Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. S-56/2018:

Ákæruvaldið

(Auðbjörg Lísa Gústafsdóttir aðstoðarsaksóknari)

gegn

Jóni Karel Ólafssyni

(Ómar Örn Bjarnþórsson lögmaður)

Ávana- og fíkniefni. Fangelsi. Ítrekun. Játningarmál. Ökuréttarsvipting. Svipting ökuréttar. Umferðarlagabrot. Upptaka. Vörslur.

Ákærði sakfelldur fyrir umferðar- og fíkniefnalagabrot og dæmdur til að sæta fangelsi í 45 daga.

Mál   þetta,   sem   dómtekið   var   í   dag,   er   höfðað   með   ákæru,   útgefinni   af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 30. janúar 2018, á hendur Jóni Karel Ólafssyni, kt. 000000-0000, Vesturbergi 78, Reykjavík, fyrir eftirtalin brot:

I.

Fíkniefnalagabrot, með því að hafa aðfaranótt sunnudagsins 23. apríl 2017, í bifreiðinni VZ-241 sem lögregla stöðvaði við hefðbundið eftirlit framan við Nýbýlaveg 87 í Kópavogi, haft í vörslum sínum 0,17 g af amfetamíni sem lögreglumenn fundu við leit.

Telst brot þetta varða við 2. gr., sbr. 5. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 13/1985 og lög nr. 68/2001, og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 848/2002.

II.

Umferðar- og fíkniefnalagabrot með því að hafa að morgni þriðjudagsins 27. júní 2017, ekið torfærubifhjóli, óhæfur um að stjórna því örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóði mældist amfetamín 410 ng/ml og metamfetamín 55 ng/ml), sviptur ökurétti norður Snorrabraut um Þórunnartún og Bríetartún í Reykjavík, þar sem lögreglan gaf honum merki um að stöðva bifhjólið, sem hann sinnti ekki heldur hélt hann ökuferðinni áfram að hringtorgi á gatnamótum Katrínartúns og Borgartúns, þar upp á gangstétt og þaðan öfugt inn í hringtorgið, þar sem hann beygði inn Borgartún til vesturs og inn á lokað bifreiðastæði við Borgartún 5, þar sem akstri lauk en ákærði reyndi að flýja lögreglu en fannst undir bifreið skammt frá og jafnframt á sama tíma haft í vörslum sínum 0,04 g af ecstasy, sem lögregla fann við leit í veski í bakboka ákærða.

Telst brot þetta varða við 1. og 3. mgr. 5. gr., 1. mgr. 13. gr., 1., sbr. 2. mgr., 45. gr. a, 1. mgr. 48. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr., umferðarlaga nr. 50/1987, sbr. 5. gr. laga nr. 66/2006, 19. gr. lögreglulaga nr. 90/1996 og 2. gr., sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 13/1985 og lög nr. 68/2001, og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 848/2002.

III.

Umferðar- og fíkniefnalagabrot með því að hafa að kvöldi sunnudagsins 30. júlí 2017, ekið bifreiðinni LY-015, óhæfur um að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóði mældist amfetamín 345 ng/ml og tetrahýdrókannabínól 3,0 ng/ml), sviptur ökurétti um um Arnarbakka, Reykjavík, þar sem lögregla hafði afskipti af honum framan við Ferjubakka og jafnframt á sama tíma haft í vörslum sínum 0,51 g af amfetamíni og 0,71 g af tóbaksblönduðu kannabisefni, sem lögregla fann við leit á ákærða.

Telst brot þetta varða við 1., sbr. 2. mgr., 45. gr. a, 1. mgr. 48. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr., umferðarlaga nr. 50/1987, sbr. 5. gr. laga nr. 66/2006 og 2. gr., sbr. 5. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. og 6. gr. sömu laga, að því er varðar meðferð ákærða á tóbaksblönduðu kannabisefni, sbr. lög nr. 13/1985 og lög nr. 68/2001, og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 848/2002.

IV.

Fíkniefnalagabrot, með því að hafa laugardaginn 21. október 2017, sem farþegi bifreiðarinnar HP-V11, sem stöðvuð var á Akrafjallsvegi á Akranesi, haft í vörslum sínum 0,83 g af marijúana og 0,62 g af tóbaksblönduðu kannabisefni, sem ákærði framvísaði til lögreglu.

Telst brot þetta varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 13/1985 og lög nr. 68/2001, og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 848/2002.

Þess   er   krafist   að   ákærði   verði   dæmdur   til   refsingar,   til   greiðslu   alls sakarkostnaðar og til að sæta sviptingu ökuréttar skv. 101. og 102. gr. laga nr. 50/1987, sbr. 25. og 26. gr. laga nr. 44/1993, sbr. 18. gr. laga nr. 66/2006. Þá er gerð krafa um að framangreind fíkniefni 0,68 g af amfetamíni og 0,71 g af tóbaksblönduðu kannabisefni, sem hald var lagt á, verði gerð upptæk, samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001.

Verjandi ákærða krefst vægustu refsingar sem lög leyfa og hæfilegrar þóknunar sér til handa.

Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu þegar sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.

Ákærði hefur skýlaust játað brot sín. Sannað er með játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að ákærði er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og eru brot hans rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru.

Ákærði   er   fæddur   í   september   1991.   Samkvæmt   framlögðu   sakavottorði, dagsettu 24. janúar 2017, var hann dæmdur í níu mánaða fangelsi, meðal annars fyrir brot gegn 1. sbr. 2. mgr. 45. gr.a og 1. mgr. 48. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur, uppkveðnum 2. október 2014. Þá var honum 15. apríl 2015 dæmdur hegningarauki og 10. október 2016 gerð sekt meðal annars vegna brota gegn sömu greinum umferðarlaga.

Með hliðsjón af framangreindu, greiðri játningu ákærða, sakarefni málsins sem og 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í 45 daga.

Með vísan til lagaákvæða í ákæru, einkum 3. mgr. 101. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, er ákærði sviptur ökurétti ævilangt frá birtingu dóms þessa að telja.

Með vísan til lagaákvæða í ákæru eru gerð upptæk til ríkissjóðs 0,68 g af amfetamíni og 0,71 g af tóbaksblönduðu kannabisefni, sem lögregla lagði hald á við rannsókn málsins.

Ákærði   greiði   málsvarnarþóknun   skipaðs   verjanda   síns,   Ómars   Arnar Bjarnþórssonar   lögmanns,   105.400   krónur,   að   meðtöldum   virðisaukaskatti,   og 336.137 krónur í annan sakarkostnað.

Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Auðbjörg Lísa Gústafsdóttir aðstoðarsaksóknari.

Lilja Rún Sigurðardóttir, aðstoðarmaður dómara, kveður upp dóminn.

D Ó M S O R Ð:

Ákærði, Jón Karel Ólafsson, sæti fangelsi í 45 daga.

Ákærði er sviptur ökurétti ævilangt frá birtingu dómsins að telja.

Upptæk eru gerð til ríkissjóðs 0,68 g af amfetamíni og 0,71 g af tóbaksblönduðu kannabisefni.

Ákærði   greiði   málsvarnarþóknun   skipaðs   verjanda   síns,   Ómars   Arnar Bjarnþórssonar lögmanns, 105.400 krónur og 336.137 krónur í annan sakarkostnað.

Lilja Rún Sigurðardóttir