Ákæruvaldið (
Kolbrún Benediktsdóttir settur saksóknari)
gegn
Aldísi Ósk Egilsdóttur (
Sveinn Andri Sveinsson hrl)
A var sakfelld fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna í máli sem dæmt var í héraði samkvæmt heimild í 1. mgr. 161. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Ákæruvaldið krafðist mildunar refsingar fyrir Hæstarétti. A hafði áður gerst sek um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna en var þá ekki fullra 18 ára. Refsing hennar var því ákveðin eins og um fyrsta brot væri að ræða og hún talin hæfileg 140.000 krónur í sekt. Eldra brot A gat í ljósi 71. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 ekki haft ítrekunaráhrif í samræmi við 6. mgr. 102. gr. umferðarlaga nr. 50/1987. Fór því um ökuréttarsviptingu A eftir 4. mgr. ákvæðisins en ekki 6. mgr. þess og henni gert að sæta sviptingu ökuréttar í 12 mánuði.
Ákæruvaldið (Björn Hrafnkelsson fulltrúi) gegn
Daða Bertelssyni (enginn)
Karlmaður sakfelldur fyrir vörslur fíkniefna
Ákæruvaldið (Björn Hrafnkelsson fulltrúi) gegn
Baldvini Oddi Sigurðssyni I
Karlmaður sakfelldur fyrir akstur bifreiðar undir áhrifum fíkniefna og fyrir vörslur fíkniefna.
Ákæruvaldið (Karl Ingi Vilbergsson fulltrúi) gegn
Páli Gísla Jónssyni
Ákærði dæmdur til greiðslu sektar vegna líkamsárásar skv. 1. mgr. 217. gr. almennra hegningarlaga.
Ákæruvaldið (Óli Ingi Ólason fulltrúi) gegn
Páli Þórðarsyni (vínandamagn í blóði 1,61‰)
Ákærði sakfelldur fyrir ölvunarakstur.
Ákæruvaldið (Daði Jóhannesson fulltrúi) gegn
Hauki Steinari Baldurssyni
Maður sakfelldur fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna og fyrir vörslur fíkniefna.
Ó krafðist þess að AR og AG efndu kaupsamning sem komst á með aðilum um rúmlega 50 m² herbergi í íbúð AR og AG í Mosfellsbæ með því að gefa út afsal til hans fyrir herberginu og afhenda honum það, ásamt tilheyrandi hlutdeild í sameign og lóðarréttindum, að viðlögðum dagsektum, gegn greiðslu á nánar tilgreindri fjárhæð. Í dómi Hæstaréttar kom fram að ákvæði 11. gr. laga nr. 75/1997 um samningsveð stæði því ekki í vegi að fasteign væri seld þó að á henni hvíldu veðskuldir. Talið var að AR og AG hefðu vanefnt kaupsamninginn við Ó með því að afhenda eignarhlutann ekki á umsömdum degi og aflétta ekki veðskuldum af honum, en þau hefðu ekki lagt fram gögn um að þeim hafi verið þetta ómögulegt. Ó hafði greitt fyrri greiðslu kaupverðs í samræmi við kaupsamninginn en honum var ekki skylt að greiða síðari greiðsluna vegna vanefnda AR og AG. Ekki var talið að AR og AG hefðu haft lögmætar forsendur fyrir riftun kaupanna sem þau höfðu lýst yfir. Þá voru engin efni til að taka til greina málsástæðu AR og AG um að 36. gr. samningalaga leiddi til þess að sýkna bæri þau af kröfu Ó. Var krafa Ó því tekin til greina.
Ákæruvaldið (Daði Kristjánsson fulltrúi) gegn
Eyjólfi Kristjánssyni
Ákærði var dæmdur til greiðslu 28.000 króna sektar vegna fíkniefnalagabrots.
Ákæruvaldið (Daði Kristjánsson fulltrúi) gegn
Matthildi Eiðsdóttur
Ákærða sakfelld fyrir vörslu fíkniefna.
Ákæruvaldið (Daði Kristjánsson fulltrúi) gegn
Ólafi Friðrikssyni
Ákærði dæmdur til að greiða 37.500 króna sekt vegna fíkniefnalagabrots og sæta upptöku efnanna.
Ákæruvaldið (Einar Laxness fulltrúi) gegn
Bernhardi Jónasi Trauner
Ákærði dæmdur til greiðslu 45.000 króna sektar fyrir vörslur fíkniefna og til að sæta upptöku efnanna.
Ákæruvaldið (Daði Kristjánsson fulltrúi) gegn
Berglindi Friðbergsdóttur
Ákærðu gert að greiða sekt fyrir vörslu fíkniefna.
Ákæruvaldið (Guðjón Magnússon fulltrúi) gegn
Stefán Georg Ármannssyni
Sakfellt fyrir fjársvik, með því að hafa svikið út reiðufé með skuldfærslum á kreditreikning.
Samþykki veðhafa lá ekki fyrir því að herbergi var skilið frá eign stefndu. Var því ekki unnt að viðurkenna eignarrétt stefnanda að herberginu.
Ákæruvaldið (Daði Kristjánsson fulltrúi) gegn
Sigurði Inga Jónassyni
Sakfellt fyrir tilraun til fíkniefnalagabrots.
Ákæruvaldið (Eyjólfur Eyjólfsson fulltrúi) gegn
Haraldi Karli Reynissyni
Sakfellt fyrir vörslur á 0,45 g af kókaíni.
Ó var ákærður og sakfelldur fyrir innflutning, sölu og vörslu á fíkniefnum og þjófnað Var hann dæmdur til fangelsisrefsingar og upptöku efnanna. G var ákærður og sakfelldur fyrir þjófnað og var hann dæmdur til fangelsisrefsingar og greiðslu skaðabóta. S var ákærður fyrir þjófnað, fíkniefnabrot og akstur án ökuréttar. Áfrýjunarstefna í málinu hafði verið birt honum í Lögbirtingablaðinu og var það talið heimilt. Var hann sakfelldur fyrir hluta þjófnaðarbrotanna og akstur án ökuréttar og dæmdur til fangelsisrefsingar og greiðslu skaðabóta.