Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

31 dómar fundust

Lagagrein: 1. mgr. 49. gr. laga nr. 93/1994 — Lyfjalög

Landsréttur birt 17. maí 2024

483/2022

Ákæruvaldið (Jón H. B. Snorrason saksóknari) gegn X (Oddgeir Einarsson lögmaður) og Y (Steinbergur Finnbogason lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

X var gefið að sök fíkniefnalagabrot og lyfjalagabrot. Landsréttur vísaði frá héraðsdómi, vegna óskýrleika ákæru, hluta ákæru þar sem X var gefið að sök að hafa allt frá árinu 2013 og til 6. mars 2019 selt og afhent ótilgreindum fjölda fólks lyfseðilsskyld lyf og ávana- og fíknilyf, án þess að hafa til þess markaðs- og lyfsöluleyfi Lyfjastofnunar, en taldi seinni hlutann þar sem tilgreind voru þau lyf og ávana- og fíknilyf sem X hafði í vörslum sínum í þrjú nánar tilgreind skipti á árunum 2018 og 2019, í sölu- og afhendingarskyni, án þess að hafa markaðs- og lyfsöluleyfi Lyfjastofnunar, uppfylla kröfur um skýrleika ákæru, sbr. c-lið 1. mgr. 152. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Staðfesti Landsréttur niðurstöðu héraðsdóms um sakfellingu X af þeim hluta sakargifta sem eftir stóðu. Þá var X sakfelldur fyrir vopnalagabrot með því að hafa haft nánar tilgreind vopn í vörslum sínum. Loks var X sakfelldur fyrir peningaþvætti með því að hafa, á tímabilinu frá 28. september 2012 til 30. október 2018, tekið við, nýtt, umbreytt, afhent og/eða aflað sér ávinnings allt að 84.449.884 krónum með sölu og dreifingu sinni á ótilteknu magni lyfja, sbr. I. kafla ákæru, og eftir atvikum með öðrum ólögmætum og refsiverðum hætti. Y var jafnframt gefið að sök peningaþvætti með því að hafa, á tímabilinu frá 28. september 2012 til 30. október 2018 tekið við, nýtt, umbreytt, afhent og/eða aflað sér ávinnings allt að fjárhæð 23.826.637 krónum, sem talinn var kominn til af refsiverðum brotum X og eftir atvikum öðrum ólögmætum og refsiverðum hætti. Í dómi Landsréttar kom fram að ekki væri um að ræða aðra lýsingu á frumbrotinu en tilvísun til refsiverðra brota X, án frekari afmörkunar, og eftir atvikum til annarrar ólögmætrar og refsiverðrar háttsemi. Enga aðra tilvísun væri þar að finna til þeirra frumbrota sem Y væri talin hafa haft ávinning af, né heldur hvers efnis þau frumbrot væru eða eftir atvikum hvaða brotaflokki þau tilheyrðu. Þá væri í ákærunni ekki að finna fullnægjandi lýsingu á því í hverju sú öflun ávinnings fólst, af hálfu Y umfram það sem hefði falist í frumbrotum X. Yrði því ekki talið að nægileg lýsing kæmi fram í ákærunni á þeirri refsiverðu háttsemi sem ákæran á hendur Y byggði á um þetta atriði. Var þegar af þessum sökum talið að lýsing ákæruefnisins uppfyllti ekki skilyrði c-liðar 1. mgr. 152. gr. laga nr. 88/2008 um skýrleika og að ágallarnir væru verulegir. Var því óhjákvæmilegt að vísa sakargiftum á hendur Y frá héraðsdómi án kröfu. Við ákvörðun refsingar X var litið til 1., 5. og 6. töluliðar 1. mgr. 70. gr., 77. gr. og 78. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Var refsing X ákveðin fangelsi í tvö ár. Þá var staðfest ákvæði héraðsdóms um upptöku nánar tilgreindra ávana- og fíknilyfja, eignarhluta í tilgreindri fasteign, vopna, peninga og muna.

