Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

151 dómar fundust

Lagagrein: 3. mgr. 101. gr. laga nr. 50/1987 — Umferðarlög

Landsréttur birt 4. nóvember 2022

505/2021

Ákæruvaldið (Marín Ólafsdóttir saksóknari) gegn Atla Viðari Gunnarssyni (Inga Lillý Brynjólfsdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

A var ákærður fyrir ýmis brot í 13 ákæruliðum. Við meðferð málsins í héraði féll ákæruvaldið frá 5 ákæruliðum. Með hinum áfrýjaða dómi var A sakfelldur fyrir þá ákæruliði sem eftir stóðu, að undanskildum ákærulið 11 sem hann var sýknaður af. Fyrir Landsrétti krafðist A sýknu af ákæruliðum 4, 10 og 12 en hann hafði játað brot samkvæmt ákæruliðum 1, 8, 9 og 13. Við úrlausn um ákærulið 4, sem sneri að meintum þjófnaði A úr verslun og umferðarlagabroti, kom fram í dómi Landsréttar að gögn um rannsókn lögreglu væru rýr og ákæruvaldinu hefði ekki tekist að færa sönnur á að A hefði gerst sekur um þá háttsemi sem honum var gefin að sök. Var A því sýknaður af ákærulið 4. Samkvæmt ákærulið 10 var A gefinn að sök nytjastuldur með því að hafa heimildarlaust tekið tilgreinda bifreið og notað hana uns lögregla hafði afskipti af honum sofandi í bifreiðinni. Í dómi Landsréttar var rakið að ekki hefði verið sýnt fram á að A hefði gerst sekur um þá háttsemi sem í ákæruliðnum væri lýst. Var A því sýknaður af kröfum ákæruvaldsins að þessu leyti. Við aðalmeðferð málsins fyrir Landsrétti var horft á myndupptöku af atburðum sem heyra undir ákærulið 12 og kannaðist A við sig á upptökunni. Með hliðsjón af því, vættum vitna og gögnum málsins að öðru leyti, var hinn áfrýjaði dómur staðfestur um sakfellingu A samkvæmt ákærulið 12. Hinn áfrýjaði dómur var að öðru leyti staðfestur með vísan til forsendna um annað en ákvörðun refsingar, sviptingu ökuréttar og upptöku á tveimur farsímum og spjaldtölvu. Refsing A þótti hæfilega ákveðin fangelsi í fimm mánuði. Þá var hann sviptur ökurétti ævilangt og gert að greiða brotaþola skaðabætur.

Héraðsdómur Suðurlands birt 25. október 2022

S-397/2022

Lögreglustjórinn á Suðurlandi (Rósamunda Jóna Baldursdóttir fulltrúi) gegn Viggó Sigurðssyni (enginn)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var fundinn sekur um ítrekaðan ölvunarakstur og akstur sviptur ökurétti. Var honum gert að sæta fangelsi í fimm mánuði. Þá var áréttuð ævilöng svipting ökuréttar hans.

Héraðsdómur Suðurlands birt 6. september 2022

S-269/2022

Lögreglustjórinn á Suðurlandi (Ólafur Hallgrímsson fulltrúi) gegn Jakob Líndal Stefánsson (enginn)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var fundinn sekur um ítrekaðan akstur undir áhrifum fíkniefna auk aksturs sviptur ökurétti. Var honum gert að sæta fangelsi í 60 daga, jafnframt greiðslu sektar. Þá var áréttuð ævilöng svipting ökuréttar ákærða.

Héraðsdómur Suðurlands birt 16. febrúar 2022

S-536/2021

Lögreglustjórinn á Suðurlandi (Þórdís Ólöf Viðarsdóttir fulltrúi) gegn Indriða Ingimundarsyni (Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var fundinn sekur um margítrekaðan ölvunarakstur og akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna, sem og akstur sviptur ökurétti. Var honum gert að sæta fangelsi í tólf mánuði. Þá var og áréttuð ævilöng svipting ökuréttar hans.

