Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 13. febrúar 2014.
Mál nr. S-1378/2013:
D Ó M U R
máli nr. S-1378/2013:
Ákæruvaldið
(Anna Barbara Andradóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Jónasi James Norris
(Oddgeir Einarsson hrl)
Útdráttur
Ákærði dæmdur í 7 mánaðar fangelsi fyrir lyfjalagabrot.
Mál þetta, sem dómtekið var 11. febrúar 2014, er höfðað af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu með ákæru dagsettri 17. desember 2013, á hendur Jónasi James Norris, kt. 000000-0000, Hólabergi 72, Reykjavík, fyrir lyfjalagabrot, með því að hafa þriðjudaginn 15. október 2013, í bifreiðinni RG-087 á bifreiðastæði við Lóuhóla í Reykjavík, selt nafngreindum einstakling 10 stykki af Ritalini, og átt 109 stykki af Ritalini í sölu- og dreifingarskyni, án þess að hafa markaðs- og lyfsöluleyfi Lyfjastofnunar.
Er talið að þetta varði við 1. mgr. 7. gr. og 1. mgr. 20. gr., sbr. 1. mgr. 49. gr. lyfjalaga nr. 93/1994, með áorðnum breytingum.
Er þess krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar. Krafist er upptöku á samtals 119 stykkjum af Ritalini, með vísan til 3. mgr. 49. gr. lyfjalaga nr. 93/1994.
Ákærði neitar sök. Af hálfu verjanda ákærða er krafist vægustu refsingar er lög leyfa og hæfilegrar þóknunar sér til handa.
Samkvæmt skýrslu lögreglu frá þriðjudeginum 15. október 2013 hafði lögregla þann dag kl. 16.57 afskipti af ákærða. Í frumskýrslu lögreglu kemur fram að lögreglu hefðu borist ábendingar um að ákærði væri að selja Ritalin. Af þeim ástæðum hafi þótt ástæða til að fylgjast með ákærða þar sem hann hafi setið í bifreið á bifreiðastæði við Lóuhóla. Skömmu síðar hafi bifreið verið ekið upp að bifreið ákærða og A, ökumaður þeirrar bifreiðar, farið yfir í bifreið til ákærða. Er A hafi stigið út úr bifreið ákærða hafi lögregla haft afskipti af ákærða og A. Hafi ákærði verið með 6.000 krónur í annarri hendi og Ritalin í hinni. Ákærði hafi játað fyrir lögreglu að hafa selt A 10 töflur af Ritalini. Þá hafi ákærði framvísað 109 öðrum töflum af Ritalini er hann hafi verið með innan klæða. Töflurnar hafi allar verið haldlagðar af lögreglu. Tekin hafi verið skýrsla af ákærða og A og þau verið frjáls ferða sinna að því loknu. Á meðal rannsóknargagna málsins eru skýrslur sem teknar voru af ákærða og A á vettvangi umrætt sinn.
Samkvæmt efnaskýrslu tæknideildar lögreglu var efni það er lögregla lagði hald á umrætt sinn lyfið Ritalin.
Ákærði hefur fyrir dómi synjað fyrir að hafa selt A lyfið Ritalin umrætt sinn. Hann hafi hitt hana fyrir tilviljun á bifreiðastæðinu og þau rætt saman. Ákærði kvaðst hafa játað fyrir lögreglumönnum að hafa selt A 10 töflur af Ritalini og að hafa ætlað selja og gefa þær 109 töflur er hann hafi verið með innanklæða. Hafi ákærði játað þessa háttsemi undir þvingunum frá lögreglu, sem hafi hótað ákærða því að fara heim til hans og haldleggja tölvu og farsíma ákærða.
