Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

36 dómar fundust

Lagagrein: 74. gr. laga nr. 19/1991 — Lög um meðferð opinberra mála

Hæstiréttur birt 10. júní 2010

421/2009

Ákæruvaldið (Sigríður J. Friðjónsdóttir vararíkissaksóknari) gegn Gísla Birgissyni (Jóhannes Ásgeirsson hrl) (Hjördís E. Harðardóttir réttargæslumaður)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

X var sakfelldur fyrir kynferðisbrot gegn A, sem þá var 14 ára gömul, með því að hafa í bifreið sem hann hafði lagt við verksmiðjuhúsnæði, sett fingur í leggöng stúlkunnar, látið hana nudda lim sinn og haft við hana samræði. Talið var sannað að X hefði beitt A ofbeldi og annars konar ólögmætri nauðung til að ná fram kynferðismökunum. Að virtum ljósmyndum af bifreiðinni, sem voru meðal málsgagna, og þegar litið var til þess að fjölskipaður héraðsdómur hefði metið framburð A trúverðugan, þar á meðal um hvernig X braut gegn henni í bifreiðinni, þótti hafið yfir skynsamlegan vafa að atburðir hefðu verið með þeim hætti sem hún lýsti. Var háttsemi X talin varða við 1. mgr. 194. gr. og 1. mgr. 202. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að A hafði oft gætt barns X, sem var tengdur henni og hafði áunnið sér trúnaðartraust hennar. X var 32 ára þegar brotin voru framin, en A 14 ára. Hann hefði nýtt sér yfirburðastöðu sína gagnvart henni og neytt hana í skjóli þess til að hafa við sig kynferðismök í læstri bifreið á afviknum stað, en þar átti A sér ekki undankomu auðið. Var refsing X ákveðin fangelsi í þrjú ár og sex mánuði. Þá var honum gert að greiða A 800.000 krónur í miskabætur.

Hæstiréttur birt 20. maí 2010

448/2009

Ákæruvaldið (Sigríður J. Friðjónsdóttir vararíkissaksóknari) gegn Jóni Sverri Bragasyni (Guðmundur Ómar Hafsteinsson hdl) (Lilja Jónasdóttir hrl)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

X var ákærður fyrir kynferðisbrot gegn A frá fyrstu mánuðum ársins 2006 til aprílmánaðar 2008, þegar pilturinn var á aldrinum 13 til 15 ára, með því að hafa í mörg skipti haft munnmök við piltinn og í 4-5 skipti fengið A til að hafa við sig endaþarmsmök. X tældi piltinn til kynmakanna með því að notfæra sér þroskaskerðingu hans, reynsluleysi hans af kynlífi og tölvufíkn, en X greiddi fyrir kynmökin með tölvuleikjum eða peningum. Talið var að hafið væri yfir skynsamlega vafa að X hefði haft þau kynmök við A sem í ákæru greindi, þó þannig að ekki væri, að virtum gögnum málsins, fram komin sönnun þess að hann hefði brotið gegn A fyrr en um vorið 2006. Brot X voru ýmist talin varða við 1. mgr. 202. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 eins og hún hljóðaði áður en henni var breytt með lögum nr. 61/2007 og 3. mgr. 202. gr. sömu laga. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að hluti brota X varðaði við 3. mgr. 202. gr. laganna, en refsimörk hennar eru mun lægri en samkvæmt 1. mgr. sama ákvæðis. Þá hafði engin viðhlítandi skýring verið gefin á þeim töfum sem urðu á að senda málið til ríkissaksóknara eftir að rannsókn lauk og heldur ekki á því hvers vegna það dróst í rúma átta mánuði að ljúka gerð málsgagna. Jafnframt var litið til þess að brot X voru alvarleg og beindust að ungum, þroskaskertum dreng með áráttukennda hegðun. X hefði notfært sér þessa veikleika drengsins til að misnota hann kynferðislega og sýnt sterkan og einbeittan brotavilja við framkvæmd brotanna. Var refsing X ákveðin fangelsi í þrjú ár og sex mánuði. Þá var honum gert að greiða A 1.500.000 í bætur.