Héraðsdómur Suðurlands birt 25. janúar 2022

S-535/2021

Lögreglustjórinn á Suðurlandi (Ólafur Hallgrímsson fulltrúi) gegn Ragnari Guðmundssyni (enginn)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var fundinn sekur um akstur undir áhrifum lyfja sem og ítrekaðan akstur undir áhrifum fíkniefna. Var honum gert að sæta fangelsi í 30 daga og hann jafnframt sviptur ökurétti ævilangt.

Héraðsdómur Suðurlands birt 25. janúar 2022

S-534/2021

Lögreglustjórinn á Suðurlandi (Ólafur Hallgrímsson fulltrúi) gegn Bryndísi Önnu Árnadóttur (enginn)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærða var fundinn sek um ítrekaðar akstur undir áhrifum fíkniefna sem og akstur svipt ökurétti. Var henni gert að sæta fangelsi í 30 daga, jafnframt sekt og ævilangri sviptingu ökuréttar.

Landsréttur birt 28. maí 2021

180/2020

Ákæruvaldið gegn X (Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

X var sakfelldur fyrir brot gegn 217. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 fyrir að hafa tekið A hálstaki og skallað í andlit, svo að hún hlaut áverka af. Þá var X einnig sakfelldur fyrir umferðarlagabrot með því að hafa ekið bifreið sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna ávana- og fíkniefna. Var niðurstaða hins áfrýjaða dóms staðfest um sakfellingu fyrir þau brot og heimfærslu þeirra til umferðarlaga nr. 77/2019 sem tóku gildi eftir að brotin voru framin. Við ákvörðun refsingar var litið til 1. og 2. töluliðar 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga og þess að líkamsárásin beindist að kærustu X, sbr. 3. mgr. 70. gr. sömu laga. Að virtum sakaferli X og með hliðsjón af 77. og 78. gr. almennra hegningarlaga var refsing X ákveðin fangelsi í fimm mánuði auk þess sem ævilöng ökuréttarsvipting hans var áréttuð.

Landsréttur birt 26. mars 2021

689/2019

Ákæruvaldið (Marín Ólafsdóttir saksóknari) gegn Ragnari Ólafssyni (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

R var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot með því að hafa ekið bifreið í tvö aðgreind skipti undir áhrifum ávana- og fíkniefna og fyrir fíkniefnalagabrot með því að hafa haft í vörslum sínum tiltekið magn af marijúana. Við meðferð málsins í héraði játaði R sök en bar því við að umferðarlagabrotin væru fyrnd. Í dómi Landsréttar kom fram að umferðarlagabrotin hefðu ekki verið fyrnd þegar ákæra var gefin út í málinu. Enn fremur var rakið að eftir uppkvaðningu hins áfrýjaða dóms hefðu tekið gildi ný umferðarlög og að dæma skyldi um háttsemi R eftir þeim lögum. Þá var fjallað um áhrif fyrri brota R við ákvörðun refsingar og rakið að háttsemin sem R hefði verið sakfelldur fyrir með tilgreindum dómi Hæstaréttar væri ekki lengur refsinæm samkvæmt gildandi umferðarlögum. Af lögskýringargögnum með 3. gr. almennra hegningarlaga mætti ráða að horfa skyldi til refsiákvörðunar eldri dóma og viðurlagaákvarðana við mat á ítrekunaráhrifum og ákvörðunar refsingar þrátt fyrir slíkar breytingar. Á hinn bóginn mætti leiða þau grunnsjónarmið af ákvæðum stjórnarskrár og mannréttindasáttmála Evrópu, um bann við afturvirkni refsilaga, og dómaframkvæmdar Mannréttindadómstóls Evrópu, að sakaður maður ætti að njóta þess ef háttsemi sem áður hefði verið talin refsinæm þætti það ekki lengur. Af þessum sökum kæmi umræddur dómur Hæstaréttar ekki til skoðunar við mat á sakaferli R og ákvörðun refsiviðurlaga. Var refsing R ákveðin 60 daga fangelsi en með hliðsjón af óhóflegum drætti á útgáfu ákæru í málinu var fullnustu refsingar frestað skilorðsbundið í tvö ár. Þá voru ákvæði héraðsdóms um upptöku fíkniefna og ökuréttarsviptingu staðfest.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 11. nóvember 2020

S-129/2020

Ákæruvaldið (Eyþór Þorbergsson fulltrúi) gegn Fanneyju Jónu Jónsdóttur
Lykilorð: Umferðarlagabrot.
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærða sakfelld fyrir umferðarlagabrot, óspektir á almannafæri og minniháttar líkamsárás.

