefni. Loks staðfesti Landsréttur sakfellingu S fyrir brot gegn lögum nr. 65/1974 með því að hafa haft í vörslum sínum 86,52 grömm af marijúana og 40 millilítra af kannabisblönduðum vökva sem fundust á heimili hennar. Var refsing S ákveðin fangelsi í sex mánuði en fullnustu refsingarinnar frestað í tvö ár skilorðsbundið.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 8. desember 2025

S-4291/2025

Reykjavík, og Páli Pálssyni, kennitala […], […], Reykjavík, „fyrir eftirtalin brot framin í maí 2021 í Reykjavík I (Arnfríður Gígja Arngrímsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Óttari Gunnarssyni (Almar Þór Möller lögmaður) og Páli Pálssyni (Snorri Sturluson lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákærðu voru sakfelldir fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot og dæmdir til skilorðsbundinnar fangelsisrefsingar.

Héraðsdómur Reykjaness birt 8. desember 2025

S-2072/2025

Ákæruvaldið (Sigurður Ólafsson aðstoðarsaksóknari) gegn Bartosz Jan Chyrek (Unnsteinn Örn Elvarsson lögmaður)
Lykilorð: Ávana- og fíkniefni.
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Sakfellt fyrir fíkniefnalagabrot og brot gegn lögum um bann við tilteknum frammistöðubætandi efnum og lyfjum

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 4. desember 2025

S-665/2025

Héraðssaksóknari (Áslaug Benediktsdóttir saksóknarfulltrúi) gegn Ísak Alexander Einarssyni (Arnar Vilhjálmur Arnarsson lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákærði var sakfelldur fyrir brot gegn valdstjórninni, brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni og tollalögum. Hann var dæmdur til að sæta fangelsi í 3 mánuði en refsing var bundin skilorði til tveggja ára.

Landsréttur birt 20. nóvember 2025

363/2025

Ákæruvaldið (Dagmar Ösp Vésteinsdóttir saksóknari) gegn Daniel Quenguan Guzman (Bjarni Hauksson lögmaður), Diana Maria Guzman Munoz (Hrafnkell Oddi Guðjónsson lögmaður) og David Martinez Arenas (Unnsteinn Örn Elvarsson lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

DQG, DMGM og DMA var gefið að sök stórfellt fíkniefnalagabrot með því að hafa í félagi staðið að innflutningi á samtals 2.043,52 g af kókaíni með 84 til 86% styrkleika ætluðu til söludreifingar í ágóðaskyni. Fíkniefnin fluttu þau til landsins sem farþegar í tilgreindu flugi frá Barselóna á Spáni til Keflavíkurflugvallar. DQG var með 796,38 g falin í skófatnaði sínum, DMGM var með 593,26 g falin í nærbuxum sínum og DMA með 653,88 g falin í skófatnaði sínum. Þau gengust við þeim hluta sakargifta sem varðaði innflutning fíkniefna en neituðu að hafa staðið saman að innflutningnum. Úrlausnarefni málsins varðaði því það hvort þau hefðu framið brotið í félagi. Landsréttur taldi sannað að þau hefðu í félagi staðið að innflutningi þeirra fíkniefna sem um ræddi. Var því staðfest niðurstaða hins áfrýjaða dóms þar sem DQG, DMGM og DMA var gert að sæta fangelsi í tvö ár og sex mánuði og upptöku á fíkniefnum.