Hæstiréttur birt 3. desember 2009

12/2009

Ákæruvaldið (Hulda Elsa Björgvinsdóttir settur saksóknari) gegn Inga Frey Arnarssyni (Guðrún Sesselja Arnardóttir hrl) (Steinunn Hólm Guðbjartsdóttir réttargæslumaður)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

I var sakfelldur fyrir brot gegn 1. mgr. 202. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með því að hafa haft samræði við Y þá 12 ára og látið hana hafa við sig munnmök. Talið var sannað að I hefði vitað að Y var yngri en 15 ára er brotið átti sér stað en ekki voru efni til að fallast á það með I að brot hans hefði verið framið af gáleysi né að hann hefði vegna afsakanlegrar vanþekkingar eða misskilnings á réttarreglum mátt telja að verknaður sinn varðaði ekki refsingu, sbr. 3. tl. 1. mgr. 74. gr. almennra hegningarlaga. Var I dæmdur í 18 mánaða fangelsi en þar sem engar viðhlítandi skýringar höfðu verið gefnar á þeim töfum er málið sætti hjá lögreglu og ákæruvaldinu, þótti rétt að skilorðsbinda 15 mánuði af refsingunni í fjögur ár.

Hæstiréttur birt 26. nóvember 2009

358/2009

Ákæruvaldið (Kolbrún Sævarsdóttir saksóknari) gegn X (Páll Arnór Pálsson hrl, Bjarni Guðmundur Björgvinsson hdl) (Hjördís E. Harðardóttir réttargæslumaður)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

X var ákærður fyrir kynferðisbrot gagnvart fimm ára dóttur sinni með því að hafa snert kynfæri hennar innanklæða með hendi sinni og stýrt hendi hennar að limi sínum og látið hana fróa sér þar sem hún lá við hlið hans í hjónarúmi á þáverandi heimili þeirra. Sannað þótti að X hefði snert kynfæri stúlkunnar en gegn eindreginni neitun hans þótt hins vegar varhugavert að telja sannað að hann hefði snert kynfærin innanklæða. Þá þótti ennfremur sannað að X hefði stýrt hendi stúlkunnar að limi sínum en gegn eindreginni neitun hans þótti ósannað að hann hefði látið hana fróa sér. Taldist háttsemi X varða við 2. mgr. 200. gr. og 2. mgr. 202. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að brotin sem X var sakfelldur fyrir voru framin eftir gildistöku laga nr. 61/2007, sem hækkuðu refsimörk fyrrgreindra ákvæða almennra hegningarlaga. Talið var að X hefði brotið gróflega gegn barnungri dóttur sinni og misnotað trúnaðartraust hennar. Með háttsemi sinni rauf X skilorð reynslulausnar samkvæmt 65. gr. laga nr. 49/2005 um fullnustu refsinga og var óafplánuð átta mánaða refsing hans dæmd með í máli þessu og honum gerð refsing í einu lagi. Var refsing hans ákveðin fangelsi í 18 mánuði. Þá var orðið við kröfu stúlkunnar um staðfestingu á bótum henni til handa og voru henni dæmdar 250.000 krónur í bætur.