Landsréttur birt 2. október 2020

712/2019

Ákæruvaldið (Stefanía G. Sæmundsdóttir saksóknari) gegn Þórólfi Marel Jónassyni (Björgvin Jónsson lögmaður, Eldjárn Árnason lögmaður, 2. prófmál)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Þ var sakfelldur fyrir brot gegn umferðarlögum með því að hafa í tilgreint skipti ekið bifreið sviptur ökurétti og undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Eftir uppkvaðningu hins áfrýjaða dóms tóku gildi ný umferðarlög nr. 77/2019 og var dæmt um háttsemi Þ eftir þeim, þó þannig að ekki yrði beitt þyngri refsingu en heimilt hafi verið á þeim tíma er brot var framið. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að Þ hafði þrisvar áður verið gerð refsing fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Var refsing Þ í samræmi við dómvenju ákveðin fangelsi í 75 daga og áréttuð svipting ökuréttar ævilangt.

Héraðsdómur Suðurlands birt 30. september 2020

S-475/2020

Lögreglustjórinn á Suðurlandi (Ólafur Hallgrímsson fulltrúi) gegn Davíð Erni Adamssyni (enginn)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var fundinn sekur um umferðarlagabrot, þar á meðal ítrekaðan akstur undir áhrifum fíkniefna. Var ákærði dæmdur til að sæta fangelsi í 30 daga og honum jafnframt gerð sekt. Þá var ákærði sviptur ökurétti ævilangt.

Landsréttur birt 26. júní 2020

384/2019

Ákæruvaldið (Marín Ólafsdóttir saksóknari) gegn Olgu Sadenko (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður, Jónína Guðmundsdóttir lögmaður, 3. prófmál)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Með dómi héraðsdóms var O sakfelld fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, með því að hafa flutt hingað til lands 0,20 grömm af marijúana, og fyrir umferðarlagabrot, með því að hafa í þrjú skipti ekið bifreið svipt ökurétti og í tvö skipti jafnframt undir áhrifum ávana- og fíkniefna. O játaði sök og var farið með málið samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Var því eingöngu deilt um ákvörðun viðurlaga fyrir Landsrétti. Við meðferð málsins fyrir Landsrétti var þess krafist af hálfu ákæruvaldsins að O yrði sýknuð af því að hafa brotið gegn lögum um ávana- og fíkniefni þar sem sök hennar hefði verið fyrnd og var hún þegar á grundvelli kröfugerðar ákæruvaldsins sýknuð af þeim sakargiftum. Eftir uppkvaðningu hins áfrýjaða dóms höfðu tekið gildi ný umferðarlög nr. 77/2019 og með hliðsjón af 1. mgr. 2. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 dæmdi Landsréttur eftir þeim. Í dóminum kom fram að samkvæmt nýjum umferðarlögum teldist nú ökumaður aðeins undir áhrifum ávana- og fíkniefna eða lyfja og óhæfur til að stjórna ökutæki örugglega ef ávana- eða fíkniefni eða lyf fyndust í blóði hans. Með vísan til þess að samkvæmt einum ákærulið hefði umferðarlagabrot ákærðu eingöngu verið staðreynt með mælingu efna í þvagi var hún sýknuð af ákæru fyrir að hafa ekið undir áhrifum ávana- og fíkniefna í umrætt sinn. Að öðru leyti staðfesti Landsréttur niðurstöðu héraðsdóms um sakfellingu O. Við ákvörðun refsingar var litið til sakaferils O og þess að brot hennar voru öll hegningarauki við eldri dóm, sbr. 78. gr. almennra hegningarlaga. Samkvæmt því og með hliðsjón af 77. gr. sömu laga og áralangrar dómvenju var refsing hennar ákveðin fangelsi í 30 daga auk þess sem henni var gert að greiða sekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá birtingu dómsins en sæta ella fangelsi í 14 daga. Þá var staðfest niðurstaða héraðsdóms um ævilanga sviptingu ökuréttar O og upptöku fíkniefna.

