Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. S-401/2007:

Ákæruvaldið

(Óli Ingi Ólason fulltrúi)

gegn

Páli

Þórðarsyni

Mál

(vínandamagn í blóði 1,61‰)

Umferðarlagabrot. Ölvunarakstur.

Ákærði sakfelldur fyrir ölvunarakstur.

Mál þetta, sem dómtekið var í dag, er höfðað með ákæru útgefinni af lögreglustjóranum í Reykjavík 12. mars 2007 á hendur Páli Þórðarsyni, kt. […] Laufási 1, Garðabæ, fyrir umferðarlagabrot með því að hafa ekið bifreiðinni PN- 640, aðfaranótt föstudagsins 27. október 2006, undir áhrifum áfengis (vínandamagn í blóði 1,61‰) um Grettisgötu í Reykjavík, uns lögregla stöðvaði aksturinn við gatnamót Grettisgötu og Klapparstígs.

Þetta er talið varða við 1. mgr. sbr. 3. mgr., 45. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr., umferðarlaga nr. 50/1987, sbr. 1. mgr. laga nr. 48/1997.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til sviptingar ökuréttar skv. 101. og 102. gr. nefndra umferðarlaga, sbr. 25. gr. laga nr. 44/1993, 2. gr. laga nr. 23/1998, 8. gr. laga nr. 84/2004 og 18. gr. laga nr. 66/2006.

Ekki hefur náðst til ákærða þrátt fyrir margítrekaðar tilraunir þannig að unnt væri að birta fyrir honum sjálfum fyrirkall í máli þessu. Var því gefið út fyrirkall þann 12. september sl. og það löglega birt í Lögbirtingarblaðinu með heimild í 2. mgr. 20. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Var í fyrirkallinu tekið fram að yrði ekki sótt þing að forfallalausu gæti ákærði búist við að dómur yrði lagður á málið að honum fjarstöddum, sbr. 1. mgr. 126. gr. sömu laga. Ákærði sótti ekki þing og boðaði ekki forföll. Dómurinn telur þannig sannað með vísan til ofanritaðs og gagna málsins að öðru leyti, að ákærði hafi framið þá háttsemi sem ákært er út af og er brot ákærða rétt heimfært til refsiákvæða í ákærunni Ákærði er fæddur í febrúar 1964. Á hann að baki nokkurn sakaferil allt frá árinu 1992. Ekki er ástæða til að fjalla sérstaklega um sakaferilinn þar sem hann hefur ekki ítrekunaráhrif á það brot sem ákærði er nú sakfelldur fyrir. Með hliðsjón af broti ákærða er refsing hans ákveðin 160.000 króna sekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá birtingu dóms þessa að telja, en ella sæti ákærði fangelsi í  12 daga.

Ákærði er sviptur ökurétti í 18 mánuði frá birtingu dómsins að telja.

Ákærði greiði 23.892 krónur í sakarkostnað.

D ó m s o r ð:

Ákærði, Páll Þórðarson, greiði 160.000 króna sekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá birtingu dóms þessa að telja, en sæti ella fangelsi í  12 daga.

Ákærði er sviptur ökurétti í 18 mánuði frá birtingu dómsins að telja.

Ákærði greiði 23.892 krónur í sakarkostnað.

Símon Sigvaldason.