Héraðsdómur Suðurlands birt 21. júlí 2009

S-195/2009

Ákæruvaldið (Sigríður J. Friðjónsdóttir saksóknari) gegn A (Sigurður Jónsson hrl)
Lykilorð: Kynferðisbrot. Miskabætur.
Málaflokkur: Kynferðisbrot

Ákærði dæmdur til að sæta tólf mánaða fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn dóttur sinni. Ákærði var sýknaður af brotum gegn stjúpdóttur sinni.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 23. mars 2009

S-299/2009

Ákæruvaldið (Sigríður J. Friðjónsdóttir saksóknari) gegn Gísla Birgissyni (Jóhannes Ásgeirsson hrl)
Lykilorð: Kynferðisbrot. Miskabætur.
Málaflokkur: Kynferðisbrot

Ákærði sakfelldur fyrir kynferðisbrot gegn 14 ára stúlku. Var hann talinn hafa haft yfirburðastöðu gagnvart brotaþola, bæði vegna aldurs og aflsmunar, og brot hans talið varða við 1. mgr. 194. gr. og 1. mgr. 202. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 28. janúar 2009

S-138/2009

Ákæruvaldið (Sigríður J. Friðjónsdóttir vararíkissaksóknari) gegn Jóni Sverri Bragasyni (Bjarni Hauksson hrl)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

Karlmaður dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir alvarleg kynferðisbrot gegn dreng þegar hann var á aldrinum 13 til 15 ára. Ákærða var og gert að greiða drengnum miskabætur að fjárhæð 1.500.000 krónur.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 25. maí 2009

S-236/2009

Ákæruvaldið (Sigríður J. Friðjónsdóttir saksóknari) gegn Tryggva Óla Þorfinnssyni (Guðrún Sesselja Arnardóttir hdl)
Lykilorð: Kynferðisbrot.
Málaflokkur: Kynferðisbrot

Ákærði sakfelldur fyrir kynferðisbrot gagnvart ungri stúlku. Refsing 18 mánaða fangelsi.

Héraðsdómur Reykjaness birt 22. maí 2009

S-167/2009

Ákæruvaldið (Kolbrún Sævarsdóttir saksóknari) gegn X (Guðmundur Kristjánsson hrl)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

Karlmaður sakfelldur fyrir kynferðislega áreitni gagnvart ungri dóttur sinni. Með broti sínu rauf ákærði skilorð reynslulausnar og var tekin upp 8 mánaða óafplánuð refsing samkvæmt eldri dómi og ákærða gerð refsing í einu lagi fyrir bæði brotin. Refsing var ákveðin óskilorðsbundið fangelsi í 12 mánuði. Þá var ákærði dæmdur til að greiða brotaþola miskabætur.

Hæstiréttur birt 22. janúar 2009

527/2008

Ákæruvaldið (Sigríður J. Friðjónsdóttir vararíkissaksóknari) gegn X (Sigmundur Hannesson hrl) (Steinunn Hólm Guðbjartsdóttir réttargæslumaður)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

X var ákærður fyrir kynferðisbrot gegn stjúpdóttur sinni, sbr. 1. og 2. mgr. 201. gr. og 1. og 2. mgr. 202. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. X játaði sök. Við ákvörðun refsingar hans var litið til þess að brotin voru mjög alvarleg og beindust að ungri stúlku á heimili hennar þar sem hún átti sér griðastað. Þá voru brotin framin á fjögurra mánaða tímabili og til þess fallin að valda stúlkunni verulegum skaða. Þótti refsing X hæfilega ákveðin fangelsi í sex ár. Þá þótti X með háttsemi sinni hafa bakað sér skyldu til greiðslu miskabóta til stúlkunnar sem ákveðnar voru í héraði 2.500.000 krónur, en krafa X um lækkun þeirra komst ekki að fyrir Hæstarétti.

Hæstiréttur birt 11. desember 2008

284/2008

Ákæruvaldið gegn Sveinbirni R. Auðunssyni (Kristján Stefánsson hrl)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