Héraðsdómur Suðurlands birt 23. júní 2020

S-283/2020

Lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum (Arndís Bára Ingimarsdóttir fulltrúi) gegn Sólveigu Svanhildi Jónsdóttur (Jón Bjarni Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærða var fundinn sek um ýmis umferðarlagabrot, þar á meðal akstur undir áhrifum fíkniefna og var það brot hennar ítrekað öðru sinni. Var ákærðu gert að sæta fangelsi í 45 daga, og henni jafnframt gert að greiða sekt. Þá var ákærða svipt ökurétti ævilangt.

Héraðsdómur Reykjaness birt 19. júní 2020

S-1242/2020

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Árni Bergur Sigurðsson saksóknarfulltrúi) gegn Erlingi Orra Baldurssyni
Lykilorð: Umferðarlagabrot.
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir umferðarlagabrot.

Héraðsdómur Reykjaness birt 9. desember 2019

S-1625/2019

Ákæruvaldið (Baldvin Einarsson saksóknarfulltrúi) gegn Sigurbirni Ægissyni (Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir hótanir, ólögmæta meðferð fundins fjár og umferðar- og fíkniefnalgabrot.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 19. september 2019

S-457/2019

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu Árni Bergur Sigurðsson saksóknarfulltrúi (Árni Bergur Sigurðsson saksóknarfulltrúi) gegn X (Steinbergur Finnbogason lögmaður)
Lykilorð: Umferð. Útivistardómur.
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir umferðarlagabrot.

Héraðsdómur Suðurlands birt 4. september 2019

S-373/2019

Lögreglustjórinn á Suðurlandi (Elimar Hauksson fulltrúi) gegn Hallgrími Þ. Hallgrímssyni
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir brot gegn umferðarlögum og fíkniefnalögum. Var ákærða gert að sæta fangelsi í 30 daga og til greiðslu sektar. Þá var ákærði sviptur ökurétti ævilangt og gert að sæta upptöku á fíkniefnum.

Héraðsdómur Suðurlands birt 16. apríl 2019

S-52/2019

Lögreglustjórinn á Suðurlandi Elimar Hauksson fulltrúi (Elimar Hauksson fulltrúi) gegn Ástu Björgu Jörundardóttur (Snorri Sturluson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærða var fundin sek um fíkniefnalagabrot og umferðarlagabrot og henni gert að sæta fangelsi í fjóra mánuði. Jafnframt var ákærða svipt ökurétti ævilangt, gerð voru upptæk umrædd fíkniefni og ákærða dæmd til greiðslu sakarkostnaðar.

Héraðsdómur Reykjaness birt 2. apríl 2019

S-24/2019

Ákæruvaldið (Sigurður Pétur Ólafsson aðstoðarsaksóknari) gegn Sigurbirni Einarssyni (Þórhallur H. Þorvaldsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir umferðarlagabrot og brot gegn 148. gr. almennra hegningarlaga og dæmdur í fimm mánaða fangelsi auk þess sem ævilöng ökuréttarsvipting ákærða var áréttuð.

Héraðsdómur Suðurlands birt 14. febrúar 2019

S-24/2019

Ákæruvaldið (Grímur Hergeirsson fulltrúi) gegn Hákoni Má Jósepssyni
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var fundinn sekur um umferðarlagabrot, þar á meðal akstur sviptur ökurétti og undir áhrifum fíkniefna. Að virtum sakaferli ákærða var honum gert að sæta fangelsi í sex mánuði, hann sviptur ökurétti ævilangt auk þess sem bifreið hann var gerð upptæk.