Héraðsdómur Vesturlands birt 7. desember 2020

S-283/2020

Lögreglustjórinn á Vesturlandi (Jón Haukur Hauksson aðstoðarsaksóknari) gegn Jóhanni H. Steinþórssyni (Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður)
Lykilorð: Lyfjaakstur. Umferðarlög.
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Maður sakfelldur fyrir akstur án okuréttinda og undir áhrifum ávana- og fíkniefna.

Héraðsdómur Reykjaness birt 23. nóvember 2020

S-975/2019

Ákæruvaldið (Súsanna Björg Fróðadóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Steinþóri Einarssyni (Snorri Sturluson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir brot á almennum hegningarlögum, umferðarlögum, lögum um ávana- og fíkniefni, vopnalögum, lögreglulögum, lyfjalögum og tollalögum

Landsréttur birt 20. nóvember 2020

162/2019

Ákæruvaldið (Jón H. B. Snorrason saksóknari) gegn Adam Borzynski (Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

AB var sakfelldur fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás, sbr. 2. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með því að hafa slegið A fjórum sinnum með sleggju með nánar tilgreindum afleiðingum. Þá var hann sakfelldur fyrir eignaspjöll, sbr. 1. mgr. 257. gr. sömu laga með því að hafa slegið með sleggjunni í afturhurð bifreiðar þannig að rúða í hurðinni brotnaði. Loks var hann sakfelldur fyrir lyfja- og tollalagabrot með því að hafa haft í vörslum sínum og flutt ólöglega til landsins nánar tilgreint magn lyfja. Refsing AB var ákveðin fangelsi í níu mánuði en þar af var fullnustu sex mánaða af refsingunni frestað skilorðsbundið í tvö ár. Þá var honum gert að greiða A miskabætur og sæta upptöku framangreindrar sleggju og lyfja.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 18. nóvember 2020

S-3957/2020

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kári Ólafsson aðstoðarsaksóknari) gegn Emilíu Jennu Húnfjörð (Snorri Sturluson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærða sakfelld fyrir umferðar- og fíkniefnalagabrot og gert að greiða 1.230.000 króna sekt í ríkissjóð innan fjögurra vikna frá birtingu dómsins að telja en sæta ella fangelsi í 44 daga. Þá var ákærða svipt ökurétti í 2 ár og 4 mánuði frá birtingu dómsins að telja. Fíkniefni gerð upptæk og ákærðu gert að greiða sakarkostnað.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 7. október 2020

S-5100/2020

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Margrét Herdís Jónsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Ívari Erni Forberg (Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Sakfellt fyrir fíkniefna-, lyfja- og tollalagabrot og fyrir brot gegn vopnalögum. Ákærði dæmdur í 5 mánaða fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára.

Landsréttur birt 28. febrúar 2020

906/2018

Ákæruvaldið (Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari) gegn Armando Luis Rodriguez (Sveinn Andri Sveinsson lögmaður, Jóhann Karl Hermannsson lögmaður, 3. prófmál)