S var ákærður fyrir kynferðisbrot með því að hafa tvisvar sinnum haft samræði eða önnur kynferðismök við stúlku sem gat ekki spornað við verknaðnum vegna andlegra annmarka og líkamlegrar fötlunar, sbr. 2. mgr. 194. gr. almennra hegningarlaga. S viðurkenndi að hafa haft kynferðismök við stúlkuna en kvaðst ekki hafa notfært sér andlega annmarka og líkamlega fötlun hennar, enda hafi hann ekki gert sér grein fyrir því að hún væri þroskahömluð. Talið var að S hafi ekki getað dulist að stúlkan ætti við andlega annmarka að stríða og ákærði hafi vegna yfirburða sinna notfært sér andlega annmarka hennar. Ekkert var talið fram komið um að S hafi notfært sér líkamlega fötlun stúlkunnar. Þegar ákærði framdi brot sín var í gildi 196. gr. almennra hegningarlaga sem nú er 2. mgr. 194. gr. eins og henni var breytt með 3. gr. laga nr. 61/2007. Með síðast töldu lögunum var kveðið á um lágmark fangelsisrefsingar og hámarksrefsing þyngd til muna. Talið var að sú lagabreyting gæti ekki haft áhrif á refsingu S í málinu. Var refsing S ákveðin fangelsi í 18 mánuði. Þá var S dæmdur til að greiða stúlkunni miskabætur að fjárhæð 800.000 krónur.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 13. nóvember 2008

S-910/2008

Ákæruvaldið (Hulda Elsa Björgvinsdóttir settur saksóknari) gegn X (Guðrún Sesselja Arnardóttir hdl)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

Tvítugur piltur sakfelldur fyrir samræði við tólf ára gamla stúlku. Var honum ákvörðuð 15 mánaða fangelsisrefsing, og voru 12 mánuðir þar af bundnir skilorði.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 14. ágúst 2008

S-967/2008

Ákæruvaldið (Sigríður J. Friðjónsdóttir saksóknari) gegn A
Lykilorð: Kynferðisbrot. Miskabætur.
Málaflokkur: Kynferðisbrot

Ákærði sakfelldur fyrir alvarleg kynferðisbrot gagnvart stúlkubarni. Refsing fangelsi í 6 ár.

Hæstiréttur birt 29. maí 2008

173/2008

Ákæruvaldið gegn Anthony Lee Bellere (Sveinn Andri Sveinsson hrl, Ólafur Helgi Árnason hdl)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

A var ákærður fyrir brot gegn 3. mgr. 202. gr., 209. gr. og 194. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með nánar tilgreindri háttsemi gegn þremur ungum stúlkum. Þá var hann einnig ákærður fyrir vörslur á barnaklámi og þjófnað. A játaði sök vegna þjófnaðarins en neitaði sök vegna annarra ákæruefna. Var A sakfelldur fyrir þá háttsemi sem honum var gefin að sök. Við ákvörðun refsingar A var litið til þess að hann er síbrotamaður. Þá var brotavilji hans einbeittur og brot hans beindust að ungum reynslulitlum stúlkum, sem hann beitt blekkingum til að komast í samband við. Þótti refsing A hæfilega ákveðin fangelsi í fimm ár. Þá þótti A með háttsemi sinni hafa bakað sér skyldu til greiðslu miskabóta til stúlknanna sem þóttu hæfilega ákveðnar á bilinu 200.000 til 1.000.000 krónur.

Hæstiréttur birt 19. maí 2008

250/2008

Lögreglustjórinn á Selfossi gegn X (Sigurður Jónsson hrl)

L krafðist þess að hundur sem talinn var í eigu X yrði afhentur sér vegna ætlaðs brots gegn samþykkt um hundahald í Árborg og lögreglusamþykkt fyrir Árnessýslu. Héraðsdómur féllst á kröfu L án þess að X væri gefinn kostur á að gæta hagsmuna sinna við meðferð málsins. Í dómi Hæstaréttar var vísað til 1. mgr. 70. gr. stjórnarskrárinnar og 1. mgr. 6. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994 og sagt að þessi ákvæði fælu í sér staðfestingu á meginreglu sem ótvírætt gilti á Íslandi. Til hennar heyrði, að eigandi þeirra réttinda og hagsmuna, sem fjallað væri um fyrir dómi, ætti þess kost að gæta þeirra við meðferð máls, nema sérstakar ástæður mæltu samkvæmt eðli máls gegn því, svo sem rannsóknarhagsmunir í opinberu máli. Með því að X hafði ekki verið gefinn kostur á því að gæta hagsmuna sinna í málinu var ekki talið að fyrrgreindrar meginreglu hefði verið gætt nægjanlega. Var því óhjákvæmilegt að fella hinn kærða úrskurð úr gildi og vísa málinu heim í hérað til löglegrar meðferðar og uppkvaðningar úrskurðar á ný.