Héraðsdómur Reykjaness birt 29. janúar 2019

S-434/2018

Ákæruvaldið (Alda Hrönn Jóhannsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Theodóri Hertervig Línusyni
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir umferðarlagabrot og fíkniefnalagabrot og dæmdur í fimm mánaða fangelsi, þar af voru tveir mánuðir skilorðsbundnir til tveggja ára. Ævilöng ökuréttarsvipting ákærða var áréttuð auk þess sem ákærða var gert að sæta upptöku á kannabisplöntum og gróðurhúsalömpum.

Héraðsdómur Suðurlands birt 29. janúar 2019

S-286/2018

Ákæruvaldið (Margrét Harpa Garðarsdóttir fulltrúi) gegn Karli Bachmann Lúðvíkssyni
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var fundinn sekur um ítrekaðan ölvunarakstur sem og akstur sviptur ökurétti. Var honum gert að sæta fangelsi í 75 daga auk þess sem hann var sviptur ökurétti ævilangt.

Héraðsdómur Suðurlands birt 10. desember 2018

S-276/2018

Ákæruvaldið (Margrét Harpa Garðarsdóttir fulltrúi) gegn Heiðari Kristjáni Grétarssyni (enginn)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var fundinn sekur um umferðarlagabrot, með því að hafa meðal annars efkið undir áhrifum áfengis og fíkniefna. Með broti sínu rauf ákærði skilorð eldri dóms og var hann dæmdur upp. Var ákærða gert að sæta fangelsi, en hluti refsingarinnar var bundinn skilorði. Þá var ákærði og sviptur ökurétti ævilangt.

Héraðsdómur Reykjaness birt 20. nóvember 2018

S-225/2018

Ákæruvaldið (Halldór Rósmundur Guðjónsson aðstoðarsaksóknari) gegn Jóni Hirti Jónssyni (Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir umferðarlagabrot og fíkniefnalagabrot. Ákærði dæmdur í níu mánaða fangelsi og var sviptur ökurétti ævilangt. Ákærða gert að sæta upptöku á fíkniefnum.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 14. nóvember 2018

S-250/2018

Ákæruvaldið (Sigurður Pétur Ólafsson aðstoðarsaksóknari) gegn Gesti Hrafnkeli Kristmundssyni
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir ítrekuð umferðarlagabrot, þjófnaðarbrot sem og tilraun til þjófnaðar. Var hann dæmdur til að sæta fangelsi í fimm mánuði en fresta skyldi fullnustu 60 daga af refsingunni og var sá hluti hennar skilorðsbundinn í tvö ár.

Héraðsdómur Suðurlands birt 9. október 2018

S-176/2018

Ákæruvaldið (Margrét Harpa Garðarsdóttir fulltrúi) gegn Arnis Simanovs
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var fundinn sekur um ítrekaðan ölvunarakstur sem og akstur sviptur ökurétti. Var honum gert að sæta fangelsi í sex mánuði og áréttuð ævilöng svipting ökuréttar hans. Þá var bifreið ákærða gerð upptæk.

Héraðsdómur Suðurlands birt 2. júlí 2018

S-259/2017

Ákæruvaldið (Elimar Hauksson fulltrúi) gegn Ólafi Hauki Atlasyni (Sigurður Sigurjónsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sekur fundinn um margítrekaðan ölvunarakstur og akstur sviptur ökurétti. Var ákærða dæmdur hegningarauki og honum gert að sæta fangelsi í 90 daga, auk þess sem áréttuð var ævilöng svipting ökuréttar ákærða.

Héraðsdómur Suðurlands birt 8. júní 2018

S-83/2018

Ákæruvaldið (Margrét Harpa Garðarsdóttir fulltrúi) gegn Arnari Jóhanni Ragnarssyni (Jón Egilsson hrl)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákærði var fundinn sekur um akstur undir áhrifum fikniefna, asktur sviptur ökurétti og fíkniefnalagabrot. Dæmdur var upp eldri skilorðsdómur. Ákærða var gert að sæta fangelsi í sex mánuði.