Landsréttur birt 20. nóvember 2025

132/2025

Ákæruvaldið (Anna Barbara Andradóttir saksóknari) gegn Jóni Inga Sveinssyni (Björgvin Jónsson lögmaður), Pétri Þór Elíassyni (Ólafur V. Thordersen lögmaður), Árna Stefáni Ásgeirssyni (Unnsteinn Örn Elvarsson lögmaður), Hauki Ægi Haukssyni (Oddgeir Einarsson lögmaður), Gunnlaugi J. Skarphéðinssyni (Áslaug Lára Lárusdóttir lögmaður), Valgerði Sif Sigurðardóttur (Þorgils Þorgilsson lögmaður), Tinnu Kristínu Gísladóttur (Ingi Freyr Ágústsson lögmaður), Thelmu Rún Ásgeirsdóttur (Elimar Hauksson lögmaður), Andra Þór Guðmundssyni (Almar Þór Möller lögmaður), Daníel Karim Mikaelssyni (Guðmundur Njáll Guðmundsson lögmaður) og Gunnari Karli Pálmasyni (Erlendur Þór Gunnarsson lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákærðu J, P, Á, H, G, V, Th, TK og AÞ var meðal annars gefin að sök skipulögð brotastarfsemi og stórfelld fíkniefnalagabrot sem þau hafi sammælst um að fremja á árinu 2023 og fram til 11. apríl 2024. Hafi framkvæmd brotanna verið liður í starfsemi skipulagðra brotasamtaka, en þau hafi í félagi staðið að sölu og dreifingu fíkniefna hér á landi, meðvituð um tiltekna verkaskiptingu við geymslu, pökkun, sölu og dreifingu efnanna, meðal annars í fjórum nánar tilgreindum tilvikum 21. og 22. september 2023, sem varðaði vörslur ávana- og fíkniefna í sölu og dreifingarskyni á þremur stöðum í Reykjavík og einum í Mosfellsbæ. Komst Landsréttur að þeirri niðurstöðu að af 1. mgr. 180. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála leiddi að einungis væri unnt að taka afstöðu til síðastnefndra fjögurra tilvika varðandi þennan hluta málsins. Af framsetningu ákæru leiddi að ekki væri unnt, svo sem gert var í hinum áfrýjaða dómi, að taka afstöðu til þess hvort ákærðu hefðu í öðrum tilvikum árið 2023 og fram til 11. apríl 2024 gerst sek um ávana- og fíkniefnalagabrot. Voru ákærðu J, P, G, V, og TK sakfelld samkvæmt þessum hluta ákærunnar fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot samkvæmt 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940 en auk þess taldi Landsréttur sannað að brotin hefðu verið framkvæmd sem liður í skipulagðri brotastarfsemi samkvæmt 175. gr. a almennra hegningarlaga. Ákærðu Á, H, Th og AÞ voru hins vegar sýknuð af þessum hluta ákærunnar. Auk framangreinds voru J, P, Á, D og G sakfelldir fyrir nánar tilgreind peningaþvættisbrot og fíkniefnalagabrot og J, G og H fyrir innflutning ávana- og fíkniefna sem liðar í skipulagðri brotastarfsemi. Þá voru Th og AÞ sakfelld fyrir nánar tilgreind fíkniefnalagabrot. Loks voru J, P, TK, H og D sakfelld fyrir nánar tilgreind vopnalagabrot.

Landsréttur birt 20. nóvember 2025

106/2025

Ákæruvaldið (Dagmar Ösp Vésteinsdóttir saksóknari) gegn Mohamed Hicham Rahmi (Leifur Runólfsson lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

M var sakfelldur fyrir brot gegn 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með því að hafa í sameiningu með öðrum staðið að því að flytja inn 1.988,99 grömm af kókaíni af tilteknum styrkleika, ætluðum til söludreifingar hér á landi í ágóðaskyni. Þá var hann einnig sakfelldur fyrir að hafa átt samtals 226,55 grömm af kókaíni sem ætlað var til sölu og dreifingar sem meðákærði í héraði hafði í vörslum sínum og fundust við leit í bifreið. Auk þessa var hann jafnframt sakfelldur fyrir brot gegn lyfjalögum nr. 100/2020 og lögum nr. 84/2018 um bann við tilteknum frammistöðubætandi efnum og lyfjum með því að hafa haft í vörslum sínum, í sölu- og dreifingarskyni, samtals 234,45 grömm af kókaíni, 498,33 grömm af hassi, 4,75 grömm af metamfetamíni, 555 stykki af alprazolam Krka 1 milligramms töflum og 4 millilítra af testósteroni. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að brot ákærða lutu að innflutningi á miklu magni sterkra fíkniefna í samverknaði við aðra. Þá hefðu brot ákærða verið framin í ágóðaskyni og einkennst af sterkum brotavilja auk þess sem hann hafði skipulagt innflutninginn. Þá var jafnframt horft til þess að hann hafði áður verið dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir brot á 173. gr. a almennra hegningarlaga auk þess sem hann hafði hlotið eins og hálfs árs fangelsisdóm í Svíþjóð fyrir fíkniefnasmygl sem einnig hefur ítrekunaráhrif hér á landi. Refsing M var ákveðin fangelsi í fjögur ár og sex mánuði en til frádráttar refsingunni kæmi gæsluvarðhald sem hann hefði sætt.

Landsréttur birt 17. nóvember 2025

784/2025

Ákæruvaldið (Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari) gegn X (enginn)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Í hinum kærða dómi var tilteknum ákærulið, þar sem X var gefið að sök peningaþvætti, vísað frá dómi þar sem að áliti dómsins hafi skort á að lýst væri nægilega verknaðarþáttum peningaþvættisbrots. Í úrskurði Landsréttur kom fram að ekki yrði talið að þeir ágallar hafi verið á umræddum hluta ákærunnar að X gæti ekki af henni ráðið hvaða refsiverðu háttsemi hann væri sakaður um. X hafi því verið fært að taka afstöðu til sakargifta og halda uppi vörnum gegn þeim. Þá hafi aðstoðarmanni dómara, sem kvað upp dóminn, verið af ákærunni einni fært að gera sér grein fyrir hvað X var sakaður um og hvernig telja mætti þá háttsemi refsiverða. Væri með ákærunni lagður fullnægjandi grundvöllur að þessum hluta málsins þannig að taka mætti hann til efnislegrar meðferðar. Felldi Landsréttur því úr gildi þann hluta hins kærða dóms að vísa lið II í ákæru frá dómi og lagði fyrir héraðsdóm að taka þann ákærulið til efnismeðferðar.

Hleð fleiri dómum…