Hæstiréttur birt 15. maí 2008

539/2007

Ákæruvaldið (Kolbrún Sævarsdóttir saksóknari) gegn Róberti Árna Hreiðarssyni (Einar Gautur Steingrímsson hrl) (Steinunn Hólm Guðbjartsdóttir hrl)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

R var ákærður fyrir brot gegn 3. og 4. mgr. 202. gr. og 209. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með nánar tilgreindri háttsemi gegn fjórum stúlkum og fyrir vörslur á barnaklámi. Var R sakfelldur fyrir verulegan hluta þeirrar háttsemi sem honum var gefin að sök en sýknaður af vörslum á barnaklámi. Við ákvörðun refsingar R var litið til þess að hann nýtti sér yfirburði aldurs og reynslu gagnvart fjórum ungum stúlkum sem hann vissi að stóðu höllum fæti. Voru brot hans ítrekuð og alvarleg og brotavilji hans einbeittur. Þá var litið til þess að ákærði var starfandi lögmaður á þeim tíma sem brotin voru framin og voru því einkar ljósir þeir mikilsverðu hagsmunir er brot hans beindust að. Þótti refsing R hæfilega ákveðin fangelsi í þrjú ár. Þá þótti R með háttsemi sinni hafa bakað sér skyldu til greiðslu miskabóta til stúlknanna sem þóttu hæfilega ákveðnar á bilinu 300.000 til 1.000.000 krónur. R var jafnframt sviptur réttindum til að vera héraðsdómslögmaður.

Hæstiréttur birt 23. apríl 2008

658/2007

Ákæruvaldið gegn X (Sveinn Andri Sveinsson hrl, Ólafur Helgi Árnason hdl)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

X var ákærður fyrir brot gegn 1. og 2. mgr. 202. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með nánar tilgreindri háttsemi gegn sex stúlkum, en þrjár þeirra voru frænkur hans. Þá var hann einnig ákærður fyrir áfengislagabrot. Var ákærði sakfelldur fyrir verulegan hluta þeirrar háttsemi sem honum var gefin að sök. Tekið var fram að hvert brot um sig sætti sjálfstæðu mati og yrði sakfelling af einu, eða það að aðrar kærur hafi verið lagðar fram sem ekki hafi leitt til ákæru, ekki notað til sönnunar um sök af öðru. Við ákvörðun refsingar X var litið til þess að um var að ræða mörg brot framin yfir langt tímabil gegn börnum og unglingum og sum þeirra voru mjög alvarleg. Þá nýtti hann sér trúnað og traust sem stúlkurnar báru til hans sem náins ættingja. Þótti refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í fjögur ár. Þá þótti ákærði með háttsemi sinni hafa bakað sér skyldu til greiðslu miskabóta til stúlknanna sem þóttu hæfilega ákveðnar á bilinu 300.000 til 1.000.000 krónur.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 19. desember 2007

S-11/2008

Ákæruvaldið (Sigríður Elsa Kjartansdóttir saksóknari) gegn Sveinbirni R. Auðunssyni (Brynjólfur Eyvindsson hdl)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

Karlmaður dæmdur í tveggja ára fangelsi og til greiðslu miskabóta fyrir að hafa í tvígang haft kynferðismök við unglingsstúlku og notfært sér að hún gat ekki spornað við verknaðinum sökum andlegra annmarka.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 5. febrúar 2008