A voru gefin að sök ýmis brot með tveimur ákæruskjölum. Við meðferð málsins í héraði játaði hann þær sakargiftir samkvæmt fyrri ákærunni að hafa gerst sekur um fíkniefnalagabrot, vopnalagabrot, lyfja- og tollalagabrot og umferðarlagabrot. Með síðari ákærunni voru A gefin að sök í fjórum liðum meiri háttar brot gegn skatta- og bókhaldslögum í sjálfstæðri atvinnustarfsemi hans. Hann játaði þá háttsemi að hluta en neitaði að öðru leyti sök. Krafðist hann meðal annars frávísunar síðari ákærunnar í heild eða að hluta, þar á meðal vegna málsmeðferðar sem hann taldi í andstöðu við 4. gr. 7. viðauka Mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, þar sem honum hefði með úrskurði ríkisskattstjóra þegar verið gert að greiða álag á skattstofna vegna sömu tekjuára og sakargiftir tækju til. Héraðsdómur komst að þeirri niðurstöðu að við rekstur mála A hjá skattyfirvöldum annars vegar og ákæruvaldi og dómstólum hins vegar, sem sakargiftir samkvæmt öðrum og þriðja tölulið síðari ákærunnar lutu að, hafi verið brotið gegn ákvæðum 1. mgr. 4. gr. 7. samningsviðauka sáttmálans. Tali dómurinn því rétt að vísa þeim ákæruliðum frá dómi sem A hefði ekki gengist við en gera honum refsingu fyrir þann hluta sakargifta sem hann hefði játað. Með dómi Landsréttar var fallist á það mat héraðsdóms að skilyrðum 1. mgr. 4. gr. 7. samningsviðaukans hefði ekki verið fullnægt við rekstur mála A hjá skattyfirvöldum annars vegar og ákæruvalds og dómstólum hins vegar. Í því fælist nánar tiltekið að ekki væri unnt að líta svo á að rekstur málanna hefði verið nægjanlega samþættur í tíma, sbr. einkum dóm Hæstaréttar Íslands 21. september 2017 í máli nr. 283/2016. Þessir ágallar tækju til umræddra sakargifta í heild og stæðu engin rök til þess að undanskilja í frávísun þann hluta þeirra sem A hefði játað. Var þannig öðrum og þriðja tölulið síðari ákærunnar vísað frá héraðsdómi í heild. Þá féllst Landsréttur á það mat héraðsdóms að sakfella A fyrir þau brot sem honum væru gefin að sök í fyrsta og fjórða lið sömu ákæru enda stæðu ekki efni til þess að þeim yrði vísað frá héraðsdómi á sama grunni eða af öðrum ástæðum. Var A því sakfelldur fyrir þau brot og fyrrgreind brot samkvæmt fyrri ákærunni. Refsing hans þótti hæfilega ákveðin fangelsi í fimm mánuði en fullnustu fjögurra mánaða þeirrar refsingar var frestað skilorðsbundið í tvö ár. Þá skyldi A sæta upptöku á rafmagnsvopni, fíkniefnum og lyfjum.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 5. febrúar 2020

S-3243/2019

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Margrét Herdís Jónsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Jakobi Inga Ragnarssyni
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir umferðar-, fíkniefna- og vopnalagabrot. Dæmdur í 6 mánaða skilorðsbundið fangelsi og sviptur ökuréttindum í 2 ár og 2 mánuði.

Héraðsdómur Reykjaness birt 3. desember 2019

S-1058/2019

Ákæruvaldið (Einar Laxnes aðstoðarsaksóknari) gegn Ívari Aroni Hill Ævarssyni (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var dæmdur í 22 mánaða fangelsi fyrir fjölmörg brot, þar á meðal umferðarlagabrot, fíkniefnalagabrot, vopnalagabrot, þjófnaðarbrot og eina líkamsárás.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 9. október 2019

S-3244/2019

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu Sonja Hjördís Berndsen saksóknarfulltrúi (Sonja H. Berndsen saksóknarfulltrúi) gegn Sigfúsi Valgeiri Ómarssyni (Unnsteinn Arnar Elvarsson lögmaður)
Lykilorð: . Játning. Lyf. Umferða.
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákærði sakfelldur fyrir umferðarlagabrot, fíkniefnalagabrot og lyfjalagabrot.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 29. maí 2019

S-200/2019

Ákæruvaldið (Baldvin Einarsson saksóknarfulltrúi) gegn Benedikt Má Ingibjargarsyni (Þorgils Þorgilsson lögmaður), Önnu Sigrúnu Birgisdóttur (Jón Bjarni Kristjánsson lögmaður), Sindra Frey Sigurbjartssyni (Grímur Sigurðarson lögmaður), Sigursteini Braga Eddusyni (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður) og Söndru Rún Raybould (Guðni Jósep Einarsson lögmaður)
Lykilorð: Gripdeild. Húsbrot. Rán.
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Sakfellt fyrir hegningarlagabrot.

Landsréttur birt 17. maí 2019

663/2018

Ákæruvaldið (Jón H. B. Snorrason saksóknari) gegn Sigursteini Pétri Steinarssyni (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

S var sakfelldur fyrir þjófnaðarbrot, fíkniefnalagabrot, brot gegn lyfjalögum, eignaspjöll og akstur bifreiðar sviptur ökurétti og undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Við ákvörðun refsingar var litið til sakaferils S en einnig þess að hann hefði játað brot sín greiðlega. Með hliðsjón af 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 var refsing S ákveðin fangelsi í 8 mánuði. Að auki var áréttuð ævilöng ökuréttarsvipting hans og honum gert að sæta upptöku fíkniefna og greiða skaðabætur vegna eignaspjalla.