Héraðsdómur Suðurlands birt 8. júní 2018

S-86/2018

Ákæruvaldið (Margrét Harpa Garðarsdóttir fulltrúi) gegn Ásgeiri Þór Ingasyni
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var fundinn sekur um ölvunarakstur auk aksturs sviptur ökurétti. Var honum gert að sæta fangelsi í 90 daga og áréttuð ævilöng svipting ökuréttar hans. Þá var bifreið hans gerð upptæk.

Héraðsdómur Suðurlands birt 8. júní 2018

S-76/2018

Ákæruvaldið (Margrét Harpa Garðarsdóttir fulltrúi) gegn Hrund Albertsdóttur
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærða var fundinn sek um ítrekaðan ölvunarakstur, auk annara umferðarlagabrota. Var henni gert að sæta fangelsi í 30 daga og hún jafnframt svipt ökurétti ævilangt.

Héraðsdómur Suðurlands birt 16. apríl 2018

S-54/2018

Ákæruvaldið (Margrét Harpa Garðarsdóttir fulltrúi) gegn Helga Má Reynissyni
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var fundinn sekur um ítrekaðan ölvunarakstur sem og akstur sviptu ökurétti, auk annarra umferðarlagabrota. Var ákærða gert að sæta fangelsi í 90 daga, og hann sviptur ökurétti ævilangt.

Héraðsdómur Suðurlands birt 16. apríl 2018

S-53/2018

Ákæruvaldið (Margrét Harpa Garðarsdóttir fulltrúi) gegn Eggerti Má Marinóssyni (enginn)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var fundinn sekur um ölvunarakstur og akstur sviptur ökurétti. Var um ítrekuð brot að ræða og var ákærði gert að sæta fangelsi í 30 daga, auk þess sem hann var sviptur ökurétti ævilangt.

Héraðsdómur Suðurlands birt 6. apríl 2018

S-15/2018

Ákæruvaldið (Elimar Hauksson fulltrúi) gegn Ágústi Líndal Ágústssyni
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var fundinn sekur um akstur undir áhrifum fíkniefna sem og sviptur ökurétti. Var um margítrekuð brot að ræða og honum gert að sæta fangelsi í sex mánuði. Þá var áréttuð ævilöng svipting ökuréttar ákærða.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 4. apríl 2018

S-727/2017

Ákæruvaldið (Auðbjörg Lísa Gústafsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Brynjari Unnsteinssyni
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var sakfelldur fyrir umferðar-, fíkniefna- og vopnalagabrot og dæmdur til að sæta fangelsi í þrjá mánuði. Var ákærða gerður hegningarauki við eldri dóm.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 12. mars 2018

S-55/2018

Ákæruvaldið (Guðmundur Þórir Steinþórsson aðstoðarsaksóknari) gegn Írisi Ingu Ágústsdóttur (Kristrún Elsa Harðardóttir lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærða sakfelld fyrir umferðarlagabrot og þjófnaði. Var hún dæmd til sæta fangelsi í fjóra mánuði. Refsingin var að hluta til hegningarauki við eldri dóm.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 28. febrúar 2018

S-56/2018

Ákæruvaldið (Auðbjörg Lísa Gústafsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Jóni Karel Ólafssyni (Ómar Örn Bjarnþórsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir umferðar- og fíkniefnalagabrot og dæmdur til að sæta fangelsi í 45 daga.

Héraðsdómur Suðurlands birt 27. ágúst 2017

S-257/2017

Ákæruvaldið (Elimar Hauksson fulltrúi) gegn Hákoni Má Jósepssyni
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var fundinn sekur um ítrekaðan akstur undir áhrifum fíkniefna, sem og akstur sviptur ökurétti. Var hann dæmdur til að sæta fangelsi í 60 daga, og hann jafnframt sviptur ökurétti ævilangt.

Héraðsdómur Suðurlands birt 27. september 2017

S-245/2017

Ákæruvaldið (Elimar Hauksson fulltrúi) gegn Davíð Erni Albertssyni
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var fundinn sekur um ítrekaðan akstur undir áhrifum fíkniefna. Var honum gert að sæta fangelsi í 60 daga. Þá var ítrekuð ævilöng svipting ökuréttar ákærða.

Hleð fleiri dómum…