S-1016/2007

Ákæruvaldið (Ragnheiður Harðardóttir vararíkissaksóknari) gegn Anthony Lee Bellere (Hilmar Ingimundarson hrl)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

Karlmaður dæmdur í 4 ára fangelsi fyrir nauðgun og önnur kynferðisbrot gegn þremur ungum stúlkum, vörslu barnakláms og þjófnað. Honum var einnig gert að greiða brotaþolum miskabætur

Hæstiréttur birt 15. nóvember 2007

594/2007

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum (Júlíus Magnússon fulltrúi) gegn X (Ingimar Ingimarsson hdl)
Lykilorð: Kærumál. Farbann.

Á grundvelli 110. gr., sbr. b. liður 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála var X gert að sæta farbanni allt til miðvikudagsins 12. desember 2007.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 14. nóvember 2007

S-857/2007

Ákæruvaldið (Sigríður Elsa Kjartansdóttir saksóknari) gegn X (Guðrún Sesselja Arnardóttir hdl)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

Ákærði sakfelldur fyrir kynferðisbrot gagnvart sex stúlkum. Var hann dæmdur til 2 og 1/2 árs fangelsisvistar og til að greiða þeim skaðabætur á bilinu 300.000 til 800.000 krónur.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 26. september 2007

S-190/2007

Ákæruvaldið (Kolbrún Sævarsdóttir saksóknari) gegn Róberti Árna Hreiðarssyni (Einar Gautur Steingrímsson hrl)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

Ákærði sakfelldur fyrir kynferðisbrot gagnvart fjórum ungum stúlkum. Tældi hann tvær þeirra til kynferðismaka, en greiddi tveim öðrum fyrir kynferðisleg samskipti. Þá var ákærði sakfelldur fyrir vörslur á barnaklámi. Refsing ákveðin fangelsi í 3 ár. Ákærði, sem er starfandi lögmaður, var jafnframt sviptur málflutningsréttindum sínum.

Hæstiréttur birt 19. febrúar 2007

91/2007

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Jón H. Snorrason saksóknari) gegn X (enginn)

L kærði úrskurður héraðsdóm, þar sem vísað var frá dómi kröfu um að X skyldi sæta geðrannsókn og að dómkvaddur yrði geðlæknir til að framkvæma rannsóknina. Ekki var fallist á að þeir annmarkar væru á kröfunni er leiða ættu til frávísunar hennar. Var hinn kærði úrskurður því felldur úr gildi og lagt fyrir héraðsdóm að taka málið til meðferðar.

Hæstiréttur birt 12. janúar 2007

29/2007

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Jón H. Snorrason saksóknari) gegn X (Hilmar Ingimundarson hrl)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ekki var talið að L væri bær til að krefjast gæsluvarðhalds yfir X, þar sem forræði á rekstri málsins hafði færst til ríkissaksóknara eftir að hann gaf út áfrýjunarstefnu í því. Samkvæmt þessu var málinu er laut að áframhaldandi gæsluvarðhaldi yfir X vísað frá héraðsdómi.

Hæstiréttur birt 12. janúar 2007

18/2007

Sýslumaðurinn á Seyðisfirði (Lárus Bjarnason sýslumaður) gegn X (Eva Dís Pálmadóttir hdl)
Lykilorð: Kærumál. Farbann. Aðild.

X kærði úrskurð héraðsdóms um að hann skyldi sæta farbanni samkvæmt 110. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála, sbr. b. lið 1. mgr. 103. gr. sömu laga. Talið var að ríkissaksóknari hefði haft vald til að ákveða að lögreglustjórinn á Seyðisfirði skyldi krefjast farbanns yfir X á sama tíma og forræði rannsóknarinnar færðist til lögreglustjórans á Eskifirði. Var úrskurðurinn staðfestur að öðru leyti með vísan til forsendna.