Landsréttur birt 29. apríl 2019

298/2019

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum (Alda Hrönn Jóhannsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn X (enginn)
Lykilorð: Kærumál. Farbann.

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem X var gert að sæta farbanni á grundvelli 1. mgr. 100. gr., sbr. b-lið 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 18. október 2018

S-507/2018

Ákæruvaldið (Margrét Herdís Jónsdóttir saksóknarfulltrúi) gegn Atla Steini Stefánssyni (Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Ákærði sakfelldur fyrir umferðarlaga-, fíkniefna- og vopnalagabrot, líkamsárás, þjófnað, fjársvik og rán.

Héraðsdómur Reykjaness birt 17. maí 2018

S-156/2018

Ákæruvaldið (Súsanna Björg Fróðadóttir saksóknarfulltrúi) gegn Jakub Fitzet (Ólafur V. Thordersen lögmaður) og Wawrzyniec Piotr Latus (Magnús Jónsson lögmaður)
Málaflokkur: Skattaréttur

Ákærðu sakfelldir fyrir lyfja- og tollalagabrot. Refsing hvors ákærðu um sig ákveðin tveggja mánaða fangelsi en fullnustu refsingarinnar frestað skilorðsbundið í tvö ár.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 14. febrúar 2018

S-594/2017

Ákæruvaldið (Kjartan Ólafsson aðstoðarsaksóknari) gegn Ásgeiri Aroni Ásgeirssyni (Jón Bjarni Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir umferðar-, lyfja- og fíkniefnalagabrot. Var honum gert að sæta fangelsi í 60 daga en fresta skyldi fullnustu 30 daga af refsingunni og var sá hluti hennar skilorðsbundinn í tvö ár.

Landsréttur birt 6. febrúar 2018

148/2018

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Einar Laxness aðstoðarsaksóknari) gegn X (Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður)

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi, á grundvelli c- og d-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.

Landsréttur birt 8. janúar 2018

33/2018

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Einar Laxness aðstoðarsaksóknari) gegn X (Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður)

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli c- og d-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.

Hæstiréttur birt 11. maí 2017

451/2016

Ákæruvaldið gegn X (Oddgeir Einarsson lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Xvar sakfelldur fyrir lyfja- og vopnalagabrot með því hafa átt í sölu- og dreifingarskyni nánar tiltekið magn af Ritalin og Ritalin Uno töflum og fyrir að geyma mikið magn skotfæra í ólæstum hirslum á heimili sínu. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að J hefði ítrekað brotið gegn ákvæðum lyfjalaga nr. 93/1994, sbr. 1. mgr. 49. gr. laganna. Var refsing J ákveðin fangelsi í þrjá mánuði. Þá voru gerð upptæk 100 stykki af Ritalini sem lögregla hafði lagt hald á við rannsókn málsins.

Hæstiréttur birt 16. október 2014

193/2014

Ákæruvaldið gegn X (Oddgeir Einarsson lögmaður)

X var sakfelldur fyrir lyfjalagabrot með því að hafa selt einstaklingi 10 stykki af Ritalini og átt 109 stykki af Ritalini í sölu- og dreifingarskyni, án þess að hafa markaðs- og lyfsöluleyfi Lyfjastofnunar. Með broti X rauf hann skilorð samkvæmt eldri dómi og samkvæmt 60. gr. almennra hegningarlaga var skilorðsdómurinn því tekinn upp og X dæmd refsing í einu lagi fyrir bæði málin eftir reglum 77. gr. sömu laga. Var refsing X því ákveðin sjö mánaða fangelsi. Þá voru gerð upptæk 119 stykki af Ritalini sem lögregla hafði lagt hald á við rannsókn málsins.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 13. febrúar 2014

S-1378/2013

Ákæruvaldið (Anna Barbara Andradóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Jónasi James Norris (Oddgeir Einarsson hrl)

Ákærði dæmdur í 7 mánaðar fangelsi fyrir lyfjalagabrot.