A kvaðst fyrir dómi hafa hitt ákærða umrætt sinn fyrir tilviljun á bifreiðastæði við Lóuhóla í Reykjavík. Hafi hún ekki keypt lyf af ákærða. Lögreglumenn á vettvangi hafi hins vegar hótað A því að fara heim til hennar og taka frá henni tölvu og síma játaði hún ekki að hafa keypt af ákærða lyfin. Þá hafi hún heyrt lögreglumenn hóta ákærða því hinu sama, játaði hann ekki að hafa selt A lyf.
Lögreglumennirnir B og C staðfestu fyrir dómi þátt sinn í rannsókn málsins. Synjuðu þeir báðir fyrir að hafa beitt ákærða eða A þvingunum við játningar þeirra á vettvangi. Í ljósi greiðlegrar játningar þeirra hafi verið ákveðið að taka af þeim skýrslur af vettvangi, til að ljúka þeim þætti málsins.
Niðurstaða:
Ákærði neitar sök. Kveðst hann ekki hafa selt A 10 töflur af Ritalini þriðjudaginn 15. október 2013 á bifreiðastæði við Lóuhóla í Reykjavík. Þá kvaðst ákærði ekki hafa átt þær 109 töflur aðrar af lyfinu í sölu- og dreifingarskyni. Samkvæmt rannsóknargögnum málsins játaði ákærði fyrir lögreglu á vettvangi að hafa selt A 10 töflur af Ritalini. Hafði lögregla þá fylgst með ákærða þar sem grunur hafi leikið á um ólöglega lyfjasölu af hans hálfu. Er lögregla hafði afskipti af ákærða þennan dag var hann með 6.000 krónur af reiðufé í annarri hendi og töflur með Ritalini í hinni. Er breyttur framburður ákærða fyrir dómi í þessu ljósi ótrúverðugur sem og framburður hans um þvinganir af hálfu lögreglu. Sama gildir um breyttan framburð A. Verður lögð til grundvallar greiðleg játning ákærða á vettvangi, þar sem hann játaði að hafa selt A 10 töflur af lyfinu og að hafa átt 109 töflur aðrar í sölu- og dreifingarskyni. Með samsvarandi hætti verður lagður til grundvallar framburður A á vettvangi um að hún hafi keypt 10 töflur af Ritalini af ákærða. Með hliðsjón af því verður ákærði sakfelldur samkvæmt ákæru og er háttsemi hans rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru.
Ákærði er fæddur í júlí árið 1962. Ákærði á að baki langan brotaferil. Með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur 19. júní 2013 var ákærði sakfelldur m.a. fyrir sambærilegt brot gegn lyfjalögum og hér er til meðferðar. Var ákærði dæmdur í 6 mánaða fangelsi skilorðsbundið til tveggja ára. Ákærði áfrýjaði þeim dómi til Hæstaréttar, sem með dómi 6. febrúar sl. í máli nr. 457/2013 staðfesti dóm héraðsdóms með þeirri breytingu að skilorðstími var ákveðinn fimm ár frá uppkvaðningu dóms Hæstaréttar. Brot ákærða í þessu máli var framið 15. október 2013 og því skilorðsrof á dómi héraðsdóms frá 19. júní 2013. Verður sá dómur tekinn upp eftir ákvæðum 60. gr. laga nr. 19/1940 og málin dæmd í einu lagi. Er refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í sjö mánuði, sem ekki er ástæða til að skilorðsbinda.
Með vísan til ákvæða í ákæru skal upptækt gert til ríkissjóðs samtals 119 stykki af Ritalini, sem lögregla lagði hald á við rannsókn málsins.
Ákærði greiði málsvarnarlaun skipaðs verjanda, svo sem í dómsorði greinir.
D ó m s o r ð :
Ákærði, Jónas James Norris, sæti fangelsi í 7 mánuði.
Upptækt skal gert til ríkissjóðs 119 stykki af Ritalini, sem lögregla lagði hald á við rannsókn málsins.
Ákærði greiði málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Oddgeirs Einarssonar hæstaréttarlögmanns, 100.400 krónur.
Símon Sigvaldason.