Hæstiréttur birt 8. júní 2004

235/2004

Lögreglustjórinn í Reykjavík (Egill Stephensen saksóknari) gegn X (Jón Einar Jakobsson hdl)
Lykilorð: Kærumál. Gagn. Verjandi.

L fór fram á að héraðsdómari framlengdi í þrjár vikur frest hans til að synja verjanda X um aðgang að rannsóknargögnum varðandi opinbert mál sem beindist að X, sbr. b. lið 1. mgr. 74. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Féllst héraðsdómur á kröfu L en tók ekki afstöðu til kröfu um skýrslutöku af X og var ekkert bókað um hvenær hún skyldi fara fram. Í Hæstarétti var tekið fram að L hefði ekki leitt X og aðra grunaða í málinu fyrir dómara til að gefa skýrslu. Nægði L ekki að vísa til þess að í ljósi stöðu málsins væri ekki enn tímabært að leiða X fyrir dóm til skýrslugjafar. Var kröfu L um framlengingu frestsins því hafnað.

Hæstiréttur birt 17. mars 2004

110/2004

Ríkislögreglustjóri (Jón H. Snorrason saksóknari) gegn X (Björgvin Jónsson hrl)
Lykilorð: Kærumál. Gögn. Verjandi.

R fór fram á að héraðsdómari tæki skýrslu af X og framlengdi jafnframt í þrjár vikur frest hans til að synja verjanda X um aðgang að rannsóknargögnum varðandi opinbert mál sem beindist að X, sbr. b. lið 1. mgr. 74. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Héraðsdómari féllst á kröfu R og voru X og aðrir sakborningar í málinu leiddir fyrir dómara til að gefa skýrslu. X kærði ákvörðun héraðsdómara um framlengingu frestsins. Í Hæstarétti var tekið fram að R hefði haft nægt ráðrúm til að fara fram á frekari skýrslutöku yfir sakborningum fyrir dómi. Nægði R ekki að vísa til þess að hann myndi leiða hina grunuðu fyrir dóm til skýrslugjafar um leið og mikilvæg gögn lægju fyrir. Var kröfu R um framlengingu frestsins því hafnað.

Hæstiréttur birt 2. nóvember 2001

416/2001

Ákæruvaldið gegn X
Lykilorð: Kærumál. Vitni. Skýrslugjöf.

X var ákærður fyrir hilmingu og þjófnað. Hæstiréttur taldi sannað að X hefði tekið við úr höndum óþekkts manns tösku og bakpoka, sem höfðu að geyma myndavélar o.fl., og falið á heimili sínu þrátt fyrir að honum hlyti að hafa verið ljóst að munanna hefði verið aflað með auðgunarbroti. Þá taldi Hæstiréttur sannað með vísan til játningar X og annarra gagna málsins að hann hefði farið inn í nýbyggingu og stolið þaðan rafhlöðuborvél og naglabyssu. X hafði hlotið 27 refsidóma frá árinu 1978 og voru framangreind brot framin fyrir uppsögu síðasta dómsins. Var honum dæmdur hegningarauki, sbr. 78. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, og refsing hans ákvörðuð með hliðsjón af 77. gr., 71. gr., 72. gr. og 255. gr. sömu laga, en J var vanaafbrotamaður. Var X dæmdur í 6 mánaða fangelsisvist.

Hæstiréttur birt 21. júní 2001

62/2001

Ákæruvaldið (Bogi Nilsson ríkissaksóknari) gegn Ásgeiri Inga Ásgeirssyni (Erlendur Gíslason hrl)
Lykilorð: Manndráp. Miskabætur.
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Á var ákærður fyrir manndráp með því að hafa ýtt ÁP yfir handrið á 10. hæð fjölbýlishúss með þeim afleiðingum að hún féll fram af svölunum og lést af völdum mikilla áverka er hún hlaut, er hún lenti á steinstétt. Að virtum gögnum málsins og nokkrum sérstaklega tilteknum atriðum taldi Hæstiréttur það vera hafið yfir skynsamlegan vafa, að Á hefði banað ÁP. Þau hefðu bæði verið verulega ölvuð og hefði atlaga Á að stúlkunni í kjölfar samfara, sem rofnar voru eftir hennar kröfu, og svívirðinga af hans hálfu verið snörp og aflmikil, en hún hefði ekki haft svigrúm eða getu til að verjast henni. Þótti ljóst af álitsgerðum dómkvaddra matsmanna, að Á hefði þurft að fylgja hrindingu sinni eftir með verulegum krafti. Var talið fullvíst, að það hefði hann einmitt gert. Bent var á, að Á væri einn til frásagnar um síðustu atvikin, er leiddu ÁP til dauða. Héraðsdómur hefði ekki talið framburð hans um þau fá staðist og ekki væri efni til að ætla, að mat á sönnunargildi munnlegs framburðar Á fyrir dómi væri rangt svo að einhverju skipti um úrslit málsins. Var talið, að Á hefði hlotið að vera ljóst, að svo ofsafengin atlaga við jafn hættulegar aðstæður og raun var á myndi óhjákvæmilega leiða til dauða ÁP. Var hann sakfelldur og refsing hans ákveðin 16 ára fangelsi. Á var jafnframt dæmdur til að greiða foreldrum ÁP miskabætur og bætur vegna útfararkostnaðar.

Hæstiréttur birt 19. maí 2000

189/2000

Lögreglustjórinn í Reykjavík (Egill Stephensen saksóknari) gegn Miyako Þórðarson (Gestur Jónsson hrl)

Talið var M, sem starfaði sem prestur heyrnarlausra og aðstoðað hafði B við að skýra móður sinni frá því er faðir hennar sýndi henni kynferðislega áreitni, væri bundinn þagnarskyldu gagnvart B og einnig móður hennar, að því marki, sem móðirin tjáði sig eða lét í ljósi viðbrögð við frásögn B að M viðstaddri. Þar sem hegningarlagaákvæðið, sem háttsemi föðursins gat varðað við, kvað ekki á um tiltekna lágmarksrefsingu þótti ekki fullnægt skilyrði b. liðar 55. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála, að um væri að ræða afbrot, sem varðaði minnst tveggja ára fangelsi, til þess að M bæri að gefa skýrslu fyrir dómi án leyfis þess, sem í hlut ætti. Þar sem ekki var fram komið að brotaþoli eða móðir hennar hefðu gefið M leyfi til að skýra frá framangreindum atburði var úrskurður héraðsdóms um að M bæri að gefa skýrslu fyrir dómi samkvæmt c. lið 74. gr. laga nr. 19/1991, sbr. 23. gr. laga nr. 36/1999, felldur úr gildi.

Hæstiréttur birt 4. nóvember 1999

252/1999

Ákæruvaldið (Bogi Nilsson ríkissaksóknari) gegn X (Hilmar Ingimundarson hrl)
Lykilorð: Ómerking. Heimvísun.

X var ákærður fyrir að hafa átt í kynferðissamabandi við þrettán ára gamla stúlku. Við aðalmeðferð fyrir héraðsdómi bar stúlkan, að X hefði komið til síðbúinnar fermingarveislu sinnar og þá verið kunnugt um tilefnið, en upplýsingar um þetta komu ekki fram í rannsóknargögnum lögreglu. Talið var, að fullt tilefni hefði verið til frekari skýringar þessa atriðis við meðferð málsins í héraði, en ekkert var vikið að þessu í niðurstöðum héraðsdóms. Þótti ekki verða séð, að héraðsdómari hefði lagt sérstakt mat á trúverðuleika framburðar stúlkunnar og væri mat hans á framburði X óskýrt. Að þessu virtu þótti ekki verða hjá því komist að ómerkja sýknudóm héraðsdóms og vísa málinu heim í hérað til nýrrar aðalmeðferðar og dómsálagningar.